Í gærmorgun vaknaði ég nokkuð á undan vekjaraklukkunni. Labbaði af stað í vinnuna rétt fyrir klukkan sjö og var 36 mínútur að ganga 2,7km. Daglegri framleiðslu lauk um tólf en eftir hádegi var send til okkur endurnýjun upp á 999 kreditkort. Ein skrá með einu korti kom ekki yfir á framleiðsluvélina því um var að ræða löngu útrunna tegund. Framleiddum ca 2/3 af þessu skammti, hættum upp úr þrjú. Ein af okkur þremur gat farið heim um hálffjögur en við hinar tvær vorum að bíða eftir að hægt væri að ljúka ákveðnu verkefni. Klukkan var farin að ganga fimm þegar hægt var að vinda sér í það mál. Hin samstarfskona mín í A-hópnum skutlaði mér heim upp úr klukkan fimm.
Ég var líka vöknuð á undan vekjaraklukkunni í morgun. Gaf mér mjög góðan tíma í morgunverkin og fór svo á bílnum í vinnuna þrátt fyrir ágætis gönguveður. Ýmislegt skondið kom upp í framleiðslumálunum í dag, vélin var í lagi en mistök voru gerð bæði í plast- og formanotkun fyrir ákveðna tegund. Mistökin voru leyst farsællega þannig að ekkert fer frá okkur rangt afgreitt.
Kom heim rétt fyrir hálffjögur. Oddur Smári var með smá óþægindi v/sveppasýkingarinnar en hann fór engu að síður á vaktina sína rétt fyrir fjögur. Davíð Steinn var ekki heima og er ekki kominn heim enn. Í gær fór hann í mjög langan göngutúr en ég held að hann hafi verið kallaður á aukavakt í dag. Sjálf var ég sótt upp úr klukkan fjögur og þá var ég tilbúin í sjósundsferð. Vorum næstum korter útí. Fleiri voru í sömu erindagjörðum en ekkert svo margir.
Annars er ég að lesa aftur bókina Ég heiti Ísbjörg ég er ljón eftir Vigdísi Grímsdóttur.