Eftir nokkuð langa prjónapásu og mikla umhugsun er ég að hugsa um að prjóna enn eitt sjalið. Og jafnvel kannski tvö í viðbót. Kom við í Hagkaup í Skefunni eftir sund áðan og keypti mér m.a. nokkrar dokkur og tvo liti af kambgarni. Það gæti alveg farið svo að ég byrji strax í kvöld.
Annars ætlar þessi fyrsta heila vinnuvika á árinu að verða frekar fljót að líða. Sl. þriðjudag hafði ég tök á því að hætta aðeins fyrr í vinnunni. Skrapp heim, hringdi í pabba, náði í sunddótið og dreif mig í sund. Náði að klára rútínuna á ca klst. Úr sundi fór ég beint á fyrsta safnaðarstjórnarfund ársins sem var haldinn heima hjá formanninum sem býr í Grafarvoginum. Ritarinn hafði boðað forföll svo ég var beðin um að hlaupa í ritaraskarðið. Fundurinn stóð yfir í um það bil klukkutíma en strax á eftir var okkur boðið í mat, dýrindis kjötsúpu og kaffi og með því á eftir. Löngu eftir að við vorum búin að gæða okkur á veitingunum héldum við áfram að spjalla um eitt og annað og klukkan var langt gengin í tíu þegar ég kom heim.
Er ekki farin að demba mér í sjóinn á nýja árinu. Ákvað að fara frekar í sund í gær. Áður kom ég við í Fiskbúð Fúsa og keypti "allsbera" ýsu og hrogn sem ég hafði í matinn í gær handa mér einni. Annar sonurinn er farinn í nokkurra daga heimsókn til föðurforeldra sinna og hinn var að vinna til klukkan átta og var búinn að borða þegar hann kom heim. Þannig að ég bjó til einskonar plokkfisk úr afgangnum í kvöld, hafði hluta af hrognunum í þeirri blöndu og fannst þetta frekar gott.