28.4.26

Í sjóinn eftir vinnu

Í morgun var ég vöknuð hálftíma á undan klukkunni þrátt fyrir að hafa verið að leysa sudoku og lesa til klukkan langt gengin í ellefu í gærkvöldi. Mætti í vinnu rétt fyrir hálf. Afleysingaskoðunarmaðurinn mætti korter í átta og fékk að vera með okkur til klukkan að verða þrjú en þá var hann sendur í Klettagarða til að klára daginn þar og mun verða þar allan dagin á morgun líka. Annars voru skoðaðir yfir sextíu bílar í dag. M.a. kom ungur maður á bíl pabba síns og ég kannaðist við það nafn. Fékk það staðfest á eigandinn væri jafnaldri minn og stúdenst-útskriftarbróðir frá Selfossi og móðir unga mannsins jafnaldra mín frá Eyrarbakka. Ungi maðurinn er fæddur 2004 og hann var ræðinn, kurteis og skemmtilegur. Eftir að bíllinn sem hann var á hafði verið skoðaður kom hann svo sérstaklega til mín, tók í hendina á mér, þakkaði fyrir spjallið og sagðist skyldu skila kveðju til foreldra sinna. Ég gekk frá afgreiðslunni og kaffinu og stimplaði mig út á slaginu hálffimm. Þá var stöðvarstjórinn að skoða síðasta bílinn. Var mætt í Nauthólsvík á háflóði rétt fyrir fimm og skellti mér tvisvar út í 7°C sjóinn og hoppaði og svamlaði aðeins um í ölduganginum. Kom heim um sex leytið og fékk mér helminginn af afganginum af plokkfiskinum kaldan um sjö. Tvíburahálfsystir mín hringdi í mig um hálfátta leytið. Við spjölluðum saman í rúman klukkutíma og hefðum spjallað lendur ef ég hefði ekki verið komin í spreng. 

27.4.26

Bókasafnsferð eftir vinnu

Ég hrökk upp rétt fyrir hálfsjö um það bil sjö mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Var mætt í vinnu um klukkutía síðar. Korteri eftir að ég stimplaði mig inn mætti afleysingamaðurinn og hann fékk að vera með okkur í allan dag og verður með okkur alla vikuna. Stöðvarstrjórinn ungi þurfti að skreppa þrisvar sinnum frá í dag. Eitt skreppið var í bankann fyrir mig til að sækja skiptimynt í seðlum því ég var búin með alla 500 og 1000 kr. seðla, þrátt fyrir að hafa fengi slatta úr bankanum í síðustu viku. Skoðaðir voru rúmlega fimmtíu bílar og gekk allt mjög vel, miklu styttri bið heldur en undanfarið, nema auðvitað þann tíma sem afleysingamaðurinn var einn en það var alls ekki langur tími í heildina. Strax eftir vinnu fór ég beinustu leið í Kringluna á bókasafnið þar. Skilaði öllum bókum sem ég var með og tók fjórar í staðinn; Á meðan hann horfið á þig ertu María mey smásögur eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur, Herranótt eftir Steindór Ívarsson og Voðaskot og Eyja eftir Katrine Engberg. Allt bækur sem ég má hafa í 30 daga og get framlengt um aðra þrjátíu ef ég þarf. Á heimleiðinni hringdi ég í pabba og spjallaði við hann. Vissi að hann átti von á heimsókn frá hjúkrunarfræðing í morgun og vildi fá að heyra hvernig gekk. Heimsóknin varði í uþb tvo tíma og var pabbi spurður út úr og einnig beðinn um að gera ákveðin verkefni. Fljótlega eftir að ég kom heim hringdi ég í Önnu Önfjörð systurdóttir mömmu og spjallaði dágóða stund við hana. Og næstum strax eftir að hafa spjallað við hana hringdi ég í eina fyrrum samstarfskonu mína sem er með mér og fjórum öðrum í hóp sem við köllum Sex svani. Átti mjög gott spjall við hana og fljótlega eftir að því spjalli lauk var hún búin að pósta á hópinn okkar og bjóða okkur til sín í næstu viku. Hafði plokkfisk í kvöldmatinn. Fékk mér tvisvar á diskinn en á helling eftir í afgang sem dugar líklega í tvö skipti.

26.4.26

Komin heim

Rumskaði rétt fyrir sjö en velti mér á hina hliðina og dormaði áfram í tæpan klukkutíma. Pabbi var kominn á fætur þegar ég kom fram um átta. Morguninn frekar rólegur hjá okkur. Var eitthvað í tölvunni, smá að leggja kapla en aðallega vorum við að hlusta á "Fyrst á fætur!", með Huldu Geirsdóttur á Rás 2. Pabbi bauð upp á soðið, saltað folaldakjöt með venjulegum kartöflum og sætri kartöflu í hádeginu. Eftir hádegisfréttir drifum við okkur út og hjálpuðumst að við að skola af gluggum á þremur hliðum af fjórum. Slepptum hliðinni sem snýr út í garð enda voru þeir gluggar ekkert svo skítugir. Fljótlega eftir að við komum inn aftur hafði móðursystir mín samband, hringdi í gegnum facebook spjallið, og við spjölluðum saman í rúmlega klukkustund. Klukkan var að byrja að ganga fimm þegar ég tók mig saman og kvaddi pabba. Ákvað að keyra á Selfoss á 55% tanknum. Lenti svo í smá hleðsluævintýri, það var annað stæðið laust á hraðhleðslustöð ísorku við Olís. Eins og ég lagði við það þá náði kapallinn ekki alveg að innstungunni í bílinn. Skrapp þá sem snöggvast á atlantsolíustöðina. Þar voru allar fjórar stöðvarnar lausar en ég var ekki búin að setja upp appið og fann ekki út hvort eða hvernig ég gæti nýtt mér eina stöðina. Keyrði framhjá Olís aftur, þar voru báðar stöðvar uppteknar. Komst á stæði við KFC en þegar ég ætlaði að fara að tengja kom maður í dyrnar og sagði að þetta væri ekki að virka, amk ekki þau tengi sem ég lagði við. Endaði því aftur á Olís vestan við Ölfusá og þurfti að bíða í smástund eftir að annað stæðið losnaði. Hlóð bílinn upp í 90% á 25 mínútum. Klukkan var að verða sjö þegar ég kom heim. Bíllinn kominn niður í 71% og það á að duga í amk 3-4 daga.

25.4.26

Á Hellu

Mikið var skrýtið að sleppa sundinu í morgun. Var vöknuð um hálfsjö og komin á fætur um átta. Fór ekki úr húsi fyrr en upp úr klukkan hálftíu. Þá var ég búin að pakka niður í tösku og tók hana með, ásamt íslensku útgáfunni af Kon-Tiki. Var komin til Inger rétt fyrir tíu. Við lásum síðustu blaðsíðurnar í báðum útgáfunum af Kon-Tiki á tæpum klukkutíma. Kvaddi um hálf tólf og byrjaði á því að fara á þvottastöðina Löður, færibandið, við Fiskislóð. Kom svo aðeins við í Krónunni þarna skammt frá og varð mikið glöð þegar ég sá að þar var hreint kókosvatn í lítersumbúðum komið aftur í hillur. Á leiðinni út úr bænum spjallaði ég aðeins við Huldu frænku. Gerði gott stopp í Fossheiðinni og var svo komin til pabba um hálfþrjú. Þá var bíllinn kominn í 55%. Var annars að enda við að horfa á fyrri undanúrslitaleikinn í meistaradeild kvenna í fótbolta, milli Barcelona og Bayern Munchen en Glódís okkar Viggósdóttir er fyrirliði í síðarnefnda liðinu. 

24.4.26

Í klippingu eftir vinnu

Nú þegar árskortið mitt í sund er útrunnið og ég hef tekið þá ákvörðun að endurnýja það ekki fyrr en eftir miðjan maí, lá mér ekkert á að vakna eldsnemma í morgun. Man samt að ég þurfti á salrenið fyrir klukkan tvö í nótt og ég vissi svo aftur af mér um fimm leytið. Steinsofnaði þó aftur og var að dreyma eitthvað furðulegt þegar vekjarinn hringdi tuttugu mínútum fyrir sjö. Mætti í vinnu tæpum klukkutíma síðar. Það var nóg að gera í skoðunum í allan dag, 22 bílar fyrir hádegi milli átta og tólf og 25 bílar milli hálfeitt og fjögur, alls 47 bílar. Engir í breytingaskoðun, flestir í A1 en nokkrir í endurskoðun. Stimplaði mig út rétt rúmlega fjögur. Átti tíma í klippingu klukkan hálffimm. Var mætt á staðinn korter yfir fjögur og fékk mér vatnsglas á meðan ég beið. Festi næsta klippitíma eftir nákvæmlega sex vikur, fyrsta föstudaginn í júní. Á leiðinni heim hringdi ég bæði í pabba og Odd. Það var laust á hleðslustaurnum á planinu og ég ákvað að nýta mér það. Hafði bílinn í hleðslu í rúma fjóra tíma fyrir rúmlega fjögurhundruð krónur. 

23.4.26

Sumardagurinn fyrsti

Vaknaði heldur snemma eða rétt fyrir sjö. Skömmu síðar varð ég vör við að ruslabíll var á ferðinni. Fór á fætur upp úr klukkan átta og bjó mér til tvo skammta af hafragraut. Helmingurinn fór í skál og inn í ísskáp en hinn helminginn borðaði ég og hafði einnig lifrarpylsu sneið með. Rétt fyrir ellefu var ég mætt fyrir utan Laugardalslaugina. Við kaldapotts vinkona mín vorum búnar að mæla okkur mót við opnun. Hún ákvað að sleppa sundinu en beið eftir mér í heita pottinum á meðan ég synti 300m. Eftir fyrstu ferðina í þann kalda hittum við eina systur hennar í pottinum við hliðina. Fórum því í sjópottinn eftir næstu ferð í þann kalda. Ég fór upp úr milli tólf og hálfeitt. Þá vorum við búnar að fara tvær ferðir í viðbót í þann kalda og gufuna. Þvoði mér um hárið og fór svo beinustu leið heim. Var ekki með nein sérstök plön en dagurinn leið engu að síður alltof hratt við að gera ekkert sérstakt sem skrifandi er um. 

22.4.26

Síðasti vetrardagur

Var vöknuð fyrir klukkan hálfsex. Eftir morgundaginn rennur árskortið í sund út og ég ætlaði að nýta þessi tvö skipti. Tók sunddótið með mér en skildi eftir sjósundsdótið. Þegar ég mætti í Laugardalinn um hálfsjö voru allir sem voru á húninum að hverfa frá, það var víst lokað vegna bilunar og manneklu. Ég vissi að ég hefði eiginlega of lítinn tíma til að fara frekar í Sundhöllina og ekki tók því heldur að fara heim aftur. Bíllinn var í 50% en ég ákvað samt að skreppa á Olís við Álfheima og stinga bílnum í samband við hraðhleðslutöð Ísorku í smá stund, nánar til tekið í um tuttugu og fimm mínútur, bætti um 30% á hann. Fékk mér smá göngutúr á meðan. Kom aðeins við í Hagkaup í Skeifunni, aðallega til að athuga hvort hægt væri að fá hreint kókosvatn. Keypti tvær hálfs lítra fernur, C vítamín og tvennt annað. Var mætt í vinnuna fyrir klukkan hálfátta. Rúmlega hálfátta mætti afleysingaskoðunarmaður sem átti að vera hjá okkur á stöð 37 í dag. Hann fékk að skoða hálfan bíl áður en hann var sendur til að aðstoða við skoðun í Hádegismóum, svo hann var ekki einu sinni klukkutíma á staðnum. Um tíu leytið duttu kerfin hjá samgöngustofu út svo það var ekki hægt að gera afgreiðslu eða skoða bíla í rúma klukkustund. Á meðan þetta ástand varaði skrapp stöðvarstjórinn í bankann og Bónus. Kerfin voru farin að virka aftur upp úr klukkan ellefu. Davíð Steinn kom með sinn bíl í frískoðun um hálftólf. Það kom í ljós að stöðvarstjórinn og hann könnuðust hvor við annan, sá fyrrnefndi var stundum að leigja kerrur hjá N1 við Gagnveg áður en kerruleigan var lögð niður. Annars voru skoðaðir heldur færri bílar en undanfarið, fóru þó upp í 34. Eftir vinnu fór ég beint í Hátúnið í osteostrong. Var eitthvað að spá í að fara í sund en ákvað að "lulla" mér heim í traffíkinni. Notaði tækifærið og hringdi og spjallaði við pabba og Ellu vinkonu á leiðinni.

21.4.26

Styttist í norðurferð

Vaknaði stuttu fyrir hálfsex í morgun. Sinnti morgunverkunum í rólegheitunum og var svo mætt í sund um hálfsjö. Sundrútínan svipuð og í gær nema ég fór í gufu í staðinn fyrir sjópottinn. Það var jafn erilsamt í vinnunni og undanfarið, skoðaðir voru rétt yfir 40 bílar og það var einnig nokkuð um símsvörun og bílnúmera viðskipti. Var búin í vinnu rúmlega hálffimm, þá var verið að skoða 41. og síðasta bíl dagsins en bíllinn sem var skráður síðastur inn og no 42 í röðinni var skilinn eftir til morguns því sá sem kom með hann var að sækja aðra tvo sem voru skoðaðir í dag. Eftir vinnu kom ég bæði við í Krónunni í Skeifunni og Fiskbúð Fúsa áður en ég fór heim. 

20.4.26

Blóðbankinn heimsóttur í sjötugastaogfyrsta sinn

Vekjarinn vakti mig korter fyrir sex. Var að dreyma eitthvað stórfurðulegt sem ég man ekki lengur hvað var. Mætti í sund um leið og opnaði klukkan hálfsjö. Var með svipaða rútínu og á föstudagsmorguninn. Stimplaði mig inn í vinnu um tuttugu mínútum fyrir átta og var búin að hella uppá, gera upp kassann, kveikja á pressunni og starta tölvuforritunum í afgreiðslunni þegar stöðvarstjórinn mætti rétt fyrir átta. Það er óhætt að segja að dagurinn hafi verið erilsamur, sérstaklega fyrir skoðunarmanninn. Átján bílar fyrir hádegi og 23 eftir hádegi. Minni vinnu lauk um hálffimm og fór ég beinustu leið í Kringluna og í Blóðbankann. Allt gekk eins og í sögu, stungan, steymið og gjöfin. Þegar ég var á leiðinni úr Kringlunni hitti ég örstutt á yngri systurdóttur mína, svona knús, hæ og bæ. Var komin heim um sex leytið og er búin að taka því rólega síðan. Eldaði mér þó fiskibollur í kvöldmat og borðaði hluta af afgang af sætkartöflumús frá því um helgina með.

19.4.26

Þungbúið verðu en vor í lofti

Vaknaði um sjö leytið en fór ekki á fætur fyrr en tæpum tveimur tímum síðar. Oddur vaknaði ekki fyrr en ég var búin að búa til hafragraut, borða helmigninn af honum og að undirbúa mig undir sundferð og esperanto hitting. Hann var ekki viss hvenær hann myndi fara svo ég kvaddi hann til öryggis. Synti 500m, flesta á bringunni en þó 50 síðustu metrana skriðsund. Gaf mér einnig góða rútínu í pottaferðir og gufu. Var mætt á Sólvallagötuna rétt rúmlega tólf. Við Inger fengum okkur fíflate. Náðum ekki að klára bókina að aðeins eru um 4 bls eftir svo við klárum næst. Oddur var á leiðinni í strætó þegar ég var næstum komin heim og ég ákvað að skutla honum í Mosfellsbæinn, hann getur alltaf nýtt strætóferðina síðar þar sem hann var ekki búinn að virkja ferðina sem hann var búinn að greiða fyrir. Ég kom heim um tvöleytið og sá þá sms skilaboð frá fulltrúa fjölmiðlamælisins. Svaraði skilaboðunum og ekkert löngu síðar kom hann við, tók gamla tækið og færði mér nýtt ásamt apparati sem þarf að vera í sambandi í íbúðinni. Það má þó færa það apparat með sér, amk innan lands.

18.4.26

Laugardagur

Vaknaði rétt fyrir sjö. Fór á fætur rúmum hálftíma síðar, sinnt morgunverkunum á baðherberginu, tók til sunddótið, fékk mér vatnsglas og dreif mig svo í sund. Gaf mér góðan tíma í alla rútínu. Synti 500m, flesta á bakinu, fór nokkrum sinnum í kalda pottinn, smástund í gufuna og dágóðastund í sjópottinn því þar hitti ég m.a. yngstu mágkonu mömmu og átti gott spjall við hana og reyndar fleiri. Kom heim um hálfellefu. Oddur var vaknaður en ekki búinn að fá sér neitt. Ég bjó til hafragraut og hafði lifrapylsusneiðar og ferskar sveskjur til hliðar. Um eitt leytið skruppum við út í smá göngu. Tókum með okkur poka af tómum dósum. Dósagámurinn hinum megin við götuna var fullur. Enduðum á því að labba við í Sorpu við Dalveg (með smá krók framhjá Smáralindinni). Annars leið dagurinn alveg ótrúlega hratt yfir alls konar smá dútli og spjalli og þáttaglápi. Bjó til sæt-kartöflumús og steikti nokkrar sneiðar af blóðmör í kvöldmatinn. 

17.4.26

Helgarfrí

Vekjaraklukkan vakti mig korter fyrir sex og ég var mætt í sund þremur korterum seinna. Breytti til að þessu sinni, fór tvisvar í þann kalda og einu sinni í þann heitasta áður en ég fór á braut 7 og synti 200m. Hafði svo samt tíma til að fara tvisvar aftur í kalda pottinn, 7 mínútur í gufu og aðrar 7 í sjópottinn. Stimplaði mig inn tuttugu mínútum fyrir átta. Vinnudagurinn var nokkuð hefðbundinn, dagarnir eru þó aldrei alveg eins. Í dag voru skoðaði 34 bílar, eitthvað var um síma- og bílnúmera afgreiðslur og starfsmannastjórinn hringdi sérstaklega í mig. Vildi athuga með mig þar sem hún hafði frétt af því að einn vinnudagurinn í vikunni endaði með því að hringja þurfti á lögguna út af mjög reiðum kúnna. En ég er búin að skrifa um það sama dag og það gerðist. Ég stimplaði mig út klukkan fjögur, stöðvarstjórinn ætlaði að vera aðeins lengur og þrífa stöðina. Ég kom aðeins við í N1 í Borgartúni og heilsaði upp á Davíð Stein. Stoppaði ekki lengi og var komin heim um hálffimm. Bíllinn var í 42%, laust var á staurnum og ég ákvað að nýta mér það. Oddur Smári kom um hálfsex leytið. Hann ætlar að fá að gista hérna næstu tvær nætur. Ég hafði soðna bleikju með kúlukáli, soðnum lauk, súrkáli, svörtum ólífum og piccalo tómötum í matinn. Bíllinn er að verða full hlaðinn, Ford-appið segir að ég geti haft hann í 15 mínútur í viðbót, prósentan er samt komin upp í 99 og heildar km sagðir 311. Það verður fróðlegt að vita hvernig áhrif hlýnandi veður og sumardekk  hafa á drægni bílsins.

16.4.26

Dagurinn hófst með sundferð

Var um það bil að rumska þegar vekjarinn ýtti betur við mér korter fyrir sex í morgun. Þremur korterum síðar var ég komin í sund. Synti 300m á braut 7, fór þrisvar í þann kalda, einu sinni í heitasta, sjö mínútur í gufu og sjö mínútur í sjópottinn. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Vinnudagurinn var heldur rólegri en þó alveg í nokkur horn að líta og skoðaðir voru 35 bílar. Eftir vinnu fór ég beint heim. Stoppaði ekki heim nema í rúman klukkutíma, var mætt á Kirkjustétt í fullum skrúða korter yfir sex. Er rétt nýlega komin heim aftur eftir góðan fund og hitting í góðum hópi. 

15.4.26

Aðalfundur húsfélagsins

Þegar  vekjarinn hringdi klukkan korter í sex í morgun, slökkti ég strax á honum, hugsaði mig um í augnablik og endurstillti hann svo á 7:40. Sleppti því semsagt að fara í sund í morgun þótt ég vissi að ég kæmist ekki í sjóinn eftir vinnu og osteostrong. Mætti í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. 17 bílar voru skoðaðir fyrir hádegi og 26 eftir hádegi. Líka var eitthvað um aðra afgreiðslu. M.a. kom maður sem hugðist sækja númer af kerru sem hann sagðist hafa lagt inn hjá mér í febrúar. Ég fann engin merki um þetta númer og gat ómögulega munað eftir þessu. Þar sem engin plata fannst ákvað maðurinn að panta nýja og borgaði að sjálfsögðu fyrir. Hann kom þó fljótlega til baka aftur og fékk endurgreitt því platan hafði fundist í bíl kunninga hans. Ekki furða að ég myndi ekki eftir þessu og ég var fegin að vera ekki búin að senda skeyti fyrir pöntuninni. Vinnudagurinn endaði eiginlega í háa lofti vegna óánægðs viðskiptavins sem kom fimm mínútum fyrir lokun, þegar verið var að skoða síðasta bílinn og við hætt að bóka inn. Hann vildi meina að þar sem klukkan væri ekki orðin ættum við að bóka bílinn inn og skoða hann fyrir hann. Hann var frekar dónalegur við mig en þegar skoðunarmaðurinn kom í gættina og spurði hvort ekki væri allt í lagi varð hann fljótlega mjög ógnandi við hann, hækkaði róminn og endurtók að hann hefði komið fyrir lokun og ætti rétt á að fá skoðun. Hann snautaðist ekki í burtu fyrr en stöðvarstjóinn ungi hringdi í lögregluna. Lögreglan var fljót á vettvang en óánægði kúnninn var þá farinn. Ég stimplaði mig út rúmlega hálffimm en var mætt í osteostrong stuttu fyrir fimm og komin heim rúmlega hálfsex. Klukkan sex hófst aðalfundur húsfélagsins sem var boðaður fyrir nokkru síðan. Við mættum einungis úr sex íbúðum af 33, sex manns og svo maður frá Eignarekstri sem hélt utan um fundinn. Formaður húsfélagsins sl ár var veikur og gaf heldur ekki kost á sér í áfram, hafði ætlað að hætta í fyrravor. Þótt við værum svona fá slapp ég við að festa mig í hlutverki, sagðist ekki vilja taka svona að mér í bráð. Það fengust þrjár konur í stjórn og við hin þrjú þökkuðum þeim fyrir að taka þetta að sér og sögðumst styðja þær100%. Hússjóðurinn er orðinn frekar "bólginn" vegna framkvæmdaleysis eða verkefna sem áttu að vera á döfinni en hafa ekki verið samþykkt. Lögðum drög að nokkrum verkefnum sem fara verður í, sum mjög fljótlega. Einnig var talað um að hafa samband við lóðaeigendur og formenn í nr 2 og 4 til að athuga hvort ekki megi setja upp fleiri hleðslustaura. Rafbílunum er að fjölga og þessi eini staur sem er á planinu fyrir 2-6 er bara með tvær innstungur. 

Gestir í heimsókn í gærkvöldi

Í gærmorgun vaknaði ég rétt áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Var mætt á húninn fimm mínútum áður en opnaði í Laugardalslaug. Þar fékk ég að faðma eina sem er fastagestur og var að missa manninn sinn í fyrradag. Var komin á braut 7 tuttugu mínútum fyrir sjö. Synti 300m til að hafa góðan tíma í pottarútínu. Mætti í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta og var búin að hella upp á, gera upp og fleira þegar ungi stöðvarstjórinn mætti rétt fyrir átta. Alls voru um 40 skoðanir í gær, þar af 15 fyrir hádegi. Eftir vinnu fór ég beint upp á Bíldshöfða þar sem ég fékk sumardekkin undir bílinn hjá N1 og þeir settu nagladekkin á dekkjahótelið sitt. Kom aðeins við í Krónunni upp á Höfða en var komin heim fyrir klukkan hálfsjö. Átti von á gestum, frænku minni og norskum manni hennar. Frænka mín hafði samband um sjö, ekki hætt við en sagðist tefjast aðeins. Þau komu á níunda tímanum og gerðu mjög gott stopp. Það var ekki fyrr en ég var komin upp í um hálfellefu leytið að ég fór að hugsa um að ég hefði ekki sett inn neina færslu. Kannski verða þær bara tvær í staðinn í dag. 

13.4.26

Ný vinnuvika hafin

Ég vaknaði upp úr klukkan sex, amk hálftíma á undan vekjaraklukkunni. Var mætt í vinnu rúmlega hálfátta. Þar var búið að þrífa flest öll gólf og tæma ruslafötur. Ég hellti upp á kaffi og gerði afgreiðsluforritin klár. Stöðvarstjórinn mætti nokkrum mínútum fyrir átta. Hann hafði komið um helgina og tók tveggja tíma törn í að þrífa. Annars var rólegt hjá okkur fyrstu þrjú korterin. 13 bílar voru skoðaðir fram að hádegi. Eftir hádegi var öllu meiri traffík og lítið sem ekkert um skoðunarpásur. Það var líka smá erill á tímabili í öðrum afgreiðslum hjá mér. Eftir vinnu fór ég beint í sund. Kalda potts vinkona mín var mætt á undan mér og ég ákvað að sleppa sundinu og fara beint í potta-rútínuna með henni. Kom heim um hálfsjö. Davíð Steinn sendi mér snapp af upplýsingum um hans 3. innlögn í besta bankann, Blóðbankann. 

12.4.26

Labbaði yfir til Reykjavíkur

Ég fór ekki að sofa fyrr en stuttu fyrir miðnætti í gærkvöldi. "Festist" yfir söngvakepnni framhaldsskólanna sem var ekki búin fyrr en um hálftólf. Gerði tilraun til að lesa í smá stund en það voru ekki margar blaðsíður. Er að lesa Blóð hraustra manna eftir Óttar Norðfjörð. Vaknaði  um sjö leytið og var komin á fætur upp úr klukkan átta. Um hálftíu lagði ég af stað í sund. Hafði mælt mér mót við kaldapotts vinkonu mína og við hittumst við sturturnar. Ég var aðeins á undan á svæðið en hún var á undan út því ég hitti yngstu mágkonu mömmu á þurrksvæðinu fyrir framan sturturnar og spjallaði aðeins við hana. Hún var að koma upp úr. Ég fór svo á braut 7 og synti 500m, flesta á bakinu. Hrafnhildur var á braut 8 en hún hætti að synda aðeins á undan mér og skrapp aðeins í heitasta pottinn. Við hittumst svo í kalda pottinum. Kom heim um tólf. Um þrjú skrapp ég út og fékk mér göngu yfir í Seljahverfið og til baka. Afar hressandi. Um það leyti sem ég kom heim aftur var landsleikur kvenna í handbolta að byrja. Hætti að horfa í smá stund þegar staðan var 4:1 fyrir Portúgal. Mér leist ekkert á blikuna. En þegar ég skipti aftur yfir á boltann var staðan 11:12 og í næstu sóknum jöfnuðu okkar stelpur og "sigldu" fram úr. Leikurinn vannst sem þýðir að stelpurnar eru komnar inn á Evrópumótið seint á árinu. 

11.4.26

Laugardagur

Ég var vöknuð um hálfsjö, komin á fætur upp úr klukkan sjö og mætt í sund um átta. Að þessu sinni synti ég 600m á braut 7 og gaf mér ágætis tíma í potta og gufurútínu áður en ég fór upp úr. Þvoði mér um hárið og var mætt á Sólvallagötuna um 10. Setti bílinn í samband við annan staurinn á planinu. Við Inger erum nú langt komnar með Kon-Tiki, klárum næst eða þarnæst, eitthvað innan við 10 bls. eftir. Erum vissar um að þrátt fyrir að hafa lesið bókina amk þrisvar og séð myndina tvisvar þá eigum við örugglega eftir að lesa esperanto útgáfuna aftur. Kvaddi um hálftólf. Fór með bílinn í gegnum þvottastöðina Löður við Fiskislóð. Kíkti svo aðeins í Krónuna við Granda, aðallega til að athuga hvort þar fengist kókosvatn sem var því miður ekki. Kom heim fyrir klukkan hálfeitt og ákvað að bæta við hleðsluna fyrst það var laust á staurnum. Hlóð úr tæpum 60% í 100% á um fjórum tímum. Á eftir ákvað ég að leggja bílnum á stæði á efra planinu og skreppa svo aðeins í stuttan göngutúr.

10.4.26

Föstudagskvöld

Vaknaði stuttu áður en vekjaraklukkan átti að ýta við mér. Ég var svo mætt í sund um leið og opnaði klukkan hálfsjö. Synti 300m, fór tvær ferðir í kalda, smá stund í gufu og hitti svo frænku kaldapotts vinkonu minnar í sjópottinum. Var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Erillinn í vinnunni var heldur minni en undanfarna daga en þó voru hátt í fjörutíu bílar skoðaðir. Rétt eftir hádegi hringdi Hulda systurdóttir mín í mig til að segja mér frá hvernig gekk í snemm-sónar skoðuninni og staðfesta að ég verð ömmusystir síðar á árinu. Vinnudegi lauk á slaginu fjögur og ég fór beinustu leið heim eftir vinnu. Hringdi bæði í pabba og Odd Smára á leiðinni.

9.4.26

Björgvin Halldórsson fallinn frá

Vekjarinn ýtti við mér klukkan korter fyrir sex. Í eitt augnablik var ég að spá í að kúra lengur en ákvað svo að drífa mig á fætur til að geta byrjað daginn í sundi. Var mætt á planið við Laugardalslaug þremur mínútum áður en opnaði og rúmum tíu mínútum síðar var ég komin á braut 8. Synti 300m, fór þrisvar sinnum í kalda pottinn, einu sinni í þann heitasta og var næstum korter í sjópottinum. Mætti Nonna, klipparanum mínum, þegar ég var að fara upp úr. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Stöðvarstjórinn mætti á slaginu átt. Rólegt var fyrsta hálftímann en í heildina skoðaði hann 42 bíla. Eftir vinnu fór ég fyrst í Fiskbúð Fúsa og keypti m.a. harðfisk og ýsu. Fór því næst í Krónuna í Skeifunni. Klukkan var að verða sex þegar ég kom heim. Gekk frá sunddótinu og vörunum og setti upp ýsu og sauð rósakál. Hafði með þessu svartar ólífur, grænt pestó og klípu af smjöri.

8.4.26

Miðvikudagur

Fór á fætur á svipuðum tíma og í gærmorgun. Fékk mér chiagraut í morgunmat. Tók sjósundsdótið með mér út í bíl og var mætt í vinnu um hálfátta. Það var rólegt fyrsta hálftímann eftir að opnaði en þegar dagurinn endaði um hálffimm höfðu verið skoðaðir 38 bílar, tveimur færri en í gær. Og þessir bílar voru allir skoðaðir af sama skoðunarmanninum. Það var að venju í nokkur horn að líta hjá mér, mis-mörg þó. Fékk stundum lengri pásur heldur en sá sem var í skoðununum, ekkert mjög langar þó. Dagurinn leið mjög hratt. Var mætt í osteostrong tíma korter fyrir fimm, þurfti að bíða í um tíu mínútur áður en ég komst að. Svo var ég komin í Nauthólsvík um hálfsex. Rétt við bílastæðið voru tveir ungir menn og kastaði annar þeirra kveðju á mig og spurði hvort ég væri ekki að vinna hjá Frumherja. Ég játaði því og sýndi honum merkið á vinnupeysunni. Hann hefur semsagt komið með bíl í skoðun í Skeifuna nýlega og mundi eftir mér. Ég fór annars tvisvar sinnum út í 3,4°C sjóinn, gufuna á milli og smá stund í pottinn á eftir. Ætlaði að koma við í Krónunni í Lindum á eftir. Verslunin var alveg opin en frekar tóm. Mér skilst að hún sé að loka í um tvo mánuði vegna breytinga og viðhalds. Ég kom því tómhent heim og versla líklega í Krónunni í Skeifunni eftir vinnu á morgun.

7.4.26

Erill í vinnu og sund á eftir

Vekjarinn hringdi korter fyrir sex, ég slökkti og ákvað að endurstilla vekjarann á 6:40. Var ekki alveg að nenna að drífa mig í sund. Sofnaði aftur en vaknaði fimm mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Tók m.a. til sunddótið og eftir að hafa fengið mér hressingu og lokið við morgunverkin á baðherberginu lagði ég af stað í vinnu. Stimplaði mig inn rúmlega hálfátta. Var búin að hella upp á og undirbúa afgreiðslukerfin þegar ungi stöðvarstjóinn mætti. Klukkan var rétt orðin átta þegar kúnnar fóru að streyma inn og það má eiginlega segja að skoðunarmaðurinn hafi varla sest niður nema þegar hann settist inn í bílana. Lokuðum í rúman hálftíma í hádeginu og hluta af þeim tíma varði stöðvarstjóinn í að versla. Alls voru skoðaðir 40 bílar. Tæpum klukkutíma fyrir lokun mætti Siggi frændi, sá sem er yfir BSK-sviðinu. Áður en hann fór aftur hafði hann spurt mig hvort ég væri ánægð í Skeifunni eða hvort ég myndi vilja flytja mig yfir í afgreiðsluna í Dalshrauni með haustinu. Ég var eiginlega frekar á því að halda mig við Skeifuna en má alveg hugsa þetta eitthvað. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið í Laugardalinn. Varð reyndar að leggja aðeins lengra en ég var komin inn í klefa tíu mínútum fyrir fimm. Kalda potts vinkona mín kom nánast á sama tíma en hún varð á undan út. Ég tók þá ákvörðun að sleppa því að synda og byrja strax á pottarútínunni. Fórum 4 sinnum í þann kalda, tvisvar í þann heitasta og einu sinni í sjópottinn. Ég kvaddi um sex og kom við á PreppBarnum á leiðinni heim. Staurinn var laus og bíllinn er búinn að vera í hleðslu síðan rétt fyrir klukkan sjö, kominn upp í 81%. Nú er bara spurning hversu lengi enn ég ætla að hlaða því þótt ég geti alveg stoppað hleðsluna hvenær sem er vil ég helst ekki "teppa" staurinn í alla nótt og heldur ekki láta hleðslusnúruna vera í staur og bíl þegar ég er hætt að hlaða. 

6.4.26

Innipúki

Dagurinn er langt frá því að vera búinn og hann byrjaði í seinna fallinu. Rumskaði vísu aðeins rétt fyrir hálfsjö en vaknaði svo um níu. Fór alls ekki strax fram úr en loksins þegar ég dreif mig á fætur ákvað ég að fara í sturtu, þvo á mér hárið og skafa handakrikana. Burstaði tennur, fékk mér vatnsglas og epli og kom mér svo fyrir í stofustólnum. Það var ekki fyrr en upp úr klukkan eitt að ég útbjó mér hádegishressingu úr hluta af afgangnum af lærinu og meðlæti. Útivera freistar mín ekki neitt og bíllinn er í 53% sem dugar alveg til og frá vinnu á morgun og meira til. Ætla að leyfa mér að halda áfram að vera löt í dag. 

5.4.26

Komin heim

Heyrði stofuklukkuna slá sex högg þegar ég rumskaði fyrst í morgun. Sofnaði eiginlega strax aftur og fór ekki á fætur fyrr en klukkan var byrjuð að ganga níu. Pabbi var löngu kominn á fætur og búinn að setja bláberjakryddað lambalæri í ofninn. Ég fékk mér harðsoðið egg, vítamín og vatnsglas áður en ég tannburstaði mig. Svo lagði ég helling af köplum og leysti sudoku gátur. Um hálfhellefu afhýddi ég sæta kratöflu, skar í bita og gufusauð. Bjó til sósu um ellefu leytið og lagði á borð og við pabbi borðuðum um hálftólf. Hjálpuðumst svo að við að ganga frá á eftir. Fljótlega eftir að hádegisfréttir voru búnar kvaddi ég pabba og var komin heim um tvö. Einhvern veginn hefur tíminn svo flogið frá mér við alls konar dundur en aðallega slökun. Var samt búin að slaka vel á fyrir austan.

4.4.26

Fjórði fjórði

Heyrði stofuklukkuna slá 6 högg og smástund (að mér fannst) síðar fannst mér hún slá átta högg. Reyndar voru það líklega bara sjö högg en ég missti af skiptunum sem klukkan sló hálf sjö og hálfátta. Þegar ég vaknaði betur og var að verða tilbúin í daginn sló klukkan átta högg. Var komin á fætur fyrir klukkan hálfníu. Morgunin fór í ýmislegt dundur, í tölvu, leggja kapla og lesa. Um eitt leytið skruppum við pabbi í búðina. Jóna Mæja hringdi í pabba á meðan við vorum úr búðinni og niðurstaðan var sú að þau Reynir kæmu í heimsókn seinni partinn. Þau komu um fjögur. Fengu kaffi og um fimm leytið hjálpuðumst við Jóna Mæja við að setja skera niður rófur og kartöflur og gufusjóða og setja upp saltfisk. Vorum mátulega búin að borða og vaska upp þegar kvöldfréttir sjónvarps hófust. Eftir fréttir spurði pabbi hvort þau vildu horfa á þáttinn um Grindavík sem var sýndur í sjónvarpinu í gærkvöldi. Þau vildu það og við pabbi horfðum aftur á þáttinn með þeim. Mjög góð heimildamynd um atburði sem líklega eru ekki alveg búnir. á eftir fengum við okkur ís. Gestirnir kvöddu rétt fyrir tíu. Ég horfði á einn þátt á meðan pabbi settist aðeins við tölvuna. Áður en pabbi dró sig í hlé og bauð góða nótt spurði hann hvort ég ætlaði eitthvað aftur í tölvuna. Ég svaraði játandi að þessu sinni, vildi m.a. skrásetja daginn. 

3.4.26

Letidagur

Rumskaði fyrst um sex í morgun. fór á fætur tveimur tímum síðar. Þá var glampandi sól en nokkuð frost og það hafði snjóað. Ég fékk mér klementínu, harsoðið egg og gleypti í mig vítamínin með glasi af vatni á eftir. Svo kveikti ég á tölvunni hans pabba og eyddi næsta klukkutímanum í henni. Ég var sest inn í eldhús og farin að leggja kapla þegar pabbi kom aftur fram um hálftíu, en ég veit að hann var búinn að koma fram löngu fyrr um morguninn. Eldaði handa okkur fisk á pönnu, í hádeginu, ásamt einum lauk og hálfri sætri kartöflu. Dagurinn er svo sem ekki búinn en ég er eiginlega ekki búin að gera neitt af viti, t.d. eins og að skreppa út og fá mér ferkst loft. Ætla samt alls ekki að hafa móral útaf því.

2.4.26

Skírdagskvöld

Þá er ég loksins komin austur á Hellu. Allur mars leið án þess að ég kæmist, ýmist vegna veðurs eða anna. Eitt af því fyrsta sem ég gerði þegar ég fór á fætur í morgun var að taka fram tölvuna og setja inn færslu um gærdaginn. Upp úr klukkan hálftíu hafði esperanto vinkona mín samband. Ég hitaði upp bílinn, tók mig til og var mætt á Sólvallagötuna um tíu. Stakk bílnum í samband við annan staurinn á planinu fyrir utan. Við vorum duglegar í lestrinum, og drukkum fíflate með. Eigum aðeins tuttugu blaðsíður eftir af Kon-Tiki. Kvaddi um hálf tólf leytið. Bíllinn var kominn í 83%. Ég fór beinustu leið heim aftur og lagði á efra planinu. Það snjóaði og snjóaði en um tvö leytið gafst ég upp á að bíða eftir að hætti að snjóa. Hringdi í pabba, kláraði að pakka niður fyrir nokkra daga og lagði af stað úr bænum. Á Sandskeiðinu og allt upp að brekkunni við Hveradali voru tvö snjóruðningstæki að moka. Það hélt áfram að snjóa og létti ekki til fyrr en ég var komin yfir Hellisheiðina. Gerði gott stopp í Fossheiðinni, skilaði af mér lánsbókinni. Það var fínasta veður á Selfossi og í Árnessýslunni en fljótlega eftir að ég kom yfir í Rangárvallarsýsluna keyrði ég inn í snjóbakka sem náði líklega eitthvað austur fyrir Hellu. Sá að það var laust á hraðhleðslustöðinni við Olís. Bíllinn var kominn í 35% og ég ákvað að stinga honum í samband og hlaða í hálftíma, komst þá upp í 90%. Á meðan ég beið eftir hleðslunni kíkti ég í sjoppuna og fór einnig í stuttan göngutúr. Var komin til pabba um sex. 

Skírdagsmorgun

Já, það fór svo að ég tók ekki fram tölvuna og setti inn færslu eftir að ég kom heim úr vinnu, osteostrong og sjóbusli í gær. Erilsamt var í vinnunni og aðeins einn skoðunarmaður, ungi stöðvarstjórinn. Hann skoðaði yfir 40 bíla í gær. Það voru líka þó nokkrir sem komu eingöngu til að fá skráða kílómetrastöðuna, það var alfarið á minni könnu en ég þurfti þó ekki að fara út og lesa af. Fólk kom með myndir í símanum eða tölur niðurskrifaðar á blað. Eitthvað var um símsvörun, tölvupóst og "tidio-spjallaviðmanneskju". Inn á milli gafst þó tími til að spjalla við suma kúnnana á meðan þeir biðu eftir að bílar þeirra væru skoðaðir. Stimpluðum okkur út, lokuðum og læstum rétt rúmlega hálffimm. Ég fór beint yfir í Hátúnið, hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni. Það kom í ljós að hann hafði gert sér ferð á Selfoss til að fylla á tankinn, versla og svo kom hann við í afgreiðslunni hjá frumherja á Selfossi og fékk skráða km stöðuna án þess að vera rukkaður fyrir þar sem hann nefndi mig á nafn. Ísland.is appið var dottið út hjá honum svo þetta var það besta í stöðunni. Eftir osteostrong tímann fór ég beinustu leið í Nauthólsvík, þar beið kaldapotts vinkona mín eftir mér en hún hafði haft samband fyrr um daginn til að fá það staðfest að ég ætlaði í sjóinn. Við fórum þrisvar sinnum út í 1,4°C sjóinn, þar af tvisvar sinnum í lónið. Það var flóð og stutt út í. Ég var komin heim rétt fyrir sjö. Fékk mér afgang af fiskibollum og sætri kartöflu og plammaði mér svo fyrir framan imbann, var aðallega að horfa á þætti úr sarpi sjónvarps símans. Einhvern tímann upp úr klukkan átta flögraði að mér að taka fram tölvuna og setja inn færslu. Gleymdi mér svo á áhorfinu. Fór í háttinn um tíu. Hálfleysti eina sudoku og las svo smá stund í; Undantekningin eftir Auði Övu Ólafsdóttur.

31.3.26

Mars að klárast

Ég tók ákvörðun í gærkvöldi að stilla vekjaraklukkuna ekki á "mætaísundfyrirvinnu-tíma", heldur klukkutíma seinna. Var meðvituð um það að ég fór alltof seint að sofa. Rumskaði einu að síður lauslega um hálffimm en steinsofnaði strax aftur. Vaknaði svo fimm mínútum áður en klukkan átti að hringja. Mætti í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Ungi stöðvarstjórinn mætti á slaginu átta og afleysinga-skoðunarmaðurinn nokkrum mínútum seinna, á sínum síðasta degi í vinnu hjá frumherja. Það var næstum jafn erilsamt í dag og í gær. Fór beint heim eftir vinnu og gerði mest lítið af mér. Samt er tíminn floginn hjá, alltof hratt. 

30.3.26

Erilsamt í vinnunni í dag

Þar ég fer orðið í sund eftir vinnu á mánudögum hafði ég stillt klukkuna á að ýta við mér tuttugu mínútum fyrir sjö. Ég var hins vegar vöknuð um hálfsex. Notaði tímann í smá lestur og þegar ég fór á fætur gerði ég nokkrar æfingar með 2kg lóðum. Fékk mér chiagraut í morgunmat og var mætt í vinnu um hálfátta. Skoðunarmennirnir voru báðir mættir nokkrum mínútum fyrir átta og klukkan var nýorðin átta þegar byrjaði að streyma inn í skoðun. Þeir fengu ekki pásu fyrr en um tíu og sú pása var frekar stutt. Það voru skoðaðir yfir tuttugu bílar fyrir hádegi. Einn af þeim sem kom með bíl kunningja síns í skoðun var "draugur" úr fortíðinni, Guðmundur Skúli Jonhsen og var hann með tvær yngstu dætur sínar með sér. Fyrir utan allar skoðanir, en þær urðu 65 í heildina (og vorum við samt ekki hæst af frumherjastöðvunum), var svolítið að gera í símsvörun, netspjalli, móttöku númera og uppflettingum. Ég stimplaði mig út rétt rúmlega hálffimm, á undan skoðunarmönnunum sem voru að klára að skoða síðasta bílinn áður en þeir myndu ganga frá og loka. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég keyrði yfir í Laugardalslaug. Hann fór í sund í morgun og sagði að það hefðu ekki allir plástrar skolast af sárinu sem var límt saman eftir fallið í síðustu viku. Sundferðin gekk vel og hann var ánægður að vera kominn aftur í venjulega rútínu. Kalda potts vinkona mín sendi mér skilaboð um að líklega yrði hún frekar sein því hún átti von á símtali sem hún varð að bíða eftir. Það fór svo að símtalið kom ekki fyrr en á sjöunda tímanum en þá var ég búin að synda 500m, fara 4 sinnum í þann kalda, 2 sinnum í þann heitasta, sjópottinn og gufuna og kominn upp úr. Kom heim stuttu fyrir sjö og ákvað að setja bílinn í samband. Hann var kominn niður í 38%. Núna tæpum tveimur tímum síðar er hann kominn í 62% og er ég að hugsa um að hafa hann í hleðslu í ca einn og hálfan tíma í viðbót. 

29.3.26

3 réttir á lottó-áskriftamiða aðra vikuna í röð

Svaf til klukkan að verða hálfátta í morgun. Um níu var ég búin útbúa hafragraut, tvo skammta. Annan skammtinn setti ég inn í ísskáp. Um tíu var ég mætt á fámennan en góðmennan fræðslufund í Grafarholtinu. Eftir fundinn ákvað ég að skreppa í heimsókn til frændfólks sem býr í Sæviðarsundi. Maðurinn og mamma voru systkynabörn. Konan hans hefur verið að glíma við heilsuleysi sl. mánuði, sennilega einhver vírus sem getur tekið langan tíma að vinna á. Stoppaði hjá þeim í rúma klukkustund. Næst lá leiðin í Kringluna. Lagði í bílakjallaranum skammt frá bókasafninu og þurfti aðeins að bíða í nokkrar mínútur eftir að klukkan yrði og og það opnaði. Skilaði næstum því öllum bókum sem ég var með þótt ég væri ekki búin að lesa þær allar. Náði mér í þrjár mjög ólíkar bækur og eina í viðbót úr skilabókunum. Það kom í ljós að bókasafnsskírteinið var útrunnið en það var einfalt mál að endurnýja það. Ein í afgreiðslunni skannaði skírteinið og rukkaði mig um 3.300kr og svo gat ég afgreitt mig um bækurnar sjálf. Fór með pokann út í bíl áður en ég fór aftur inn í Kringlu. Rölti aðeins um en endaði svo á að nýta aftur gjafakortið sem ég fékk í jólagjöf í vinnunni og verslaði smá í Bónus. Á útleiðinni hitti ég einn fyrr um vinnufélaga hjá RB sem sagði það helst í fréttum að hann væri hættur þar, sestur í þennan "helga stein". Lagði bílnum á efra planið þriðja daginn í röð. Hleðslan stendur í tæp 50% og það ætti að duga til þriðjudags. 

28.3.26

Dagurinn leið hratt

Vaknaði upp úr klukkan sex. Fór þó ekki á fætur fyrr en klukkan var að verða hálfátta. Samt var ég mætt í Laugardalslaugina um það leyti sem opnaði. Synti 600m, þar af nokkrar ferðir á bakinu. Eftir þrjár ferðir í kalda pottinn, eina í þann heitasta, dágóða stund í gufu og nokkrar mínútur í sjópottinum fór ég í heita (volga) og kalda sturtu. Skolaði á mér hárið en notaði ekki sápu eða sjampó. Var mætt á Sólvallagötuna um tíu. Stakk bílnum í samband og hafði hann í hleðslu á meðan ég var í espó hittingnum. Ein frænka mín og jafnaldra hafði samband á FB-spjallinu og spurði hvort ég væri heima. Svarið mitt var neitandi en að ég yrði komin heim um hádegisbilið og þá bað hún mig um að hafa samband þegar ég væri komin heim. Móðurafi þessarar frænku minnar var föðurbróðir minn. Ég var komin heim rétt fyrir tólf. Hitti fyrrum vinnufélaga í anddyrinu en hann hafði verið á opnu húsi í íbúð á annarri hæðinni. Innan við klukkutíma eftir að ég lét frænku mína vita að ég væri komin heim var hún mætt. Hafði komin gangandi úr Seljahverfinu. Hún gerði gott stopp, langt síðan við hittumst síðast og höfðum um margt að spjalla. Hún kvaddi upp úr klukkan þrjú og komst örugglega heim áður en veðrið versnaði. Afgangurinn af deginum fór í alls konar mis gáfuleg dæmi. M.a. í að leysa sudoku úr nýjasta sudoku-frístund blaðinu sem ég keypti í Hagkaupsskreppunni eftir vinnu sl. fimmtudag. 

27.3.26

Föstudagur

Ég var mætt í sund um hálfsjö í morgun. Rútínan var svipuð nema ég synti hluta af ferðunum á bakinu. Held að ég geti nú alveg gert meira af því, því það skiptir ekki máli lengur hvort ég er að fara þvo mér um hárið eða ekki. Get alveg tekið af mér sundhettuna og leyft vatninu að skella á stuttu hárinu án þess að þurfa endilega að setja sápu í það. Var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta og búin að hella upp á áður en skoðunarmennirnir mættu nokkrum tæpu korteri á eftir mér. Skoðanir dagsins fóru yfir 40, meirihelmingurinn eftir hádegi en þrettán bílar voru skoðaðir fyrir hádegi. Eftir vinnu lá leiðin yfir á Sléttuveg þar sem fyrrum kórfélagi og konan hans buðu félögum úr KÓSÍ heim. Ég var síðust af sex gestum, fjögur komust ekki og þrjú eru fallin frá. Áttum saman notalega stund. Margt var spjallað og rætt og  "Sann-"Kristinn, gestgjafinn sagði líka nokkra óborganlega brandara. Rétt eftir að ég var mætt á staðinn hringdi gemsinn, sendi skilaboð til baka. Hringdi svo í viðkomandi og spjallaði við hana á meðan að ég var á leiðinni heim. Þetta var ein af fyrstu sundvinkonunum. Hún er komin yfir áttrætt en það er alltaf gaman að spjalla við hana.

26.3.26

Lokað í sund í morgun

Ég var vöknuð upp úr klukkan fimm í morgun. Veðrð var ekkert spes en alls ekki svo slæmt. Var eitthvað að spá í að skrópa í morgunsundið og hefði betur gert það því vegna veðurviðvörunar og vinsamlegum tilmælum frá lögreglu var er opnað í sund fyrr en eftir hádegið. Ég var samt ekki sú eina sem mætti. Það kom ekki til greina að fara heim aftur og of snemmt var að mæta í vinnuna. Ég brá á það ráð að fara að Olís við Álfheima og tengja bílinn við hraðhleðslustöð í tæpan hálftíma. Fékk mér örstuttan göngutúr á meðan. Var svo mætt í vinnu um hálfátta, búin að hlaða bílinn um 40% í 77%. Mjög rólegt var í skoðunum fram að hádegi, þó komu 4 bílar í skoðun og einn af þeim í bæði aðal- og breytingaskoðun. Notuðum tímann milli ellefu og tólf í að byrja tiltekt í númeraplötugeymslunni. Eftir hádegi voru alls 22 skoðanir þannig að í heildina voru skoðaðir 27 bílar. Einhverjir voru sendir til okkar úr Klettagörðum því skoðunarmennirnir á þeirri stöð voru veðurtepptir. Eftir vinnu kom ég aðeins við í Hagkaup í Skeifunni. Var komin heim upp úr klukkan sex. 

25.3.26

Stutt dagsskýrsla

Ég var mætt í vinnu um hálfátta leytið. Alls voru skoðaðir 45 bíla í dag, rúmlega helmingurinn eftir hádegi. Nóg var að gera í Tidio-spjallinu og ég þarf endilega að fara að athuga hvort ég er ennþá ein að grípa "tala við manneskju" boltann. Um ellefu hringdi ég í pabba í heimasímann úr vinnusímanum. Hann svaraði ekki fyrr en ég hringdi úr gemsanum í gemsann hans. Lét vel af sér en er með stærðar glóðarauga. Hann var að fara að huga að því að taka bílinn úr skúrnum og skreppa í mat í Kanslarann. Á leiðinni úr vinnu og yfir í Hátúnið í osteostrong tíma hringdi ég í báða strákana og sagði þeim frá hvað gerðist í gær. Styrktartíminn gekk annars mjög vel, bætti mig á þremur tækjum af fjórum. Og svo fór ég að sjálfsögðu í Nauthólsvíkina. Fjara og sjórinn -0,6°C. Mega hressandi að skella sér tvisvar út í. Kom heim um sjö. 

Gleymdi mér aðeins í gærkvöldi

Stuttu eftir að ég rumskaði rétt fyrir klukkan sex í morgun sló það mig aðeins út af laginu að ég hafði ekkert tekið fram fartölvuna eftir að ég kom heim úr vinnu í gær. Sem þýddi að ég hafði ekki skráð niður daginn. Ekkert hættulegt svo sem og ef ég spái aðeins í það þá eru sumir dagar bara rútínudagar og þar af leiðandi bara sífelldar endurtekningar með mismunandi blæbrigðum.

Gærdagurinn hófst klukkan korter í sex þegar vekjarinn ýtti við mér. Var mætt í sund klukkan hálfsjö. Synti 300m, fór þrjár ferðir í kalda, eina í heitasta og eina í sjópottinn. Skolaði stutt hárið úr volgu og köldu vatni og setti á mig höfuð handklæði á meðan ég þurrkaði kroppinn og klæddi mig. Þegar ég mætti í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta var ungi stöðvarstjórinn þegar mættur og var að sinna tiltekt. Hann var þá þegar búinn að skutlast með konuna sína út á flugvöll en hún var að skreppa til Írlands í nokkra daga til að heimsækja ættingja sína. Yfir þrjátíu bílar voru skoðaðir í gær, fleiri bílar skoðaðir milli hálfeitt og hálffimm heldur en milli átta og hálftólf.

Hringdi í pabba þegar ég var á leiðinni heim eftir vinnu og eftir smá spjall sagði hann mér að hann mætti ekki mæta í sund næstu vikuna. Ástæðan var sú að hann datt í skúrnum rétt eftir hádegið, þegar hann ætlaði að fara að moka snjó af stétt og plani, og fékk gat á hausinn. Hann varð að fara á heilsugæslun til að láta líma sig saman og lappa upp á sig. Ég gleymdi að spyrja hann hvort hann væri búinn að láta starfsfólkið í sundlauginni vita. Ef ekki hafa þau væntanlega hringt í hann áðan því mér skilst að það sé hægt að stilla klukkuna eftir honum og ef hann er ekki mættur á sínum tíma og hefur ekki látið vita er hringt, jafnvel mætt til hans. Gott að vita af þeim öryggisventli.

Annars hringdi ég svo tvö símtöl í gærkvöldi. Annað í Helgu systur að láta hana vita um pabba og svo í eina fyrrum samstarfskonu mína úr kortadeildinni. Hún færði mér sorglegar fréttir af kisunni sinni, varð að láta svæfa hana í síðasta mánuði vegna alvarlegrar nýrnabilunar.

En hvort það voru þessi símtöl eða það að fartölvan er geymd inn í skáp, sem urðu til þess að færsla féll niður í gær veit ég ekki. Veit heldur ekki hvort ég sleppi færslu þegar ég kem heim eftir vinnu, osteostrong og sjósund í kvöld. Það verður bara að koma í ljós.

23.3.26

Gular viðvarandi

Var komin á fætur upp úr klukkan hálfsjö. Gerði nokkrar æfingar með 1,5kg lóðunum, las í fræðunum og fékk mér afgang af hafragraut í morgunmat um sjö. Hitaði bílinn á meðan ég tannburstaði mig og var mætt í vinnu um hálfátta. Fyrsti bíll kom í skoðun á slaginu átta rétt eftir að ungi stöðvarstjórinn mætti til vinnu. Afleysingaskoðunarmaðurinn kom fljótlega og voru 14 bílar skoðaðir fram að hádegi en þeir urðu 33 í heildina. Afgreiðslu störfin voru fjölbreytt, leysti úr flestu en fékk aðstoð í þremur mismunandi tilfellum. Við lokuðum á slaginu hálffimm og ég fór beinustu leið í sund. Kaldapotts vinkona mín var búin að senda 100 þegar ég mætti á braut 8. Ég synti 3 ferðir, 300 og svo fórum við alls fjórum sinnum í þann kalda, tvisvar í heitasta pottinn, langa gufuferði og  næstum því jafnlanga ferð í sjópottinn. Heim heim stuttu fyrir sjö og bjó mér til plokkfisk úr matnum frá í hádeginu í gær. Á smá afgang eftir af honum sem ég mun líklega klára kaldan annað kvöld. 

22.3.26

Áttugastiogfyrsti dagur ársins

Ég vaknaði stuttu fyrir sjö en fór ekki framúr fyrr en klukkan var byrjuð að ganga níu. Oddur Smári var vaknaður en þó ekki kominn á fætur. Fljótlega ákvað ég að útbúa hafragraut og sá grautur stóð með okkur mæðginum til hádegis. Þá bauð ég upp á soðna ýsu, nokkrar soðnar nætursaltaðar gellur og soðnar kartöflur. Annars vorum við Oddur bara slök. Upp úr hádeginu fékk hann það staðfest að Davíð Steinn ætlaði að skutla honum austur seinni partinn. Dagurinn leið ágætlega hratt. Oddur kvaddi rétt fyrir fimm, þá var bróðir hans um það bil að renna að húsinu. Davíð Steinn hringdi í mig rétt eftir að þeir keyrðu burt frá blokkinni til að kasta aðeins á mig kveðju. Sjálf hringdi ég í pabba skömmu síðar til að taka stöðuna á honum. Hann var bara sprækur, lét vel af sér og sagðist vera í miklum krossgátugír. 

21.3.26

Laugardagur

Vaknaði um hálfsjö leytið. Var komin í laugardalinn á slaginu átta. Rétt áður hringdi Oddur Smári í mig og var hann m.a. að athuga hvort hann gæti fengið gistingu aftur sem var alveg sjálfsagt mál mín vegna. Synti 500m á braut 7, meiri hlutann á bakinu, fór þrjár ferðir í þann kalda, góða gufuferð og nokkrar mínútur í sjópottinn. Þvoði mér um hárið, í fyrsta skipti síðan ég var klippt. Þrátt fyrir stutt hár notaði ég höfuðhandklæðið. Þegar ég var á leiðinni út í bíl sá ég skilaboð frá esperanto vinkonu minni sem frestaði hittingnum. Ég var því komin heim aftur um tíu leytið. Einhverra hluta vegna fór ég ekkert út aftur en var að sýsla við ýmislegt. Oddur hringdi aftur rétt fyrir sex og spurði hvort ég væri búin að borða. Einhverra hluta vegna var ég ekki búin að elda úr ýsunni sem keypti í fiskbúðinni í gær. Hún er enn í ísskápnum. Bræðurnir komu með mat með sér, höfðu komið við á einum stað í Smáralindinni. Við borðuðum saman og Davíð Steinn stoppaði aðeins lengur á meðan hann hlóð símann sinn á hraðhleðslubanka bróður síns. Klukkan var samt ekki orðin hálfátta þegar hann kvaddi. Það mun svo ráðast á morgun hvort Oddur tekur strætó til baka austur eða hvort bróðir hans skutli honum.

20.3.26

Vinnuvikan liðin

Rumskaði stuttu áður en vekjarinn fór í gang. Dokaði við í stutta stund, snúsaði vekjarann en tveimur mínútum fyrir næsta ræs var ég búin að slökkva og byrjuð að undirbúa mig undir daginn. Forhitaði bílinn fimm mínútum áður en ég fór út og var mætt á planið við Laugardalslaugina í þann mund sem verið var að opna og hleypa inn. Synti 300m á braut 7. Eftir tvær ferðir í þann kalda hitti ég eina vinkonu í sjópottinum. Við fórum upp úr á sama tíma. Um það leyti sem ég var að fara að leggja af stað í vinnuna var óvenju mikið um sírenuvæl. Hugsaði ekki meir út í það fyrr en ég sá á einhverjum fréttamiðlinum hvað hafði gerst, sá það samt ekki fyrr en rúmum klukkutíma síðar. Annars var ívið meira rennerí í skoðun fyrri partinn en líka alveg nóg að gera eftir hádegi. Lokuðum á slaginu fjögur og ég fór beinustu leið í fiskbúð Fúsa áður en ég fór heim. Það var blint á köflum í umferðinni og hún því extra hæg. Allt gekk þó vel fyrir sig. Hringdi og spjallaði við pabba á heimleiðinni. Ákvað svo að stinga bílnum í samband þótt enn væru rétt rúm 40% eftir af hleðslunni. Helga systir hringdi í mig um hálfníu leytið með síðbúnar afmæliskveðjur og fréttir af þeim fyrir norðan. Ingvi mágur er búinn að fá aðra vinnu, byrjar eftir páska. Eftir símtalið við Helgu ákvað ég að hringja í eina fyrrum samstarfskonu og átti gott spjall við hana. Klukkan var að verða tíu þegar ég stoppaði loksins hleðsluna eftir fimm tíma á staurnum, fór út, gekk frá kaplinum og færði bílinn í annað stæði.

19.3.26

Aðalfundur

Þegar vekjarinn fór að hamast korter fyrir sex var ég alls ekki tilbúin að fara á fætur og í sund. Kúrði áfram til klukkan hálfsjö og var mætt í vinnu um hálfátta. Mjög rólegt var fram að hádegi innan við tíu bílar skoðaðir en eins og í gær uðru þeir 30 á endanum. Hringdi og spjallaði við pabba á meðan ég var á leiðinni heim úr vinnu. Lagði á efra planinu og var komin heim stuttu fyrir fimm. Í stað þess að hvíla mig aðeins og eða að setja inn færslu fékk ég mér að borða og horfði á einn nýja þátt í Chicago Med áður en ég fór í fundarfötin og lagði af stað á fund. Var mætt á staðinn fyrir klukkan hálfsjö og komin heim aftur rétt fyrir hálftíu. 

18.3.26

Annar í afmæli eða þannig

Var komin á fætur fyrir klukkan hálfsjö, vöknuð mun fyrr þó. Það var ágætis tími til að sinna morgunrútínunni og fleira til. Mætti í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Morguninn var frekar rólegur, innan við tíu bílar skoðaðir þeir urðu þó þrjátíu áður en vinnudegi lauk. Fór beinustu leið í osteostrong eftir vinnu, gerði vel á öllum tækju og slakaði svo vel á á eftir áður en ég fór í Nauthólsvík. Þar var engin ferð á logninu, flóð og sjórinn 1,6°C. Fór tvisvar sinnun út í, gufu á milli ferða og smá stund í pottinn eftir seinni ferðina. Kom heim stuttu fyrir klukkan sjö. Þá var bíllinn kominn niður í 28%. Það var laust á staurnum sv ég bakkað að, stakk í samband og hóf hleðslu. Var nýkomin inn í íbúð þegar ég sá tilkynningu um að hleðsla hefði stöðvast. Varð að fara út aftur og það tók rúmar fimm mínútur að koma hleðslunni af stað aftur. Nú rúmum tveimur og hálfum tíma síðar er bíllinn kominn í 61%. Ætla helst að fara með hann upp í 80% en vil helst ekki fara of seint að sofa og alls ekki hafa bílinn tengdan í alla nótt þótt. Veit að ég á að geta séð til þess að hleðsla stoppi eftir eða á ákveðnum tíma en samt, ég vil ekki hafa hann tengdan við staurinn í marga klukkutíma. Annars er ég búin að fá fullt af afmæliskveðjum í dag.

17.3.26

21.184 dagar síðan ég fæddist

Þrátt fyrir að hafa farið að sofa með seinni skipunum eða einhvern tíman á tólfta tímanum í gær var ég að byrja að losa svefn rétt áður en vekjaraklukkan hringdi korter fyrir sex. Fékk mér helming af afgangi af hafragraut síðan á laugardag og var mætt á braut 8 í Laugardalslaug tuttugu mínútum fyrir sjö. Synti 300m, fór þrisvar í þann kalda, einu sinni í heitasta og tæpt korter í sjópottinn, sleppti gufunni. Stimplaði mig inn í vinnu átján mínútum fyrir átta. Rétt á eftir mér mætti afleysinga skoðunarmaðurinn. Milli klukkan átta og hálfellefu komu aðeins tveir bílar inn til skoðunar. Ég skrapp í brjóstaskimum skömmu síðar og á þessum tæpa klukkutíma sem ég var í burtu (mesti tíminn fór í að finna stæði skammt frá Eiríksgötu 5) voru skoðaðir fjórir bílar þar af voru tveir nýskráðir. Í heildina voru skoðaðir 24 bílar í dag sem er með minnsta móti. Það var samt alveg nóg að sýsla hjá mér og dagurinn leið frekar hratt. Eftir vinnu skrapp ég aðeins í Krónuna í Skeifunni til að athuga hvort þar væri til kókosvatn. Því miður var það ekki. Svo kom ég við á PreppBarnum og tók heim með mér lítið Mexico box á þriðjudags tilboði.

16.3.26

Vaknaði stuttu fyrir klukkan sex, rúmum klukkutíma fyrir þann tíma sem ég hafði planað. Ég hafði því tíma til að lesa og lyfta ásamt morgunverkunum á baðherberginu og fá mér morgunmat. Mætti í vinnu um hálfátta. Hellti upp á, skúraði kaffistofuna og gólfið í klósettrýminu og startaði tölvukerfunum. Ungi stöðvarstjórinn mætti fimm mínútum fyrir átta og áður en klukkan  var búinn að slá var einn búinn að skrá sig inn í skoðun, tveir bættust nær strax í röðina og sá fjórði mjög fljótlega. Afleysinga-skoðunarmaðurinn mætti rúmlega átta, hafði lagt af stað úr Hafnarfirðinum um hálfátta. Í heildina voru skoðaðir 46 bílar í dag, Ég stimplaði mig út á slaginu hálffimm og var ekki síðust út. Fór beint í sund. Varð að leggja bílnum lengra frá en safnað þá einhverjum skrefum. Kalda potts vinkona mín var búin að synda 100m þegar ég mætti á braut átta um fimm. Ég synti aðeins 200m áður en við vinkonurnar fórum að pottormast. Eftir sund lagði ég leið mína að Löðri við Vesturlandsveg og renndi bílnum í gegnum mannaða þvottastöðina. Kom svo við í Krónunni í Lindum og verslaði áður en ég fór heim.

15.3.26

Inni dagur í dag

Vaknaði rétt fyrir klukkan sjö en nennti ekki alveg strax á fætur. Sofnaði samt ekki aftur og veit ekki hvernig ég fór að því að hanga í rúminu alveg til klukkan að verða hálfníu. En ég náði meira að segja að klæða mig og búa um áður en ég fór og sinnti morgunverkunum á baðherberginu. Oddur var vaknaður. Ég bjó til hafragraut handa okkur og við sátum í dágóða stund við eldhúsborðið áður en við gengum frá eftir morgunmatinn og bjuggum um hann. Hann var ekki með neitt sérstakt á prjónunum en átti von á því að Davíð Steinn myndi skutlast með hann austur um fjögur leytið. Úr varð að við héldum spjalli áfram í stofusófanum, horfðum á nokkra þætti og upp úr hádeginu sauð ég nokkrar kartöflur og steikti tvö bleikjuflök. Stuttu fyrir hálffimm hringdi Davíð Steinn í Odd og sá síðarnefndi skilaði kveðju frá bróður sínum og kvaddi. Ég hefði auðvitað getað skroppið aðeins út í smá göngutúr en tíminn fór í allt annað. 

14.3.26

Le droit humain

Ég var mikið að spá í að taka mér færslufrí í dag, sérstaklega þar sem dagurinn er að mestu helgaður félagsskap sem ég er nýlega gengin til liðs við. Félagsskap þar sem stunduð er mannrækt og gerir ekki greinarmun á kynjum, litarhætti, trú eða trúleysi, allir eru velkomnir en verða þó að vera tilbúnir í vinnuna. Ég er það nýgenginn í eina stúkuna að ég á margt eftir ólært en veit jafnfram að ég get líka gefið af mér. Milli klukkan ellefu og fjögur í dag var haldið sambandsþing og mættu fulltrúar úr öllum stúkum; frá Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og Reykjavík. Vissulega var dagurinn langur, og hann er ekki búinn enn því það er hátíðarkvöldverður á La Primavera í Hörpu í kvöld, en ég hefði alls ekki viljað missa af þessu. Þrátt fyrir að vera aðeins nýbyrjuð þá mátti ég leggja eitthvað til málanna. Hélt reyndar fyrst að ég hefði ekkert fram að færa en það kom á daginn að ég hafði alla vega eitthvað smá að segja, greip hamarinn tvisvar sinnum í mínum umræðuhóp sem var númer níu af níu hópum. Ég er nýkomin heim. Á von á Oddi sem er að fara í þrítugsafmæli í kvöld og ætlar að fá að gista. Hann verður vonandi kominn áður en ég verð sótt að öðrum kosti er hann upp á bróður sinn kominn með að fá húslykla lánaða. Davíð Steinn er búinn að vera með húslykla og lykil að geymslunni síðan við tæmdum snjallgeymsluna um miðjan janúar sl.

13.3.26

Ekki lengur með sítt hár

Klukkan var rétt orðin fimm þegar ég vaknaði í morgun. Ákvað að drífa mig bara á fætur og nota hluta af aukatímanum til að skipta um á rúminu. Var mætt á braut 7 í Laugardalslaug nítján mínútum fyrir sjö og synti ég 400 metra, flesta á bakinu. Fór tvær ferðir, eina langa og aðra stuttta í þann kalda og sjö mínútur í sjópottinn áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Mætti í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Um níu leytið kom eftirlitsmaður frá samgöngustofu og fylgdist með skoðunarmönnunum skoða fram að hádegi. Þessi eftirlitsmaður kemur einu sinni í mánuði, sjaldan á sama tíma. Rétt fyrir hádegi skrapp annar skoðunarmaðurinn í bakarí á Sogaveginum og keypti fyrir okkur öll þrjú súpu dagsins. Stimplaði mig út úr vinnu á slaginu fjögur og fór í klippingu. Var mætt tuttugu mínútum áður en tíminn var settur en ég fékk mér bara sæti í sófanum og eitt vatnsglas á meðan ég beið. Klipparinn minn spurði mig tvisvar hvort ég væri alveg viss um að ég ætlaði að klippa mig stutt að þessu sinni og eins og það var erfitt að taka þessa ákvörðun þá var ég orðin 100% viss. Svei mér þá ef ég yngdist bara ekki upp um nokkur ár, orðin að stutt- hrokkinhærðri skvísu með meiru. Var svo eitthvað að spá í að fara með bílinn í gegnum þvottastöð, kominn tími á það, en einhvern veginn endaði ég heima. Hafði fiskibollur og kartöflur með smjörklípu í kvöldmatinn. 

12.3.26

Líður á vikuna

Mig var að dreyma einhverja vitleysu þegar vekjarinn fór af stað í morgun. Eitt augnablik hvarflaði að mér að endurstilla vekjarann og kúra í klukkustund í viðbót. En svo dreif ég mig á fætur og var mætt í sund klukkan hálfsjö. Synti reyndar aðeins 200m en gaf mér tíma í bæði gufu og sjópott ásamt tveimur ferðum í þann kalda. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta og var búin að hella upp á könnuna, ræsa tölvukerfin í afgreiðslunni, gera upp og kveikja á pressunni þegar skoðunarmennirnir komu. Rétt eftir klukkan átta kom fyrsti bíll inn. Verkefnin mín voru alls konar fyrir utan að skrá inn bíla sem voru í færri kantinum í dag eða um 30. En vinnudagurinn leið nokkuð hratt. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið heim og stakk bílnum í hleðslu. Upplýsingarnar í Ford-appinu í símanum voru eitthvað að stríða mér og ég fór tvisvar út að athuga hvort ekki væri allt í lagi. Í seinna skipið fór appið að haga sér rétt. On-appið hagaði sér rétt allan tímann. Bíllinn er nú kominn upp í 73% er var í 32%. Ætla að fylla upp í 85-95% og það gæti tekið amk klst í viðbót.

11.3.26

Osteostrong og sjósund eftir vinnu

Fór að sofa um hálfellefu eftir að hafa stillt klukkuna á korter fyrir sjö. Rumskaði fyrir klukkan fimm og um hálfsex gafst ég upp á að reyna að kúra, kveikti ljós og greip í bók. Var mætt í vinnu um hálfátta. Var búin að hella upp á, gera upp, opna kerfin og taka saman smá rusl fyrir klukkan átta. Ungu skoðunarmennirnir mættu rétt fyrir átta. Það kom einn bíll í skoðun skömmu síðar en næst bíll eftir það var skoðaður á tíunda tímanum. Í heildina voru samt skoðaðir þrjátíu og þrír bílar. Ég var mætt í osteostrong stuttu fyrir klukkan fimm og í Nauthólsvík um hálfsex. Sjórinn 2°C og það var fjara. Einstaklega hressandi að skella sér útí, fyrst í uþb 7 mínútur, korter í gufu, aftur í sjóinn í tvær mínútur og svo rúmar tíu mínútur í pottinum áður en ég fór upp úr og heim. 

10.3.26

Allt að fara í eðlilegan farveg

Held að ég hafi verið sofnuð fyrir klukkan hálftíu í gærkvöldi. Rumskaði svo ekkert löngu áður en vekjarinn hringdi. Fékk mér harðsoðið egg, 2 steinlausa döðlur, vítamín og vatnsglas í morgunmat og var mætt í Laugardalslaug í þann mund sem verið var að opna. Synti 400m, fór þrisvar sinnum í þann kalda, sleppti gufunni og náði fyrir vikið sjö mínútum í sjópottinum. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Gerði upp og gerði afgreiðslukerfin klár. Ungi skoðunarmaðurinn mætti nokkrum mínútum fyrir átta. Fyrsti bíll kom inn rétt rúmlega átta en svo var rólegt til klukkan níu. Eftir níu hópaðist fólk með bíla í skoðun. Klukkan um ellefu fengum við auka skoðunarmann til okkar sem var eins gott því það kom mikið að fólki strax eftir hádegislokun og í raun var engin pása fyrr en um þrjú og þá bara örstutt en svo róaðist allt rétt fyrir fjögur. Hátt í 50 bílar skoðaðir í dag. Meira gerðist á vinnudeginum sem ég ætla ekki að fara nánar út í, alls ekki víst að það sé gott að hafa það á opinberu prenti. Hugsanlega er hægt að skrifa um það "undir rós" en ég ætla hins vegar bara að þakka fyrir að búið er að taka á ákveðnum málum og hafa 100% trú á að búið sé að afgreiða og klára málin. Kom aðeins við hjá N1 syninum í Borgartúni áður en ég fór heim. 

9.3.26

Ný vinnuvika

Eftir svolítið skrýtna nótt fór ég á fætur korter fyrir sjö. Fékk mér chiagraut í morgunmat og tók svo með mér afgang af grjónagraut í vinnuna. Varð meira en lítið hissa á að kerfið var ekki á í vinnunni. Báðar hurðarnar voru þó læstar en þegar inn kom voru skýr merki um að einhver hafði verið á staðnum einhvern tímann um helgina. T.d. hafði verið hellt upp á kaffi en brúsinn ekki tæmdur og skolaður eftir. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að stöðin hafði verið lánuð til að taka upp mússík-myndband. Annars vorum við bara tvö í vinnu, ég í afgreiðslunni og einn skoðunarmaður sem skoðaði 37 bíla í dag. Sluppum þó út um hálffimm. Ég fór beint í sund, hitti kaldapotts vinkonu mína í kalda pottinum og átti rúmlega klukkustundar gæðastund með henni. Kom heim upp úr klukkan hálfsjö og er að græja mér plokkfisk í kvöldmatinn.

 

8.3.26

Hvíldardagur með smá útúrdúr

Rumskaði um fimm leytið, alltof snemma, en sofnaði fljótlega aftur og svaf þá til klukkan að verða hálfníu. Greip í bók í stað þess að fara á fætur; Steinninn eftir Ragnheiði Gestsdóttur. Byrjaði á henni í gær. Las í rúma klukkustund áður en ég fór loksins á fætur og tók svo þá ákvörðun að ekkert yrði úr sundi í dag. Kláraði að lesa bókina á tólfta tímanum og átti þá bara eina bók ólesna af safninu, fyrir utan Kon-Tiki. Esperanto vinkona mín var í sambandi í gærkvöldi og við ákváðum að hittast hjá henni um hádegisbilið í dag. Ætlaði varla að nenna af stað því það var dimmt yfir og snjókoma. Hitaði bílinn  og þurfti rétt aðeins að sópa af honum. Var komin vestur í bæ um tólf og stoppaði í um einn og hálfan tíma. Á þeim tíma lásum við m.a. 5 bls. í Kon-Tiki. Svo kom ég við í Kringlusafninu á leiðinni heim. Skilaði fjórum bókum af fimm, m.a. títtnefndri Kon-Tiki. Tók hana að láni strax aftur sem og sjö aðrar. Þrjár af þeim bókum eru reyndar ekki skáldsögur. Sjáum til hvort ég skrifa eitthvað um þær og hinar bækurnar síðar. 

7.3.26

Hárþvottadagur

Það hvarflaði örstutt að mér að skrópa í sundið í morgun og sofa aðeins lengur. En ég dreif mig á fætur um sjö leytið og var komin í Laugardalslaugina rétt eftir að opnaði um átta. Fór á braut 8 og þegar ég kom til baka eftir fyrstu 100m tók annar skórinn á móti mér. Hinn var ennþá upp á bakkanum. Tók þá báða og kom þeim fyrir í rennunni. Þegar ég var langt komin með  níundu ferðina (450m) sá ég mikinn glampa og skömmu síðar heyrðis svaka þruma. Ég synti þó yfir aftur en ákvað að drífa mig sem fyrst í kalda pottinn ef það kæmu fleiri eldingar og þrumur og þyrfti að rýma staðinn. Til þess kom þó ekki. Komst fjórar ferðir í þann kalda, fór í gufu í um korter og tíu mínútur í sjópottinn áður en ég fór inn og þvoði mér um hárið. Var komin alla leið vestur í bæ þegar ég sá skilaboð frá esperanto vinkonunni um að hún yrði að fresta espó-hittingnum. Ég var því komin heim um hálfellefu. Laust var á staurnum, bíllinn í 32% og ég setti hann í hleðslu alveg til klukkan að verða fjögur í dag. Annars er ég búin að klára að lesa skammtímalánsbókina en skilafresturinn á henni og tveimur öðrum bókum er fljótlega eftir helgina. 

6.3.26

Komin helgi

Mætti í  sundið um hálfsjö í morgun. Synti aðeins 200m en fór tvær ferðir og dýfu í þann kalda og var 7 mínútur í gufunni og aðrar 7 í sjópottinum. Var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta í morgun. Var nýbúin að hella upp á þegar stöðvarstjórinn mætti. Hann sagðist reyndar ætla að stoppa stutt. Var í tæpa tvo tíma á staðnum og þegar hann fór var hann ekki viss um hvort hann kæmi aftur. Ungi skoðunarmaðurinn var því einn að skoða milli tíu og fjögur, með hálftíma pásu í hádeginu. Reyndar kom svo pása um þrjú leytið. Eftir vinnu kom ég við í Fiskbúð Fúsa og leit svo inn til fyrrum nágranna áður en ég fór heim. 

5.3.26

Líf í tuskunum

Svefninn var eitthvað órólegur sl. nótt og þegar vekjarinn hringdi korter fyrir sex ákvað ég að endurstilla hann á korter fyrir sjö. Sofnaði greinilega strax aftur því mér fannst engin stund hafa liðið þegar verkjarinn fór aftur af stað. Ég sleppti semsagt sundinu í morgun og mætti beint í vinnu rúmlega hálfátta. Hafði fyrst þurft að sópa af bílnum sem tók þó ekki langa stund þrátt fyrir að mér tókst ekki að ræsa hitakerfið fimm mínútum áður en ég fór út. Annars vorum við tvö í vinnu milli klukkan átta og tíu en þá kom sami afleysingamaðurinn og í gær. Í heildina voru skoðaðir 44 bílar. Ég var síðust út úr vinnu rúmlega hálffimm og komin heim áður en klukkan varð fimm. Ákvað að byrja á því að horfa á síðasta þáttinn í fyrstu seríunni um rannsóknarlögreglukonuna Hildi. Bíð spennt eftir framhaldinu.

4.3.26

Tíminn heldur áfram á hraðferðinni

Ég vaknaði löngu áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Ákvað að grípa í bók og náði að klára Kalmann og fjallið sem svaf korteri fyrir hringingu. Slökkti á vekjaranum og tók svo smá lóða-æfingar þegar ég var komin á fætur. Fékk mér chiagraut í morgunmat og tók svo til sjósundsdótið og smá maul. Hitaði bílinn í fimm mínútur áður en ég fór út, rétt þurfti að sópa af honum. Var mætt í vinnu um hálf, fyrst af öllum og var búin að búa til kaffi og gera upp úr báðum kerfunum áður en ungi maðurinn mætti. Samt var ég í smá myrkraverki því það kviknaði ekki ljósið í afgreiðslunni. Það hafði víst slegið út en ég var ekkert að spá í því. Beggi sá um það fljótlega eftir að hann mætti. Við fengum engar fréttir af stöðvarstjóranum fyrr en ég hringdi í hann rétt rúmlega átta. Hann sagðist ekki vera að koma í vinnu en kom þó aðeins stuttlega við upp úr klukkan tíu. Þá vorum við búin að fá liðsauka en önnur brautin var biluð þannig að skoðunarmennirnir hjálpuðust að á brautinni sem var í lagi og skiptust á að "dæma" bílana. 45 bílar voru skoðaðir í dag. Ungi maðurinn skrapp frá í hádeginu, bæði í smá útréttingar og líka heim til sín í mat því það er víst ekkert langt þangað. Við hin læstum að okkur í hálftíma. Ég var svo annars síðust út en engu að síður mætt í osteostrong tíma tíu mínútum fyrir fimm og í Nauthólsvík um hálfsex leytið. Kom heim rúmum klukkutíma eftir það og setti bílinn í hleðslu þótt enn væru rétt rúm 40% eftir. Ætla bara að hlaða hann upp í rétt rúm 80% að þessu sinni.

3.3.26

Erill á köflum

Vekjarinn vakti mig korter fyrir sex í morgun. Borðaði afganginn af hafragrautnum í morgunmat. Mætti í Laugardalslaug rétt eftir opnun. Fór beint á braut 8 og synti 300m. Þegar ég var á leið í þann kalda sá ég tilsýndar að sjópotturinn var lokaður. Eftir 4 mínútur í kalda fór ég því í gufu í 10 mínútur, kalda sturtu á eftir, smá stund í heitasta pottinn og svo hálfa mínútu/dýfu í þann kalda. Mætti fyrst í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Tók úr lás, slökkti á kerfinu, kveikti ljós, stimplaði mig inn og setti upp kaffið. Ungi maðurinn mætti tíu mínútum á eftir mér. Það var mátulega búið að kveikja á öllu þegar fyrsti kúnninn kom á slaginu 8. Síðan var næstum klukkutíma pása í skoðununum en eitthvað um önnur afgreiðslumál, ss eins og símsvörum, netspjall og fleira. Skoðunarmaðurinn skrapp heim í hádeginu, ég ætlaði að læsa um tólf en tafðist um tíu mínútur vegna annarra afgreiðslumála. Ég var nú samt búin að fá mér borða og tilbúin í afgreiðslustörfin um hálfeitt og það var mikill erill til klukkan að verða þrjú. Róaðist aðeins eftir það en aldrei þannig að það væri alveg stopp. í Heildina voru skoðaðir um 25 bílar, hef ekki tölustakstík yfir hinar afgreiðslurnar. Siggi framkvæmdastjóri kom stuttu fyrir hálffimm til að taka stöðuna. Klukkan var því orðin svolítið meira en hálffimm þegar ég stimplaði mig út. Þar sem skoðunarmaðurinn er ekki kominn með lykla af stöðinni sá ég um að setja kerfið á og læsa á eftir okkur. Kom við í Krónunni í Lindum á heimleiðinni og þótt ég væri ekki með marga eða þunga poka lagði ég bílnum á efra planið og tók þar að auki lyftuna upp á fjórðu hæð.

2.3.26

Glæný vinnuvika

Ég fór frekar seint að sofa í gærkvöldi en þó fyrir miðnætti. Sofnaði ekki strax og ekki fast, önnur bókin sem ég er að lesa togaði aftur í mig og ég lét undan milli klukkan eitt og tvö. Var svo komin á fætur upp úr klukkan hálfsjö og í vinnu rúmri klukkustund síðar. Stöðvarstjórinn mætti um svipað leyti og ég og tíu mínútum á eftir okkur kom nýji skoðunarmaðurinn. Rólegt var fyrsta klukkutímann og stuttu fyrir tíu vorum við, sá nýi og ég skilin eftir ein afganginn af deginum. Þá var búið að skoða eitthvað um fjóra bíla en þeir urðu rúmlega þrjátíu í heildina. Ungi maðurinn að standa sig mjög vel og svo er hann vel fær í að sinna innbókunum í afgreiðslunni líka. Hann sá um að slökkva á öllu í skoðunarrýminu en ég setti kerfið á og lokaði á eftir okkur. Var mætt í kalda pottinn í Laugardalslauginni um fimm og hitti strax á kalda potts vinkonum mína sem var farin að bíða eftir mér. Ég sleppti sundinu en var að pottormast í rúman klukkutíma. Hluti af þeim tíma fór reyndar í gufubaðsstund. Var komin heim upp úr klukkan hálfsjö. 

1.3.26

Sofið út

Fór ekki á fætur fyrr en um hálfníu í morgun. Var að vísu vöknuð um klukkustund fyrr en ég byrjaði daginn semsagt á því að grípa í bók. Rétt fyrir níu útbjó ég mér hafragraut, tvo skammta þannig að ég á afgang í ská inni í ísskáp. Fimm mínútum áður en ég fór út að sópa af bílnum setti ég hitakerfið á. Klukkan var að verða eitt þegar ég kom til baka eftir langan en mjög góðan fræðslufund. Bjó mér til plokkfisk úr fiskafgangi frá því í gær. Svo stóð alltaf til að ég drifi mig aðeins út í smá göngu en einhvern veginn fór restin af deginum í lestur, slökun og þáttaáhorf. En hey það er eða var nú einu sinni sunnu/hvíldar-dagur í dag.

28.2.26

Síðasti febrúardagurinn í ár

Rumskaði frekar snemma en sofnaði sem betur fer fljótlega aftur. Var komin á fætur upp úr klukka sjö og á braut 8 í Laugardalslaug korter yfir átta. Sinnti hárþvottsrútínunni, þ.e. synti flestar ferðir á bakinu en brá þó fyrir mig bringu- og skriðsundi inn á milli. Sat fimm mínútur í kalda pottinum áður en ég fór í gufuna og svo nokkrar mínútur í sjópottinum áður en ég tók smá dýfu í kalda og fór upp úr. Var mætt vestur í bæ um tíu. Ætlaði að hafa bílinn í hleðslu á meðan ég væri í esperanto-hittingnum. Staurarnir voru báðir lausir en það kom upp einhver villa svo ég hætti við og lagði bílnum í annað stæði. Við Inger lásum fimm bls. í Kon-Tiki. Þegar ég fór frá henni fór ég með bílinn í gegnum þvottastöðina Löður við Fiskislóð og svo beint heim eftir það. Laust var í hleðslu á planinu og það gekk fínt og  koma öllu í gang. Hann var kominn niður í 30% og núna kominn í 93%. Ætla að taka hann úr sambandi og færa bílinn í annað stæði um leið og ég hef lokið við þessa færslu. Skammtímaláns bókin af safninu er; Englatréð eftir Lucindu Riley og er ég búin að lesa 120 bls af uþb 600. Ég er líka að lesa Kallmann og fjallið sem svaf eftir Joachim B. Schmidt. Það er bók sem er með skilafrest til 9. mars n.k. en hægt er að framlengja um 20 daga. Kláraði annars og sendi inn skattskýrsluna rafrænt í gær, fékk smá aðstoð í gegnum síma hjá tvíburahálfsystur minni og dóttur hennar.

27.2.26

Fössari

Þegar vekjarinn hringdi klukkan korter fyrir sex ákvað ég að slökka á honum og stilla klukkuna á rúmlega hálfsjö. Ákvað þar með að vera ekkert að fara í morgunsund. Var eitthvað að velta því fyrir mér að taka sjósundsdótið með mér en hvarf frá þeirri hugsun. Hitaði upp bílinn í fimm mínútur áður en ég fór út að sópa smá snjó af honum korter yfir sjö og var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Fékk strax þær fréttir að við yrðum bara tvö, þriðja daginn í röð, ég og skoðunarmaðurinn sem er að hætta. Á tímabili var svolítið mikið að gera á mörgum vígstöðum, bæði hjá mér og skoðunarmanninum en það róaðist eftir klukkan tvö. Alls voru skoðaði yfir 30 bílar þriðja daginn í röð, einhver sagði um daginn að það væri fínt dagsverk fyrir einn mann að skoða uþb 25 bíla. Ég var seinust út, slökkti, setti kerfið á og læsti á eftir mér. Kom við í Fiskbúð Fúsa á heimleiðinni og keypti mér harðfisk, bleikju og ýsu. Í póstkassanum beið mín innheimtubréf vegna vangoldinna fasteignagjalda á kennitölu dánarbúsins. Eitthvað hlýtur það að hafa fallið milli skips og bryggju við uppgjörið í október. Fasteignaskuldin með vöxtum og innheimtu er rúmlega þrettán þúsund. Og svo er komið að árlegum skattskilum, þarf að klára og senda skýrsluna inn í síðasta lagi 13. mars n.k. Það er alltaf eitthvað. Ég fékk líka þær fréttir í gær að Sigga, lambið/gemsinn sem ég bjargaði í fyrra er með tveimur lömbum. Og Hulda frænka og Óli eru búin að trúlofa sig. 

26.2.26

Febrúar klárast um helgina

Það er bara einn virkur dagur af þessum mánuði og einn helgidagur. Næsti mánuður hefst á sunnudaginn. Hví hleypur tíminn svona hratt áfram? Ég var komin á fætur rúmlega hálfsex og mætt í Laugardalslaug rétt eftir að opnaði. Synti 100m á braut 8 og 200 á braut sjö. Sleppti gufunni en fór þrjár ferðir í þann kalda, eina í þann heitasta og smástund í sjópottinn. Stimplaði mig inn í vinnu korter fyrir átta. Vorum aðeins tvö á stöðinni í dag, líkt og í gær. Það voru ekki margar rólegu stundirnar, amk ekki hjá skoðunarmanninum en hann fór í mat í fyrra fallinnu og hægði á eftir hádegi. Á morgun er síðasti vinnudagurinn hans en hann reiknar þó með því að koma fljótlega til að leysa af dag og dag, en þó ekki strax í næstu viku. Ég var síðust út úr húsi rétt rúmlega hálffimm. Bókasafnspokinn með fjórum lesnum bókum af sex var meðferðis og ég skrapp í Kringlusafnið og skilaði þeim. Ætlaði mér aðeins að taka eina bók en þær urðu þrjár og þar af ein skammtímalánsbók. Meira um þær bækur síðar. Fór með pokann út í bíl en notaði svo helming af kringlugjafakorti til að versla smávegis í Bónus áður en ég fór heim. Núna er ég að skrá niður það helsta um daginn og búa mér til grjónagraut.

25.2.26

Sjórinn alltaf jafn hressandi

Vaknaði korteri áður en vekjarinn átti að fara af stað, eða klukkan hálfsjö. Um klukkutíma síðar var ég mætt í vinnuna. Aðeins einn skoðunarmaður mætti í dag en hann var búinn að afgreiða yfir 30 bíla áður en hann þurfti að fara til læknis um þrjú leytið. Sem betur fer var nokkuð rólegt milli þrjú og hálffimm en þó komu fjórir sem ætluðu að koma í skoðun, þar á meðal einn sem kom rétt áður en ég lokaði. Sá hefði mjög líklega ekki sloppið inn. Forstjóri frumherja kom annars í heimsókn í morgun og staldraði við í amk hálftíma. Áður en ég fór í osteostrong tíma eftir vinnu þurfti ég aðeins að sópa af bílnum en ég var svo mætt í Hátúnið tíu mínútum fyrir fimm og komst beint að. Tæpum hálftíma síðar var ég lögð af stað í Nauthólsvík. Hringdi í Helgu systur og spjallaði við hana hluta af leiðinni. Var með sömu sjórútínu og undan farnar vikur, tvær ferðir í sjóinn, góð gufuferð milli ferða og svo nokkrar mínútur í pottinum áður en ég fór upp úr og heim. 

24.2.26

Erilsamur dagur í vinnunni

Var komin á fætur upp úr klukkan hálfsex. Greip þó hvorki í bók né handlóð. Fékk mér chiagraut og var mætt í Laugardalslaug um leið og opnaði um hálfsjö. Synti 300m á braut átta, þar af 100m skriðsund. Sat um fjórar mínútur í kalda pottinum, tíu mínútur í gufu, sjö mínútur í sjópottinum og tók svo eina dýfu í kalda áður en ég fór upp úr og í vinnuna. Stimplaði mig inn korter fyrir átta. Þó það væri erilsamt á köflum í vinnunni komu alveg tímar inn á milli þar sem var rólegt. Skoðaðir voru yfir fimmtíu bílar, síminn var með rólegra móti en ég svaraði þó nokkrum símtölum og gat greitt úr flestum erindum. Ég var síðust út, slökkti og setti kerfið á rétt rúmlega hálffimm og var komin heim áður en klukkan varð fimm. Laust var á hleðslustaurnum og er bíllinn búinn að vera í hleðslu í tæpa þrjá tíma og er kominn upp í 84% en hann var ekki kominn niður fyrir 40% þar sem ég hlóð hann upp í 53% á hraðhleðslustöð við KFC í Lindum áður en ég kom heim í gærkvöldi. 

23.2.26

Síðasta vinnuvikan í febrúar hafin

Vaknaði einhvern tímann á sjötta tímanum alltof snemma þar sem ég var ekki á leið út úr húsi fyrr en stuttu fyrir klukkan hálfátta. Ég notaði tímann ágætlega í lestur, lóðaæfingar og fleira. Verkefnin í vinnunni voru af ýmum toga. Inn á milli komu rólegar stundir en svo var líka stundum eins og allar afgreiðslur (sími, póstur, netspjall, innskráning í skoðanir og fleira) þyrftu athygli í einu. Innskráning í skoðanir gengur fyrir og það þarf líka að svara netspjallinu hratt og vel. Lenti ekki í neinu veseni en þó stendur eitt mál útaf sem leysist örugglega á morgun. Var komin á braut 7 í Laugardalslaug tíu mínútum fyrir fimm. Synti 400m, helminginn á braut 7 og hinn helminginn á braut 8. Kalda potts vinkona mín kom beint úr Laugum og við hittumst í kalda pottinum. Eftir nokkrar kalda- og heitapotts ferðir fórum við í gufu, svo í sjópottinn og svo tók ég loka ferðina í þann kalda áður en ég fór upp úr aðeins á undan vinkonunni. Ég var komin heim upp úr klukkan hálfsjö. Hleðslan á bílnum var komin niður í 32% en það var fullt á staurnum svo ég ákvað að fara á KFC og stinga í smástund í hraðhleðsluna. Notaði mínúturnar tólf sem tóka að hlaða upp í rúm 53% til að panta mér kjúklingasallat til að taka með heim. Þessi hleðsla gæti dugað mér í amk tvo daga en ég er með það á bak við eyrað að stinga í samband út á plani eftir vinnu á morgun, þ.e. ef staurinn verður laus. 

22.2.26

Hulda 26 ára í dag

Vaknaði upp úr klukkan sjö og var komin á fætur um átta. Áður en ég sinnti morgunverkunum á baðherberginu kveikti ég á tölvunni. Fékk mér mandarínu og egg og vafraði svo um á netinu í um klukkustund. Þegar pabbi kom fram fór ég inn í eldhús aftur, útbjó mér te og settist svo við eldhúsborðið og fór í kaplakeppni við pabba. Kaplarnir gengu betur hjá honum heldur en mér. Um hálfellefu settist ég inn í stofu með tvær bækur. Um tólf fékk ég mér skyr og brauð og hélt svo lestri áfram þar til að var búin með aðra bókina og komin vel inn í hina; Mamma og ég  eftir Kolbein Þorsteinsson. Fékk þá bók lánaða í Fossheiðinni í gær. Kvaddi pabba stuttu fyrir klukkan þrjú. Var komin í bæinn um hálffimm leytið. Mikill sinueldur logaði við Elliðavatn og skammt frá Guðmundarlundi. Einhver hefur ekki verið að fara varlega með eld og allt sem er svo skraufþurrt þessa dagana. Um sexleytið útbjó ég mér kvöldmat sem samanstóð af fiskibollum og glurót og sætri kartöflu. Framundan er síðasta vika þessa mánaðar. Eftir viku verður kominn 1. mars. 

21.2.26

Hjá pabba

Fór að sofa í seinna fallinu í gærkvöldi og svaf alveg til klukkan að verða hálfátta. Var mætt í sund rétt rúmlega átta. Byrjaði á þvi að synda 500m, flesta á bakinu. Svo var það sá kaldi, gufan og sjópotturinn áður en ég fór upp úr, þvoði mér um hárið og fór til norsku esperanto vinkonu minnar. Lásum 4 bls. í Kon-Tiki. Kom heim rétt fyrir tólf. Lauk við að setja niður í tösku og um hálfeitt lagði ég af stað austur. Fór yfir Hellisheiðina og gerði gott stopp í Fossheiðinni. Þar var ég leyst út með aukagjöf, jólapúðaver með Önnu nafninu mínu á. Synir mínir voru komnir til afa síns þegar ég kom á Hellu. Annar þeirra ætlar að taka að sér að elda. Um hálffjögur skrapp ég í búðina og setti bílinn í hraðhleðslu í leiðinni. Hlóð hann upp í 85% en hann var kominn niður í 32%. Aldrei þessu vant kíkti ég í ríkið og keypti mér eina litla hvítvínsflösku, sem ég hef ekki gert síðan ég var í jólakortaföndrinu.

20.2.26

Rúmlega níuhundruð km

Ákvað það áður en ég færi að sofa að ég ætlaði að sleppa morgunsundinu og sofa til klukkan hálfsjö. Sleppti sundinu en var vöknuð um sex leytið. Gerði æfingar með 2kg lóðunum, kláraði afganginn af hafragrautnum sem ég bjó til á miðvikudagsmorguninn og var svo mætt í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. Það var frekar rólegt framan af. Um hálfellefu heimsótti okkur stöðvarstjórinn úr Hádegismóum en hann er að jafna sig eftir aðgerð á fæti. Sagðist líklega ekki geta skoðað næstu mánuði, jafnvel ár en á einhverjum tímapunkti gæri hann amk mætt komið í vinnu og sinnt afgreiðslustarfinu. Eldri stöðvarstjórinn, sem er að hætta um næstu mánaðamót, kvaddi okkur í fyrra fallinu. Fær oftast að hætta snemma á föstudögum. Hann kom þó fljótlega aftur þar sem yfirmaður okkar á BSK sviðinu (Siggi frændi) bað hann um að mæta aftur þar sem hann þyrfti að hitta aðeins á hann. Tilefnið var að færa viðkomandi kveðjugjöf frá fyrirtækinu þar sem Siggi verður í fríi um mánaðamótin. Sá sem fékk síðustu skoðun dagsins var frændi minn, næstelsti sonur Birnu bróðurdóttur pabba. Hann var með einn bróðurson sinn með. Sá er sex ára og var að eignast lítinn bróður fyrir fimm dögum og á líka þriggja ára systur. Eins og í gær hleypti stöðvarstjórinn mér aðeins fyrr heim án þess að ég væri að biðja um það. Fyrir vikið var ég aðeins á undan síðdegistraffíkinni. Þrátt fyrir að bíllinn væri ekki kominn niður fyrir 50% ákvað ég að setja hann í hleðslu. Laust var á staurnum og fínt að gera bílinn klárann í ferð út úr bænum um helgina. 

19.2.26

Fimmtudagur

Vaknaði fyrir allar aldir og byrjaði daginn á því að grípa í bók og lesa í tæpan hálftíma. Fór á fætur um hálfsex og greip smá stund í 2kg lóðin. Fékk mér gríska jógúrt í morgunmat og bætti chiafræum og bláberjum út í hana. Var mætt á braut 8 nítján mínútum fyrir sjö. Synti aðeins 200m en hafði þar af leiðandi ágætis tíma í þann kalda, gufuna og sjópottinn. Var mætt í vinnu ca korter í átta. Það var rólegt fyrst í stað en svo komu ýmis verkefni inn á milli í afgreiðslunni s.s. eins og símsvörun, svara eða senda tölvupósta, svara í tidio spjallkerfinu þegar beðið var um að spjalla við manneskju en ekki spjallmennið og eitt og annað fleira. Stöðvastjórinn hleypti mér aðeins fyrr heim án þess að ég væri að biðja um það. Þáði með þökkum því þá vissi ég að ég næði að slaka aðeins á. Annars ætlaði ég líka að segja titlana á tveimur bókum af safninu sem bíða eftir athygli minni; Kúnstpása eftir Sæunni Gísladóttur og Kalmann og fjallið sem svaf eftir Joachim B. Schmidt. 

18.2.26

Sjósund

Í morgun ætlaði ég að vakna í kringum korter fyrir sjö. Ég var hins vegar vöknuð löngu fyrir það. Gat eitthvað kúrt mig niður en rétt fyrir sex kveikti ég ljós og greip aðeins í bók. Fór á fætur um hálfsjö. Gerði æfingar með 2kg lóðum og bjó mér svo til hafragraut. Var mætt í vinnu um hálfátta og var með sjósundsdótið í skottinu. Vinnudagurinn var frekar rólegur inn á milli en verkefnin af ýmsum toga að venju. Um hálffjögur leytið ákvað stöðvarstjórinn að leyfa mér að fara fyrr úr vinnu, sennilega vegna þess að undanfarið hef ég oft verið ein eftir síðasta hálftímann og þá séð um að sinna annarri afgreiðslu en skoðunum og svo lokað og gengið frá. Ég fór beint yfir í Hátún tólf og þótt ég væri rúmum klukkutíma á undan fasta tímanum þurfti ég ekki að bíða. Ég var því komin í Nauthólsvík fyrir klukkan hálffimm og heim stuttu fyrir klukkan sex. 

17.2.26

Mánuður í afmælið mitt

Vekjarinn var stilltur á korter fyrir sex en ég var vöknuð aðeins fyrir hálfsex. Hafði því ágætis tíma til að gera nokkrar æfingar með 2kg lóðum. Var mætt á braut 8 19 mínútum fyrir sjö og synti 300m á tæpum fjórtán mínútum. Þar sem hringpottur 4, sem var heitasti potturinn, er bilaður er búið að hækka hitann á hringpotti tvö, næsta pott við þann kalda.  Fór því þrjár ferðir í þann kalda, eina í pott 2, nokkrar mínútur í gufu og sjópott og hafði líka tíma til að hanga aðeins í rimlunum. Stimplaði mig inn í vinnu rúmum tuttugu mínútum fyrir átta. Báðir skoðunar-mennirnir voru mættir. Skoðaðir voru yfir fjörutíu bílar í dag, m.a. einn lögreglubíll sem er kominn á mynjasafn lögreglunnar. Sírennurnar og ljósin virkuðu mjög vel. Seinni partiinn komu smiðir og settu upp hillur. Ég var síðust út um hálffimm og kom aðeins við í N1 í Borgartúni. N1 sonurinn er búinn að raka af sér skeggið. Kom heim fyrir klukkan hálfsex og þar sem laust var á hleðslustaurnum á planinu ákvað ég að hlaða bílinn þótt hann væri rétt kominn niður fyrir 50%. Þegar ég kom inn varð ég vör við að on-appið hafði ekki náð/eða misst sambandi. Ég fór því aftur út, klædd lopapeysu undir úlpunni, kom hleðslunni af stað aftur og notaði svo tækifærið og skrapp í tæplega hálftíma göngutúr. Þegar ég kom inn aftur dreif ég mig loksins í að taka niður seríuna af svölunum. 

16.2.26

Mánudagskvöld

Breytti aðeins til í morgun. Var búin að ákveða það áður en ég fór að sofa í gærkvöldi að sleppa morgunsundinu. Það kom til að því að ég fór ekki í sund í gær og hitti þar af leiðandi ekki kalda potts vinkonu mína. Ég sendi henni fyrirspurn seinni partinn í gær hvort hún yrði í sundi um fimm leytið ef ég myndi drífa mig í sund eftir vinnu. Svarið var jákvætt svo ég tók sunddótið með í morgun en geymdi það út í bíl á meðan ég var að vinna. Vinnudagurinn var nokkuð erilssamur, 40 bílar skoðaðir og ýmis mál afgreidd í gegnum síma. Ég var síðust út um hálffimm, slökkti, setti kerfið á og læsti á eftir mér. Var komin á braut 8 um fimm mínútum fyrir fimm. Synti aðeins 200m en sundgleraugun voru eitthvað að stríða mér og svo var vinkonan mætt. Fórum alls fjórum sinnum í þann kalda en síðasta ferðin mín var aðeins tæp mínúta á meðan hinar voru amk 3mín hver. Kom heim upp úr klukkan hálfsjö. 

15.2.26

Helgin brátt liðin

Rumskaði fyrst um fimm leytið, alltof snemma. Kúrði mig niður aftur en sofnaði ekki aftur. Hélt mig samt undir sæng alveg þar til klukkan var að verða átta. Var bæði að lesa og að skrolla í símanum. Einnig borgaði ég af láninu. Fasta greiðslan er komin niður í 61 þús. Um klukkustund eftir að ég borgaði af því kom upp fyrsti greiðsluhlutinn af þremur sem ég stofnaði sjálf samning um að greiða inn á lánið, 75 þúsund. Annars sleppti ég sundinu í dag, var boðuð á fræðslufund um tíu í morgun og þegar ég kom heim aftur um hádegisbilið stakk ég bílnum í samband. Var með bílinn í hleðslu í þrjá tíma. Þegar ég tók bílinn úr hleðslu hringdi ég í tvíburahálfsystur mína. Hún var heima svo ég skrapp yfir til hennar. Þáði hjá henni te og spjall og bauð henni svo út á rúntinn. Klukkan var langt gengin í sex þegar ég kom heim aftur.

14.2.26

Febrúar uþb hálfnaður

Rumskaði alltof snemma en náði sem betur fer að kúra mig aðeins niður aftur. Var komin á fætur um sjö og í sund um leið og opnaði klukkan átta. Synti 600m, og fór þrjár ferðir í þann kalda. Þvoði mér um hárið og var svo komin til esperanto vinkonu minnar um tíu. Var með bílinn í hleðslu á meðan á hittingnum stóð. Eftir hittinginn lét ég þvo bílinn að utan með því að renna honum í gegnum þvottastöðina Löður við Fiskislóð. Var komin heim fyrir klukkan hálfeitt. Kláraði að lesa eina af bókasafnsbókunum; Munnbiti sögur og ljóð eftir 33 höfunda. Ég er líka að lesa skáldsöguna Slétt og bruðið eftir Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur. Og þá er ég með eina bók í láni frá esperanto vinkonu minni; Þjáningin er fæðingarhríð skilningsins eftir (og um vegferð) Mörtu Eiríksdóttur. Rúmlega hálffjögur skrapp ég í tæplega hálftíma, 2km göngu. Það var mjög hressandi. 

13.2.26

Mínus þrettán í morgun

Hafði ákveðið að sleppa sundferð í morgun. Rumskaði samt korter fyrir sex og hefði alveg getað rifið mig á fætur. Hins vegar var ég ekki alveg útsofin, var að dreyma eitthvað sem ég man ekki lengur hvað var og steinsofnaði aftur. Var þó vöknuð áður en vekjarinn hringdi um klukkustund síðar. Hitaði bílinn aftur áður en ég lagði af stað í vinnuna. Var aftur fyrst á vinnustaðinn en þó bara um fimm mínútum á undan stöðvarstjóranum. Hann vann fram að hádegi. Fyrstu kúnnar, með einn bíl, voru sjósundsvinkona mín og maðurinn hennar. Siggi kom rétt rúmlega átta og hann var enn að þegar ég kvaddi rétt upp úr klukkan fjögur, ekki að skoða bíla þó þá heldur að þrífa í kringum gryfjurnar. Ég kom við í Fiskbúð Fúsa og keypti mér harðfisk og ýsu í soðið. Hringdi í Ellu og spjallaði við hana á meðan ég var á leiðinni heim. Kom heim rétt fyrir fimm. Restin af deginum leið jafn hratt og fyrri hlutinn og satt að segja var ég næstum búin að gleyma að ég átti eftir að skrá hann niður. 

12.2.26

Kuldakast

Ég prófaði að hita upp bílinn áður en ég fór út úr húsi tíu mínútur yfir sex í morgun. Það virkaði vel í gegnum appið í símanum. Í sundi var ég að vinna með töluna 3. Synti 300m og fór þrisvar sinnum í þann kalda þar af tvær ferðir í rúmar þrjár mínútur. Ég var mætt fyrst í vinnu, tuttugu mínútum fyrir átta. Vissi af því, því stöðvarstjórinn hafði samband við mig í gærkvöldi. Ég opnaði, tók kerfið af, kveikti ljós, setti upp kaffi og undirbjó mig eftir bestu getu. Kveikti þó ekki á skoðunarkerfunum frammi. Fyrsti kúnninn kom rétt rúmlega átta ca fimm mínútum á undan framkvæmdastjóra yfir BSK-sviðinu sem leysti af skoðunarmennina í dag. Stöðvarstjórinn kíkti við stuttu fyrir hádegi og kom m.a. með klink í sjóðinn minn. Hann skoðaði 2-3 bíla en stoppaði ekki lengi við. Í heildina voru skoðaðir 31 bíll í dag. Ég var komin heim um fimm. Hringdi í pabba og Huldu á meðan ég var á leiðinni heim. Frænka mín og kærasti hennar kíktu í heimsókn fljótlega eftir að ég kom heim. Þau tóku hjá mér fótaskemilinn sem ég sótti fyrir systir mína um daginn því þau eru á leiðinni norður á morgun. Þau fengu að sjálfsögðu rúnt um íbúðina og óumbeðinn hringdi Óli í pabba sinn, sem er smiður, og spurði hvað það myndi kosta að "flippa" hurðinni inn í þvottaherbergi þannig að hún opnist út. Það er ekkert svo dýrt svo það gæti meira en velverið að ég fari að láta gera eitthvað í þeim málum fljótlega. 

11.2.26

Sjórinn alltaf góður

Um sex í gær mætti fyrsti svanur af þremur til mín. Tvær úr hópnum forfölluðust en við ákváðum að hittast engu að síður enda tæpt ár síðan við komum saman síðast. Ætlum í staðinn að reyna að boða annan hitting innan fárra mánaða og vonum að þá verði engin forföll. Við fjórar sem hittumst hjá mér í gærkvöld höfðum um margt að spjalla og tíminn flaug frá okkur.

Í morgun vaknaði ég við vekjaraklukkuna uþb korter fyrir sjö og var mætt í vinnu tæpum klukkutíma síðar. Sem fyrr voru ýmis verkefni en það var alveg rólegt á milli. Tuttugu mínútum fyrir fimm var ég komin í Hátún 12, í osteostrong. Þurfti að bíða um stund eftir að komast að en ég var örugglega byrjuð í æfingunum áður en klukkan varð fimm og ég var komin á planið við Nauthólsvík um hálfsex eftir að hafa hringt í og spjallað við Odd á leiðinni yfir. Það var bæði hressandi og dásamlegt að skella sér smástund í 0,1°C sjóinn. Líkt og sl. skipti fór ég tvisvar út í, hanskalaus í seinna skiptið eftir uþb tíu mínútur í gufunni. Kom heim áður en klukkan varð sjö og setti bílinn í samband við staurinn á planinu. Hann var kominn niður í 43% en á einum og hálfum tíma er hann kominn upp í 66%. Ætla að hafa bílinn í hleðslu til klukkan hálftíu eða tíu.

10.2.26

Sex svanir mínus tveir

Morguninn var svipaður og í gær nema ég synti 300 en ekki 200m í sundinu. Báðir skoðunarmennirnir voru mætti þegar ég mætti í vinnu korter fyrir átta. Þegar þetta er skráð er klukkutími eftir af vinnudeginum en aðeins einn skoðunarmaður eftir. Það er samt búið að skoða yfir fjörutíu bíla í dag en ég er líka búin að þurfa að vísa fólki frá. Annars hafa verkefnin verið af ýmsum toga líkt og aðra daga. Það er enginn dagur eins og yfirleitt er ég að læra eitthvað nýtt á hverjum degi. Farin að vera miklu öryggari í flestri afgreiðslu en gott að vita að það er hægt að leita til annarra reynslubolta ef ég er ekki viss. Titill færslunnar vísar í hitting sem verður heima hjá mér í kvöld. Segi betur frá því í næstu færslu. 

9.2.26

Náði í skottmottu eftir vinnu í dag

Rumskaði tæpum þremur korterum áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Um hálfsex, korter fyrir hnippið, slökkti ég á vekjaranum og fór á fætur. Fékk mér morgunmat, gerði æfingar með 2kg lóðunum og greip í bók, ekki endilega í þessari röð. Var mætt í sundið rétt eftir að opnaði og stimplaði mig svo inn í vinnu korter fyrir átta. Afgreiðslan í dag gekk alveg ágætlega, hvort sem um var að ræða skoðani, móttöku eða afhendingu númeraplatna, símsvörun eða svörum á rafrænum skilaboðum í gegnum TEAM eða outlock. Ég var síðust út, slökkti ljósin, setti kerfið á og læsti á eftir mér rétt rúmlega hálffimm. Var komin upp í Brimborg uþb tuttugu mínútum síðar. 

8.2.26

Fór í messu í dag

Rumskaði um svipað leyti í morgun og í gærmorgun. Það var ekki séns að ég færi að rífa mig strax upp og mér tókst að kúra mig niður þar til klukkan var byrjuð að ganga átta. Var búin að mæla mér mót við kalda potts vinkonu mína í Laugardalslauginni um klukkan tíu. Þannig að þegar ég var komin á fætur rúmum tveimur tímum fyrr greip ég í skammtímalánsbókina sem ég náði í á safnið og byrjaði að lesa í gær. Um níu leytið bjó ég mér til hafragraut og svo var ég mætt í Laugardalinn rétt fyrir tíu. Við stöllur byrjuðum á að synda áður en við fórum í pottana og gufuna. Var komin heim aftur um tólf. Hélt þá lestri áfram um stund en um hálftvö leytið dreif ég mig aftur út og lá leiðin í kirkju óháða safnaðarins við Háteigsveg 56. Þar var messa klukkan tvö og var sr. Pétur að leysa prestinn af. Nýjasti organistinn er organisti sem hefur verið áður og svo hitti ég tvennt úr stjórninni sem er búið að vera í stjórn síðan ég var í stjórn, annað þeirra reyndar síðan fyrir 2000 en hitt byrjaði sama ár og ég, 2015. Ég var bara tvö tímabil, hætti vorið 2019 en er reyndar enn í einni nefnd. Átti notalega stund og gott spjall. Var svo komin heim aftur um hálffjögur leytið og greip enn og aftur í bókina og kláraði hana um hálffimm leytið. Reiknaði það út í gær að ég þyrfti að lesa um 18bls á dag til að klára hana á hálfum mánuði en þessi bók hélt mér við efnið, var það spennandi að ég gat ekki beðið eftir að vita hvernig þetta endaði. Kannski svolítið hrottaleg á köflum en rannsóknamaðurinn Hörður stendur alltaf fyrir sínu. Hann reyndar komst ekki heim til sín þessa daga sem hann var að leysa málið, hluta til vegna þess að hann datt "óvart" í það.