Það var verið að eitra fyrir silfurskottum í Drápuhlíð 21 milli klukkan eitt og hálfþrjú í dag. Ekki er ráðlagt að vera heima næstu fjóra tíma á eftir. Strákarnir fóru í eina Sorpuferð upp úr klukkan tólf. Ég var komin heim þar sem ég misskildi tímasetninguna. Kannski var það eins gott því íbúarnir á hæðinni fyrir neðan voru ekki heima og allt harðlæst hjá þeim. Þau gátu bjargað því, ein dóttir þeirra kom rétt fyrir klukkan eitt á sama tíma og sá sem tók verkið að sér. Ég labbaði með honum um allt til að byrja með en svo náði hann í grímu, hanska og eitrunardæmið út í bíl og byrjaði í kjallaranum. Strákarnir komu stuttu síðar og einkabílstjórinn fékk þá góðu hugmynd um að nota tækifærið og skreppa í heimsókn á Hellu. Þangað vorum við komin um þrjú og erum þar enn. Verðum líklega ekki komin heim fyrr en um tíu í kvöld.
Mikið er annars búið að ganga á, síðustu viku, eða frá því var ljóst hvenær yrði eitrað. Kosturinn við svona er sá að maður neyðist til að taka aðeins betur til.
Mætti í sund um átta í gærmorgun og kom svo við og fékk mér kaffi hjá Oddi í Öskjuhliðinni um tíu. Um hálftólf var ég komin upp í kirkju. Þangað mættu allir úr stjórninni til að undirbúa heitu réttina á kór-hlaðiborðið eftir messuna og aðstoða kórinn við að undirbúa salina. Klukkan var að verða fimm þegar ég kom heim og þá fór ég með Davíð Steini niður að undirbúa geymsluna fyrir eitrun en Oddur Smári fór í Sorpuferð og fékk þar með að keyra THM88 í fyrsta skipti. Bíllinn er ennþá á nafni pabba en því verður breytt fljótlega og hann færður yfir á mitt nafn.