Varð vör við það þegar mágur minn fór með hundana út að pissa og sækja bílinn úr hleðslu um sex leytið í gærmorgun. Ég fór þó ekki á fætur fyrr en á áttunda tímanum. Mágur minn hafði lagt sig aftur en kom fram þegar hann varð var við umgang. Ég átti keaskyr með kaffi og vanillu handa honum í ísskápnum og svo hellti ég upp á kaffi hér heima í fyrsta sinn í rúma fimm mánuði ef ekki hálft ár. Kaffið var eingöngu ætlað mági mínum. Oddur kom fram upp úr klukkan átta. Fljótlega eftir það kvaddi Ingvi en skyldi ferfætlingana eftir í pössun hjá okkur. Vargur var ekki sáttur við að vera skilinn eftir en róaðist þó eftir ákveðinn tíma. Um níu leytið vöktum við Davíð Stein til að taka við hundapössuninni á meðan Oddur skutlaðist með mig í sjúkraþjálfun. Ég var mætt upp á 7C tíu mínútum fyrir tímann en sjúkraþjálfinn setti með beinustu leið í bjúgdæluna. Var í henni í hátt í tuttugu mínútur og svo tæpar fimm mínútur í öðru tæki áður en ég settist niður með sjúkraþjálfanum. Mælingarnar komu þokkalega vel út. Hún vill samt sjá mig aftur í næstu viku. Kom heim um hálfellefu. Davíð Steinn hafði lagt sig í stofusófanum en dreif sig í sturtu og skrapp svo aðeins með Oddi í pissuferð með hundana. Svo var bíleigandinn rokinn í burtu til að hjálpa frænku sinni með skólaverkefni. Ég skildi Odd eftir einan með hundana um hálfeitt leytið og dreif mig í sund. Synti 400m þar af 200m á bakinu. Hitti á kalda potts vinkonu mína í fyrstu tveimur ferðunum af fjórum en þá var hún búin með sína rútínu. Kom við í Fiskbúð Fúsa eftir sundið. Klukkutíma eftir að ég kom heim aftur ákvað ég að drífa mig í smá göngutúr. Þá var mágur minn akkúrat að koma til baka. Hann ákvað að drífa sig með mér og hreyfa hundana í leiðinni. Göngutúrinn vatt aðeins upp á sig og taldi amk um 5000 skref. Komum til baka rétt fyrir sex og stuttu síðar bauð ég mági mínum upp á soðna ýsu og spínat.
28.3.24
27.3.24
Eitt og og annað
Var komin á fætur stuttu áður en N1 sonurinn fór af stað í sína vinnu. Um hálftíu var ég komin í Laugardalslaug. Synti 400 metra á tuttugu mínútum. Kalda potts vinkona mín kom rétt áður en ég var búin að synda og við hittumst í kalda pottinum í okkar fyrstu ferð. Alls fórum við fimm sinnum þrjár mínútur í kalda pottinn. Kom heim um tólf leytið. Um hálftvö skrapp ég í 3,5km göngu sem tók mig þrjú korter. Stoppaði heima í um klukkustund eftir gönguna áður en ég skrapp í heimsókn í blokkaríbúð í Eskihlíðinni. Þar býr yngsta mágkona mömmu heitinnar. Þá góðu konu hitti ég reglulega í sundi en þetta var fyrsta heimsóknin til hennar síðan hún flutti í Eskihlíðina stuttu fyrir Covid-tíma. Þegar ég kom heim aftur horfði ég á nokkra þætti og svo landsleikinn. Mágur minn og ferfætlingarnir Vargur og Ugla komu á ellefta tímanum og hreiðruðu um sig í stofunni eftir að Ingvi var búinn að taka dótið inn úr bílnum, fá Odd með sér (og hundunum) til að setja bílinn í hleðslu, labba til baka með hundana og gefa þeim að borða.
26.3.24
Heimsókn í S15
N1 sonurinn var nýlega farinn í vinnuna þegar ég fór á fætur í gærmorgun upp úr klukkan sjö. Um níu leytið tók ég sunddótið með mér út í bíl en leiðin lá fyrst í smá innlit á vinnustaðinn minn. Þar beið mín stærðarinnar páskaegg frá starfsmannafélaginu. Í kaffistofunni var boðið m.a. upp á vínber, osta, ávexti og melónu. Stoppaði aðeins fram yfir kaffitímann og spjallaði við vinnufélagana áður en ég dreif mig yfir í Laugardalslaugina. Þar var ég búin að synda 200m þegar ég hitti einn frænda minn og konu hans. Spjallaði smá stund við þau áður en ég synti 300m í viðbót. Síðustu 50m synti ég skriðsund. Hitti svo kalda potts vinkonu mína í kalda pottinum, báðar í okkar fyrstu ferð. Fórum fjórar ferðir saman í kalda. Kom heim upp úr klukkan tólf. Tveimur tímum seinna skruppum við Oddur í Krónuna við Fiskislóð.
25.3.24
Dymbilvika
Fór á fætur um sjö leytið. Upp úr klukkan hálftíu var ég mætt í sundið á sama tíma og kalda potts vinkona mín. Við fórum fjórum sinnum saman í þann kalda, einu sinni í gufu og einu sinni í sjópottinn þar sem við hittum eina systur hennar og yngstu mágkonu mömmu. Þær ferðir sem vinkonan fór í heitasta pottinn fór ég í nuddpottin og þann næst heitasta. Svo tók ég auka ferð í gufuna. Var komin heim um hálftólf leytið og fór ekkert aftur út.
24.3.24
Pálmasunnudagur
Vaknaði um hálftvö leytið í fyrrinótt og varð andavaka eitthvað fram eftir nóttu. Veit ekki hvenær ég sofnaði loksins en klukkan var nýorðin átta þegar ég vaknaði í gærmorgun. Var komin í sund upp úr klukkan hálfníu. Rútínan tók tæpan einn og hálfan tíma. Kom heim um tíu leytið og var svo mætt til esperanto vinkonu minnar um ellefu. Okkar rútína tók líka um einn og hálfan tíma. Um miðjan dag skrapp ég í tæplega 4km göngum um Öskjuhlíð. Bræðurnir voru farnir til pabba síns þegar ég kom heim úr þeirri 50 mínútna göngu.
23.3.24
Upptalningar
Ætlaði mér að vera í fyrra fallinu í sundið í gærmorgun en ég var ekki farin af stað um tíu þegar önnur úr kortadeildinni hringdi í mig. Hún var aðallega að láta mig vita að ég ætti páskaegg frá starfmannafélaginu. Spjölluðum í amk korter og svo leið góð stund áður en ég dreif mig loksins af stað í sundið. Tók með mér sjampó og höfuðhandklæði. Synti 500 metra, þar af helminginn á bakinu. Fór 2x3 mínútur í kalda, gerði æfingar í nuddpottinum, gufunni og sjópottinum. Kom heim um hálftvö leytið. Seinni partinn skrapp ég svo í hálftíma göngu.
22.3.24
Föstudagur
Það verður að viðurkennast að ég verð stundum dagavillt þessi misserin. Og þegar ég sá að það var kaffi í boði í afgreiðslurýminu í Laugardalslaug í gærmorgun velti ég því fyrir mér hvort það væri kominn föstudagur. Ég hugsaði líka um hvort ég ætti að falla í freistni því kaffimálin voru svo pen. En ég hvarf þó fljótt frá þeirri hugmynd. Er alls ekki búin að ákveða að ég sé alveg hætt að drekka kaffi (og hvítvín). Ákvörðunin er frekar sú að ég er í pásu og hvenær sú pása verður yfirstaðin hef ég ekki alveg ákveðið. Annars synti ég 500m í gær og gerði æfingar í 42°C pottinum, gufunni og sjópottinum. Var í sundi milli tíu og hálftólf. Kom við í Fiskbúð Fúsa á heimleiðinni. Um hálftvö skrapp ég í rúmlega 2km göngutúr. Það var hressandi, smá rigning og ekkert svo mikil ferð á logninu.
21.3.24
Sund, bókasafn og göngutúr
Heyrði í N1 syninum fara út úr húsi um sjö. Ég fór á fætur skömmu síðar. Klukkan var farin að ganga ellefu þegar ég dreif mig loksins í sund. Svipuð rútína og daginn áður nema ég byrjaði á að skella mér í kalda og fór ekki á braut fyrr en eftir 2x3mínútur í kalda og nokkrar mínútur í nuddpottinum. Eftir 500m skellti ég mér þriðju ferðina í þann kalda fór ég í gufu í tíu mínútur, kalda sturtu og sjópottinn í aðrar tíu mínútur og tók svo eina dýfu í kalda pottinum áður en ég fór upp úr. Kom við í bókasafninu og skilaði skammtímalánsbókunum. Tók þrjár bækur með mér heim þrátt fyrir að vera með þrjár heima. Ein af þeim sem kom með mér heim var ljóðabók sem fékk nýlega Tómasar Guðmundssonar verðlaunin; Örverpi eftir Birnu Stefánsdóttur. Las hana strax í gær. Um fimm leytið skrapp ég í stuttan göngutúr.
20.3.24
Áfram gakk
Ég var komin á fætur upp úr klukkan sjö í gærmorgun. Tveimur tímum síðar skutlaðist Oddur með mig upp í Fossvog þar sem ég átti þriðja tímann hjá sjúkraþjálfa klukkan hálftíu. Lærði fleiri æfingatrix, mælingar voru betri en í síðustu viku en sjúkraþjálfinn mælti ekki með að ég færi að vinna fyrr en eftir páska. Finn það svo sem alveg sjálf að ég er ekki alveg tilbúinn þótt allt stefni í rétta átt. Fékk nýjan tíma á miðvikudaginn í næstu viku. Á leiðinni heim komum við við í Öskjuhlíðinni til að jafna loftþrýstinginn á dekkjunum. Um hálfeitt leytið dreif ég mig svo í sund. Synti 500m, fór 2x3 mínútur í kalda, eina ferð í nuddpott, gufu og sjópott. Í vatninu og gufunni ganga æfingarnar mun betur, bjúgurinn hverfur og stirðleikinn minnkar. Finn og veit að ég er að styrkjast en þarf enn um sinn að finna þessa línu milli þess að komast að þolmörkum og aðeins lengra en fara ekki yfir strikið. Það verður sjálfsagt svoleiðis næstu vikurnar. Best að halda áfram dag í senn, ekki að hugsa um það sem liðið er og vera bara í núinu.
19.3.24
Snjór
Fór í sund um tíu í gærmorgun. Hitti einn frænda minn og konu hans þegar ég var á leiðinni í kalda pottinn eftir 400m sund. Spjallaði aðeins við þau. Hitti svo frænda minn aftur í sjópottinum þegar ég var búin að fara tvær ferðir í kalda, eina í nudd pottinn og eina í gufuna. Var komin heim um tólf. Einhverra hluta vegna varð svo ekkert af göngutúr í gær en ég prjónaði smávegis.
18.3.24
Enn lífsmark í nýjasta gosinu
Vaknaði frekar snemma í gærmorgun. Var komin á fætur um hálfátta. Rétt fyrir tíu var ég komin í sund, alveg á sama tíma og kalda potts vinkona mín. Þegar við vorum í okkar þriðju ferð í kalda mætti ein systir hennar og miðjunafna mín á svæðið. Hittum hana í sjópottinum þegar við vorum búnar að fara í gufu. Þær tvær og ein til sungu afmælissönginn fyrir mig. Eftir næstu ferð í kalda pottinn fórum við í steina pottinn í smá stund. Svo kvaddi systirin en við Hrafnhildur fórum fimmtu ferðina í þann kalda og aðra ferð í gufuna. Hún kvaddi svo aðeins á undan mér. Ég var komin heim um tólf. Hringdi í pabba um hálftvö. Helga systir hringdi í mig um þrjú leytið og skömmu síðar skrapp ég í smá göngutúr. Um sex leytið eldaði ég mér einfaldan bleikjurétt. Annars vorum við Oddur að horfa á alls konar þætti. Davíð Steinn kom heim úr vinnu rétt fyrir átta. Hann á frívakt í dag og á morgun og næstu helgi.
17.3.24
Afmælisdagurinn sjálfur
Það eru 20.454 dagar síðan ég fæddist eða 56 ár. En aðeins um gærdaginn. Var komin snemma á fætur eða upp úr klukkan sex. Vafraði um á netinu, prjónaði smá og hitti á N1 soninn áður en hann fór í vinnuna. Var mætt í sund um hálfníu leytið. Synti 400m, fór þrisvar í kalda pottinn, einu sinni í nuddpottinn, einu sinni í sjópottinn og endaði í gufunni. Var komin heim aftur um tíu. Klukkutíma síðar skrapp ég til esperanto vinkonu minnar. Stoppaði hjá henni til klukkan að verða tvö því fljótlega eftir að við vorum búnar að lesa tilbúna tungumálið kom dóttir hennar í heimsókn með dætur sínar tvær. Ég var að hitta yngri stelpuna í fyrsta sinn. Hún var frekar hissa að sjá mig en ég fékk samt bros áður en ég fór. Hinar þrjár mæðgurnar sungu fyrir mig afmælissönginn degi fyrirfram, sú yngsta af þeim varð 4 ára í endaðan október. Og svo fór að gjósa enn og aftur á Sundhnjúkagýga svæðinu í gærkvöldi.
16.3.24
Afmælishelgi
Var komin á fætur um sex leytið í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðherberginu og glas af sítrónuvatni settist ég inn í stofu með fartölvuna í fanginu. N1 sonurinn kom fram um sjö og dreif sig skömmu síðar í vinnuna. Eftir netvafrið og smá blogg slökkti ég á tölvunni og færði mig yfir í stólinn. Tók fram prjónana og prjónaði sennilega í uþb 500 lykkjur. Þá var loksins komið að fyrstu æfingalotu dagsins. Það er reyndar alveg ágætis æfing að prjóna. Klukkan var að verða ellefu þegar ég dreif mig loksins í sund. Synti 500 metra, þar af um 150m á bakinu. Fór aðeins tvisvar í kalda pottinn, tvisvar í sjópottinn, einu sinni í gufu og einu sinni í 42°C pottinn. Gerði æfingar í gufunni og heitu pottunum. Þvoði mér um hárið eftir sundið og kom svo við með bílinn á smurstöð á leiðinni heim. Hann var síðast smurður í janúarlok í fyrra. Fór ekkert aftur út eftir að ég kom heim. Var að horfa á alls konar þætti með Oddi en tók fram prjónana öðru hvoru.
15.3.24
Morgunhæna/fiskur
Rumskaði um fimm leytið í gærmorgun en tókst að sofna aftur eftir að hafa tappað af blöðrunni. Var komin á fætur upp úr klukkan átta. Byrjaði á því að vafra um á netinu. Tók svo fram prjónana í stutta stund áður en ég gerði fyrstu æfingalotu dagsins. Um ellefu var ég mætt í sund. Synti 400m fór tvisvar í kalda pottinn, einu sinni í nudd pottinn, einu sinni í gufu og endaði í smá stund í sjópottinum. Gerði æfingar bæði í nudd pottinum og í gufunni. Þegar höndin er búin að mýkjast upp get ég komið þumlinum aðeins lengra en að rótum löngutangar svo þetta er allt í rétta átt. Bjúgur og bólgur eru smá vandamál, bæði fyrst á morgnana og eins þegar fer að líða á daginn. Það kemur reyndar alltaf far eftir úlnliðshlífina sem ég nota aðeins þegar ég er á ferðinni utandyra (nema að sjálfsögðu í sundinu). Kom heim um hálfeitt og skömmu síðar kom Oddur fram. Rúmum klukkutíma síðar fórum við mæðgin vestur í bæ, á Fiskislóð. Keyptum þvott á bílinn áður en við fórum í Krónuna að versla. Oddur sá um að setja í pokana og bera þá fyrir mig. Ég gekk svo sjálf frá vörunum þegar heim var komið.
14.3.24
Sund og göngutúr
Í fyrrinótt svaf ég í einum dúr í rúma átta tíma, eiginlega tæpa níu. Var sofnuð fyrir ellefu á þriðjudagskvöldið og vissi næst af mér klukkan hálfátta í gærmorgun. Sú hægri er alltaf stirð og bólgin fyrst á morgnana. Byrjaði á netvafri og tölvustund fyrstu þrjú korterin eftir að ég var komin á fætur. Prjónaði svo tvær umferðir, meira en hundrað lykkjur, áður en ég gerði fyrstu æfingalotu dagsins. Var eitthvað að gæla við það að skreppa aðeins í sjóinn og bjó mér því til hafragraut um hálfellefu. Skipti svo um skoðun og var komin í Laugardalinn um eitt. Synti 400m á tuttugu mínútum og var í minni annarri ferð í kalda pottinum þegar kalda potts vinkona mín mætti óvænt á svæðið. Saman fórum við þrjár ferðir í kalda, sátum góða stund á stólum og sóluðum okkur og fórum auk þess eina ferð í sjópottinn. Ég fór ekki með henni í heitasta pottinn en fór í staðinn í nuddpottinn, 42°C pottinn og gufuna. Gerði æfingar bæði í heita pottinum og í gufunni. Klukkan var byrjuð að ganga fjögur þegar ég fór upp úr. Kom við í Fiskbúð Fúsa og Heilsuhúsinu í Kringlunni á leiðinni heim. Um sex leytið skrapp ég svo í smá göngutúr og var langt komin með hringinn sem ég fór þegar ég hitti á hjón sem ég þekki skammt frá húsi blindra félagsins. Þau voru að koma af fundi þaðan. Spjölluðum í amk tíu mínútur og sjálfvirka kerfið í símanum tók saman gönguferðina þar en skráði ekki þann stutta spöl sem eftir var heim. En skrefin skráðust engu að síður og þau fóru yfir 5000 eftir gærdaginn.
13.3.24
Sjúkraþjálfun og sund
Aftur var ég vöknuð einum of snemma og komin á fætur fyrir klukkan hálfsjö. Hitti því aðeins á N1 soninn áður en hann fór í sína vinnu. Oddur kom fram um hálfníu. Hann skutlaði mér upp í Fossvog og fór svo að sinna erindum á meðan ég hitti sjúkraþjálfan um hálftíu. Þurfti ekkert að borga þar sem ég er komin á núllið þennan mánuðinn. Sumar mælingar stóðu í stað og það þótt ég væri búin að vera að gera mínar æfingar í viku. Ég var svolítið bólgin og var sett aftur í bjúgdæluna. Lærði nýjar æfingar, mælingarnar voru betri í lok tímans og ég fékk nýjan tíma í næstu viku. Fór beinustu leið heim eftir tímann og hvíldi mig í hátt í tvo tíma. Um hálftvö leytið lagði ég af stað í sund. Þarf enn að nota vinstri til að setja bílinn í gang. Í sundi synti ég 400m, fór 3x 2-3 mínútur í kalda, 2x í sjópottinn, einu sinni í nuddpottinn og einu sinni í gufuna. Rútínan tók yfir klukkustund og ég var komin heim aftur fyrir klukkan fjögur. Er annars byrjuð að lesa hina skammtímaláns bókina; Hin útvalda eftir Snæbjörn Arngrímsson.
12.3.24
Sundferð og tveir göngutúrar
Vaknaði eiginlega alltof snemma í gærmorgun. Fór þó ekki á fætur fyrr en um hálfsjö leytið. Var búin að gera eina umferð af æfingum þegar ég fór í sund á ellefta tímanum. Synti 300m fór þrisvar í kalda pottinn, einu sinni í nudd pottinn, einu sinni í sjópottinn og gerði aðra lotu af æfingum í gufunni. Kom heim um tólf. Kláraði bókina sem ég skrifaði um í gær og fór í stutta göngu um hálftvö, rétt um kílómetra. Um fimm leytið fór ég í aðeins lengri göngu sem var þó ekki nema 2,2km.
11.3.24
Prófaði bílinn alein og sjálf
Um eitt leytið á föstudaginn var skrapp ég á bílnum í heimsókn til esperanto vinkonu minnar. Þurfti að nota vinstri til að gangsetja bílinn en að öðru leyti gekk allt vel. Við vinkonurnar fengum okkur te og eftir smá spjall ákváðum við að fara í stuttan göngutúr áður en við kíktum í esperanto bækurnar. Heimsóknin varði því í rúma tvo tíma. Kom við í Fiskbúð Fúsa á heimleiðinni.
Á laugardaginn hafði ég hugsað mér að skreppa aftur í sund en ekkert varð af því. Í staðinn fór ég í fjörutíu mínútna göngutúr fyrir hádegi en var svo að lesa, horfa á bikarúrslitaleiki og þætti eftir hádegi og fram á kvöld. Í gærmorgun var ég búin að mæla mér mót við kaldapotts vinkonu mína um tíu. Var eitthvað að spá í að mæta aðeins fyrr og synda smá en hvarf svo frá þeirri hugmynd. Aftur þurfti ég að gangsetja bílinn með vinstri. Var mætt í í Laugardalinn rétt fyrir tíu. Hitti sjósunds vinkonu mína í sturtunum á leiðinni út. Hún fór beint að synda en ég í þann kalda. Kalda potts vinkona mín var búin með tvær ferðir. Saman náðum við tveimur ferðum en ég fór ekki með henni í heitasta pottinn. Eftir aðra ferðina mína í kalda pottinn fór ég í sjópottinn þar sem ég hitti yngstu mágkonu mömmu. Synti ekkert í gær en eftir þriðju ferðina í kalda fór ég í gufu áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið.
Tvær af fimm bókum af safninu eru með fjórtán daga skilafresti. Önnur af þeim er Þögli fuglinn eftir Mohlin & Nyström. Nokkuð yfir 500 blaðsíður. Er langt komin með lesturinn á henni enda mjög spennandi og aldrei þessu vant er ég aðeins að lesa eina bók í einu.
8.3.24
Aftur í sund í gær
Var komin á fætur um sjö leytið í gærmorgun. Á níunda tímanum var hringt í mig frá 7C og mér tilkynnt að sjúkraþjálfunartíminn félli niður vegna veikinda. Ég er skráð í tíma nk þriðjudag og þá reikna ég með að fara í amk einn tíma í viðbót. Upp úr klukkan hálfníu bankaði ég á herbergisdyrnar hjá Oddi og sagði honum að skutlið á LHS félli niður. Hann kom svo fram upp úr hádeginu. Um hálffjögur leytið skutlaðist hann með mér á bókasafnið. Skilaði öllum sjö bókunum og þurfti svo að endurnýja skírteinið áður en ég tók mér fimm bækur í staðinn. Næst lá leiðin í Laugardalinn þar sem sonurinn skildi mig eftir um hálffimm. Var búin að synda 300m (mjög rólega), fara tvisvar sinnum í kalda, einu sinni í 42°C og var í sjópottinum þegar kalda potts vinkona mín mætti. Saman náðum við einni ferð í kalda og smá stund í gufunni áður en ég kvaddi. Oddur var kominn aftur að sækja mig þegar ég kom út upp úr klukkan hálfsex.
6.3.24
Kaldi potturinn í Laugardalslaug heimsóttur í dag
Var vöknuð um fimm leytið í morgun enda var ég sofnuð fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Fór á fætur upp úr klukkan sex. N1 sonurinn fór í vinnu um sjö leytið. Hinn sonurinn kom á fætur um átta og hann skutlaði mér upp á LHS í Fossvogi þar sem ég átti tíma í röntgen á G3 fyrir klukkan níu og viðtalstíma hjá lækni korter yfir níu. Myndirnar komu þokkalega vel út. Fékk samt mánaða framlengingu á veikindavottorði en ég má byrja að vinna innan þess tíma ef ég treysti mér til. Oddur beið í bílnum út á plani þessi þrjú korter sem ég var í fyrrgreindum erindum. Hann skutlaði mér á vinnustaðinn minn og skildi mig eftir þar því ég ætlaði að stoppa eitthvað og var þar að auki með sunddótið meðferðis. Um ellefu leytið labbaði ég yfir í Laugardalslaug. Synti 200 metra bringusund, mjög rólega, fór tvisvar sinnum mínútu í 7°C kalda pottinn, einu sinni nokkrar mínútur í gufuna og nokkrar mínútur í sjópottinn. Var komin upp úr og út úr skiptiklefanum rúmlega tólf. Þá hringdi ég í Odd sem sótti mig skömmu síðar.
5.3.24
Bjúgsuguvél
Einhvern veginn leið gærdagurinn án þess að ég færi út í labbigöngutúr. Var komin í rúmið um tíu leytið og sofnaði fljótlega. Vaknaði þar af leiðandi alltof snemma en tókst að kúra til klukkan að ganga sjö. Fór í sturtu og var búin að vera á fótum í hátt í tvo tíma þegar Oddur Smári kom fram. Um hálfníu leytið skutlaði hann mér á LHS í Fossvogi þar sem ég fór í minn allra fyrsta sjúkraþjálfunartíma á 7C milli 8:50 og 9:25. M.a. setti ég löskuðu, stirðu og bólgnu hendina í svo kallaða bjúgsuguvél. Sjúkraþjálfarinn bókaði mig svo í tvo tíma í biðbót en eftir þriðja tímann, sem verður í næstu viku, verður metið hvort ég þurfi fleiri tíma. Oddur beið eftir mér í gjaldfrjálsustæði. Skruppum á AO við Sprengisand og í Krónuna í Skeifunni áður en við fórum heim. Fyrirmælin frá sjúkraþjálfaranum voru þau að hvíla hendina í tvo tíma. Bjó mér til hafragraut í hádeginu og skrapp svo í hálftíma göngutúr um tvö leytið.
4.3.24
Mánudagur
Er alveg hætt að nota spelkuna enda var hún farin að meiða mig. Sef alveg róleg þótt úlnliðurinn sé "nakinn" en ég er alltaf stirð og bólgin þegar ég vakna á morgnana. Það var svo sem líka þegar ég var með spelkuna. Annars tókst mér að fitja upp á það sem kannski verður að sjali og prjóna örfáar umferðir í gær. Fór í góða göngutúra bæði í gær og á laugardaginn. Er meðvitað farin að nota þá hægri mun meira. Get td tannburstað mig með henni en skipti fljótlega yfir í að nota þá vinstri. Þumall á ólaskaðri hendi á að komast að rótum litlafingurs. Ég kemst að rótum löngutangar þeas ef ég er ekki of bólgin og stirð. Það verður fróðlegt að fara í sjúkraþjálfun í fyrramálið og þá er ég einnig spennt að vita hvað kemur út úr röntgenmyndatökunni á miðvikudagsmorguninn.
2.3.24
Klipping
Fór ekki í göngutúr gærdagsins fyrr en um þrjú. Þá kom ég við í Fiskbúð Fúsa á leiðinni í klippingu hjá Nonna. Í fiskbúðinni keypti ég harðfisk, bæði óbarna ýsu og lúðu og 600gr af ýsuflökum. Var svo komin til Nonna í Quest - Hair, Beer & Whisky Saloon tuttugu mínútum á undan áætlun. Komst að tíu mínútum síðar og bað fyrst um hárþvott. Svo urðum við Nonni sammála um að taka amk 8-10cm af hárinu. Það er samt hægt að taka það upp í snúð. Viðurkenni vel að það var freistandi að láta snoða mig til að létta mér aðeins lífið svona hálf handónýt. En á endanum varð sú hugsun ofan á að það að setja teygju í hárið er ágætis þjálfun. Ég á líka frekar að vera dugleg að nota hendina heldur en að hlífa henni of mikið. Festi næsta klippitíma fyrsta föstudaginn í október og hringdi svo í Odd og bað hann um að sækja mig.
1.3.24
Nýr mánuður
Í göngutúr gærdagsins kom ég við í apótekinu í Suðurveri og fjárfesti í úlnliðshlíf og kæli/hita geli/sokk. Var með spelkuna á göngunni en tók hana af mér um leið og ég kom heim aftur. Tók tvær æfingalotur fyrir hádegi með rúmlega tveggja tíma millibili. Stuttu fyrir klukkan tvö skutlaði Oddur mér vestur í bæ í minn fyrsta esperantohitting á þessu ári. Lásum tvær og hálfa blaðsíðu, spjölluðum, drukkum te og hún sýndi mér nokkrar myndir af barnabörnunum. Klukkan var byrjuð að ganga fimm þegar ég hringdi aftur í Odd til að sækja mig. Það kom svo í ljós í gærkvöldi að ég er ekki alveg orðin fær um að prjóna strax. Rétt tókst að fitja upp á nokkrum lykkjum en það var enn snúnara að reyna að prjóna. Í staðinn setti ég á mig kælisokkinn utan um úlnliðinn eftir að hafa haft gelpokana í frysti. Og svo var ég dugleg að nudda örið inn á milli.
29.2.24
Hlaupársdagur
Er ekki búin að taka fram prjónana og fitja upp á einhverju (sennilega enn einni tuskunni til að byrja með) en ég var dugleg að nudda örið í gær. Eftir göngutúr gærdagsins tók ég af mér spelkuna. Setti hana ekki upp aftur fyrr en ég var á leið í háttinn. Þegar til kom reif ég spelkuna aftur af. Líklega er best að fara að fjárfesta í einhverju betra til að vinna á bólgunni þar sem spelkan er farin að pirra mig og meiða. Spelkan er líka einungis til að styðja við og hlífa úlnliðnum inn á milli. Er enn meira meðvituð um að fara að nota hendina meira og sinnti léttari pappírsvinnunni með þeirri hægri á salerninu í morgun, í fyrsta skipti eftir fallið. Tókst líka að setja upp hárið í teygju áður en ég fór í sturtu í morgun. Það er pínu freistandi að láta klippa mig stutt næst þegar ég fer í klippingu en á móti kemur þá er það ágætis æfing að hemja hárið með teygju. Þurfti þrjár tilraunir áður en hárið var komið upp fyrir háls.
28.2.24
Smá námskeið
Oddur Smári kom á fætur um hálftíu í morgun að minni ósk. Þremur korterum síðar skutlaði hann mér upp í Fossvog. Átti að mæta á 7C. Fann bara A, B og E uppi á sjöundu hæð en ég var samt komin á réttan stað. Um hálfellefu átti að byrja fræðsla um úlnliðsbrot og æfingar til að ná sér. Það var beðið með að byrja í ca tíu mínútur áður en sjúkraþjálfinn vísaði okkur sex af sjö skráðum inn í "kennslustofu". Sjöundu manneskjunni var fylgt inn skömmu síðar. Öll vorum við með úlnliðsbrot, flest á hægri en tveir á vinstri. Þrjú af okkur höfðum verið toguð þar af ein þrítoguð. Hún og hin höfðu sloppið við aðgerð en við vorum tvö sem höfðum þurft að fara í aðgerð. Fengum að sjá tvær stærðir af plötum sem settar eru í úlnlið í aðgerðartilfellum. Ég komst að því að ég hefði alveg mátt taka fram prjónana fyrir nokkrum dögum. Prjónaskapur er góð iðjuþjálfun. Það var líka sagt að það tæki í kringum þrjá mánuði fyrir beinin að gróa en svo veltur það á þjálfuninni hversu fljótur maður nær upp sem mest af fyrri færni. Og ég þarf víst að vera dugleg að nudda örið. Sonurinn sótti mig rúmum klukkutíma síðar. Fékk mér skyr með krækiberjum og horfði á einn og hálfan þátt áður en ég fór út í 40 mínútna göngutúr.
27.2.24
Alls konar áskoranir
Sum mörk eru ekki mjög skýr og þá er vandinn að feta milliveginn. Á fyrstu vikum úlnliðsbrotsins sem og eftir aðgerðina var markmiðið að nota þá hægri sem allra minnst. Alveg frá upphafi var samt tekið fram að gott væri að hreyfa fingurnar reglulega. Eftir að spelkan var sett á voru fyrirmælin um að taka hana af þrisvar til fjórum sinnum á dag og gera þjálfunaræfingar. Óhætt væri að fara að sársaukamörkum. Mér fannst þetta ganga mjög vel fyrstu dagana. En nú er spelkan stundum farin að meiða mig svo ég er farin að taka hana oftar af og í lengri tíma. Þrátt fyrir nuddsárin eftir spelkuna finnst mér ennþá öryggi í að hafa hana á. Passa mig þá betur. Mörkin milli þess að gera það sem þarf til að þjálfa upp færni og styrk en fara þó ekki yfir strikið, því þá er líklegt að verði bakslag, eru samt alls ekki ljós þótt ég geti yfirleitt miðað við sársaukamörk.
24.2.24
Síðasta helgin í þessum mánuði
Sú hægri var frekar stirð og bólgin í gær. Tók engu að síður fjórar æfingalotur yfir daginn en hafði þær í léttari kantinum. Upp úr hádeginu skrapp ég í góðan göngutúr með viðkomu í apóteki í Suðurveri þar sem ég leysti út hinn skammtinn af lyfseðlinum sem sendur var í gáttina daginn sem aðgerðin var. Undanfarin kvöld hef ég tekið eina til tvær parkódín áður en ég fer að sofa og ég er ekki frá því að ég hvílist og sofi aðeins betur. Annars var ég að lesa og horfa á þætti í gær.
23.2.24
Verslunar og bókasafnsferð í gær
Eldri systurdóttir mín varð 24 ára í gær. Hringdi í hana um hádegisbilið. Um eitt leytið kom Oddur fram tilbúinn í að skutlast með mér á safnið og í Krónuna. Skilaði öllum sex bókunum og tók sjö stykki í staðinn. Ein af þeim er um fimmtu systurina, Tiggy, 640 blaðsíður. Er að sjálfsögðu byrjuð að lesa hana. Beint af safninu fórum við í Krónuna við Fiskislóð þar sem ég verslaði fyrir tæpar tuttuguogfjögurþúsund krónur. Ekkert varð af neinum labbitúr í gær, spenningurinn yfir lesefninu varð yfirsterkari.
22.2.24
Eymsli og bólgur
Var mjög bólgin og stirð í kringum hægri úlnlið og þumal í gær. Gat ekki beygt fingur eins mikið og ég var farin að geta. Þetta var svona langt fram eftir degi. Hugsanlega hef ég eitthvað ofgert mér. En ég tók samt fjórar æfingalotur yfir daginn. Ég tók líka bólgueyðandi. Labbaði líka í Fiskbúð Fúsa eftir harðfiski, ýsu og bleikju. Var nýlega komin til baka þegar Oddur kom fram og spurði hvort ég ætlaði að þvo á morgun. Hann var semsagt að panta þvottadag svo ég skellti sjálf í vél í gær, tók þvott frá Davíð Steini af snúrunni og hengdi sjálf upp þegar vélin var búin að gera sitt.
21.2.24
Það snjóar
Það var smá áskorun að setja teygju í hárið til að taka það saman upp á höfðinu áður en ég fór í sturtu í gærmorgun. Frá fallinu hafði ég gert mér að góðu að þvo mér með þvottapoka. Sturtuferðin var minna mál heldur en ég hélt. Upp úr hádeginu rölti ég á Hárhornið og fékk hárþvott og fasta fléttu hjá samstarfskonu Lilju. Lilja var með tvö verkefni í gangi en ég komst strax í stólinn hjá samstarfskonunni. Næst skrapp ég í heimsókn til Lilju vinkonu og stoppaði hjá henni í góðan klukkutíma áður en ég rölti aftur heim. Bræðurnir höfðu skroppið saman til ömmu sinnar og þeir voru ekki komnir heim þegar ég fór í háttinn upp úr klukkan hálftíu.
20.2.24
Hárþvottur, föst flétta og heimsókn
Ekkert varð úr bókasafnsferð í gær og bíður sú ferð betri tíma. Fór í einn hálftíma göngutúr og tók fjórar æfingalotur. Annars var ég bara aðhámhorfa á hina ýmsu þætti.
Spelkan er aðeins farin að meiða mig á köflum. Úlniður og þumall eru þó nokkuð bólgina á morgnana og þegar ég tek spelkuna af fyrir æfingar er ég nokkuð dofin á neðsta hlutanum á lófasvæðinu. Prófaði að taka spelkuna af þegar ég fór að sofa í gærkvöldi. Var sennilega eitthvað smeik við þann gjörning því ég svaf frekar órólega og þegar ég rumskaði um þrjú leytið setti ég spelkuna á mig aftur. Samt finnst mér allt vera í rétta átt, gerist bara á hraða snigilsins.
19.2.24
Bókasafnsferð á döfinni í dag
Var komin á fætur um átta leytið í gærmorgun. Settist fljótlega inn í stofu með fartölvuna í fanginu en var mjög meðvituð að vera ekki of lengi. Stuttu fyrir klukkan níu gerði ég fyrstu æfingalotuna af fjórum yfir daginn. Höndin var stirð og bólgin en lét þokkalega vel að stjórn. Um klukkutíma seinna skrapp ég í hálftíma göngutúr. Fór aftur í göngutúr um tvö leytið og var þá búin að taka tvær æfingalotur í viðbót. Þegar ég tók fjórðu og síðustu æfingalotu dagsins um fjögur leytið var höndin alls ekki eins bólgin og fyrr um daginn. Þumalfingur er "óþekkastur" og liðleikinn í úlnliðnum er langt því frá að vera upp á sitt besta. En engu að síður finnst mér þetta vera í rétta átt og er ákveðin í að vera þolinmóð og dugleg í senn. Í gærkvöldi kláraði ég svo að lesa síðustu bókina af safninu.
18.2.24
Allt í rétta átt
Í gær voru sex vikur frá því ég brotnaði. Vissi reyndar ekki fyrr en á sunnudagskvöldinu að ég væri brotin eftir að hafa farið í fyrstu röntgen myndatökuna G3 fyrir ofan bráðamóttökuna. Ef ekki hefði þurft að toga brotið til eða togunin virkað hefði ég losnað við gipsið á mánudaginn var. En ég ætla svo sem ekkert að vera að velta mér upp úr ef og hefði heldur vinna með það sem er.
Á föstudaginn fór ég í tvo göngutúra, annan um morguninn nákvæmlega 20 mínútna langan og hinn eftir hádegi sem varði í tæpan hálftíma. Samtals voru þetta um 3,5 km. Ég æfði úlnlið og fingur fjórum sinnum 15 skipti yfir daginn. Í gær tók ég líka 4 æfingalotur en fór í einn uþb 40 mínútna göngutúr sem var 3 km langur. Annars var ég að horfa á boltann, þætti eða lesa. N1 sonurinn hringdi um hádegið og bað mig um að senda Odd með verkja og bólgulyf til sín í vinnuna. Lánaði Oddi bílinn bæði í þessa sendiferð og svo áfram í heimsókn til pabba hans og fjölskyldu.
16.2.24
Þrjár vikur frá aðgerð
Sleppti göngutúrnum í gær. Tók þrjár æfingalotur yfir daginn og þrammaði upp og niður stigana í kringum 15 sinnum. Setti handklæði, tuskur, brækur og þvottapoka í þvottavélina og gat svo hengt upp alveg sjálf. Í gær var liðinn hálfur mánuður síðan Oddur fór með mér á bókasafnið. Er að lesa síðustu bókina af sex; Dularmögn eftir Dean Koontz. Búin með 226 bls. af tæplega 600. Er einnig búin að lesa jólabækurnar svo aldrei þessu vant er ég aðeins að lesa þessa einu bók en ekki þrjár til fjórar.
15.2.24
Febrúar uþb hálfnaður
Í gær var bæði öskudagur og dagur elskenda. Nágrannakonan í kjallaranum kom fram með þá tillögu að kalla daginn öskutínus og tileinka þeim sem sjá um að hirða fyrir okkur sorpið. Mér fannst það ágætis hugmynd. Æskuvinkona mín átti afmæli og Víkingur Heiðar hélt upp á fertugsafmælið sitt með sannkallaðri tónlistaveislu þegar hann spilaði Goldberg-tilbrigðin í Hörpu í beinni útsendingu á RÚV í gærkvöldi. Annars var ég þokkalega dugleg í öllum æfingum, fjórar æfingalotur, þrammaði stigana allt í allt rúmlega tuttugu sinnum og fór þar að auki í hálftímagöngutúr.
14.2.24
Mið vika
Ég er aðeins byrjuð að pikka með hægri og í gær prófaði ég að nota tölvumúsina í fyrsta sinn síðan 6. janúar sl. Tók þrjár æfingalotur yfir daginn, sumar upp í 15 skipti, þrammaði stigana nokkrum sinnum og fór út í stuttan göngutúr í gær. Labbaði 1,2 km hring á tæpum 18 mínútum svo ekki hef ég farið mjög hratt yfir. Þarf að yfirstíga þessa hræðslu við að detta, halda mér í formi og þjálfa upp færni í að nota hægri hendina. Verð þó að vera skynsöm. Það eru rétt að verða liðnar þrjár vikur frá aðgerðinni og ég held alls ekki að ég sé alveg gróin. Þetta er allt spurning um gera nóg en ofgera sér samt ekki. Láta þó reyna á mörkin í einhverjum tilvikum.
13.2.24
Smá leiðangur í gær
Klukkan var langt gengin í átta þegar ég fór á fætur í gærmorgun. Tók fyrstu æfingalotuna af þremur um hálfníu. Milli níu og tíu komst ég að því að N1 sonurinn var lasinn heima. Hann kom aðeins fram um það leyti sem hann tilkynnti veikindi sín á heilsuveru. Um hálfellefu fór ég með óhreinan þvott af mér í stórum hagkaupspoka niður í þvottahús. Var að miða við að þvottavélin yrði búin um eitt leytið. Um ellefu gerði ég úlnliðs- axla- og fingraæfingarnar aftur. Oddur kom fram skömmu síðar eingöngu til að skreppa á salernið. Ég átti við hann orð sem varð til þess að hann kom aftur fram um hálfeitt. Hann hjálpaði mér að henga upp í þvottahúsinu og svo keyrði hann mig á Hárhornið og beið eftir mér út í bíl á meðan ég fékk hárþvott og fasta fléttu. Komst strax að hjá Lilju og það var ekki liðinn hálftími þegar ég kom aftur út í bíl. Næst lá leiðin í Fiskbúð Fúsa þar sem ég keypti harðfisk, bleikjuflök og 500 gr af ýsu. Áður en við fórum heim aftur komum við við í Bónus í Skeifunni en þar er hægt að fá áburðinn 5KIND. Komum heim um hálfþrjú og klukkutíma síðar tók ég þriðju og síðustu æfingalotu dagsins. Þori ekki að byrja of skart en veit þó að ég verð að vera samviskusöm og dugleg til að ná upp fyrri færni. Þetta er líka spurning um gróandann, byrja að þjálfa en ofgera sér ekki fyrsta kastið.
12.2.24
Æfingar
Nóttina eftir að ég fékk spelkuna svaf ég mjög vel og í heila átta tíma. Var vöknuð rétt fyrir sjö og komin á fætur hálftíma síðar. Þetta var laugardagur og dagurinn sem ég byrjaði að æfa úlnlið og fingur. Bæklingurinn sýnir átta mismunandi æfingar sem mælt er með að gera 3-4 sinnum á dag. 7 af æfingunum á að endurtaka 10-15 sinnum en þá áttundu 2-3 og halda í 5-10 sekúndur. Ég ákvað að byrjar rólega fyrstu dagana og bæði í gær og fyrradag gerði ég þessar 7 þrisvar sinnum 10 skipti. Tvær æfingalotur fyrir hádegi og eina um miðjan dag. Ég má ekki lyfta neinu þungu fyrsta kastið en er það er samt mælt með að nota höndina við daglegar athafnir á sem eðlilegastan hátt. Sumar athafnir eru þó flóknari á meðan ég þarf að vera sem mest í spelkunni. Svo þrammaði ég stigana upp og niður nokkrum sinnum. En annars var ég að lesa eða horfa á þætti og fótbolta.
10.2.24
Í spelku
Svaf mjög órólega í fyrrinótt. Var bæði spennt og kvíðin fyrir endurkomunni á G3 í Fossvogi. Fór á fætur upp úr klukkan sjö. Oddur kom fram um átta leytið. Hann skutlaði mér á staðinn stuttu fyrir níu og ákvað að leggja bílnum og bíða þar eftir mér. Ég þurfti ekki að bíða lengi eftir að verða kölluð inn. Á móti mér tók hjúkrunarfræðingurinn Linda sem reyndist mjög tengd þremur fyrrum vinnufélögum sem eru öll komin á áttræðisaldurinn, tveir bræður (annar maðurinn hennar) og kona hins (svilkona). Linda tók af mér umbúðirnar sem voru settar á eftir aðgerðina, skoðaði og hreinsaði sárið. Það þurfti að klippa einhverja sauma en svo setti hún nokkra litla plástra yfir áður en hún útbjó spelku með frönskum rennilás og afhenti mér bækling með leiðbeiningum um úlnliðs og fingræaæfingar. Hún svaraði öllum mínum spurningum en í heildina tók þessi heimsókn ekki nema rúman hálftíma. Á eftir skruppum við Oddur í Hagkaup í Skeifunni en þar fæ ég samskonar frækex og í Heilsuhúsinu. Um kvöldið eldað Davíð Steinn lax handa mér. Hvorugur bræðrana vildi borða af þeim rétti en kokkurinn smakkaði samt aðeins til þess að kanna árangur eldamennskunnar. Ég á þá bara nóg í 2-3 skammta í viðbót sem ég get bjargað mér sjálf um að fá mér af.
8.2.24
Eldgos enn á ný
Aftur svaf ég af mér gosbyrjun við Grindavík. Rumskaði að vísu um þrjú í nótt og eftir að hafa skroppið á salernið greip ég í bók og las til klukkan fjögur. Var örugglega sofnuð aftur um hálffimm. Heyrði þó í N1 syninum fara í vinnu um sjö en þá snéri ég mér á hina hliðina og vissi næst af mér fyrir rétt rúmri klukkustund. Núna ætla ég að horfa á aukafréttatímann sem var klukkan níu og búa mig undir þann sem verður í hádeginu. Pabba dreymdi, fyrir nokkru, sömu rolluna skíta á nokkrum stöðum á þessu svæði. Hann taldi ekki hversu oft en það var oftar en þrisvar sinnum svo það er líklega von á fleiri svona atburðum á þessu svæði.
6.2.24
Lestrarhestur
Nú er ég búin að lesa tvær af sex bókunum af safninu, langt komin með þá þriðju og byrjuð á fjórðu bókinni. Það er ekki liðin vika síðan ég sótti þessar bækur á safnið með góðri aðstoð Odds. Svo er komið bókamerki við fyrsta kaflann í síðustu jólabókinni (Arnaldur). Gærdagurinn var annars tekinn frekar snemma. Fór ekkert út en labbaði stigana nokkrum sinnum. Strákarnir voru báðir heima allan daginn. Þeir stefna að því að fara fyrir mig í fiskbúðina í dag.
4.2.24
Kuldakafli
Enn er ég að passa upp á að nota eingöngu vinstri hendina en þó liðka öxl, olnboga og fingur á hægri. Þarf enn að taka verkjalyf áður en ég fer í háttinn en sleppi þeim annars. Hef ekki farið út aftur en setti í þvottavél í gær, sem Oddur sá um að hengja upp úr, og labbaði upp og niður stigana nokkrum sinnum. Annars var ég að lesa eða horfa á fótbolta og þætti.
2.2.24
Nýr mánuður
Janúar hefur kvatt og stysti mánuður ársins, sem þó er einum degi lengri þetta árið, er farinn að rúlla af stað. Í dag er vika síðan aðgerðin var gerð. Í gær fór ég út í fyrsta sinn eftir þá aðgerð. Fékk Odd til að skutla mér á Hárhornið upp úr hádeginu. Urðum samt fyrst að ræsa Davíð Stein út til að ýta bílnum út úr stæðinu. Oddur beið út í bíl á meðan ég fékk hárþvott og fasta fléttu. Síðan skruppum við á bókasafnið. Öllum sex bókunum var skilað og jafn margar teknar í staðinn. Ein af þeim er fjórða bókin um sjö systur, um perlusysturina Cece. Áður en við fórum heim skrapp ég í Söstrene Grene og keypti handsápur.
31.1.24
Inniveður
Er ennþá að passa upp á hægri höndina og pikka bara með vinstri. Fimmtidagsmorguninn 25. sl. fékk ég tvær hringingar. Báðar tengdust aðgerðinni sem ég var að bíða eftir að verða kölluð í. Rétt fyrir átta morguninn eftir skutlaði Oddur mér í Fossvoginn. Tekið var á móti mér á A5. Skipti um fatnað, fékk verja lyf, var spurð út úr og svo sagt að pissa milli hálfníu og níu. Fór á salernið korter fyrir níu og þegar ég kom fram aftur var rúmið "mitt" farið en það beið eftir mér manneskja sem klæddi mig í slopp og fylgdi mér svo á skurðstofuna. Hún tók svo sloppinn og skildi mig eftir í umsjón alls konar aðgerðatendra aðila. Ég var látin leggjast með hendurnar út frá líkamanum, spurð meira, æðaleggur settur í vinsra handarbak, þrepin útskýrð, fékk súrefni, deyfi og svefnlyf. Næst man ég eftir mér uppi á vöknun á 6. hæð rúmum klukkutíma síðar. Þá var ég komin í mónitor. Var spurð hvort ég væri verkjuð. Ég fann fyrir þreytu fyrst og fremst en skömmu síðar fann ég fyrir verk og fékk lyf í gegnum brunninn. Þarna var ég í um þrjár klukkustundir. Um eitt leytið var búið að taka mig úr mónitornum og það kom maður sem "keyrði" mig aftur niður á A5. Þar tók hjúkrunarfræðingurinn Edda aftur á móti mér, vökvi settur upp og ég spurð hvort ég vildi samloku eða jógurt. Meðan ég var að hugsa mig um þáði ég orkudrykk. Um hálfþrjú hafði ég loksins valið en sem betur fer var úrvalið búið og ég fékk ristað brauð með osti í staðinn og einnig vatn. Man ekki alveg hvort annar læknirinn sem gerði aðgerðina talaði við mig áður eða eftir að ég var loksins búin að pissa. En ég man amk að klukkan var að verða hálffjögur þegar ég fór loksins á klósettið. Losnaði við brunninn um fjögur og klæddi mig hjálparlaust. Var samt amk 10-15 mínútur að því ég fór mjög rólega að. Davíð Steinn sótti mig upp úr klukkan hálffimm og við komum við í apóteki á leiðinni heim. Hægri hendin var öll dofin og ég var með fyrirmæli um að ég ætti að taka inn verkjalyf um átta leytið. Hringdi í pabba og sat svo fyrir framan imbann langt fram eftir kvöldi.
23.1.24
Smá bakslag
Það kom aðeins á mig við fréttirnar eftir fimmtu röntgenmyndatökuna í gær. Gliðnun það mikil að nú er ég að bíða eftir að verða kölluð inn í aðgerð þar sem plata verður sett inn í úlnliðinn til að styðja við og hjálpa þessu að gróa rétt og betur saman. Sá sonurinn sem sótti mig eftir þessar fréttir fékk svo að skutla mér á Hárhornið til Lilju sem þvoði mér um hárið og fléttaði fasta fléttu. Strákarnir okkar náðu svo sínum bestu úrslitum á EM í handbolta er þeir unnu Króata í fyrsta sinn á stórmóti, 35:30.
21.1.24
Bara örstutt
Það er kominn sunnudagur, tvær vikur síðan ég datt (16. dagurinn). Þótt strákunum okkar hafi ekki gengið vel á EM er búin að vera mikil handboltaveisla og uþb vika eftir af þeirri veislu. Hef einnig horft á alls konar þætti sem og lesið. Það kom í ljós að ein bókin af safninu, þriðja bókin um Fimmtudagsmorðklúbbinn, er með 14 daga skilafresti. Ég er hálfnuð með hana en einnig að lesa tvær aðrar bækur. Aðra af þeim bókum á ég sjálf, nýjasta bókin eftir Lilju Sigurðardóttur. Tíminn líður nokkuð hratt. Á tíma á G3 upp úr hádegi á morgun og á þá vonandi bara eftir að þurfa hafa gipsið í 3 vikur í viðbót.
18.1.24
Fer líklega ekki út í dag
Undanfarna viku hef ég skroppið út daglega í 10-30 mínútna göngutúra. Síðast liðinn föstudag skráðust reyndar tveir "sprettir" á mig þegar ég skrapp á Hárhornið og fékk hárþvott og fasta flettu hjá Lilju sem er systir Ingva mágs míns. Fór út fyrir hádegi í gær, 2,5 km á 30 mínútum. Var að spá í að fara aftur eftir hádegi en EM náði mér alveg áður. Synir mínir skruppu saman í Sorpu, Krónuna við Fiskislóð og Fiskbúð Fúsa á mínum bíl milli þrjú og hálffimm. Ég eldaði sjálf ofan í mig í gær, ýsu með rósakáli og gulrót.
16.1.24
Áfram gakk, varlega þó
Vaknaði frekar snemma í gærmorgun. Oddur skutlaði mér að bráðamóttökunni í Fossvogi. Ég fór upp á 3G og skráði mig inn. Fór fyrst í myndatökuröðina. Ferlið gekk ágætlega, smá bið en ekki svo löng. Staðfest var að seinni togunin hafði gert sitt gagn en þarf þó að koma aftur eftir viku. Gipsið var aðeins lagað og ég fékk vottorð um að ég væri óvinnufær. Oddur sótti mig um tíu leytið og hafði bókasafnspokann með sér. Skiluðum fjórum bókum af fimm og ég kom með fimm með mér heim.
14.1.24
Sögulegur dagur
10.1.24
Starfsafmæli
í dag eru 24 ár síðan ég hóf störf hjá RB. Smá fúlt að geta ekki verið í vinnu en þýðir lítið að fást um það.
8.1.24
Brotin
Davíð Steinn kom heim úr vinnu um átta í gærkvöldi. Hann gerði smá test á mér varðandi löskuðu höndina og sagði strax að best að láta líta á þetta. Hann skutlaði mér á læknavaktina. Eftir klukkutíma bið komst ég að. Læknirinn var fljótur að ákveða að ég þyrfti að fara á bráðamóttökuna til að láta taka röntgen. Hringdi því í ákveðna soninn sem kom fljótlega og skutlaði mér. Var komin þangað um hálftíu. Þegar ég kom heim aftur um eitt leytið var ég búin að fara í 3 myndatökur, fá verkjalyf, tvær deyfingar, tvær toganir og tvö gips. Seinni togunin og gipsið var gert til þess að ég sleppi mögulega við frekari inngrip. Það mun koma í ljós við endurkomu eftir viku.
7.1.24
Úr leik í bili
Eftir pomms á bossan og hægri hendina, nánast úr kyrrstöðu, á planinu hjá pabba um miðjan dag í gær er ég handlama. Mjög líklega bara verulega slæm tognun en ég nota amk ekki hægri höndina mjög mikið næstu daga. Pabbi skutlaði mér heim eftir hádegi í dag og Oddur fór með honum austur til að sækja bílinn minn.
6.1.24
Rífandi stemming í sjónum seinni partinn í gær
Vaknaði um sex, í gærmorgun, eftir samfelldan uþb átta tíma svefn. Morgunrútínan var hefðbundin og eins og oftast áður var ég mætt í vinnu um hálfátta. Korteri síðar var ég byrjuð á innleggjunum. Fyrirliðinn og fyrrum fyrirliði voru í kortaframleiðslu til hádegis en komu svo í innleggin eftir hádegi. Um hálfþrjú fór ég í að bunka upp og hreinsa gullið og sú sem er að sjá um hraðbankamálin kom inn í það verkefni svo við náðum að klára á klukkutíma. Stimplaði mig út um klukkan korter í fjögur og fór beinustu leið í Nauthólsvík. Var fimm mínútur í 0,2°C sjónum og tæpan hálftíma í heita pottinum áður en ég fór upp út og heim. Hringdi í Odd þegar ég var komin í stæði í götunni. Hann var þá þegar búinn að fara og skipta inniskónum sem ég gaf honum í jólagjöf í tveimur númerum stærra svo hann passaði betur í þá. Pabbi og Davíð Steinn pössuðu báðir í sína skó. Áður en ég fór inn úr bílnum hringdi ég í Lilju vinkonu og spjallaði við hana í dágóða stund.
5.1.24
Er strax að koma helgi?
Tvisvar sinnum þurfti ég á salernið í fyrrinótt. Fyrst um hálftvö og svo aftur tveimur tímum seinna. Svefninn lét eitthvað standa á sér á tíma bili milli ferða og fyrsta limran varð til á þessu bili. Það var samt einhver góð ró yfir mér enda hafði ég ekki neinar áhyggjur af þessu tíma bili. Var komin á fætur um sex og mætt í vinnu um hálfátta. Byrjuð á innleggjum fyrir klukkan átta. Öll kortadeildin vann að innleggjum í gær. Fyrirliðin skrapp þó aðeins niður í kortadeild til að hlaða inn nýjustu tölum og fyrrum fyrirliði undirbjó framleiðsluskjöl. En nú er aðeins framleitt tvisvar í viku, á miðvikudögum og föstudögum. Nóg var að gera í innleggjum alveg til klukkan að ganga þrjú. Þá tóku við önnur verkefni næsta klukkutímann eða svo. Var komin í sund rétt rúmlega fjögur og það hittist svo vel á að kalda potts vinkona mín hafði mætti skömmu áður svo við hittumst í kalda pottinum í okkar fyrstu ferð. Ég fór beinustu leið í þann kalda á meðan hún hafði náð að skreppa aðeins í heitasta pottinn fyrst. Í næstu ferð í kalda pottinn mætti ein systir hennar. Hittum hana í 43°C pottinum. Eftir þriðju ferðina í þann kalda fórum við í gufu og svo í sjópottinn og svo loka ferðina í þann kalda. Eftir það skildu leiðir. Þær systur fóru í steina pottinn en ég á braut sjö og synti 400m á tæpum tuttugu mínútum. Var komin heim um sex.
4.1.24
Ákveðni
Vaknaði aftur rétt upp úr klukkan sex. Hafði tíma í netvafr áður en ég dreif mig í vinnuna. Var byrjuð að vinna innlegg fyrir klukkan átta. Nóg var að gera alveg til klukkan að verða fjögur. Rúmum klukkutíma áður en ég stimplaði mig út, svona um hálfþrjú leytið, gerði ég smá tilraun. Fékk mér hálfan banana. Um það leyti sem ég var að fara úr vinnu byrjaði að ólga í maganum á mér. Ákvað því að það væri skynsamlegast að fara beinustu leið heim. Heima framlengdi ég skilafresti á einni bók sem annars hefði þurft að skila í vikulokin. Er reyndar búin að lesa þá bók en ég taldi rétt að bíða með bókasafnsferð þar til ég væri amk búin að lesa fleiri bækur af safninu svo ég myndi nú ekki falla í freistni. Póstaði líka á húsfélagsgrúppu okkar húsfélags og lét vita af stöðunni á sjóðnum og hvernig hann skiptist. Var komin í rúmið um hálftíu og kláraði að lesa eina af þremur ólesnum bókum af safninu á um klukkutíma.
3.1.24
Þrír dagar að verða liðnir af 2024
Vaknaði rétt upp úr klukkan sex í gærmorgun, alveg hissa á að komin væri morgun. Mætti í vinnuna um hálfátta. Þessa vikuna er ég bara í innleggjum og ég var byrjuð fyrir klukkan átta. Það var nóg að gera og entist innlagnar verkefnið alveg til klukkan hálffjögur. Þá fórum við tvær í að byrja að hreinsa gullið á meðan stóra peningavélin var enn að japla á innleggjunum. Við náðum að klára að hreinsa yfir hundraðogfjörutíu bunka og vera á undan. Það tók okkur klukkutíma. Ég fór beinustu leið í sund og hitti kalda potts vinkonu mína í minni fyrstu ferð í kalda pottinum þegar hún var að fara í sína fjórðu ferð. Tókum þrjár ferðir áður en við fórum í gufu. Enduðum svo í sjópottinum. Ég synti semsag ekki neitt í gær. Var komin heim rétt upp úr klukkan sex.
2.1.24
?
Gærdagurinn, taka tvö: Var komin á fætur um átta. Bjó mér til hafragraut á tíunda tímanum. Mætti í Nauthólsvík sjö mínútum fyrir opnum. Var komin í sjóinn sjö mínútm yfir ellefu. Fór tvisvar í -0,5°C sjóinn og gufuna inn á milli. Dýfði mér svo aðeins í lónið áður en ég fór í heita pottinn. Dvaldi ekki lengi og laumaði mér í burtu og heim þegar fólk fór að streyma að fyrir alvöru. Hringdi í pabba á leiðinni heim. Heima dundaði ég mér við ýmislegt fram eftir degi og fram á kvöld. Var komin í rúmið upp úr klukkan hálftíu.
1.1.24
Tek vel á móti nýju ári
Svaf næstum því átta tíma án þess að rumska neitt við að hlandblaðran vildi láta tæma sig. Hlandblaðran sá þá líka til þess að ég var ekkert að kúra lengi eftir að ég vaknaði. Klukkan var að verða átta og tími til að fara á fætur og huga að því að skreppa í sund. Það tók mig nú rúmlega klukkustund að koma mér af stað í sundið en ég var mætt í Laugardalslaug áður en klukkan sló hálftíu. Fór beinustu leið í kalda pottinn og þegar ég var að fara upp úr honum hitti ég konu sem ég kannast við. Hún var eiginlega á leiðinni upp úr en ákvað að staldra smá stund við til að spjalla. Fórum í næsta pott við hliðina á þeim kalda og 2x2 mínútur í kalda pottinn. Eftir aðra ferðina í 42°C pottinn kvaddi hún. Ég fór mína fjórðu ferð í kalda áður en ég fór á braut 7 og synti 500m, helminginn á bringunni og hinn helminginn á bakinu. Eftir næstu ferð í kalda pottinn fór ég í gufuna, þaðan í sjópottinn eftir kalda sturtu og svo uþb mínútu í kalda pottinn. Settist smá stund á stól úti áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Sjampóið mitt varð eftir heima en ég notaði sápuna sem boðið er upp á í laugunum. Eftir sundið skrapp ég í Hagkaup í Skeifunni. Fór aðallega þangað til þess að athuga hvort ég fyndi vikuna með völvuspánni. Ef hún kom út var blaðið amk ekki til í Hagkaup. Ákvað samt að versla mér grænmeti og smotterí fleira áður en ég fór heim. Klukkan var að verða eitt þegar ég kom heim. Hafði m.a. keypt mér einn pakka af brauði sem heitir Lífskorn og er úr korni og prófaði að fá mér eina sneið með síld sem ég keypti í Fiskbúð Fúsa sl. föstudag. Það virtist fara alveg ágætlega í magann og fylla hann það vel að ég varð ekkert svöng eða langaði að narta í neitt næstu klukkutímana. Dagurinn leið annars frekar hratt við alls konar dundur. Er samt ekkert farin að grípa í prjónana aftur og hef ekki snert þá í amk þrjár vikur eða lengur. Það hlýtur að koma að því að ég fari að velja mér næsta prjónaverkefni en ég er annars með nóg af lesefni sem ég þarf að gera skil líka. Ein bókin af safninu er með skilafrest til 4. janúar. Gæti reyndar framlengt þessum fresti til að forða mér frá því að sækja fleiri bækur heim í bili. Strákarnir fóru annars til pabba síns og fjölskyldu hans seinni part dags. Ég gufusauð mér sæta kartöflu, brokkolí, rauðkál og grænkál og setti laxabita kryddaða með sítrónupipar og cayenne pipar ofan á síðustu tíu mínúturnar. Þetta var skammtur fyrir tvo amk en þá á ég líka afgang. Stuttu áður en skaupið hófst var ég farin að finna fyrir þreytu. Ég tolldi þó fyrir framan skjáinn á meðan skaupið var en fór svo beinustu leið í háttinn. Las í ca hálftíma eða rétt á meðan mestu áramótaflugeldasprengjurnar voru. Held að ég hafi verið sofnuð um hálfeitt leytið.
31.12.23
Tími til að skella sér í sund
Ég vaknaði mjög snemma í gærmorgun, um hálf fimm leytið. Var útsofin en í stað þess að fara á fætur greip ég í bókina um Star og las næstu þrjá tímana. Fór á fætur um átta og þá átti ég bara eftir um sextíu blaðsíður af bókinni. Ég ætlaði mér svo sannarlega að skreppa út og í sund. Setti í þvottavél, sinnti morgunverkunum og "tíndi" mér svo í netvafri í meira en klukkustund. Náði svo í bókina inn í herbergi og kláraði hana. Að lestri loknum var letin orðin svo mikil að ég ákvað að skrópa í sundið. Fór að horfa á áströlsku þættina tvo sem voru sýndir á rúv í vikunni. Dagurinn leið hratt við alls konar, aðallega rólegheit. Mæli alveg með svona dögum stöku sinnum. Klukkan var farin að ganga tólf þegar ég fór í háttinn og ég las um stund í einni bók af safninu. Ætla að spara aðeins bækurnar sem ég fékk í jólagjöf en ekki of lengi samt.
30.12.23
Að halda sig við efnið.... eða ekki
Í fyrrinótt rumskaði ég um hálftvö. Var líklega of lengi að ákveða hvort ég ætti að fara og tæma blöðruna eða reyna að sofna aftur því eftir að ég ákvað loks hið fyrra var hugurinn farinn að snúast um söguna og forsöguna um Star. Stóðst ekki mátið og ákvað að grípa aðeins í bókina. Las þó ekki nema í um tuttugu mínútur áður en ég gerði aðra tilraun til að bæla mig niður. Ég hef greinilega sofnað því ég rumskaði ekki fyrr en ca fimm mínútum áður en vekjaraklukkan átti að hringja. Var mætt í vinnu um hálfátta. Rétt rúmum hálftíma seinna vorum við fyrrum fyrirliði kortadeildar komnar á fullt í daglega framleiðslu. Áður en við fórum í kaffi töldum við hluta af kortalagernum. Eftir kaffi dembdum við okkur í endurnýjunina. Kláruðum stærri fælinn sem eftir var, rúmlega fimmtánhundruð kort, rétt fyrir tólf. Eftir mat kláruðum við síðasta fælinn, tæp níuhundruð kort, áður en við framleiddum daglega skammtinn sem barst okkur á tólfta tímanum. Lukum svo við að telja kortalagerinn og ganga frá deildinni áður en við báðum um lyftu fyrir alla póstbakkana sem voru alls tuttuguogtveir. Þeir fóru upp í tvennu lagi og taskan með kortunum sem ekki voru gild heimilsföng á fór í seinni ferðinni. Ég fór sjálf upp með seinasta daglega skammtinn og gekk frá bókhaldinu. Stimplaði mig út korter fyrir fjögur. Kom við í Fiskbúð Fúsa og keypti bæði ýsu, lax, síld og tværtegundri af harðfiski áður en ég fór í Nauthólsvík og skellti mér tvisvar sinnum í -0,3°C sjóinn. Fyrri ferðin var um þrjá mínútur, fór svo beint í gufu í rúmar tíu mínútur, rúma mínútu aftur í sjóinn og var svo næstum hálftíma í heita pottinum áður en ég fór upp úr og heim.
29.12.23
Rólegheit eftir vinnutörn
Ég var mætt í vinnu um hálfátta í gærmorgun. Var áfram í bókhaldi og á móttökuendanum. Þegar tveir af þremur daglegum framleiðsluskömmtum var lokið byrjuðum við á endurnýjuninni sem var send til okkar eftir hádegi sl miðvikudag. Eftir kaffi héldum við þeirri framleiðslu áfram til hádegis. Eftir hádegi framleiddum við hádegisskammtinn en héldum svo endurnýjun áfram. Framkvæmdastjórinn gaf leyfi á að vinna aðeins fram á daginn til að gera atlögu að því að klára þessa endurnýjun fyrir áramót svo hún færi inn í reikningagerð desember mánaðar. Framleiðsla gekk alveg þokkalega. Tókum pissu og vatnspásu um tvö og aftur um fjögur. Í seinni pásunni spurði framkvæmdastjórinn hvað við ætluðum að vera lengi. Við vorum alveg á því að vera þar til allt væri búið. Honum leist nú ekkert á það. Sagði að kerfið færi á húsið sjálfvirkt klukkan sjö og lagði til að við yrðum ekki lengur en til hálfsjö. Um sex leytið var vélin aðeins farin að stríða okkur svo við ákváðum að hætta og ganga frá, þá búnar að framleiða rúmlega fjögurþúsund kort af þessum sexþúsundogþrjúhundruð. Ég stimplaði mig út tuttugu mínútur yfir sex og fór beinustu leið heim þrátt fyrir að vera með sund dótið meðferðis.
28.12.23
Hækkandi sól
Vaknaði um klukkan sex í gærmorgun á þriðja síðasta vinnudegi ársins. Hafði nógan tíma í morgunverkin og netvafrið en fór samt út úr húsi á sama tíma og N1 sonurinn þar sem ég vissi að sópa þyrfti af bílnum. Davíð Steinn hafði tekið upp vinnukonunarnar á framrúðunni fyrir mig daginn áður og hitastigið var um núllið svo það tók ekkert svo langan tíma að losa sig við snjóinn og það þurfti heldur ekki að skafa. Var mætt í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. Þessa vikuna er ég í bókhaldinu og á móttökuendanum á vélinni. Byrjaði þó á því að fara inn á kaffistofu, fylla á vatnsflöskuna og fá mér smá heitt vatn áður en ég fór að safna saman tölum. Í heildina var dagleg framleiðsla rétt um 200 kort. Vorum í innlögnum milli klukkan tíu og ellefu og svo aftur eftir hádegi. Um eitt leytið kom póstur um síðustu endurnýjun ársins og sú endurnýjun er mun stærri en marga undanfarna mánuði eða yfir sexþúsundogþrjúhundruð kort. Við höfðum þó verið sammála um það fyrrum fyrirliði og ég að halda okkur uppi í innleggjunum, þar var nóg að gera og hjálparhendur mjög vel þegnar. Stimplaði mig út úr vinnu um hálffimm og fór í sund. Synti í tæpar tuttugu mínútur, fór tvisvar í kalda pottinn, einu sinni í gufu og einu sinni í þann heitasta. Sleppti ferð í sjópottinn þar sem þar voru frekar margir á þeim tíma sem ég var í sundi. Var komin heim um klukkan sex.
27.12.23
Afslöppun
Í gærmorgun vaknaði ég ekki fyrr en um hálftíu. Mér varð fljótlega ljóst að ég myndi alls ekki nenna að drattast af stað í sund. Skrapp fram á salernið og svo beinustu leið undir sæng aftur, ekki til að sofa heldur las ég til klukkan að ganga tólf. Þá fyrst klæddi ég mig, bjó um og fór á fætur til þess eins að hafa það notalegt áfram í stofunni. Smá netvafr, meiri lestur, þátta og fótboltaáhorf fram á kvöld. Háttaði mig upp í rúm um tíu, áður en síðasti fótboltaleikur dagsins var búinn og las til klukkan hálfellefu. Er nú búin með einn þriðja af bókinni um Star.
26.12.23
Notalegheit
Ég skal alveg játa það að það tekur svolítið á að neita sér um ýmislegt sem er í banni eða pásu þessa dagana. Allra helst er það blessað kaffið sem ég hef ekki drukkið síðan 14. október. Mér er þó alveg sama þótt ég sleppi bæði súkkulaði og öðrum sætindum því oftast er það skammvinn sæla að neyta þeirra en óþægindin yfirleitt þannig að það er langbest að sleppa því að smakka eða fá sér. Ég er sem betur fer það þrjósk að ég hef nokkurn veginn staðist allar helstu freistingar, fyrir utan íssmakkið á aðfangadagskvöld. Það að ég hafi getað staðist það að fá mér kaffi er samt ofar mínum skilningi. Sennilegast er það þó vonin um að ég geti á einhverjum tímapunkti tekið það í einhverri mynd inn í daglega rútínu aftur.
Annars svaf ég alveg til klukkan að verða níu í gærmorgun þótt ég væri sofnuð fyrir miðnætti kvöldið áður. Ég var komin á fætur nokkru síðar. Pabbi kom klæddur fram á tólfta tímanum en hann hafði komið fram um sex fyrst líkt og flesta aðra daga til að fá sér eitthvað og taka niður helstu hitatölur úti og inni. Ég var eitthvað að vafra smá á netinu og leggja kapla en ég setti samt aðal kraftinn í að klára bókina um Ally og það tókst.
Synir mínir komu um hálffimm leytið. Pabbi var búinn að búa til grjónagraut sem var þó geymdur sem eftir réttur. Í sameiningu settum við upp tvær gerðir af heimalöguðum bjúgum sem sundfélagi pabba gaf honum nokkru fyrir jól. Hann gaf pabba reyndar þrjár tegundir, úr hrossi, kind og nauti. Kartöflur voru settar út í pottinn eftir tuttugu mínútna suðu. Handa mér útbjó ég sams konar rétt og kvöldið áður og svo lagaði ég uppstúf sem aðeins pabbi og Davíð Steinn gerðu góð skil með bjúgunum og kláruðu. Borðað var um sex leytið en þá var Davíð Steinn búinn að hjálpa afa sínum að ná sambandi við skannan í gegnum tölvuna. Einhver tenging hafði dottið út. Svo pabbi gat loksins skannað inn og prentað út nýtt skjal til að safna daglegum tölum á nýja árinu sem nálgast óðum. Mikið sem mig annars langaði til að smakka bjúgun sem strákarnir og pabbi sögðu að væru mjög góð. Ég varð samt þokkalega södd af mínum mat og þrátt fyrir að langa líka til að smakka grjónagrautinn þá hefði ég ekki haft pláss fyrir hann hvort sem er. Þegar við horfðum á fréttir og veður sáum við að spáin fyrir morgundaginn væri frekar leiðinleg. Bræðurnir ætluðu svo sem hvort sem er ekki að stoppa yfir nótt en þetta varð til þess að ég tók þá ákvörðun að taka mig upp í gærkvöldi og fara heim. Lögðum þó ekki í hann fyrr en klukkan var farin að ganga ellefu. Vorum í samfloti, ég oftast á undan bræðrunum, og vorum komin heim um hálftólf. Ég gekk frá farangrinum en fór svo beinustu leið í rúmið, ekki til að fara að sofa strax heldur til að lesa aðeins í bókinni um Star. Held að klukkan hafi verið að verða eitt þegar ég fór loksins að sofa.
25.12.23
Ofboðslega notalegur tími
Rumskaði um hálfsex í gærmorgun og þurfti að skreppa aðeins á salernið. Reyndi að kúra mig niður aftur en um klukkutíma síðar tók ég upp fartölvuna sem ég hafði meðferðis og "rúntaði" smá í vefheimum og setti inn færslu. Loggaði mig út um þremurkorterum seinna og tók þá fram eina bók. Las til klukkan að verða níu en þá drattaðist ég loksins á fætur. Pabbi kom ekki fram fyrr en um ellefu leytið en hann hafði fengið sér morgunmat og tekið niður hitatölur um sex leytið. Við lögðum ofur áherslu á að gera sem minnst en þó var kveikt á sjónvarpinu og einnig vafrað aðeins á netinu, kaplar lagðir og ég las líka amk 200 blaðsíður. Um fimm leytið brytjaði ég hálfa sæta kartöflu, 3 venjulegar kartöflur, 5 gulrætur og hálfan lauk og setti allt í sama gufusoðninga-pottinn. Ofan á grænmetið lagði ég smá grænkál. Eftir að suðan kom upp lækkaði ég undir og leyfði þessu að malla í tíu mínutur áður en ég setti laxaflak kryddað með hvítlaukspipar, cayennepipar og smá karrý með roðið niður á grænkálið. Þurfti ekki að hækka undir og tíu mínútum seinna var maturinn tilbúinn. Með þessu hafði ég súrkál, grænar steinlausar ólífur og fersk spínat. Pabbi fékk sér hrásallat. Vorum bæði sammála um að þetta hefði verið mjög gómsætt. Pabbi gekk frá eftir matinn og við horfðum og hlustuðum á aftansöng í sjónvarpinu áður en við tókum upp pakkana. Pabbi fékk eggjasuðutæki og konfektkassa frá Davíð Steini og Bríeti, viskíflösku frá Oddi og Inniskó, jólasokka og nýjustu útkallsbókina frá mér. Ég fékk bækur frá Bríeti og Davíð Steini (þau keyptu gjafirnar saman og hann pakkaði þeim saman inn og kvittaði fyrir þau bæði). Bækurnar eru eftir Arnald Indriðason og Jónínu Leósdóttur. Oddur gaf mér bókina Ból eftir Steinunni Sigurðardóttur, pabbi hafði lagt smá aur inn á mig skömmu fyrir jól og fjórðu bókina fékk ég frá tvíburahálfforeldrum mínum, allar þrjár bækurnar; Af bestu lyst í einni bók. Fljótlega eftir að pakkarnir höfðu verið opnaðir lásum við jólakortin okkar. Ég las þau kort sem fylgdu gjöfunum aftur. Stalst svo til þess að smakka aðeins á vanilluís. Fékk mér ekki stóran skammt. Neikvæðu áhrifin komu ekki alveg strax fram en þau komu en voru ekki eins sterk eins og ef ég hefði dottið í súkkulaðiát.
24.12.23
Veislur
Sjálfsagt er smá jólaspenningur að gera vart við sig því það gekk pínu illa að sofna í fyrrakvöld. Það getur líka verið að því að ég ætlaði ekki að geta lagt frá mér bókina sem ég var að lesa, Systirin í storminum, og var klukkan næstum orðin ellefu þegar ég lagði bókina loksins frá mér þá komin á blaðsíðu sjötíuogeitthvað. Ég sem passa yfirleitt upp á það að vera búin að slökkva á leslampanum um tíu og stundum fyrr. En það var svo sem ekki vinnudagur framundan í gær. Ég rumskaði svo um hálfeitt til að skreppa á salernið en sem betur fer sofnaði ég fljótlega aftur. Ég var svo vöknuð fyrir klukkan sjö og hitti aðeins á N1 soninn áður en hann fór á sína vinnuvakt. Lagði af stað í sund um átta. Synti 500 metra, flesta á bakinu en næstum því 100m skriðsund og smá bringusund. Fór þrisvar sinnum í kalda pottinn, einu sinni í þann heitasta, einu sinni í gufu og einu sinni í sjópottinn áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Kom heim rétt fyrir tíu. Sendi sms til tvíburahálfmömmu minnar um að ég ætti bara eftir að pakka niður áður en ég legði í hann austur á bóginn og hvort ég gæti komið við hjá þeim á Selfossi. Þau voru heima og hress og ég velkomin. Ég er alltaf velkomin þangað en það var bara orðið svo langt síðan ég kom við að mér fannst betra að spyrja og gera vart við mig. Það tók mig næstum þrjú korter að pakka niður og ferma bílinn. Pakkaði líklega niður fyrir meira en viku í staðinn fyrir þrjár nætur. Klukkan var því að verða tólf þegar ég "lenti" í Fossheiðinni. Fimm mínútum á eftir mér kom tvíburahálfsystir mín. Það var lagt á borð fyrir fjóra og boðið upp á skötu og saltfisk. Þvílíka veislan. Skatan var mjög góð, fékk mér tvisvar á diskinn og hafði svo ekkert pláss eftir til að smakka á saltfiskinum. Hélt ferðinni austur áfram um eitt leytið og var komin til pabba um tvö. Hann var að gera innkaupalista og spurðim mig hvort það væri eitthvað sem ég sæi að vantaði. Bað hann um að kaupa sæta kartöflu og spurði hvort ég ætti að fara með honum í búðina. Hann sagði að ég þyrfti þess ekki en mætti ef ég vildi. Ég ákvað að vera eftir og taka upp úr töskunum. Um hálfsex leytið bauð pabbi mér svo með sér á Kanslarann í skötu og þáði ég það með þökkum. Þar fékk ég mér aðeins einu sinni á diskinn þó, einhvern veginn ekki pláss fyrir meira og samt hafði ég ekkert fengið mér frá því ég borðaði í hádeginu. Helga systir hringdi í pabba stuttu eftir að við komum til baka. Bríet og Bjarki lentu í smá hrakningum á Hellisheiðinni, bíllinn hans ekki ökufær eftir og Bríet þurfti smá skoðun á sjúkrahúsinu á Selfossi vegna magaverkja. Vonandi verða þau fljót að jafna sig.
23.12.23
Sjórinn -0,3°C í gær
Ég var mætt í vinnu um hálfátta. Það komu skilaboð frá fyrirliðanum að hún yrði aðeins seinni. Ég "sótti" tölur og hlóð inn fyrstu verkefnunum. Fór svo aftur upp, fyllti á vatnsflöskuna og settist niður í kaffistofu með heitt vatn í bolla. Kláruðum fyrstu verkefni dagsins áður en klukkan varð hálftíu. Eftir kaffipásu (ég fékk mér aftur heitt vatn í bolla) lukum við sennilega við að framleiða síðustu gjafakortin fyrir einn bankann. Hráefnið er búið og líklega munum við ekki fá nýjar birgðir í ljósi þess að það er líklegt að íslenskri banka og gjafakortaframleiðslu verði hætt innan árs. Vorum búnar að framleiða hádegisskammtinn upp úr klukkan hálftólf. Gengum frá deildinni, sendum framleiðsluna upp með annarri lyftunni og fórum í mat. Hjálpuðum til í innleggjum og hreinsuðum gullið eftir mat. Ég stimplaði mig út tuttugu mínútum fyrir klukkan þrjú. Það kom athugasemd í mælaborð bílsins um að kominn væri tími á að athuga loftþrýstinginn í dekkjunum. Ég fór þó samt beinustu leið í Nauthólsvík og skellti mér smá stund í sjóinn, gufubaðið, lónið og heita pottinn. Var komin í bílinn aftur um fjögur og ákvað að gera mér ferð upp á Gagnveg í vinnuna til N1 sonarins. Fékk hann til að jafna þrýstinginn á dekkjunum og spjallaði smá við hann og vinnufélaga hans áður en ég fór heim.
22.12.23
Indó
Við fyrirliðinn hættum gjafakortaframleiðslu rétt fyrir hálfþrjú og gengum frá kortadeildinni. Þá vorum við búnar með allt daglegt og 3000 gjafakort. 500 af þeim framleiddum við fyrir kaffi, 1500 kláruðum við upp úr hálftólf og fórum þá í mat. Í gær var jólamatur í boði fyrir alla hvort sem þeir eru í mataráskrift eður ei. Maturinn kom frá Múlakaffi og sú sem sér um kaffistofuna á D30 alla daga (sem og kaffistofuna á S15 á fundardögum) kom og setti upp matinn. Það kom í ljós að það var ýmislegt í boði sem ég mátti alveg fá mér af og þar að auki var afgangur sem ég mátti taka frá til að borða í hádeginu í dag. Smakkaði samt ekkert af kalkúninum, eplasallatinu eða eftirréttinum. Freistaðist til að fá mér smá rauðkál sem var líklega búið til í Múlakaffi. Mjög gott en líklega var samt eitthvað í því sem maginn minn þoldi ekki. Fann samt ekki fyrir neinu fyrstu klukkutímana eftir mat. Stimplaði mig út korter í þrjú og fór beint í sund. Synti 400 metra, fór 4 ferðir í kalda pottinn, eina í gufu, tvisvar í sjópottinn og eina ferð í heitastapottinn. Var komin heim um hálffimm leytið. Bræðurnir voru hvorugir heima, höfðu skroppið í pakkaheimsóknarferð á Bakkann. Ég byrjaði á því að fleygja mér í sófann með tvær af safnbókunum og las í rúman hálftíma. Þeim tíma var ekki skipt jafnt á milli bóka. Bækurnar sem ég er með af safninu eru:
Læknir verður til eftir Henrik Geir Garcia, Systirin í storminum eftir Lucindu Riley, Systirin í skugganum eftir sama höfund, Hús harmleikja eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur og Gísl eftir Clare Mackintosh.
21.12.23
Mögnuð stund í sjónum seinni partinn í gær
Vaknaði stuttu fyrir klukkan sex í gærmorgun. Var mætt í vinnuna um hálfátta og fór eiginlega beinustu leið niður í kortadeild að sækja tölur og athuga hvort vélin kæmist í framleiðslugýrinn eftir að ég hafði kveikt á henni. Svo reyndist ekki vera. Um níu var ákveðið að kalla út viðgerðarmann. Hann kom á svæðið upp úr klukkan hálfellefu. Hann sagði okkur eiginlega strax að honum sýndist þetta ekki vera beint vélarbilun heldur samskiptaleysi í örgjörvamódúlnum við ákveðið kerfi. Fyrirliðinn hafði því samband við kerfisfræðinginn okkar og bað hann um að endurræsa þetta ákveðna kerfi. Það reyndist nóg til að koma vélinni í vinnugýrinn. Milli klukkan ellefu og hálfeitt framleiddum við daglegu kortin og 600 gjafakort. Frá korter yfir eitt til klukkan hálfþrjú lukum við svo við að framleiða endurnýjunina sem við vorum að vinna í þegar vélin hætti að vinna í fyrradag. Stimplaði mig úr vinnu klukkan hálffjögur. Kom við í Fiskbúð Fúsa til að kaupa harðfisk. Næst lá leiðin á bókasafnið að skila þremur bókum af fjórum. Fjórðu bókina var ég ekki byrjuð á en hún er hátt í 600 blaðsíður. Engu að síður tók ég fjórar bækur með mér af safninu og er ein þeirra einnig um 600 blaðsíður. Engin af bókunum er skammtímaláns en mig grunar að ég muni þurfa að framlengja skilafrestinum á þeim öllum. Meira um þessar bækur síðar. Af safninu fór ég beinustu leið í Nauthólsvík og skellti mér aðeins í 1,6°C sjóinn í þessu svartasta skammdegi. Sjórinn var spegilsléttur og sama og engin ferð á logninu. Var út í í rúmar sjö mínútur og svo ca korter í heita pottinum áður en ég fór upp úr og heim.
20.12.23
Í sjóinn eftir vinnu og nokkur erindi
Bílarnir okkar N1 sonarins voru hlið við hlið í stæði í gærmorgun. Þetta vissi ég því sonurinn var að ljúka við að skafa og sópa af sínum bíl og leggja af stað í vinnuna þegar ég kom út ca tíu mínútur yfir sjö. Ég var nokkuð snögg að skafa og sópa af mínum bíl og var mætt í mína vinnu um hálfátta. Það var komin meiri endurnýjun, ekki jafn stór og sú sem við lukum við á mánudaginn. Framan af morgni stóð það til að fyrirliðinn þyrfti að skreppa úr vinnu og sinna brýnu erindi. Það erindi datt þó upp fyrir og í staðinn fórum við að vinna að endurnýjuninni. Einnig voru send á vélina gjafakort fyrir einn sparisjóðinn sem við lofuðum að yrðu unnin sem fyrst. Tuttugu mínútum fyrir þrjú hætti vélin allt í einu að vinna í miðju kafi. Vorum í um fimm korter að reyna að tjónka við hana en við komum henni ekki af stað sama hvað. Við ákváðum að kannski myndi hún haga sér betur eftir góða næturhvíld. Gengum frá kortadeildinni og ég stimplaði mig út rúmlega fjögur. Hringdi aftur í pabba á leiðinni yfir í Laugardalinn. Þurfti að segja honum að ég hefði sofið af mér byrjunina á nýjastu Reykjaneseldunum. Frétti fyrst af gosinu á samfélagsmiðlunum í gærmorgun. Eftir eina ferð í kalda pottinn og 500 metra sund hitti ég kaldapotts vinkonu mína. Fórum saman þrjár ferðir í kalda, tvær ferðir í heitasta, eina í gufuna og eina í sjópottinn. Þá var mér orðið mikið mál að komast á klósettið, kvaddi og fór upp úr. Held að vinkona mín hafi tekið eina til tvær ferðir í viðbót í þann kalda. Ég var komin heim um sex leytið.
19.12.23
Töluvert gos í gangi
Vaknaði um sex í gærmorgun. Var ekkert að flýta mér að neinu. Þurfti að skafa aðeins og sópa af bílnum áður en ég lagði af stað í vinnuna á áttunda tímanum. Eftir að hafa stimplað mig inn í vinnunni og opnað seinni lásinn á ytri hurðinni á hvelfingunni uppi fór ég niður að ná í tölur. Það voru alvöru tölur á ferð. Daglegu tölurnar voru reyndar ekkert svo háar en það var komin endurnýjun upp á meira en tvöþúsund og tvöhundruð kort. Fyrirliðinn var í bókhaldinu og á móttökuendanum og okkur tókst að framleiða allan fyrirliggjandi skammt bæði af daglegum kortum, smá gjafakortum og þessa endurnýjun á nokkrum klukkutímum. Vorum búnar að ganga frá kortadeildinni um hálfþrjú. Seinasta klukkutímann fór ég yfir skjöl. Stimplaði mig út úr vinnu um hálffjögur. Hringdi í pabba og talaði við hann á meðan ég var á leiðinni yfir í Laugardalslaug. Hitti kaldapotts vinkonu mína í hennar þriðju ferð í kalda pottinum. Fórum fjórar ferðir saman, tvær í heitasta, eina í gufu og eina í sjópottinn. Svo fór hún upp úr en ég synti fyrst 400metra. Var komin heim um hálfsex.
18.12.23
Inniskór
Var komin á fætur upp úr klukka sjö í gærmorgun en fór ekki í sund fyrr en um níu leytið. Fór fyrst tvær ferðir í þann kalda með viðkomu í heitasta pottinum á milli ferða. Synti svo 500 metra áður en ég fór aftur í þann kalda. Var í minni fjórðu ferð í kalda pottinn þegar kalda potts vinkona mín mætti á svæðið. Fór tvær ferðir með henni, eina í gufuna og svo sátum við góða stund í sjópottinum. Ég var komin heim um hálftólf. Fór ekkert út aftur en fjórum sinnum niður í þvottahús. Bríet frænka kíkti við og gat ég afhent henni jólakortið til hennar og Bjarka. Þá á ég bara eftir að afhenda síðasta jólakortið. Það verður gert á leiðinni austur á Þorláksmessu. Þegar fór að rökkva aftur kveikti ég á nokkrum sprittkertum og setti út í stofuglugga í mismunandi kertastjökum/ílátum. Fyrir seinni tvær ferðirnar í þvottahúsið klæddi ég mig í kósí föt. Var svo að lesa, horfa á fótbolta, þætti og hafa það huggulegt sem mest ég gat.
17.12.23
Syndari
Rumskaði um fjögur leytið í gærmorgun og fannst það heldur snemmt. Skrapp fram á salernið og gerði svo tilraun til að sofna aftur. Það tókst eftir smá tíma og það vel að ég hafði mig ekki á fætur fyrr en klukkan var um hálfníu í gærmorgun. Ég sleppti þess vegna morgun netvafrinu og fór beint í sund. Byrjaði á þremur mínútum í kalda pottinum. Hitti yngstu mágkonu mömmu í sjópottinum og spjallaði við hana í góða stund áður en við fórum að synda. Ég skellti mér í hálfa mínútu í þann kalda og fór svo á braut 2 og synti 500 metra, flesta á bakinu. Hún fór beint á brautir 7 og 8. Ég var svo að koma úr þriðju ferðinni úr þeim kalda þegar við hittumst aftur á leiðinni upp úr. Þvoði mér um hárið og var mætt til norsku esperanto vinkonu minnar korter fyrir ellefu. Stoppaði hjá henni í rúm fimm korter. Við lásum m.a. tvær blaðsíður af esperanto smásögu. Kom svo við í Krónunni áður en ég fór heim. Eftir að hafa gengið frá sunddóti og búðarvörum settist ég niður með fartölvuna í fanginu í um klukkustund. Ég var nýbúin að slökkva á henni og leggja tölvuna frá mér þegar Ella vinkona hringdi í mig. Hún var búin að fá sendinguna og opna hana. Leit á innihaldið sem jólagjöf og sagðist hafa lokað pakkanum aftur og ekki sýna manninum fyrr en á jólunum. Innihaldið í brúna umslaginu var jólakort í umslagi merkt jól, borðtuska og bók sem ég pakkaði ekkert sérstaklega inn því þetta var bara smá hugdetta að koma á óvart og ég var þar að auki búin að lesa bókina, sem kom út í fyrra, sjálf. Annars sagði Ella mér af hraðsláttar vandamálum sem fór að bera á fyrir tveimur mánuðum. Fyrir viku síðan kom upp þriðja tilfellið og þá loksins fór hún að láta líta á sig. Það eru til þrjár aðferðir til að reyna að ná niður púlsinum (fyrir utan lyf), engin þeirra aðferða virkaði á Ellu svo hún var sett á lyf. Svo sagði hún að mátturinn í fótunum færi minnkandi og það liði senn að því að hún verði að leggja göngugrindinni og treysta alfarið á hjólastólinn. En eins erfitt og þetta dæmi er þá er vinkona mín ekkert að barma sér og tekur þessu af miklu æðruleysi. Segir að það þýði ekkert að velta sér upp úr því sem lítið er hægt að gera við. En hún sagði mér líka að elsta barnið hennar og það yngsta verði hjá henni um jólin og miðjubarnið komi til hennar milli jóla og nýárs. Bræðurnir skruppu saman í Kringluna og svo til hinnar fjölkyldunnar. Ég hringdi í pabba, horfði á þætti og smá bolta. Annars er aðal boltaleikurinn seinni partinn í dag.
16.12.23
Sjórinn eftir vinnu í gær
Vinnudagurinn í gær leið hratt og gekk ágætlega fyrir sig. Stimplaði mig út tuttugu mínútum fyrir þrjú og var komin í Nauthólsvík um þrjú. Leist satt að segja ekkert á blikuna á leiðinni á milli staða því það kom dimmt él og rok-kviðurnar tóku í. Ég ákvað þó að halda sjósundsferð til streitu. Sjórinn var 1,1°C og svolítill öldugangur en það er einmitt svo gaman að hoppa í öldunum. Var út í í svona þrjár mínútur og fór beinustu leið í gufuna. Sat í gufunni í uþb tíu mínútur og trítlaði svo aðeins í lónið. Fékk á mig hagl á leiðinni en eftir rúmar þrjár mínútur í lóninu fékk ég mikinn meðbyr og nánas hljóp yfir heita pottinum. Sat óvenju stutt í pottinum en þó amk tíu mínútur. Var komin heim um hálffimm leytið. Það voru ekki margir í Nauthólsvík á meðan ég var þar. Við vorum eitthvað um tíu en það voru að koma fleiri um það leyti sem ég var að fara.
15.12.23
Enn og aftur komin helgi
Vaknaði um sex leytið í gærmorgun. Mætti í vinnu stuttu fyrir klukkan hálfátta og var byrjuð í innleggs vinnunni rétt fyrir átta. Rafmagnið blikkaði tvisvar sinnum á stuttum tíma um tíu leytið, blikkaði þannig að það slökknaði á tölvunum. Sem betur fer var ég ekki með innlegg í vinnslu akkúrat á þeim blikk augnablikum svo það sem ég var búin að vinna hélst inni. Vorum búin fyrir klukkan hálfþrjú. Ég fór beint yfir í Laugardalinn og hringdi í pabba á meðan ég var á leiðinni þangað. Var byrjuð að synda tíu mínútum fyrir þrjú og synti 500 metra á rúmum tuttugu mínútum. Þá fyrst fór ég í þann kalda. Sat svo góða stund í sjópottinum áður en ég fór aftur í kalda. Var í þriðju kalda potts ferðinni þegar vinkona mín mætti á svæðið. Saman fórum við tvær ferðir í kalda og eina í gufu. Eftir gufubaðið fór ég upp úr og heim enda klukkan orðin hálffimm.
14.12.23
Þarabað
Rumskaði um hálfsex í gærmorgun en vaknaði svo tuttugu mínútur yfir sex, innan við tíu mínútum áður en vekjaraklukkan átti að hringja. Dreif mig á fætur, sinnti morgunverkunum á baðherberginu, fékk mér vatnglas og vítamín. Vafraði um á netinu í um hálftíma. Þá fékk ég mér kókosvatn og hinn helminginn af vítamínunum. Mætti í vinnu áður en klukkan var orðin hálfátta. Ég var samt alls ekki fyrst á svæðið, sennilega sú fjórða. Innleggin gengu vel fyrir sig og við kláruðum í fyrra fallinu eða fyrir klukkan hálfþrjú. Eftir að hafa stimplað mig út fór ég beinustu leið í Nauthólsvík. Dýfði mér aðeins í ca eina mínútu í sjóinn áður en ég fór yfir að Siglunesi þar sem búið var að safna þara og setja í stórt kar ásamt rúmlega 34°C heitu vatni. Ég hef aldrei prófað svona áður en fannst þetta alveg himneskt og ætlaði varla að tíma að fara upp úr. Held að ég hafi verið uþb fjörutíu mínútur ofan í þarasúpunni. Skrapp svo í heita pottinn og var þar í korter áður en ég fór upp úr. Fann smá þara fyrir innan sundbolinn þegar ég fór í sturtu. Var komin heim um fimm.
13.12.23
Rok og rigning
Vaknaði um sex í gærmorgun. Í vinnunni var ég alfarið uppi í innleggjum. Davíð Steinn hringdi í mig um tíu leytið. Hann hafði skilið bílinn sinn eftir á verkstæði við Tangarhöfða og átti von um að geta sótt hann seinni part dags og vildi athuga hvort ég væri til í að skutla honum. Ég lofaði að hringja í hann þegar ég væri búin að vinna til að kanna stöðuna. Hann hringdi aftur um tvö leytið. Heyrði reyndar ekki í símanum þá því ég var komin á kaf í að hreinsa gullið. Þegar ég hringdi til baka sagðist hann líka hafa sent mér sms um að bíllinn væri klár en það væri samt ekkert stress því það væri opið til klukkan sex. Ég var búin að vinna um hálffjögur og sendi honum þá sms um að ég væri að stimpla mig út og á leiðinni að sækja hann. Vorum komin upp á Tangarhöfða rúmlega fjögur. Skildi hann eftir þar og fór svo bara heim þrátt fyrir að vera með sunddótið með mér. Þannig að ég skrópaði í sundið í gær.
12.12.23
Upplagt að nýta tímann
Vaknaði stuttu fyrir klukkan sex í gærmorgun. Fimm korterum síðar lagði ég af stað í vinnuna og tók smá krók til að setja tvö síðustu jólakortin sem fara í póst í póstkassann á pósthúsinu í Síðumúla. Var mætt í vinnuna rúmlega hálfátta og fór beint niður í kortadeild til að kveikja á vélinni, "ná í" tölur og hlaða inn fyrstu verkefnum dagsins. Bæði verkefnin voru í kringum níutíu kort en við vorum búnar að framleiða þau og komnar í kaffi um hálftíu. Milli tíu og ellefu var ég í innleggjum. Hádegis skammturinn var framleiddur á tólfta tímanum, tæp áttatíu kort og vorum við búnar að ganga frá deildinni tuttugu mínútum fyrir tólf. Eftir hádegi var yfirferð á vélinni. Fyrrum fyrirliði sá um að sitja yfir viðgerðarmönnunum en ég var uppi í innleggjunum. Klukkan var orðin fjögur þegar ég stimplaði mig út. Fór beinustu leið í sund og hitti kaldapotts vinkonu mína þegar ég var í fyrstu ferðinni í kalda og hún kom í sína aðra ferð. Fórum tvær ferðir í viðbót áður en við fórum í gufu. Úr gufunni fórum við í sjópottinn. Þegar hún fór í sína fimmtu ferð í kalda pottinn var klukkan orðin hálfsex og ég ákvað að drífa mig upp úr til að koma við á einum stað áður en lokaði klukkan sex. Var komin í Faxafen 5 tólf mínútum fyrir sex og svo í Fiskbúð Fúsa rétt rúmlega sex. Á seinni staðnum keypti ég harðfisk og ýsu í soðið sem ég eldaði handa mér um leið og ég kom heim. Með ýsunni hafði ég súrkál og afganga af gufusoðnu grænmeti sem ég tók með að austan.
11.12.23
Ð
Svaf alveg ótrúlega vel í fyrrinótt. Rumskaði aðeins um sex og hefði þurft að fara fram á salernið en ég steinsofnaði strax aftur og svaf í tvo tíma í viðbót. Var komin á ról um hálfníu leytið og pabbi kom fram skömmu síðar. Verkefni dagsins var að skrifa á sem flest af jólakortunum og helst klára enska jólabréfið. Gleymdi að taka með mér bréfið sem ég fékk frá Janis sl sumar svo ég ákvað að ég gæti byrjað aðeins á bréfinu en ekki klárað það fyrir austan. Dagurinn leið alveg ótrúlega hratt. Lagði kapla inn á milli. Var með mat um eitt leytið. Vafraði aðeins á netinu og las í skammtímalánsbókinni. Þegar ég tók mig saman um hálffimm leytið átti ég aðeins eftir að klára enska bréfið og skrifa á fjögur jólakort. Þrjú af þeim fjórum jólakortum mun ég bera sjálf út. Kom við í Síðumúlanum rétt um sex í gær og setti 17 umslög í póstkassann. Fljótlega eftir að ég kom heim kláraði ég enska bréfið og að skrifa á síðustu jólakortin. Svo var ég næstum búin að festast í að horfa á upptöku á leik Noregs og Frakklands en ég ákvað að vera skynsöm og drífa mig í rúmið. Las nú samt til klukkan langt gengin í ellefu.
10.12.23
Í föðurhúsum
Í gærmorgun var ég komin á fætur fyrir klukkan sjö. Rúmum klukkutíma seinna fór ég í sund. Byrjaði rútínuna á því að fara í kalda, heitasta, kalda, gufu og sjópottinn áður en ég fór á braut sex og synti 400 metra á bakinu. Fór svo í kalda, heitasta og stutta dýfu í þann kalda áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Var mætt til esperanto vinkonu minnar stuttu fyrir klukkan hálfellefu. Stoppaði hjá henni í fimm korter. Þegar ég kom heim, skömmu fyrir tólf, fór ég beint í að taka mig saman fyrir helgarskrepp út úr bænum. Kom við í Heilsuhúsinu í Kringlunni og stoppaði einnig stutta stund hjá frændfólki á Selfossi. Var að færa þeim tuskur. Þáði ekkert nema vatnsglas og gott spjall. Klukkan var að byrja að ganga þrjú þegar ég kom austur til pabba. Hann var að þrífa ísskápinn og búinn að setja upp jólagardýnur í eldhúsið og jólaljós í eldhúsglugga og stóra stofugluggann. Einnig voru óróarnir frá Georg Jensen komnir upp í stofugluggana. Ég hafði tekið með mér nokkur tebréf sem ég veit að ég má drekka og hitaði vatn út á eitt slíkt, kamillute. Settist stund við eldhúsborðið og lagði nokkra kapla. Svo færðum við feðgin okkur inn í stofu að horfa á boltaútsendingar og ég raðaði jólakortadótinu og skriffærum í kringum mig. Fann þrjú óskrifuð en tilbúin kort frá því í fyrra svo bunkinn var kominn upp í 28 stk. en ég er búin að skera niður á listanum svo það verða líklega 6-8 tilbúin en óskrifuð kort eftir fyrir vertíðina næsta ár. 6 stk. því ég er að spá í að skrifa á sér kort til yngri systurdóttur minnar og einnig senda eitt kort til Ísafjarðar. Held ég hafi samt ofáætlað frímerkin á kortin sem fara munu í póst en það gerir ekkert til. Afraksturinn á kortaskrifunum í gær var samt bara þrjú kort en ég skrifaði líka annað jólabréfið svo ég er bara þokkalega sátt. Eftir kvöldfréttir borðuðum við pabbi bleikju með gufu soðnu grænmeti (rauðkáli, hvítkáli, lauk og sætri kartöflu). Hann fékk sér stjörnuhrásallat að auki en ég súrkál. Horfðum svo á úrslitin í jólastjörnunni og upptöku frá jólagestum Björgvins frá því fyrir nokkrum árum. Ég fór ekki upp í rúm fyrr en klukkan var orðin hálfellefu og þá las ég í smá stund í skammtímalánsbókinni. Held ég hafi verið sofnuð áður en klukkan var orðin hálftólf.
9.12.23
Laugardagur
Klukkan var byrjuð að ganga sjö þegar ég vaknaði í gærmorgun, þó var enn korter í að vekjarinn færi í gang. Slökkti á honum og fór á fætur. Var mætt í vinnu um hálfátta. Heildar kortaframleiðsla náði ekki þrjúhundruð kortum en það var nóg að gera uppi og var klukkan að verða þrjú þegar ég stimplaði mig út. Bauðst til að skutla einni sem vinnur með mér heim. Hún býr í efra Breiðholti. Hún ætlaði að reka erindi í Mjóddinni og sagðist alveg vilja fá far þangað. Eftir skutlið fór í pósthúsið við Síðumúla. Þangað var ég komin ca korter fyrir lokun. Nóg var að gera en ég þurfti samt ekki að bíða nema í rúmar tíu mínútur. Var að versla frímerki á nokkur (enn óskrifuð) jólakort innanlands, tvö frímerki á (óskrifuð) jólabréf til Danmerkur og Englands og svo áætlaði ég þyngd á tveimur A4 umslögum sem sendingu til Egilsstaða og sveitina fyrir Norðan. Það er því nokkuð ljóst hvaða verkefni bíður helgarinnar.
8.12.23
Undarlegt að það sé komin helgi enn á ný
Vinnudagurinn í gær var rólegur í kortunum en annasamtur í innleggjunum. Var að vinna til klukkan rétt tæplega fjögur. Fór svo beint í sund. Hitti kalda potts vinkonu mína í kalda pottinum. Hún var að fara í sína aðra ferð. Tókum fjórar ferðir í þann kalda, tvær í heitasta pottinn, eina ferð í gufuna og eina ferð í sjópottinn. Ég endaði í kalda pottinum áður en ég fór upp úr og heim um fimm leytið en vinkona mín ætlaði að vera eitthvað lengur að pottormast.
7.12.23
Jamm
Það er nokkuð um veikindi á vinnustaðnum þessa dagana. Engu að síður gengur ágætlega að vinna upp innleggin og annað sem þarf að gera án þess að vera alveg fram á kvöld. Ég var búin í vinnunni í gær um þrjú leytið. Þó það væri freistandi að skreppa aðeins í 0,9°C sjóinn ákvað ég að vera skynsöm. Ég er enn með smá kvef og vildi ekki hætta á að slá niður. Kom við í Bókasafninu og skilaði þremur bókum, ein af þeim var skammtímalánsbók með skilafrest til 7. des. Tók tvær bækur í staðinn, aðra sem er á sjötta hundrað blaðsíður og hina sem er ný, yfir tvöhundruð blaðsíður og með fjórtán daga skilafresti. Bræðurnir voru ekki heim þegar ég kom heim en það var vitað. Þeir skruppu saman í heimsókn til föðurömmu sinnar. Stuttu fyrir klukkan hálfátta fór ég á bílnum og lagði honum á stæði við Domus Medica. Þaðan labbaði ég upp í Hallgrímskirkju. Esperanto vinkona mín var búin að bjóða mér á Aðventutónleika fjögurra kvenna/stúlknakóra. Inger var með miðana en hún og ein úr Viðeyjargenginu komu svona fimm mínútum á eftir mér. Það var uppselt á viðburðinn. Mér var boðið að koma inn í anddyrið á meðan ég beið en ég rétt kíkti þangað inn bara til að fullvissa mig um að þar var enginn að bíða eftir mér. Kórarnir fjórir voru; Aurora, Cantabile, Stúlknakór Reykjavíkur og Vox feminae. Dagskráin hófst á tónleikaatriði, fiðluleik við orgel undirspil. Á dagskrá voru 18 atriði. Fjórar konur sungu einsöng með eða án kóranna. Diddú var ein af þessum konum. Ekkert hlé var á tónleikunum en tíminn leið mjög hratt enda skemmti ég mér vel. Var komin heim aftur upp úr klukkan hálftíu. Fór þá beint í rúmið en las óvenju lengi, eða til klukkan hálfellefu.
6.12.23
Rökkrið er mjög dökkt þessa dagana
Vaknaði útsofin um hálfsex leytið í gærmorgun. Tæpum tveimur tímum síðar var ég mætt í vinnu. Ekkert auka er í framleiðslu þessa dagana og við kláruðum fyrstu tvo skammtana áður en klukkan varð hálftíu. Vorum í innleggjum það til hádegisskammturinn skilaði sér. Vorum búnar að ganga frá og loka kortadeildinni stuttu fyrir klukkan tólf. Eftir hádegi héldum við áfram í innleggjunum. Það var nóg að gera. Ég var búin um þrjú leytið og farin úr vinnu upp úr klukkan hálffjögur. Hringdi aftur í pabba til að segja honum músasöguna. Hann var þá staddur á Selfossi hjá Jónu Mæju. Hafði skroppið í bæinn til að láta þvo bílinn og stoppaði á Selfossi í baka leiðinni. Ég var byrjuð að synda um fjögur. Synti 500 metra á uþb 25 mínútum. Hitti ekki á kalda potts vinkonu mína en hún hafði sent skilaboð um að komast ekki í sund fyrr en um fimm leytið. Kom við á einum stað áður en ég fór heim eftir sundið. Horfði á hluta af landsleik kvenna í fótbolta við Dani. Missti þó af því þegar Ísland skoraði sigurmarkið. Ánægð með stelpurnar okkar og mikið svakalega stóð markvörðurinn sig vel. Þar er heilmikið efni á ferð.
5.12.23
Eitthvað út í loftið
Klukkan var ekki nema hálfsex þegar ég rumskaði í gær við það að ég þurfti á salernið. Eiginlega of snemmt til að fara á fætur svo ég gerði tilraun til að kúra mig niður aftur eftir að hafa skroppið á snyrtinguna. Sú tilraun gekk ekki upp svo ég ákvað að klæða mig. Hafði ekki sett símann í hleðslu í fyrrakvöld. Það var sennilega alveg nóg á honum uþb 65% en ég ákvað samt að hlaða hann á meðan ég væri heima. Sinnti morgunverkunum og settist síðan inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Um hálfsjö fór vekjaraklukka af stað. Hélt að N1 sonurinn ætlaði bara að fara á fætur í fyrra fallinu. Vekjarinn hélt áfram að hringja og ca 3-4 mínútum seinna ákvað ég að fara og banka á dyrnar hjá syninum. Hann var alveg saklaus, vekjarinn hans átti ekki að hringja fyrr en korter fyrir sjö. Ég hafði þá sjálf gleymt að slökkva á mínum eigin vekjara þegar ég fór á fætur og var þarna kannski búin að vekja eitthvað af nágrönnunum.
Mætti í vinnu stuttu fyrir klukkan hálfátta. Þar hafði ýmislegt gengið á á kaffistofunni skömmu áður en ég mætti. Einhvern veginn hafði mús komist inn og inn á kaffistofu. Músin forðaði sér inn í aðra uppþvottavélina og í stað þess að reyna að veiða hana þar var ákveðið að setja vélina bara í gang. Annars var ég á móttökuendanum á framleiðsluvélinni. Aðeins lágu fyrir dagleg verkefni. Lukum fyrri skömmtunum af rétt fyrir hálftíu. Fórum svo niður aftur um ellefu leytið og vorum búnar fyrir klukkan tólf. Eftir hádegi var fyrrum fyrirliði í reikningagerðinni en ég var að hjálpa til í sumum uppi verkefnunum alveg til klukkan að verða fjögur. Þá fór ég í sund. Hringdi í pabba á leiðinni yfir í Laugardalinn en gleymdi að segja honum frá músinni, enda sá ég hana aldrei sjálf. Henni var hent í poka og út í gám. Kalda potts vinkona mín var í sinni annarri ferð í kalda pottinum þegar ég mætti. Saman fórum við þrjár ferðir, eina í gufuna og eina í sjópottinn. Innilaugin var ekki í notkun svo það var mikið um að vera á flestum brautunum í útilauginni. Ég synti því ekkert en þvoði mér samt um hárið á leiðinni upp úr. Var komin heim skömmu fyrir klukkan sex.
4.12.23
Værukær
Svaf til klukkan að byrja að ganga átta í gærmorgun. Var eitthvað að spá í að skreppa aðeins í sund en fljótlega ákvað ég að halda mig inni og heima. Líkt og á laugardaginn fór ég tvisvar í þvottahúsið, til að sækja þvott, setja í vél og hengja upp. Rétt fyrir tvö eða um það leyti sem leikur Liverpool og Fulham í ensku deildinni var að byrja datt mér í hug að athuga hvort ég gæti ekki nýtt tímann til að föndra á meðan ég fylgdist líka með leiknum. Þetta gekk svona glimrandi vel. Byrjaði á því að skera þykkar litaðar og hvítar arkir í tvennt og brjóta helmingana upp í kort. Held að ég hafi búið til helmingi fleiri kortagrunna en ég þarf. Svo klippti ég út nokkrar jólamyndir úr blöðum sem ég er búin að eiga í nokkur ár og klippa áður úr. Áður en fótboltaleikurinn var búinn var ég byrjuð að líma, skreyta og föndra. Hélt þessu föndri áfram og fylgdist einnig með lokaleik dagsins sem var milli Manchester City og Tottenham. Um það leyti sem kvöldfréttirnar voru að klárast var ég búin að búa til 25 kort, kvótinn kominn og sennilega rétt rúmlega það. Nú á ég bara eftir að setja hvítar arkir inn í lituðu kortin og svo væri snilld að byrja að skrifa kortin sem fyrst.
3.12.23
Hana nú!
Það er þrálátt kvefið. Ekki með hita, nef og ennisholur ekki stíflaðar, smá eymsli í hálsinum gera það að verkum að ég er latari en dags daglega. Var þó komin á fætur um sjö í gærmorgun og eitthvað að spá í að skreppa í sund. Endirinn varð samt sá að ég hélt mig inni við og heima við allan daginn. Einu skiptin sem ég fór út úr íbúðinni voru þau tvö skipti sem ég skrapp niður í þvottahús til að setja í eina vél og hengja upp. Hringdi í pabba um hálftvö leytið og vakti hann víst upp af hádegisblundinum eftir hádegisfréttirnar. Hann hafði verið svo fast sofandi að í fyrstu hélt hann að vekjaraklukkan væri að hamast þegar það var síminn og önnur dóttlan að trufla draumana. Annars sonurinn skrapp til pabba síns en hinn eldaði sér stórsteik og fór svo á nokkra klukkutíma aukavakt á N1 við Borgartún. Ég sýslaði ýmislegt en gerði lítið af því sem ekki má skrifa um, meira af því sem ég skrifa oft um. Dagurinn leið ótrúlega hratt og klukkan var orðin tíu þegar ég skreið upp í rúm.
2.12.23
Fyndið eða fúlt?
Sennilega er ég ekki að fara alveg nógu vel með mig því það situr í mér þrálátt kvef með tilheyrandi leiðindum. Að vísu hefur ekki stíflast neitt, hef varla fundið fyrir hálsbólgu og alveg haft næga orku í daglegt stúss og vinnumál. Svaf eitthvað stopult í fyrrinótt en var vöknuð á mínum tíma og mætt í vinnu um hálfátta. Framleiðslu vikunnar var lokið stuttu fyrir tólf. Framkvæmdastjórinn og næstráðandi hans voru á fundi til klukkan langt gengin í eitt og við biðum bara rólegar eftir að þau kæmu í mat. Vorum að ganga frá eftir matinn til klukkan rúmlega hálftvö og skiluðum svo af okkur eldhúsvaktarböngsunum til þeirra sem eiga vaktina í næstu viku. Það teygðist úr vinnudeginum hjá sumum. Ég stimplaði mig út klukkan hálffjögur. Var með sjósundsdótið meðferðis en taldi það skynsamlegra að sleppa ferð í sjóinn. Kom við á tveimur stöðum áður en ég fór bara heim. Ég var komin í rúmið um hálftíu og sofnuð upp úr klukkan tíu.
1.12.23
Afmælisheimboð
Þegar ég kom heim í gær og fór á netið biðu skilaboð eftir mér frá einni fyrrum samstarfskonu minni. Hún setti á kortagrúppuna sem var að vinna saman í K1 til október í fyrra. Hún bauð okkur heim til sín um fjögur leytið í gær í tilefni af 55 ára afmæli. Ég var búin að vinna fyrir klukkan þrjú. Fyllti tankinn hjá AO við Öskjuhlíð og skrapp svo heim í hálftíma. Við fjórar gestirnir komum allar á svipuðum tíma tvær af okkur voru með afmælisgjöfina; nýjasti jólaóróinn og tíminn minn 2024. Gestgjafinn og afmælisbarnið var steinhissa því hún var ekki að ætlast til þess að fá neina gjöf heldur langaði hana að hitta okkur. Hún bauð upp á alls konar kruðerí en ég þáði ekkert nema kalt vatn. Löngunin í sumt af kruðeríinu var alls ekki svo sterk. Ég var búin að vara við í grúppunni. Skrifaði að ég myndi koma í heimsókn er segði pass á veitingarnar. Stoppuðum í hátt í tvo tíma sem liðu ógnar hratt. Kom heim um upp úr klukkan sex.