20.5.22

Föstudagur enn á ný

Vaknaði rétt upp úr klukkan sex í gærmorgun. Morguninn svipaður og aðrir virkir vinnumorgnar en svo fór ég á bílnum í vinnuna. Tók með mér bókasafnspoka og sunddót sem ég geymdi í skottinu. Um átta hringdi Bríet í mig og spurði hvort hún mætti gista hjá mér næstu daga. Það var auðsótt mál. Hún var enn fyrir norðan þegar hún hringdi en kom með flugi suður upp úr hádegi. Oddur Smári, sem þá var kominn heim úr atvinnuviðtali og klippingu, opnaði fyrir henni og hjálpaði henni með farangurinn. Ég var á ítroðsluendanum fram að kaffi. Eftir fyrstu framleiðslu, sem eru eingöngu kort, hófst sama starfsaðferð og í fyrradag. Kort framleidd sér og form sér. Síðan parað saman og í DK-inu allt H merkt sett í umslög. Eftir kaffi fór ég á móttökuendann. Vorum búnar með þrjá banka af fjórum í debetinu þegar við fórum yfir í hádegisframleiðsluna. Síðasti bankinn var svo kláraður eftir mat. Allt daglegt var búið rétt fyrir tvö og þá tókum við okkur tíma til að flokka kennispjöld til klukkan að ganga fjögur. Úr vinnunni fór ég beint á safnið og skilaði fjórum bókum af sex og tók með mér sex bækur í staðinn. Engin þeirra með skammtímalán og hægt að framlengja um 30 daga eftir 30 daga lán. Af safninu fór ég í Vesturbæjarlaugina. Synti 300 metra, fór eina ferð í kalda pottinn, svo í gufuna. Fór í sturtu eftir eimbaðið, heitan pott og sat svo smá stund úti áður en ég fór upp úr og heim. Það voru bara ummerki um að Bríet hefði komið við, semsagt farangurinn hennar, en hún var ekki komin aftur þegar ég fór að lesa og sofa um tíu.

19.5.22

Öðruvísi vinnubrögð

Labbaði sömu leið í vinnuna í gærmorgun og á þriðjudagsmorguninn. Ég var í skrifstofurýminu fram að kaffi, undirbjó pökkun og flokkaði kennispjöld. Eftir kaffi fór ég á ítroðsluendann á vélinni. Framleiða varð kort og form sér. Þetta gekk furðanlega vel fyrir sig og kláruðum við daglega framleiðslu um hálfeitt. Eftir hádegi fór ég á móttökuendann á vélinni. Við kláruðum loks endurnýjun frá því í apríl með sama vinnulagi og vorum búnar um hálffjögur. Labbaði heim úr vinnunni og að þessu sinni fór ég Lækjargötu, meðfram tjörninni, yfir Hljómskálagarðinn, Hringbraut og Bústaðaveg framhjá Valsheimilinu og undir brúna þar. Var þrjú korter á leiðinni og mældist þetta vera uþb 4 km. Um kvöldið fylgdist ég með textalýsingu á mbl.is af úrslitaleiknum milli Vals og Tindastóls í körfunni. Valur vann leikinn og titilinn í fyrsta sinn í 39 ár.

18.5.22

Miðvikudagur

Labbaði í vinnu upp Eiríksgötu og yfir Skólavörðuholtið. Var í bókhaldinu í gær og flokkaði einnig slatta af kennispjöldum. Rétt fyrir tvö kláraðist síðasti límstykkerinn í miðri endurnýjunarskrá og við ekki búnar að fá til okkar sem við pöntuðum fyrir nokkrum vikum síðan. Sendingin er vonandi að koma í dag en á meðan þarf að framleiða kort og form sér og handlíma kortin á formin. Labbaði heim sömu leið og ég fór í vinnuna. Klukkan var orðin hálfsex þegar ég dreif mig loksins í sjóinn. Nú er komin sumaropnun og frítt inn. Hitastig sjávar komið yfir átta gráður og ég ákvað að skilja sjósundsskóna eftir heima en nota strandskóna í staðinn. Stutt var út í sjó og enn að flæða að þegar ég skellti mér út í ca korter fyrir sex. Svamlaði um í tíu mínútur og fór svo í gufuna þar sem mér fannst heldur margt fólk í heita pottinum. Áður en ég fór heim skrapp ég í Krónuna við Fiskislóð og verslaði inn. Varð svo að leggja bílnum í næstu götu en Oddur kom út og sótti pokana með vörunum og gekk frá þeim. 

17.5.22

Þriðjudagur

Var vöknuð um sex í gærmorgun og fór strax á fætur. Enginn á fótum nema ég í íbúðinni því N1 sonurinn var á helgarvakt og er á frívakt til miðvikudags. Gaf mér tíma til að vafra um á netinu áður en ég labbaði af stað í vinnuna. Hafði með mér hádegisnesti, afgang af hakkkássu. Fram að kaffi var ég á móttökuendanum á vélinni. Eftir kaffi var ég smávegis í pökkun en eftirlét þeirri sem var í bókhaldinu í gær það og snéri mér alfarið að flokkun kennispjalda. Vorum bara tvær frammi, fjórar í vinnu, því ein er í fríi næstu vikuna og alveg til og með þriðjudags. Þegar til kom var mér boðið upp í mat og þáði ég það. Eftir hádegi var ég á ítroðsluendanum og við kláruðum eina endurnýjunina og héldum aðeins áfram með þá síðustu frá því í síðasta mánuði. Þessar endurnýjanir koma til með að ná saman því nú fara að "detta" inn þær endurnýjanir korta sem renna úr gildi mánaðamótin júní/júlí. Hættum vinnu rúmlega þrjú og vorum búnar að ganga frá um hálffjögur. Fékk far heim úr vinnunni. Lauk við að prjóna eina tusku og byrjaði strax á annarri. Á tuskuefni í amk sex tuskur í viðbót.

16.5.22

Maí hálfnaður

Klukkan var orðin tíu þegar ég fór á fætur í gærmorgun. Pabbi var nýlega kominn fram og að fá sér harðsoðið egg. Ég fékk mér eitt svoleiðis líka þegar ég var búin með morgunverkin á baðherberginu og taka lýsi. Síðan lagði ég nokkra kapla. Pabbi spurði hvort við ættum að hafa snarl í hádeginu og vildi helst fá bleikju aftur. Ég tók út þrjú lítil flök úr frysti og setti upp basamí hrísgrjón. Hellti líka upp á könnuna. Kryddaði bleikjuna eins og kvöldið áður og með þessu kláruðum við hrásallatið og drukkum vatn. Dagurinn leið ógnarhratt við lestur, kapallagnir, prjón og netvafr. Tæpum tveimur tímum eftir kaffitímann tók ég mig svo saman, kvaddi pabba og hélt heim á leið.

15.5.22

Bleikja

Ég var komin á fætur um hálfsjö í gærmorgun og hafði tíma til að vafra um á netinu áður en ég skutlaði Davíð Steini upp á Gagnveg. Nú er ekki hægt að keyra alveg upp að stöðinni vegna framkvæmda en sonurinn þurfti ekki að labba mörgum skrefum lengra og færði mér svo kaffimál fullt af kaffi og með loki til að taka með mér. Var komin á bílastæði kennara við Austurbæjarskóla korteri áður en Sundhöllin opnaði. Kláraði kaffið í rólegheitum og hlustaði á morgunfréttir áður en ég dreif mig í sundið. Byrjaði á einni ferð í þann kalda fór svo á innstu brautina í innilauginni og synti í rúmar tuttugu mínútur, aðra hverja ferð á bakinu og amk 4x25m skriðsund. Settist svo smástund í heitasta pottinn áður en ég fór aftur í kalda pottinn. Á leiðinni þangað fannst mér undarlegt að finna miða á sundbolnum hægra megin eins og ég væri í öfugum bolnum. Það gat samt ekki verið. Endaði í gufubaði og sat svo á bekk úti í um þrjár mínútur áður en ég fór inn. Þá kom í ljós stærðarinnar gat á sundbolnum, ekki á viðkvæmum stað sem betur fer en þar er bolurinn einnig farinn að láta á sjá. Ég nota þennan líklega ekki meir og fer örugglega fljótega að fjárfesta í nýjum sundbolum. Þvoði mér um hárið og skrapp svo á kjörstað áður en ég fór heim. Oddur Smári kom aðeins fram um hálfellefu og ég notaði tækifærið og sagðist vera að fara austur eftir smá. Ég var búin að vera á Hellu í þrjá og hálfan tíma og sat með prjónana í stofunni þegar harður jarðskjálfti reið yfir. Skjálfti sem átti upptök sín við Þrengsli og var á endanum mældur 4,8. Var með bleikju, soðin hýðisgrjón og hrásallat í kvöldmatinn. Mjög, mjög gott, kryddaði með cayanne og best á lambið. Fékk mér hvítvín eftir að söngvakeppnin var byrjuð. Horfði á alla útsendinguna og síðan smávegis af kosningasjónvarpinu. Fyrstu tölur úr Reykjavík voru þó ekki komnar þegar ég ákvað að fara frekar inn í rúm að lesa.

14.5.22

"Bíddu bara"

Fór semsagt aftur á bílnum í vinnuna í gærmorgun. Var á móttökuendanum á vélinni fram að kaffi og í pökkun og flokkun kennispjalda fram að hádegi. Kerfisfræðingarnir fengu "lánaða" vélina um stund þannig að framleiðslu daglegra debetkorta lauk ekki fyrr en eftir hádegi. Við höfðum engu að síður tíma til að endurnýja kort áður en við hættum og erum langt komnar með að klára að endurnýja þau kort sem taka gildi um næstu mánaðamót. Fór beinustu leið í Nauthólsvík eftir vinnu og óð út í 8,9°C sjóinn á flóði um fjögur. Var að svamla um í tuttugu mínútur og sat svo annað eins í heita pottinum áður en ég fór upp úr og heim. Rétt fyrir átta var ég komin í Gaflaraleikhúsið í Hafnarfirði þar sem ég hitti fyrir samstarfskonur mínar að horfa á sýninguna; Bíddu bara, með Björk Jakobs, Selmu Björns og Sölku Sól. Skemmtum okkur mjög vel og var tíminn mjög fljótur að líða. 

13.5.22

Aftur á bílnum

Kom við í bakaríinu við Skúlagötu á leiðinni í vinnuna í gærmorgun og keypti brauð og kruðerí með "föstudags" kaffinu sem við höfum alltaf á fimmtudögum svo allir geti verið með. Var í bókhaldsverkefnum og flokkunarstörfum í gær. Fór m.a. með 13 flokkaða kassa inn í kennispjaldageymslu og sótti 15 óflokkaða í staðinn. Taldi óflokkuðu kassana sem eftir voru í geymslunni og þeir eru aðeins 30 þannig að það sér fyrir endann á þessu verkefni. Erum búnar að flokka hátt yfir fjögurhundruð þúsund kennispjöld og það eru ekki mörg sem eru í óvissukassanum, óstimpluð. Var boðið með í mat upp í mötuneyti Seðlabankans í hádeginu. Um hálftvö vorum við aðeins þrjár eftir. Hinar tvær voru á vélinni og um þrjú fór vélina að haga sér það illa að fyrirliðinn sá ástæðu til að kalla til viðgerðarmann. Ég kvaddi um hálffjögur og fór beint í Vesturbæjarlaug. Byrjaði á miðlungsheitum potti, svo þrjár mínútur í kalda pottinum áður en ég synti í korter. Svo fór ég beinustu leið heim og fékk stæði fyrir framan. 

12.5.22

Nota bílinn í dag

Í gærmorgun labbaði ég í vinnuna þvert yfir Klambratúnið, Gunnarsbraut, Laugaveg og Klapparstíg. Var í flokkunarstörfum fram að kaffi og á móttökuendanum fram að hádegi. Mér var boðið upp í mat í hádeginu. Einn vinnufélaginn sem er í áskrift er enn í fríi og ég nýt góðs af því. Um tvö kom yfirmaður á fund með okkur og báðum kerfisfræðingunum sem vinna að kortamálum. Fékk far heim úr vinnunni og enn einn daginn nennti ég ekki út aftur. Ég skil ekki hvers konar drifleysi er að hrjá mig en það hlýtur að lagast fljótlega. 

11.5.22

Vikan hálfnuð

Vaknaði stuttu fyrir sex í gærmorgun og fór fljótlega á fætur. Labbaði í vinnuna yfir Skólavörðuholtið. Var á ítroðsluendanum fram að kaffi. Kláruðum fyrstu framleiðslu og eina aukaframleiðslu. Sá um pökkun og talningu fram að hádegi og leysti svo aðra sem var á vélinni af upp úr klukkan hálftólf. Skrapp svo upp í mat með hinni. Var á móttökuendanum á vélinni til hálffjögur og vorum við að vinna í að endurnýja debetkort. Labbaði heim, næstum því sömu leið og um morguninn. Kom aðeins við á torginu til að kanna hvort vinkona mín væri í einum sölubásnum. Hún var ekki þar, kannski farin heim enda klukkan um fjögur. Það var þó verið í fjórum básum en í einum af þeim var verið að taka saman. 

10.5.22

Birtir meir og meir

Rumskaði upp úr klukkan fimm í gærmorgun og fannst það heldur snemmt. Fór á fætur klukkutíma síðar. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Um sjö labbaði ég af stað í vinnuna. Var frammi að flokka kennispjöld fram að kaffi. Eftir kaffi fór ég á móttökuendann á vélinni til hádegis og flokkaði svo fleiri kennispjöld eftir hádegi. Fékk far heim úr vinnunni stuttu fyrir fjögur. Fór ekki út aftur en seinni parturinn og kvöldið var frekar fljótt að líða yfir alls konar dútli. 

9.5.22

Glæný vinnuvika

Þrátt fyrir að vera komin á fætur um átta leytið í gærmorgun var klukkan að verða tólf þegar ég dreif mig loksins í sund. Fór í sundhöllina og byrjaði á því að setjast í kalda pottinn ca korter yfir tólf. Síðan fór ég í innilaugina og synti í tuttugu mínútur á innstu brautinni þrátt fyrir að opið væri í litla stökkbrettið. Strákarnir sem voru að stökkva voru ekkert fyrir mér. Settist svo smá stund út í heitasta pottinn áður en ég fór aftur í þann kalda. Hitti konu sem var með mér í landsbankakórnum. Hún er nýlega hætt að vinna, komin yfir sextugt en ekki þó orðin 67 heldur var hún á 95 ára reglunni. Þvoði á mér hárið á leiðinni upp úr og var komin heim um hálftvö. Kveikti strax á sjónvarpinu og horfði á leik í enska. Var reyndar að skipta aðeins á milli rása því það voru þrír leikir í gangi. Lánaði bræðrunum bílinn seinni partinn. Þeir skruppu til pabba síns en systir þeirra  varð átta ára á laugardaginn. Ég var komin upp í rúm þegar þeir komu heim. Davíð Steinn bað mig samt um að koma aðeins fram fyrst ég var ekki farin að sofa. Þeir bræður höfðu keypt handa mér mæðradagsgjöf, nýja hraðsuðukönnu, garn til að prjóna úr og þar að auki höfðu þeir fyllt á tankinn á bílnum. Það sem ég á góða og hugulsama syni.Þakklát fyrir það og þá. 

8.5.22

Bækurnar af safninu

Er búin með þær tvær sem ég skildi eftir heima í síðustu ferð; Hálfgerðar lygasögur með heilagan sannleika í bland eftir Guðberg Bergson og Blaðamaður deyr eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur. Þær fjórar sem komu heim með mér úr síðustu ferð eru; Dulmál Katharinu eftir Jörn Lier Horst, Meinsemd eftir Kim Faber & Janni Pedersen, Hansdætur eftir Benný Sif Ísleifsdóttur og Tilfinningar eru fyrir aumingja eftir Kamillu Einarsdóttur. Síðastnefndu bókin er ég byrjuð að lesa.

Annars var gærdagurinn afar tíðindalítill. Rumskaði þegar systurdóttir mín fór eldsnemma úr húsi út á flugvöll. Hún er komin í þriggja vikna sumarfrí og fór norður til að komast í sauðburðinn á Árlandi. Ég fór á fætur um átta. Skipti um á rúminu mínu en afrekaði svo ekki mikið meira heldur en að vafra um á netinu, prjóna horfa á þætti og fótboltaleiki og lesa. Oddur skutlaði bróður sínum á árshátíð um sjö leytið og kom við í Saffran á heimleiðinni. Ég nennti semsagt ekki heldur að elda og pantaði mér hamingjuböku og bauð Oddi upp á að panta sér böku líka.

7.5.22

Laugardagur

Var komin á fætur rétt rúmlega sex í gærmorgun. Þrátt fyrir ágætasta gönguveður ákvað ég að fara á bílnum í vinnuna. Framleiðsludagurinn í debetinu var yfir sextánhundruð kort svo við ákváðum að skipta okkur í kaffi og mat. Vorum bara fjórar þannig að sú sem var í bókhaldinu varð að leysa af í kaffi og matartímum. Vélin gekk og gekk. Við þurftum svo aðeins að lána hana kerfisfræðingum um eitt leytið, tvisvar sinnum en ekki mjög lengi í einu. Framleiðslu lauk samt ekki fyrr en rúmlega fjögur og klukkan var farin að ganga sex þegar öllum frágangi og talningu lauk. Ég ákvað því að sleppa sjósundsferð og fara beint heim. Hugsanlega hefði sjórinn kallað sterkar ef það hefði verið flóð en ekki fjara. Bríet kom um átta að sækja húslykla en hún fékk að gista hér í nótt. Fór fljótlega út aftur að hitta vini. Lánaði bræðrunum bílinn í bíóferð en var sjálf að taka því mjög rólega. Horfði á þætti til klukkan tíu og fór þá upp í rúm að lesa í klukkustund áður en ég fór að sofa. 

6.5.22

Föstudagur

Labbaði svipaða leið í vinnuna í gærmorgun og á mánudagsmorguninn. Ég var að undirbúa pökkun og flokka kennispjöld fram að kaffi. Eftir kaffi fór ég á móttökuendann á vélinni. Í hádeginu komu sjö pokar af kortum, yfir tuttugu þúsund kort. Við tvær sem vorum á vélinni til hádegis tókum að okkur að opna pokana og kassana inn í þeim, telja kortin og sortera eftir tegundum. Sem betur fer var hægt að telja kortin í gegnum plastið því það er mjög seinlegt að taka kassana úr plastinu, telja, þræða plastið á aftur og líma fyrir. Þegar búið var að telja öll kortin fór ég í að búa til móttökuskjöl, láta eigendur plastsins vita og taka tappann úr þeim tegundum sem ekki hefur verið hægt að framleiða undanfarna daga. Hin fór í að útbúa límmiða og merkja kortategundirnar. Svo hjálpuðumst við að við að setja þetta upp í hillur inn á kortalager. Rétt fyrir hálffjögur hringdi Oddur Smári í mig. Hann var staddur við Krónuna við Fiskislóð, nýkominn úr Sorpuferð og spurði hvort ég væri búin í vinnunni. Hann sótti mig skömmu síðar. 

5.5.22

Fimmtudagur fimmti

Vaknaði um sex í gærmorgun. Klukkutíma síðar labbaði ég í vinnuna yfir Skólavörðuholtið. Var á ítroðsluendanum fram að kaffi. Lentum í smá brasi en það tafði okkur ekki mjög mikið. Ákváðum að gefa vélinni pásu bæði í kaffi og hádegishléi. Fram að hádegi flokkaði ég kennispjöld. Þáði boð um að borða í mötuneytinu og fékk mjög góðan steiktan hlýra. Eftir hádegi var ég á móttökuendanum á vélinni. Framleiddum þúsund kort af einni endurnýjuninni. Hættum vinnu um hálffjögur. Fékk far heim úr vinnunni og ákvað að skrópa í sund. Vafraði um á netinu, prjónaði, las og horfði á þætti og las svo meira þegar ég var komin upp í um tíu. 

4.5.22

Morgunstund

Vaknaði rétt rúmlega sex í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég um stund inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Áður en ég brunaði svo á bílnum í vinnuna fékk ég mér lýsi. Flokkaði kennispjöld, taldi fyrstu framleiðslu með bókaranum og ýmislegt fleira fram að kaffi. Við sem vorum í skrifstofurýminu fórum á undan í kaffi og tvær af okkur leystum svo þær tvær sem voru á vélinni um tíu. Ég fór á ítroðsluendann. Við kláruðum að framleiða dk daginn og framleiddum svo endurnýjun þar til hádegisskammturinn var kominn á vélina. Sú sem var með mér á móttökuendanum var leyst af klukkan tólf en hún var að taka styttingu vinnuvikunnar. Ég var leyst af tíu mínútum síðar. Eftir hádegishléið mitt taldi ég síðasta vagninn með bókaranum og fór svo að flokka kennispjöld. Upp úr klukkan tvö fór ég með 15 flokkaða kassa af kennispjöldum inn í kennispjaldageymslu og sótti 15 óflokkaða í staðinn. Hættum vinnu um hálffjögur og ég fór beinustu leið í Vesturbæjarlaugina. Synti í 15 mínútur, fór eina ferð í kalda pottinn og prófaði sánaklefann. Þarna eru sér klefar, annar fyrir konur og hinn fyrir menn. Fór í sturtu á eftir og svo í 40°C heitan pott í smá stund áður en ég fór upp úr og heim. Davíð Steinn sá um eldamennskuna í gær og töfraði fram fínasta kjúklingarétt. Mjög gott hjá honum.

3.5.22

Stytting vinnuvikunnar

Labbaði af stað í vinnuna um sjö í gærmorgun. Fór þvert yfir Klambratúnið, Flókagötu, Gunnarsbraut, Njálsgötu, Snorrabraut, Laugaveg, Vitastíg og Skúlagötu. Þegar ég var rétt komin á Skúlagötuna kom vinnufélagi hjólandi að mér og var samferða síðasta spölinn. Hún bauð mér reyndar far en mér leist ekkert á að klöngrast upp á stýrið hjá henni með bakpokann á bakin, enda vorum við bara að fíflast. Ég var í bókhaldinu og mánaðamótaverkefnum fram að hádegi en þá hætti ég vinnu og tók út síðasta hálfa dag einu sinni í mánuði fyrir sumarfrí. Labbaði heim yfir Skólavörðuholtið. Davíð Steinn var kominn á fætur og Oddur kom fram skömmu síðar. Ég stoppaði heimvið í tæpa þrjá tíma en þá skrapp ég á bókasafnið og skilaði þremur bókum af fimm og fékk mér fimm bækur í staðinn. Allar fimm bækurnar með 30 daga skilafresti og möguleikann á að framlengja um aðra 30 daga. Síðan lá leiðin í Krónuna við Fiskislóð. Verslaði inn fyrir rúmlega tuttuguogsexþúsund krónur, sumt af því kannski óþarfi. Þegar ég kom heim fékk ég stæði beint fyrir utan. Davíð Steinn kom út að hjálpa mér með pokana inn og gekk hann líka frá vörunum. Sleppti bæði sjó- og sund ferð og hélt mig heima við það sem eftir lifði dags og kvölds. 

2.5.22

Virkur dagur

Klukkan var byrjuð að ganga tíu þegar ég klæddi mig og bjó um. Eftir morgunverkin á baðherberginu fékk ég mér lýsi og eitt harðsoðið egg. Kveikti svo á einni tölvunni hans pabba og vafraði um á netinu í rúma klukkustund. Settist svo smá stund með bók og prjóna inn í stofu. Hellti upp á könnuna og lagði nokkra kapla. Pabbi kom fram um hálfellefu. Hann var þó löngu vaknaður. Um eitt kveiktum við á sjónvarpinu og stilltum á leik í enska boltanum. Prjónaði alveg helling á meðan ég fylgdist með leiknum. Var að spá í að taka mgi saman eftir kaffi en pabbi freistaði mín með því að spyrja hvort við ættum að hafa saltfisk í matinn. Hann fór svo að steikja pönnsur en ég á netflakk. Kvöldmatur var borðaður um hálfsjö og ég kvaddi ekki fyrr en eftir fréttir og veður. Kom heim um níu í gærkvöldi.

1.5.22

Þriggja bókstafa mánuður

Ég var vöknuð fyrir klukkan sex í gærmorgun. Hafði tekið fartölvuna með mér inn í herbergi í fyrrakvöld og nýtti mér það. N1 sonurinn vaknaði ekki við vekjaraklukkuna sína rétt fyrir sjö heldur sms og facebook skilaboð sem ég sendi rétt eftir að vekjaraklukkan hans hætti. Skutlaði honum í vinnuna og þáði kaffi í staðinn. Var komin á bílastæði við Austurbæjarskóla tólf mínútum fyrir átta. Staldraði við í bílnum framyfir morgunfréttir áður en ég fór í sund. Byrjaði á kalda pottinum. Fór svo inn og synti í hálftíma, þar af 125m skriðsund og aðrahvora ferð á bakinu. Settist svo stund í heitari pottinn úti á svölum áður en ég fór aftur í kalda pottinn. Þaðan fór ég svo í gufu. Þvoðið mér um hárið og var komin heim um tíu. Stoppaði ekki lengi þar. Á meðan ég var að taka mig til fyrir einnar nætur stopp kom Oddur fram til að skreppa á baðherbergið. Ég notaði tækifærið og kvaddi hann. Kom við hjá samstarfskonu minni og fékk eina öskju af þorskhnökkum og þáði hjá henni einn kaffibolla áður en ég hélt för minni áfram. Ákvað að keyra Þrengslin og gat haldið mig á 90km hraða á krúskontról án þess að þurfa að hægja á mér vegna annarrar umferðar. Gerði smá stopp í Fossheiðinni en þorði ekki að stoppa of lengi vegna fisksins sem ég var með í skottinu. Stoppið var líklega ekki nema rétt rúmur hálftími en það var hægt að spjalla á þeim tíma, drekka tvo kaffibolla og borða eina skál af grænmetissúpu. Var komin á Hellu stuttu eftir að hádegisleiknum í enska lauk. Dagurinn fór svo í prjónaskap, fótboltaáhorf, netvafr, kapallagnir, lestur og ýmislegt fleira. Pabbi bauð upp á reykt folaldakjöt í kvöldmatinn og í gærkvöldi fékk ég mér svo smá hvítvín á meðan ég horfði á fjórða þáttinn af Alla leið á RÚV. 

30.4.22

Síðasti apríldagur ársins

Fór aftur á bílnum í vinnuna í gærmorgun og nú með sjósundsdótið með mér í skottinu. Var á mótökuendanum þar til við vorum leysta af rúmlega tíu. Kláruðum fyrstu daglegu framleiðsluna og vorum langt komin með aukaverkefni sem "datt" inn á vélina í fyrradag og lá svolítið á. Skiptum okkur ekki í mat en náðum engu að síður að byrja aðeins á einni af endurnýjununum. Rétt upp úr tvö þurfti ein okkar að fara og tæpum klukkutíma síðar önnur svo þá var framleiðslu sjálfhætt þar sem bara ég og bókarinn vorum eftir. Reyndar var annar kerfisfræðingurinn á svæðinu og hann telst með en við ákváðum engu að síður að ganga frá vélinni og deildinni og fara inn í helgina. Var að vaða út í sjó korter fyrir fjögur og tuttuguogfimm mínútum síðar settist ég í heita pottinn og sat þar í korter. Bríet kom í bæinn og byrjaði á því að skreppa í vinnuna til Davíðs Steins og bíða eftir að hann væri búinn. Ég var að glápa á imbann til klukkan að byrja að ganga tíu en eftirlét svo Bríeti stofuna og fór inn í rúm að lesa. Er langt komin með nýjustu Yrsubókina. 

29.4.22

Föstudagur

Þar sem ég bauðst til að taka að mér yfirsetu vegna yfirferðar á vélinni ákvað ég að fara á bílnum í vinnuna í gærmorgun. Tók sunddótið með mér og geymdi í skottinu. Flokkaði kennispjöld fram að kaffi. Vegna aukaverkefna á vél sem þurfti að klára fyrir tólf ákváðum við að skipta okkur í kaffi. Þær sem voru inn á vél héldu framleiðslu áfram þar til við tvær sem áttum vaktina eftir kaffi leystum þær af. Ég var á móttökuendanum. Vélin fór að vera með leiðindi fljótlega eftir að við tókum við og tafði okkur aðeins. Komum henni þó af stað fljótlega og kláruðum debetframleiðslu dagsins, tvö aukaverkefni og vorum byrjaðar á loka daglega verkefninu þegar við vorum leystar af. Strákarnir sem sjá um yfirferðina komu sem betur fer ekki alveg á slaginu tólf en þótt þeir hefðu gert það hefðu þeir bara þurft að bíða í uþb tuttugu mínútur eftir að fá vélina afhenta til yfirferðar. Úr eldhúsinu úr K2 voru sendir til okkar hamborgarar, einn á mann hvort sem maður er í mataráskrift eða ekki. Mestan tímann af yfirsetunni flokkaði ég kennispjöld. Stelpurnar tíndust heim ein af annarri. Ein var þó alveg til klukkan að verða hálfþrjú. Kerfisfræðingurinn var hins vegar allan tímann á svæðinu. Í yfirferðarlok hjálpaði hann mér að endurheimta aðgangsorðið mitt á vélinni og ná í kort inn á lager til að testa vélina.

Fór í sundhöll Reykjavíkur beint eftir vinnu og fékk meira að segja stæði fyrir framan. Byrjaði á að sitja rúmar fimm mínútur í kalda pottinum. Síðan fór ég í innilaugina og synti í tuttugu mínútur á innstu brautinni. Settist í heitar pottinn á svölunum og sat þar í rúmar átta mínútur. Færði mig svo niður og út og sat smástund á stól úti áður en ég fór upp úr og heim. Bjó til ommilettu úr fiskafgöngum í kvöldmatinn. 

28.4.22

Stutt í helgi og mánaðamót

Á göngu minni í vinnuna í gærmorgun rakst ég ekki á neitt óvenjulegt og hitti heldur ekki enn einn köttinn. Ég var að flokka kennispjöld fram að kaffi. Eftir kaffi fékk ég kerfisfræðinginn til að aflæsa aðganginum á framleiðsluvélinni. En lykilorðið sem ég var að skipta um og skráði hjá mér á góðum stað virkaði samt ekki og ég læstist aftur úti. Bauð þeirri sem var inni með mér að skipta um enda en hún "lánaði" mér aðganginn sinn og hélt sig svo á móttökuendanum. Daglegri framleiðslu lauk upp úr klukkan hálftólf. Fór upp í mat með tveimur af samstarfskonum mínum sem skráðar eru í mat. Ég hef ekki verið skráð í mat í mörg ár, eða ekki síðan þetta áskriftarkerfi komst á, en einn vinnufélagi okkar sem er skráður er í fríi og skv kokkinum í Seðlabankanum er ekki verið að spá í hverjir koma bara að það eru sex skammtar skráðir fyrir RB-inga. Eftir hádegi var ég að flokka kennispjöld til klukkan þrjú. Fékk far heim úr vinnunni. Stoppaði heima í tæpa klukkustund áður en ég skrapp yfir í Sundhöllina. Fór beint á braut 4 í útilauginni og synti í rúmt korter. Eina ferð í kalda pottinn og endaði á gufubaði.

27.4.22

Sumardekkin undir

Labbaði í vinnuna yfir Skólavörðuholtið. Hitti aðeins rófulausan kött rétt áður en ég fór yfir á gangbrautarljósunum yfir Miklubraut. Staldraði ekkert við og kötturinn elti mig ekki, sem betur fer. Framleiðsluvélin var með stæla. Þær sem höfðu verið aðeins lengur í gær, alveg til hálfsjö, höfðu ekki klárað það verkefni sem þær ætluðu sér. Ég átti að vera á ítroðsluendanum. Sló nýbreytt aðgangsorðið mitt rangt inn of mörgum sinnum og læstist því úti. Sú sem var í bókhaldinu í gær loggaði sig inn í staðinn og ég gat amk hlaðið inn daglegum verkefnum. Viðgerðarmaður kom á svæðið upp úr klukkan níu. Hluti af vandamálinu var að endurræsa þurfti ákveðinn hugbúnað og sem betur fer voru báðir kerfisfræðingarnir á svæðinu. Framleiðslan komst svo fljótlega í gang. Við sem vorum á vélinni vorum leystar af í kaffi um hálfellefu. Við fórum svo á undan í mat, en ekki fyrr en um tólf þó. Þegar við tókum við aftur var öllum daglegum verkefnum lokið svo við fórum beint í það verkefni sem kláraðist ekki í gær. Að ljúka því tók óvenju langan tíma og mín tilfinning var sú að þetta var bæði vélin og hráefnið sem voru með vesen. Klukkan var byrjuð að ganga fimm þegar þessari framleiðslu var lokið. Verkefnunum sem lá á var samt ekki lokið en ég varð að drífa mig heim þar sem einkabílstjórinn svaraði ekki símanum. Kom heim rétt rúmlega fimm og hafði smá stund til að skipta um bol og fá mér smá hressingu áður en ég fór með bílinn á N1 við Fellsmúla til að sækja sumardekkin, láta setja undir og skilja nagladekkin eftir á dekkjahótelinu. Átti pantaðan tíma klukkan hálfsex og sá tími stóðst. Beið í tæpan hálftíma á meðan verið var að skipta um dekk og gat svo notað mér N1 afslátt Davíðs Steins með því að þylja upp kennitöluna hans. Dekkjaskiptin og dekkjahótelið kostaði mig rúmlega tólf þúsund með afslættinum, hefði annars farið yfir fjórtán þúsund. Áður en ég fór heim aftur kom ég við í Hagkaup í Skeifunni. Keypti súsíbakka handa brærunum og nokkrar dokkur af bómullargarni sem þvo má á 60°C, á tilboði.

26.4.22

Vinkonuhittingur

Labbaði í vinnuna í gærmorgun, þvert yfir Klambratún og þá leiðina. Rétt áður en ég beygði inn á Gunnarsbraut af Flókagötunni heilsaði köttur upp á mig sem elti mig svo næstum alla Gunnarsbrautina. Ég var í bókhaldinu í gær. Þegar ég var búin að prenta út og undirbúa fyrstu talningar fór ég með 16 flokkaða kassa af kennispjöldum í kennispjaldageymsluna og kom til baka með 15 óflokkaða kassa. Erum að flokka árin 2010-2011 og eigum því um fimm ár eftir þar til við komum að þeim stað þar sem við byrjuðum að flokka spjöldin eftir bönkum. Fékk skilaboð frá Ellu vinkonu um að hún væri í bænum og ef ég vildi og gæti gætum við hist á Grandhótel seinni partinn. Þegar ég sá skilaboðin sendi ég þumal og sagðist mæta. Tvær af okkur fjórum sem voru að vinna ákváðu að vera í vinnu þar til endurnýjun plasta sem renna út næstu mánaðamót væri lokið. Veit ekki hversu lengi þær þurftu að vera en kannski til klukkan að verða sex. Ég labbaði heim yfir Skólavörðuholtið og var komin rúmlega fjögur. Tæpum klukkutíma seinna skutlaði Oddur mér í vinkonuhittingin. Ella var stödd með nokkrum kennurum úr Egilsstaðaskóla í skólaheimsókn í bænum. Fóru í einn skóla á Suðurnesjunum í gær og fara í Langholtsskóla í dag. Hitti vinkonu mína og þrjá af átta öðrum kennurum í lobbýi hótelsins. Við skruppum á barinn þar sem var  "Happy hour" milli fimm og sjö. Ella bauð mér upp á hvítvínsglas og ég bauð henni næsta umgang. Oddur sótti mig svo aftur um hálfsjö. 

25.4.22

Mánudagur

Þrátt fyrir að hafa farið upp í rúm eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags og lesið í smá stund áður en ég fór að sofa svaf ég bara til klukkan átta í gærmorgun. Fór á fætur mjög fljótlega og eyddi deginum í netvafr, prjón, fótbolta og þáttaáhorf. Kláraði eina tusku og fitjaði upp á annarri. Var með bók við höndina en las svo ekkert fyrr en ég fór í háttinn um tíu. 

24.4.22

Smá lottovinningur annan laugardaginn í röð

Klukkan var rétt að byrja að ganga átta þegar ég var komin á fætur í gærmorgun. Klukkutíma síðar var ég mætt í sundhöll Reykjavíkur. Byrjaði á því að setjast í kalda pottinn í um sjö mínútur. Svo fór ég upp í inni laugina og hafði innstu brautina alveg fyrir mig. Synti í hálftíma. Aðra hverja ferð á bakinu og fjórar ferðir skriðsund og amk 14 ferðir á bringunni. Settist smá stund í heitari pottinn upp á svölunum áður en ég fór aftur í kalda. Eftir stund í gufunni, þriðju ferðina í kalda og smá bekkjarsetu þvoði ég mér hárið áður en ég fór aftur heim og hellti mér upp á kaffi. Var lengi vel á báðum áttum hvort ég ætti að drífa mig austur en það sem hélt helst aftur af mér eru nagladekkin en ég festist líka yfir boltanum. 

23.4.22

Laugardagur

Vaknaði tæpum hálftíma á undan vekjaraklukkunni. Slökkti á henni og dreif mig á fætur. Fór á bílnum í vinnuna. Ég var á ítroðsluendanum á vélinni og þurfti að byrja á því að skipta um lykilorð. Ekki var alveg jafnmikil framleiðsla í daglegu skránum og síðasta vetrardag. En þó var smá slatti í einni tegund þar sem plastbirgðir bárust þá og tappi var tekinn úr svo hægt væri að hleypa framleiðslu í gang. Þetta voru þó ekki nema rúmlega níutíu kort sem safnast höfðu upp á rúmum tveimur vikum. Daglegri framleiðslu lauk um tólf. Eftir hádegi var allt talið og unnið í endurnýjun á plasti sem búið er að geyma vegna birgðarstöðunnar. Við fengum semsagt smávegis af birgðum á miðvikudaginn var. Ekki nóg til að klára allt sem bíður en sumt af því þó og svo er von á meira plasti á næstu dögum. Sú sem var í bókhaldinu þurfti að fara um hálfþrjú en af því að það var kerfisfræðingur staddur hjá okkur, m.a. til að stilla af nýtt plast, gátum við framleitt til rúmlega þrjú áður en við gengum frá. Vorum samt ekki alveg búnar þá því þá þurftum við að aðstoða kerfisfræðinginn við breytingarnar. Eftir vinnu fór ég svo beinustu leið í sjóinn. Klukkan var að verða hálffimm þegar ég óð út í næstum hálfa leið til Kópavogs því það var háfjara. Sjórinn sagður 7°C og ég entist rúmar tuttugu mínútur í buslinu. Var bara helminginn af þeim tíma í heita pottinum á eftir. Áður en ég fór heim ætlaði ég að skreppa á Atlantsolíustöðina við Sprengisand en ég kom Bústaðameginn frá og þeim meginn er búið að loka vegna framkvæmda. Ég sá amk ekki í fljótu bragði að hægt væri að beygja til vinstri. Ég fór því alla leið í Hafnafjörð á stöðina við Kaplakrika til að fylla á tankinn. 

22.4.22

Einn virkur dagur

Ég rumskaði upp úr klukkan fimm í gærmorgun. Rétt rúmlega klukkustund síðar ákvað ég að drífa mig bara á fætur. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég svo í stofusófann með fartölvuna í fanginu. Davíð Steinn kom á fætur rétt fyrir hálftíu. Hann átti ekki að vera mættur í vinnu fyrr en klukkan tíu. Ég skutlaði honum upp í Grafarvog og hleypti honum út við vinnustaðinn á slaginu tíu. Svo ákvað ég að prófa að fara í Grafarvogslaug. Þrátt fyrir að það séu rúmlega tuttugu ár síðan þessi laug var opnuð hef ég aldrei farið í hana áður. Aðstaðan alveg til fyrirmyndar. Kaldi potturinn kaldur og ágætur og ég byrjaði á því að fara í hann. Síðan synti ég í rétt rúmar tuttugu mínútur áður en ég fór aftur í kalda pottinn. Eftir þá ferð fór ég í pott sem merktur var 42-44°C. Svo fór ég aftur í kalda áður en ég fór í gufu. Á svæðinu eru bæði eimbað og gufubað og einnig smáhýsi með infrarauðum hitaljósum. Prófaði að setjast þar inn áður en ég fór upp úr og heim. Þegar heim kom skellti ég handklæðum í þvottavél og tók með mér þvott af Oddi af snúrunum með mér upp. Svo hellti ég mér upp á kaffi. Annars var gærdagurinn bara rólegur og góður. Heyrði aðeins í pabba seinni partinn og horfði á nokkra þætti.

21.4.22

Sumardagurinn fyrsti

Vaknaði á undan vekjaraklukkunni. Fór aftur á bíl í vinnuna. Ég var á móttökuendanum á framleiðsluvélinni. Dagleg framleiðsla fór yfir þúsund kort. Svo er að hellast yfir endurnýjun. Það er líka að koma hráefni til að klára þær endurnýjunarskrár sem hafa þurft að bíða. Það er bara spurning hvort það er nóg til að dekka líka daglegt. Var í vinnu til klukkan að ganga fimm. Ákvað þá að fara bara beint heim þrátt fyrir að vera með sunddótið meðferðis í skottinu. Var að vafra á netinu og horfa á beinar útsendingar. Sendi Odd Smára að sækja bróður sinn í vinnuna. N1 sonurinn var mjög glaður að verða sóttur án þess að biðja um það. 

20.4.22

Tannlæknaheimsókn

Fór á bílnum í vinnuna í gærmorgun með ýmislegt með mér í skottinu. Þar sem að ég þurfti að skreppa frá um tíu var ákveðið að ég væri í bókhaldinu frekar en framleiðslunni. Við vorum þrjár í vinnu og um níu kom svo sá kerfisfræðingur sem mun flytja með kortadeildinni þegar við förum yfir í seðlaverið við Sundaborg seinna á árinu. Þar með máttu hinar tvær halda framleiðslu áfram þegar ég fór til tannlæknisins. Það tók um klukkustund að gera við brotnu framtönnina og fylla aftur rótina á jaxlinum. Þegar ég kom til baka var ekkert stæði á neðra planinu laust svo ég lagði í gjaldstæði á Skúlagötunni móts við bakaríið. Debetframleiðslunni var lokið og stelpurnar voru að pakka. Ég kom mátulega til að prenta út listann fyrir hádegisframleiðsluna. Skrapp upp í mat með þeirri sem er komin í mataráskrift. Borgað er fyrir 6 frá RB í mötuneyti Seðlabankans en amk tveir eru í fríi og þá má nýta sér það. Hættum vinnu um hálfþrjú. Þá skrapp ég á bókasafnið og skilaði öllum fimm bókunum. Fékk mér fimm bækur í staðin og ein af þeim er skammtímalánsbók; Lok lok og læs eftir Yrsu Sigurðardóttur. Af safninu ákvað ég að skreppa í Vesturbæjarlaugina. Synti ekki nema í tíu mínútur og fór aðeins einu sinni í kalda pottinn. Áður en ég fór heim kom ég svo við í Fiskbúð Fúsa. 

19.4.22

Stutt en slitin vinnuvika

Ég var vöknuð um átta í gærmorgun. Í stað þess að klæða mig strax fór ég að lesa. Kláraði síðustu bókasafnsbókina og byrjaði svo loksins á einni af jólabókunum; Djúpið eftir Benný Sif Ísleifsdóttur. Klæddi mig ekki fyrr en um tíu leytið. Bríet var enn sofandi í stofunni og hafði talað um að sofa til ellefu. ég hélt mig því bara í herberginu mínu eftir morgunverkin á baðherberginu. Upp úr klukkan hálfellefu hellti ég mér upp á kaffi og fékk mér hressingu með. Skrifaði á fermingakort og setti seðil í umslagið inn í kortinu. Stuttu fyrir eitt urðum við frænkur samferða á mínum bíl yfir í Síðumúla þar sem fermingarveislan var haldin. Fermingarbarnið hafði valið að hafa hamborgaraveislu. Það er uppáhaldsmaturinn hans og er vist orðið nokkuð algengt. Á eftir var boðið upp á kaffi, kransaköku, tertu, sörur og marglitar smákökur. Veislunni lauk um hálffjögur. Frænka mín kom heim með mér og var alveg róleg til klukkan að verða hálfátta en þá kvaddi hún og lagði af stað austur. 

18.4.22

Bíl- og göngutúr með vinum

Var komin á fætur upp úr klukkan átta í gærmorgun. Bríet var búin að skila sér "heim" úr útstáelsi svo það var lokað inn í stofu. Ég vafraði aðeins um á netinu en svo hélt ég áfram að lesa síðustu ólesnu bókina sem er í fórum mínum af bókasafninu; Síðasti naglinn eftir Stefan Ahnheim. Um ellefu hringdi afmælisbarn gærdagsins en við höfðum sammælst um að ég kæmi yfir til þeirra um hálfeitt. Hún var að bjóða mér að koma aðeins fyrr eða upp úr klukkan hálftólf. Þegar þangað kom beið mín smurð flatkaka, kaffi og döðluterta með rjóma. Tæpum klukkutíma síðar lögðum við af stað í bíltúr, þau hjónin og ég. Við fórum á þeirra bíl, hann keyrði en mér var boðið að sitja í farþegasætinu fram í. Leiðin lá til Grindavíkur og þaðan yfir á vinsælustu gönguleiðina að gosstöðvunum við Fagradalsfjall. Þarna er alltaf eitthvað að fólki en í gær var samt ekkert kraðak. Þúsund krónur kostar að leggja á bílastæðunum. Við löbbuðum alls ekki alla leið þangað sem gýgarnir sáust en alveg upp að hraunjaðri, rúmlega tveggja kílómetra leið frá bílastæðinu. Þegar við komum til baka fengum við okkur hressingu, kaffi og flatköku með hangiketi. Síðan lá leiðin að Reykjanesvita. Stoppuðum aðeins við Gunnuhver en þegar við komum að vitasvæðinu var einnig rukkað þúsund krónu bílastæðagjald þar. Ég var hvort sem er ekki í stuði til að labba meira og alls ekki upp hæðir þar sem var þverhnýpt niður hinum megin. Norsku vinkonu minni var líka orðið mál að pissa. Það varð því úr að ferðinni var haldið áfram til Keflavíkur. Þar komumst við vinkonur á klósett á einni bensínstöðinni. Mér fannst ég svo sem ekki vera í spreng en samt var gott að komast á salernið og tæma blöðruna. Rúntuðum svo aðeins um Keflavík áður en við brunuðum aftur í bæinn. Ég kvaddi þau fyrir utan heima hjá þeim og þegar ég kom heim var Davíð Steinn að elda kvöldmatinn. Bríet var að hitta vin og ætlaði að skutla honum til Keflavíkur. Hún hringdi og spurði hvort hún mætti bjóða honum að borða með okkur. Það var auðsótt mál.

Svo verð ég að segja frá því að þegar ég hringdi í pabba á laugardaginn var sagðist hann hafa skroppið í sund um morguninn. Starfsfólkið varð hissa að sjá hann en tók vel á móti honum.

17.4.22

Páskadagur

Var komin á fætur rúmlega hálfsjö. Tæpum klukkutíma síðar hleypti ég Davíð Steini út við N1 stöðina í Gagnveg í Grafarvogi og beið eftir því að hann færði mér kaffibolla út í bíl. Næst kom ég við í hraðbankanum í Landsbankaútibúinu við Borgartún. Þá lá leiðin upp í Sundhöll. Lagði á stæði við Austurbæjarskóla. Eins og mig grunaði var kominn tími til að endurnýja árskortið í sund. Sú sem afgreiddi mig rétt mér einnig penna til að merkja aftur kortið mitt. Korter yfir átta var ég komin ofan í kalda pottinn. Þar sat ég í rúmar fimm mínútur áður en ég ákvað að prófa gömlu innilaugina. Synti í rúmar tuttugu mínútur, helminginn af 550m á bakinu, 100m (tvær ferðir) skriðsund og afganginn bringusund. Fór svo í gamla heitar pottinn í nokkrar mínútur áður en ég fór aftur niður, út og í kalda pottinn. Endaði í gufubaði. Þvoði mér um hárið á leiðinni upp úr. Næst lá leiðin á bílaþvottastöðina Löður við Fiskislóð. Var þar um það bil sem var verið að opna og var þriðji bíll dagsins í gegn. Svo kom ég við í Krónunni og gerði stórinnkaup áður en ég fór heim og gekk frá vörunum. Eftir að Bríet kom fram úr stofunni skömmu síðar fór ég þangað inn. Hlustaði á hádegisfréttir, horfði á leiki í enska og landsleikinn í handbolta. Bríet skrapp frá milli hálftvö og hálffimm að reka nokkur erindi og svo fór hún aftur á áttunda tímanum til að sækja frænda sinn úr vinnunni. Seinna um kvöldið skrapp hún út í einhverja heimsókn og var ekki komin aftur þegar ég fór inn í rúm um ellefu.

16.4.22

Á skutlvaktinni

Var komin á fætur um níu, fyrst af öllum í húsinu. Eftir morgunverkin á baðherberginu kveikti ég á einni tölvunni hans pabba og sat þar næsta klukkutímann. Þá fékk ég mér lýsi og harðsoðið egg. Settist svo aftur við tölvuna. Davíð Steinn og pabbi komu næst á fætur, um hálfellefu og Oddur Smári fljótlega eftir það. Lagði nokkra kapla áður en ég hellti mér upp á smá kaffi. Settist svo með kaffibollann, prjónana og bók inn í stofu. Bríet kom á fætur um hádegið. Þau Davíð Steinn fóru í langan göngutúr milli hálftvö og hálffjögur, komu til baka mátulega í kaffitímann. Oddur Smári gekk frá eftir kaffitímann. Ég var búin að taka þrjú frosin bleikjuflök úr frysti. Um sex setti ég upp hrísgrjón, kryddaði flökin og léttsteikti á pönnu. Davíð Steinn og Bríet gengu frá eftir kvöldmatinn og settu uppþvottavélina í gang. Ég horfði á fréttir, íþróttir og veður áður en við mæðginin þökkuðum fyrir okkur, kvöddum og héldum af stað heim á leið. Oddur sá um aksturinn og ég sat í aftursætinu. Hálftíma á eftir okkur kom Bríet en hún ætlar að fá að gista hérna fram á mánudag.  

15.4.22

Föstudagurinn langi

Var komin á fætur um klukkan hálfníu í gærmorgun. Fór fljótlega niður í þvottahús að sækja þvott á snúruna. Annars var ég að vafra um á netinu til klukkan að verða ellefu. Davíð Steinn kom fram um hálftólf og Oddur rúmum klukkutíma síðar. Þá var ég farin að lesa og kláraði næstsíðustu bókina sem ég er með af safninu. Um hálftvö lögðum við mæðgin af stað austur. Pabbi var að leggja kapal og Bríet nývöknuð þegar við mættum þangað rétt fyrir þrjú. Pabbi skrapp fljótlega út í búð og ég hellti upp á kaffi. Frændsystkynin skruppu labbandi út í búð eftir kaffi. Þá var búið að loka þar. Þau keyptu sér eitthvað hjá Olís en Bríet og Davíð Steinn skruppu svo á hennar bíl austur í Hvolsvöll og keyptu þar páskaegg og malt.

Setti upp blómkál og lauk í gufupottinn um sex. Pabbi kveikti fljótlega upp í grillinu og ég bjó til piparsósu úr tveimur pökkum frá Toro. Maturinn var borðaður um sjö og það var einnig boðið upp á sætkartöflumús, hrásallat og gular baunir með. Pabbi var búinn að kaupa hvítvínsbelju og ég fékk mér í glas eftir matinn.

14.4.22

Annar landsleikur í annarri hópíþróttagrein

Varð mjög hissa þegar ég vaknaði við það að vekjarinn í gemsanum var að hringja. Hafði rumskað aðeins á sjötta tímanum en svo steinsofnað aftur. Ég fór á bílnum í vinnuna. Vorum bara þrjár svo við héldum okkur á sömum svæðum þar til daglegri framleiðslu lauk um hálftólf. Ég var á ítroðsluendanum. Ákvað svo að skreppa upp í mat með annarri hinni. Ég hef ekki verið í mataráskrift í nokkur ár eða eiginlega síðan þetta áskriftarkerfi var sett á. En það eru 6 skráðir í mat frá RB í mötuneyti Seðlabankans og amk tveir af þeim voru í fríi í gær svo mér var frjást að notfæra mér það. Það var mjög góður þorskur í matinn og ýmislegt girnilegt meðlæti sem hægt var að fá sér með. Hættum vinnu um hálfþrjú. Ég fór beinustu leið í Nauthólsvík og svamlaði í sjónum í uþb 15 mínútur. Kom heim um hálffjögur og kveikti fljótlega á sjónvarpinu til að fylgjast með umspili karlalandsliðsins í handbolta við Austuríki á útivelli.

Skólasystir strákanna úr Hlíðaskóla kom í heimsókn til að fá Odd til að hjálpa sér með smá skólaverkefni. Við Davíð Steinn fengum líka að taka þátt. En við áttum að spila BINGO í tölvunni hennar og segja svo hvað okkur fannst um forritið. 

13.4.22

Í efsta sæti

Ég var vöknuð, klædd og komin fram korter yfir sex. Þremur korterum seinna labbaði ég af stað í vinnuna. Mætti fyrst af fjórum. Var frammi í undirbúningi undir pökkun og flokkun kennispjalda fram að kaffi. Taldi einnig með þeirri sem var í bókhaldinu eftir fyrstu framleiðslu dagsins. Eftir kaffi fór ég á ítroðsluendann á vélinni. Kláruðum dagleg verkefni um hálftólf. Bókarinn fór um hádegi, tók styttingu vinnuviku það sem eftir var af deginum. Ég fór á móttökuendann á vélinni eftir mat og af því að við skiptum um svokallaðan innfylliborða gátum við lokið við það sem hægt var af síðustu endurnýjuninni án þess að eyðileggja fleiri kort. Vorum búnar um tvö og gengum frá. Ein af okkur þremur sem eftir vorum þurfti að fara rétt fyrir tvö og við, tvær síðustu, fórum um hálfþrjú. Fékk far með henni heim. Var því komin heim rúmum hálftíma fyrir landsleikinn við Tékka. Þetta var mikill baráttuleikur og okkar stelpur unnu hann á einu marki skoruðu um miðjan fyrri hálfleik. 

12.4.22

Dymbilvika

Vaknaði um klukkan sex í gærmorgun. Fór fljótlega á fætur og hafði tæpa klukkustund í netvafr áður en ég labbaði af stað í vinnuna. Vorum fjórar í vinnu, ein í frí næsta hálfa mánuðinn. Ég var á móttökuendanum fram að kaffi og í pökkun, talningu og fleiru fram að hádegi. Eftir hádegi fór ég á ítroðsluendann að vinna að endurnýjun. Fljótlega fór að bera á því að vélin var að henda og eyðileggja kort þegar aðeins var eftir að ljúka við að setja cvc númer, embossa og setja gyllt yfir. Prófuðum að létta á rúllunni sem tekur upp mjóa svarta borðann. Það virkaði bara um stund. Um þrjú ákváðum við að kalla þetta gott og ganga frá. Fékk far heim úr vinnunni og var ekkert að fara aftur að heiman. Restin af deginum og kvöldið var fljótt að líða.

11.4.22

Heildarfærsla no. 3211

Kom mér á fætur rétt fyrir klukkan níu í gærmorgun. Dagurinn var allur hinn rólegasti fyrir utan tímann þegar "Leikurinn" milli Manchester City og Liverpool var í gangi seinni partinn. Sá leikur endaði 2:2 en mitt lið vann seinni hálfleikinn með því að skora eina löglega mark þess leikhluta og það í upphafi hálfleiksins, varla búin mínúta af leiknum. Enn munar því aðeins einu stigi á milli þessara tveggja liða og það gæti alveg farið svo að eftir síðustu sjö umferðirnar munaði þessu sama stigi. En til þess þurfa bæði liðin að vinna alla sína leiki sem eftir eru.

Ég var nokkuð mikið í tölvunni í gær en líka að prjóna og horfa á fótbolta eða þætti. Horfði t.d. á fjórða þátt hringfarans á mótorhjólinu. Magnaðir þættir þar á ferð. Framundan er stutt vinnuvika enda páskahelgin um næstu helgi.

10.4.22

Hudraðasti dagur ársins

Var komin á fætur upp úr klukkan hálfátta. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Þar sem ég fór ekki í sjóinn á föstudaginn ákvað ég að fara í hádeginu í gær þegar var flóð. Flóðið náði þó aldrei alveg upp að "landganginu/brúnni" en það voru aðeins örfá skrer út í og stutt í dýpið. Sjórinn var innan við fjórar gráður en engu að síður tolldi ég út í í um korter, ætlaði varla að tíma að fara upp úr. Úr sjónum fór ég í gufuna og þegar ég fór upp úr gerði ég svolítið sem ég hef aldrei gert í aðstöðunni við Nauthólsvík áður. Ég hafði tekið með mér sjampóið og þvoði mér um hárið. Kom heim um hálfeitt. Veit svo að í næsta skipti þegar ég fer í sund þarf ég að endurnýja árskortið mitt. Aðgangurinn að Nauthólsvík endist hins vegar fram í miðjan maí. Horfði á seinni hálfleikinn í hádegisleik enska boltans sem var eini leikur dagsins sem vannst á heimavelli þar sem Everton vann 1:0 sigur á Manchester United. Hinir fjórir leikirnir unnust allir á útivöllum og sumir frekar stórt. Horfði á tvo af þessum fjórum leikjum. Um fjögur hringdi nafna mín og frænka að norðan í mig. Hún var stödd hjá mági sínum og bauð mér að koma að sækja nokkrar myndir af mömmu til hans en konan hans dó fyrir nokkrum misserum (fyrir Covid). Kláraði eina tusku í gær og fitjaði strax upp á annarri. Horfði á Alla leið og nokkra þætti áður en ég fór upp í rúm að lesa og svo sofa um miðnætti. 

9.4.22

Helgarfrí

Ég fór aftur á bílnum í vinnuna í gærmorgun. Vorum fjórar í vinnu og ég var í bókhaldinu. Það hafðist að klára að taka út kort á móti korti og fjöldi fjarlægðra korta stemmdi. Fengum eitt smá aukaverkefni upp í hendurnar sem helst varð að klára þannig að það kæmist í póst samdægurs. Þetta voru ekki nema tæplega hundraðogfimmtíu kort svo þetta hafðist allt. Ein af okkur þurfti að fara um tvö við hinar vorum tæpum klukkutíma lengur áður en við gengum frá. Ég var með sjósundsdótið mitt meðferðist í skottinu en hafði gleymt að taka með mér handklæði. Vissi að það væri fjara og ákvað að fara bara heim. Hringdi í pabba en hann svaraði ekki fyrr en ég hringdi aftur upp út klukkan fimm. Þá hafði hann skroppið yfir á elliheimilið að heimsækja systur sína. Hringdi líka í norsku esperanto vinkonu mína. Hún var víst rétt ókomin heim úr vinnu en hringdi til baka þegar hún kom heim.

Dreif í að panta tíma hjá tannlækni í gærmorgun. Þar sem ég finn ekkert til þurfti ég ekki að fá tíma með hraði. Næsti lausi tími var þriðjudagsmorguninn eftir páska. Ef ég hefði frekað viljað tíma eftir hádegi þá var ekki laust fyrr en í maí. Gemsinn minn er greinilega vel tengdur hjá tannlæknastofunni því ég þurfti ekkert að gefa upp kennitölu en sú sem afgreiddi mig gat flett upp myndum af tönnunum mínum og séð hvaða tvo staði þarf að lappa upp á, ein rót í einum jaxli og framtönnin, svo tannlæknirinn verður undirbúinn undir verkefnið þegar ég mæti. 

8.4.22

Góður sigur

Fór á bílnum í vinnuna í gærmorgun. Samdi við eina samstarfskonu mína um að fá að vera frammi fyrstu törnina til að halda áfram að finna kort á móti korti. Eftir kaffi fór ég á ítroðsluendann á vélinni. Daglegri framleiðslu lauk um tólf. Eftir hádegi hélt ég áfram að leita að korti á móti korti. Þær sem fóru inn á vél fóru að vinna í endurnýjun. þegar við hættum vinnu um hálffjögur átti ég aðeins eftir um þrjátiu kort, af rúmlega sexhundruðogfjörutíu. Þrátt fyrir að vera með sunddótið með mér í skottinu fór ég beinustu leið heim eftir vinnu til að horfa á landsleikinn í knattspyrnu kvenna og fylgjast með stelpunum okkar vinna fimm núll sigur á Hvítrússum og komast þar með í toppsætið í riðlinum í bili. 

7.4.22

Birta

Vaknaði um sex í gærmorgun. Klukkutíma síðar labbaði ég í vinnuna. Var mætt fyrst en svo sem ekkert löngu á undan hinum. Fram að kaffi var ég að finna kort á móti korti. Eftir kaffi fór ég á móttökuendann á vélinni. Sú sem var á hinum endanum var leyst af um tólf því hún var að taka út styttingu vinnuvikunnar til að komast í leikskólakaffiboð hjá einu barnabarninu. Hádegisframleiðslu lauk um hálfeitt. Eftir mat hélt ég áfram að finna kort á móti korti og þegar við hættum vinnu um hálffjögur var ég líklega tæplega hálfnuð að skipta út á sjöundahundrað kortum. Þetta tekur svolítið á. Fékk far heim úr vinnunni. Settist niður í stofu með fartölvuna í fanginu og japlaði á harðfiski. Varð ekkert vör við það sem gerðist einhvern tímann á næsta hálftímanum en svo fann ég að viðgerðarbrotið úr framtönninni var horfið. Mjög líklega kominn tími á það eitthvað rúmlega 30 ár síðan gert var við tönnina þannig að allt tolldi. Það er þá sennilegt að ég setji mig í samband við tannsa til að fá gert við þetta og að fylla upp í rót í jaxli, fyllingu sem brotnaði úr fyrir nokkrum vikum síðan. Það varð ég alveg vör við en hef svo sem ekki fundið fyrir einni einustu tannpínu. Enda var þetta ekki skemmd heldur sýking sem varð til þess að rótarfylla þurfti jaxlinn fyrir nokkrum árum. 

6.4.22

Miðjan á vikunni

Var vöknuð og komin á fætur korter yfir sex í gærmorgun. Allt hvítt úti en ég fór nú samt einungis í götuskóna og "léttari" úlpuna áður en ég labbaði af stað í vinnuna um sjö. Fór leiðina yfir Skólavörðuholtið; upp Eiríksgötu og niður Skólavörðustíg og Ingólfsstræti. Ég var á móttöku endanum á vélinni fram að kaffi. Vorum beðnar um að koma ekki fram í kaffi fyrr en um tíu því einn samstarfmaður okkar var með fund á kaffistofunni milli níu og tíu. Eftir kaffi flokkaði ég kennispjöld og pakkaði daglegu debetframleiðslunni eftir því sem hún skilaði sér fram úr framleiðslunni. Eftir hádegi fór ég í ítroðsluendann á vélinni. Kláruðum eina kreditendurnýjun og endurframleiddum svo rúmlega 600 kort úr dk endurnýjun. Hættum vinnu korter í fjögur og fékk ég far heim úr vinnunni. Klukkutíma eftir að ég kom heim skrapp ég í Hagkaup í Skeifunni og varð mér úti um ýmislegt til að bjóða upp á í saumaklúbb um kvöldið. Lánaði strákunum bílinn í bíó um hálfátta. Stuttu síðar kom önnur úr klúbbnum gangandi, ísköld frá Grettisgötunni. Hin kom rúmum hálftíma síðar og hafði þurft að leggja í næstu götu. Stæðið sem bíllinn var í áður en strákarnir fóru í bíó var víst ekki lengi að fyllast. Sem fyrr leið tíminn eins og óð fluga og áður en við vissum af var klukkan langt gengin í ellefu. 

5.4.22

Morgunstund

Vaknaði rúmlega sex í gærmorgun. Dreif mig á fætur og eftir morgunverkin á baðherberginu gaf ég mér tíma til að vafra um á netinu sem og setja inn færslu. Fékk mér lýsi og smá ostbita áður en ég labbaði af stað í vinnuna. Vorum fjórar í vinnu, ein í fríi. Var á ítroðsluendanum fram að kaffi og á móttökuendanum eftir kaffi. Klukkan eitt mætti núverandi næsti yfirmaður okkar á svæðið og var með stöðufund í um klukkustund. Að fundi loknum fóru tvær inn á framleiðsluvél og framleiddu til klukkan að verða hálffjögur. Ég hjálpaði þeirri sem var í bókhaldinu að telja seinni tvo vagnana og flokkaði svo kennispjöld. Fékk far heim úr vinnunni og var komin heim um fjögur. Klukkutíma síðar skrapp ég í Nauthólsvíkina. Svamlaði í tuttugu mínútur í 4,7°C sjónum, fór aðeins í gufu og smástund í heita pottinn á eftir. Þegar ég kom heim sló ég þessu upp í kæruleysi og bauð strákunum með mér á American Style. Þeir voru kátir með það boð. 

4.4.22

Rólegheit

N1 sonurinn var með far í vinnuna sína í gærmorgun. Ég snéri mér því á hina hliðina í gærmorgun og fór ekki á fætur fyrr en um hálftíu. Þá skipti ég um á rúminu mínu og setti það óhreina strax í þvott. Að öðru leyti var dagurinn bara frekar rólegur. Mikið um netvafr, smá prjónaskapur og lestur. Fótboltaáhorf og svo horfði ég einnig á söngkeppni framhaldsskólanna og 3. þáttinn af hringfaranum. 

3.4.22

Ekki á skutlvaktinni í dag

Ég var komin á fætur upp úr klukkan hálfsjö í gærmorgun. Rúmum hálftíma seinna hringdi ég í N1 soninn. Vekjaraklukkan hans var aðeins búin að hringja einu sinni og mig grunaði að hann hafi slökkt á henni og sofnað aftur. Það reyndist rétt. Hann var þó ekkert lengi að koma sér á fætur og ég skilaði honum af mér við vinnustaðinn hans um hálfátta og beið þar til hann kom með kaffi handa mér. Þrátt fyrir að tankurinn á bílnum væri hálfur ákvað ég að koma við hjá AO við Sprengisand og fylla tankinn. Næst lá leiðin að Sundhöll Reykjavíkur. Lagði bílnum á stæði við Austurbæjarskóla enda bara spölkorn frá Sundhöllinni. Byrjaði á því að fara í kalda pottinn í rúmar fimm mínútur. Synti í tæpt korter. Fór aftur í kalda, gufubað, sturtu, kalda, 39°C heitan pott, 2 mínútur í kalda og settist svo aðeins á bekk áður en ég fór upp úr. Áður en ég fór heim fékk ég þá hugmynd að skreppa í bakaríið við Suðurver og kaupa mér kaffi, smurt rúnstykki og eitt stykki sérbakað vínarbrauð. Gerði þessu skil á staðnum. Restin af gærdeginum fór svo eiginlega í fótboltagláp. 

2.4.22

Laugardagur

Ég ákvað að fara aftur á bílnum í vinnuna í gærmorgun. Vorum þrjár, þar sem ein var í fríi og önnur vinnur ekki á föstudögum. Ég var á ítroðsluendanum á vélinni. Vissum af einu aukaverkefni sem þurfti að klára fyrir klukkan tvö en svo fengum við annað aukaverkefni sem þurfti að klára mun fyrr, helst þannig að hægt væri að senda það strax út í póst. Kláruðum samt að framleiða fyrsta daglega skammtinn rétt fyrir hálftíu og vorum búnar að framleiða eina tegund af þrettán úr næsta daglega verkefni þegar við fórum í kaffi. Eftir kaffi hlóðum við inn "skyndiverkefninu", tvær skrár önnur 34 kort og hin yfir 700. Vorum búnar með þessi 34 þegar okkur var tjáð að þetta verkefni ætti að fá annan texta á formin. Sá texti var kominn inn á vélina skömmu síðar og eftir smá vesen prentuðum við út 34 form sem sú sem var í bókhaldinu tók að sér að færa kortin yfir á. Í milllitíðinni, á meðan við biðum eftir rétta textanum framleiddum við tæp 200 kort úr hinu aukaverkefninu. Vorum búnar að framleiða bæði aukaverkefnin rétt fyrir tólf og hádegisframleiðslunni lauk um hálfeitt. Þá fórum við í mat. Eftir mat héldum við áfram með dagleg verkefni þar sem við áttum eftir að framleiða og pakka tæplega fjögurhundruð kortum. Það var búið um þrjú og þá var talið og gengið frá. Vorum búnar og hættum vinnu rúmlega hálffjögur og þá fór ég beinustu leið í sjóinn sem var mældur 4,5°C í gær. Lítil sem engin ferð var á loginu og það var smám saman að flæða að. Ég ætlaði ekki að tíma að fara upp úr en eftir tuttugu mínútna svaml fór ég í heita pottinn í korter. Kom við í Fiskbúð Fúsa á leiðinni heim.

1.4.22

Nýr mánuður

Í annað skiptið í vikunni vaknaði ég við vekjaraklukkuna í gærmorgun. Hafði samt rýmri tíma því ég var ákveðin í að fara á bílnum í vinnuna. Var mætt við Bernhöftsbakarí við Skúlagötuna um hálfátta, rétt eftir opnun. Ég var semsagt í bókhaldinu í gær og þótt ég biðji stundum einhverja af hinum að sjá um bakaríisferðina sem fylgir bókhaldsstöðunni þá fer ég sjálf inn á milli. Framleitt var til hálfeitt áður en farið var í mat. Ein af fimm var búin með sína vinnuskyldu um tólf og önnur var búin að semja um að fá að fara fyrir eitt. Eftir hádegi Taldi önnur með mér síðasta vagninn, allt talið í öllum vögnum, og kortalagerinn áður en við gengum frá. Við afhentum viðgerðarmanni og kerfisfræðingi vélina um tvö vegna uppfærslu á henni. Viðgerðarmaðurinn þurfti einnig að gera smá lagfæringu á lokinu yfir límrúllunni. Hættum vinnu fyrir þrjú. Ég var með sunddótið með mér í bílnum en Sundhöllinni hafði verið lokað um eitt vegna framkvæmda og ég var ekki alveg til í að fara aftur í Vesturbæjarlaugina eða þær þrjár laugar sem eru í efri byggðum borgarinnar svo ég fór bara heim. 

31.3.22

Stutt í helgina

Ég var komin á fætur upp úr klukkan sex. Labbaði í vinnuna gegnum Klambratún, Flókagötu, Gunnarsbraut, Snorrabraut Laugaveg, Vatnsstíg og Skúlagötu. Var mætt fyrst á svæðið. Þegar hinar voru komnar og við búnar að kveikja á vélinni og taka út framleiðsluvagnana fórum við að venju inn á kaffistofu. Ég byrjaði á því að skipta um bol inn á einu baðherberginu. Fyllti svo vatnsflöskuna mína og fékk mér kaffi. Við vorum að fara að huga að því að fara inn að vinna "pínulítið" þegar yfirmaður strákanna frammi birtist með fullt af brauði og bakkelsi og við boðnar að fá okkur af þeim. Við sátum því sem fastast til klukkan hálfníu og fengum okkur af veitingunum með strákunum og yfirmanni þeirra. Þegar við fórum loksins inn fór ég á móttökuendann á vélinni en byrjaði á því að telja í allar visa og debettegeundir sem voru til framleiðslu. Fórum í kaffi korter fyrir tíu. Eftir þann kaffitíma flokkaði ég kennispjöld fram að hádegi. Eftir hádegi fór ég á ítroðsluendann á vélinni og við sem vorum í framleiðslunni unnum að endurnýjun til klukkan að verða hálffjögur. Þá gengum við frá og "háttuðum" vélina. Fékk far heim úr vinnunni. Var að spá í að skreppa í sjóinn enda háflóð að nálgast en svo ákvað ég að vera ekkert að hreyfa við bílnum. Oddur hafði skroppið í Sorpu fyrr um daginn og fengið þetta fína bílastæði fyrir framan.

30.3.22

Síðustu mars-dagarnir

Mikið varð ég undrandi þegar ég vaknaði við lætin í vekjaranum í gærmorgun. Hafði rumskað tvisvar fyrr um morguninn en þó of snemma til að fara á fætur og svo var ég í miðjum draumi þegar vekjarinn fór í gang. N1 sonurinn varð á undan á baðherbergið svo ég byrjaði á því að setjast inn í stofu með fartölvuna í fanginu í uþb tuttugu mínútur áður en ég sinnti morgunverkunum á baðinu, fékk mér lýsi og labbaði af stað í vinnuna. Aftur var ég frammi að flokka kennispjöld fram að kaffi. Eftir kaffi fór ég á ítroðsluendann á vélinni. Ákváðum að skipta okkur í mat og við sem vorum inni frá kaffi hættum ekki fyrr en hinar voru búnar í mat og tóku við af okkur stuttu fyrir klukkan hálfeitt. Eftir hádegi flokkaði ég fleiri kennispjöld. Sú sem hafði verið á móttökuendanum með mér og sú sem var í bókhaldinu fóru með 14 flokkaða kassa inn í kennispjaldageymslu og komu með 15 óflokkaða kassa til baka. Framleitt var til klukkan rúmlega hálffjögur. Þá fórum við heim, fjórar af fimm. Sú fimmta varð eftir með einum tæknimanni að setja upp fyrir nýrri tegund af plasti. Ég fékk far heim úr vinnunni og kom heim rúmlega fjögur. Klukkutíma síðar tók ég sunddótið með mér og skrapp í sund í Vesturbæjarlaugina. Byrjaði á því að fara í kalda pottinn sem er sagður 8-12°C. Synti svo ekki nema 150 metra. Var á brautinni næst barnalauginni og þótt það væri ekki alveg eins opið á milli og var í Laugardalslauginni þá voru samt feðgin að "leika" sér í djúpa endanum á brautinni. Einnig var önnur að synda á þessari braut, þannig að ég fór ekki nema 6 ferðir í 25 metra lauginni. Sat góða stund í heitum potti og þvoði mér svo um hárið á leiðinni upp úr og heim. Oddur sótti bróður sinn í vinnuna um átta. 

29.3.22

Vorlegt

Vaknaði rétt rúmlega sex og dreif mig bara á fætur. Ákvað að vera ekkert að reima á mig gönguskóna enda allt orðið nokkurn veginn autt. Var frammi að flokka kennispjöld fram að kaffi og á móttökuendanum á framleiðsluvélinni eftir kaffi og til hádegis. Eftir hádegi taldi ég síðasta skammtinn með þeirri sem var í bókhaldinu og fór svo aftur að flokka kennispjöld. Fékk far heim úr vinnunni og var komin heim stuttu fyrir fjögur. Rúmum klukkutíma seinna skrapp ég aðeins í 3,25°C sjóinn í uþb tíu til tólf mínútur og svo strax í gufuna. Sleppti alveg heita pottinum í þetta sinnið. Áður en ég fór heim kom ég við í Krónunni við Fiskislóð og verslaði inn. 

28.3.22

Mánudagur

Ég rumskaði fyrst um sjö í gærmorgun en var fljót að kúra mig niður aftur. Klukkan var byrjuð að ganga tíu þegar ég fór loks á fætur. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég inn í eldhús og lagði nokkra kapla. Pabbi var að fá sér harðsoðið egg. Ég fékk mér svoleiðis um ellefu og settist svo inn í stofu með prjónana mína. Um hádegið hellti ég upp á kaffi og fékk mér nokkrar rúsínur. Dagurinn leið frekar hratt. Vafraði aðeins um á netinu, las, prjónaði og lagði kapla. Kaffitíminn var um hálffjögur og uþb klukkutíma síðar tók ég mig saman og kvaddi pabba og Bríeti. Var komin í bæinn upp úr klukkan hálfsex. Rúmum klukkutíma síðar tók Oddur að sér að skreppa í KFC eftir tilboði handa okkur mæðginum. Bræðurnir voru ánægðir með þessa hugmynd.

27.3.22

Út úr bænum

Ég var komin á fætur um átta í gærmorgun. Fyrsta klukkutímann, eftir morgunverkin á baðherberginu, notaði ég í alls konar netvafr. Næsta klukkutímann þar á eftir lauk ég við að lesa bókina eftir Vivecu Steen. Um tíu tók ég saman föggur mínar, lét Odd vita að ég væri að fara austur, og brunaði svo af stað. Stoppaði við í Fossheiðinni í fyrsta sinn á þessu ári en þetta er einungis þriðja ferðin austur fyrir fjall. Hinar tvær voru skrepp innan dagsins. Var komin á Hellu upp úr klukkan hálfeitt. Pabbi var að leggja kapal en fór fljótlega að búa til pönnukökufjall úr tvöfaldri uppskrift. Hann sagði að Bríet væri búin að panta fisk í kvöldmatinn og þegar við fórum að kanna birgðastöðuna var ekki nóg til svo pabbi varð að skreppa út í búð. Hann kom til baka með frosin bleikjuflök, nýja ófrosna ýsu og hrásallat. Kaffitíminn var hafður um hálffjögur. Um sex leytið setti ég blómkál í bitum og skorinn lauk í gufupottinn. Steikti svo ýsuna upp úr eggi, krydduðum byggflögum og hveiti. Frænka mín var mjög ánægð með matinn og hún tók svo að sér að ganga frá. 

26.3.22

Helgarfrí

Bíllinn var notaður aftur til að koma mér milli heimilis og vinnu í gærmorgun. Í þetta sinn tók ég sjósundsdótið og dós með loki með mér og geymdi í skottinu á meðan á vinnu stóð. Ég var á ítroðsluendanum fram að kaffi og á móttökuendanum fram að hádegi. Ekki var framleitt neitt eftir hádegi því tvær fóru á fund og þá vorum við aðeins tvær eftir og það er regla (sem stundum er gerð undantekning á) að vera ekki að framleiða ef aðeins tvær eru eftir á deildinni. Það vantaði hvort sem er form, umslög og hráefni til að ljúka við það sem mest liggur á. Við tvær sem vorum eftir töldum síðustu vaganana, gengum frá ryksuguðum vélina og flokkuðum kennispjöld til klukkan að verða tvö. Þá höfðum við leyfi til að stinga snemma af stað inn í helgina. Ég fór beinustu leið í Nauthólsvík. Sjórinn um 3°C, mikill öldugangur og skemmtilegt að svamla um í sjónum. Ég var út í í tíu mínútur og svo annað eins og rúmlega það í heita pottinum. Kom við í Fiskbúð Fúsa áður en ég fór heim. Þegar heim kom sá ég að ég hafði misst af símtali við Helgu systur. Hringdi til baka og hún sagði að þau hjónin væru á leið með flugi í bæinn seinni partinn og spurði hvort ég gæti sótt þau á völlinn og skutlað þeim á Grand Hótel þar sem þau verða um helgina. Það var alveg sjálfsagt. Var mætt út á flugvöll korter fyrir sex, fimm mínútum áður en flugvélin þeirra lenti. Hitti tvær frá Hellu sem voru að tékka sig inn og ætluðu með sömu flugvél norður. Einnig hitti ég útskriftarbróður úr FSu sem var að koma með sama flugi og systir mín og mágur. Ég var komin heim aftur fyrir klukkan hálfsjö og skellti þá kartöflum í pott og sauð upp á ýsuflakinu. 

25.3.22

Síðasti föstudagur marsmánaðar

Ég notaði bílinn til að komast í vinnu í gærmorgun og var með sunddótið í skottinu. Vorum allar mættar, fimm af fimm. Ein átti tíma hjá augnlækni upp úr klukkan tíu. Hún var á vélinni ásamt annarri fram að kaffi og hafði svo smá tíma til að fá sér "föstudagskaffi" á fimmtudagsmorgni með okkur. Hún tilkynnti það líka að hún ætlaði beinustu leið heim eftir augnlæknatímann, væri ekki orðin 100% hress. Ég fór á ítroðsluendann eftir kaffi og fyrirliðinn á móttökuendann. Við kláruðum allt daglegt upp úr klukkan hálftólf. Vorum loksins komin með nóg hráefni í að framleiða aðra af tegundunum sem hafa beðið síðan úr febrúarendurnýjuninni. Gátum klárað rúmlega helminginn en þá urðum við að stoppa þar sem formin voru búin. Hættum vinnu um hálffjögur. Ég lagði leiðina í Sundhöll Reykjavíkur. Byrjaði á því að fara í kalda pottinn sem er 10-12°C. Synti í 10 mínútur, fór aftur í kalda pottinn og svo í gufubað áður en ég fór upp úr og heim. Heima hafði Oddur Smári ætlað að fara í Sorpuferð og var búinn að taka til allt dótið þegar hann uppgötvaði að ég væri líklega á bílnum. Hann frestaði ferðinni fram yfir helgi.

24.3.22

Ætla á bílnum

Sem oftast áður vaknaði ég nokkru áður en vekjaraklukkan átti að hringja. Slökkti á henni og dreif mig á fætur, bæði til að vera á undan N1-syninum inn á baðherbergi og einnig til að hafa tíma til að vafra aðeins um á netinu. Áður en ég labbaði af stað í vinnuna tók ég mannbroddana undan gönguskónum. Broddarnir hafa skilað sínu og mér sýnist þeir ekki verða notaðir aftur, orðnir mjög eyddir. Það var samt smá skrýtið að labba án broddanna en leiðin sem ég labba þessa dagana er næstum því greið. Vorum fjórar í vinnu, ein lasin. Ég var á ítroðsluendanum fram að kaffi. Í kaffinu kom vinnufélagi okkar með bakkelsi í tilefni afmælis síns. Hann er frekar ósáttur við að eldast og kallaði afmæliskaffið erfidrykkju. Þessi náungi er ári yngri en ég. Skil ekki alveg svona hugsunarhátt. Það eru forréttindi að fá að eldast og í góðu lagi að safna upp afmælisdögum ef heilsan er góð. Eftir kaffi fór ég á móttökuendann á vélinni. Eftir hádegi var ég aðallega í að flokka kennispjöld. Markmiðið er að vera búin að sortera spjöldin og koma þeim af okkur áður en deildin flytur og við erum komin á árin 2008-2009 og eigum eftir að flokka 6-7 ár áður en við komum að þeim tíma sem við byrjuðum að flokka. Hjá okkur liggja kennispjöld frá árunum 1992 til miðs árs 2018 en þá breyttust persónuverndarlögin og öll spjöld eftir þann tíma voru send til baka eftir að hafa verið skönnuð. Fékk far heim úr vinnunni og þangað komin rétt fyrir fjögur. Klukkutíma seinna var ég komin í Nauthólsvík. Það var fjara svo vaða þurfti hálfa leið til Kópavogs áður en maður komst á eitthvað dýpi. Ég fór nú kannski ekki alveg svo langt en ég var út í sjónum í tæpt korter og svo annað eins í heita pottinum á eftir. Kom heim aftur rétt fyrir sex.

23.3.22

Birtir fyrr og fyrr

Var komin á fætur og sest með fartölvuna í fanginu inni í stofu um hálfsjö í gærmorgun. Þegar ég undirbjó mig að labba af stað í vinnuna setti ég aukabol, súpubréf, húslykla og tvennt annað í gamlan sundpoka. Setti pokann á bakið áður en ég fór í regnkápuna. Var enn með mannbroddana undir gönguskónum en það fer lílega að verða óhætt að taka þá af. Var mætt fyrst á vinnustað. Sú sem átti að vera í bókhaldinu var í fríi og ég ákvað að skipta við hana, taka að mér bókhaldið í gær og eftirláta henni bókhaldið í dag. Aðeins var unnið að hinu daglega en það kláraðist um hálfeitt. Töldum, gengum frá deildinni og fengum okkur að borða. Stuttu fyrir tvö fórum við yfir í Katrínartún á annan vinnufund með þeim tveimur sem munu taka á móti okkur og verða næstu yfirmenn þegar kortadeildin flytur í seðlaverið. Fundurinn stóð yfir í rúma tvo tíma. Fékk þá far heim og vitandi það að framkvæmdir eru að hefjast í Laugardalslaug og búið að loka kalda pottinum og útilauginni þá hélt ég mig bara heima við. Hvað maður gerir svo næstu vikur og mánuði, fer oftar í sjóinn eða hvaða laug maður finnur sér til að synda í, það verður að koma í ljós.

22.3.22

Tiki

Vaknaði tíu mínútum áður en vekjaraklukkan átti að hringja í gærmorgun. Dreif mig á fætur og eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég um stund inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Rétt áður en ég labbaði af stað í vinnuna fékk ég mér lýsi, járn og ostbita. Vorum fjórar af fimm í vinnu, ein í fríi. Ég var frammi í skrifstofurými fram að kaffi að undirbúa pökkun og flokka kennispjöld. Eftir kaffi og til tólf fór ég á ítroðsluendann á framleiðsluvélinni. Daglegri framleiðslu lauk um tólf. Eftir hádegi fór ég í starfsmannasamtal við næsta yfirmann, þá sem er búin að vera yfur okkur síðustu misserin. Þegar kortadeildin flytur í haust eða árslok fáum við nýjan yfirmann. Samtalið fór fram í kósýhorninu í skristofurýminu, allir aðrir voru frammi í kaffistofu á meðan. Eftir spjallið fórum tvær af okkur að telja síðustu vagnana. Hinar tvær, yfirmaðurinn og ein úr öryggisdeildinni voru að farga ónýtum kortum á meðan. Eftir þetta var nokkurs konar skipulagsfundur með yfirmanni. Farið yfir síðustu þrjá mánuði og markmið sett næstu þrjá mánuði. Fékk far heim úr vinnunni upp úr klukkan hálffjögur. Rúmlega fimm var ég mætt í Laugardalslaug. Sat fimm mínútur í kalda, synti 300 metra og í næstu kaldapottsferð hitti ég kaldapotts vinkonu mína. Fórum tvisvar enn í kalda, heitasta pottin á milli og vorum svo samferða einnig í gufuna. Kalda potts vinkona mín tók eina auka ferð í kalda en ég sat í gufunni í korter. Fljótlega eftir að ég kom heim úr sundi hafði norska esperanto vinkona mín samband. Þau voru með Viaplay á leigu í einhverja daga og þar var hægt að leigja myndina um Kon Tiki. Hún var þar að auki búin að skella í eina gulrótarköku og var að bjóða mér yfir í smá veislu. Ég var komin þangað innan við tuttugu mínútum síðar. Þáði smá tómatsúpu en svo settumst við niður í stofu að horfa á mynda og fá okkur af kökunni. Eftir myndina sýndu þau mér nýjasta bardagann með Gunnari Nelson en hann er tilvonandi tengdasonur þeirra. Það var fátt um stæði þegar ég kom til baka um ellefu. Varð að leggja í Blönduhlíðinni, en fékk þó amk stæði þar. Las aðeins áður en ég fór að sofa og var klukkan ískyggilega nálægt miðnætti þegar ég fór loksins að sofa, vantaði held ég aðeins korter í

21.3.22

Ný vinnuvika

Klukkan var um hálfníu þegar ég dreif mig á fætur. Einum og hálfum tíma síðar var ég komin í kalda pottinn. Fljótlega kom kaldapotts vinkona mín í sína þriðju ferð svo við stilltum okkur af. Fórum í heitasta pottinn, aftur í kalda og hittum svo systur hennar í sjópottinum. Eftir næstu ferð í kalda pottinn fórum við í gufuna. Ég sat þar inni aðeins lengur en hún. Fór svo í kalda sturtu á eftir. Systurnar voru í potti tvö og kom kaldapotts vinkonan með mér í sína sjöttu ferð í kalda áður en ég fór að synda aðeins. Kom heim um hálftólf og byrjaði á því að mala kaffibaunir og hella upp á könnuna. Lauk við að lesa bókina hennar Auði Jónsdóttur. Rétt fyrir tvö skutlaði ég Davíð Steini í skírnarveilsu í Kópavog og fór svo beinustu leið á bókasafnið í Kringlunni og skilaði af mér fjórum bókum. Tók þrjár í staðinn, allar með 30 daga skilafresti og möguleika á að framlengja svo um aðra 30 daga. Þannig að allar fimm bækurnar sem ég er með í láni af safninu eru með skilafresti í apríl og fjórar af þeim með möguleikann á að framlengja fram í maí. Davíð Steinn kom heim um sex og tók að sér að elda, gerði eins konar kjúklingasúpu sem var virkilega góð hjá honum. 

20.3.22

Sjötugastiogníundi dagur ársins

Var komin á fætur um hálfsjö. N1 sonurinn kom fram rúmum hálftíma seinna og ég skutlaði honum í vinnuna. Hleypti honum út við N1 við Gagnveg á slaginu hálfátta og fór ekki fyrr en hann hafði fært mér kaffibolla í bílinn. Var komin á planið við Laugardalslaug þrettán mínútum áður en opnaði. Kláraði að drekka kaffið í rólegheitum og hlustaði á morgunfréttir áður en ég fór inn. Byrjaði á því að synda í hálftíma, 600 metra á brautum 6-8. Synti 200 metra af þeim á bakinu. Fór svo beint í þann kalda og sat þar í fimm mínútur. Þá fór ég í sjó pottinn og sat þar sennilega í tæpt korter áður en ég fór aftur í þann kalda og svo gufuna að lokum áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Var komin heim upp úr klukkan tíu. Dagurinn fór svo í alls konar dútl. Lauk við að lesa bókina; Stúlkan með snjóinn í hárinu eftir Ninni Sculman. Byrjaði á bókinni; Tilfinningabyltingin eftir Auði Jónsdóttur. Þá á ég eftir  að lesa tvær aðrar bækur af safninu; Í leyndri gröf eftir Vivecu Steen og Kaldaslóð eftir Kim Faber & Janni Pedersen. Sú síðarnefnda var með skiladaginn 23. n.k. en ég framlengdi þeim fresti um mánuð rétt áðan. Skammtímalánsbókinn þarf að skila í síðasta lagi á morgun en ég fer líklega með hana og tvær aðrar og skila á safnið í dag. Vona að það freisti mín ekki of margar bækur til að taka með heim í staðinn því ég hef nú hug á því að fara að glugga loksins í jólabækurnar.

19.3.22

Morgunstund

Ég var komin á fætur upp úr klukkan sex í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðherberginu "skrapp" ég í netheima í dágóða stund. Stuttu fyrir hálfátta tók ég bakpokann, handtöskuna og sjósundsdótið með mér út í bíl. Tvennt það síðastnefnda setti ég í skottið en bakpokann setti ég í framsætið. Mættum þrjár í vinnu, ein vinnur aldrei á föstudögum nema upp komi sérstakar aðstæðru og önnur var í fríi. Ég var á móttökuendanum á vélinni á meðan á framleiðslu stóð. Hádegissendingin var sein til okkar og þegar hún loksins kom og við keyrðum gömlu leiðina þá virkaði ekki að framleiða kortin. Fyrst prófuðum við að biðja tæknideildina okkar að athuga hvort hægt væri að setja "sjálfvirku" keyrsluna aftur af stað. En það virkaði ekki þar sem við vorum búnar að keyra í millitíðinni. Þá þurfti að hafa samband við þá aðila sem sendu okkur keyrsluna og biðja um að senda aftur. Það sem við erum vanalega búnar með milli tólf og eitt kláraðist korter yfir tvö. Hætti vinnu rétt fyrir fjögur og fór beinustu leið í 1°C sjóinn. Var út í í uþb tíu mínútur og svo korter í heita pottinum á eftir. Kom heim um fimm. Restin af deginum og kvöldinu fór í netvafr, prjónaskap, sjónvarpsgláp og lestur.

18.3.22

Stutt í helgina

Ég var vöknuð rétt rúmlega sex í gærmorgun. Hafði tímann fyrir mér því ég var ákveðin að fara á bílnum í vinnuna. Ég var nefnilega klyfjuð meira en bakpokanum. Var með auka poka með vínberjum, ostum, ostaköku og saltstöngum með mér. Mætti í vinnu á sama tíma og sú sem var í bókhaldinu og bakarísferðinni. Við lögðum báðar á neðra planinu. Undirbjó pökkun fram að kaffi. Fyrrum vinnufélagi mætti í kaffi. Held hann hafi nú ekki endilega munað að það var afmæli en hann veit að það eru kaffiveitingar á fimmtudögum og kemur stöku sinnum. Hann hætti vinnu sl. haust eftir 42 ára starf enda orðinn 67 ára. Hann fær að mæta á árshátíð RB sem haldin verður í Hörpu á morgun. Eftir kaffi fór ég á ítroðsluendann á vélinni. Við kláruðum að framleiða allt daglegt rétt fyrir tólf. Þá tók ég út styttingu vinnuvikunnar, hálfan dag einu sinni í mánuði, og fór beinustu leið heim. Um tvö skutlaði Oddur mér í blóðbankann og fór í Sorpu í leiðinni. Sú sem afgreiddi mig í afgreiðslunni óskaði mér til hamingju með daginn. Stuttu síðar "sótti" hjúkrunarfræðingur af erlendu bergi broti mig. Hún sagðist tala smá íslensku en spurði hvort það væri í lagi að við töluðum á ensku. Ég samþykkti það og bætti við að hún mætti tala á ensku ég gæti kannski svarað á íslensku. Þegar ég var búin að þvo mér, spritta, sest inn og hafði lokað að okkur, sagðist hún þurfa að tala við mig um eitthvað sem ekki tengdist blóðgjöfinni. Svo brast hún í söng og söng afmælissönginn fyrir mig á ensku. Þegar ég var búin að koma mér fyrir á einum bekknum frammi leyfði ég henni að velja úr hvorum handleggnum hún ætlaði að taka. Eftir að hafa þreifað á þeim báðum góða stund valdi hún þann vinstri. Hélt í augnablik að það yrði vesen en allt gekk vel, svo vel að æðin vildi helst halda áfram að gefa eftir að búið var að fylla á pokann. Það tók góða stund að stoppa og loka fyrir. Fékk mér kaffi og hafraköku áður en ég hringdi í Odd aftur til að sækja mig. Heima fór ég að lesa, prjóna og svara kveðjum. Mágur minn hringdi um hálftíu. Hann er kominn með pestina. Yngri dóttlan hans hringdi í mig í hádegispásunni sinni. Hún er orðin hress eftir pestina. Um miðjan dag hringdi kona eins frænda míns. Hún er með pestina. Um hálfsjö skruppum við mæðgin á Pítuna. Ég borgaði fyrir okkur en Davíð Steinn ákvað að endurgreiða mér. Þegar við vorum að koma heim aftur hringdi æskuvinkona mín í mig. Hún er enn að jafna sig eftir veirusýkinguna. Og um hálfníu hringdi besti vinur minn í mig en það er hefð okkar á milli að hringja í hvort annað þegar hitt á afmæli. 

17.3.22

Afmælisdagur

Var vöknuð um sex. Hafði og gaf mér tíma til að skreppa aðeins í netheima eftir morgunverkin á baðherberginu og áður en ég labbaði í vinnuna. Vorum allar mættar í gær en tvær fóru svo á hádegi, önnur að taka styttingu vinnuvikunnar en hin var enn smá lasin og búin með kraftana þennan daginn. Hún er samt ekki að jafna sig eftir Covid-19, er ein af þremur (af fimm) sem ekki er búin að fá þá veiru. Ég var að flokka kennispjöld fram að kaffi og fór á móttökuendann eftir kaffi. Eftir hádegi tók ég við bókhaldinu og hélt svo áfram að flokka kennispjöld. Á einum tímapunkti leysti ég aðeins af inn á framleiðsluvél til að þær sem stóðu vaktina þar gætu skroppið á prívatið, önnur í einu því það þurfa alltaf að vera tvær þegar framleiðsluvélin er í gangi. Fékk far heim úr vinnunni rétt fyrir fjögur. Um hálfsex var ég loksins mætt í sund eftir að hafa slakað smástund á heima og komið við í fiskbúðinni. Keypti bleikjuflök og harðfisk. Hitti kaldapotts vinkonu mína í sundi og það varð úr að ég var einungis að rölta á milli kalda og heitasta og endaði svo í gufunni. Synti semsagt ekkert. Áður en ég fór heim kom ég við í Hagkaup í Skeifunni til að kaupa vínber og osta til að bjóða upp á í vinnunni. Steikti bleikjuna og gufusauð blómkál í kvöldmatinn. Var svo að horfa á íþróttir, smá körfubolta, en aðallega leik "minna manna" í Liverpool á móti Arsenal. Kláraði enn eina tuskuna.

16.3.22

Miðvikudagur

Vaknaði rétt áður en vekjaraklukkan átti að hringja. Hafði rumskað fyrst um fimm enda var ég sofnuð fyrir klukkan hálfellefu í fyrrakvöld. En ég var ekki lengi að sofna aftur og "grjótrotaðist". Labbaði sömu leið í vinnu og undan farna daga og er sú leið uþb 300 metrum styttri og ég fljótari eftir því. Sú sem átti að vera í bókhaldinu í gær var enn lasin. Ég tók að mér að sjá um bókhaldið í staðinn. Lenti í smá brasi með að prenta út. Prentarinn var eitthvað tregur. Fyrirliðinn gat lagað það og allt annað gekk vel. Eftir hádegi sorteraði ég kennispjöld og við fórum tvær, sem vorum frammi, og skiluðum 14 sorteruðum kössum og sóttum 15 aðra í staðinn. Er líka byrjuð að vinna á óvissubunkanum, þau spjöld sem flest eru óstimpluð. Það verður líklega ekki hægt að finna út úr öllum en mjög mörgum samt. Fékk far heim úr vinnunni. Stoppaði heima við í um klukkustund áður en ég fór í sund. Tvær ferðir í kalda, 300m og gott gufubað áður en ég fór heima aftur. Stuttu fyrir átta sótti ég Lilju vinkonu og vorum við mættar í saumaklúbb hjá Sonju á slaginu átta. Kvöldið leið alltof hratt. Var komin heim aftur rétt rúmlega ellefu en ég las samt í smá stund áður en ég fór að sofa. 

15.3.22

Þriðjudagur

Hafði meðbyr með mér á göngunni í vinnuna í gærmorgun. Ekki orðið of hvasst þó og slapp við alla úrkomu. Vorum fjórar í vinnu, ein lasin. Ég var á ítroðsluendanum fram að kaffi og á móttökuendanum fram að hádegi. Eftir hádegi flokkaði ég kennispjöld en ég settist líka smá stund í sófann með bók og prjóna. Fékk far heim úr vinnunni. Þá var grenjandi rigning svo ég var fegin að sleppa því að labba. Hefði líklega hringt í einkabílstjórann ef ég hefði ekki fengið farið. 

14.3.22

Mánudagur

Var á fótum á svipuðum tíma og á laugardagsmorguninn. Klukkan var svo að verða hálfellefu þegar ég mætti í sund. Byrjaði á fimm mínútum í kalda, synti 500 metra, aftur fimm mínútur í kalda, gufubað, kalda sturtu, sjópottinn, kalda pottinn og sat svo smá stund í sólbaði áður en ég fór upp úr og heim aftur. Hellti upp á kaffi. Hlustaði á hádegisfréttir. Prjónaði, vafraði um í netheimum, horfði á leiki í enska og einhverja þætti. Svo var dagurinn var allt í einu liðinn. Fór upp í fyrir klukkan tíu. Réð smá sudoku og las svo í smá stund.

13.3.22

Sunnudagur

Ég var vöknuð fyrir klukkan átta í gærmorgun en kom mér ekki fram úr fyrr en korter yfir. Eftir morgunverkin á baðherberginu "skrapp" ég í netheima í rúma klukkustund. Upp úr klukkan hálftíu tók ég til sunddótið. Skrapp fyrst á AO við Bústaðaveg og fyllti á bílinn en var komin í sund um tíu. Fimm mínútur í kalda pottinum, tíu mínútur í sjópottinum og svo synti ég 500 metra. Þar af 200 metra á bakinu. Var komin heim aftur um hálftólf. Setti handklæði í þvottavél og hellti svo upp á könnuna. Horfði á einn og hálfan leik í enska, og báða bikarleikina í handbolta og einnig þrjá þætti úr sarpinum. Fitjaði upp á nýrri tusku og þegar ég var komin upp í um ellefu byrjaði ég á skammtímalánsbókinni; Úti eftir Ragnar Jónasson.

12.3.22

Aftur í sjóinn

Þrátt fyrir að fara á bílnum í vinnuna í gærmorgun mældi síminn tæp fimmþúsund skref í gær. Annars var ég aftur á ítroðsluendanum fram að kaffi, á móttökuendanum fram að hádegi og enn og aftur á ítroðsluendanum eftir hádegi til klukkan þrjú. Þessi uppstilling endaði svona vegna þess að ein af okkur fjórum tók styttingu vinnuvikunnar og var farin inn í helgina um hádegið. Framleiðsla gekk annars afar vel og erum við loksins byrjaðar á síðustu endurnýjuninni. Gátum reyndar ekki lokið framleiðslu á einni endurnýjun vegna hráefnisskorts. Vonandi kemur það hráefni fljótlega því kortin sem á eftir að framleiða eiga taka við af kortum sem renna út næstu mánaðamót. Eftir vinnu fór ég beinustu leið í Nauthólsvík. Var komin í 2°C sjóinn rúmlega hálffjögur og þrátt fyrir að hafa ekki farið í tvo mánuði var ég tæpar níu mínútur út í og svo annað eins í heita pottinum. Eftir hressandi sjóferðina fór ég í Krónuna við Fiskislóð og verslaði inn. Ákvað að kaupa súsíbakka handa okkur mæðginum í matinn. Strákarnir voru ekkert smá glaðir. Oddur kom út að hjálpa mér inn með vörurnar og gekk frá þeim líka. Ég slapp semsagt mjög létt frá allri eldamennsku í gærkvöldi. 

11.3.22

Hraðferð á tímanum

Ég labbaði aðeins aðra leið til vinnu í gær, út götuna, Reykjahlíð og yfir Miklubraut á gönguljósunum. Eftir það fór ég í "fótsporin" mín frá því í fyrradag, undir brúna við Snorrabraut/Bústaðaveg, upp Eiríksgötu og niður Skólavörðustíg og Inólfsstræti. Ég fór á ítroðsluendann á vélinni fram að kaffi og á móttökuendann eftir kaffi og flokkaði kennispjöld eftir kaffi. Hættum vinnu stuttu fyrir fjögur og fékk ég far heim. Það var meiningin að skreppa svo í sund en það endaði með því að ég ílengdist heima. Horfði m.a. á brot úr kvennaundanúrslitunum í handboltanum. Bæði lið Vals eru komin í úrslit og það verður nóg að gera hjá aðstoðaþjálfara liðanna, Óskari Bjarna Óskarssyni á úrslitadaginn.

10.3.22

Vinnufundur

Labbaði í vinnuna í gærmorgun en sleppti því að þvera Klambratúnið. Sums staðar varð ég þó að fara extra varlega. Var rúmum þremur mínútum lengur á leiðinni heldur en á mánudagsmorguninn og var þetta þó ekkert lengri leið sem ég fór. Vorum fjórar af fimm í vinnu. Ég byrjaði frammi í að undirbúa pökkun og flokka kennispjöld. Eftir kaffi fór ég á ítroðsluendann á vélinni. Lukum við daglega framleiðslu suttu fyrir tólf. Eftir hádegi og til ca korter í tvö var ég á móttökuendanum á vélinni. Þá gengum við frá en "afhentum" sérfræðingunum vélina í testframleiðslu. Sjálfar fórum við yfir í K2 og fékk ég far með einni þangað. Hittum tilvonandi næsta yfirmann og aðra til frá Seðlaverinu í fundarherberginu Hamar. Annar sérfræðingurinn mætti á svæðið klukkutíma síðar. Vorum að fara yfir skrefin okkar í daglegri framleiðslu og velta upp í leiðinni hvort hægt væri að einfalda einhverja þætti og hvernig eða hvaða verkfæri þyrfti til þess. Þegar þessum vinnufundi var slitið rétt fyrir fimm átti alveg eftir að fara yfir bókhaldið og nokkra aðra þætti svo það verður boðaður nýr fundur. Fékk far heim og fór ekkert út aftur. Fylgdist aðeins með bikarundanúrslita leikjunum í handbolta karla. Horfði ekki á nema brot af leikjunum en þó stærra brot úr fyrri leiknum þar sem Valsstrákarnir tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum komandi helgi með því að vinna FH. 

9.3.22

Vikan hálfnuð

Ég fór á bílnum í vinnuna í gærmorgun og hafði sunddótið með mér í skottinu. Ég var í bókhaldinu í gær og kom því ekkert að framleiðslu. Vorum bara þrjár áfram og því nóg að gera frammi í pökkun líka. Flokkaði einnig kennispjöld. Hættum vinnu um hálffjögur og þá fór ég beinustu leið í sund. Byrjaði á því að sitja í fimm mínútur í kalda pottinum áður en ég synti í rúmt korter, 400 metra. Var svo í minni annarri ferð í kalda pottinum þegar kalda potts vinkonan kom í sína þriðju eða fjórðu ferð. Hún kom víst á svæðið á svipuðum tíma og ég en var sennilega í gufunni þegar ég var í fyrstu ferðinni. Fórum tvær ferðir í viðbót í kalda, sátum góða stund í gufunni á eftir og enduðum í sjópottinum eftir að hafa tekið sturtu. Þar hitti systir hennar okkur. Ég kom heim upp úr klukkan hálfsex. Davíð Steinn sá um kvöldmatinn svo ég gat bara slakað á fyrir framan imbann á meðan og á eftir.

8.3.22

Þrjár í vinnu, tvær lasnar

Vaknaði upp úr klukkan sex í gærmorgun. Labbaði af stað í vinnuna um sjö. Ég var á móttökuendanum og hélt mig þar. Daglegum verkefnum lauk um tólf. Framleiddum rúmlega áttahundruð kort og kláruðum alveg eina af endurnýjununum. Hættum vinnu rétt fyrir þrjú. Fékk far heim úr vinnunni. Um hálffimm skrapp ég og skilaði tveimur bókum af þremur á safnið. Tók þrjár bækur í staðinn. Það er komið nýtt sjálfsafgreiðslukerfi en eftir sem áður er hægt að senda útlánin til sín í tölvupósti. Kom svo við í fiskbúðinni áður en ég fór heim aftur. Annar sonurinn var búinn að panta sér pizzu en hann var að keppa í einhverjum tölvuleik og vissi ekki hvenær hann yrði laus. 

7.3.22

Ný vinnuvika

Var komin á fætur um átta í gærmorgun. Rúmum klukkutíma síðar bankaði ég á herbergisdyrnar hjá Davíð Steini og spurði hvort hann ætlaði ekki að mæta til vinnu og vera mættur um hálftíu. Hann kom fram skömmu síðar og við hjálpuðumst að við að sópa af bílnum áður en við lögðum í hann. Hleypti honum út hjá vinnunni sinni á slaginu hálftíu og fór svo beint í sund. Það endaði þó með því að ég synti ekkert. fór tvisvar í kalda pottinn, tvisvar í sjópottinn, einu sinni í gufuna og sat á stól í fimm mínútur áður en ég fór upp úr og heim rétt fyrir tólf. Í seinni ferðinni í sjópottinum hitti ég yngstu mágkonu mömmu heitinnar og spjölluðum við í góða stund. Heima byrjaði ég á því að hlusta á hádegisfréttir og horfa á einn þátt áður en ég hellti upp á fyrstu kaffibolla dagsins. Það voru þrír bollar af sterku kaffi en ég hellti ekki aftur upp á. Lauk við afgangatuskuna og fitjaði upp á nýrri. Hringdi í pabba en hann og Bríet eru búin að ná sér í pestina, C-19 náði að klukka þau. Eins er ein samstarfskona mín með þetta. Vonandi munu þau ná sér fljótt og vel. Þetta er örugglega bara spurning um hvenær eða ekki hvort maður verði klukkaður nema maður verði einn af undantekningunum. 

6.3.22

Sunnudagur

Var komin á fætur um hálfsjö. Klukkutíma síðar hleypti ég Davíð Steini út við N1 við Gagnveg og þáði kaffi í lokuðu máli út í bíl áður en ég fór í Laugardalinn. Byrjaði á kalda, synti 400 fór aftur í kalda og smá stund í gufu. Var mætt á vinnustað á slaginu níu, önnur af þremur. Sú þriðja kom skömmu síðar og þá gat framleiðsla hafist. Tókum smá pásu um hálfellefu. Ég var í bókhaldinu og pökkun fyrsta "hringinn" af þremur á meðan hinar tvær framleiddu það sem átti að framleiða 2. mars sl. Yfirmaður okkar færði okkur mat um hádegið. Ég var á ítroðsluendanum þegar næsti hringur, 3. mars var framleiddur. Hinar tvær voru eitthvað að spá í hvort við ættum að mæta aftur í vinnu í dag en ég vildi klára og fór á móttökuendann þegar 4. mars var framleiddur. Síðan var allt talið áður en gengið var frá. Klukkan var líka um hálfsjö þegar ég kom heim. Ég er fegin að við kláruðum þessa törn í gær og eiga frí í dag. Á mánudaginn er allt tilbúið fyrir fyrstu tvö daglegu verkefnin, voru hlaðin inn í gærmorgun og talið í tegundirnar um leið og við vorum að telja vagnana.

5.3.22

Vinnutörn

Ég var komin á fætur upp úr klukkan hálfátta. Eftir morgunverkin á baðherberginu setti ég handklæði og brækur í þvott og braut saman og tók með mér þvott Davíðs Steins upp úr þvottahúsinu. Svo vafraði ég um á netinu til klukkan tíu. Um það leyti sem ég var nýbúin að hengja upp þvottinn hringdi fyrirliðinn í mig og sagði að von væri á varahlutnum um hádegið og ég gæti mætt um eitt í vinnuna. Fram að þeim tíma var ég að lesa í bókinni; Hnífurinn eftir Jo Nesbö. Fór á bílnum um hálfeitt og varð að leggja honum á sama stæði og tveimur dögum fyrr. Passaði mig núna að borga bara til rúmlega fjögur en ekki einn sólarhring og sex tíma. Það munaði 800 kr. Varahluturinn kom ekki fyrr en rúmlega eitt og þá átti eftir að setja hann í vélina og keyra hana upp. Flokkaði kennispjöld þar til viðgerðarmaðurinn sagði "go" um tvö. Ég fór á móttökuendann að taka á móti framleiðslunni sem átti að framleiða þann 1. mars. Vorum rúmlega hálfnaðar með þann dag þegar tvær af okkur þremur þurftum að skreppa frá rétt fyrir fjögur. Fyrirliðinn til að sækja son sinn í vinnuna og skutla á æfingu og ég í viðhaldsklippingu. Ég kom til baka rúmlega hálffimm. Fengum okkur smá kaffi og fylltum á vatnsflöskurnar áður en við héldum áfram það sem frá var horfið. Þegar við vorum búnar að klára framleiðslu frá 1. var klukkan að verða sex og þá urðum við að hætta þar sem ein af okkur þremur átti von á gestum. En við ætlum að mæta aftur um níu í dag og klára framleiðslu frá 2.-4. mars og jafnvel það sem var sent á vélina klukkan hálfsjö og níu í gærkvöldi. Það verður örugglega amk átta tíma törn.

4.3.22

Föstudagur

Fór á fætur um átta í gærmorgun. Framan af degi var ég að væflast í netheimum, prjóna og lesa. Hellti mér ekki upp á kaffi fyrr en á tólfta tímanum. Oddur Smári kom fram um hálftvö og klukkutíma síðar skrapp hann í sorpuferð. Þegar hann kom til baka fór ég loksins í sund. Var mætt í Laugardalinn á sama tíma og kalda potts vinkona mín. Við fórum tvær ferðir í kalda en svo synti ég 500 metra en hún hitti aðra vinkonu sína í sjópottinum. Eftir sundsprettinn hittumst við aftur þrjár ferðir í kalda og tvær í þann heitasta. Hún endaði að heitasta pottinum á meðan ég fór í gott gufubað áður en ég fór upp úr og heim aftur. Strákarnir voru báðir heima og ég eldaði hakkpottrétt í kvöldmatinn. Horfði á kvöldfréttir og nokkra þætti áður en ég fór upp í rúm að lesa rétt fyrir tíu.

3.3.22

Engin vinna í dag

Ég var komin á fætur um hálfátta í gærmorgun. Þegar klukkan nálgaðist níu ákvað ég að ég færi ekki gangandi í vinnuna heldur á bílnum. Vissi að þar með yrði ég mjög líklega að borga í stöðumæli en held samt að þetta hafi verið hárrétt ákvörðun. Um hálftíu tók ég með mér bakpokann, handtöskuna og sundpokann út í bíl. Tvennt það síðarnefnda setti ég í skottið. Bíllinn var við Drápuhlíð 1. Það var eins og mig grunaði, þau fáu stæði sem eru á neðra plani voru full og ég kunni ekki við að setja bílinn í eina stæðið sem merkt er RB. Lagði á gjaldstæði móts við bakaríið við Skúlagötu þannig að það var smá spölur að labba í vinnuna. Ekkert langt en hluta af leiðinni varð ég að fara extra varlega þar sem ég var ekki á gönguskónum með mannbroddunum. Sennilega hefði ég samt þurft að fara jafn varlega á þeim. Tvær aðrar voru mættar til vinnu þegar ég kom stuttu fyrir tíu. Sú fjórða var orðin lasin og sú fimmta er í fríi. Við byrjuðum á því að fá okkur kaffi og hlusta á erindi á TEAMS um svefn. Síðan hlóð ég inn fyrirliggjandi, daglegur verkefnum á framleiðsluvélina. Flokkaði kennispjöld í hálftíma. Fékk mér súpu í hádeginu og aðeins meira kaffi og svo máttum við fara og það með þeim skilaboðum að við þyrftum ekki að mæta í vinnu næsta dag. Ein af okkur þremur ætlaði samt að mæta til að hlaða inn verkefnunum sem safnast upp og sinna reikningagerðinni og mánaðamótauppgjörinu.

Fór beinustu leið í Laugardalinn og byrjaði á því að synda 500 metra, 350 af þeim á bakinu. Fór tvisvar sinnum 5 mínútur í kalda pottinn, einu sinni í þann heitasta og endaði á góðu gufubaði áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Fljótlega eftir að ég kom heim kom N1 sonurinn fram. Hann er í vaktafríi til föstudags. Ég spurði hann hvort hann ætlaði að setja í vél og hann játti því og fór fljótlega niður. Þegar hann kom upp úr aftur sagði hann að einhver væri búinn að setja þvott í vélina en hún hefði ekki farið af stað þar sem ekki var skrúfað frá krananum. Hann hélt að ég ætti þennan þvott sem var ekki. Ég hafði spurt hann hvort hann ætlaði að þvo og ætlaði niður með þvott ef hann hefði sagt nei. Líklegast hafa leigendur risíbúðar ruglast á vél. Þessu var kippt í liðinn og Davíð Steinn gat því þvegið af sér þrátt fyrir allt. 

2.3.22

Allt í steik

Göngufærið í vinnuna í gærmorgun var alveg sæmilegt. Þurfti að passa mig á einum stað á Klambratúninu en annars sóttist ganga ágætlega. Langbest að hafa mannbroddana bara undir skónum áfram. Nú brá svo við að framleiðsluvélin vildi ekki vinna vinnuna sína, fór í verkfall. Kalla varð út viðgerðarmann en allt kom fyrir ekki. Sennilega er farinn varahlutur sem þarf að panta að utan. Vorum á staðnum til fimm, flestar af okkur fjórum. Þá fékk ég far heim með einni en ein tók að sér að sitja áfram yfir á meðan viðgerðarmaður lauk við að bilanagreina. Upp úr klukkan sex bauð ég Oddi að koma með mér í IKEA og fá okkur saltkjöt og baunir. Röðin var löng en nóg til og það sem meira var að við fundum strax borð til að borða við. Eftir átið passaði það svo vel að ná í Davíð Stein úr vinnunni, hann var búinn um átta. Gleymdi því annan daginn í röð að hringja í norsku esperantovinkonu mína. Fyrirliðinn hringdi í mig fljótlega eftir að ég kom heim til að segja að mæting í vinnu væri ekki fyrr en klukkan tíu. Ekkert hægt að gera nema, hlaða inn skrám og flokka kennispjöld. Jú svo er reyndar hægt að punkta niður ýmislegt sem tengist tilvonandi flutningum. Svo frétti ég það að æskuvinkona mín og maður hennar eru komin með veiruna. Vonandi fara þau ekki illa út úr henni. Líklega er þetta nú ekki spurning um hvort heldur hvenær veira hittir mann fyrir. 

1.3.22

Tveir af tólf búnir

Vaknaði rúmlega sex. Labbaði af stað í vinnuna um sjö. Gönguleiðin var að mestu greið, smá torfærur á einum stað á Klamratúninu. Seinni hluta göngunnar var smá hagl að "ráðast" á augun mín. Vorum þrjár í vinnu, tvær í fríi. Ég var á ítroðsluendanum á vélinni. Límið til að líma kortin á formin var ekki komið svo enn einn daginn þurftum við að handlíma. Daglegri framleiðslu lauk um tólf og þá mættu þeir sem sjá um reglulegt viðhald á vélinni. Tvær af okkur hættu vinnu rúmlega tvö og fékk ég far með hinni heim. Sú þriðja tók að sér að sitja yfir yfirferðarmönnunum til fjögur. Ég var ekkert að fara neitt að heiman aftur. Hringdi í pabba, vafraði um á netinu, prjónaði og horfði á nokkra þætti. Steingleymdi hins vegar að hafa samband við norsku vinkonu mína eins og ég var búin að lofa um helgina.