7.8.23

Innipúki

Gerði  tilraun til að vakna rétt fyrir klukkan tvö í fyrrinótt til að horfa á þriðja leikinn í sextánliða úrslitum HM kvenna í knattspyrnu með því að stilla á mig vekjaraklukku. Þegar klukkan hringdi ákvað ég hins vegar að slökkva á henni og snúa mér á hina hliðina svo ég "missti" af leik Hollands og Suður-Afríku sem fór 2:0 fyrir þeim fyrrnefndu. Vaknaði svo útsofin um sjö leytið. Fjórði leikurinn; Svíþjóð - Bandaríkin var samt ekki fyrr en klukkan níu svo ég hafði góðan tíma til að vafra um á netinu. Kveikti svo á sjónvarpinu rétt fyrir klukkan níu og horfði á hreint magnaðan leik. Þær bandarísku náðu ekki að nýta nein af ótal færum sínum, þökk sé sænska markverðinum og bandaríski markvörðurinn greip einnig vel inn í þau fáu skipti sem Svíþjóð fékk tækifæri. Eftir 90 mínútur og framlengdan leik var staðan enn 0:0 og grípa þurfti til vítaspyrnukeppni. Þar þurfti sjö umferðir og leikar fóru þannig að Svíþjóð sló tvöfalda heimsmeistara út með 5 mörkum gegn 4.

Annars eyddi ég öllum deginum í prjónaskap, lestur, þáttaáhorf, hlustun á Rás 2 og sjónvarpsgláp. Hellti tvisvar upp á könnuna og fór ekki að sofa fyrr en klukkan var langt gengin í miðnætti.

6.8.23

Verslunarmannahelgi

Í gærmorgun var ég vöknuð rétt fyrir klukkan fimm án þess að það hringdi nokkur vekjaraklukkan. Fór á fætur og kveikti á sjónvarpinu til að fylgjast með fyrsta leiknum í sextán liða úrslitum á HM kvenna í fótbolta í Ástralíu og á Nýja Sjálandi. Annað liðið, Sviss, var ekki búið að fá á sig mark í riðlakeppninni en hitt liðið, Spánn, hafði tapað síðasta leik á móti Japan og fengið á sig fjögur mörk í þeim leik. Þessi leikur fór 5:1 fyrir Spán sem skoruðu öll sex mörkin. Klukkutíma eftir að þessum leik lauk eða um átta var leikur tvö af átta þar vann Japan Noreg 3:1. Noregur skoraði 2 af mörkunum því fyrsta markið var sjálfsmark. Annars fór dagurinn í lestur, prjóna og þáttaáhorf. Um hálftvö leytið hringdi nýji nágranninn úr risinu. Hann var þá læstur úti og enginn í hinum íbúðunum heima. Við vorum öll heima hérna en strákarnir voru ekki vaknaðir. Um sjö leytið skaust Davíð Steinn út og sótti handa okkur kvöldmat frá kínverska staðnum Fönix. Ég hafði lagt inn á hann og hann sá um að panta og sækja.

Kláraði að lesa bókina Dalurinn eftir Margréti Sigrúnu Höskuldsdóttur og byrjaði á bók um rannsóknalögreglukonuna Veru Stanhope; Lengsta nóttin eftir Ann Cleeves í gær.

5.8.23

Í sjóinn í gær

Vaknaði nokkuð snemma í gærmorgun, mun fyrr en ég hefði vaknað ef ég væri að mæta til vinnu. Fór þó ekki á fætur fyrr en upp úr klukkan hálfsjö. Hitti aðeins á N1 soninn áður en hann fór í vinnuna sína. Annars tók ég því mjög rólega til klukkan að verða hálftíu. Var að vafra á netinu, lesa og prjóna. Um hálftíu leytið fékk ég mér chia-graut með musli og rúsínum og var svo mætt í Nauthólsvík um það leyti sem var opnað um tíu. Sjórinn meira en 13°C, flóð og ég synti út að kaðli og skrapp einnig í lónið áður en ég fór í gufu og svo heita pottinn. Næst lá leiðin í fiskbúðina til Fúsa. Keypti af honum harðfisk, saltfiskbita og kartöflur. Áður en ég fór heim kom ég við á tveimur stöðum í Kringlunni, Tiger og Söstrene Grene. Verslaði mér lesgleraugu og bómullargarn. Þegar ég kom heim hellti ég upp á kaffi og fékk mér smá snarl með. Seinni partinn hringdi ég aðeins í pabba hann var smá upptekinn við að klára að gera pönnsur en hringdi svo í mig nokkrum mínútum seinna. Annars lítið títt, nema ég er að lesa nokkrar mjög spennandi bækur. Kannski meira um þær seinna.

4.8.23

Fössari í dag

Í fyrrinótt svaf ég alveg ágætlega og vaknaði útsofin á sjöunda tímanum í gærmorgun. Hitti aðeins á N1 soninn áður en hann dreif sig í vinnuna rétt fyrir sjö. Einhvern veginn æxlaðist það þannig að gærdagurinn varð innidagur þrátt fyrir gott veður. Kom samt heilmiklu í verk bæði af því sem ekki má skrifa um og svo sinnti ég mörgum af áhugamálunum líka. Þegar N1 sonurinn kom heim um fjögur leytið skruppu þeir bræður í Sorpuferð. 

3.8.23

Gæða frí

Það var ekki mikill svefn hjá mér aðfaranótt gærdagsins. Var vissulega komin í rúmið fyrir tíu. Las til klukkan að verða hálfellefu. Þá lagði ég frá mér bók sem ég átti amk 150 bls eftir af rúmlega fimmhundruð; Bragð af ást eftir Dorothy Koomzon. Slökkti á lampanum, bað bænirnar mínar og var sofnuð fljótlega. Hins vegar vaknaði ég upp aftur um tvö leytið. Þurfti ekki á salernið en þegar ég var búin að bylta mér nokkrum sinnum kveikti ég á lampanum og tók fram bókina á ný. Gerði máttlausa tilraun til að sofna aftur klukkutíma síðar en það endaði með því að ég kláraði bókina. Hún var ein af þeim sem var með skilafrest til dagsins í dag, þriðja ágúst. Fljótlega eftir að ég heyrði að N1 sonurinn var farinn af stað í vinnuna fyrir klukkan sjö, vaktaplanið breyttist hjá honum og verður með breyttu sniði amk næstu eina og hálfa vikuna á meðan margir eru að klára fríin sín, dreif ég mig bara á fætur. Eftir morgunverkin á baðherberginu kveikti ég á sjónvarpinu til að fylgjast með leikjum á HM kvenna en ég settist líka í sófann með fartölvuna í fanginu. Morguninn leið hratt og það endaði með því að ég horfði á hluta af leikjunum sem voru klukkan tíu líka. Hellti mér upp á kaffi rétt fyrir tólf og það var ekki fyrr en klukkan var farin að ganga tvö að ég dreif mig út. Skilaði fimm bókum á safnið og tók eina í staðinn áður en ég fór í sund. Kom heim aftur um fjögur, rétt á undan N1 syninum. 

2.8.23

Gluggamál

Dreif mig á fætur upp úr klukkan átta. Gleymdi mér aðeins í tölvunni þannig að ég hafði ekki tíma til að hella mér upp á kaffi. Fékk mér samloku og vatnsglas upp úr klukkan hálftíu og skrapp svo í Nauthólsvík. Þar kom ég að um leið og verið var að opna og hitti fyrir kalda potts vinkonu mína. Það var fjara en ég svamlaði út að kaðli þótt ég hefði getað vaðið þangað. Hitti kalda potts vinkonu mína í heita pottinum þar sem hún þekkti fleira fólk. Eftir korter í pottinum skruppum við aðeins út í lónið og smá stund í gufu á eftir. Vinkonan fór svo aftur í pottinn en ég upp úr og heim. Þá fyrst hellti ég upp á könnuna. Um tvö fékk ég skilaboð frá fyrrum nágranna úr risinu þar sem hann tilkynnti mér nafn og kennitölu mannsins sem keypti af honum. Ég sendi rafrænan póst á þjónustufulltrúa í 0111 og korteri síðar svaraði hún og var búin að breyta upplýsingunum í fyrirtækjabanka hússjóðs Drápuhlíðar no 21. Og rétt skömmu síðar fékk ég póst frá gluggamanninum. Hann sagði að það yrði komið einhvern daginn í næstu viku og skoðað og mælt út hjá mér gluggar og svalahurð.  Stuttu áður en öll þessi skilaboð bárust eða voru send hringdi ég í pabba. Hann hafði skroppið í bæinn annan daginn í röð og er nú kominn á nýlegan, svartan Ford Edge sem er fjórhljóladrifinn og gengur fyrir dísel. Milli þrjú og fjögur skrapp ég í göngutúr um Klambratún og nágrenni. Er annars búin að fitja upp á nýju jóla-eldhúshandklæði fyrir systur mína í grænum lit en er tilbúin með rauðan á kantinum ef hún vill heldur svoleiðis. Sá líka í gærmorgun hvernig ég gæti notað svona eldhúshandklæði sem eitthvað til að standa á og þurrka blautar iljar þegar ég er að klæða mig eftir sjósund. Er líka búin að klára að lesa allar þær bækur sem eru með skilafrestinn til 3. ágúst en á eftir að byrja á þeim fimm sem komu með mér heim af safninu síðast.

1.8.23

Glænýr mánuður

Var komin fætur fyrir klukkan átta í gærmorgun. Það tók mig samt næstum sex klukkustundir á koma mér út úr húsi og í sund. Hellti mér upp á kaffi stuttu fyrir tólf en þá var ég loksins búin að skrá niður ferðasöguna á bloggið. Var komin í Laugardalinn rétt fyrir hálftvö. Fór eina ferð í kalda og smástund í gufu og kalda sturtu áður en ég fór á braut 7 og synti 400 metra, þar af amk helminginn á bakinu. Eftir sundið og aðra ferð í kalda pottinn fór ég örstutt í heitasta pottinn og svo í sjópottinn. Þar var ég þegar kalda potts vinkona mín mætti á svæðið. Saman fórum við fimm ferðir í kalda, 4 í heitasta og eina ferð í gufu áður en hún lagðist á bekk í sólbað. Ég fór fljótlega og þvoði mér um hárið í leiðinni. Áður en ég fór heim aftur kom ég við í Krónunni við Fiskislóð og Elkó. Í elkó keypti ég ný batterí í heimasímann, tæki til að hlaða batterí, nokkur hleðslubatterí, ryksugupoka og litla flösku af kristal með sítrónubragði.

31.7.23

Strembið að komast í skrifgírinn aftur

Tvíburahálfsystir mín skilaði mér heim að dyrum á laugardagskvöldið var eftir viku útilegu þar sem gist var í tjaldi í fimm nætur af sjö. Gærdagurinn fór í slökun, lestur, prjón og smá imbagláp. Lánaði Oddi bílinn um miðjan dag og var hann kominn heim aftur um hálftíu leytið. Sjálf fór ég ekki út úr húsi, ekki einu sinni í stutta göngu. Hellti upp á kaffi og fékk mér hressingu um tólf leytið og fékk mér snarl um kvöldmatar leytið. Sonja skráði ferðasöguna ásamt nokkrum mögnuðum myndum og merkti mig inn á facebook. Ferðalagið var ákveðið með stuttum fyrirvara enda átti það aðeins að vera prufutúr í eina til þrjá nætur. Þegar við hins vegar vorum komnar af stað leiddi eitt af öðru og til að gera langa sögu mjög stutta þá endaðuðum við á því að fara hringinn með viðkomu á mörgum fjörðum og stöðum á austur og norðurlandi.

Eftir sundferð, hárþvott og esperantohitting laugardaginn 22. júlí sl. lauk ég við að pakka niður um hádegisbil og þóttist tilbúin. Sonja sótti mig um eitt leytið. Foreldrar hennar voru ekki heimavið svo við keyrðum í gegnum Selfoss og beinustu leið á Hellu í heimsókn til pabba míns. Þar fengum við kaffi og pönnsur og stoppuðum í rúmlega klukkustund eða svo áður en við héldum för áfram austur á bóginn. Þegar við vorum komnar vel austur fyrir Hvolsvöll sló því niður í kollinn á mér að svefnpokinn minn hafði ekki komið með í þetta ferðalag. Ég vildi hins vegar ekki snúa við og fá lánaðan poka hjá pabba svo við ákváðum að stoppa í Vík. Þar var keyptur svefnpoki sem fer ótrúlega lítið fyrir. Héldum svo för áfram að Kirkjubæjarklaustri. Ákváðum að kaupa eina gistinótt þar og sjá svo til. Sonja sá um kvöldmatinn og bauð upp á fínasta pastarétt með pepperóní og sósu og þar að auki var hún með bæði rautt og hvítt með. Þurftum að ákveða framhaldið fyrir klukkan tólf á sunnudeginum eða taka okkur upp fyrir klukkan eitt.

Þrátt fyrir mikla veðurblíðu á Klaustri ákváðum við að taka upp tjaldið og halda ferð áfram austur á bóginn, eftir að hafa fyrst fengið okkur kaffi og morgunhressingu. Vorum komnar á Höfn um miðjan dag. Fengum okkur að borða í N1 áður en við héldum áfram. Vorum ekki með neinn ákveðin gististað í huga en stuttu fyrir sjö vorum við komnar í Fossárdal við Djúpavog, rétt að skoða okkur um. Okkur leist vel á staðinn og mótökurnar voru meiri hátta svo við ákváðum að setja tjaldið niður þar. Fengum lánað millistykki og þegar kom í ljós að undirrituð hafði gleymt að taka gaurinn sem tengis við rafmagnssnúruna úr rafmagnsboxinu á Klausti fengum við lánað svoleiðis millistykki. Skáluðum og kláruðum úr vínflöskunum sem við höfðum opnað kvöldið áður, tókum upp handavinnu og sátum og spjölluðum í fortjaldinu fram eftir kvöldi.

Þegar við vorum búnar að fá okkur kaffi og morgunhressingu á mánudeginum tókum við upp rakt tjaldið og skiluðum lánshlutunum í kassa sem var merktur "staff only" rétt fyrir eitt. Héldum svo för áfram austur á bóginn með viðkomu og mislöngum stoppum í fjörðunum. Á Fáskrúðsfirði var verslað í matvöruversluninni. Á N1 í Reyðarfirði fundum við millistykki til að tengjast rafmagnsboxi og við komum einnig við í vínbúðinni þar og endurnýjuðum vínbirgðirnar. Keyrðum um Eskifjörð og nýju gönginn inn á Neskaupsstað áður en við snerum við og keyrðum inn á Egilsstaði. Þar fengum við okkur að borða mjög góðar speltpizzur á staðnum Askur Pizzeria áður en við keyrðum áfram og fundum okkur tjaldstæði í Höfðavík í Hallormsstaðaskógi.

Eftir kaffimorgunhressingu á þriðjudagsmorgninum keyrðum við inn á Egilsstaði. Stoppuðum við í Húsasmiðjunni þar sem keypt var fjöltengi áður en við fórum í sundlaugina. Klukkan var farin að ganga tvö þegar við bönkuðum upp á hjá Ellu vinkonu. Þar hittum við líka aðeins á Einar Bjarna son hennar. Fengum kaffi, gott spjall í hátt á aðra klukkustund áður en við héldum för áfram inn á Seyðisfjörð. Þar skoðuðum við Tæknimynjasafnið og löbbuðum einnig aðeins um bæinn. Vorum sammála um að Borgarfjörður Eystri yrði að bíða aðeins lengur eftir heimsókn frá okkur. Vorum komnar aftur á Egilsstaði klukkan að ganga sjö. Fengum okkur að borða á Salt áður en við fórum aftur "heim" í tjald.

Á miðvikudeginum tókum við upp tjaldið um hádegisbil eftir að hafa fengið okkur kaffi og hressingu. Síðan lá leiðin á Skriðuklaustur. Smári og Nina, sem búa á Ísafirði, voru búin að vera með listamannaíbúðina í tæpar þrjár vikur. Nína var með sýningu í einu herbergi á neðri hæð hússins og Smári hafði verið að vinna að efni í næstu hjólabók. Þau voru hins vegar bæði á staðnum þegar við tvíburarhálfsysturnar mættum og buðu okkur inn til sín í kaffi og spjall eftir að við vorum búnar að skoða safnið. Þegar við kvöddum og héldum áfram ókum við meðfram Lagarfljótinu vestan meginn og fórum stystu leið heim til systur minnar og mágs. Stoppuðum ekkert á þeirri leið nema að einum stað skammt frá Mývatni þar sem verið var að laga veginn og bíða þurfti eftir að leiðsögubíll kæmi og keyrði á undan röðinni aðeins aðra áttina í einu. Vorum komnar á Árland um hálfátta og hittum þar fyrir pabba minn. Helga systir bauð upp á dýrindis kjötsúpu.

Fimmtudagsferðalagið varð ansi langt en líklega má þakka smá þokusúld á víð og dreif um svæðið. Byrjuðum þó á því að heilsa upp á hænurnar og pabba og Ingva inni í fjárhúsum og hlöðu áður en við lögðum af stað. Keyrðum aðeins innar í Kinnarnar áður en við snerum við og ókum í gegnum Húsavík og alla leið inn að Ásbyrgi. Þar gengum við inn að Botnstjörn. Í baka leiðinni úr Ásbyrgi skoðuðum við handverksverslunina Heimöx. Þar verslaði ég rúgbrauð, pönnsur og hnetublöndu allt merkt og gert af heimafólki af svæðinu. Sonja keypti sér m.a. "görn". Fengum okkur síðan að borða í verslun örskammt frá. Héldum för áfram um hálftvö. Kíktum næst á Kópasker. Stoppuðum stutt en tókum myndir af hluta af þeim flottu fígúrum sem eru rétt fyrir utan þorpið og í kringum eina tjörn. Héldum för ótrauðar áfram og heimsóttum flesta þéttbýliskjarna en stoppuðum stutt við, tókum þó ýmist myndir eða snöpp af svæðunum. Þegar við vorum uþb hálfnaðar með ákveðin hring varð ljóst að hvort sem við héldum áfram eða snerum við yrðum við ekki komnar til systur minnar fyrr en einhvern tímann eftir klukkan átta. Ákváðum að klára hringinn og vorum mun nær Egilsstöðum heldur en Akureyri þegar við beygðum inn á þjóðveg eitt af vegi númer 85. Þess ber að geta að sveitabær systur minnar og mágs er í nokkurra mínútna akstur við hinn endann á vegi 85. Þrátt fyrir að vera nokkuð seint á ferð eða klukkan langt gengin í níu voru húsráðendur og gestir, Davíð Steinn var búinn að bætast í hópinn, nýlega sestir að borðum. Okkur var boðið upp á Hangiket af kind með nafni sem ég man ekki hvað var og meðlæti.

Ég var komin fram um átta á föstudagsmorguninn. Systir mín var löngu farin í vinnuna. Mágur minn hafði vaknað með henni en lagt sig aftur. Fljótlega hellti ég upp á könnuna og mágur minn og pabbi bættust í hópinn stuttu fyrir níu áður en þeir fóru út að hlöðu þar sem verið var að vinna í að setja upp rafmagnsbílsskúrshurð. Sonja kom fram stuttu eftir að þeir voru farnir út. Við fengum okkur kaffi og hressingu. Davíð Steinn bættist í hópinn skömmu síðar og fékk sér að borða með okkur. Áður en við tíndum dótið saman hittum við aðeins á Aron og Huldu. Báðum þau um að skila kveðjum en Hulda og Davíð Steinn ætluðu að skreppa í veiðitúr á Ljósavatn með smá krók inn á Akureyri til að kaupa sér nesti. Við Sonja keyrðum inn að Grenivík og þaðan á Akureyri. Fórum fyrst í jólahúsið en þegar við snerum við komum við fórum við í sund, skruppum svo í rúmfatalagerinn og Bónus áður en við héldum för áfram. Vorum eitthvað að spá í að setja niður tjaldið í Hauganesi en okkur fannst heldur dýr nóttin, 2000 kr. fyrir persónuna og sama fyrir rafmagn. Semsagt 6000 krónur fyrir okkur. Hættum við en fengum okkur að borða á góðum stað við höfnina. Ég fékk mér fiskisúpu, skammt af frönskum og hvítvínsglas. Góð þjónusta og mjög góður matur. Síðan héldum við för um Tröllaskaga áfram. Keyrðum í gegnum Dalvík og Siglufjörð. Það var búið að bjóða okkur að setja niður tjaldið fríkeypis við bæinn Haganes í fljótunum en þrátt fyrir gott veður leist mér ekkert á að tjalda þar m.a. vegna þess að þessa helgina var heilt ættarmót í gangi á svæðinu. Á Hofsósi var ekki hægt að komast í rafmagn. Kíktum á aðstæður á tjaldstæðinu við Hóla í Hjaltadal en þar var ekki rafmagn í boði og þar að auki fullt af fólki. Fundum blett á tjaldstæðinu við Sauðárkrók en ákváðum að kíkja einnig inn í Varmahlíð. Á síðarnefnda staðnum var ekkert laust svo við snérum við. Klukkan var um ellefu þegar við komum aftur á Krókinn. Verið var að tjalda á blettinum sem við höfðum í huga en það var nóg pláss á flötinni og snúran hennar Sonju er það löng að það var létt að tengjast rafmagninu. Ég var orðin ansi lúin, stirð og ferðaþreytt svo það tók mig nokkrar mínútur að staulast úr bílnum og hjálpa til við að tjalda. Eftir að hafa skroppið á salerni skreið ég beint ofan í pokann.

Klukkan var farin að ganga ellefu þegar ég skreyddist út úr tjaldinu á laugardeginum. Meðan ég fór að pissa og tanna hellti Sonja upp á en hún var aldrei þessu vant mun fyrr á fótum heldur en ég, hafði samt farið miklu seinna inn í tjald. Við vorum sammála um að þrátt fyrir mikla leti í mér að taka okkur upp og halda heim á leið. Keyrðum af stað um tólf leytið, inn fallegan dal sem lá m.a. til Blöndóss. Ókum malbikaða kaflann og þegar við komum að gatnamótum beygðum við fyrst til hægri og gerðum stuttan túr inn á Skagaströnd. Kíktum aðeins inn í spákonusetrið og var okkur leyft að skoða okkur smá stund um án þess að borga aðgang. En það er hægt að fá fjörutíu mínútna leiðsögn og einnig kaupa sér alls konar spá; lófalestur, tarrot, lestur í bolla og örugglega eina eða fleiri í viðbót. Það verður kannski gert síðar. Næsta stopp var ekki fyrr en um hálffimm í sumarbústað við Selborgir stutt frá Borgarnesi. Þar var okkur boðið í kaffi og með því og einnig grillað lambalæri með tilheyrandi bökunarkartöflum, fersku sallati og bernessósu. Stoppið stóð því rúma tvo tíma en það var mjög gott að fá svona móttökur og láta ferðaþreytuna aðeins líða úr sér áður en síðasta spölurinn í bæinn var ekinn.

22.7.23

Fyrsta sumarfríshelgin af fimm

Jæja, þá eru fyrstu fimm virku dagarnir af tuttuguogsjö liðnir af sumarfríinu. Í gærmorgun heyrði ég ekkert þegar Oddur fór á fætur og í vinnuna enda svaf ég til klukkan langt gengin í átta. Nóttin áður var svolítið kaflaskipt því ég þurfti að skreppa á salernið um tvö leytið. Gat ekki sofnað alveg strax aftur svo það endaði með því að ég kveikti á lampanum og las um stund. Var svo sofnuð aftur um fjögur leytið og þegar ég vaknaði hafði ég sofið samtals í hátt í átta tíma, tæpa fjóra fyrri hlutann og þrjá og hálfan seinni hlutann. Um níu leytið hellti ég mér upp á kaffi og ristaði brauð. Hitti aðeins á nýja nágrannann skömmu fyrir tíu þegar ég var að leggja af stað í sjóferð. Það var mikið um að vera í Sigluvík og eins gott að passa sig þegar maður var að synda/svamla út að kaðli því bátarnir voru alls konar og margir sem krakkarnir voru að róa á og voru þau nokkur sem sigldu hluta af þeirri leið sem við sjósundsfólkið höldum okkur á. Einn drengurinn var meira að segja næstum því búinn að sigla inn í víkina. Það var ekki viljandi og hann og nokkrir krakkar hjálpuðu honum út fyrir aftur áður en hann fór yfir innri kaðalinn. En þetta var fimmta ferðin mín í sjóinn frá því á föstudaginn fyrir viku. Var komin heim aftur um hálftólf leytið. Hitaði mér helminginn af fiskafgangnum frá því daginn áður. Fór ekkert út aftur, en kláraði eina af þeim bókum sem á að skila næst, prjónaði aðeins og horfði á einhverja þætti m.a. Annars er ég líklega að fara í nokkurra daga útilegu eftir hádegi í dag svo það kemur stopp á daglegar færslur í bili.

21.7.23

Sofið út til klukkan hálf átta

Aftur var ég komin fram á undan Oddi. Svaf einstaklega vel í fyrrinótt og vaknaði um sex leytið eftir átta tíma svefn. Var ekki alveg búin að teikna upp daginn en þegar til kom varð hann nokkuð líkur þriðjudeginum. Hellti mér upp á kaffi um níu leytið og fékk mér samloku með. Var komin í Nauthólsvík rétt eftir að aðstaðan opnaði um tíu. Svamlaði og synti út að kaðli. Sjórinn 13°C og það var frekar freistandi að svamla aftur til baka. Hefði svo sem alveg getað gert það en í staðinn kom ég við í lóninu í nokkrar mínútur. Fór aðeins í gufuna áður en ég fór í langpottinn sem var mun volgari en venjulega eða um 33°C. Það var verið að vinna í að laga það og ég sat í pottinum í tæpan hálftíma. Hitta bekkjarsystur mína úr A bekknum í Kennó. Kom heim stuttu fyrir tólf. Setti í þvottavél og setti upp smá skammt af hýðisgrónum. Hafði tekið út eitt flak af þorskhnökkum fyrr um morguninn og steikti það upp úr eggjum og blöndu af byggflögum og byggmjöli. Þetta var alveg skammtur fyrir þrjá. Seinna þegar Davíð Steinn kom fram bauð ég honum að borða af afgangnum en hann var búinn að ákveða að elda sér eitthvað allt annað. Ég hellti aftur upp á um hálftvö leytið. Hægt var að hengja upp úr þvottavélinni rúmum hálftíma seinna og svo ákvað ég að skella mér í sund. Synti reyndar ekki neitt að þessu sinni en fór all nokkrar ferðir í þann kalda og magnesíum pottinn. Kalda potts vinkona mín mætti á svæðið þegar ég var búin með fyrstu ferðina í kalda. Saman fórum við amk sex ferðir og ég tvær ferðir í viðbót eftir að hún var farin. Áður en ég fór heim kom ég við í Sports og keypti mér þrjá nýja sundboli. Fann sniðið og stærðina en fátt var um liti svo allir voru bolirnir svartir. Annars lauk ég við að lesa; Systumegin eftir Steinunni Sigurðardóttur í gær.

20.7.23

Viðey

Var komin fram á undan Oddi en hann fór svo út úr húsi á undan mér. Lagði af stað fyrir klukkan hálfátta að sækja frænda sinn. Ég skellti mér í sund um átta. Synti m.a. 300 metra, fór nokkrar ferðir í kalda pottinn og í einni þeirra hitti ég á sjósundsvinkonu mína. Hún var búin að synda og var á leiðinni upp úr því hún átti von á heimsókn um níu leytið. Ég fór ekki upp úr fyrr en rúmlega hálftíu. Var komin á planið við vínbúðina rétt áður en opnaði. Keypti eina hvítvínsflösku af minnstu gerð og aðra af næst minnstugerð. Síðan fór ég heim og hellti upp á sterkt kaffi og ristaði mér brauð. Upp úr klukkan ellefu pakkaði ég niður í bakpoka, smá nesti, litlu vínflöskunni, tveimur bókum, prjónadótinu, ennisbandi, flíspeysu og vettlingum. Klæddi mig í lopapeysuna fínu og góðu og brunaði niður á Skarfabakka. Þaðan er ferja yfir í Viðey á klukkutíma fresti frá klukkan 10:15-17:15. Hádegisferjan  er sú fyrri af tveimur sem kemur frá gömlu höfninni í miðbænum. Með þeirri ferju komu tvær af fjórum úr hóp sem fer amk eina ferð á ári út í Viðey. Og við vorum tvær sem bættumst í hópinn á Skarfabakka. Þegar við komum út í eyju ákváðum við að byrja á því að nota aðstöðuna rétt aftan við Viðeyjarstofu, fá okkur smá nesti, skála fyrir okkur og skreppa svo á salerni áður en við gengum af stað vestur eftir einni. Gangan var með þeim hætti að forritið í símanum skráðin enga göngutúra en ég safnaði samt yfir tólfþúsund skrefum í heildina í gær. Komum til baka að Viðeyrjarstofu um hálffjögur. Ætluðum að fá okkur kaffi en það var enginn til að sinna þeirri þjónustu í gær, eitthvað hlýtur að hafa komið upp á því yfirleitt er hægt að fá sér kaffi og með því og jafnvel vínglas ef svo ber undir en í gær hljóta að hafa verið óvænt forföll. Hægt var að nota salernisaðstöðuna inni alveg til fimm en staðarhaldarinn dró niður fánann um það leyti og lokaði og læsti húsinu. Kirkjan var líka harðlæst og lokuð. Hinar þrjár tóku annan smá göngutúr en ég vaktaði dótið þeirra og greip í bók á meðan. Tókum næst síðasta bátinn úr eynni, 17:30, en sá bátur fer einmitt alla leið niður á gömlu höfn. Ég var komin heim um sex mjög ánægð með ævintýralega skemmtilegan dag í góðum hópi.

19.7.23

Sjórinn, bókasafn og sundið

Ég var komin á fætur á undan Oddi í gærmorgun. Hann gefur sér góðan tíma til að vakna, fara í sturtu og fá sér eitthvað. Virtist vera nokkuð tilbúinn um hálfátta, þá búinn að vera á fótum í um klukkustund. Taldi að hann hefði rúman hálftíma þar til að hann yrði sóttur. Frændinn hringdi hins vegar í hann tíu mínútum fyrir átta og var þá kominn að sækja hann. Þá átti Oddur aðeins eftir að koma sér í sokka og skó en hann hafði ætlað sér að vera kominn út áður en frændinn mætti. Það tókst semsagt ekki. Ég hellti mér upp á kaffi um níu leytið og fékk mér hressingu. Var svo mætt í Nauthólsvík um leið og verið var að opna aðstöðuna klukkan tíu. Það var ekki eins mikil fjara og á sunnudaginn en það var samt ekki hæg að vaða út að kaðli. Var að spá í að synda til baka aftur en ákvað svo að það gæti ég alveg gert seinna. Eftir tuttugu mínútur í sjónum, skrapp ég smá stund í gufuna áður en ég fór í heita pottinn. Fór upp úr stuttu fyrir ellefu og þá var fólk farið að streyma að enda veðrið gott og örugglega margir í sumarfríi. Næst lá leiðin í AO við Sprengisand þar sem ég fyllti tankinn og á leiðinni heim kom ég við í bókasafninu til að skila fjórum bókum af níu. Þrjár af þessum fjórum voru skammtímalánsbækur. Stóðst ekki freistinguna að skoða mig um sem varð til þess að það komu fimm bækur með mér heim. Þannig að nú er ég með tíu bækur af safninu. Engin þeirra skammtíma láns en eina er ég þegar búin að framlengja skilafrestinum á en ég hef til 8. ágúst. Hinar fjórar sem eftir voru heima eru með skilafrest til 3. ágúst með möguleikann á að framlengja um 30 daga. Hugsanlega get ég skilað eitthvað af þessum bókum fyrir næstu mánaðamót. Ég er amk langt komin með framlengdu bókina; Leyndir gallar eftir Elsebeth Egholm

Eftir stopp heima í hádeginu og til klukkan að ganga tvö fór ég í sund. Sá kaldapotts vinkonu mína og eina systir hennar í sólbaði en byrjaði á tveimur ferðum í kalda pottinn og 200 m sundi áður en ég heilsaði upp á þær þegar ég var á leiðinni í gufuna. Kalda potts vinkona mín kom svo með mér nokkrar ferðir í kalda og eina ferð í gufuna áður en hún lagðist aftur í sólbað og ég skrapp í sjópottinn. Ég var komin heim um hálffimm rétt á undan Oddi.

18.7.23

Bíllinn í dekur í gærmorgun

Ég var komin á fætur um sex leytið í gærmorgun. Rétt fyrir klukkan átta var ég komin fyrir utan Stórhöfða 16 en ég átti pantaðan tíma í alþrif á bílinn klukkan átta. Maðurinn sem tók á móti bílnum sagði að þetta gætu orðið tvær til tvær og hálf klukkustund. Ég var með vatnsflösku, prjónadótt, lopapeysu og tvær bækur í bakpoka. Labbaði í áttina að Grafarvogi og beygði út af á stíg rétt við brúna. Fljótlega fann ég bekk sem ég settist á. Þá var ég búin að labba rúmlega níuhundruð metra á tæpum ellefu mínútum. skipti út flíspeysunni fyrir lopapeysu, aðallega til að búa til rýmra pláss í bakpokanum. Las í tuttugu mínútur áður en ég hélt göngunni áfram. Labbaði næstu rúmu níuhundruð metra á fjórtán mínútum. Var aðeins lengur og hægari þar sem ég ákvað að taka nokkur snöpp. Fann smá skúr með  bekkjum í, útsýni yfir voginn og myndir og texta af helstu fuglum og fleiru. Las aftur í tuttugu mínútur. Þriðji spölurinn af fjórum var 1,5 km á tuttugu mínútum og sá fjórði 1,2 á rúmu korteri. Þá var klukkan að byrja að ganga ellefu. Hélt að ég gæti fengið að bíða síðustu mínúturnar á staðnum en þar var allt læst og maðurinn hlaut að hafa skroppið frá. Um ellefu reyndi ég að hringja en það var ekki svarað. Tíu mínútum síðar var hringt til baka. Þá átti eftir að bóna bílinn og sagt að hann yrði tilbúinn um hálftólf. Ég var skammt frá og tók eftir að búið var að opna aðra skúrhurðina aftur. Ég komst því inn í "biðstofu" á svæðinu á meðan verið var að ljúka við að dekra við bílinn. Alþrifin kostuðu innan við sautjánþúsund. Ég var komin heim rétt rúmlega tólf. Hellti upp á kaffi og fékk mér snarl með. Um tvö var ég mætt í Laugardalslaugina og þar var ég í rúma tvo tíma, aðallega að kæla mig í kalda pottinum.

17.7.23

Fyrsti virki frídagurinn af tuttuguogsjö

Ég var komin á fætur um hálfátta leytið í gærmorgun. Fljótlega ákvað ég að stefna á Nauthólsvík svo ég sat róleg í stofusófanum með fartölvuna í fanginu í rúmlega einn og hálfan tíma. Þá hellti ég mér upp á sterkt kaffi og ristaði brauð. Mætti í Nauthólsvík á slaginu tíu akkúrat þegar verið var að opna. Það var rólegt en samt kominn smá hópur út í sjó sem hafði komið áður en aðstaðan opnaði. Sjórinn var 11°C og það var fjara. Hægt var að vaða út að kaðli en ég synti mest alla leiðina þangað, sem var mun styttri heldur en á föstudaginn var. Það flögraði að mér að synda til baka en ákvað svo að gera það ekki. Var líklega á svamli í sjónum í tæpar tuttugu mínútur. Kom ekkert við í lóninu en settist í smástund inn í gufu áður en ég skellti mér í sturtu og fór svo í heita pottinn í tæpan hálftíma. Þegar ég kom heim var Oddur kominn á fætur. Hann var að æfa sig fyrir þriggja vikna vinnutörn framundan. Hann byrjar samt ekki fyrr en á morgun, þriðjudag. Dagurinn fór svo aftur í alls konar m.a. það sem ekki má skrifa um. 

16.7.23

Sunnudagur

Auðvitað hafðist að sofna aftur um fjögur leytið í fyrrinótt. Var svo vöknuð aftur um sjö leytið og komin í sund rétt rúmlega átta. Synti 400m á braut 2, meiri helminginn á bakinu. Fjórar ferðir í kalda pottinn, eina í heitasta, eina í gufu, og eina í sjópottinn. Þvoði mér um hárið á leiðinni upp úr og fór svo beint vestur í bæ í hitting til norsku esperanto vinkonu minnar. Stoppaði þar í einn og hálfan tíma og fór amk helmingur af þeim tíma í esperanto grúsk. En líka spjall og smá krossgátulausn. Kom heim um tólf leytið. Fór ekkert út aftur en dagurinn fór í alls konar engu að síður og margt af því sem ekki má skrifa um. 

15.7.23

Dagurinn tekinn snemma eða smá pása á nóttinni

Klukkan var ekki orðin fimm þegar ég vaknaði í gærmorgun. Var komin á fætur fyrir klukkan hálfsex. Mætti í vinnuna tveimur tímum síðar. Þar sem þetta var síðasti vinnudagurinn með sumarstúlkunni leyfði ég henni að ráða á hvorum endanum á vélinni hún vildi vinna. Hún valdi þann enda sem hún er oftast á, móttökuendann. Sá það fyrir sér að þar væri meira að gera. Allri framleiðslu var lokið fyrir klukkan tólf, líka síðasta partinum af endurnýjuninni sem var hlaðið inn fyrir tæpum tveimur vikum. Hætti vinnu um tvö. Kom við í Fiskbúð Fúsa og keypti harðfisk og ýsuflök. Síðan lá leiðin beinustu leið í Nauthólsvík. Synti út að kaðli og kom við í lóninu á leiðinni í heita pottinn. Var komin heim um fjögur. Hellti mér upp á sterkt kaffi og fékk mér smá snarl. Um sex leytið setti ég upp örfáar kartöflur og um hálfsjö skellti ég ýsuflökunum í kryddað sjóðandi vatn í pott. Bauð Oddi að borða með mér, N1 sonurinn var á aukavakt. Oddur þáði reyndar ekki boðið en ég setti smjör út á matinn minn og opnaði 275ml flösku af hvítvíni sem ég er búin að eiga síðan stuttu fyrir jól.

14.7.23

Hraðferð á loginu

Eftir nokkurra daga veðurblíðu hefur sólin dregið sig í hlé um stund og gular veðurviðvaranir í kortunum vestan megin á landi til morguns. Það fær að hafa sinn gang mín vegna enda ekkert sem ég get gert betur í því heldur en að halda mínu striki. Ég var mætt í vinnu í gærmorgun um hálfátta. Var aftur á ítroðsluendanum og sumarstúlkan á móttökuendanum. Hún var enn þrælkvefuð en þrátt fyrir það hörku dugleg. Við kláruðum daglega framleiðslu fyrir klukkan tólf, eitthvað um fimmhundruð kort og fórum langt með eina endurnýjun, skildum aðeins 275 kort eftir af sautjánhundruð og vorum samt búnar að ganga frá deildinni og komnar upp um þrjú. Flestir í hinum deildunum voru farnir. Ég og fyrrum fyrirliði fórum krókaleiðir í Laugardalslaugin þar sem verið var að malbika Sundlaugarveg. Hittum fyrrum vinnufélaga þegar við skruppum í sjópottinn. Þegar ég var að verða tilbúin í að synda fylltist laugin af alls konar fólki sem bæði var að synda og leika. Ég tók þetta sem svo að ég færi bara fleiri ferðir í kalda pottinn og magnesíum pottinn. Fór einnig eina ferð í gufu og heitasta pottinn. Klukkan að ganga fimm skrapp ég í Krónuna við Granda. Þegar ég kom heim með vörurnar hringdi ég í Odd til að sækja pokana tvo. Hringdi í pabba áður en ég fór sjálf með mitt dót úr bílnum. Danska frændfólkið hafði kíkt á hann í gær, þ.e. Gerður og börnin hennar. Það er að styttast tíminn þeirra hérna og kannski fer það svo að ég nái ekki að hitta aðeins á þau í þetta sinn.

13.7.23

Sópað upp

Í gærmorgun, sem hófst mjög snemma, var ég vöknuð um fimm leytið og komin á fætur skömmu síðar. Tíminn fram að brottfarartíma leið samt ógnar hratt. Þegar ég var lögð af stað í vinnuna kviknaði ljós í mælaborðinu sem sýndi að það væri kominn tími til að athuga með þrýstinginn á dekkjunum. Fór því aðeins aðra leið í vinnu og kom við á N1 í Borgartúni. Þar keyrði ég einn hring án þess að finna það sem samt er þarna, loft til að bæta á dekkin. Ég keyrði því einnig framhjá Olísstöðinni sem er rétt hjá vinnunni og var mætt í vinnuna á svipuðum tíma og venjulega, eða um hálfátta. Um átta var sumarstúlkan ekki mætt en það kom í ljós hálftíma síðar að hún hafði hringt sig inn veika en sá sem tók á móti símtalinu taldi að um annan starfsmann væri að ræða. Fyrrum fyrirliði var í bókhaldinu og á móttökuendanum. Ég var í ítroðslunni og pökkuninni. Tímann milli átta fimmtán og þrjú eftir hádegi, með morgunkaffi, fundarpásu og hádegishléi, framleiddum við og pökkuðum tólfhundruð kortum og lukum þar með að vinna upp eftir stoppið. Sendum fjóra bakka upp með lyftunni um þrjú en höfðum komið upp með einn bakka um hádegið. Þrír af þessum pökkum fara í póst í dag í hinum tveimur voru kortið sem fara í útibú í dag og þau eru færð yfir í aðra bakka. Fór því með tvo tóma bakka og allar skuldfærslubeiðnirnar niður rétt fyrir hálffjögur. Hætti vinnu tuttugu mínútum síðar. Var með sunddótið með mér en ákvað að fara fyrst í bíltúr upp í N1 við Gagnveg. Þar veit ég nákvæmlega hvar loftið er og gat heimsótt N1 soninn í leiðinni. Eftir stoppið þar keyrði ég í Gegnum Grafarvog og endaði svo heima um fimm leytið. Skrópaði semsagt í sundið.

12.7.23

Mið vika

Var vöknuð á undan klukkunni eins og oftast. Eftir morgunverkin á baðherberginu og vítamín inntöku settist ég í stofusófann með fartölvuna í fanginu. Að sjálfsögðu var gluggað í fréttir og myndbrot af gosinu. Mætti í vinnu um hálfátta. Var í bókhaldinu en þegar ég ætlaði að útbúa fyrstu tölur var enginn póstur í sameiginlega pósthólfinu. Fyllti á vatnsflöskuna og settist inn í kaffistofu með kaffibolla og prjónana mína. Um átta leytið fórum við allar þrjár niður. Fyrrum fyrirliði var á ítroðsluendanum og þar var allt með eðlilegum hætti, þ.e. allar framleiðsluskrár höfðu skilað sér. Ég hringdi í kerfisfræðinginn og hann sagði að þá hefði málið eitthvað með póstsendingar að gera. Fyrrum fyrirliði skrapp upp til að athuga hvort sameiginlega innboxið væri líka tómt hjá henni, sem það var. Á meðan hún hafði samband við einhvern sem sér um að þjónusta þetta kerfi RB megin og einnig senda skilaboð til þeirra sem senda okkur listana, tók ég við að hlaða inn skránum og handskrá niður á blað. Sumarstúlkan fékk svo blaðið til að taka til í tegundirnar. Þegar fyrrum fyrirliði kom niður aftur tók hún að sér að fara upp með blaðið og ljósrita það áður en hún kom og leysti mig af. Listarnir skiluðu sér um hálftíu og það náðist að setja eitt útprentað blað með í töskuna áður en hún var sótt, ljósritaða handskrifaða blaðið fór einnig með töskunni. Svo tók við smá bið eftir að viðgerðarmaður kæmi til að setja varahlutinn í prentarann. Höfðum samt alveg nóg að sýsla við á meðan. Ég fékk fyrrum fyrirliða til að hleypa mér inn í kortahvelfingu (það þarf tvo til að opna) og þangað fór ég vopnuð töng og dúkahníf til að opna og skoða í kassana sem komu í hús á mánudaginn. Góðu fréttirnar eru þær að það eru ekki gulir miðar á milli kortanna en þegar við förum að telja kassana inn mun þurfa að "hátta" þá úr plastinu og "klæða" aftur í, því teljararnir ráða ekki við að telja þessi kort í gegnum plastið. Og þetta eru yfir 70 kassar. Það verður eitthvað. Viðgerðarmaðurinn mætti rétt fyrir ellefu og varahluturinn var kominn í rúmu korteri síðar og vélin og framleiðslan á form komin af stað. Framleiddir voru tveir af þremur dögum og var framleiðsla gærdagsins látin bíða til dagsins í dag. Hættum vinnu um hálffjögur og fór ég beint í sund. Synti meira að segja 300 metra eftir fyrstu ferðina af fjórum í kalda pottinn. Eftir síðustu ferðina í þann kalda sat ég á stól í hátt í hálftíma áður en ég fór upp úr og heim. 

11.7.23

Þriðja gosið á rúmum tveimur árum

Það hlaut að enda með gosi. Jörðin við Litla Hrút á Reykjanesi gaf loksins eftir upp úr klukkan hálffimm. Þá var ég líklega að tala við pabba minn rétt áður en ég fór í sund því ég heyrði fyrst af þessu um sex leytið. Var í vinnu milli hálfátta og fimm. Varahluturinn kom loks í hús um það leyti en þar sem hann kom svona seint var ákveðið að bóka viðgerðarmanninn ekki fyrr en um tíu í dag. Það var samt nóg að gera í vinnunni því það komu kortasendingar í hús á föstudag og í gær og það er meira en að segja það að taka upp og telja þúsundir korta, sérstaklega þegar þarf að plokka gula miða sem eru á milli allra korta. Hægt er að telja kortin þótt miðarnir séu í en það verður að plokka þá úr áður en kortin eru notuð í framleiðslu svo að er eins gott að gera þetta bara strax. Vorum þrjár að þessu og plokkuðum úr rúmlega 60 300 korta kössum í gær á ca fjórum og hálfum tíma. Það er þriðjungurinn af sendingunni svo þetta verkefni mun taka meiri tíma og ná yfir fleiri daga, því við munum ekki geta setið eins við þegar vélin verður komin í gang. Þetta verður ekki búið áður en ég fer í frí. En við botnum ekkert í þessar vitleysu að setja gula miða á milli plastanna, þetta er langt frá því að vera umhverfisvænt... 

10.7.23

Veðurblíða

Ég var risin úr rekkju stuttu áður en fyrsti skjálftinn yfir fjórum reið yfir stuttu fyrir klukkan hálfátta í gærmorgun. Fann ekki hristinginn sjálfan þar sem ég var á vappi en varð samt vör við hann. Hins vegar fann ég vel fyrir þeim næsta rétt rúmri klukkustund síðar en þá sat ég í stofusófanum með fartölvuna í fanginu alveg hissa á mér að vera ekki farin í sund. Var mætt í laugina um níu. Hitti á sjósundsvinkonu mína. Ég byrjaði á því að fara í kalda pottinn, synti svo tvöhundruð metra áður en ég fór aftur í kalda pottinn. Fór alls sjö ferðir í þann kalda en aðeins einu sinni í flesta af hinum pottunum, laugina og gufuna. Sleppti þó 42°C pottinum en fór aldrei þessu vant smá stund í nuddpottinn því sjósundsvinkona mín var þar. Eftir síðustu ferðina í kalda settist ég á stól og sólaði mig í næstum hálftíma. Kom heim rétt fyrir tólf. Hellti mér upp á sterkt kaffi og fékk mér eitthvað að borða með. Hlustaði á hádegisfréttir, prjónaði smá og horfði á einn Hawaii 5-O þátt áður en ég fór út í göngutúr. Sá túr átti bara að vera stuttur en endaði á því að verða rúmir fjórir kílómetrar í heildina með smá niðursetningi í milli tíðinni. Labbaði upp að Perlu og þaðan yfir í kirkjugarðinn. Staldraði um stund við leiði móðurforeldra minna og móðurbróður. Rölti svo áfram og út úr garðinum hinum megin við Öskjuhlíð. Þar fann ég fljótlega mjög freistandi bekk á góðum stað og settist niður um stund. Gangan heim var svo meðfram Öskjuhlíðinni framhjá HR og einnig Valssvæðinu. Sá spölur var lengri eða hátt í 2,5. Gangan úr kirkjugarðinum að bekknum var það stutt að hún var ekki skráð sem ganga en leiðin að heiman og að leiðinu var tæpir 2 km. Klukkan var byrjuð að ganga fjögur þegar ég kom heim aftur. Þá lauk ég við að lesa eina af skammtímalánsbókunum af safninu; Dauðaleit eftir Emil Hjörvar Petersen. Mjög svo spennandi bók þar sem aðal söguhetjan skreppur á Hellu og stelst/brýst inn í einn hellinn við Ægisíðu m.a. Ég var svo komin upp í rúm og að lesa þegar stærsti skjálfti gærdagsins og sá stærsti síðan þessar hræringar hófust fyrir tæpri viku, 5,2. Mjög snarpur og langur.

9.7.23

Bongó í borginni

Var snemma á fótum í gærmorgun þótt um helgi væri að ræða, um sex leytiö. N1-sonurinn ekki heima, í bústað í Helludal með systurdóttur minni, kærasta hennar og nokkrum vinum. Hinn sonurinn steinsvaf. Ég var mætt í sund rétt eftir að opnaði. Þar er verið að lagfæra ýmislegt og sumum hefðbundum gönguleiðum að pottum og laug lokað svo fara þurfti krókaleiðir. Það var og er í góðu lagi. Fyndið samt hvað er skrýtið að fara aðrar leiðir. Fór fjórar ferðir í kalda, synti 300 metra, 1 ferð í heitasta, 1 ferð í sjópottinn og svo sat ég smástund í sólbaði áður en ég fór og þvoði mér um hárið á leiðinni upp úr. Var komin til esperanto vinkonu minnar upp úr klukkan tíu. Stoppaði hjá henni í rúman klukkutíma. Kom heim rétt fyrir tólf. Um hálftvöleytið fór ég í stuttan göngutúr. Hitti nágrannana á neðrihæðinni í sólbaði í garðinum, bæði þegar ég fór og þegar ég kom aftur. Hitti líka einn af hópnum "Ljótu hálfvitarnir" á göngunni en sá er pabbi eins ungs manns úr árgangi tvíburanna. Hringdi í pabba sem var að brasa við að koma sólstólunum út á pall. Annars er svo sem lítið að frétta. Ætlunin er að njóta tímans alla daga við alls konar og ekki neitt og allt þar á milli.

8.7.23

Sumarblíða

Vaknaði snemma löngu á undan vekjaraklukkunni. Sat inni í stofu með fartölvuna í fanginu þegar atvinnulausi sonurinn kom fram til að fara á salernið áður en hann færi að sofa um hálf sjöleytið. Hálftíma á eftir honum kom N1 sonurinn fram. Hann var á aukavöktum á miðvikudag og fimmtudag í Borgartúni og upp í Mosfellsbæ. Í gær fór hann á sína vakt á Gagnveg en sagðist svo vera búinn að skipta út helginni. Ég var mætt í mína vinnu rétt rúmlega hálfátta. Var aftur í bókhaldinu. Lítið var hægt að gera í framleiðslunni þar prentarinn er bilaður og beðið er eftir varahlut. Einungis var hægt að framleiða þau kort sem ekki fara á form og í umslag. Tel mig mega skrifa um þetta þar sem bankarnir hafa verið upplýstir. Framleiðslu og talningu var lokið fyrir klukkan tíu. En við gátum hjálpað til í öðrum deildum. Flestum verkefnum var svo lokið um tvö leytið og held að allir hafi verið komnir út í góða veðrið áður en klukkan sló þrjú. Ég var með sunddótið með mér en endaði einhvern veginn heima. Slakaði á í tæpa tvo tíma en heimsótti dönsku nöfnu mína og frænku og kisuna Pixý. Sambýlismaður frænku minnar var að vinna að verkefni en hann kom aðeins og heilsaði upp á mig þegar ég kom. Við frænkur settumst fyrst út á svalir í dágóða stund. Kisu var heitt og hún lá inni í innréttaðri tösku og var vifta á gólfinu fyrir utan til að kæla aðeins loftið í kring. Þegar við frænkur komum aftur inn hafði kisa fært sig í stofu sófann. Hún vildi alveg spjalla smá stund við mig. Ég var komin heim aftur um sjö leytið.

7.7.23

Helgi framundan

Rumskaði aðeins einu sinni í fyrrinótt þegar einn sterkur reið yfir. Sofnaði strax aftur, svaf vel og var eitthvað að dreyma. Mætti í vinnu um hálfátta. Ég var í bókhaldinu svo ég undirbjó fyrstu tölur. Daglegri framleiðslu lauk um tólf. Sumarstúlkan er skráð á eldhúsvakt þessa vikuna ásamt föstum starfsmanni. Ég leysti sumarstarfsmanninn af í eldhúsinu þegar hún var búin að þurrka af borðum. Fasti starfsmaðurinn er forkur til vinnu. Hún var alveg til í að sjá um fráganginn ein en ég fékk þó að tæma úr nokkrum döllum og þurrka af borðinu sem matnum er stillt upp á, á meðan hún skolaði föt, skálar og fleira og raðaði inn í kassana sem maturinn kemur í. Um fjögur fórum við fyrrum fyrirliði í samfloti yfir í Laugardalinn og lögðum bílunum á planinu við sundlaugina. Hittum kalda potts vinkonu mína í kalda pottinum. Fyrrum fyrirliði var þar aðeins í smá stund áður en hún skrapp í magnesíum pottinn, aftur í kalda og svo á braut tvö. Hittum hana aftur í kalda þegar við vorum í fjórðu sameiginlegu ferðinni af sex. Kaldi potturinn um 10°C sem sleppur en hann mætti vera tveimur til þremur gráðum kaldar að mínu mati. 

6.7.23

Hræringar

Rumskaði um tvö leytið í fyrrinótt til að skreppa á klóið. Var ekki búin að festa svefninn aftur þegar rúmið hristist. "Jæja, er þetta að byrja aftur", hugsaði ég með mér alveg róleg. Vissi ekki þá að þetta hafði byrjað um fjögur leytið daginn áður. Þá var ég í sundi. Gat ekki sofnað djúpsvefni aftur. Hugurinn fór á flug og á einhverjum tíma punkti ákvað ég að lesa í smá stund. Kláraði eina af þremur skammtímaláns bókunum. Ljóða bók sem varð til þegar höfundur var á listamannalaunum í þrjá mánuði fyrir örfáum misserum síðan. Um þrjú leytið gerði ég heiðarlega tilraun til að reyna að sofna aftur. Það tókst ekki 100%, fannst ég alltaf vita af mér og öðru hvoru fann ég fyrir jarðhreyfingunum eða heyrði í "húsinu" hreyfast. Fór á fætur um hálfsex. Mætti í vinnuna rétt áður en hún varð hálfátta. Ég var á ítroðsluendanum og sumarstúlkan á móttökuendanum. Fyrrum fyrirliði var í bókhaldinu en hún kom niður með okkur með fyrstu tölurnar og til að ganga frá kortategundum til að senda eigenda sem hættir eru að nota þjónustu hjá okkur. Visa skrár voru hvorki í möppu né skrám svo ég þurfti að hafa samband við kerfisfræðinginn. Hann ýtti á eftir þessum skrám og þær komu um hálfníu. Milli klukkan hálfníu og hálfþrjú framleiddum við rúmlega fimmtánhundruð kort, þarf af tæplega níuhundruð í endurnýjun. Ég ákvað svo að fara bara beint heim eftir vinnu og hella mér upp á sterkt og gott kaffi. Hékk uppi alveg til klukkan að verða níu. Las í tæpan hálftíma áður en ég fór að sofa. Rumskaði eitthvað við jarðhreyfingar en steinsvaf að mestu leyti í alla nótt alveg í góða átta tíma. 

5.7.23

Jarðskjálftar

Ég var komin á fætur um sex leytið í gærmorgun. Um hálfsjö heyrði ég í vekjaraklukku N1-sonarins en þegar klukkan var að verða sjö og ekkert bólaði á syninum hringdi ég í hann til að ýta við honum. Við mæðgin vorum því samferða út úr húsi korter yfir sjö. Ég var mætt í mína vinnu rétt fyrir hálfátta. Var á móttökuendanum á vélinni. Framleiddum yfir sjöhundruðogfjörutíu dagleg kort milli klukkan hálfníu og tólf. Fyrrum fyrirliði var í bókhaldinu en hún kom og leysti okkur af um það leyti sem við vorum að klára frágang. Hún tók að sér að hlaða inn endurnýjun og taka á móti mönnunum sem voru að koma í yfirferð á vél. Þeim seinkaði smá en annar var mættur á svæðið þegar ég kom úr mat og hinn kom nokkru síðar. Yfirferð var lokið stuttu fyrir fjögur og var testkort sent í gegn til að athuga hvort vélin væri örugglega ekki tilbúin að vinna vinnuna sína. Ég var komin í sund um fjögur. Kalda potts vinkona mín var búin að fara eina ferð í kalda en beið eftir mér í 42°C pottinum. Fórum fimm ferðir í viðbót í kalda, 3 ferðir í 44°C pottinn, eina í gufuna og eina í sjópottinn. Á heimleiðinni kom ég við í bókasafninu í Kringlunni og skilaði 7 bókum af níu. Auðvitað "fann" ég sjö bækur í staðinn og þrjár af þeim á skammtímaláni. Þær tvær bækur sem voru eftir heima af síðasta útláni eru með skilafrest til 10. júlí með möguleikann á að framlengja um 30 daga. Alltaf gaman að lesa.

4.7.23

Sumarveður

Hitastigið í borginni fór á tímabili í amk tuttugu gráður og veðrið hélst gott allan daginn. Ég var í vinnu milli hálfátta og hálffjögur. Var með sjósundsdótið með mér í bílnum og renndi beint í Nauthólsvík. Öll stæði nálægt full og ólöglega lagt á sumum stöðum þótt það væri nóg af stæðum við HR. Ég vissi að það væri nóg pláss í sjónum og mér fannst ekkert mál þótt ég hefði þurft að labba lengri spöl en venjulega. Það sem ég setti fyrir mig og varð til þess að ég ákvað að hætta við að skreppa í 12,3°C sjórinn var að ég var viss um að það væri fullt og troðningur í klefaaðstöðunni og heita pottinum. Kannaði það reyndar ekki en það voru margir bílar á svæðinu og fleiri að koma um sama leyti og ég. Lenti reyndar í umferðarsultu á leiðinni til baka sem náði frá hringtorginu við HR og að gatnamótunum við Flugvallaveg, þar sem maður beygir annað hvort í áttina að Bústaðaveg eða til vinstri vestur í bæ. 

3.7.23

Veðurblíða í morgunsárið

Bríet og Bjarki fóru á fætur stuttu fyrir átta í gærmorgun og drifu sig fljótlega af stað á skotkeppnina í bæinn. Ég var komin fram skömmu áður en þau fóru og náði að kveðja þau. Kveikti á tölvunni hans pabba og sat við hana í um einn og hálfan tíma áður en ég fór fram í eldhús og hellti upp á kaffi. Pabbi kom á fætur um tíu en hafði að sjálfsögðu verið búinn að koma fram fyrr um morguninn, nokkru á undan unga parinu. Um eitt leytið setti ég upp kartöflur og steikti bleikjuflök. Vorum að klára að borða þegar bronsleikur U-21 í handbolta hófst. Ég tók að mér uppvaskið en náði rúmlega helmingnum af fyrri hálfleiknum og öllum seinni hálfleiknum. Þvílíkur leikur. Pabbi skrapp svo í smá göngutúr, labbaði í smá hring sem er sennilega um 700 metrar. Ég fór bara út á pall í smá stund. Hellti aftur upp á könnuna um fjögur og fékk mér pönnsu með kaffinu. Unga fólkið skilaði sér heim um fimm, um það leyti sem ég var að taka mig saman og kveðja. Keyrði Suðurstrandaveginn og gegnum Grindavík, bæði að gamni mínu en líka til þess að losna við mestu umferðina og geta keyrt á sem jöfnustum hraða megnið af leiðinni. Strákarnir voru hjá pabba sínum og fjölskyldu, komu heim á ellefta tímanum. Helga systir hringdi í mig um átta leytið og við spjölluðum í dágóða stund. Það kom í ljós að bíllinn þeirra sem þau voru á fyrir vestan hafði bilað í sama firði og ég fann I-Padinn fyrir þremur árum.

2.7.23

Á Hellu

Ég var mætt í Laugardalslaug stuttu eftir að opnaði. Var búin að fara tvær ferðir í kalda og eina í þann heitasta áður en ég fór á braut 2 og synti 600 metra, næstum alla á bakinu en ca hálfa (25m) leið skriðsund. Fór tvær aðrar ferðir í kalda, sem þessa dagana er ekkert svo kaldur, og eina ferð í sjópottinn áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Eftir sundferðina fór ég beinustu leið vestur í bæ til esperanto vinkonu minnar. Hún bauð upp á graut og kaffi og svo lögðumst við aðeins yfir tilbúna tungumálið. Upp úr klukkan ellefu vorum við hættar að lesa en vorum að spjalla og spá í sumrinu framundan. Þá hringdi Bríet í mig. Hún var stödd á skotsvæðinu við Hafnarfjörð þar sem var grenjandi rigning og hana vantaði handklæði. Hún hafði fyrst reynt að hringja í frænda sinn sem er nýkominn með bílprófið en hann var þá kominn vestur á firði. Held að hann hafi kíkt á bifhjólamót við Trékyllisvík en svo hélt hann ferðinni áfram með smá stoppum hér og þar til að taka myndir og hvíla sig aðeins á akstrinum. Hann tók bensín á Ísafirði seinni partinn og var kominn til Patreksfjarðar á tíunda tímanum. Þar í kring ætlaði hann að finna sér gistingu. En þessi ungi maður kemur heim í kvöld því hann á vinnuvakt næstu tvo daga. Fylgdist með honum á snap-kortinu og sá þá einnig að Lilja vinkona var stödd á Hellu. Hún og eldri systir hennar fóru með blóm á leiði foreldranna og voru svo boðnar í grill hjá Kalla og Kristínu. Sendi þeim kveðju í gegnum snappið.

Kvaddi Inger og brunaði heim. Pakkaði niður fyrir mig og tók með mér handklæði. Bríet hafði sent mér staðsetninguna í sms og ég notaði leiðbeinandi forrit í símanum til að koma handklæðinu til hennar. Þau Bjarki voru að keppa á skotfimi móti þessa helgina. Komu austur um sex leytið í gær og brunuðu svo í bæinn um átta leytið í morgun. Ég fyllti á tankinn á AO við Kaplakrika og keyrði svo Þrengslin austur. Kom við í Fossheiðinni og fékk óvænt að heyra í tvíburahálfsystur minni sem var að spjalla við mömmu sína þegar ég mætti. Pabbi er búinn að vera á óvenju miklu flandri undan farið en hann var rólegur heima við í gær að horfa á undanúrslitaleik í mjólkurbikardeild kvenna. Helga systir hringdi í hann eftir að ég var komin. Hún var á leiðinni heim úr vinnu frá Akureyri og sagði honum ýmislegt um vikuna sem þau hjónin voru með vinafólki í "vinnuferð" á Hesteyri í síðustu viku (frá þriðjudegi til þriðjudags).

Borðaði eitt harðsoðið egg í kvöldmatinn en seinna um kvöldið drakk ég tvö hvítvínsglös, borðaði stjörnupopp í boði Bríetar, ís í boði pabba og horfði á síðustu tvo þættina um Max Anger.

1.7.23

Nýr mánuður

Vaknaði um sex leytið í gærmorgun. Næstum sami gráminn og undanfarna daga en ég var og er ákveðin í því að láta ekki veðrið fara neitt í taugarnar á mér. Bíllinn var fyrir framan númer 3 síðan ég kom heim úr sundi í fyrradag, fínt að safna nokkrum skrefum. Var mætt í vinnu um hálfátta. Tók kerfin af niðri en settist svo inn í kaffistofu með kaffibolla og prjóna eftir að hafa fyllt á vatnsflöskuna. Við sumarstúlkan skiptum svo um hlutverk þegar við fórum niður í framleiðsluna um átta. Byrjuðum samt á því að senda sex póstpakka upp með með lyftu eitt. Í þeim var endurnýjunin sem við lukum við að framleiða á fimmtudaginn. Fyrrum fyrirliði var í bókhaldi og mánaðamótauppgjöri. Hún sá líka um að útbúa fylgiskjöl með póstsendingunni. Heildarfjöldi í daglegu framleiðslunni var um sex hundruð kort. Vorum búnar að framleiða þau um tólf þannig að þegar við fórum aftur niður eftir mat áttum við bara eftir að pakka, telja og ganga frá. Það var búið fyrir klukkan hálftvö. Sumarstúlkan fór þá beinustu leið í verkefni uppi. Ég fylgdist aðeins með fyrrum fyrirliða í hennar störfum og við spjölluðum um ýmislegt í kringum þau. Var komin í Nauthólsvík rétt fyrir þrjú. Það var að nálgast háflóð, sjórinn 10,6°C og ég synti út að kaðli. Bjargaði fötu ég fann rétt utan við bryggjugarðinn. Það var pínu strempið að synda með hana en starfsmenn svæðisins tóku við henni og þökkuðu mér fyrir að hafa "veitt" fötuna upp úr sjónum.

Það er komið svar við fyrirspurn minni um hvenær hægt verður að byrja á framkvæmdum við gluggana. Þeir verið mældir upp innan þriggja vikna og það tekur einhvern tíma að smíða þá. Aðilarnir eru að fara í stórt gluggaverkefni en það lítur allt út fyrir að það verði komið fram í október/nóvember áður hægt verður að fara í mína glugga. En ég ætla að leyfa mér að vera bjartsýn og ákveða að veðrið muni ekki hamla framkvæmdunum og að þetta verði búið áður en jólamánuðurinn rennur upp. 

30.6.23

Tilboð í gluggamál

Það var nokkuð þungt yfir í gærmorgun og er enn. Þá er langbest að brosa breitt út í bæði og láta veðrið alls ekki hafa áhrif á sig. Var mætt í vinnu á sama tíma og oftast. Ég var á ítroðsluendanum og sumarstúlkan á móttökuendanum. Stuttu fyrir klukkan tólf vorum við búnar að framleiða allt daglegt og um tvöhundruðogáttatíu kort sem voru til endurnýjunar, alls eitthvað um þúsund kort. Eftir hádegi voru endurnýjuð á áttundahundrað kort í viðbót sem tók okkur aðeins um einn og hálfan tíma. Kláruðum endurnýjunina og vorum búnar að ganga frá og telja lagerinn um tvö leytið. Ég fór í sund skömmu síðar. Var að synda þriðju og síðustu ferðina, 300m, þegar kalda potts vinkona mín mætti á svæðið. Fórum sex ferðir í kalda, tvær í magnesíum pottinn, eina í heitasta, eina í sjópottinn og eina í gufu. Var komin heim um hálffimm. Á níunda tímanum um kvöldið kveikti ég á netinu í símanum og sá það að það var kominn póstur frá þeim sem ætlaði að koma og skoða gluggamálin og gera mér tilboð í síðustu viku. Hann var semsagt búinn að koma og taka mynd af öllum gluggum á minni hæð mín meginn í húsinu. Hann áætlaði að ef þyrfti að skipta þeim öllum út myndi það kosta rúmar þrjár millijónir með virðisauka, vinnu og pöllum. Þetta var eitthvað sem ég var alveg búin að ímynda mér og er alveg tilbúin í. Mun ekki einu sinni eyða helmingnum af því sem ég hef safnað svo líklega er verið að segja mér að það sé óhætt að fara að huga að framkvæmdum innan hús líka. Þyrfti eigilega að fjárfesta í nýju eldhúsi, mála alla íbúðina og það væri líklega ekki verra ef ég hugaði líka að rafmagnsmálunum. Held áfram að safna og spara en fer líka að leita tilboða þegar ég verð búin að raða upp verkefna listanum í það sem þarf að gera fljótlega og það sem má kannski bíða.

29.6.23

Dumbungur

Var komin á fætur um sex eftir rúmlega átta tíma svefn. Mætti í vinnu um hálfátta og var síðasta daginn í bili í bókhaldinu. Dagleg framleiðsla var yfir sexhundruð kort og svo voru framleidd rúmlega þrjúhundruð kort af þrettánhundruð korta endurnýjun. Var mætt í sund um þrjú. Hringdi í pabba, hann hafði ekki lenti í neinum aukaævintýrum í gær heldur stundað sína hefðbundu virku daga rútínu. Það var nokkuð létt í honum hljóðið. Hann hafði heyrt aðeins í Helgu systur sem var í vinnuferð á Hesteyri með manninum sínum og vinafólki í heila viku. Ég synti 200m, fór fjórar ferðir í kalda pottinn, eina í gufu, eina í sjópottinn og eina í heitasta pottinn. Mætti kalda potts vinkonu minni í sturtu þegar hún var að koma en ég að fara upp úr og heim um fjögur leytið.

28.6.23

Mið vika

Ég var komin á fætur um fimm leytið í gærmorgun. Það flögraði að mér að drífa mig bara í sund um hálfsjö, fyrir vinnu, en það fór þó svo að ég fór ekki út úr húsi fyrr en rúmum tveimur tímum seinna. Mætti í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. Var áfram í bókhaldinu. Daglegri framleiðslu lauk fyrir tólf, samt voru yfir sexhundruð kort í framleiðslu í heildina. Í hádeginu var send til okkar endurnýjun. Kerfisfræðingur þurfti að handkeyra hana yfir en er nú búinn að stilla kerfið þannig að ef sent er á tímabilinu hádegi til tvö mun hún keyrast sjálfkrafa yfir. Endurnýjuninni var hlaðið inn en svo ákveðið að láta gott heita þótt klukkan væri ekki orðin tvö. Í staðinn fórum við í önnur verkefni uppi. Ég hringdi í pabba stuttu fyrir þrjú þegar ég var á leiðinni í sund. Hann sagðist hafa í bæjarferð um morguninn, þurfti að sleppa sundi til að vera mættur í sjónmælingu í Mjóddinni á réttum tíma. Nú er í undirbúningi umsókn um framlengingu á ökuskírteini og þótt sjónin sé óbreytt þá þarf hann líka að hafa samband við heimilislækni og fara í einhvers konar viðbraðga og færnimat áður en leyfi verður gefið út. Núverandi skírteini rennur út í haust.

Í sundi aðallega pottunum og gufunni hitti ég ruslastrákana mína og kalda potts vinkona mín mætti á svæðið þegar ég var í þriðju ferðinni í kalda pottinum sem er ekkert svo kaldur núna, líklega heitarin en sjórinn eitthvað nálægt tólf gráðum. Gátum því setið lon og don í pottinum án þess að færi neitt að bíta í tærnar. Nú er líka búið að opna heitasta pottinn aftur eftir að búið er að gera hann allan upp og laga. Hann er mjög flottur en ég stoppa ekki eins lengi í honum og kalda pottinum. Fór tvær ferðir í þann pott og tvær í gufuna en synti ekkert. Kom heim klukkan að ganga sex. Vafraði aðeins um á netinu, horfði á þætti, prjónaði yfir fréttunum en var komin í rúmið fyrir klukkan níu og las aðeins í um tuttugu mínútur áður en ég fór að sofa.

27.6.23

Frænkunöfnuvinkonuhittingur

Vaknaði frekar snemma í gærmorgun. Var mætt í vinnuna áður en klukkan sló hálfátta. Ég vissi að ég átti að vera í bókhaldinu svo ég útbjó fyrstu tölur og tók þær með mér niður þegar ég fór þangað til að kveikja á vélinni. Framleiðslu lauk rétt fyrir tólf, eitthvað á sjötta hundrað kort í heildina. Eftir hádegi var vélin ryksuguð. Ég stimplaði mig út úr vinnu um tvö leytið. Hringdi í pabba þegar ég var á leiðinni í Nauthólsvík. Hann var að koma frá Selfossi til að láta mæla upp bílinn. Rafgeymirinn var tómur í gærmorgun (sennilegast hefur logað ljós inn í bílnum sem tæmdi geyminn yfir helgina). Pabba labbaði því í sund í gærmorgun og fékk svo far til baka með einum sundfélaganum sem gat gefið honum start í leiðinni. Ég synti út að kaðli og var ca korter að svamla þangað og sat svo annað eins í heita pottinum. Kom heim um fjögur. Um hálfsjö sótti ég fyrrum samstarfskonu sem vann líka með og vingaðist við eina frænku mína fyrir mörgum árum. Þær tvær voru ekki búnar að hittast síðan fyrir Covid. Nafna mín bauð okkur kjúklingasallat og lagði á borð inni í sólhúsinu sínu. Hún var ein heima því maðurinn hennar var í veiðiferð með amk öðrum eða báðum sonum þeirra. Tíminn flaug, mikið spjalla og spekulerað og klukkan var langt gengin í tíu þegar við kvöddum. Ég fór því í rúmið mun seinna en vanalega en las nú samt til klukkan að verða ellefu.

26.6.23

Síðasta vikan í júní hafin

Ég var glaðvöknuð um sex leytið í gærmorgun. Dreif mig á fætur og eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Þarna sat ég í góðan einn og hálfan tíma. Klukkan var samt ekki orðin átta þegar ég slökkti á henni aftur. Fór þá aðeins á netið á símanum að skoða snapp frá Huldu frænku. Hún hafði verið í hlöðupartýi, mússík og ljósaveisla, unglingar og heimalingar. Sá lítið af unglingunum því frænka mín snappaði af sér knúsa einn heimalinginn. Svo fraus síminn og ég var dágóða stund að fá hann aftur í gang. Í ágúst verða þrjú ár síðan ég keypti þennan síma og þrátt fyrir að geta nýtt símastyrkinn úr vinnunni á þriggja ára fresti þá langar mig alls ekki í nýjan síma strax, vil helst geta nýtt þennan áfram amk í 1-2 ár enn. Sjáum hvað setur. Var mætt í sund rétt fyrir klukkan hálfníu. Synti 500m, fór 4 ferðir í kalda pottinn, 1 í sjópottinn og 1 í gufuna. Kom heim aftur um hálfellefu og hellti mér upp á sterkt og gott kaffi eftir að hafa stungið í eina þvottavél. Dagurinn leið jafn hratt og allir aðrir daga. Notaði hann mis skynsamlega en ég er ekkert svekkt út í sjálfa mig þótt ég hafi ekki alveg sinnt sumum verkefnum sem liggja fyrir. Um fimm leytið hringdi fyrrum samstarfskona og jafnaldra í mig. Við áttum langt og gott spjall saman. 

25.6.23

Sunnudagur

Helgin ætlar að líða alveg jafn hratt og aðrir dagar, ef ekki hraðar, svei mér þá. Samt var ég ekki að gera neitt sérstakt í gær. Var mætt í sund upp úr klukkan átta. Var búin að fara tvær ferðir í kalda pottinn og eina í sjópottinn áður en ég fór á braut átta og synti 500, meiri helminginn á bakinu. Fór tvær aðrar ferðir í kalda sem var reyndar ekkert svo kaldur, 11,4°C. Kaldi potturinn er bestur ef hann er undir tveggja stafa tölu. Þvoði mér um hárið á leiðinni upp úr og fór svo beinustu leið til esperanto vinkonu minnar. Stoppaði hjá henni í um tvo tíma. Minni helmingurinn af þeim tíma fór í esperanto en samt einhver tími í smá lestur. Frá Inger fór ég í Löður við Fiskislóð og fór með bílinn í gegnum bílaþvottastöðina. Næst lá leiðin í Krónuna. Hringdi í pabba á leiðinni heim. Hann var og er bara sprækur. Kom heim um hálftvö. N1 sonurinn var að vinna en ég gerði tvær tilraunir til að ná í hinn soninn í síma. Var reyndar bara með tvo poka úr búðinni, sundpokann, esperantopokann og veski og komst með þetta allt í einni ferð inn. Þá náði ég loksins sambandi við soninn sem tók að sér að ganga frá vörunum. Meira merkilegt gerðist ekki en tíminn frá tvö til tíu flaug og svo las ég til ellefu áður en ég fór að sofa.

24.6.23

Bækurnar af safninu

Ég er búin að lesa fimm af níu bókum sem ég sótti á safnið um daginn. Eina af þessum fimm á ég eftir að glugga aftur í; ljóðabókin Edda eftir Hörpu Rún Kristjánsdóttur. Þessi bók hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2019 og ég skil það mjög vel. Þetta eru einfaldlega mögnuð ljóð. Ein bókin var í skammtímalánshillunni, það stendur á henni 14 dagar en þegar ég skoðaði tölvupóstinn með skiladögunum var hún með sama skilatíma og hinar átta bækurnar. Þetta eru smásögur; Skyggnur eftir Stefaníu Pálsdóttur. Hinar þrjár sem komnar eru aftur ofan í bókasafnspokann eru: Aprílsólarkuldi eftir Elísabetu Jökulsdóttur, Óvissa eftir Önnu Ólafsdóttur Björnsson og Strákar sem meiða eftir Evu Björg Ægisdóttur. Hinar fjórar bækurnar eru á náttborðinu (ásamt fleiri bókum), amk tvær þeirra eftir íslenska höfunda. Segi kannski frá þessum bókum síðar.

Annars var gærdagurinn rólegur í vinnunni. Innan við fimmhundruð framleidd kort. Við sumarstelpan skiptum um enda, vélin var ekkert að stríða og allt var búið og frágengið niðri um tólf. Það var líka svona rólegt uppi. Ég var komin í sjóinn stuttu fyrir klukkan þrjú. Það var að fjara út, smá hraðferð á loginu, öldugangur í sjónum og hann kominn niður í 10,2°C úr ellefu gráðum. Ég óð og svamlaði út að endanum á bryggjugarðinum. Botnaði alveg þar og hefði líklega getað vaðið alveg út að kaðli að ég tali nú ekki um hálfa leið til Kópavogs. En ég fór ekkert lengra en skemmti mér við að hoppa á staðnum í þessum öldugangi. Var komin heim fyrir fjögur og fór ekkert út aftur eftir það. Þriðja daginn í röð hellti ég mér upp á sterkt kaffi og drakk einn og hálfan bolla af því.

23.6.23

Strax að koma helgi aftur

Vaknaði um sex. Var mætt í vinnu um hálfátta. Ég var á ítroðsluendanum á vélinni og sumarstúlkan á móttökuendanum. Henni finnst skemmtilegast að vera þar en skiptir þó við mig öðru hvoru. Held ekki að hún hafi verið á ítroðendanum nema með mér. Í heildina var framleiðsludagurinn rétt rúmlega fimmhundruð kort, engin endurnýjun svo við vorum búnar að slökkva á vélinni um tólf. Það var bara smá frágangur eftir, eftir hádegi. Það var líka svona rólegt uppi. Var samt í vinnunni til klukkan að verða hálfþrjú. Þá voru flestir að fara eða farnir. Ég dreif mig í sund. Hringdi aðeins í pabba þegar ég var búin að leggja á planinu við sundlaugina. Það var bara mjög gott í honum hljóðið. Hann er farinn að ná tökum á skriðsundu og segist vera fljótari að synda þannig. Kaldi potturinn var opinn og búið að breyta pottinum við hliðina í magnesíum pott. Ég fór þrisvar í kalda, tvisvar í magnesíum pottinn, einu sinni í gufu og einu sinni í sjópottinn en ég synti ekki neitt og skammaði mig í huganum fyrir þessa sundleti. Var komin heim rétt fyrir klukkan hálffimm. Um sex leytið skruppu bræðurnir í Sorpu á mínum bíl og Oddur fékk að keyra. Davíð Steinn hafði farið í sína fyrstu veiðiferð um morguninn á sínum bíl eitthvað suður með sjó. Hann veiddi ekkert, sagði að það hafi ekki verið nógu gott veiðiveður. 

22.6.23

Fimmtudagur

Var komin á fætur um sex og mætt í vinnu áður en klukkan sló hálfátta. Ég var aftur í bókhaldinu. Fyrrum fyrirliði og sumarstelpan sáu um framleiðsluna. Reyndar þurfti að hafa samband við kerfisfræðing þar sem allar möppur voru tómar og ekkert nýtt í skránum. Kerfisfræðingurinn gat bjargað því. Fyrstu framleiðslu og talningu á því plasti lauk rétt fyrir hálftíu. Þá fórum við í kaffi. Allri daglegri framleiðslu lauk um tólf og það sem óframleitt var af endurnýjun var búið fyrir klukkan tvö. Þá var líka allt að verða búið uppi. Ég var komin í sund um hálfþrjú. Sá hálfpartinn eftir því að mæta í Laugardalinn því kaldi potturinn var lokaður. Hitti á fyrrum vinnufélaga, Sævar, svo það var líklega þess vegna sem ég átti að fara í þessa laug á þessum tíma. Eftir eina ferð í heitan pott og aðra í sjópott settist ég á bekk skammt frá útiklefunum. Ekkert löngu síðar var ég látin vita að búið væri að opna kalda pottinn. Ég fór auðvitað beinustu leið í þann pott og tvær ferðir til, í gufu eftir fyrstu ferðina, aftur í sjópottinn eftir aðra ferðina og smá sólbað eftir síðustu ferðina. Synti ekkert. Var komin heim um fjögur leytið. Bræðurnir sátu inn í stofu að spjalla saman. Davíð Steinn var að bíða eftir því að verða látinn vita að hann mætti sækja föðurömmu sína á sjúkrahúsið og skutla henni heim. Bíll pabba hans er bilaður, annar föðurbróðurinn var á Bakkanum og bíll hins föðurbróðurins "mengaður" af hundahárum og ekki á það hættandi að nýta það faratæki til að skutlast með gömlu konuna. Klukkan var langt gengin í átta þegar loksins var hægt að útskrifa ömmuna en talað hafði verið um milli þrjú og sex. Þessi nýjasti bílstjóri og bíleigandi í fjölskyldunni var smá svekktur með þennan drátt því hann var með plön um einhvern hitting um kvöldið sem átti að byrja um hálfsjö. Held samt að það hafi ekki verið slegið út af borðinu og hann fór beinustu leið í þann hitting eftir skutlið.

21.6.23

Smá frestun

Vaknaði við vekjarann í gærmorgun. Hafði rumskað um tvö leytið og það gekk ekki nógu vel að sofna aftur fyrr en tveimur til þremur tímum síðar. En þá steinsofnaði ég aftur og var að dreyma eitthvað skrítið þegar ýtt var við mér af vekjaranum. Mætti í vinnu á sama tíma og oftast. Yfirleitt stimpla mig ég strax inn sem ég geri oftast í gegnum app í símanum en stundum gleymi ég því. Hendi mér í verkefnin og ranka svo við mér korter til hálftíma síðar. Þá set ég athugasemd við stimplunina í appið og sú sem sér um að taka sama alla tíma lagar málin. Ég var í bókhaldinu í gær. Sú vinna gekk vel. Um tíu hringdi í mig sá sem ætlar að koma og taka út gluggavinnuna. Hann er víst einn að leysa tvo aðra af svo hann er yfirhlaðin af verkefnum og stundum margbókaður. Ég gaf honum upp símanúmer tvíburanna og sagðist alveg geta skotist frá úr minni vinnu um og frá hádegi ef hann sæi fram á að komast á þeim tíma. Einhvern veginn hef ég ekki neinar áhyggjur af þessu. Þetta er komið í ferli og nú verður bara spennandi að sjá hvort það þurfi nokkuð að skipta út nema tveimur til þremur rúðum, svalahurðinni og svo verður frábært þegar karmarnir verða allir orðnir hvítir eins og annars staðar á húsinu. En þar sem að náunginn komst ekki í gær fór ég beint heim eftir vinnu því ég var ekki með sund eða sjósundsdót með mér í bílnum.

20.6.23

Buslað í sjónum

Ég var komin á fætur upp úr klukkan sex í gærmorgun. Mætti í vinnuna um hálfátta. Ég var á móttökuendanum á vélinni. Kláruðum allt daglegt um tólf og svo smá endurnýjun eftir hádegi. Hætti vinnu um þrjú leytið. Kom við á dekkjarverkstæðinu í Fellsmúla til að spyrjast fyrir um hettur á ventla. Mér voru gefnar tvær hettur. Aðra þeirra skrúfaði ég strax á ventinlinn á framdekkið bílstjóra meginn. Hinn á ég þá auka. Stuttu fyrir fjögur var ég að vaða út í sjó í Nauthólsvík. Svamlaði um í tuttugu mínútur og sat eitthvað svipað í heita pottinum á eftir áður en ég fór upp úr og heim.

19.6.23

Ný vinnuvika

Ég var aðeins fyrr á fótum í gærmorgun heldur en á laugardaginn, þó ekki miklu fyrr. Klukkan var að verða hálfníu. Kveikti á pabba-tölvu á leiðinni inn á baðherbergi og eftir að hafa sinnt morgunverkunum settist ég við hana í rúman klukkutíma. Þegar pabbi kom fram um tíu leytið var ég að leggja kapal inn í eldhúsi og að láta renna á kaffikönnuna. Hann bað mig um að klára síðasta harðsoðna eggið í ísskápnum og sauð um tíu önnur í staðinn. Hann byrjar alla morgna um sex á því að taka hitatölur, skrá niður og fá sér harðsoðið egg og klementínu. Hann var semsagt búinn að koma fram en lagði sig aftur og klæddi sig um tíu leytið. Hann fór í göngu seinna um daginn og komst heldur lengra en á föstudag og laugardag eða fram að húsi no 14 og til baka. Dagurinn leið annars þó nokkuð hratt. Fékk mér skyr um hálftvö leytið, þriðja og síðasta skammtinn úr 500 gr. dós. En um fimm var ég með bleikju og gróf hrísgrjón handa okkur pabba og fljótlega eftir matinn kvaddi ég. Í miðjum Kömbum birtist merki í mælaborðinu, merki um að fara að athuga þrýstinginn á dekkjunum fljótlega. Ég ók alla leið í bæinn og á N1 við Gagnveg þótt sonurinn væri ekki að vinna. Það var framhljólið farþegameginn sem var komið niður í 23", aftur dekkin voru í 29-30" en dekkið bílstjóra megin var á réttu róli 32". Þar hins vega var horfinn tappinn sem á að vera skrúfaður á totuna sem blásið er í. Strákarnir voru hjá pabba sínum og ég var komin inn í rúm og farin að sofa þegar þeir komu heim.

18.6.23

Sunnudagur

Svaf eitthvað stopult framan af nóttu en vaknaði svo ekki fyrr en um hálftíu í gærmorgun. Pabbi hafði víst komið fram um sex leytið en hann kom svo á fætur um tíu. Við höfðum það rólegt og samæltums um að hafa saltfisk í matinn um miðjan dag. Ég sá um soðninguna. Frosinn saltfiskur, nokkrar kartöflur og ein og hálf rófa skræld og bituð niður. Allt þetta soðið í sama pottinum og var tilbúið þegar kartöflurnar voru tilbúnar. Seinna um daginn skrapp pabbi í smá göngutúr, studdi sig við eina hækju og labbaði að númer 16 og til baka. Þrátt fyrir að við héldum okkur annars heimavið að sýsla við eitt og annað, m.a. kapallagnir, leið dagurinn ógnar hratt. 

17.6.23

Þjóðhátíðardagur Íslendinga

Auðvitað var ég vöknuð um sex leytið í gærmorgun þrátt fyrir að vera í fríi og hafði alls ekki stillt á mig vekjaraklukku. Kom mér á fætur fljótlega, sinnti morgunverkunum á baðherberginu, fékk mér vítamín og vatnsglas og settist svo um stund með fartölvuna í fanginu í stofusófann. Var komin í Laugardalslaug rétt rúmlega átta. Eftir eina ferð í kalda fór ég á braut 6. Þar synti í 300 metra áður en ég færði mig yfir á brautir 7 og 8 og synti 400 metra í viðbót. Flestar ferðirnar á bakinu. Eftir næstu ferð í kalda fór ég í gufuna. Sjópotturinn var lokaður svo ég fór aðeins eina ferð í viðbót í kalda pottinn sat svo á stól í nokkrar mínútur áður en ég fór inn til að þvo á mér hárið. Kom heim um tíu. N1 sonurinn var á frívakt en hann var vaknaður og í sturtu þegar ég kom heim. Hann fór fljótlega með bílinn í skoðun og næsta sem ég vissi af honum var að hann skrapp norður að hitta félaga í fólksvagnseigenda klúbbnum. Ég hellti mér upp á sterkt kaffi og tók því rólega til klukkan að byrja að ganga eitt. Þá tók ég mig saman og lagði af stað austur. Kom við í Löngumýrinni. Jóna Mæja var heima og skömmu síðar kom frændi minn heim úr sjúkraþjálfun. Það er vika þangað til barnabörnin koma til landsins og Gerður frænka kemur svo 30. júní. Maðurinn hennar, og pabbi barnanna, kemur svo í kringum 5. júlí en þau fara svo öll saman heim um miðjan næsta mánuð. Líklega um það leyti sem ég er að fara í aðal sumarfríið mitt. Vona að ég geti hitt á þau áður. Var komin á Hellu um hálffjögur. Um sex leytið skrapp ég út í vínbúð til að kaupa mér hvítvínsbelju til að eiga hérna fyrir austan. Smakkaði aðeins vínið seinna um kvöldið. Það var alveg ágætt en ég drakk þó aðeins tvö glös. Bríet, Bjarki og einhverjir félagar þeirra eru á bíladögum fyrir norðan, með gisti og tjaldaðstöðu í sveitinni hjá foreldrum hennar. Svo við pabbi erum tvö hérna, Davíð Steinn líklega líka á Árlandi og Oddur Smári einn heima.

16.6.23

Stutt frí

Ég mætti í vinnu á svipuðum tíma og venjulega. Ekkert löngu á eftir mér kom fyrrum fyrirliði úr mánaða löngu sumarfríi. Fyrirliðinn og sumarstúlka tóku að sér framleiðsluna. Ég var í bókhaldinu og hafði fyrrum fyrirliða með mér. Setti hana inn í þær breytingar sem búið er að gera varðandi uppgjör og reikningagerð. Breytingarnar eru aðallega fólgnar í að hafa flest sem tilheyrir mánaðamótum saman í möppu. Færði samt ekki lotugjalda liðinn og fjölda og skiptingu í endurnýjun. Hver veit hvað gert verður síðar. Við fyrrum fyrirliði tókum líka til í uppgjörsblöðunum, hentum því sem var orðið það gamalt að víst er að ekki þarf að fletta upp í því, bæði pappírum (í tunnu merkt örugg eyðing gagna) og einnig hluta af því sem safnast hefur upp í tölvunni. Allri framleiðslu var lokið um tólf. Fékk mér að borða og um eitt kvaddi ég og fór beint í Nauthólsvík. Hafði tekið bæði sund- og sjósundsdóti með mér um morguninn þar sem ég var ekki alveg ákveðin í hvort ég myndi nota. Sjórinn varð fyrir valinu og synti ég aftur út að kaðli. Stoppaði ekki svo lengi við í heita pottinum á eftir því ég var komin til esperanto vinkonu minnar um hálfþrjú. Við tókum smá lestraræfingu í esperanto í bók sem er skemmtilega sett upp. Stuttir leskafla með orðasafni á undan þar sem orðin eru útskýrð með setningum á esperanto. Á eftir köflunum eru ýmis konar æfingar sem við rennum aðeins yfir. Var komin heim um fjögur. Oddur var nýbúinn að hengja upp úr vélinni en það var pláss á snúrunum svo ég henti í eina handklæðavél á 60°C með forþvotti. 

15.6.23

Búin snemma

Ég var komin á fætur upp úr klukkan sex í gærmorgun og mætt í vinnuna á svipuðum tíma og flesta vinnudaga. Við sumarstúlkan sáum um framleiðsluna. Heildar fjöldinn var í kringum fimmhundruð kort. Þrátt fyrir að við værum í klukkutíma stoppi í kaffinu vegna erindis á fundinum vorum við búnar um tólf. Viðgerðarmennirnir mættu á svæðið upp úr klukkan eitt. Ég sat yfir þeim til klukkan tvö en þá leysti fyrirliðinn mig af og sagði að ég mætti fara heim. Þrátt fyrir að allt væri á fullu uppi sýndist mér að það væri í góðu lagi að ég léti mig hverfa af svæðinu. Fór beinustu leið í sund og hitti óvænt kalda potts vinkonu mína í hennar þriðju ferð í kalda pottinum. saman fórum við alls fjórar ferðir. Eftir gufu og mína fimmtu ferð í kalda fór ég aðeins í sjópottinn áður en ég synti 400 metra. Var komin heim um fjögur. 

14.6.23

Undarlegheit á blogginu mínu

Taldi mig vera búna að setja inn smá texta um gærdaginn en hafði þurft að setja hann inn í einhver ramma þar sem eingöngu var hægt að skrifa. Ramminn virðis svo hafa gleypt textann, ekki vistað hann þannig að það sem ég byrjaði á því að senda út í dag reyndist ekki vera neitt. Mjög furðulegt. En gærdagurinn var annars ágætur. Var á ítroðsluendanum á vélinni og skrapp í smá förgun milli klukkan ellefu og ellefu tuttuguogfimm. Kláruðum endurnýjun sem lá fyrir og í heildina voru framleidd um nítjánhundruð kort í gær. Var mætt í sund um þrjú, rétt á undan kalda potts vinkonu minni. Ég var búin með eina ferð í kalda og sat í smá sólbaði þegar hún kom. Þegar við vorum í okkar þriðju ferð í kalda kom yngsta systir hennar. Hef ekki hitt þá konu áður en þær systur eru frekar líkar. Það urðu alls sjö ferðir í kalda pottinn hjá mér en ég nennti ekki að synda. Var komin heim upp úr klukkan fimm. Synir mínir kvöddu um sex leytið, fóru út að borða saman og svo í bíó með litlu systur sinni.

13.6.23

Synt/svamlað út að kaðli

Vaknaði nokkrum mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Að vísu hafði ég rumskað um fjögur leytið og vissi þá alveg af mér í dágóða stund. Mætti í vinnu um hálfátta. Synti bókhaldinu. Fyrirliðinn og sumarstúlka kláruðu daglegu framleiðsluna, pakkið og talninguna um tólf og voru í endurnýjun eftir hádegi. Ég var mætt í Nauthólsvík rétt fyrir fjögur. Hringdi í pabba minn á meðan ég var á leiðinni þangað. Svamlaði út að kaðli, var ekkert að flýta mér. Það var nógu mikið flóð til að ekki væri hægt að vaða þessa leið. Sjórinn 10°C og ég var sennilega svona uþb tuttugu mínútur út í og kom svo við í lóninu á leiðinni í heita pottinn við bygginguna. Hitti aðeins á systurnar út sjósundshópnum mínum áður en ég fór upp úr. Kom við í Krónunni áður en ég fór heim. Oddur Smári sótti fyrir mig vörurnar út í bíl og gekk frá þeim. Það voru ekki nema tveir pokar en ég var þar að auki með bakpokann minn og sjósundsdótið. Davíð Steinn hafði verið kallaður inn í afleysingar. Hann fékk samt fyrst að fara með bílinn á dekkjaverkstæðið við Fellsmúla. Það hafði sprungið hjá honum þegar hann var að mæta í vinnu í gærmorgun. Hann setti varadekkið sjálfur undir eftir vaktina og var svo alveg með það á hreinu hvernig dekkjaumgang hann ætlaði að fjárfesta í. Sagði að það væri ennþá betra að keyra bílinn á þessum nýju dekkjum. 

12.6.23

Öskjuhlíð, sund og gúllasguðþjónusta

Fannst sem ég væri örlítið sein á ferð þegar ég mætti í Laugardalinn um níu. Þá var ég klukkutíma og snemma á ferðinni því ég hafði ekki lesið öll skilaboð um opnunartíma. Það var semsagt tilkynnt fyrir um hálfum mánuði að lauginni yrði lokað klukkan 18 þann 10. júní. Ef ég hefði lesið lengri þá stóð einnig að vegna skyndihjálparnámskeiðs hjá starfsfólki yrði laugin ekki opnuð fyrr en klukkan tíu þann 11. júní. Ég var að hugsa um að skreppa í Sundhöllina í staðinn. Kom við í hraðbanka hjá landsbankaútibúinu í Borgartúni og þegar ég hélt ferð áfram skipti ég um skoðun. Lagði bílnum við Perluna og fór í hálftíma göngutúr í Öskuhliðinni og alveg út í kirkjugarð að leiða móðurforeldraminna og eins móðurbróður. Var komin aftur í Laugardalinn skömmu eftir að opnaði; kaldur, 400m, kaldur, gufa, kaldur, sjópottur, kaldur og smá "sólbað" áður en ég fór upp úr og heim. Var komin heim rétt fyrir tólf. Hellti mér upp á sterkt og gott kaffi og fékk mér einhverja hressingu. Tíminn til klukkan að verða hálfsex fór í alls konar dundur innan hús, aðallega tengt áhugamálunum. Hringdi líka í eina frænku mína og nöfnu og spjallaði við hana í góðan hálftíma. Um hálfsex skipti ég um topp, fór í kápuna mína og nýjustu skóna og labbaði upp í kirkju óháða safnaðarins til að hlíða á og taka þátt í síðust messu fyrir sumarfrí og fá mér gúllassúpu á eftir. Þetta var síðasta messa organistans sem er að fara í fullt starf sem organisti í Grindavíkurkirkju. Labbaði heim aftur tæpum tveimur tímum síðar og horfði á síðasta þátt hringfarans um mótorhjólaferð um Ísland á Covid-tímum. 

11.6.23

Sund, esperanto og göngutúr

Var vöknuð áður en klukkan var orðin sex. Las til klukkan að verða sjö. Þá fór ég á fætur, sinnti morgunverkunum á baðherberginu, fékk mér lýsi, vítamín og vatnsglas og settist svo inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Um það leyti sem morgunfréttir klukkan átta voru að hefjast í útvarpinu var ég að leggja af stað í sund. Mikið varð ég glöð fyrir hönd pabba að búið væri að semja. Hann komst ekkert í sund sl. viku vegna verkfalla. Svo gerðist það sem ég var einhvern tímann að velta fyrir mér síðusta hálfa árið, hvort ég myndi einhvern tíma gleyma að beygja inn á Sundlaugarveg um helgi og halda áfram út á Sæbraut í áttina að vinnustaðnum. Fattaði þetta um leið og ég kom að beygjuljósunum út á Sæbraut svo ég fór alls ekki alla leið en tók smá krókaleið í sundið. Fór í kalda pottinn fjórum sinnum, synti 500 metra, eina ferð í gufu og eina ferð í sjópottinn. Þvoði mér um hárið á leiðinni upp úr og fór svo beinustu leið til norsku esperanto vinkonu minnar. Var komin þangað rétt rúmlega tíu og stoppaði í tæpa tvo tíma. Að þessu sinni eyddum við amk þriðjungi af þessum tíma í að lesa kafla í esperanto bók. Kom heim um tólf. Fljótlega eftir hádegisfréttir fór ég að sinna því sem ekki má skrifa um. Milli klukkan 15:41 og 16:25 fór ég í rúmlega þriggja kílómetra göngutúr. Vestur eftir Eskihlíð, undir brýrnar við Bústaðaveg og Miklubraut, yfir brúna við Landsspítalann, framhjá BSÍ, upp Barónsstíg að Eiríksgötu, þar niður, undir brúna þar sem Snorrabraut, Bústaðavegur og Miklabraut mætast, Miklubraut að ljósunum við Lönguhlíð, þar yfir og heim. Mjög hressandi en ég var með foss á bakin og eldrauð í framan þrátt fyrir að hafa gengið rétt rúmlega rólega.

10.6.23

Tuttugu mínútur í 10°C sjónum seinni partinn í gær

Vaknaði góðum hálftíma áður en vekjarinn átti á ýta við mér. Slökkti á vekjaranum og fór á fætur. Hafði góðan tíma til að sinna morgunverkum og netvafri. Mætti í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. Ég tók tvö af kerfunum niðri af, opnaði seinni lásinn á hvelfingunni uppi, fór niður til að kveikja á vélinni og undirbjó svo fyrstu tölur áður en ég fór inn á kaffistofu til að fylla á vatnsbrúsann og fá mér smá kaffi. Var með prjónana með mér og prjónaði eina umferð í klifurgrinda-tuskunni sem er langt komin. Á kannski tíu til fimmtán umferðir eftir nema ég ákveði að hafa tuskuna í stærra lagi. Ég var í bókhaldsvinnunni í gær. Það var minna vesen á vélinni í gær og aðeins færri kort til daglegrar framleiðslu þannig að þeirri vinnu lauk rétt fyrir tólf. Eftir hádegi var kláruð sú endurnýjun sem var byrjað á tveimur dögum fyrr (miðvikudaginn) og samt var vélin háttuð og gengið frá öllu upp úr klukkan tvö, að verða hálfþrjú. Ég var amk mætt í Nauthólsvík fimm mínútum fyrir þrjú. Hringdi í pabba á leiðinni þangað. Átta manns á kajökum kom að þar sem ég og fleiri fara út í sjóinn. Þau drógu kajakana aðeins upp á sandinn, en það var að fjara út, stilltu sér upp í myndatöku. Ég svamlaði út að enda grjótgarðsins. Gat reyndar alveg botnað og hefði getað vaðið út að kaðli. Fór samt ekki lengri því ég átti von á sjósundsvinkonu minni. Hún og önnur systranna komu tíu mínútum síðar. Þá var kajakfólkið að leggja frá aftur. Það snéri baki í ströndina þannig að þegar ég veifaði vinkonunum var ég spurð hvort ekki væri allt í lagi þar sem ég var að baða út höndunum. He, he. Ég fór upp úr sjónum um leið og hinar tvær, en þær voru út í í amk tíu mínútur. Á eftir vorum við hátt í klukkutíma í heita pottinum. Þurftum að spjalla um svo margt og svo hittum við eina til sem við könnumst við. Sú er daglega í sjónum. Ég kom heim rétt fyrir fimm. Hringdi í Ellu vinkonu og átti gott samtal við hana. Hún er komin í sumarfrí. Davíð Steinn kom heim úr sínu ferðalagi um hálfátta. Hann hafði að vísu verið að lenda seinni partinn en skutlaði samferðafólki sínu heim. Hann tók upp úr töskunum, færðu okkur smá gjafir, sýndi okkur tattú sem hann var að fá sér og einum og hálfum tímum síðar var hann rokinn upp í Mosfellsbæ með gjafir þangað. Hann var verulega ánægður með ferðina en sagðist ekki myndu þora að kíkja á bankareikninginn sinn alveg á næstunni.

9.6.23

Níu bækur heim af safninu

Ég vaknaði rétt upp úr klukkan sex í gærmorgun. Mætti í vinnuna um hálfátta. Tók kerfið af hvelfingunni niðri, prentaði út fyrstu tölur, opnaði seinni lásinn á hvelfingunni uppi og fór niður í kortadeild til að kveikja á framleiðsluvélinni áður en ég fór inn á kaffistofu fyllti á vatnsbrúsann, fékk mér kaffi og prjónaði smá. Sumarstúlkan og ég tókum að okkur vélina en höfðum endaskipti. Hjálpaði henni af stað með að hlaða inn fyrstu framleiðslu og tíndi svo til kortin í þá framleiðslu. Þetta gekk alveg ágætlega. Það var ekki fyrr en við fórum að framleiða debetkort dagsins að við lentum í alls konar veseni. Þrátt fyrir allt þetta vesen hafðist að framleiða alla daglega framleiðslu en við ákváðum að hætta eftir hana. Vorum að ganga frá deildinni um hálfþrjú. Ég var komin í sund um þrjú leytið. Synti 300m og var búin með fyrstu ferðina í kalda pottinn þegar kalda potts vinkona mín mætti. Saman fórum við fimm ferðir í kalda, eina í gufu, eina í sjópottinn og þrjár ferðir í 42°C pottinn. Það er enn verið að lappa upp á heitasta pottinn. Eftir sundið fór ég í Kringlusafnið. Skilaði þremur síðustu bókunum og varð svo að stoppa mig af svo ég færi ekki heim með tveggja stafa tölu af bókum af safninu. Eina af þeim bókum tók ég úr skammtímaláns hillunum en þegar ég skannaði inn bækurnar voru allar með skilafrestinn 10. júlí n.k.

8.6.23

Blautur dagur í dag

Fór á fætur rétt fyrir klukkan sex í gærmorgun. Var mætt í vinnuna um hálfátta. Ég og sumarstúlkan skiptum um hlutverk í kortadeildinni, þ.e. hún fór á móttökuendann. Daglegri framleiðslu var lokið um tólf. Þá átti bara eftir að pakka smávegis. Eftir hádegi og uppvask fórum við aftur niður. Kláruðum það sem var óklárað. Settum svo í gang endurnýjun í um einn og hálfan tíma áður en við hættum og gengum frá. Upp úr klukkan hálfþrjú fengu tveir kerfisfræðingar aðgang að kortavélinni og örfáum kortum í test. Ég hætti vinnu um þrjú. Fór beint á smurstöðina sem ég heimsæki reglulega. Í þetta sinn var ég ekki að láta smyrja heldur fá nýja peru í framljósið farþega meginn. Síðan fór ég beinustu leið heim og var því komin þangað óvenju snemma eða um fjögur leytið. 

7.6.23

Vikan strax hálfnuð

Vaknaði ekki alveg eins snemma og á mánudagsmorguninn en þó aðeins fyrir klukkan sex í gærmorgun. Var útsofin og dreif mig strax á fætur. Var mætt í vinnu rétt áður en klukkan varð hálfátta. Nú voru engin vandræði með að komast inn. Ég og sumarstúlkan tókum að okkur vélarvaktina. Það gekk bara nokkuð vel hjá okkur. Vélin var samt með smá vesen en þegar við hættum um þrjú vorum við búnar að framleiða í kringum ellefu hundruð kort, þar af endurnýja um fjögurhundruð. Þessa vikuna eigum við eldhúsvaktina ég og sú fjórða. Fyrirliðinn bauðst til að leysa mig af við fráganginn eftir matinn. Ég þáði það og sagðist skyldu launa henni greiðann í næstu viku þegar hún á vaktina ásamt annarri sem er næst henni í stafrófinu. Var mætt í Laugardalslaug um hálffjögur og kom á sama tíma og kalda potts vinkona mín en hún hafði sent mér fyrirspurn fyrr um daginn um hvenær ég myndi mæta og ég sagðist mæta um þetta leyti. Við fórum fimm ferðir saman í kalda pottinn, eina í gufuna, fjórar í 42°C pottinn og eina í sjópottinn. Eftir góða stund í sjópottinum fór hún aftur í gufu en ég í þann kalda og sat svo smá stund á stól úti áður en ég fór upp úr og heim. 

6.6.23

Þriðjudagur

Ég var komin á fætur um fimm leytið í gærmorgun. Rumskaði um fjögur þegar N1 sonurinn dreif sig á vit ævintýranna áleiðis út í lönd. Hann er núna staddur í Manchester ásamt tveimur af fyrrverandi vinnufélögum. Annar vinnufélaginn vinnur reyndar enn á N1 við Stórahjalla en hinn er hættur hjá N1. Þannig að sá sem er enn að vinna hjá N1 er samstarfsmaður þótt þeir Davíð Steinn vinni ekki á sömu stöð lengur. Ég var mætt í vinnu um hálfátta í gærmorgun. Númer tvö í röðinni. Ekki var hægt að komast alla leið inn því dyrnar við slússuna voru bilaðar og það þurfti að kalla út manneskju með lykil. Var komin inn á vinnusvæði stuttu fyrir átta. Var enn einn daginn í bókhaldinu til að setja upp tengingar og skrifa niður smá leiðbeiningar varðandi mánaðamóta tölur og uppgjör. Vonandi slær þetta ekki fyrrum fyrirliða út af laginu þegar hún tekur við uppgjörinu aftur. Held samt að ég hafi náð að einfalda hlutina aðeins betur þannig að það ætti að vera minna mál fyrir þá sem koma nýjir að þessu verkefni að setja sig inn í málin. Hætti vinnu klukkan þrjú og fór beint í Nauthólsvík. Sjórinn var 9,9°C og fjara. Svamlaði um í tíu mínútur og sat svo í heita pottinum í hálftíma áður en ég fór upp úr og heim. Mér tókst að halda mér á fótum til klukkan rúmlega níu. Las til klukkan hálftíu en var örugglega steinsofnuð skömmu síðar. 

5.6.23

Dagurinn tekinn mjög snemma

Í gærmorgun/fyrrinótt rumskaði ég um fjögur leytið. Skrapp á salernið en ég sofnaði ekki aftur fyrr en upp úr klukkan sex. Þá svaf ég í rúma tvo tíma. Var semsagt komin á fætur á níunda tímanum. Um leið og ég fór að sinna morgunverkunum á baðherberginu kveikti ég á tölvunni hans pabba. Vafraði um á netinu í rúman klukkutíma. Hellti upp á kaffi um ellefu leytið. Lagði nokkra kapla, prjónaði og las. Var eitthvað að spá í að skreppa loksins í heimsókn á elliheimilið en það varð ekkert úr þeirri hugmynd. Pabbi bjó til amk tvöfaldan skammt af pönnukökum. Vorum með kaffitíma um fjögur. Um fimm leytið tók ég mig saman og pabbi fékk loksins að setja sinn bíl aftur inn í bílskúr. Þrjár umferðir yfir verstu rispurnar á bílnum mínum höfðu dugað til og nú fer ég að vinna í að panta alþrif á gripnum, þá verður hann næstum eins og nýr en hann er árgerð 2014. Kom í bæinn stuttu fyrir sjö. Bræðurnir voru ekki heima en komu rúmum einum og hálfum tíma á eftir mér.

4.6.23

Í heimsókn hjá pabba

Ég var vöknuð löngu fyrir klukkan sjö í gærmorgun. Setti inn færlsu á bloggið og vafraði um á netinu þar til kominn var tími til að skreppa í sund. Var í minni fyrstu ferð af fjórum í 6,6°C kalda pottinum korter yfir átta. Var á leið í gufuna eftir tvær aðrar ferðir, 300m sund og 1 ferð í sjópottinn þegar sr. Pétur mætti á svæðið. Hann sagðist vera flóttamaður þar sem Vesturbæjarlaugin var lokuð. Spjallaði ekki lengi við hann en hann minnti mig aftur á gúllasmessuna sem verður klukkan 18:00 n.k. sunnudag. Það er síðasta messa fyrir sumarfrí. Þvoði mér um hárið áður en ég fór upp úr. Skrapp heim með sunddótið og tók til dót með mér til gistingar. Var mætt til esperanto vinkonu minnar rétt upp úr klukkan tíu. Var með esperanto dótið með mér en við höfðum um svo margt annað að spjalla og voru ekki í rétta esperanto stuðinu. Stoppaði hjá henni í einn og hálfan tíma. Næst fór ég með bílinn í gegnum þvottastöðina Löður við Fiskislóð. Skrapp heim með esperantodótið og sótti strigaskóna og úlpugarm áður en ég brunaði austur. Var komin á Hellu tæpum hálftíma áður en úrslitaleikurinn milli Barcelona og Wolfsburg í knattspyrnu kvenna hófst. Ég hellti upp á kaffi og við pabbi horfðum saman á leikinn. Þegar hann var búinn færði pabbi bílinn sinn úr skúrnum svo ég gæti keyrt minn inn. Hann hjálpaði mér að pússa skrámurnar á bílnum fyrir ofan afturdekkið farþega meginn. Ég átti lakk og glæru efni sem pabbi var búinn að geyma fyrir mig. Fór alls þrjár umferðir, þá síðustu eftir fréttir og kvöldmat. Þetta er ekki mjög fallegt en skárra heldur en rispurnar sem eru búnar að vera þarna frá því í snjóófærðinni rétt fyrir síðustu jól. 

3.6.23

Helgarfrí

Ég vaknaði fyrir klukkan sex, góðum hálftíma áður en vekjaraklukkan átti að hringja. Þar sem ég var alveg glaðvöknuð var langbest að drífa sig á fætur. Átti þá góðan tíma í netvafrið eftir morgunverkin. Mætti í vinnuna um hálfátta rétt á eftir fyrirliðanum. Ég var áfram að vinna að mánaðamótauppgjörinu og í daglegu bókhaldi. Fyrirliðinn og sumarstúlkan sáu um alla framleiðslu. Vélin var eitthvað að stríða en um tvö leytið var búið að framleiða yfir níuhundruð dagleg kort og pakka þeim og að auki annan eins fjölda korta til að klára endurnýjun sem kom rétt fyrir mánaðamót. Fyrirliðinn las yfir mánaðamótaskýrsluna hjá mér og ég gat skilað öllu af mér. Þá á ég bara eftir að vinna betur í tenginginunum fyrir næstu mánaðamót.  Var komin í sjóinn upp úr klukkan hálffjögur, í fyrsta skipti síðan ég keypti mér árskortið. Sjórinn yfir 10 gráðum, það var að flæða að, lítil hreyfing á loginu og yndislegt að busla um stund í sjónum. Kom heim um fimm leytið.

2.6.23

Föstudagur

Gærdagurinn var hvorki eins þungur né langur vinnulega séð. Ég var áfram í bókhaldi og mánaðamótauppgjöri sem klárast vonandi og sennilega í dag. Daglegri framleiðslu lauk um hádegið og þrátt fyrir að vélin væri með smá leiðindi var framleitt svolítið af endurnýjun líka. En um tólf var vélin afhent til yfirferðar. Annar viðgerðarstrákurinn kom með ansi kunnuglegan grip með sér þegar hann mætti á svæðið. Hann hafði fengið að eiga verkfæratösku Péturs heitins sem var viðgerðarmaður í áratugi og verktaki hjá OBA lengst af. Ég leysti af í yfirsetu í hádeginu. Fyrirliðinn kom niður aftur rúmlega eitt og ég sagðist geta leyst hana aftur af um þrjú ef hún vildi nýta tímann til að fara aðeins fyrr úr vinnu til að endurnýja rafrænu skilríkin sín. Sumarstúlka kortadeildar fór að hjálpa til í störfunum uppi. Klukkan hálfþrjú var ég búin að gera allt sem hægt var að gera í uppgjörsmálum og fór því niður og leysti fyrirliðann af. Rétt skömmu síðar tóku viðgerðarmennirnir sér kaffipásu. Svo það var bara tíu mínútuna stopp hjá mér niðri. Fyrirliðinn var ekki farinn og ég spurði hvort ekki væri skynsamlegt að ná í eitt kort inn á lager til að testa vélina í lok yfirfærslu. Þetta var gripið á lofti og við fórum saman niður til að sækja kort inn í hvelfingu. Vélin var sett saman um hálffjögur, kveikt á henni og kortinu rennt í gegn vandræðalaust. Klukkan fjögur stimplaði ég mig út og fór beinustu leið yfir í Laugardalslaug. Hringdi og spjallaði við pabba á leiðinni yfir. Hann var að koma inn úr sláttuvinnu og var meira að segja að hugsa um að leggja í hólinn. Mér varð pínu um og ó en ég veit sem er að pabbi vill helst bjarga sér sjálfur með hlutina og finnur yfirleitt alltaf leiðir að verkefnunum sem hann tekst á við. Duglegi pabbi minn. Hitti kalda potts vinkonu mína eftir mína fyrstu ferð í kalda. Hún var þá þegar búin að fara þrjár og var að koma úr gufunni. Rúnturinn hjá okkur skiptist í; kalda, 42°, kalda, gufu, kalda, 42°, kalda, gufu, kalda, sjópottinn og kalda. Kom heim um sex leytið.

1.6.23

Júní mánuður hafinn

Ég var mætt í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta í gærmorgun. Vinnudagurinn teygðist alveg til klukkan fimm og var verulega öðruvisi. Ætla samt ekki að fara neitt nánar út í það en bara geta þess að mánaðamótauppgjörsvinnan fer bara nokkuð vel af stað hjá mér. Var með sjósundsdótið með mér en ég var í engu stuði, hvorki til að skreppa í sund eða sjóinn. Sjálfsagt hefði ég nú alveg haft gott af því að skreppa smá en í staðinn kom ég við á AO við Kaplakrika og fyllti á tankinn áður en ég fór heim. Tók sem sagt stærri hringinn heim. Var komin heim stuttu fyrir sex. Bjó mér til plokkfisk úr afgangnum frá því á laugadaginn, ýsunni sem ég keypti hjá Fúsa sl. föstudag. Prjónaði smá, vafraði á netinu, horfði m.a. á Eyðibýli en var komin upp í rúm um níu og farin að sofa hálftíma síðar.