Var komin á fætur um sex. Morgunverkin voru svipuð og oftast. Þegar ég lagði af stað í vinnunna var byrjað að snjóa. Það hafði þó engin áhrif á aksturinn. En ég varð mjög vör við það að flestir í umferðinni keyrðu mun varlegar. Ég er búin að bóka dekkjaskipti en fékk ekki tíma fyrr en eftir 21. okt n.k. Vinnudagurinn gekk ágætlega fyrir sig. Um tvö leytið var hringt í mig frá SÍBS til að tilkynna mér um vinning og fá hjá mér reikningsupplýsingar vegna innlagnar. Dregið var 8. okt. Fékk síðast vinning á þennan miða í júní fyrir tíu árum en ég er búin að eiga þennan miða í 38 ár eða svo. Hitti kalda potts vinkonu mína í sundi um þrjú leytið. Hún var búin að synda 200 en synti 300 í viðbót og beið svo eftir mér á meðan ég kláraði 300. Fórum þrisvar í kalda, góða gufu en eftir smá stund í sjópottinum var mér orðið mikið mál að pissa. Þar að auki var ég búin að lofa mér heim um hálffimm til að taka á móti lesgleraugunum sem urðu eftir í saumaklúbbnum á miðvikudagskvöldið.
11.10.24
10.10.24
Saumaklúbbur eftir óvenju langt hlé
Í morgunkaffinu um hálftíu og í rúman klukkutíma í vinnunni í gærmorgun fengum við áhugaverðan fyrirlestur um lífeyrismál. Annars fór mest allur vinnudagurinn í framleiðslumál. Kláruðum nýjustu endurnýjunina, vel yfir fjögurþúsund kort í heildina. Framleiddum rúmlega tólfhundruð af þeim í gær. Eftir vinnu fór ég beinustu leið í Nauthólsvík. Talaði við pabba á meðan ég var á leiðinni þangað. Klukkan var rétt byrjuð að ganga fimm þegar ég óð út í 5,8°C sjóinn. Ætlaði bara að vera stutt en var líklega tæpar tuttugu mínútur og svo svipaðan tíma bæði í gufu og pottinum á eftir. Kom heim um hálfsex. Um hálfátta sótti ég Lilju og við vorum komnar nokkrum mínútum á undan áætlun til Sonju sem hafði boðað okkur í saumaklúbb. Það eru líklega uþb tvö ár síðan síðast var haldinn saumaklúbbur og nú á að endurvekja stemminguna. Kvöldið var að sjálfsögðu mjög skemmtilegt, ljúft, notalegt og alltof fljótt að líða. Kvöddum og þökkuðum fyrir okkur um tíu. Eftir að hafa skilað Lilju heim tók ég einn hring í götunni minni en fann ekkert stæði. Lagði bílnum því í Blönduhlíðinni. Uppgötvaði svo þegar ég kom inn heima að lesgleraugun voru ekki á sínum stað, í pungnum hjá símanum. Hvernig sem það gerðist þá urðu þau eftir hjá Sonju.
9.10.24
Engar holur
Vaknaði um sex. Var mætt í vinnu rétt fyrir hálfátta. Nóg var að gera en ég þurfti svo að fá að stinga af stuttu fyrir þrjú til að mæta í árlegt eftirlit hjá tannsa. Af tönnum er allt gott að frétta, líka þeim tönnum sem tanni vildi fara að "uppfæra" fyrir ári. Önnur af þeim tönnum er barnajaxinn minn sem nú er örugglega orðinn fimmtugur en stendur enn fyrir sínu þótt hann sé minni en fullorðinstennurnar og öðruvísi á litinn. Mér skilst að tryggingastofnun borgi 95% til baka af því sem þarf að gera en ég held að ég myndi sjá eftir jaxlinum. Ætla amk aðeins að hugsa þetta betur. Bókaði næsta eftirlit eftir ár og fór svo beint í sund. Var búin að synda 300m þegar kaldapotts vinkona mín mætti á svæðið. Hún náði að synda 400m á meðan ég synti aðra 300m. Fórum tvær ferðir saman í þann kalda, eina í gufu en eftir nokkrar mínútur í sjópotinum kvaddi hún því hún var að mæta annað um hálfsex. Ég fór eina ferð í viðbót í þann kalda áður en ég fór upp úr og heim.
8.10.24
Osteostrong í gær
Vaknaði um sex í gærmorgun. Hafði nægan tíma í alla morgunrútínu. Þurfti aðeins að ýta við N1 syninum sem líklega slökkti á sínum vekjara og sofnaði aftur. Hann var því að fara af stað í sína vinnu örfáum mínútum á undan mér. Ég fór annars alls fjórum sinnum niður í kortadeild í gær, þrisvar til að hlaða inn gögnum (eitt skipti af þeim þremur voru aukagögnin ekki komin) og einu sinni með tvo kassa af umslögum. Annars var ég í innlögnunum. Það voru bæði frí og veikindi þannig að minn vinnudagur varði í rúma átta tíma. Stakk af rétt fyrir fjögur til að mæta í osteostrong tíma. Að þessu sinni voru engin met slegin en ég var samt við mitt besta. Var komin í sund korter fyrir fimm. Synti reyndar ekkert en fór þrjár ferðir í kalda, eina góða gufuferð og í sjópott og tvo heita potta með kalda potts vinkonu minni sem var þegar búin með tvær ferðir þegar ég mætti. Ég fór upp úr á undan henni og mætti einni systur hennar. Fékk mér hluta af bleikjunni sem var afgangs frá því í hádeginu á sunnudaginn. Fór ekkert út aftur eftir að ég kom heim svo skrefafjöldinn var rétt rúmlega þrjúþúsund, rúmum þúsund undir markmiðinu en ég veit að skrefin voru fleiri því ég geymdi símann í bílnum þegar ég fór í osteostron og inni í skáp þegar ég var í sundi.
7.10.24
Mánudagur
Losaði svefn milli sex og sjö í gærmorgun. Fannst of snemmt að fara alveg strax á fætur og á einhverjum tímapunkti steinsofnaði ég aftur. Vissi næst af mér um hálfníu. Þá fór ég loksins á fætur. Til að byrja með var ég með það í huga að skreppa fljótlega í sund en sú hugmynd hvarf einhvern veginn alveg frá mér. Eldaði mér bleikju í hádeginu og rétt fyrir eitt fór ég loksins út. Ætlaði í smá göngutúr sem varð að uþb 6km hring um Öskjuhlíð með smá tvisti yfir á Klambratún í lokin. Heildar skrefafjöldi gærdagsins fór yfir tíuþúsundogþrjúhundruð skref. Veðrið var dásamlegt og nánast engin ferð á logninu. Stoppaði tvisvar á leiðinni, seinna skiptið á Klambratúninu þannig að stutt var eftir heim. Er orðin mjög meðvituð um að rétta vel úr líkamanum á röltinu og þannig finn ég minnst fyrir hægri mjöðm og hné og með hvíldinni á Klamratúni í gær, þótt stutt væri, sá ég til þess að ég þurfti ekki að draga hægri fótinn upp tröppurnar heima hjá mér. Annars leið gærdagurinn hratt við alls konar og ekki neitt.
6.10.24
Í miklu leti kasti
Vaknaði upp úr klukkan sjö í gærmorgun. Um tíu leytið útbjó ég mér hafragraut og var svo mætt í Nauthólsvík um það leyti sem opnaði klukkan ellefu. Sjórinn var 6,6°C, það var að fjara út en mikil stilla og ég var uþb tuttugu mínútur að svamla í sjónum. Fór út að kaðli og labbaði þaðan beint í gufuna. Fór ekkert í heita pottinn og var komin heim rétt fyrir tólf. Náði seinustu mínútum úr fyrri hálfleik Crystal Palace og Liverpool. Sá leikur fór 0:1 fyrir gestina en markið kom snemma í fyrri hálfleik svo ég sá það ekki. Fljótlega eftir leikinn skrapp ég út í göngu, 4,4km með þremur stuttum stoppum á leiðinni. Heildarskrefafjöldi gærdagsins fór yfir áttaþúsunogþrjúhundruð, þau skref sem forritið í símanum mældi. Forritið gat og getur ekki mælt skrefin sem ég stika þegar ég er ekki með símann á mér í sundi og sjónum. Til þess þyrfti ég að fá mér snallúr en ég er ekki komin þangað ennþá og alls óvíst að ég geri það. Hringdi í pabba í gær. Hann gat ekki svarað mér úr heimasímanum, það virtist bara skellast á. En hann gat svarað gemsanum og við spjölluðum í dágóða stund. Annars var ég að prjóna eða horfa á þætti eða fótbolta, vafra á netinu og dunda við eitt og annað. Tíminn flaug frekar hratt, gerir það alltaf sama hvort ég er að gera eitthvað eða ekki neitt.
5.10.24
Morgunstund
Vinnudagurinn í gær fór að mestu leyti í framleiðslu. Gengum frá kortadeildinni um tvö leytið. Erum byrjaðar á síðustu og stærstu færslunni í nýjustu endurnýjuninni. Rífandi gangur í þessu. Stimplaði mig út eftir nákvæmlega 7klst og 15mín sem er svona föstudagstími. Fór beint í sund og á braut 6. Synti 300m þar og færði mig svo yfir á braut 7 fyrir síðustu 100m áður en ég fór í eina fimm mínútna ferð í kalda pottinn. Settist á bekk í uþb tvær mínútur en dreif mig svo inn að þvo mér um hárið. Átti tíma í klippingu klukkan fjögur og mætti á staðinn nánast á slaginu. Er enn að klippa mig sítt svo endarnir voru snyrtir, fékk svo blástur og greiðslu, keypti mér sjampó og festi næsta tíma í mars eftir hálft ár. Svo fór ég beint heim.
4.10.24
Strax að koma helgi aftur
Í fyrrakvöld var ég sofnuð rétt upp úr klukkan tíu og var svo vakin af vekjaraklukkunni eftir samfelldan átta tíma svefn. Það er ég viss um að sjórinn hafði þessi áhrif. Sinnti morgun rútínunni alveg ágætlega í gærmorgun. Er núna að vinna svolítið með tveggja kílóa lóðin, nokkrar mínútur á hverjum morgni. Er jafnvel farin að spá í að fjárfesta í tveimur næstu þyngdum ef þetta skyldi nú hjálpa mér að vinna í gripinu ásamt fleiru. Var búin í fyrra fallinu í vinnunni, lét kalda potts vinkonuna vita, og var komin í sund rétt fyrir þrjú. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni á milli. Fór fyrst í kalda pottinn í fimm mínútur og svo beint á brautir 7-8. Mætti vinkonunni þegar ég var á baka leiðinni í fyrstu ferðinni af fimm. Hún syndir aðeins hraðar en ég og náði að synda sex ferðir á meðan ég kláraði 500 metrana. Svo fórum við nokkrar ferðir í þann kalda og gerðum gott stopp bæði í gufu og sjópotti. Ég kvaddi um fimm leytið og fór beinustu leið heim. Um átta leytið skrapp ég í stuttan göngutúr, fór 1,3km á sléttum 16 mínútum. Annars fór kvöldið í prjón, handboltaáhorf, frágangi á endum og horfði einnig á nýjasta þáttinn um Dimmu.
3.10.24
Sjórinn í gær; Hressandi og dásamlegur!
Megnið af vinnudeginum í gær fór í framleiðslu. Slökktum og gengum frá deildinni um hálfþrjú leytið en þá vorum við aðeins byrjaðar á næstsíðustu en jafnframt næststærstu skránni í þeirri endurnýjun sem við erum að vinna að núna. Allt var að verða búið uppi og við eigum að hafa amk tvær vikur til að klára fyrirliggjandi framleiðslu verkefni. Og við sjáum alveg fram á að það fari langt á föstudaginn og klárist á miðvikudaginn kemur. Annars var ég að telja alla virku miðviku- og föstudagana sem eftir eru á árinu og þeir eru tuttuguogfjórir. Alls ekki víst að við verðum að framleiða alveg til og með 27. des. en það er skrýtið að hugsa til þess að kortaframleiðslan sé á loka metrunum. Var komin í sjóinn tíu mínútum fyrir fjögur. 7,7°C og það var að flæða að. Synti ekki út að kaðli en var út í í næstum tuttugu mínútur. Svo var ég aðrar tuttugu mínútur í gufunni, 2 mínútur í lóninu og uþb tuttugu mínútur í pottinum. Næst lá leiðin í Krónuna við Fiskislóð. Kom heim um sex leytið, fékk stæði fyrir framan hús og komst með alla pinkla inn í einni ferð.
2.10.24
Framleiðsludagur í dag
Það var að venju þriðjudagstörn í vinnunni í gær. Tækluðum samt allt innan átta tímana. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni í sund. Var komin í kalda pottinn tæpum tíu mínútum fyrir fjögur og á braut 2 áður en klukkan varð fjögur. Kalda potts vinkonan kom úr skólanum og með nýju sundhettuna skömmu síðar og synti 300m á meðan ég kláraði 500m. Svo fórum við þrjár ferðir saman í kalda, eina langa í gufuna og eins í sjópottinn. Ég var komin heim um hálfsex. Sótti þvott á snúruna, fékk mér kvöldhressinguna og settist svo fyrir framan skjáinn. Það stóð til að skreppa aðeins út aftur en það varð ekkert úr því að þessu sinni.
1.10.24
Fyrsti okóberdagurinn að leggja í hann
Morgunrútína gærdagsins var svipuð og oftast áður. Mætti í vinnu um hálfátta. Tók saman framleiðslutölur. Tölur frá einum stað skiluðu sér ekki fyrr en um hálfníu leytið sem varð til þess að við urðum að biðja tæknimann um að "sópa" skránum yfir á vélina. Sú sem er á hleðsluvaktinni þessa vikuna var búin að fara tvisvar niður og grípa í tómt. Hún bað mig um að fara niður og hlaða inn þegar tæknimaðurinn var búinn að gefa okkur grænt ljós. Annars var ég í innleggjunum. Allt var búið fyrir þrjú. Fannst aðeins of snemmt að athuga hvort ég kæmist svona snemma að í osteostrong. Hringdi í Ellu vinkonu þegar ég lagði af stað frá vinnunni um þrjú leytið. Lagði bílnum fyrst við Hátún 10, fannst eitthvað svo margir bílar við nr 12. Um hálffjögur freistaði ég þess þó að fá stæði þar og það var eitt laust og annað að losna. Það var einn á undan mér í tíma, einn í hvíld og verið að sinna einum til. Ég þurfti samt ekki að bíða nema í fimm mínútur. Bætti mig á tveimur tækjum af fjórum og var við mitt besta á hinum tveimur. Var komin í sund um Hálffimm leytið. Fór eina ferð í þann kalda áður en ég synti 200m. Nú sveið ekki eins í augun nema fyrstu metrana en eftir tvær ferðir virtist vera að færast fjör í leikinn og þrengjast um á brautinni svo ég ákvað að fara aftur í þann kalda. Eftir þá ferð fór ég í sjópottinn í tuttugu mínútur. Var að vonast eftir að kalda potts vinkona mín væri að mæta á svæðið en ég var búin að fara þriðju ferðina í þann kalda og tuttugu mínútur í gufu áður en ég hitti hana. Við náðum þó einni ferð í þann kalda saman áður en ég kvaddi og fór upp úr. Hún átti von á einni systur sinni og svo mæltum við okkur mót aftur seinni partinn í dag.
30.9.24
Síðasti september dagurinn þetta árið
Vaknaði um sjö leytið. Gaf mér góðan tíma í alla rútínu því við kalda potts vinkona mín vorum búnar að mæla okkur mót í kalda pottinum um tíu. Klukkan var reyndar aðeins byrjuð að ganga ellefu þegar ég fór fyrstu ferðina og beinustu leið í þann kalda. Hrafnhildur var mætt og kom úr einum heita pottinum. Náðum fjórum ferðum saman en svo kvaddi hún því hún átti tíma í hot jóga í Laugum. Ég fór þá á braut átta og synti 300m, aldrei þessu vant sveið mig það mikið í augun að ég gafst upp á að synda meira. Synti síðustu 50m skriðsund. Hef ekki notað sundgleraugu í nokkur ár en það hefur hingað til ekki böggað mig mikið, kannski sumar fyrstu ferðirnar en svo jafnar það sig. Eftir þetta 15 mínútna sund fór ég fimmtu ferðina í þann kalda og átti eftir að fara þá sjöttu líka þegar ég var búin að fara í gufu og sjópottinn. Var semsagt um tvo tíma í sundi í gær. Kom heim upp úr klukkan tólf. Rétt fyrir tvö skrapp ég svo aftur út og labbaði 2,6km á rúmum hálftíma. Stillti göngu forritið á mig áður en ég lagði af stað og slökkti á því þegar ég settist smá stund á bekk við Eskihlíð 22. Annars fór dagurinn í handklæða og tuskuþvott (þvottavélin sá um það), fótbolta áhorf, þáttagláp, prjón og lestur. Kláraði eina bók af safninu; ALDREI NEMA KONA söguleg skáldsaga eftir Sveinbjörgu Sveinbjörnsdóttur.
29.9.24
Heima
Ég útbjó mér heitt súkkulaði úr 100% súkkulaði brætt út í möndlumjólk á föstudagskvöldið. Geri þetta stöku sinnum, sérstaklega ef ég hef farið í sjóinn fyrr um daginn. Fór að sofa á ellefta tímanum og steinsvaf til klukkan að verða hálfátta í gærmorgun. Gaf mér tíma í morgunrútínu og fór svo að tékka á Laugardalslauginni einhvern tímann á níunda tímanum. Fór beint á braut 6 og synti 500 metra, flesta á bakinu. Fór aðeins tvisvar í þann kalda sem nú hefur verið stilltur þannig að hann á alltaf að vera milli átta og tíu gráður, sem er alveg í fínu lagi. Gerði æfingar í gufunni og þvoði mér um hárið þegar sund- potta- og gufurútínu var lokið. Fór svo beinustu leið að hitta norsku esperanto vinkonu mína. Kom heim um hálfeitt. Horfði á restina af hádegisleiknum í enska boltanum og var byrjuð að fylgjast með einum af leikjunum sem byrjuðu klukkan tvö þegar ég reif mig upp og skrapp á Café Mílano. Þar er pennavinkona til margra ára með sýningu og hún hafði látið vita á síðunni sinni að hún yrði á staðnum milli tvö og þrjú. Á kaffihúsinu voru líka óvænt tvær aðrar konur sem ég þekki og hitti ég þær aðeins á undan og settist svo um stund hjá þeim þegar ég var búin að heilsa aðeins upp á listakonuna. Reyndar eru þessar tvær konur einnig miklar listakonur. Þetta var óvænt og mjög gaman. Spjallaði meira við þessar þrjár heldur en ég gaf mér tíma til að skoða sýninguna. Get alltaf farið aftur eða farið á Facebook síðuna. Er enn í kaffipásu og lét það alveg vera að panta mér eitthvað af staðnum. Var með soðna ýsu með rósakáli, súrkáli og steinlausum svörtum ólífum í kvöldmatinn, hafði nefnilega komið við í Fiskbúð Fúsa áður en ég fór í sjóinn á föstudaginn.
28.9.24
Aftur komin helgi
Var mætt í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Það fyrsta sem ég gerði eftir að ég var búin að stimpla mig inn var að sækja prjónadótið mitt úr skúffu í "kálfi" við skrifborðið mitt og fara með það og vatnsflöskuna mína inn á kaffistofu. Fyllti á flöskuna og fékk mér heitt vatn í bolla. Settist svo niður um stund með vinnufélögum og prjónaði í smá stund til að liðka hægri hendina. Tíu mínútum fyrir átta fór ég niður með vatnsflöskuna og eyrnatólin en gleymdi lesgleraugunum. Sótti þau eftir að ég var búin að kveikja á framleiðsluvélinni. Kláruðum daglega framleiðslu fyrir kaffi og það sem við gátum af þeirri endurnýjun, sem við höfum verið að vinna að síðan í síðustu viku, eftir kaffi. Urðum að skilja eftir smá óframleitt þar sem plast er næstum á þrotum. Í hádeginu kom svo næsti skammtur af endurnýjun, yfir fjögurþúsund stk. Hlóð henni inn en við byrjum ekki framleiðsluna fyrr en í næstu viku. Hjálpuðum frekar til uppi til að allir gætu verið búnir snemma á föstudegi. Var komin í Nauthólsvík um þrjú leytið. Það var flóð og mér skilst að vegalengdin út að kaðli sé þá um 200m. Ég synti og svamlaði smávegis í hina áttina áður en ég sá að það voru fleiri á leið út að kaðli og ég gæti orðið samferða. Kom svo við í lóninu áður en ég fór í gufu. Held að allt í allt hafi ég verið tæpan hálftíma í 7,8°C sjónum. Kom heim um hálffimm.
27.9.24
Haustfagnaður RB í gær
Vakti atvinnulausa soninn um sjö í gær og fékk hann til að skutla mér í vinnuna. Var mætt þangað upp úr klukkan hálfátta. Verkefnunum lauk frekar snemma en við vorum nokkrar sem héldum okkur áfram á svæðinu. Sumir skruppu heim en komu aftur upp úr fjögur. Ég var með prjónana mína meðferðis og ein kom með spilastokk. Við spiluðum ólsen, ólsen og löngu vitleysu. Lögðum líka kapla. Upp úr klukkan hálffimm kom 60 manna rúta með bílstjóra og einum RB-ing og sótti okkur 10 og keyrði okkur að Hörpunni. Þaðan löbbuðum við yfir í nýju höfuðstöðvar Landsbankans og hittum fyrir slatta af RB-ingum. Fengum fyrirlestra um starfsemina og að labba um og skoða svæðið. Hópmynd var tekin af okkur í tröppunum áður en við kvöddum og löbbuðum yfir í Hörpuna, tókum lyftu upp á 5. hæð og löbbuðum upp á sjöttu. Einhverju síðar vorum við beðin um að trítla upp á næstu hæð þar sem leynigestur mætti á svæði, uppistandarinn ungi Jakob, og fór með gamanmál. Einhverjir voru samt farnir á þessum tímapunkti og ekkert löngu eftir uppistandið kvaddi ég og rifjaði upp gönguleiðina heim frá því kortadeildin var staðsett í Seðlabankanum, 2,83km á rúmum hálftíma. Náði skrefamarkmiðum dagsins og vel það.
26.9.24
Á Ljósvíkinga í gær
Var komin á fætur rétt rúmlega sex í gær og mætt í vinnu um hálfátta. Byrjaði á því að fylla á vatnsflöskuna og fá mér sítrónu- og engifer-te. Fór niður í kortadeild korter í átta. Hlóð inn nýjustu skránum og fullvann skiptiblöðin. Petra sá um bókhald, framleiðslublöð og að prenta öll gögn út áður en hún kom niður rétt rúmlega átta. Framleiddum allt daglegt og það átti bara eftir að pakka þegar við fórum upp í kaffi með kortaskammtinn sem fer fyrst úr húsi. Eftir kaffi og þegar búið var að pakka Héldum við áfram með endurnýjunina sem kom til okkar í síðustu viku. Vorum búnar að komast að því að það borgaði sig að bita skrárnar niður. Formin sem við notum eru 10gr of létt og eru gjörn á að flækjast of mikið en það gengur betur ef kortaskammtarnir eru ekki of stórir. Fórum aftur niður í framleiðslu eftir mat en hættum um hálftvö. Vorum nánast búnar en gátum ekki klárað vegna smá hráefnisskorts. Var annars komin í sjóinn um hálffjögur. Gufan var lokuð svo ég var ca korter í sjónum og tvær mínútur í heita pottinum áður en ég fór upp úr og sótti þá sem seldi mér bleiku strigaskóna fyrr í vikunni. Vorum komnar í Kringlunar upp úr klukkan hálffimm og ætluðum að sjá Ljósvíkinga. Það kom í ljós að sýningin kl. 16:40 er í lúxussal og kostar eitthvað á sjötta þúsund fyrir manninn. Að vísu fylgir gos og popp og gotterí með en ég er ekki að nota nema poppið af því. Ég var svo sem alveg til í að fara samt en vinkonunni þótti það of dýrt og við ákváðum að fara frekar í Laugarásbíó. Höfðum tímann fyrir okkur því fyrsta sýning þar var kl korter í sex. Vorum komnar aðeins fyrir opnun en biðum bara í bílnum á bílastæðinu. Það kom í ljós að þar sem vinkonan er orðin eldri borgari fékk hún afslátt á miðanum fékk hann á innan við tvöþúsund. Það var ekki hægt í lúxussalinn í Kringlunni. Myndin var góð en við vorum hissa á að það var gert hlé á henni þar sem við vorum aðeins 14 í salnum. Eftir bíó komum við við á stað sem heitir Preppbarinn og er við Suðurlandsbraut 10. Keyptum okkur litla máltíð sem við tókum með okkur. Ég skutlaði vinkonunni heim en fór ekki inn með henni því klukkan var farin að ganga níu og ég átti m.a. eftir að ganga frá sjósundsdótinu. Borðaði minn matarskammt horfandi á síðasta þáttinn af "Með okkar augum". Fór óvenju seint í háttinn og las til klukkan ellefu.
25.9.24
Framleiðsludagur í dag
Það kom mér verulega á óvart þegar ég hrökk upp við lætin í vekjaranum nítján mínútum yfir sex í gærmorgun. Náði nú samt að sinna morgunrútínunni ágætlega en æfingarnar voru reyndar í styttri kantinum. Mætti í vinnu um hálfátta og byrjaði á því að sækja vatn í flöskuna mína og að fara svo niður í kortadeild að hlaða inn nýjustu skrá og fylla inn tölur á skiptiblöð. Um tuttugu mínútum seinna var ég byrjuð að vinna innlegg. Þrátt fyrir frekar stóran dag í þeim efnum var allt búið á rétt tæpum átta tímum. Hafði fengið skilaboð frá kalda potts vinkonu minni um hádegið að búið væri að opna í Laugardalslaug. Fékk svo önnur um hálfþrjú leytið að sú frétt væri ekki rétt og við mæltum okkur mót í Sundhöllinni um fjögur. Ég var reyndar komin þangað aðeins fyrr og fór beint á braut fjögur í útilauginni og var búin að synda 75m af 450 þegar vinkonan mætti og fór á braut 3. Fórum fjórum sinnum í kalda pottinn, tvisvar í heitasta pottinn sem er 42°C og ca. tíu mínútur í sána. Ég kvaddi eftir síðustu dífuna í þann kalda og var komin heim um hálfsex. Tveimur tímum síðar skrapp ég í smá göngutúr, fór rúmlega 2,2km á rúmum 25 mínútum.
24.9.24
Þriðjudagur framundan
Glaðvaknaði rétt fyrir klukkan sex í gærmorgun. Dreif mig á fætur og sinnti morgunrútínunni. Mætti í vinnu um hálfátta. Byrjaði á því að fara niður í kortadeild að hlaða inn nýjustu skránum en ég var svo byrjuð á innleggjunum tíu mínútum fyrir átta. Vinnudagurinn gekk vel fyrir sig og þegar allt daglegt var búið um eitt var ákveðið að vinna smá af verkefnum þriðjudagsins því þeir dagar eru yfirleitt þeir stærstu í vikunni. Þrátt fyrir "aukabitana" var öllu lokið milli hálfþrjú og þrjú. Mér fannst heldur snemmt að fara í osteostrong strax eftir vinnu. Prófaði að labba hringinn í kringum lengjuna þar sem ég vinn. Það tók um tíu mínútur. Hringdi í pabba til að óska honum til hamingju með daginn sem hann og mamma áttu saman. Ekki tók því að fara heim og það var helst til knappur tími til að fara í sund á undan tímanum, sér í lagi þar sem Laugardalslaugin er enn lokuð. Rúmlega hálffjögur ákvað ég að mæta í Hátún 12. Þar hafði verið allt rólegt nokkru áður en þegar ég kom var ég númer þrjú eða fjögur í röðinni, aftast þar sem minn fasti tími var ekki fyrr en 16:40. Ég þurfti þó ekki að bíða mjög lengi því það voru tvær að leiðbeina og upphitunin, tækjahringurinn og jafnvægisæfingarnar taka í mesta lagi 7-10 mínútur. Komst að fyrir klukkan fjögur og gekk mjög vel, bætti mig á tveimur tækjum af fjórum og var við mitt besta á hinum tveimur. Eftir tímann ákvað ég að fara beint heim þrátt fyrir að vera með sunddótið meðferðis. Fékk mér smá hressingu og sá svo að fyrrum samstarfskona mín hafði haft samband á FB aðallega vegna bleikra strigaskóa. Hún var heima og ég ákvað að skreppa til hennar og máta. Keypti þá svo af henni á 5000 kr. Var komin heim aftur um hálfsjö.
23.9.24
Bíltúr með pabba í gær
Vaknaði útsofin um sjö leytið í gærmorgun. Pabbi hafði farið fram um sex leytið að taka niður hinar ýmsu tölur og fá sér eitthvað. Svo fór hann aftur inn í rúm, steinsofnaði og svaf til klukkan langt gengin í tíu. Hann kom klæddur fram á ellefta tímanum, settist við eldhúsborðið og fór að leggja kapal. Ég var aðallega búin að vafra um á netinu í tölvunni hans en líka búin að leggja nokkra kapla. Pabba leist mjög vel á veðrið úti og spurði hvort ég vildi koma í bíltúr. Ég var meira en til í það og við drifum okkur af stað. Að þessu sinni beygði hann til hægri út úr þorpinu og svo inn á afleggjann upp Landssveit. Nokkru ofan við Snjallsteinshöfða beygðum við niður afleggjara sem ég hafði aldrei farið áður. Hluti af veginum sem við fórum er líklega alls ekki fyrir venjulega fólksbíla en á leiðinni þurftum við að opna tvö hlið og loka á eftir okkur og komum niður að gömlum réttum sem voru byggðar um 1660 og síðast notaðar 1979. Komum upp á malbikaðan veg aftur stutt frá Galtalæk. Beygðum svo niður afleggjara merktan Næfurholt og þann veg höfum við farið oft áður og ein leiðin liggur m.a. framhjá Heiði, hvar pabbi fæddist og ég var með lögheimili þar til tólf ára aldurs. Komum til baka í Hólavanginn um hálf eitt leytið. Hefði nú líklega haft gott af því að fara í smá göngutúr en einhvern veginn leið dagurinn við allt önnur hugðarefni. Um fimm leytið kvaddi ég pabba og brunaði í bæinn.
22.9.24
Alls konar og ýmislegt í gær
Vaknaði ekki fyrr en klukkan rétt að verða átta í gærmorgun, alveg dásamlega útsofin og eftir góða drauma. Gaf mér smá tíma í mínímorgunrútínu en var svo komin í Sundhöllina milli hálfníu og níu. Fór þrjár ferðir í kalda, synti í 25 mínútur á braut 4 í innilauginni og þvoði mér svo um hárið. Fór beinustu leið vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar og var komin þangað rúmlega hálfellefu. Við vorum nokkuð duglegar við lesturinn. Stoppaði hjá henni í ca fimm korter áður en ég fór heim til að ganga frá sunddótinu og pakka niður í tösku fyrir austurferð. Annar sonurinn kom fram um svipað leyti og ég kom heim, bankaði á herbergisdyrnar hjá hinum til að kveðja og brunaði svo af stað. Ég var nýkomin upp á Suðurlandsveg þegar ég tók eftir ungri konu sem var að húkka far. Það er mjög sjaldgæft að ég stoppi fyrir puttaferðalöngum en ég stoppaði fyrir þessari manneskju. Hún var á leiðinni á Selfoss og ég sagðist myndu keyra þar í gegn en færi um Þrengsli. Þetta var pólskur skiptinemi við HÍ. Hún ætlaði að hitta vini á Selfossi og ferðast lengra með þeim. Hún settist í aftursætið með dótið sitt. Við spjölluðum á ensku megnið af leiðinni en hún var líka að fylgjast með útsýninu. Hleypti henni út skammt frá Hótel Selfoss. Ég kynnti mig áður og óskaði henni alls góðs. Það kom í ljós að hún heitir líka Anna og verður hér á landi næstum út þetta ár. Var komin á Hellu til pabba um tvö leytið. Hann var að leggja kapla og ég fór í smá keppni við hann. Um þrjú fór ég að fylgjast með seinni hálfleik milli Liverpool og Bornmouth. Leikurinn endaði 3:0 fyrir mínum mönnum en öll mörkin komu í fyrri hálfleik. Klukkan fjögur skipti ég yfir á RÚV og við pabbi fylgdumst með bikarleik í knattspyrnu karla milli Víkinga og KA. Urðum vitni að sögulegum leið þar sem KA tryggði sér fyrsta bikartitilinn í fimmtu tilraun, vann með tveimur mörkum gegn engu. Eftir leikinn setti ég upp matinn, gufusauð saman kartöflur og hálfa sæta kartöflu í bitum og steikt fisk sem pabbi hafði keypt í fiskbúðinni, sennilega löngu flök. Eftir uppvask og fréttir horfðum við pabbi á þrjá þætti af fjórum um fólk í inndjúpinu. Þóra Arnórsdóttir vann þessa þætti í kringum 2010 og sennilega til 2014 en þá voru þeir fyrst sýndir. Fjórði þátturinn er ekki orðinn aðgengilegur ennþá en klukkan var líka að nálgast tíu og ég ákvað að bjóða góða nótt, hátta mig upp í rúm og lesa um stund.
21.9.24
Útsofin
Það var framleiðsludagur í gær. Kláruðum allt daglegt fyrir kaffi og unnum í endurnýjun til klukkan tvö en þá var allt búið uppi svo við ákváðum að ganga frá og hætta líka. Erum búnar með meiripartinn af þessari endurnýjun og eigum alveg að hafa lengri tími til að klára þessa framleiðslu þar sem kort kúnnans renna ekki út fyrr en í lokin á næsta mánuði. Hringdi í pabba áður en ég lagði af stað frá vinnustaðnum og spjallaði við hann langleiðina að Nauthólsvík. Var komin út í sjó um þrjú, í fyrsta skipti í hönskum og sjósundsskóm síðan 5. janúar sl. Það var háfjara og ég hefði getað vaðið út að kaðli, svamlaði um og synti þangað. Var tæpar tuttugu mínútur í sjónum, smá stundi í lóninu, korter í gufunni og góða stund í heita pottinum áður en ég fór upp úr og heim.
20.9.24
Labbað í og úr sund/i í gær
19.9.24
Sjósund og stuttur göngutúr í gær
Í gær var eingöngu framleiðsludagur hjá mér og annarri í kortadeildinni í gær. Fengum loksins plast sem við vorum búnar að bíða eftir í á þriðju viku og svo bættist í endurnýjanirnar. Hættum að vísu framleiðslu upp úr klukkan tvö og gengum frá, bæði þurfti hin að fara og svo var allt búið uppi og allir aðrir að fara. Hringdi í pabba um leið og ég lagði af stað frá vinnu. Hann var nokkuð ræðinn og það kom ekki í ljós fyrr en í lok símtals að ég var auðvitað að trufla hann við pönnukökubakstur. Ég var komin í sjóinn fyrir klukkan hálffjögur. Var reyndar komin á stæði við Nauthólsvík um þrjú en byrjaði á því að hringja í systur mína en hún og mágur minn voru á leiðinni norður. Hann var búinn að vera í nokkra daga á Hellu en sótti hana á Reykjavíkurflugvöll í fyrradag því það var dagurinn sem Bríet (og fleiri) voru að útskrifast sem fullgildir kjötiðnaðarmenn. Annars fór ég einu sinni 15mínútur í rúmlega átta gráðu sjóinn, tuttugu mínútur í gufu og aðrar tuttugu í heita pottinn. Varð í fyrsta skipti vitni að því að sjúkraflutningafólk mætti á svæðið vegna einnar manneskju sem annað hvort var illa fyrir kölluð eða hafði ofgert sér í sjónum, kannski bæði. Var ekkert að spyrja út í það en það leit allt út fyrir að fara þurfti með manneskjuna á sjúkrahús. Veit að þó ekki fyrir víst þar sem ég var farin á undan sjúkrabílnum. Kom heim upp úr klukkan fimm. Klukkan var svo langt gengin í átta þegar ég drattaðist loksins aftur út í ör-göngutúr. Fór stuttan hring á uþb korteri og náði skrefunum yfir fjögurþúsundogsexhundruð.
18.9.24
Mið vika
Vaknaði rétt fyrir klukkan sex. Náði allri morgun rútínunni og góðri æfingalotu með og án lóða. Mætti í vinnu um hálfátta. Fyrsta korterið fór í bókhalds- og tölusamansöfnunarmál fyrir kortadeild. Restina af vinnudeginum var ég í innleggjum. Þegar verkefnum var öllum lokið þurfti ég að stimpla 12 mínútur á bónustíma. Hringdi í vinkonu og fyrrum samstarfskonu og spjallaði við hana á meðan ég var á leiðinni í sund. Stalst enn og aftur til að leggja við Austurbæjarskóla og fór í Sundhöllina. Fann kaldapotts vinkonu mína í kalda pottinum. Hún var nýmætt. Eftir tvær ferðir í kalda og eina í 42°C pottinn fór ég á braut 1 og synti 400m á uþb tuttugu mínútum. Kalda potts vinkona mín fór eina ferð í langpottinn en skellti sér svo á braut 3 og synti þar til hún sá að ég var komin aftur í kalda pottinn. Fórum í gufu eftir þá ferð og sánuna eftir fjórðu ferðina. Svo fór ég upp úr og heim en hún ætlaði amk í einn heitan pott í viðbót. Ekkert varð af neinum labbitúr en skrefafjöldinn fór yfir þrjúþúsundogfimmhundruð og þá eru ótalin skrefin á milli potta og á sundlaugasvæðinu.
17.9.24
Osteostrong og stuttur göngutúr
Vaknaði um sex. Morgunrútínan var mjög svipuð og flesta virka morgna. Mætti í vinnu um hálfátta og þegar vinnudegi lauk vantaði mig aðeins átta mínútur í átta klst. Hringdi í pabba og talaði við hann á meðan ég var á leiðinni yfir í Hátún 12. Var hálftíma á undan áætlun en komst strax að í osteostrongtíma. Bætti mig á tveimur tækjum. Var búin um það leyti sem "fasti" tíminn minn er; 16:20. Þótt ég væri með sunddótið meðferðis fór ég beint heim að þessu sinni. Rétt fyrir sjö skrapp ég út í stutta göngu, fór 1,46km smá hring á 18 mínútum sléttum og náði skrefamarkmiðum dagsins og rúmlega það. Er reyndar aðeins með 4500 skrefa markmið og gær fór fjöldinn yfir fimmþúsundogsexhundruð.
16.9.24
Fartur á tímanum
Vaknaði um sjö. Um hálfníu var ég komin í Sundhöllina. Eftir fyrstu ferðina af þremur í þann kalda sá ég að braut tvö var mannlaus náði samt ekki ofan í laug áður en einhver annar var byrjaður að synda á henni. Var komin út í á braut eitt og synti 300m en á síðustu 75 metrunum bættist þriðja manneskjan við og ég rétt hafði geð í mér að klára upp í 300m því þessar brautir eru eiginlega bara ein og hálfbreidd eða svo. Fór aftur í kalda í fimm mínútur og fékk svo braut 1 í innilauginni alveg fyrir mig og synti aðra 300m þar. Fyllti á bensíntankinn á leiðinni heim um tíu leytið. Stoppaði heima í rúma tvo tíma. Rétt fyrir eitt sótti ég esperanto vinkonu mína. Vorum báðar klæddar til útivistar. Valið hafði staðið á milli þess að skreppa í Viðey eða leita að berjum og við ákváðum að fara í bíltúr aðeins út fyrir bæinn. Fórum fyrst upp að Hafravatni á stað sem Inger hafði farið áður. Þar voru engin ber en fullt af lyngi. Næst lá leiðin í Heiðmörk en við vorum heldur ekki lengi þar. Að endingu fórum við alla leið að Gljúfrasteini. Lögðum þar og röltum aðeins aftur fyrir húsið og stutt áleiðis að Helgufossi sem er tæpa 3km frá. Ef við hefðum verið fyrr á ferðinni, ákveðið að fara beint þangað, hefðum við sennilega labbað aðeins lengra. En við fundum samt smávegis af bæði blá- og krækiberjum. Þau voru ekki stór en í lagi með flest af þeim. Tíndum ekki mikið en eitthvað. Fengum okkur svo te og harðfisk sem Inger hafði útbúið og komið með sér. Í baka leiðinni komum við við hjá N1 við Gangveg og heilsuðum upp á Davíð Stein og Óla. N1-sonur minn tékkaði á þrýstingnum á dekkjunum. 3 af fjórum voru í lagi, en eins og mig grunaði var það fjórða frekar vanstillt. Skilaði svo Inger heim og var sjálf komin heim um hálfsex. Veðrið hafði leikið við okkur allan daginn þótt sums staðar væri smá ferð á logninu. Ekki náði ég þó að safna skrefum alveg upp í 4500 en fór heldur ekki út aftur til að gera það. Hefði ekki þurft langa göngu til að ná markmiðinu en hugsaði með mér að ef öll skref dagsins hefðu verið talin (skrefin milli potta og lauga í sundinu) væri ég í ágætis málum.
15.9.24
Tap hjá Liverpool
Var komin á fætur um sjö leytið í gærmorgun. Klukkan var svo orðin hálfníu þegar ég mætti í sundhöllina. Að þessu sinni gat ég farið beinustu leið í kalda pottinn. Sá yngstu mágkonu mömmu í heita pottinum og heilsaði upp á hana eftir fyrstu kælinguna. Hún var búin að synda og þegar hún fór að hugsa sér til hreyfings upp úr lauginni fór ég aftur í kalda áður en ég fór á braut 4 í innilauginni og synti 600m á hálftíma, flestar ferðir á bakinu en fjórðu hverju ferð ýmist skrið- eða bringusund. Fór smástund í heitasta pottinn, 42°C, annan af elstu pottunum, áður en ég fór síðustu ferðina í þann kalda, gufu og þvoði mér svo um hárið á leiðinni upp úr. Var komin til espernato vinkonu minnar rétt rúmlega hálfellefu og stoppaði hjá henni til tólf. Lásum eina og hálfa bls. í Kon-Tiki og höfðum nú íslensku útgáfuna til samanburðar. Planlögðum svo næsta hitting sem verður á öðrum nótum og strax í dag. Áður en ég fór heim keypti ég þvott og felguþrif á bílinn hjá Löðri við Fiskislóð og kom svo aðeins við í Krónunni. Restin af deginum fór að mestu í fótboltaáhorf, lestur og prjónaskap.
14.9.24
September að verða hálnaður
Vinnudagurinn í gær var léttur og í styttra lagi. Kortaframleiðslu og frágangi á kortadeild lauk fyrir hálftíu. Restina af vinnudeginum var ég í innlögnum. Fréttum reyndar af plastsendingu í hádeginu en sem betur fer ákváðum við að bíða ekki eftir henni því um tvö leytið komu þau skilaboð að pakkanum yrði komið til okkar eftir helgi. Var komin í Nauthólsvík upp úr klukkan þrjú Hringdi í pabba þegar ég var á leiðinni. Pabbi var sjálfur á ferðinni, á leiðinni í búðina. Mágur minn er staddur hjá honum þessa dagana. Fór annars tvisvar í sjóinn, fyrst í tuttugu mínútur og eftir uþb tuttugu mínútna gufu fór ég aftur í rúmar fimm mínútur. Sat svo dágóða stund í heita pottinum áður en ég fór upp úr og heim.
13.9.24
Míni golfgarðurinn með vinnufélögum
Í gær skildi ég bæði prjóna og sunddót eftir heima þegar ég fór í vinnuna. Öllum verkefnum í vinnunni var lokið í fyrra lagi en við dokuðum flest við til klukkan langt gengin í fjögur. Ástæðan var sú að ekki tók því að fara heim því við vorum skráð sem hópur í Mínígólf og staðurinn, sem er frekar stutt frá vinnustaðnum, opnar klukkan fjögur. Vorum 22 í hópnum og af þeim tveir af sumarliðunum og ein sem er í barneignarfríi. Okkur hafði verið skipt í tvö lið og þeir tveir sem skipulögðu þennan hitting voru "bændurnir" í þessari bændaglímu. Svo var okkur skipt niður í fjóra fjögurra manna hópa og einn sex manna, tveir (þrír í sex manna hópnum) úr hvoru liði. Ég var í fyrsta hollinu sem var ræst út klukkan hálffimm. Spilaðar voru allar átján holurnar. Í mínu holli, ekki í mínu liði samt, var sá sem fór holurnar á fæstum höggum. Ég fór fyrstu holuna á tveimur höggum en svo gekk svona upp og niður. Skv. skorblaðinu átti ekki að skrá fleiri högg en sex á hverri holu. En við höfðum ekki lesið það og vissum því ekki af því fyrr en einhver úr öðru liði sagði okkur frá því. Ég fór nefnilega eina holuna á tólf höggum og aðra á 10. Eftir reiknireglunni "ekki fleiri en 6 högg" fór ég fyrri níu á 36 og seinni níu á sömu svo í heildina fór ég á 72 og var líklega í neðsta sæti á flestum höggum. En það var svo gaman og á eftir var hlaðborð og framkvæmdastjórinn tilkynnti hver fór flestar holur í höggi, hvort liði fór á færri höggum í heildina og hver fór á fæstum höggum.
12.9.24
Sjórinn og lengri göngutúr
Það var framleiðsludagur í vinnunni í gær. Allt gekk ágætlega en við áttum eftir að framleiða tvær tegundir þegar klukkan var að verða hálftíu. Geymdum þá framleiðslu því það var fundur í kaffitímanum og forstjórinn var með okkur á þeim fundi. Framleiðslu og frágangi í kortadeild lauk svo milli hálfellefu og ellefu. Sneri mér beint að innleggjum eftir það. Vinnudegi lauk fyrir klukkan þrjú. Var mætt í Nauthólsvík korter yfir þrjú og óð út í um hálffjögur. Hitastigið undir níu gráðum en ég var í strandskónum og berhent. Ætlaði ekki að tíma að fara upp úr en tuttugu mínútum síðar fór ég í gufuna. Eftir gufu, kalda sturtu og tuttugu mínútur í pottinum skrapp ég aftur í sjóinn í örfáar mínútur áður en ég fór að huga að heimferð. Ákvað að fara ekki í sturtu bara þurrka mér en skolaði strandskóna og úr sundbolnum. Kom heim klukkan að ganga sex. Ætlaði varla að nenna út aftur en stuttu fyrir átta fór ég út og það sem átti að vera göngutúr í styttra lagði varð 3,1km hringur á tæpum fjörutíu mínútum. Eftir að ég kom heim aftur náði ég sambandi við Jónu Mæju hans Reynis frænda. Hún náði ekki að svara heima símanum sínum en hringdi til baka úr gemsanum og við spjölluðum saman í heila klukkustund. Það var eiginlega komið fram yfir þann tíma sem ég fer oftast upp í, ekki svo langt fram yfir en framyfir samt. Engu að síður réði ég eina sudoku og las í þremur bókum eftir að ég var háttuð og komin í rúmið enda var klukkan orðin hálfellefu og rúmlega það þegar ég fór loksins að sofa.
11.9.24
Sundhöllin og stuttur göngurtúr
Hrökk upp ca tíu mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Var að dreyma eitthvað furðulegt stuttu áður sem ég man ekki lengur hvað var. Aftur á móti man ég brot úr draumi frá nýliðinni nótt sem var enn furðulegri. "Fann s.s. útsaums/handavinnu-töskuna mína í uppþvottavélinni ásamt smávegis af óhreinu leirtaui. Ekki var búið að setja vélina af stað þegar ég bjargaði töskunni". Annars var ég að vinna til klukkan að verða fjögur í gær. Var með sunddótið meðferðis en ekki alveg ákveðin í hvaða laug ég ætti að stefna á fyrr en ég lagði af stað frá vinnu. Fann stæði við Austurbæjarskóla sem er örstutt frá Sundhöllinni. Því miður var kaldi potturinn lokaður. Ég byrjaði á einni gufuferð, útisturtu og í langpottinn úti. Þar var ég búin að sitja í uþb tíu mínútur þegar kaldapotts vinkona mín og ein systir hennar birtust. Spjallaði við þær í smá stund en svo sá ég að braut 4 í útilauginni var laus, skellti mér í hana og synti í uþb tuttugu mínútur áður en ég fór upp úr og heim. Ætlaði varla að nenna neinu meiru nema kannski glápi en dreif mig út um átta leytið og labbaði smá hring um hverfið. Hélt ekki að ég hefði stoppað neins staða en engu að síður skráði heilsuforritið í símanum á mig tvo stutta göngu túra samtals upp á 2,1km á tæpum tuttuguogfimm mínútum. Greip svo aðeins í prjónana áður en ég kveikti aftur á sjónvarpinu. Fór upp í rúm um hálftíu og las í 3x7-10 mínútur. Já, ég las í þremur bókum, tveimur af safninu og einni sem mér var gefið í vor.
10.9.24
Osteostrong og bókasafn í gær
Var komin á stjá um sex í gærmorgun. Morgunrútínan svipuð og greip ég aðeins í tveggja kílóa lóðin stuttu áður en ég lagði af stað í vinnu. Nóg var að gera í vinnunni, þurfti ekki að bíða eftir verkefnum, en allt var búið um þrjú. Fannst of snemmt að athuga hvort ég kæmist að í osteostrong tíma svo ég byrjaði á því að skreppa í bókasafnið í Kringlunni. Skilaði bókunum fjórum úr Sólheimasafni í hillu merkta "Frátekið". Fann mér svo fimm aðrar bækur, m.a. Kon-Tiki á íslensku en við Inger ætlum að bera saman þann texta við esperanto útgáfuna. Erum reyndar líka að spá í hvort við finnum eintak á norsku, það væri mjög gaman. Hitti Siggu, mágkonu mömmu, á safninu. Var komin í Hátún 12 rétt fyrir fjögur og í Laugardalslaug rétt rúmum hálftíma síðar. Kalda potts vinkona mín mætti um fimm. Þá var ég í minni annarri ferð af fjórum í kalda pottinum. Næsta hálfa mánuðinn verður laugin lokuð almenningi vegna viðhalds svo það verður spennandi að sjá hvaða laugar toga í staðinn eða hvort fleiri ferðir verða farnar í sjóinn.
9.9.24
Ný vinnuvika framundan
Heyrði stofuklukkuna slá hálfsjö í gærmorgun. Svo fannst mér aðeins líða nokkrar mínútur þegar ég heyrði hana slá aftur og taldi sjö slög. Hef greinilega sofnað aðeins aftur og ég veit að ég steinsofnaði aftur milli sjö og átta. Klukkan var svo rétt byrjuð að ganga níu þegar ég var alveg glaðvöknuð og fór á fætur. Pabbi var nýlega kominn á fætur og var að taka niður daglegar tölur til að skrá niður. Dagurinn var frekar rólegur hjá okkur feðginum. Skiptumst á að vafra á netinu í tölvunni hans, fórum í kapla keppnir og horfðum á sjónvarpsútsendingar. Að auki var ég að prjóna. Um hádegisbil matreiddi ég tvö bleikjuflök handa okkur. Pabba fannst þau svo lítil að hann talaði um að hann gæti alveg fengið sér skyr. Ég bað hann amk um að fá sér smá af réttinum því það voru kartöflur og sallat með. Ef hann væri svangur eftir skammtinn mætti hann alveg fá sér skyr í eftirrétt. Um kaffi leytið fengum við okkur flatkökur með reyktum silungi. Það er örugglega uþb ár síðan ég borðaði flatkökur síðast og ég ákvað að fara varlega í smakkið. Borðaði þó tvo fjórðungsparta úr köku. Klukkan var að verða hálfsex þegar ég tók mig loksins saman, kvaddi pabba og brunaði í bæinn.
8.9.24
Laugardagur - skráð á sunnudegi
Vaknaði um sjö í gærmorgun. Var komin í sund um hálfníu. Eftir fimm mínútur í kalda pottinum fór ég á braut 6 og synti 500 metra áður en ég fór aftur í kalda pottinn. Eftir þá ferði lá leiðin í gufuna í ca 15 mínútur, köld sturta og sjópottur í 10 mínútur. Fór svo þriðju ferðina í þann kalda áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Var mætt til esperanto vinkonu minnar um hálfellefu. Stoppaði hjá henni í næstum einn og hálfan tíma og lásum við m.a. tvær og hálfa blaðsíður í Kon-Tiki. Var komin heim milli tólf og hálfeitt. Komst af stað austur rétt rúmum klukkutíma síðar og var komin til pabba rétt upp úr klukkan þrjú. Þegar ég var að leggja af stað úr bænum "vasahringdi" systir mín í mig en hún heyrði mig svara og spjallaði smá. Hafði verið að spjalla við manninn sinn sem þurfti að rjúka af stað með Huldu úr smalamennsku á sjúkrahús vegna ofnæmisviðbragða. Frétti ekki meira um það mál svo það hlýtur að hafa farið vel. Við pabbi ákváðum að grilla kindakjöt, sem var til í ísskápnum hjá honum, um hálfsex leytið. Ég setti upp kartöflur og lagði á borð en hann sá um grillið. Horfðum svo á útsendinguna frá Ljósanótt í Reykjanesbæ milli átta og ellefu.
7.9.24
Strax komin helgi aftur
Bankaði á herbergisdyrnar hjá Oddi stuttu áður en ég fór í vinnu í gær. Hann var vakandi og byrjaður að undirbúa sig undir verkefni dagsins, smá skyldufund hjá vinnumálastofnun og að taka á móti iðnaðarmönnum. Iðnaðarmennirnir höfðu ekki samband fyrr en hann var mættur á fundinn. Oddur sendi þeim skilaboð um að hringja í Davíð Stein þar sem hann væri smá upptekinn. Skilaboðin frá þeim sem voru að koma með nýju svalahurðina voru þau að þeir kæmu ekki fyrr en milli hálfellefu og ellefu. Oddur var löngu kominn heim aftur þá því bróðir hans sótti hann eftir fundinn. Davíð Steinn "stakk" hins vegar af, fór að sinna öðrum verkefnum s.s. fara í klippingu og fleira, og kom ekki aftur fyrr en nýja svalahurðin var komin upp og iðnaðarmennirnir farnir en þeir voru rétt rúma tvo tíma að græja þetta. Ég var búin að vinna stuttu fyrir þrjú. Hringdi í pabba þriðja daginn í röð þegar ég var á leiðinni í Nauthólsvík. Hann var reyndar í heimsókn hjá frændfólki á Selfossi en við spjölluðum engu að síður stuttlega saman. Sjórinn var dásamlegur og hressandi en heldur mikil fjara. Hringdi svo loksins í frænku mína og nöfnu sem á danskan pabba. Hún býr og vinnur hér á Íslandi en við vorum ekki búnar að heyrast síðan í sumar. Hvorug okkar var reyndar að velta sér upp úr því. Mamma hennar, móðursystir mín, er hætt að vinna og alveg flutt til Danmerkur aftur frá Noregi þar sem hún var með lögheimili sl. þrjátíu ár eða svo. Hún á reyndar fasteignir í nokkrum löndum, m.a. hér í Reykjavík.
6.9.24
Ný svalahurð verður sett upp í dag
Gærdagurinn var í léttari kantinum vinnulega séð. Var komin í sund upp úr klukkan hálfþrjú. Synti 400m og var að klára fyrstu ferðina í þann kalda þegar kalda potts vinkona mín mætti. Saman fórum við þrjár ferðir, vorum næstum hálftíma í gufu og uþb 15 mínútur í sjópottinum. Sundferðin mín stóð yfir í næstum tvo tíma. Kom við í Fiskbúð Fúsa á heimleiðinni og keypti mér harðfisk og ýsu í soðið. Pikkaði svo Odd upp og skruppum við saman í Krónuna við Fiskislóð. Á leiðinni þangað hafði smiðurinn, sem kom og mældi út hjá mér svaladyrnar, samband og sagðist ætla koma í dag, föstudag. Hann og einhver með honum koma sennilega fljótlega eftir að ég er farin í vinnu. Oddur mun taka á móti honum og svo tekur Davíð Steinn við um miðjan morgun ef á þarf að halda því Oddur hefur verið boðaður á fund hjá vinnumálastofnun. Vonandi fer eitthvað að gerast í atvinnumálunum hjá honum. Held að hann þurfi að vera mun opnari fyrir tækifærunum en hann heldur amk þannig á spilunum að hann fær smá bætur mánaðarlega.
5.9.24
Sjórinn hressir alltaf
Í gær var framleiðsludagur. Ég var í bókhaldi og á móttökuendanum. Vélin byrjaði á smá mótþróaþrjóskuröskun þegar við ætluðum að hefja framleiðslu. Þurfti að taka hana alveg niður og þegar parturinn fyrir vélina var ræstur gerðist nokkuð sem við höfum ekki lent í áður, þ.e. ekkert gerðist. Takkinn var í réttri stöðu en ekkert heyrðist í vélinni. Eftir nokkrar sekúndur af smá sjokki bað ég þá sem var á ítroðslu endanum að prófa að snúa takkanum til baka, doka stutta stund, og reyna aftur. Hvað við urðum fegnar að þá fór allt í gang og það sem meira var að framleiðsla gekk nánast eins og í sögu. Kláruðum allt daglegt fyrir kaffipásu og afganginn af endurnýjuninni milli tíu og tólf. Kláraði bókhaldsmálin eftir hádegi og var komin í innlegg upp úr hálftvö. Allt var búið um þrjú. Var með sjósundsdótið meðferðis en ákvað að kíkja fyrst í Aqua Sport, gömlu strandskórnir eru löngu orðnir ónýtir. Hringdi í pabba og spjallaði við hann hluta af leiðinni. Sokkarnir sem ég ætlaði að kaupa voru ekki til í minni stærð, kannski sem betur fer því þarna fæst alls konar og m.a. svipaðir skór og strandskórnir. Þykkari botnar aðeins öðru vísi efni og litir en miklu betra en sokkar. Og voru líka til í mínu númeri. Fjárfesti í þeim. Næst kom ég við í sokkabúðinni Copra við Garðatorg og fjárfesti í fjórum pörum af orkusokkum og á þá núna sex pör. Ætlaði að kíka í nýju verslunina Prís en "villtist" inn í Smáralind í Söstrene Grene og keypti mér nokkrar dokkur af 10% bómullargarnir í ýmsum litum. Ákvað að geyma "heimsóknina" í Prís til betri tíma því klukkan var farin að ganga fimm og mál að drífa sig í sjóinn og prófa nýju skóna. Hringdi þó fyrst í Ellu vinkonu eftir að ég var komin á stæði við Nauthólsvík og átti gott spjall við hana. Klukkan var akkúrat fimm þegar ég dembdi mér í sjóinn. Skórnir reyndust ljómandi vel. Var 15 mínútur í sjónum sem er rúmar 10°C þessa dagana, 10 mínútur í gufu, köld sturta og svo 15 mínútur í heita pottinum. Var komin heim fyrir klukkan hálfsjö. Um átta skrapp ég í 1,7km göngu sem tók mig 22 mínútur. Nú hef ég náð skrefamarkmiðunum fimm daga í röð.
4.9.24
Yfir fjögurþúsundogfimmtíu blogg færslur
Gærdagurinn var mjög annasamur í vinnunni en allt kláraðist þó innan níu tíma. Var komin í sund um hálffimm leytið. Byrjaði á því að synda 300m en fór svo á kalda potts rölt með kalda potts vinkonu minni. Gáfum okkur extra góðan tíma í gufunni og sjópottinum. Ferðirnar í þann kalda urðu fjórar 3-5 mínútur í senn. Ég var komin heim rétt fyrir hálfsjö. Rétt rúmum klukkutíma síðar skrapp ég út í smá göngu. Labbaði 1,5km á uþb 19 mínútum og náði skrefa markmiðinu þriðja daginn í röð. Heildarskrefin voru samt mun færri heldur en þá daga sem ég labbaði í og jafnvel úr vinnu en sjöþúsund skref eru þó betri en innan við tvöþúsund skref, eða hvað? :-)
3.9.24
Mun bjartara en í gærmorgun
Vaknaði rétt rúmlega sex í gærmorgun. Þurfti að kveikja ljós á meðan ég var að klæða mig og einnig athafna mig á baðherberginu. Annars var morgun rútínan mjög svipuð. Mætti í vinnu um hálfátta og fyrsti hálftíminn fór í bókhalds og reikningagerða vinnu fyrir kortadeildina. Upp úr klukkan átta svissaði ég yfir í innlagnir. Sú vinna stóð yfir til klukkan langt gengin í þrjú. Þá sneri ég mér aftur að reikningagerðinni. Fékk Petru til að lesa yfir loka tölur og skilaði svo af mér. Gott að þetta er frá. Er langt komin með allar excel tengingar til að safna tölum fyrir næstu mánaðamót. Var komin í Hátún 12 í osteostrong tíma rétt fyrir fjögur og sem fyrr komst ég strax að þótt "fasti" tíminn væri ekki fyrr en 16:20. Eftir tímann fór ég beint í sund. Var búin að láta kalda potts vinkonu mína vita að ég myndi líklega vera mætt í sund ca korter í fimm. Hún var mætt en ég sá hana ekki strax þar sem hún hafði skroppið í gufu. Ég var því búin að fara eina ferð í þann kalda og smá stund í sjópottinn áður en við hittumst. Fórum fjórar ferðir saman í þann kalda og í hina ýmsu potta eða gufu inn á milli. Var komin heim upp úr klukkan sex. Um átta leytið skrapp ég aftur út í stutta göngu, 1,1 km á tæpu korteri en þar með hafði ég náð að safna skrefamarkmiðum dagsins og gott betur svo forritið í símanum þarf ekki að "skamma" mig en hrósar mér í staðinn. Annars er ég svo sem að safna óskráðum skrefum þegar ég er að vappa á milli potta í sundinu. Það væri fróðlegt að vita hversu mörg skref það eru þegar farnar eru 4-6 ferðir í þann kalda og rölt á milli potta og gufu.
2.9.24
Dimmt yfir
Vaknaði eiginlega alltof snemma í gærmorgun, svona miðað við að það var sunnudagur. Helgast kannski af því að ég fór tiltölulega snemma að sofa á laugardagskvöldið. Hvað um það ég var komin á fætur fyrir klukkan hálfsjö. Ætlaði að fylgjast með sundinu hjá Má á ólympíuleikunum áður en ég færi í sund. Í átta fréttum var sagt að það yrði um hálfníu svo ég taldi óhætt að horfa á brot úr þætti í sarpinum. Stillti aftur á rúv2 tuttugu mínútum yfir átta en þá var Már nýbúinn að synda sig inn í úrslit og hinn riðillinn í hans flokki að gera sig kláran í sundið. Var byrjuð að synda korter fyrir níu og þegar ég var akkúrat að klára 500 metrana kom kalda potts vinkona mín. Fórum 4 ferðir í kalda, eina í heitasta, eina í 42°C, eina í gufuna og eina í sjópottinn. Þar sem við hittum eina systur hennar. Kom heim um hálftólf. Dagurinn fór í alls konar en samt aðallega fótboltaáhorf og prjónaskap. Skrapp þó í stuttan göngutúr fljótlega eftir kvöldmat og náði þar af leiðandi skrefa markmiðinu mínu, sem er orðið frekar sjaldgæft. Nenni ekki alltaf út í göngu eftir vinnu og sund eða sjóferð.
1.9.24
Nýr mánuður
Ég rumskaði fyrst rétt fyrir fimm í gærmorgun. Skrapp á salernið að tæma blöðruna og fór beinustu leið aftur í bælið. Sofnaði aftur og klukkan var byrjuð að ganga átta þegar ég fór á fætur. Gleymdi mér aðeins í netvafrinu og um átta var ruslabíll á ferðinni í götunni. Ég var þó komin í sund um hálfníu. Synti 500m, flesta á bakinu. Fór tvær fjögurra mínútna ferðir í þann kalda, gerði æfingar í gufunni og slakaði vel á í sjópottinum. Þvoði mér um hárið og fór svo beint vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Tókum tvöfaldan tíma og kláruðum fyrsta kaflann í Kon-Tiki, sem við höfum reyndar lesið amk tvisvar sinnum áður. Varð að víkja fyrir bifreið þegar ég var á leiðinni í burtu og bíllinn straukst aðeins við smá steinkant við það. Hugsaði sem svo að það væri skárra heldur en að rispa bílinn sem ég var að víkja fyrir. Ætti að geta lappað upp á þessa skrámu næst þegar ég fer til pabba. Annarst ekkert nýtt né títt.
31.8.24
Á leið í sund og esperanto
Allt í einu er komin helgi aftur og þessi helgi lendir akkúrat á mánaðamótum. Vel gekk í kortaframleiðslunni í gær en við gengum frá henni um hádegisbilið og skildum eftir síðustu og stærstu endurnýjunarskrána, rúmlega þúsund kort. Erum samt rúmlega hálfnaðar og munum að öllum líkindum klára um miðja næstu viku. Sinnti reikningagerð kortadeildar, mánaðamótauppgjöri, til klukkan hálftvö en tók þá smá innlegg. Er ekki búin með uppgjörið en það klárast fljótlega eftir helgi. Á föstudögum er vinnuskilda til klukkan 15:15 en eins og alla aðra daga megum við fara þegar allt er búið sama hvað klukkan er. Í gær vorum við búin milli hálfþrjú og þrjú. Þurfti samt ekki að logga neinn bónustíma því ég stimplaði mig inn og var byrjuð að vinna um hálfátta leytið þannig að ég skilaði 7klst og 15 mínútum í gær. Var með sjósundsdótið með mér en einhvern veginn var ég ekki í stuði fyrir svoleiðis, hvorki sund né sjó. Fór bara heim og setti í þvottavél. Hringdi í Huldu frænku sem sagði mér frá því að hún, foreldrar hennar og tveir af hundunum væru að fara í útilegu yfir eina nótt á einhvern stað ekki langt frá Húsavík. Frænka mín var mjög spennt yfir þessu og hún hlakkaði til. Það er langt síðan ég heyrði svona spenning í röddinni hennar. Hringdi líka í pabba og esperanto vinkonu mína. Pabbi hafði fengið góða heimsókn í gær og við Inger ákváðum hitting og munum því spjalla betur á eftir. Núna er hins vegar löngu komin tími til að drífa sig í sund því það opnaði klukkan átta.
30.8.24
Blóðgjöf og út að borða
Í gær fór ég hvorki í sund né sjóinn. Vinnudagurinn var í styttra lagi og var ég komin heim frekar snemma eða fyrir klukkan þrjú. Rúmum klukkutíma síðar rölti ég í blóðbankann, rúmur kílómetri. Sú sem mældi þrýsting og tók viðtalið við mig ákvað að fá "æðahvíslara" til að taka við verkefninu eftir að ég var lögst á bekk. Leyfði þeirri sem tók við að velja og eftir þreyfingar á báðum ákvað hún að velja þá hægri. Það gekk ekki betur en svo að æðin "hljóp" undan nálinni. Sem betur fer má prófa aftur, þ.e. stinga í hina olnbogabótina og það gekk miklu betur. Fann ekkert fyrir stungunni og rennslið var mjög gott. Var komin heim aftur um hálfsex.
Ég og fyrrum fyrirliði vorum búnar að ákveða að nota sumargjöfina frá RB, út að borða fyrir tvo á veitingastaðinn sumac (tvípunktur yfir u-inu), og bjóða nýjasta sumarliðanum og manni hennar með okkur. Þau þáðu boðið. Ég hafði ætlað að mæta á staðinn um sjö en fyrrum fyrirliði bað mig um að hringja og athuga hvort það væri pláss. Í ljós kom að það var betra að mæta upp úr klukkan hálfátta. Fyrrum fyrirliði var samt komin niður í bæ um sex leytið. Ég bauð henni að koma til mín og bíða. Þau sem við buðum með okkur sóttu okkur rétt fyrir hálfátta. Lögðum bílnum við Austurbæjarskóla og röltum þaðan. Fengum pláss í innra herbergi á veitingastaðnum. Þar fyrir var reyndar hópur af Ameríkönum en það fór vel um okkur. Þjónustan var extra góð og maturinn meiriháttar. Þurftum ekki að velja því gjafabréfið hljóðaði upp á eitthvað sem er kallað meze og er sjörétta matseðill. Þessi matarupplyfun tók okkur rúma tvo tíma, sem liðu reyndar frekar hratt. Þegar við vorum að fara hittum við vinnufélaga sem hafði líka verið að leysa út gjafabréfið. Mæli annars 100% með þessum stað. Var komin heim um hálfellefu og fór ekki að sofa fyrr en rúmum klukkutíma síðar því ég þurfti auðvitað að lesa smá.
29.8.24
Fallegur dagur
Vinnudagurinn í gær fór eingöngu í kortamálin því það var komin endurnýjun til framleiðslu. Ég var á ítroðslu endanum. Prentarinn var með smá vesen framan af þannig að við vorum til hádegis að klára allt daglegt. Höfðum veður af því að uppi yrði allt búið frekar snemma. Kláruðum níu skrár af tólf í endurnýjuninni eftir hádegi, það voru eitthvað á sjötta hundrað kort og næstum einn fjórði af heildarendurnýjuninni. Vorum búnar að ganga frá kortadeildinni milli tvö og hálfþrjú. Flestum verkefnum á efri hæðinni var lokið þannig að við stimpluðum okkur fljótlega út og ég fór beinustu leið í Nauthólsvík. Hringdi í eitt afmælisbarn, fyrrum samstarfskonu, og spjallaði við hana á leiðinni á milli. Var korter í sjónum, annað korter í gufu. Fór aftur í sjóinn í tæpar fimm og var svo korter í heita pottinum áður en ég fór upp úr. Aftur lenti ég í bílaröð frá hringtorginu við HR en var samt alls ekki eins lengi á leiðinni heim og sl. miðvikudag því röðin virtist mjakast aðeins hraðar en þá.
28.8.24
Ósköp fátt en samt eitthvað
Klukkan var byrjuð að ganga sjö þegar ég vaknaði í gærmorgun, örfáum mínútum áður en vekjarinn átti að fara af stað. Engu að síður hafði ég ágætis tíma fyrir morgunrútínuna. Liðkaði reyndar ekki hendina með prjónaskap en ég gerði æfingar með tveimur tveggja kílóa lóðum. Var eiginlega aðalega að spá í gripið með þeirri hægri og hafa vinstri með til hliðsjónar. Mætti í vinnu um hálfátta. Fór fljótlega niður að hlaða inn nýjustu skrám og fylla út skiptiblöð. Stór dagur var í innlögnum í gær en það voru margar hendur á dekki svo við vorum búin um þrjú. Öllum verkefnum mínum var lokið rúmlega hálffjögur. Var komin í sund um fjögur. Kalda potts vinkona mín var mætt en hún vissi að ég ætlaði að byrja á því að synda svo hún beið eftir mér í sjópottinum. Synti 300m og svo var trítlið á milli potta og gufubaðs mjög svipað og á mánudaginn. Eftir sund kom ég aðeins við í heilsuhúsinu í Kringlunni, en ég var komin heim fyrir hálfsjö.
27.8.24
Sól og blíða í gær
Vaknaði rétt fyrir sex. Gaf mér góðan tíma í alla morgunrútínu en var samt mætt í vinnu um hálfátta. Eftir að hafa stimplað mig inn, fyllt á vatnsflöskun, fengið mér heitt vatn og spjallað smá við vinnufélaga sem voru mætt fór ég niður að hlaða inn nýjustu skránum og útbúa skiptiblöð. Það tók aðeins um tuttugu mínútur svo ég var komin upp og byrjuð í innleggjunum rétt fyrir átta. Vinnudagurinn var búinn rétt fyrir fjögur. Þá fór ég beinustu leið í Hátúnið í vikulegan osteostrong tíma. Þar bætti ég mig á þremur tækjum af fjórum. Fékk aftur að setja þá hægri á hristipallinn og vafning utan um hana í slökuninni. Eftir tímann og slökunina fór ég beinustu leið í sund. Þar beið kalda potts vinkona mín eftir mér. Fórum fjórar ferðir í þann kalda sem var í heitara lagi fyrir okkur örugglega meira en 12°C. Á leiðinni í þriðju ferðina hittum við eina systur hennar og mæltum okkur "betra" mót við hana í sjópottinum eftir þann galda og smá gufu. Eftir fjórðu ferðina í þann kalda fór ég upp úr og kom við í Krónunni í Skeifunni á leiðinni heim enda var klukkan að verða sjö þegar ég skilaði mér loksins í heimahús.
26.8.24
Síðasta vika ágústmánaðar hafin
Rumskaði fyrst upp úr klukkan sex en sofnaði strax aftur. Þegar ég vaknaði aftur heyrði ég stofuklukkuna slá átta högg. Fór á fætur. Pabbi var þegar klæddur og kominn á ról. Búinn að ganga frá úr uppþvottavélinni og sat við eldhúsborðið og lagði kapla. Ég settist á móti honum þegar ég var búin að sinna morgunverkunum á baðherberginu. Eftir nokkra kapla sem gengu frekar illa settist ég fram í gang við tölvuna hans pabba í smá stund. Vafraði á netinu og setti inn færslu. Færði mig svo inn í stofu. Pabbi var kominn þangað og búinn að kveikja á sjónvarpinu. Ég greip í prjónana. Það stóð alltaf til að fara aðeins út og safna skrefum en einhvern veginn leið dagurinn án þess að ég tosaði mig af stað. Borðuðum afganginn af folaldakjötinu í hádeginu. Las, prjónaði, lagði kapla og vafraði á netinu. Seinni partinn horfði ég á leik Liverpool og Brentford 2:0. Fljótlega eftir leikinn tók ég dótið mitt saman, kvaddi pabba og brunaði í bæinn.
25.8.24
Í heimsókn yfir nótt á Hellu hjá pabba
Vaknaði á sjöunda tímanum í gærmorgun. Rétt fyrir átta lagði ég af stað í sund. Það byrjaði ég á því að fara í kalda pottinn í 4 mínútur. Þegar ég var að ljúka tímanum kom sjósundsvinkona mín, þ.e. hún var að koma af brautum 7-8 og á leiðinni í nuddpottinn. Ég ákvað að fylgja henni þangað. Fórum saman í mína næstu ferð í þann kalda. Eftir fjórar mínútur þar fór hún upp úr en ég á brautir 7-8 og synti 600m áður en ég fór þriðju ferðina af fimm í þann kalda. Fór einnig í gufu í 10 mínútur og gerði æfingar og í 10 mín í sjópottinn. Þvoði mér svo um hárið áður en ég fór heim. Klukkan var að verða ellefu þegar ég kom heim. Pakkaði niður en fékk mér svo AB-mjólk með hnetum, fræjum og rúsínum. Rétt fyrir tólf sendi ég sms í Fossheiðina og dreif mig svo af stað. Þegar ég kom á Selfoss hafði ég ekki orðið vör við svarskilaboð (sá þau löngu síðar, kannski var ég bara svona blind) svo ég hringdi og fékk að vita að tvíburahálfforeldrarnir væru heima og heilsan góð (eins og stóð í skilaboðunum). Það var liðinn amk mánuður síðan ég var síðast á ferðinni og kominn tími til að renna við. Mátti þó ekki vera að því að bíða eftir tvíburahálfsystur minni sem var á leiðinni í berja og rabbabaravinnu. Stoppaði aðeins í uþb klst. Var komin á Hellu um þrjú. Pabbi var búinn að taka lásinn af og sat við eldhúsborðið að leggja kapla. Ég byrjaði því heimsóknina á að fara í smá kaplakeppni við hann. Ekkert löngu síðar færðum við okkur inn í stofu. Þar "datt" eitt stk. eldhús- eða fótþurrkuhandklæði af prjónunum og skömmu síðar fitjaði ég upp á enn einni tuskunni. Pabbi kveikti á sjónvarpinu. Man ekkert hvað hann var að horfa á en þegar sá þáttur var búinn var síðasti leikurinn í enska boltanum að hefjast. Aston Villa - Arsenal 0:2. Pabbi settist um stund við tölvuna en hann setti upp folaldakjöt um hálfsex og skrældi og skar niður eina væna sæta kartöflu sem hann sauð í sér potti stuttu áður en folaldakjötið var tilbúið. Skammturinn var svo stór að við borðum líklega afganginn í hádeginu í dag. Eftir mat hjálpuðumst við feðgin að mér frágang. Kvöldfréttir í sjónvarpinu voru búnar en við skiptumst á að horfa á útsendingar frá Arnarhóli og Hljómskálagarðinum. Ágætis tónleikar á báðum stöðum. Ég las bara stutt þegar ég fór í háttinn á tólfta tímanum, var örugglega steinsofnuð fyrir miðnætti.
24.8.24
Næst síðasta helgin í ágústmánuði
Vaknaði mjög snemma í gærmorgun, útsofin en ekki tilbúin til að fara strax á fætur. Klukkan var eitthvað aðeins byrjuð að ganga sex og ég byrjaði daginn á því að lesa smávegis. Mætti í vinnu um hálfátta og var fljótlega byrjuð á innleggjunum. Vinnan gekk ágætlega en það teygðist engu að síður úr deginum. Á föstudögum er markmiðið að vera búinn og farinn úr vinnu í síðasta lagi korter yfir þrjú. Getum ekki farið fyrr en allt er búið og ég var að stimpla mig út milli hálffjögur og fjögur í gær. Var með bæði sund- og sjósundsdót meðferðis. Nauthólsvíkin varð ofan á. Prófaði að nota ullarsokkana sem ég keypti á ullarsetrinu á Hvammstanga á leiðinni norður í vor. Hefði kannski líka átt að fara í ræfilslegu strandsskóna en þetta slapp til. Ekki þó viss um að ég geri þetta aftur. Annað hvort útvega ég mér betri sokka eða fer að nota sjósundsskóna aftur aðeins fyrr en ég ætlaði mér. Sjórinn var 9,8°C og skónotkunarviðmiðið hjá mér er ca 6-7. Var berhent eins og ég er búin að vera í allt sumar og svamlaði í sjónum í tæpt korter. Sat svo annað eins í gufunni og notaði tækifærið og gerði æfingar. Var komin heim um hálfsex.
23.8.24
Enn eitt gosið við Grindavík
Rumskaði stuttlega um miðja nótt í fyrri nótt en vaknaði svo við vekjarann í gærmorgun. Rútínan varð eitthvað styttri fyrir vikið og bitnaði mest á morgunæfingunum. Mætti í vinnu um hálfátta og fljótlega var ég byrjuð að vinna innlegg. Verkefnum mínum var ekki lokið fyrr en korter fyrir fjögur og var ég með þeim síðustu út úr húsi, með í því að setja kerfið á áður ég og önnur hlupum út. Fór beint í sund og eftir fimm mínútur í kalda pottinum fór ég á braut 7 og synti 200 metra. Þá var komin svo mikil umferð í laugina að ég ákvað að kalla þetta gott sund í bili, betra en ekki neitt samt. Fór aftur í kalda pottinn. Svo gufu, kalda sturtu, sjópott og kalda sturtu á leiðinni upp úr. Var komin heim um sex.
22.8.24
Beinþéttnimæling í gær
Fyrir tæpum tveimur vikum síðan fékk ég bréf frá Landsspítalanum þar sem ég var boðuð í beinþéttnimælingu og gefinn tíminn þann 21. þessa mánaðar kl. 9:10 í þá mælingu. Ég byrjaði því gærdaginn ekki alveg eins snemma og flesta virka daga en samt um hálfsjö leytið. Synti morgunrútínunni, gaf mér extra góðan tíma í æfingar og náði meira að segja að lesa aðeins áður en ég fór að huga að brottför í mælinguna. Hugmyndin var að fara á bílnum en leggja aðeins lengra frá og labba síðasta spölinn að Eiríksgötu 5. Hins vegar fann ég ekki stæði á þeim stað sem ég ætlaði að leggja bílnum svo ég fór alla leið, fékk stæði rétt við annan innganginn og þar sem ég var aðeins í fyrra fallinu borgaði ég fyrir rúman klukkutíma ef ég skyldi þurfa að bíða eitthvað. Skráði mig inn á fyrstu hæð og borgaði í þar til gerðan posa. Ég var mætt rúmum tíu mínútum fyrir boðaðan tíma en ég þurfti samt ekki að bíða lengi eftir að vera kölluð inn. Ég var búin að fylla út ákveðið skjal nema hæðina sem ég var ekki með á hreinu. Var síðast í mælingu fyrir fimm árum og síðan þá hef ég dregist saman um 2mm, mældist 169,3 í gær. Þyngdin 79kg. Ég þarf svo að panta tíma hjá lækni á heilsugæslunni til að fá niðurstöður en sú sem setti mig í tækið sagði að mælingar væru flestar mjög svipaðar og síðast þegar ég var mæld og það voru alls ekki slæmar mælingar. Mætti í vinnu um hálftíu og eftir smá fund fór ég í innlegg. Vinnudegi lauk um hálffjögur leytið og þá fór ég beinustu leið í Nauthólsvík. Svamlaði um í 11,1°C sjónum í uþb korter en því miður var gufan lokuð. Sat í heita pottinum í annað korter. Hefði líklega átt að fara aftur í sjóinn og gefa mér enn betri tíma því ég var án gríns næstum þrjú korter á leiðinni heim því umferðin frá HR var bíll við bíl, stopp og bið inn á milli og það var byrjað þegar ég var á leiðinni í Nauthólsvík.
21.8.24
Veðurblíða í gær og margt um manninn í sundi seinni partinn
Var komin á fætur rúmlega sex í gærmorgun. Morgunrútínan svipuð og flesta virka daga. Mætti í vinnu um hálfátta og fljótlega var ég byrjuð í innleggjunum sem voru mörg í gær. Verkefnum var ekki lokið fyrr en um hálffimm. Þá fór ég beint í sund. Lagði bílnum á stæði við Laugardalsvöllinn og rölti þaðan í laugina. Margar af brautunum voru fráteknar vegna æfinga og þær sem ekki voru fráteknar voru undirlagðar í leik eða slatta af syndandi fólki. Ég notaði þetta kraðak sem afsökun fyrir því að skrópa í sjálft sundið en fór tvisvar í frekar volgan kalda pottinn, tuttugu mínútur í gufu og tíu mínútur í sjópottinn áður en ég fór upp úr og heim.
20.8.24
Hraðferð á logninu í gær
Glaðvaknaði korter fyrir sex í gærmorgun. Morgunrútínan var svipuð og oftast áður. Gaf mér góðan tíma í fyrstu æfingalotu dagsins en var líka að vafra á netinu. Mætti í vinnu um hálfátta. Fyrirliðinn og sumarliðinn sem hefur fengið framlengingu til áramóta sáu um það sem þurfti að gera varðandi kortamálin, bókhald og hlaða inn skrám. Ég var aðeins í innleggjum í gær. Það gekk vel og flestum verkefnum var lokið um þrjú. Mér fannst of snemmt að mæta strax þá í vikulegan osteostrong tímann minn en það tók því heldur ekki að fara heim. Hringdi í pabba sem var á ferðinni. Hafði skroppið í bæinn með bílinn í eftirlit hjá Brimborg en var staddur í Flóanum á leiðinni heim eftir bæjarferðina. Ég lagði mínum bíl fyrst við Hátún 10 og eftir að hafa talað við pabba hringdi ég í vinkonu mína sem er með bás á torginu öll sumur. Hún var heimavið í gær og við spjölluðum í dágóða stund. Rétt fyrir fjögur færði ég bílinn að Hátúni tólf og þótt ég væri mætt rúmum tuttugu mínútum áður en tíminn minn átti að hefjast komst ég strax að. Bætti mig á tveimur tækjum af fjórum og var við minn besta árangur á hinum tveim. Eftir jafnvægisæfingarnar bað ég um að fá að setja hægri hendina á hristipallinn í smá stund og í hvíldinni fékk ég auka vafning utan um hana. Eftir tímann fór ég beint í sund. Synti reyndar ekkert en fór tvisvar í þann kalda, gerði fingra og úlnliðsæfingar í gufunni og fór smá stund í sjópottinn líka. Var komin heim um sex.
19.8.24
Ný vinnuvika
Man ekki nákvæmlega hvenær ég rumskaði í gærmorgun en ég kúrði amk uppí alveg til klukkan hálfátta. Þá fór ég á fætur og dundaði mér við ýmislegt þar til klukkan var langt gengin í ellefu. Um ellefu var ég komin vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Stoppaði hjá henni í einn og hálfan tíma. Við lásum m.a. uþb eina og hálfa bls. í Kon Tiki. Keyrði aðeins út að Gróttu á leiðinni heim en stoppaði ekkert. Meiningin var svo að skreppa í göngutúr seinna um daginn en ég festist yfir fótbolta leikjum og þáttaáhorfi og ákvað að þetta yrði bara svona hreinasti letidagur þar sem ég fór heldur ekki í neitt sund. Í gær var síðasti dagur sumartímabilsins í Nauthólsvík. Frá og með deginum í dag verður aðstaðan lokuð á sunnudögum og mánudögum en hina dagana opið frá 10-19. Opnunartíminn breytist kannski þegar líður á haustið. Sl. vetur hefur verið opnað klukkan ellefu og á laugardögum lokað klukkan fjögur.
18.8.24
Í bænum þessa helgin
Svaf í einum dúr frá hálfellefu til hálfsex í fyrrinótt og þar sem ég var útsofin fór ég á fætur. Tók af rúminu og setti hreint á í staðinn. Setti þetta samt ekki í þvottavélina fyrr en um átta, rétt áður en ég dreif mig í sund. Var tvo tíma í sundi. Synti 500m og fór 3x5mín í þann kalda. Fór líka í gufu og sjópottinn og sat svo á stól í smá stund. Þvoði mér um hárið og var komin heim um hálfellefu leytið. Horfði á einn þátt og akkúrat þegar hann var búinn var fyrsti leikur dagsins í enska að byrja. Liverpool sótti nýliðana Ipswich heim. Heimaliði byrjaði af krafti, varðist vel og gerði "mínum" mönnum erfitt fyrir í fyrri hálfleik. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik. Leikurinn endaði 0:2 fyrir gestunum en ég missti af báðum mörkunum, sá þau bara í endursýningu, því ég skrapp í smá stund frá (til að hengja upp úr þvottavélinni). Eftir leikinn skrapp ég út í rúmlega klukkutíma göngutúr. Fór svo ekkert meira út eftir það.
17.8.24
Ágústmánuður rúmlega hálfnaður
Nú brá svo við að ég svaf alveg þar til vekjarinn vakti mig með látum í gærmorgun. Að vísu rumskaði ég aðeins um þrjú leytið og hefði eiginlega þurft að fara á pisseríið en í stað þess sneri ég mér á hina hliðina og vissi næst af mér þegar vekjarinn fór að ólmast. Morgun rútínan var því aðeins í styttra lagi en það kom ekkert að sök. Var mætt í vinnu um hálfátta. Vissi ekki strax að fyrirliði kortadeildar var mætt og farin niður að hlaða inn skrám en þegar ég opnaði tölvuna korter fyrir átta var hún að setja inn að skiptiblöð væru tilbúin. Ég græjaði framleiðslublöð og talningablöð, prentaði út öll gögn og var komin niður um átta. Kláruðum allt daglegt og rúmlega helming af endurnýjun sem var að bíða eftir plastsendingu. Hefðum klárað alla endurnýjunina ef umslögin hefðu ekki verið á þrotum. Einhvern veginn fór það framhjá okkur að þau væru að klárast en nóg er til af formum. Við gengum frá kortadeildinni korter fyrir tíu og ég sendi beiðni á viðkomandi aðila um að útvega okkur umslög eins fljótt og kostur væri. Eftir kaffi kláraði ég bókhaldsmál áður en ég stimplaði mig úr kortunum og setti upp tímateljara fyrir næsta verkefni. Flestum verkefnum var lokið upp úr klukkan tvö. Þrír sumarliðar kvöddu okkur en hugsanlega kom tveir þeirra í smá afleysingu stöku sinnum næstu vikurnar. Fimmti sumarliðinn mun kveðja eftir næsta þriðjudag, sá sjötti um mánaðamótin en sá sumarliði sem kom síðastur inn hefur fengið framlengingu til áramóta. Fór í sund eftir vinnu og beint á braut 6 þar sem ég synti 400m. Fór 3x5 mínútur í þann kalda sem reyndar var í volgara lagi, 10 mínútur í gufu og sjópott og 5 mínútur í 42°C pottinn. Kom við í fiskbúð Fúsa sem opnaði aftur í vikunni eftir sumarfrí. Keypti harðfisk og einnig ýsu í soðið. Var komin heim einhvern tímann á fimmta tímanum.
16.8.24
Sól og blár himinn
Vaknaði upp úr klukkan hálfsex í gærmorgun. Tíminn fram að því að ég lagði af stað í vinnuna var fljótur að líða. Rútínan var svipuð og oftast. Var svo mætt í vinnu rétt um hálfátta. Vann aðallega í innleggjum en ég tók bæði að mér að útbúa framleiðslublöð og hlaða inn kortaskrám þótt tvær aðrar kortakonur væru á svæðinu. Þurfti nefnilega hvort sem er að fara niður til að mappa ákveðin skjöl frá því í fyrra dag. Auðvitað hefði það mátt bíða en fyrsti innleggja skammturinn minn var búinn um níu leytið en hinar tvær voru enn með verkefni og það var ekki alveg kominn tími á kaffipásu. Skrifandi um kaffi þá eru núna liðnir tíu mánuðir síðan ég drakk síðast kaffi. Fljótlega eftir kaffi var ísbíllinn á ferðinni, pantaður af framkvæmdastjóra til að gera vel við sumarliðana okkar en í gær var síðasti vinnudagur eins af þeim. Ég ákvað að skreppa út og spyrja hvort til væri sykurlaus ís og viti menn ég fékk einn í hendurnar sem stóð á "Utan tilsadt sucker". Og það sem meira var, eftir að hafa borðað hann var maginn alveg til friðs og löngun í gotterí eða meira að borða hafði ekki æsts upp. Vinnudegi mínum lauk um þrjú. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni yfir í Laugardalslaugina. Hann hafði farið í myndatöku á Selfoss á miðvikudaginn og skroppið í Krónuna í leiðinni. Þar fann hann uppáhalds hráefnið sitt í pönnukökugerð og var að undirbúa slíka framkvæmd þegar ég hringdi í hann. Ég fór beint á brautir 7 og 8 og byrjaði á því að synda 300m. Gufan var lokuð en ég fór 2x5mínútur í kalda, 15 mín í sjópottinn og 10 mínútur í nudd/magnesíum pottinn. Kalda potts vinkona mín var að koma þegar ég var að labba út úr byggingunni um hálffimm leytið. Lánaði Oddi bílinn eftir að ég kom heim og í staðinn skrapp hann í Sorpuferð á leiðinni í Krónuna. Horfðum svo á þrjá NCIS þætti eftir fréttir í gærkvöldi.
15.8.24
Í sjóinn í gær
Þar sem ég var ekki alveg ákveðin í hvort ég færi í sund eða sjóinn eftir vinnu í gær hafði ég báða pokana með mér. Vinnudagurinn hófst á kortaverkefnum. Innan við þrjúhundruð kort voru í framleiðslu og ekki hægt að framleiða nokkur vegna hráefnisskorts. Vélin og prentarinn tóku smá "kast" en við vorum búnar að framleiða og ganga frá niðri korter fyrir tíu. Eftir kaffi kláraði ég bókhald og fylgiskjöl með pósti áður en ég stimplaði mig út úr kortunum, setti upp nýjan tímamæli og fór í innleggin. Öllum verkefnum mínum lauk milli klukkan tvö og hálfþrjú og þá mátti ég fara. Tók stefnuna í Nauthólsvík. Svamlaði í sjónum í uþb korter, var annað eins í gufunni og gerði æfingar þar, fór í kalda sturtu á eftir og sat í heita pottinum í rúmt korter áður en ég fór upp úr og heim. Davíð Steinn er allur að hressast og þótt hann ætli að halda sig inni við til morguns þegar hann á næstu vakt þá var hann hann að þvo af sér. Hann var því líka búinn að taka af snúrunum eftir mig og koma með upp, saman brotið, og setja á rúmið mitt. Hvorki ég né Oddur kennum okkur meins svo það er spurning hvort við séum sloppin í þetta sinnið. Krosslegg fingur og tær og vona það allra besta.
14.8.24
Full skoðun á bílinn
Vaknaði nokkru á undan klukkunni eins og oftast áður, samt ekki mjög löngu á undan. Morgunrútínan var svipuð og oftast og ég var mætt í vinnu um hálfátta. Eftir að hafa stimplað mig inn, fyllt á vatnsflöskuna og fengið mér bolla af sjóðandi vatni byrjaði ég á því að græja tölu og bókhald fyrir kortadeild áður en ég sneri mér alfarið að innleggjum. Vinnudagurinn varði til klukkan að verða fjögur. Þá byrjaði ég á því að skreppa með bílinn að Klettagörðum 11 þar sem ég komst strax að með bílinn í skoðun hjá Frumherja. Það tók ekki mjög langan tíma, fékk enga athugasemd og nýjan miða á númeraplöturnar. Síðan lá leiðin í Laugardalslaug. Hringdi í pabba áður en ég fór inn. Hann er búinn að taka niður Reynitré sem var komið á tíma og aldur og hefði getað oltið um koll í næsta roki og þá jafnvel skemmt eitthvað í leiðinni. Það eru greinilega sundæfingar að byrja um hálffimm og aftur skrópaði ég í sundið sjálft en kaldi potturinn, gufan og sjópottinn héldu mér aðeins við efnið.
13.8.24
Osteostrongtími í gær
Var mætt í vinnu um hálfátta. Græjaði bókhald og framleiðslutölur fyrir kortadeildina eftir að fyrirliðinn hafði ákveðið að við sumarliðinn ættum að fá að vinna saman og sumarliðinn ákveðið að hún vildi hlaða inn skrám fyrstu dagana en taka við bókhaldskeflinu aftur síðar í vikunni. Annars var ég í innleggjum. Fyrirliggjandi innlegg kláruðust um hálftíu leytið og næstu verkefni skiluðu sér ekki fyrr en um og upp úr hálfellefu. Allt var svo alveg búið milli þrjú og fjögur. Ég stimplaði mig út rétt fyrir hálffjögur. Osteostrong tími minn er ekki fyrr en kl. 16:20 en ég var mætt rúmum hálftíma fyrr en það og þurfti samt ekki að bíða. Bætti mig á þremur tækjum af fjórum og var við besta árangurinn á fjórða tækinu. Var komin í sund fyrir klukkan hálffimm. Synti reyndar ekkert því mér fannst of mikið kraðak á brautunum. Innisundlaugin er lokuð og því allar sundæfingar í útilauginni. Ég er svo sem ekkert viss um að ég hefði synt mikið hvort sem er en fór í þann kalda sem var um 10°C, gufuna og sjópottinn. Kom við í sokkabúðinni Copra við Garðatorg og keypti mér tvö pör af orkusokkum. Ætla að prufa hvort þeir hafi betri áhrif á bólgurnar í fótunum. Kom heim um hálfsjö. Davíð Steinn er allur að hressast en þarf að fara varlega næstu daga. Fer amk ekki í vinnu í dag og á svo frívakt næstu tvo daga og kemst svo kannski á helgarvaktina sína. Ég náði loksins að klára fyrstu bókina af fjórum af Sólheimasafninu, um 550bls. en ég var heldur ekki að fara að sofa fyrr en um hálftólf þótt ég færi upp í rétt fyrir tíu.
12.8.24
Tólfti ágúst
Ingvi mágur og hundarnir Vargur og Ugla voru fyrst á fætur um sjö leytið í gærmorgun. Að vísu var pabbi örugglega búinn að koma aðeins fram fyrr um morguninn til að taka niður helstu tölur og fá sér eitthvað. Ég klæddi mig um það leyti sem hundunum var hleypt út að pissa og bjó til kaffi. Er enn ekki farin að drekka kaffi aftur. Það eru uþb tíu mánuðir síðan ég drakk þann drykk síðast. Enn í pásu en ekki tilbúin að segja að ég sé hætt. Sé það nefnilega fyrir mér að leyfa mér einn til tvo bolla á dag einhvern tímann. Núna er markmiðið að vera kaffilaus amk í ár. Fljótlega fóru systir mín og mágur að hugsa sér til hreyfings enda löng keyrsla norður framundan. Þurftu að skila af sér kerru á N1 við Gagnveg og þar opnar ekki fyrr en tíu á sunnudögum. Kerran var notuð til að koma dýnu úr íbúðinni sem Bríet og Bjarki hafa leigt sl ár og aftur á Hellu. Unga parið hefur reyndar verið meira í sveitinni hjá foreldrum hans, bæði að hjálpa til og flýja flugnabit. Um hálftíu kvöddu norðanfólkið og hundarnir. Ég var áfram á Hellu fram eftir degi. Horfði á beinar útsendingar, prjónaði, lagði kapla, vafraði á netinu og las. Klukkan var farin að ganga fimm þegar ég kvaddi pabba. Þrátt fyrir umferð gekk ferðin í bæinn ágætlega, amk framan af. Það var mikil umferðasulta alveg frá Sandskeiði og að Rauðavatni. Kom heim um hálfsjö. Davíð Steinn greindist í fyrsta skipti með covid um helgina. Hann tók tvö test og bæði voru jákvæð. Hann er því ekki að fara að vinna í dag eða á morgun enda ekki orðinn hitalaus eða var það ekki í gærkvöldi.
11.8.24
Alls konar og ekki neitt
Rumskaði um sjö leytið í gærmorgun við það þegar hundar mágs míns og systur ráku á eftir honum að hleypa sér út að pissa. Mágur minn fór með hundana í stutta göngu. Pabbi var kominn á fætur og var að horfa á beina útsendingu frá ólympíuleikunum. Helga systir var eitthvað illa fyrirkölluð og var í rauninni sárlasin og það voru alls ekki bara timburmenn ef það voru þá timburmenn. Um hálftólf leytið ákvað Ingvi að fara í aðeins lengri göngu með hundana og ég fékk að fara með. Löbbuðum að Rangánni og upp með henni, vegslóða, alveg að þar sem greinilega eru framkvæmdir í gangi. Á baka leiðinni fórum við annan veg sem Ingvi vildi sjá hvert leiddi. Sá vegur var aðeins meiri en slóði. Á tímabili vorum við stutt frá fjósinu á Helluvaði, aðeins tún á milli. Komum svo að öðrum stað þar sem einnig hefur verið framkvæmt og byggt. Göngutúrinn varði alls tæpa tvo tíma og forritið í simanum skráði á mig þrjár mislangar göngur innan þess tíma. Í fyrsta skipti í nokkurn tíma sem skref dagsins fara yfir níuþúsund. Horfði á úrslitaleik kvenna í handbolta þar sem þær norsku unnu þær frönsku. Svo tók ég mig til og matreiddi löngu sem Helga hafði valið þegar þau pabbi skruppu saman í fiskbúðina stuttu fyrir helgi. Steikti lönguna upp úr krydduðu rjómablönduðu hrærðu eggi og smá hveiti á salatmæsterpönnunni hans pabba. Áður var ég búin að skræla og bita niður lauk og sæta kartöflu sem ég gufusauð. Með þessu bjó ég einnig til sallat. Helga hafði litla sem enga matarlyst en settist þau niður með okkur pabba og Ingva í smá stund og smakkaði á fiskinum. Matargerðin heppnaðist vel hjá mér og ef Helga hefði haft betri lyst hefði fiskurinn klárast. Pabbi sá um uppvaskið eftir matinn og það sem eftir lifði dags og kvölds var ég ýmist að prjóna, lesa, klappa hundum og/eða fylgjast með beinum útsendingum.
10.8.24
Komin aftur á Hellu
Svefninn í fyrrinótt var eitthvað furðulegur. Á tímabili kveikti ég á lampanum og setti upp lesgleraugu. Það var um miðja nótt. Engu að síður vaknaði ég löngu áður en vekjarinn átti að ýta við mér og var komin á fætur fyrir sex og mætt í vinnu um hálfátta. Ég fór niður að kveikja á kortavélinni, hlaða inn nýjustu skrám og fylla út skiptiblöð. Sumarliðinn sá um að útbúa framleiðslu og talningablöð og prentaði svo allt út áður en hún kom niður. Framleiðslu lauk á rúmum klukkutíma og frágangurinn tók ca hálftíma í viðbót. Eftir það skráðum við tímana á kortavinnslu, settum upp nýtt "tímatrakk" og snerum okkur að öðrum verkefnum. Nóg var að gera í innlögnunum, það kláraðist ekki fyrr en um hálffjögur og var klukkan orðin fjögur áður en ég stimplaði mig út. Fór beint yfir í Laugardalslaug og á braut tvö. Var bara búin að synda uþb 100m þegar sú braut fylltist að krökkum sem greinilega voru að fara að æfa svo ég færði mig snarlega yfir á braut 1, eftir það gat ég bara synt á bakinu aðra hverja ferð en ég synti 400m í það heila. Sat svo í tíu mínútur í 12°C (of heitum) kalda pottinum og ca 15 mínútur í sjópottinum áður en ég fór upp úr. Þvoði mér um hárið og skrapp svo aldrei þessu vant í Hagkaup í Skeifunni. Kom heim um hálfsjö leytið og fékk mér hressingu áður en ég pakkaði niður og lagði af stað austur. Var komin á Hellu um níu. Helga systir hringdi úr Hvolsvelli um klst síðar. Þá var ég farin að horfa á þátt og sagðist sækja þau um ellefu. Pabbi lánaði mér bílinn í það verkefni því þau voru með hundana með sér í matarboði hjá fólkinu sem seldi þeim Varg og lánaði þeim Uglu til uppeldis.
9.8.24
Í sjóinn í gær
Vaknaði nokkrum mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér í gærmorgun. Mætti til vinnu um hálfátta. Eftir að hafa fyllt á vatnsbrúsann og fengið mér bolla af heitu vatni fór ég niður í kortadeild, hlóð inn nýjustu skránum og útbjó skiptiblöð. Lengstan tíma tók að bíða eftir að fartölvan opnaði aðganginn minn og var ég niðri í tæpan hálftíma. Restina af vinnudeginum var ég í innleggjum og í yfirlestri í blálokin. Vinnudagurinn minn varði í akkúrat átta tíma. Var með sjósundsdótið meðferðis en ætlaði að vera skynsöm og láta skoða bílinn fyrst. Kom við í Frumherja við Grenásveg 7 því þangað hef ég farið undanfarin ár. Nær hefði líklega verið að fara á stöðina við Klettagarða. Klukkan var um fjögur og hálftími í lokun en því miður þá voru veikindi svo þótt ég kæmist inn á stöðin við Grensás og hitti einn mann að máli, þá var eiginlega búið að loka. Lét skoða bílinn síðast þann 8. ágúst í fyrra. Bílnúmerið endar á átta svo þetta er skoðunarmánuðurinn. Hef hann og tvo til svo það er nægur tími. Samt væri gott að ljúka þessu af. Hringdi og spjallaði við Ellu vinkonu þegar ég var á leiðinni í Nauthólsvík. Var komin ofan í sjóinn rúmlega hálffimm og svamlaði um í tæpar tuttugu mínútur. Eftir 10 mín í gufu, kalda sturtu og næstum tuttugu mínútur í pottinum fór ég upp úr. Sá á símanum að Helga systir hafði verið að reyna að ná í mig og hringdi til baka. Þau Ingvi verða á Hellu um helgina en eru boðin í mat í Hvolsvöll í kvöld. Pabbi er búinn að kaupa löngu sem ég á að matreiða á morgun. Fer líklega samt austur strax í kvöld. Frá Nauthólsvík lá leiðin í Krónuna við Fiskislóð svo ég var ekki komin heim fyrr en um hálfsjö leytið.
8.8.24
Draugalegt þokuloft í gærmorgun
Það var svolítið sérstakt að keyra til vinnu í gærmorgun því það var þokkalega þétt þoka og umhverfið hálf draugalegt þannig. Annars var framleiðsludagur. Kortasumarliðinn fór niður að hlaða inn skrám og fylla út skiptiblöð og ég útbjó framleiðslublöðu, fyllti út talningablöð og prentaði öll gögn út áður en ég fór niður. Framleiðsluvélin var með smá mótþróaþrjóskuröskun í upphafi og þurfti að taka hana einu sinni niður áður en hún komst af stað. Eftir það gekk allt eins og í sögu. Vorum næstum búnar með dagskammtinn þegar boð komu um að það væri fundur í morgunkaffinu um 9:40. Á fundinum var verið að fara yfir alls konar tölur varðandi vinnuna okkar allra. Framkvæmdastjórinn var mjög ánægður með hvað gengi vel á öllum sviðum. Hann langar þó að fá að sjá hversu mikil tími fer í kortaframleiðsluna þessa fáu mánuði sem eftir eru af henni svo hann bað um að við myndum skrá tímana okkar á það sama og við skráðum þá á þegar kortadeildin var staðsett í seðlabankanum, alltsvo þegar við værum að vinna í kortunum. Eftir fundinn fórum við niður aftur, kláruðum daginn og afganginn af endurnýjuninni sem kom stuttu fyrir sl mánaðamót. Sendum upp tólf fulla póstbakka um tólf leytið, ellefu af þeim tengdir endurnýjuninni. Vorum búnar að ganga frá kortadeildinni niðri en eftir mat kláruðum við frágang og fylgiskjöl, skráðum tímana og settum upp nýtt "tímatrakk" áður en við fórum í næsta verkefni. Mínum verkefnum var ekki lokið fyrr en um hálffimm leytið. Þá var komin sól og blíða úti. Var bæði með sund og sjósundsdót meðferðis. Ákvað að skella mér í sundið þar sem ég var viss um að það væri krökkt af fólki í Nauthólsvíkinni. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni yfir. Hann var nýlega kominn heim úr smá ferðalagi um Rangárvelli með Bjarna Böðvarssyni frá Þinghól sem sótti hann og fékk hann til að fara með sér um þessar slóðir. Það var líka kraðak í sundlauginni sjálfri og kaldi potturinn ívið of heitur eða meira en 14°C. Sleppti því að synda en lét mig hafa það að sitja 2x10 mínútur í "kalda" pottinum, 10 mínútur í gufu og 10 mínútur í sjópottinum. Var komin heim um hálfsjö leytið.
7.8.24
Vikan uþb hálfnuð
Eitthvað var svefninn ekki alveg hundrað prósent í fyrrinótt, fannst ég ekki útsofin þegar ég fór á fætur upp úr klukkan sex. Ég var engu að síður tilbúin í daginn. Morgunrútínan var svipuð. Var mætt í vinnu um hálfátta. Nóg var af verkefnum og ég var að alveg til klukkan korter í fjögur. Fór þó auðvitað í kaffi og matarpásur. Tvær úr kortunum voru í fríi og sumarliðinn sem þekkir inn á það dæmi er enn lasin eftir slæma covid-pest. Ég fór því bæði niður að hlaða inn skrám og gera skiptablöð sem og útbúa framleiðslublöð og gera bókhaldið. Fékk að fara úr vinnu áður en allt var alveg búið því þar sem það var frídagur á mánudaginn hafði ég fært osteostrong tímann til um einn dag. Átti tíma tíu mínútur yfir fjögur í gær. Var mætt aðeins fyrr en það og átti von á því að þurfa kannski að bíða. En ég komst strax að, bætti mig á tveimur tækjum af þremur og jafnaði árangur á einu. Var ekki svo langt undir því besta á fjórða tækinu. Eftir jafnvægisæfingar á eftir og slökun fékk ég mér vatnsglas áður en ég kvaddi og fór beint í sund. Synti reyndar ekkert, fannst of margt á öllum brautum en ég fór tvisvar fimm mínútur í þann kalda og 15 mínútur í gufu og einnig sjópott.
6.8.24
Vinnuvika í styttra lagi framundan
Fór á fætur um hálfátta í gærmorgun. Pabbi var löngu kominn á fætur og hafði lokað dyrunum inn á þvottahúsgang og inn í stofu. Hann hafði kveikt á sjónvarpinu um sex leytið og fylgst með beinum útsendingum. Ég settist inn í stofu með bók og prjóna. Fljótlega rétti pabbi mér fjarstýringuna og fór að sýsla ýmislegt annað. Um hádegið bauð hann upp á saltfisk með kartöflum og smjöri. Ég lagði fyrsta kapal dagsins eftir mat, 10, 20, 30, og hann gekk strax upp. Um hálf fimm leytið tók ég mig saman og kvaddi pabba. Umferðin var þónokkur í báðar áttir en gekk vel. Ákvað samt að beygja upp Villingaholtsafleggjarann og keyra þá leiðina í gegnum Stokkseyri og fara Þrengslin. Var komin heim upp úr sex. Fékk Odd til að koma út til að hjálpa mér inn með ferðatöskuna. Báðir bræður voru heima.
5.8.24
Góður bíltúr með pabba í gær
Klukkan var að verða hálfátta þegar ég fór á fætur í gærmorgun. Pabbi var þá þegar kominn á fætur. Morguninn var þokkalega rólegur; beinar útsendingar, prjón, lestur, æfingar og netvafr. Um hádegisbilið spurði pabbi hvenær ég hefði hugsað mér að fara. Ég var ekki alveg búin að hugsa það og spurði á móti, í gríni, hvort hann væri orðinn þreyttur á mér. Ekki var það nú meinið heldur var hann að spá í hvort ég kæmi með honum í smá bíltúr eftir hádegið. Auðvitað var ég til í bíltúr. Lögðum af stað rétt fyrir tvö. Ókum næstum upp að Keldum en beygðum upp til vinstri rétt áður, veg sem merktur er Syðri Fjallabaksleið. Ókum alla leið upp að leyfum af eyðibýlinu Rauðnefsstöðum sem fór í eyði eftir Heklugosið 1947. Í bakaleiðinni komum við niður hjá Tumastöðum í Fljótshlíðinni. Þessi bíltúr og smá stopp við Rauðnefsstaði tók rétt rúma tvo tíma.
4.8.24
Rólegheit
Vaknaði fyrir klukkan sex. Þurfti og fór á pisseríið en fannst of snemmt að fara strax á fætur. Las í smá stund en vissi svo næst af mér um níu leytið. Pabbi var auðvitað löngu kominn á fætur þegar ég kom fram um hálftíu. Hann var að horfa á beina útsendingu frá Frakklandi. Fórum svo í smá kaplakepnni og vöfruðum á netinu. Eftir hádegisfréttir skruppum við í búðina. Þegar við komum til baka kveikti pabbi á grillinu en ég setti upp sæta kartöflu og útbjó smá sallat. Vorum að borða um tvö leytið.
Ein af bókunum af safninu er meðferðis hún er númer tvö í röðinni eftir Camillu Lackberg og Henrik Fexeus um samstarf lögreglu og sjáanda; Gátan. Vel yfir fimmhundruð blaðsíður og ég er bara komin á blaðsíðu tvöhundruðogeitthvað. Hinar þrjár bækurnar eru svipað þykkar svo ég spyr mig; Hvenær ætla ég að læra að sníða mér stakk eftir vexti? Ég þarf að hafa mig alla við að klára þessar fjórar á 30-60 dögum því ég er með fleira lesefni á kantinum fyrir utan annað dútl.
3.8.24
Verslunarmannahelgi
Eftir vinnu á fimmtudaginn ákvað ég að skreppa aðeins í sund enda með sunddótið meðferðis. Það var búið að rigna mikið um daginn og um hádegisbilið kom þvílíkt úrhelli í þónokkurn tíma að það dimmdi yfir. En þegar ég kom í laugina rúmlega þrjú fór að sjást í bláan himin og sólina. Synti því í uþb hálftíma, flestar ferðir á bakinu, fór tvisvar sinnum fimm mínútur í kalda, 15 mínútur í gufu og næstum annað eins í magnesíum pottinn. Var komin ofan í þann pott rétt fyrir fjögur og á slaginu fjögur var sturtað úr heilli fötu af magnesíumflögum yfir okkur. Þvoði mér um hárið á leiðinni upp úr þar sem ég var að fara út úr bænum í nokkra daga. Hringdi í pabba þegar ég var á leiðinni heim og sagðist eiga eftir að pakka og fá mér eitthvað áður en ég drifi mig af stað. Hann var í miðju kafi að steikja pönnukökur. Ég var komin austur um átta leytið og frétti þá að Helga systir væri á leiðinni. Þau hjónin höfðu lagt af stað að norða um fimm leytið svo ég var farin að sofa þegar þau mættu á svæðið. Rumskaði aðeins þegar þau komu með tvo hunda af þremur um eitt leytið. Hefði þurft að fara og tæma blöðruna en ég sofnaði aftur og vaknaði ekki fyrr en um sjö leytið. Þá var pabbi farinn í sund og enginn annar kominn á fætur. Korter yfir tíu lögðum við mæðgin af stað í jarðaförina, Ingvi varð eftir til að passa upp á hundana. Vorum komin að Keldum tæpum hálftíma fyrir athöfn. Sátum út í bíl og fylgdumst með á fm 107,1. Athöfnin var mjög falleg og minningarorðin alveg í anda frænku minnar. Öðlingarnir og Gísli Stefánsson sáu um kór og einsöng, frændi minn Guðjón Halldór Óskarsson var organisti og frændi minn sr. Kristján Arason var sálusorgarinn. Margt var um manninn og eftir athöfn í kirkju og úti í garði var öllum boðið í íþróttahúsið á Hellu. Hitti ótal marga en hafði ekki tök á því að knúsa alla. Vorum komin í Hólavanginn upp úr klukkan tvö. Bríet frænka var komin og hún bað um að fá far með foreldrum sínum á Selfoss en þau voru að fara í bústað með vinkonu og verða þar næstu daga. Systir mín í fríi fram yfir næstu helgi og mágur minn að vinna í bænum í næstu viku. Við pabbi höfðum það bara gott. Fylgdumst eitthvað með beinum útsendingum, vöfruðum á netinu, lögðum kapla og ég var líka að lesa. Hafði bleikju og sætar kartöflur í kvöldmatinn, horfði á eina mynd í gærkvöldi og fór óvenju seint (á eftir pabba) í háttinn eða stuttu fyrir miðnætti.
2.8.24
Árný Oddbjörg Oddsdóttir, f 6. jan 1928 d 13. júlí 2024
Í dag fylgi ég föðursystur minni síðasta spölinn og þakka fyrir samfylgdina. Það eru ótal skrefin upp að Helluvaði í gegnum tíðina og margar, margar minningarnar bæði gamlar og nýrri, allar góðar. Erfitt að gera upp á milli hverjar á að toga fram og festa á blað og verður líklega ekki gert. Þessi rólega, hlýja og blátt áfram frænka mín sem nú hefur fengið hvíldina. Lúmst stríðin og gott að spjalla við hana. Ekkert svo mörg ár síðan hún lagði prjónana á hilluna. Ræktaði garðinn sinn í öllum skilningi og var mjög stolt af fólkinu sínu. Mátti líka alveg vera það, sá fjársjóður er aldrei ofmetinn. Takk fyrir allt og allt!
1.8.24
Bóksafn og hopp í sjónum
Í gærmorgun var ég mætt í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. Það var framleiðsludagur og ég var komin niður og búin að kveikja á vélinni korter fyrir átta. Að hlaða inn skrám og útbúa skiptiblöð gekk vandræðalaust fyrir sig. Sjálf vélin var með smá mótþróaþrjóskuröskun í byrjun en þegar hún komst af stað gekk allt ljómandi vel. Vorum búnar með daglega framleiðslu um kaffi leytið. Eftir kaffi byrjuðum við á nýjustu endurnýjuninni. Framleiddum alls níu skrár af ellefu en skildum tvær stærstu skrárnar eftir. Slökktum á framleiðsluvélinni um tvö en vorum hálftíma lengur niðri að plokka gula miða úr nýlegri plastsendingu. Var að vinna til klukkan rúmlega hálffjögur. Ætlaði að skila fjórum bókum á Kringlusafnið áður en ég færi í Nauthólsvík. Sumarlokun var og er á safninu til 19. ágúst n.k. Ég gerði mér því ferð á Sólheimasafnið. Tók fjórar bækur að láni. Það var pínu freistandi að fara svo bara heim en ég var með sjósunddótið meðferðis og ákvað að drífa mig í Nauthólsvík. Sé svo sannarlega ekki eftir því. Fór reyndar aðeins einu sinni út í sjóinn í uþb tíu mínútur og var aðallega að hoppa um í öldunum. Var næstu tíu mínútur í gufunni og sat svo í heita pottinum í tuttugu mínútur áður en ég fór upp úr og heim.