Annars ætlaði ég að segja frá svolitlu krúttlegu sem Davíð Steinn spurði mig um daginn. Ég var að minnast á eitthvað fólk sem minnti hann á tvíburavinina sem þeir eignuðust um tveggja ára aldurinn. Hann hafði orð á því að það væri orðið mjög langt síðan hann hafði hitt þau og spurði hvort ég og mamma þeirra værum ekki vinkonur ennþá? Þetta fékk mig til að slá á þráðinn. Náði sambandi í þriðju tilraun. Hin tvíburamamman var glöð að heyra í mér. Hún var reyndar svolítið upptekin en tók niður númerið mitt og ætlar að vera í sambandi mjög fljótlega. Við náðum ekkert að spjalla að ráði en það var samt eins og við hefðum verið að tala saman síðast í gær.
3.5.07
Annars ætlaði ég að segja frá svolitlu krúttlegu sem Davíð Steinn spurði mig um daginn. Ég var að minnast á eitthvað fólk sem minnti hann á tvíburavinina sem þeir eignuðust um tveggja ára aldurinn. Hann hafði orð á því að það væri orðið mjög langt síðan hann hafði hitt þau og spurði hvort ég og mamma þeirra værum ekki vinkonur ennþá? Þetta fékk mig til að slá á þráðinn. Náði sambandi í þriðju tilraun. Hin tvíburamamman var glöð að heyra í mér. Hún var reyndar svolítið upptekin en tók niður númerið mitt og ætlar að vera í sambandi mjög fljótlega. Við náðum ekkert að spjalla að ráði en það var samt eins og við hefðum verið að tala saman síðast í gær.
2.5.07
30.4.07
Davíð vann meira og minna alla helgina en fór þó ekki í vinnu fyrr en um fimm leytið í gær, eftir leikinn Arsenal - Fulham. En í staðinn var hann að vinna langt fram á nóttina.
Ég er byrjuð að sauma engilinn. Það var erfitt að byrja en þegar ég var komin af stað var þetta bara gaman. Líklega þyrfti ég að nota fingurbjörg því ég er orðin sár á góm hægri löngutangar, nálin gefur engin grið þótt ég sé bara að ýta á eftir henni. Las Valkyrjur eftir Þráinn Bertelsson um helgina. Bókin er spennandi og meinfyndin á köflum, enda var ég alls ekki lengi að lesa hana.
26.4.07
24.4.07
Davíð Steinn hjólaði sjálfur á kóræfingu upp úr hálffimm í gær. Ég skutlaði Oddi Smára á karateæfingu, þá síðustu fyrir gráðunina, rétt fyrir sex. Sagði honum að líklega yrði hann að ganga heim því ég ætlaði að vera tilbúin með matinn þegar allir skiluðu sér heim. Strákurinn var svo heppinn að pabbi hans gat komið við og sótt hann er hann var að koma úr vinnu. Davíð var semsagt að vinna til klukkan sjö í gærkvöld. Eftir matinn hellti ég upp á smá kaffi fyrir manninn en stakk svo af. Var komin í Hafnarfjörðinn rétt fyrir hálfníu og við tvíburahálfsysturnar byrjuðum kvöldið á klukkutíma göngutúr og á eftir var saumað til klukkan hálftólf. Ég var með allt ósaumað efni með mér, bæði myndir, jólakort og jólalöber og þóttist ætla að dvelja á meðan ég lyki öllum þessum verkefnum. Það hefði nú þýtt það að ég hefði sest upp hjá vinkonu minni í nokkra mánuði. Ég náði að klára jólakortið með jólasveininum sem situr við opinn eld og þegar ég verð búin með bjöllurnar (byrjaði ekki á þeim í gærkvöldi) mun ég taka mynd af kortunum og setja á bloggið. Maðurinn minn var vakandi og að horfa á sjónvarpið þegar ég kom heim um miðnætti. Þá var hann ekki búinn að sofa síðan aðfaranótt sunnudags...
23.4.07
20.4.07
Ég er alveg á því að mér finnist ekki vera föstudagur fyrr en einhvern tímann eftir hádegi í dag. Það er svo sem allt í lagi, amk á meðan ég mæti ekki óvart til vinnu á morgun haldandi það að það sé þriðjudagur.
Gærdagurinn var bara rólegur hjá mér. Hellti upp á könnuna um níu og klukkutíma síðar fór Davíð í vinnuna og ég sá hann ekki aftur fyrr en um hálfníu um kvöldið. Ég skrapp til norsku vinkonu minnar og lásum við saman esperanto í einn og hálfan tíma. Þegar ég kom heim var Dagur, vinur strákanna kominn en Oddur Smári var farinn til einnar bekkjarsystur sinnar. Hann fór svo með henni í Fjölskyldu og húsdýragarðinn og var þar fram eftir degi. Ég spurði Davíð Stein hvort þeir félagarnir vildu ekki kíkja líka og þegar Dagur hafði fengið leyfi skutlaði ég þeim. Okkur kom saman um að ég myndi sækja þá um þrjú nema þeir myndu hringja áður. Það var einmitt það sem gerðist, Davíð Steinn hringdi um hálfþrjú og bað um að þeir yrðu sóttir. Tveim tímum seinna skutlaði ég þeim á frjálsíþróttaæfingu. Oddur Smári hafði ákveðið að sleppa æfingunni. Hann hitti frændur sína í húsdýragarðinum og slóst í för með þeim.
Ég var heima að mestu og saumaði næstum út í eitt enda er ég næstum búin með Kossinn. Ég á bara eftir að sauma það hvíta í hvora höku og svo merkja mér myndina. Hvort er það þá Blái Engillinn eða þessi næst og svo á ég fullt af ósaumuðum jólakortum líka og þar eru flest munstrin það flott að ég mun sauma þau aftur og aftur og aftur...
18.4.07
17.4.07
16.4.07
Þegar ég kom heim úr jógatíma á laugardagsmorguninn var Bríet frænka komin. Hún kom hlaupandi til mín og fagnaði mér vel. Helga og Ingvi voru í smáferð með vinnufélögum hans og þeirra mökum. Hulda hafði gist hjá vinkonu og var hjá henni. Bríet var voða hress og skemmtileg. Um eittleytið hafði Davíð orð á því að hann þyrfti að drífa sig í vinnuna. Þá tók sú stutta utan um annan handlegginn á honum og sagði: -"Nei, ekki þú fara að vinna. Bara mamma". Hann fór því ekki fyrr en hún hafði verið sótt. Ég hafði orð á því hvort við ættum að spá í að fá okkur sjálf svona vinnustoppara. Davíð Steinn smellti fingrum og spurði hvort Bríet gæti gert svona. Hún reyndi eitthvað smá en sagði svo: -"Nei, ég er bara þriggja ára". (Hún verður 3 í júní)
Í gær skruppum við mæðgin til einnar vinkonu minnar sem stytti fyrir mig þrennar buxur á þá, tvennar fyrir Davíð Stein og einar fyrir Odd. Eftir heimsóknina skutlaði ég bræðrunum aftur heim en skrapp sjálf að versla. Davíð gekk frá vörunum er ég kom með þær en ég kvaddi hann fljótlega aftur og fór vestur á Nes á leikinn Valur - ÍR 35:24. Nú er bara ein umferð eftir af handboltanum. Valur og HK eru með jafnmörg stig en Valsmenn sigruðu HK menn í tveimur leikjum af þremur og vinna á því, þ.e. ef bæði lið enda með jafnmörg stig eftir lokaumferðina.
13.4.07
Þó að rigni stríðum straumi
stingur birtan sér í gegn.
Þetta er eins og í dúndur draumi
dæmalaust góð fregn.
Dagur lengist meir og meir
mikið er það flott.
Bleytan breytir mold í leir
bráðum verður gott.
Sumarið er handan við hornið
hækkar sólin daglega.
Ekki svo slæmt fyrir íslenska kornið
sem ég nota "glaðlega".
12.4.07
Það var engin kóræfing í gærkvöldi þar sem við erum búin að vera í miklum kórönnum undanfarið og það er heldur engin messa næsta sunnudag. Við tvíburahálfsysturnar ákváðum samt að nota kvöldið til að hittast og taka nokkur saumspor. Um hálfátta fékk ég SMS. Hmm, hugsaði ég með mér, það var bæði verið að draga í SIBS og HHÍ". Skilaboðin voru reyndar frá tvíburahálfsystur minni sem stakk upp á því að byrja á því að fara í smá göngutúr. Ég tók vel í það, var mætt til hennar um hálfníu og við tókum uþb 45 mín göngu. Á eftir fengum við okkur kaffi, rúsínur (óhúðaðar), hnetur og döðlur. Svo var saumað, þ.e. ég saumaði en hún var í einhverju basli með saumaverkefnið og þurfti að rekja upp til að laga. Kvöldið leið fljótt eins og alltaf þegar við hittumst. Ég passaði mig á að stoppa ekki of lengi þar sem það var jógatími í morgun. Var komin heim um ellefu.
Davíð ákvað að fara að sofa um leið og ég en það gerist ekki oft þessa dagana og mér skilst á honum að það verði eitthvað lítið um svefn næstu vikuna þar sem hann (og fleiri) eru að setja upp nýtt kerfi fyrir einn kúnnan, kerfi sem á að fara í notkun um miðja næstu viku.
10.4.07
Mætti eldhress í jóga í morgun, ein af fimm. Nú er að hefjast sjöunda vikan af átta og aðeins fjórir tímar eftir þar sem það er rauður dagur í almanakinu þann 19. n.k.
Tvíburarnir björguðu sér einir heima frá klukkan ellefu í morgun. Davíð var að vinna, hér heima, til klukkan að verða fimm í morgun og svaf til tíu. Það ætlar bara ekki að linna þessari törn. Hann hefði getað verið að vinna alla páskana og gerði það næstum því. Hann vann ekkert á laugardaginn var og bara til hádegis á páskadag. Hvar endar þetta eiginlega? Það fer að verða kominn tími á sumarbústaðaferð til að "vinda" ofan af sumum.
9.4.07
Þegar ég kom heim voru tvíburarnir búnir að finna eggin sín. Davíð var að vinna og ég ákvað að leggja mig um stund. Um hádegisbil dró ég manninn frá tölvunni og við brunuðum öll austur. Hittum Helgu, Ingva og stelpurnar rétt í svip áður en þau fóru í heimsókn til frændfólks. Þau komu við í bakaleiðinni og fékk Hulda að verða eftir til að geta leikið sér við frændur sína. Hún kom svo með okkur þegar við fórum aftur í bæinn um kvöldið.
7.4.07
Gærdagurinn gekk annars bara mjög vel fyrir sig. Stór hluti af honum fór fram í tveimur kirkjum, í Kópavogskirkju milli hálftíu og rúmlega tólf og í Kirkju Óháða safnaðarins frá hálfsjö til rúmlega hálftíu. Fyrri flutningurinn tókst alveg með ágætum. Kórstjórarnir sögðu eftir á að það hefðu verið ein tvö eða þrjú slys hjá okkur en enginn af kirkjugestum hafði tekið eftir þeim og var samt einhver þar á meðal sem er tónlistamenntaður. Okkar kór mætti á undan um kvöldið og æfði aðeins fyrir páskamessuna. Kópavogskórinn kom klukkutíma seinna og við renndum saman yfir kvöldið. Þau ákváðu að syngja með okkur sálmana á milli píslasögukaflanna. Við sungum m.a. "Ég kveiki´ á kertum mínum" í röddum og það þótti svo flott að það hríslaðist léttur hrollur um amk suma kirkjugesti. Eftir lesturinn var altarisganga og svo hreinsuðum við allt af altarinu. Flest ljós voru slökkt og Pétur, kórstjórinn sem er að hætta og Ragnar, einn af meðhjálpurunum komu inn með logandi á sjö kertum og var slökkt á einu í senn eftir hverja setningu sem Jesús sagði á krossinum. Svo var stillt upp fyrir "Litlu orgelmessuna" og "Ave verum corpus". Ljós var kveikt við orgelið og einnig þannig að við kórarnir gætum séð á nótur en það gleymdist að sjá til þess að stjórnendur hefðu ljós svo þær urðu að stjórna okkur í blindni. En það tókst samt furðanlega og mér skilst á þeim sem höfðu líka mætt í Kópavogskirkjuna að flutningurinn hefði síst verið verri. Eftir þennan seinni flutning og margra vikna æfingar komst ég að því að ég kann þetta orðið utan að að mestu, amk tvo af köflunum og mest allt úr hinum tveimur.
6.4.07
5.4.07
Fór á aukaæfingu í Kópavogskirkju í gærkvöldi. Kvöldinu áður hafði verið ákveðið að æfa í Óháðu kirkjunni en kirkjukór Kópavogs ætlaði að æfa páskamessuna eftir þessa æfingu og þar sem það gekk svona brösuglega sl. þriðjudagskvöld vildi organistinn þeirra vera aftur þar. Það var í góðu lagi. Það átti greinilega ekki að fara framhjá mér að æfingin ætti að vera í Kópavogi því seinni partinn í gær var ég búin að fá þrjá tölvupósta (tvöfalt hjá einum) og þrjú símtöl. Eftir upphitun sagði Adda svolítið við okkur sem Kristni þótti ástæða til að punkta hjá sér. Hann mun líklega segja frá í næsta annál hvernig við lærðum að hugsa tónana út um eyrun.
Ef ykkur vantar eitthvað að gera á morgun þá flytja kórarnir litlu orgelmessu Haydens að hluta (4 kafla af sex) eftir messu í Kópavogskirkju í fyrramálið og aftur í Óháðu um kvöldið. Morgunmessan byrjar klukkan ellefu svo ég geri ráð fyrir að verkið verði flutt um tólf. Kvöldmessan hefst hálfníu og verður verkið flutt í athöfninni.
4.4.07
2.4.07
Mætti í rópið á laugardagsmorguninn. Eftir tímann og sturtu heima skrapp ég til norsku esperanto-vinkonu minnar og lásum við saman hálfa kínverska sögu á esperanto. Náði að sjá síðustu mínúturnar í leik Liverpool og Arsenal og svo allan seinni hálfleikinn. "Mínir menn" voru langtum betri og unnu 4-1. Munaði þar mest um Crouch sem skoraði þrennu, hvert markið öðru fallegra. Um kvöldið fórum við hjónin í fertugsafmæli og vorum þar í svo góðu yfirlæti fram eftir kvöldi og fram á nótt að við vorum síðustu gestirnir til að fara.
Í gær var ég mætt í á kóræfingu klukkan tólf og um tvo var fermingamessa þar sem fermd voru 9 börn. Allt gekk vel fyrir sig. Fljótlega eftir að ég skilaði mér heim fórum við hjónin í heimsókn til einnar vinkonu minnar. Davíð var búinn að samþykkja að hreinsa eina lapptölvu og uppfæra vírusvörnina á henni. Hann hófst handa um fimmleytið og ég varð að draga hann í burtu upp úr tíu en hann náði ekki að klára alveg og hefði líklega helst viljað vera þangað til hann var búinn.