Ég var mætt í Laugardalslaug stuttu eftir að opnaði. Var búin að fara tvær ferðir í kalda og eina í þann heitasta áður en ég fór á braut 2 og synti 600 metra, næstum alla á bakinu en ca hálfa (25m) leið skriðsund. Fór tvær aðrar ferðir í kalda, sem þessa dagana er ekkert svo kaldur, og eina ferð í sjópottinn áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Eftir sundferðina fór ég beinustu leið vestur í bæ til esperanto vinkonu minnar. Hún bauð upp á graut og kaffi og svo lögðumst við aðeins yfir tilbúna tungumálið. Upp úr klukkan ellefu vorum við hættar að lesa en vorum að spjalla og spá í sumrinu framundan. Þá hringdi Bríet í mig. Hún var stödd á skotsvæðinu við Hafnarfjörð þar sem var grenjandi rigning og hana vantaði handklæði. Hún hafði fyrst reynt að hringja í frænda sinn sem er nýkominn með bílprófið en hann var þá kominn vestur á firði. Held að hann hafi kíkt á bifhjólamót við Trékyllisvík en svo hélt hann ferðinni áfram með smá stoppum hér og þar til að taka myndir og hvíla sig aðeins á akstrinum. Hann tók bensín á Ísafirði seinni partinn og var kominn til Patreksfjarðar á tíunda tímanum. Þar í kring ætlaði hann að finna sér gistingu. En þessi ungi maður kemur heim í kvöld því hann á vinnuvakt næstu tvo daga. Fylgdist með honum á snap-kortinu og sá þá einnig að Lilja vinkona var stödd á Hellu. Hún og eldri systir hennar fóru með blóm á leiði foreldranna og voru svo boðnar í grill hjá Kalla og Kristínu. Sendi þeim kveðju í gegnum snappið.
Kvaddi Inger og brunaði heim. Pakkaði niður fyrir mig og tók með mér handklæði. Bríet hafði sent mér staðsetninguna í sms og ég notaði leiðbeinandi forrit í símanum til að koma handklæðinu til hennar. Þau Bjarki voru að keppa á skotfimi móti þessa helgina. Komu austur um sex leytið í gær og brunuðu svo í bæinn um átta leytið í morgun. Ég fyllti á tankinn á AO við Kaplakrika og keyrði svo Þrengslin austur. Kom við í Fossheiðinni og fékk óvænt að heyra í tvíburahálfsystur minni sem var að spjalla við mömmu sína þegar ég mætti. Pabbi er búinn að vera á óvenju miklu flandri undan farið en hann var rólegur heima við í gær að horfa á undanúrslitaleik í mjólkurbikardeild kvenna. Helga systir hringdi í hann eftir að ég var komin. Hún var á leiðinni heim úr vinnu frá Akureyri og sagði honum ýmislegt um vikuna sem þau hjónin voru með vinafólki í "vinnuferð" á Hesteyri í síðustu viku (frá þriðjudegi til þriðjudags).
Borðaði eitt harðsoðið egg í kvöldmatinn en seinna um kvöldið drakk ég tvö hvítvínsglös, borðaði stjörnupopp í boði Bríetar, ís í boði pabba og horfði á síðustu tvo þættina um Max Anger.