Ég var komin á fætur upp úr klukkan sex í gærmorgun. Hafði ágætis tíma til að vafra aðeins um á netinu en svo labbaði ég af stað lengri leiðina í vinnuna tíu mínútum fyrir sjö. Ég var í bókhaldinu. Aðeins var um daglega framleiðslu að ræða og henni lauk áður en klukkan varð tólf. Eftir hádegi var opnuð og talin ný kortasending. Ég útbjó svo bókunarskjöl, lét viðeigandi aðila vita um nýjar birgðir og bókaði inn í bókhöldin. Ég komst lítið sem ekkert í að flokka kennispjöld nema aðeins milli tíu og ellefu. Samstarfskonur mínar tóku hins vegar klukkutíma flokkunartörn eftir að hafa skoðað og talið sendinguna. Fékk far heim úr vinnunni og stoppaði heima í næstum einn og hálfan tíma áður en ég skrapp í Nauthólsvík rétt fyrir hálffimm. Þar hitti ég sjósundsvinkonu mína. Við svömluðum um í sjónum í næstum 25 mínútur og vorum svo rúmlega hálftíma að spjalla í heita pottinum á eftir. Áður en ég fór heim skrapp ég í Krónuna við Granda. Fékk stæði beint fyrir utan þegar ég kom heim. Ætlaði að hringja í Odd Smára og biðjan um að koma út og taka inn pokana með vörununum. Sá að ég hafði misst af símtali við systur mína á meðan ég var í sjónum svo ég byrjaði á að hringja til baka í hana.
13.7.21
12.7.21
Ný vinnuvika
Ég var komin á fætur upp úr klukkan sjö í gærmorgun og komin í sund rétt eftir að opnaði um átta. Það er ekki enn búið að opna gufuna þrátt fyrir að skilaboðin þegar henni var lokað voru þau að gufan yrði lokuð milli 23. júní til 10. júlí. Fór nokkrum sinnum 5 mínútur í kalda pottinn, 2x í heitasta pottinn, einu sinni í sjópottinn, synti 400 metra og fór í kalda sturtu á leiðinni upp úr. Kom heim um tíu og hellti mér upp á kaffi. Las svo næsta rúma klukkutímann í Þú og ég, alltaf eftir Jil Mansell.
Rétt fyrir tólf var ég mætt fyrir utan Vesturgötu 52 og hringdi í frænku mína og nöfnu og lét hana vita. Hún og pabbi hennar komu út í bíl nokkrum mínútum seinna en kærastinn hennar varð eftir heima, lasinn. Við keyrðum Þrengsin svo við sluppum við Ölfusárbrúna og traffíkina á aðalgötunni. Vorum komin á Hellu um hálftvö. Pabbi tók vel á móti okkur og bauð okkur til stofu. Bríet og kærastinn hennar voru á fá sér "morgunmat" í eldhúsinu. Um þrjú hjálpuðumst við að við að útbúa kaffið. Kærustuparið hélt sig útaf fyrir sig en við hin fengum flatkökur með sultu og osti, pönnukökur með sultu og rjóma og súkkulaði með kaffinu. Kvöddum aftur rétt fyrir fjögur og vorum komin í bæinn rúmlega fimm. Anna bauð mér inn með þeim og að borða með þeim svo ég hitti kisu aðeins og einnig Mikael. Horfði líka á fyrri hálfleikinn af úrslitaleik EM2020. Kvaddi í hálfleik og horfði á seinni hálfleikinn, framlengingu og vítaspyrnukeppnina heima. Kláraði svo bókina áður en ég fór að sofa.
11.7.21
Önnur morgunstund
Ég var búin að hella upp á könnuna fyrir klukkan níu í gærmorgun, drekka tvo bolla og fá mér morgunverðarhressingu áður en klukkan varð hálftíu. Þá var ég reyndar búin að vera á fótum í hátt í þrjá tíma. Um tíu var ég mætt í Nauthólsvík og hitti þar systurnar og sjósundsvinkonu mína. Nafna hennar hafði farið á föstudaginn og var líklega að vinna í gærmorgun. Svömluðum um í 12,7°C sjónum í rúmar tuttugu mínútur og voru svo rúman hálftíma í pottinum. Áður en ég fór heim eftir sjósundið skrapp ég á Atlantsolíustöðina við Sprengisand og fyllti á tankinn. Á næstu dælu var vinnufélagi minn, einn úr tæknideildinni sem kemur reglulega í heimsókn í kortadeildina. Restina af deginum var ég að lesa, prjóna, vafra um á netinu eða horfa á sjónvarpið.
10.7.21
Laugardagsmorgun
Komin á fætur fyrir rúmum hálftíma síðar og það þrátt fyrir að hafa lesið aðeins fram yfir miðnætti í bókinni Grænmetisætan eftir Han Kang. Í gærmorgun fór ég á bíl í vinnuna í fyrsta skipti í þessum mánuði. Vinnudagurinn gekk vel fyrir sig. Framleiðslu var lokið rétt upp úr klukkan hálftólf og eftir hádegi flokkuðum við kennispjöld til klukkan að ganga þrjú. Ég hafði ætlað mér að fara beint í sund eftir vinnu og var með sunddótið með mér í skottinu. Hins vegar sendi bókasafnið áminningu um að skiladagur væri að nálgast. Sá skiladagur er reyndar í dag en ég var búin að lesa bókina svo ég skrapp heim og stoppaði þar í rúman hálftíma. Skilaði fjórum bókum á safnið og tók fjórar aðrar þótt ég væri með fjórar heima. Var komin í sund um fjögur. Fór 3x5-6 mínútur í kalda pottinn, tvisvar sinnum í heitasta pottinn, einu sinni í sjópottinn og synti 500m þar af 200 metra á bakinu. Þvoði mér um hárið og var komin heim um sex.
9.7.21
Föstudagur
Í gærmorgun labbaði ég Klambratúnið, Gunnarsbraut, Snorrabraut og Skúlagötu í vinnuna. Ég var á móttökuendanum á vélinni. Allri framleiðslu var lokið um hálftólf. Sú sem er í 70% stöðu hætti á hádegi en við hinar tvær stemmdum af restina af framleiðslunni eftir hádegið og flokkuðum svo líklega uþb 3000 kennispjöld áður en við fórum heim. Ég fékk far heim og stoppaði þar í rúman klukkutíma áður en ég dreif mig í sund. Hluti af þeirri töf var sá að ég náði ekki í pabba í heimasímann hans fyrr en klukkan var byrjuð að ganga fimm. Hann var þá búin að skreppa tvær ferðir til Reykjavíkur. Báðar ferðirnar tengdust "bílabraski". Hann ætlar að setja þennan sem hann er á á sölu og kaupa sér Ford Kuga í staðinn. Verið er að setja kerrukrók á nýja bílinn sem er skráður inn í landið í fyrra og fær því pabbi ágætis afslátt. Já, pabba mínum er sko alls ekki fisjað saman. Mér líkar það vel hvernig hann lifir lífinu og mottóið hans er "engin vandamál, bara lausnir!" N1-sonurinn skilaði sér heim nokkru eftir miðnætti og hafði þá farið hringinn á tveimur dögum og skoðað ýmislegt.
8.7.21
Stutt í helgina
Í gærmorgun var ég glaðvöknuð einhvern tíman á sjötta tímanum. Klæddi mig og bjó um rétt fyrir sex. Þremur korterum síðar labbaði ég af stað lengri leiðina í vinnuna og var komin með tæp 5000 skref þegar ég mætti þangað um hálfátta. Ég var í bókhaldinu og hluti af þeirri vinnu í gær snerist um að sjá um að debetendurnýjunin yrði sótt í póst og svo sortera og pakka þeim kortum sem ekki voru með gild heimilisföng. Þær sem voru á framleiðsluvélinni ryksuguðu hana eftir hádegi og fór svo í að sækja fleiri kennispjöld til að flokka. Ég dundaði mér við að tengja saman reiti í reikningagerðinni til undirbúnings fyrir næstu mánaðamót. Hættum um hálfþrjú og fékk ég far heim úr vinnunni með þeirri sem býr í Garðabænum líkt og undanfarna daga. Stoppaði heima til klukkan að ganga fimm en þá tók ég til sunddótið mitt og kom við í Fiskbúð Fúsa á leiðinni þangað.
N1 sonurinn skrapp í ferðalag austur á firði í gærmorgun og gisti sl. nótt á Mjóeyri. Það er von á honum heim seint í kvöld og þá verður hann búinn að fara hringinn.
7.7.21
Vikan hálfnuð
Man að ég rumskaði á sjötta tímanum í gærmorgun en mér tókst að sofna aftur og vaknaði ekki fyrr en vekjaraklukkan lét í sér heyra. Hafði samt smá tíma til að kveikja á fartölvunni og vafra aðeins um á netinu áður en ég labbaði í vinnuna yfir Skólavörðuholtið. Ég var í framleiðslu að hlaða inn verkefnum og rétt fyrir hádegi fengum við grænt ljós á að klára dk-endurnýjunina. Fórum í það eftir hádegi og það tók einn og hálfan tíma að framleiða rúmlega níuhundruð kort. Gengum svo frá vélinni og læstum öllum skápum og renndum inn á lager ásamt bankatöskum og póstgrind með nokkrum kössum af umslögum á. Læstum lagernum og svo skápalykilinn og lagerlykilinn í öryggisskápinn í skrifstofurýminu. Fékk far heim úr vinnunni. Gerði mig klára í sundferð en það endaði á annan veg. Hef verið að lesa bókina Áttablaða rósin eftir Óttar. M. Norðfjörð. Átti síðustu rúmlega hundrað bls. eftir í gær af 400 og hætti ekki fyrr en ég var búin með bókina. Veit að ég hef lesið þessa bók áður en það kom alls ekki að sök. Bræðurnir fengu seinni Pfizer sprautuna í gær. Einkabílstjórinn sótti bróður sinn upp á Gagnveg um hádegisbilið og skilaði honum svo aftur þangað eftir bólusetninguna. Svo fékk hann sér pizzu á leiðinni heim. Ég slapp því alveg við að elda í gær, nóg var til að góðu snarli í ísskápnum.
6.7.21
Synirnir búnir að fá seinni pfizer
Ég var komin á fætur rétt upp úr klukkan sex í gærmorgun. Labbaði lengri leiðina í vinnuna en líkt og um daginn fór ég Skógarhlíðina og undir brúna rétt við Valsheimilið. Ég var í móttöku á vélinni. Framleiðslan gekk nokkuð vel fyrir sig og við vorum búnar með allt daglegt rétt upp úr hádegi. Þá sátum við og flokkuðum kennispjöld til klukkan að ganga þrjú. Önnur samstarfskona mín var á hjóli en hin bauð mér far heim eftir vinnu. Hitti þrjár úr sjósundshópnum í Nauthólsvík um hálffimm. Sjórinn var 13,7°C og var rétt að byrja að fjara út eftir háflóð ca klukkutíma áður. Svömluðum um í uþb 22 mínútur og syntum meðal annars út að einum pramma sem tilheyrir Siglingafélaginu og var nú ekkert svo langt í burtu. Við Oddur fengum okkur afgang af kjúklingapastarétti frá því fyrir helgi. N1 sonurinn var að vinna og var búinn að borða þegar hann kom heim um átta leytið.
5.7.21
Ný vinnuvika
Var komin á fætur áður en klukkan varð átta í gærmorgun en það tók mig tæpan klukkutíma að koma mér í sundgírinn. Mætti í Laugardalinn um níu. Fór nokkrum sinnum í kalda pottinn og oftast í 5 mínútur. Fór eina ferð í sjó pottinn, tvær í heitasta pottinn og synti 200m. Endaði á því að sitja um stund úti eftir síðustu ferðina í kalda pottinn. Þvoði mér um hárið. Það fyrsta sem ég gerði eftir að ég kom heim var að hella upp á kaffi. Drakk þrjá kaffibolla á skömmum tíma en svo ekkert meira kaffi eftir það. Var eitthvað að spá í að hella aftur upp á um tvö leytið en það varð ekkert af því. Var að prjóna, lesa og vafra um á netinu. Seinni partinn setti ég upp slátur, einn frosinn af hvoru tagi.
4.7.21
Rólegheit
Var pínu löt í gærmorgun en kom mér þó á fætur áður en klukkan varð mikið meira en hálfníu. Klukkan tíu var ég mætt í Nauthólsvík og hitti þar fyrir allan kjarnann úr sjósundshópnum mínum og eina til. Sjórinn er orðinn meira en 14°C og bara þægilega svalur. Vorum á svamli í hátt í hálftíma og flatmöguðum svo í heita pottinum rúmlega annað eins. Kom heim upp úr klukkan hálftólf. Hellti mér upp á kaffi. Þegar strákarnir komu á fætur bað ég þá að sjá um að ryksuga og skúra gólfin. Davíð Steinn byrjaði að ryksuga en gafst upp því ryksugan var ekki að vinna mjög vel. Það endaði með því að við mæðgin skruppum öll í Elko við Granda. Þar keypti ég nýja ryksugu og nokkra auka ryksugupoka og fékk að nýta N1-afsláttarkortið svo ég fékk nokkur þúsund kr. afslátt. Áður en við fórum heim aftur versluðum við inn í Krónunni. Davíð Steinn setti svo nýju ryksuguna saman og lauk við að ryksuga gólfin á meðan Oddur Smári gekk frá vörunum.
Ég lauk við að lesa Lasarus eftir Lars Kepler. Sú bók var svo óbærilega spennandi á köflum að ég varð að leggja hana frá mér inn á milli. Er byrjuð á skammtímalánsbókinni; Leyndarmálið okkar eftir Ninni Schulman. Hún er líka spennandi, rétt rúmlega 400 bls. en ég verð örugglega ekki lengi að lesa hana. Er meira en hálfnuð nú þegar. Er svo með sex aðrar alls konar bækur af safninu sem eru með skilafrest til 28 júlí n.k. með möguleikann á að framlengja um 30 daga.
3.7.21
Blíðviðri
Labbaði lengri leiðina með smá útúrsnúning, þ.e. að í stað þess að labba Eskihlíðina labbaði ég eins og ég væri að fara á völlinn. Fór framhjá Valsheimilinu á stígnum meðfram Bústaðaveg. Þetta var svipað langt og hin leiðin tæpir 3,5 km. Sú sem fór í seinni sprautuna upp úr hádeginu í fyrradag átti að fá Astra en það var búið svo hún þáði Pfizer í staðinn. Hún mætti hress til vinnu og hafði komið við í bakaríi til þess að sjá til þess að við fengjum föstudagskaffi. RB er aftur byrjað að bjóða upp á svoleiðis en sá sem er á bílnum og sendist á milli er í veikindaleyfi og enginn er að leysa hann af svo við fengum leyfi til að bjarga okkur og senda svo reikninginn til K2. Ég var í bókhaldinu í gær. Eftir dagleg verkefni fór ein í að sinna reikningagerðinni aðeins. Við hinar tvær töldum rekstrarvörurnar á lager en flokkuðum svo kennispjöld til rúmlega tvö. Ákváðum að hafa þetta stuttan dag. Ég fékk far heim úr vinnunni. Á leiðinni heim fékk ég vinnutengt símtal en ég gat svarað því án þess að þurfa að snúa við og mæta aftur á vinnustað.
Nokkru eftir að ég kom heim hafði ég samband við þann sem er milliliður varðandi framkvæmdirnar utanhús. Hann var ekki með neinar nýjar fréttir en er greinilega að vinna í þessu. Ég treysti honum og er nokkuð viss um að málin eru að þokast í rétta átt. Vonandi er ekki langt þar til all smellur en það lítur samt út fyrir að þótt framkvæmdir myndu hefjast á næstunni þá verði þeim ekki lokið að fullu fyrr en næsta vor.
Var mætt í sund um fjögur, aðallega til að kæla mig niður. Kom heim aftur um hálfsex og hafði plokkfisk í matinn. Fylgdist með Tónaflóði og prjónaði alveg helling á meðan.
2.7.21
Helgarfrí
Í gærmorgun labbaði ég lengri leiðina í vinnuna. Allri daglegri framleiðslu og talningum var lokið fyrir klukkan tólf. Sú sem er að vinna 70% fékk að fara heim klukkan tólf eins og þegar allar eru í vinnu. Hin fór upp í hádegismat en svo var búið að boða hana í seinni bólusetningu. Ég sat ein eftir með smá reikningagerðarverkefni. Að vísu kom einn frá OBA og annar úr tæknindeildinni um eitt að uppfæra og afrita af vélinni. Ég skildi þá eftir og labbaði heim um hálfþrjú. Kalda potts vinkona mín var þá búin að setja sig í samband við mig til að athuga hvort við myndum hittast í Laugardalslauginni seinni partinn. Hún sendi svo önnur skilaboð síðar þar sem hún var ekki 100% viss um að komast. En hún kom rétt á eftir mér í kalda pottinn um fimm. Fórum tvær stuttar ferðir í kalda og heitasta. Svo sat ég lengur í kalda pottinum á meðan hún skrapp í Steinapottinn að hitta dóttur sína. Ég fór í sjópottinn eftir fimm mínútur í kalda og sat þar í rúmar tíu mínútur. Sat svo á bekk þegar kalda potts vinkona mín kom aftur og sagðist ætla tvær auka ferðir. Fórum 2x3 mínútur en ég fór beint upp úr eftir seinni ferðina. Nú er þessi vinkona mín og ein systir hennar farnar vestur í Aðalvík þar sem fjölskyldan á sumarbústað og verða þar í 5-7 daga. Það fer bátur frá Ísafirði tvisvar í viku, á miðvikudögum og föstudögum.
1.7.21
Glænýr mánuður
Labbaði þvert yfir skólavörðuholtið í gærmorgun og þurfti ekki að kalla eftir gönguljósunum yfir Miklubraut því það var akkúrat engin umferð um það leyti sem ég var að trítla yfir. Ég var á móttökkuendanum á vélinni. Við kláruðum fyrri tvo daglegu skammtana nokkru áður en hádegisskammturinn kom yfir. Í millitíðinni endurnýjuðum við kort sem við gátum svo sent með hádegistöskunni. Eftir hádegi kláruðum við þá endurnýjun sem og það sem hægt var að gera í debetendurnýjun. Fékk far heim úr vinnunni með þeirri sem býr í Garðabæ. Stoppaði heima til hálffimm. Þá dreif ég mig í Laugardalinn. Innilaugin er lokuð og þrjár útibrautir af átta voru fráteknar vegna æfinga. Svo eru brautir 7 og 8 svo nálægt barnalauginni að leikurinn berst oft þangað. Ég fór 2x5 mínútur í kalda pottinn og heitasta pottinn á eftir. Gufan er lokuð þannig að ég sat aðeins úti á bekk eftir seinni heitu potta ferðina áður en ég fór upp úr. Skrapp og keyrði bílinn í gegnum þvottastöð hjá Löðri við Granda áður en ég fór heim aftur.
30.6.21
Síðasti júnídagurinn
Þar sem ég var komin mjög snemma á fætur í gærmorgun ákvað ég að labba lengri leiðina í vinnuna. Var komin með 5000 skref fyrir klukkan átta. Ég var í bókhaldinu í gær og það var í nógu að snúast. Vinnudagurinn leið mjög hratt en við gátum hætt aðeins fyrr heldur en á mánudaginn eða upp úr klukkan þrjú. Labbaði Skúlagötuna, Snorrabraut, Gunnarsbraut, Flókagötu, þvert yfir Klamratún og Lönguhlíð heim. Þetta eru amk 2,8 km en síminn skráði aðeins 1,7 km sjálfvirkan göngutúr. Hins vegar fóru heildarskref gærdagsins rétt yfir 12.000. Fór ekkert út aftur eftir að ég kom heim. Kveikti um stund á fartölvunni og vafraði um á netinu en svo las ég helling í síðustu bókinni sem var eftir heima þegar ég fór á safnið á mánudaginn; Lasarus. Á að skila henni 14. júlí nema ég framlengi um 30 daga. Bókin er upp á tæpar 600 blaðsíður og stundum óbærilega spennandi. Er hálfnuð með hana. Einnig kláraði ég fyrstu dokkuna í bláa hjartateppinu og prjónaði dokku tvö við teppið. Þá þarf ég ekki að ganga frá þeim endum, heldur aðeins klippa spottana.
29.6.21
Fótaferð um sex
Vaknaði á undan vekjaraklukkunni og var komin á fætur um hálfsjö í gærmorgun. Hálftíma síðar labbaði ég af stað í vinnuna þvert yfir Klambratún, Flókagötu, Gunnarsbraut, Snorrabraut og Skúlagötu. Ég var á ítroðsluendanum á framleiðsluvélinni. Ein var að koma úr fjögurra vikna sumarfríi og hún var á móttökuendanum. Vinnudagurinn stóð alveg til klukkan fjögur þótt framleiðslu væri hætt upp úr tvö. Labbaði heim yfir Skólavörðuholtið og framhjá Valsheimilinu. Stoppaði sama og ekkert heima heldur dreif mig að skila öllum nema einni bók á safnið og kom svo við í fiskbúð Fúsa áður en ég fór heim aftur. Skrópaði semsagt í sund/sjóinn. Kom með sjö bækur heim af safninu og þar af eina skammtímalánsbók. Annars "datt" eldhúshandklæði af prjónunum í gærkvöldi. Gekk þá loksins líka frá endunum á ungbarnateppinu sem ég kláraði fyrir nokkrum dögum. Þegar ég taldi afklippurnar komst ég að því að ég hafði nota nákvæmlega jafnmargar dokkur og mælt var með í uppskriftabókinni eða 7 dokkur.
28.6.21
Bókasafnsferð
Ég var komin á fætur upp úr klukkan sjö í gærmorgun. Hellti mér fljótlega upp á kaffi og fékk mér morgunverð. Vafraði um á netinu í stutta stund en tók svo aðeins í prjónana mína. Klukkan tíu var ég komin í sund. Fór 3x5 mínútur í kalda pottinn áður en ég synti 200 metra. Kom heim aftur um ellefu leytið. Um tólf var ég mætt hjá tvíburahálfsystur minni. Hún bauð mér inn í smá kaffi og hádegissnarl en um eitt lögðum við af stað út úr bænum á mínum bíl. Fyrst lá leiðin langleiðina austur að Flúðum. Ella og Aðalsteinn eru í bústað KÍ í landi Syðra-Langholts. Við vorum komnar til þeirra um hálfþrjú og stoppuðum við í uþb tvo tíma. Þá skruppum við á Hellu og stoppuðum í rétt rúman hálftíma hjá pabba mínum. Settumst beint inn í stofu og vildum alls ekki láta hann hafa fyrir okkur, vildum bara hitta aðeins á hann og spjalla smá. Þegar við vorum að halda áfram för sendi tvíburahálfsystir mín skilaboð til mömmu sinnar sem var búin að bjóða okkur í kvöldsnarl. Við vorum komnar í Fossheiðina rúmlega hálfsjö. Kvöldsnarlið reyndist vera grillveisla og meðlæti og ís í eftirrétt. Stoppuðum til klukkan að ganga tíu. Keyrðum Suðurstrandaveginn, í gegnum Grindavík og Reykjanesbrautina heim. Skyggnið var lítið en við sáum þó að margir voru á ferðinni við bílastæðin við gosstöðvarnar og á gönguleiðinni, ýmist að koma eða fara að gosinu. Skilaði vinkonu minni heim til sín um hálfellefu. Þetta var svo sannarlega skemmtileg og vel heppnuð dagsferð.
27.6.21
Ein safnbók ólesin
Ég var komin á fætur rétt upp úr klukkan sjö í gærmorgun. N1-sonurinn er á helgarvakt en hann sagðist vera búinn að fá far í vinnuna bæði þá og eins fyrir daginn í dag. Ég lagði af stað í sund um það leyti sem morgunfréttir klukkan átta voru lesnar. Það var rólegt í Laugardalnum. Fór fjórum sinnum í kalda pottinn, synti 200 metra, 2x í heitasta pottinn, einu sinni í sjó pottinn og sat svo góða stund í sólinni og spjallaði við þrjár konur sem ég hitti misoft í sundi áður en ég fór inn að þvo á mér hárið. Eftir sundferðina fór ég í Krónuna út á Granda. Gekk frá vörunum og sunddótinu þegar ég kom heim og hellti mér svo upp á kaffi. Restin af deginum fór svo í ýmislegt dútl.
26.6.21
Alveg slök
Í gærmorgun labbaði ég Eiríksgötuna og Skólavörðustíginn í vinnuna. Ég var númer eitt á framleiðsluvélinni að hlaða inn verkefnum og senda þau af stað. Allt gekk mjög vel. Vorum beðnar um að bíða með að framleiða tvær af tegundunum af fyrsta verkefni dagsins. Kláruðum debetdaginn um hálftíu og byrjuðum aðeins á að vinna í debetendurnýjun áður en við vorum beðnar um að framleiða öll nema eitt úr annarri biðskránni. Í hinni skránni var aðeins eitt kort sem, líkt og þetta eina óframleidda af tegundinni sem mátti framleiða næstum öll þurfti að vinna aðeins með og senda aftur yfir á vélina áður en það var framleitt. Það tókst fyrir klukkan tíu. Þegar að var afgreitt tókum við extra langan kaffitíma. Fyrirliðinn hafði komið við í bakaríi með sérstakt leyfi frá kokkinum á K2 um að kaupa í föstudagskaffihlaðborð. Föstudagskaffið hefur legið niðri sl rúma árið en það er að byrja aftur. Sendillinn sem yfirlett hefur komið með sendingu frá K2 er kominn í veikindafrí og á meðan megum við bjarga okkur. Daglegri framleiðslu lauk um hálftólf og hálftíma seinna kvaddi sú sem er aðeins að vinna föstudagana þegar tvær af okkur fimm eru í fríi. Eftir hádegi lukum við hinar tvær að telja úr síðustu tveimur kössunum af nýjustu plastsendingunni. Töldum rúm 21.000 kort en allt í allt voru fúmlega 62.000 kort í tveimur tegundum í sex stórum kössum. Labbaði sömu leið heim úr vinnu og á fimmtudaginn. Var komin heim upp úr klukkan hálffjögur og ákvað að vera löt annan daginn í röð og fara hvorki í sund né sjóinn heldur slaka á heima. Fékk mér hvítvínsglas í tilefni þess að verið væri að aflétta öllum sóttvarnartakmörkum innanlands um miðnætti.
25.6.21
Níu gönguferðir á fimm dögum
Þriðja morguninn í röð, í gærmorgun, labbaði ég meðfram Hringbraut og flugvellinum í vinnuna sem ég kalla lengri leiðina. Þetta eru uþb 3,5 km. Ég var í bókhaldi í gær og hinar tvær á framleiðsluvélinni. Fyrsti skammtur kláraðist fyrir klukkan níu en svo var allt stopp. Það náðist ekki samband við færirbandið. Fyrst vildi tölvuskjárinn þeim meginn ekki opnast og svo vildi framleiðsluvélin hvorki framleiða kort á form né heldur kort sem ekki voru að fara á form eins og þau sem voru í fyrsta skammtinum. Þetta endaði með því að kalla varð út viðgerðarmann og tilkynna um seinkun á afhendingu. Viðgerðarmaðurinn komst ekki til okkar fyrr en rúmum tveimur tímum eftir að hringt var eftir honum. Hann var að leysa aðal viðgerðarmanninn af og þurfti á hringja í þann til að fá uppgefið aðgangsorð á tölvuna við færibandið. Eftir það var hann enga stund að laga það sem að var og framleiðslan var komin af stað rétt upp úr klukkan tvö. Daglegri framleiðslu, talningu og frágangi lauk um fjögur. Þá labbaði ég heim þvert yfir Skólavörðuholtið og labbaði framhjá Valsheimilinu. Fór undir brú á Bústaðaveginum rétt neðan við Orkuna í Öskjuhlið. Klukkan var orðin hálffimm þegar ég kom heim og ég nennti alls ekki út aftur, fór hvorki í sund né sjóinn. Kalda potts vinkona mín hafði samband á FB-spjallinu seinna um kvöldið og sagðist hafa saknað mín í kalda pottinum. Ég millifærði smá summu yfir á einkabílstjórann og sendi hann eftir fjölskyldutilboði frá KFC upp úr klukkan sex. Bræðurinr voru hæstánægðir með þessa leti í mömmu sinni. Fitjaði upp á nýju teppi. Ætla að prjóna hjartateppi úr bláu Anchor Bay garni sem mælt var með við mig. Þetta verður örugglega fínasta teppi því þetta var önnur tilraun til að byrja á því. Fitjaði semsagt upp á því í fyrrakvöld og var búin að prjóna fyrstu 15 umferðirnar þegar tvær lykkjur duttu af prjónunum. Ég sá að ég myndi ekki geta bjargað þeim þannig að það sæist ekki á prjónaskapnum svo ég rakti allt saman upp.
24.6.21
Styttist í helgina
Labbaði aftur lengri leiðina í vinnuna, 3,5 km. Var í móttöku á vélinni og eftir hádegi komst ég aðeins í að flokka kennispjöld á meðan förgun ónýtra plasta frá mars til maí var framkvæmd. Eftir förgunina tók ég á móti restinni af kreditendurnýjuninni sem er búin að vera í gangi á meðan hinar tvær héldu áfram að opna og telja nýjar lagerbirgðir af kortaplasti. Þær opnuðu tvo kassa af fjórum og voru það alls 20.000 kort. Fór sömu leið heim og á þriðjudaginn. Stoppaði heima í einhverja stund áður en ég skrapp aðeins í sund. Synti reyndar ekkert og það er búið að loka gufunni þannig að ég fór 2x7 mínútur í kalda, 2x í heita pottinn og sat svo á bekk í smá stund áður en ég fór heim og eldaði kvöldmatinn.
23.6.21
Labbað báðar leiðir
Fór lengri leiðina í vinnuna í gærmorgun. Ég var á framleiðsluvélinni að hlaða inn verkefnum og ýta þeim af stað. Eftir hádegi endurnýjuðum kort til klukkan að verða tvö. Þá héldum við áfram að opna kassa og telja upp úr þeim. Töldum 10.000 kort úr einum af þeim fimm kössum sem eftir voru á brettinu. Labbaði Skúlagötu, Snorrabraut, Gunnarsbraut, Flókagötu, þvert yfir Klamratún og Lönguhlíð frá Miklubraut heim. Stoppaði heim í tæpan klukkutíma áður en ég tók sjósundsdótið með mér út í bíl og skrapp í Nauthólsvík. Sjórinn 10,2°C, flóð og ég synti út að kaðli. Hafði salthnakka og soðnar kartöflur í kvöldmatinn. Ungbarnateppi "datt" af prjónunum í gærkvöldi, prjónað með einni færri dokku en mælt var með í bókinni. Átti alveg eina dokku í viðbót en mér fannst þetta vera komið og láðist að telja spottana áður en ég prjónaði garðaprjón 14 síðustu umferðirnar og felldi af. Held að þetta muni samt alveg vera nothæft teppi. Heildarskrefafjöldi fór yfir 12200 í gær.
22.6.21
Á leiðinni í sjóinn
Labbaði þvert yfir Skólavörðuholtið í vinnuna í gærmorgun. Ég var í bókhaldsstörfum. Hinar tvær sáu um daglega framleiðslu og að henni lokinni framleiddu þær hluta af endurnýjun alveg til tvö. Þá fórum við allar í að skoða í einn kassa af nokkrum sem komu í hús seinni partinn á föstudaginn og stóðu á bretti inni á gólfi rétt hjá framleiðsluvélinni. Þetta voru sex kassar og samkvæmt fylgiskjölum tvær tegundir af plasti, rúmlega fimmþúsund af annarri tegundinni og rúmlega fimmtíuþúsund af hinni. Opnuðum efsta kassann og töldum úr honum. Urðum að taka hvern 500 korta kassa úr plastinu til að geta talið kortin, klæða þá svo aftur í plastið, líma fyrir og kvitta. Í þessum eina kassa voru öll kortin fyrir þá tegund sem minna var af. Hættum vinnu um þrjú. Úti var rigning og fyrirliðinn sá aumur á mér og leyfði mér að sitja í. Hafði reynt að hringja í einkabílstjórann en náði ekki sambandi við hann, síminn hans stilltur á hljóðlaust. Í stað þess að fara í sjóinn seinni partinn í gær eins og oft á mánudögum fór ég í Laugardalinn. Synti ekkert en fór 3x5 mínútur í kalda pottinn, eina ferð í sjópottinn, eina í heitasta pottinn og endaði í gufubaði. Hafði plokkfisk í kvöldmatinn.
21.6.21
Ný vinnuvika hafin
Fór á fætur í gærmorgun á svipuðum tíma og á laugardagsmorguninn. Rétt fyrir klukkan tíu var ég komin í sund og ég var í minni fyrstu ferð í kalda pottinum, búin með uþb 4 mínútur, þegar kalda potts vinkonan mætti. Ég elti hana í heitasta pottinn og svo á milli þessara tveggja potta, alls sex sinnum í viðbót í þann kalda. Rétt áður en þessum ferðum lauk mætti systir hennar á svæðið svo ég ákvað að fara með þeim aðeins í heitasta pottinn til að spjalla. Eftir þá ferð skildu leiðir. Ég fór áttundu ferðina í þann kalda, í eina og hálfa mínútu áður en ég synti 500 metra. Eftir sundð fór ég níundu og síðustu ferðina í kalda pottinn, rúmar tvær mínutur og endaði svo á góðu gufubaði áður en ég sagði þetta gott og þvoði mér um hárið áður en ég fór heim. Þessi svaka rútína tók uþb tvo tíma en mikið sem mér leið dásamlega vel um allan kroppinn á eftir. Restin af deginum fór í lestur, prjón, netvafr og þáttaáhorf. Hafði ýsuna sem ég keypti í fiskbúðinni seinni partinn á föstudaginn í kvöldmat og sauð blómkál með.
20.6.21
Sól
Var ekkert að drífa mig á fætur í gærmorgun og var klukkan orðin hálfníu þegar ég loksins drattaðist framúr, nýlega vöknuð. Hitti sjósundsvinkonu mína og aðra af systrunum í Nauthólsvík um tíu. Við syntum út að kaðli í 9,3°C sjónum og vorum svo drjúga stund í heita pottinum áður en við fórum upp úr og hver til síns heima. Það sem eftir lifði dags notaði ég m.a. í lestur prjón og netvafr. Lánaði bræðrunum bílinn til að skreppa í heimsókn í Mosfellsbæinn. Ég nennti ekki út í labbitúr en hafði það af að ryksuga yfir gólfin.
19.6.21
Laugardagur
Labbaði lengri leiðina í vinnuna í gærmorgun. Leiðirnar sem ég labba í vinnuna eru reyndar fleiri en tvær, aðallega þrjár með smá útúrdúrum stundum. En ég fór semsagt út Eskihlíðina undir brýrnar, Hringbraut meðfram flugvellinum, Hljómskálagarðinn, Fríkirkjuveg og Lækjargötu að Kalkofnsvegi. Var númer eitt á vélinni í vinnunni þ.e. hlóð inn verkefnunum og sendi þau af stað. Tvær endurnýjanir komu til okkar í gær, eða eiginlega þrjár því önnur skiptist í beint til fyrirtækis og svo í póst sem var mun stærri hluti. Gengum frá áður en klukkan varð þrjú og svo fékk ég far heim. Vinnufélagi minn sem er komin á samgöngusamning yfir sumarið og hjólar oftast í vinnuna kom á bíl í gærmorgun. Stoppaði heima í rúma klukkustund. Hringdi í þann sem ætlar að vera milliliður í framkvæmdunum utanhúss. Hann sagðist vera búinn að fá verktaka til að taka að sér verkið eftir því plaggi sem hann var að uppfæra. Vonandi fáum við plaggið til yfirlestrar sjálf fljótlega eftir helgi og vonandi verða allir sáttir hérna megin líka svo hægt sé að fara að byrja á þessu fljótlega.
Um hálffimm kom ég við í fiskbúð Fúsa áður en ég fór í sund. Í sundi fór ég 3x5 mínútur í kalda pottinn, synti ekki nema 200 metra, fór einu sinni í heitasta pottinn og endaði á góðu gufubaði. Nú er komin Nettó verslun þar sem Krónan var við Nóatún þar sem einu sinni var reyndar Nóatúnsbúð. Ég skrapp því alla leið vestur á Granda í Krónuna þar til að versla aðeins inn áður en ég fór heim. Oddur Smári opnaði fyrir mér og gekk frá vörunum. Hann var búinn að panta sér pizzu og Davíð Steinn var að vinna svo ég ákvað að sleppa því að hafa kvöldmat í gærkvöldi.
18.6.21
Vinnuvikulok
Var komin á fætur rétt áður en klukkan varð átta í gærmorgun. Var eitthvað að spá í að skreppa í sund en það endaði með því að ég var löt heima í allan gærdag. Las þó heila bók; Brúin yfir Tangagötuna og mæli ég alveg með þeirri bók. Ég var líka eitthvað að prjóna, lagaði villu í eldhúshandklæði sem ég er með á prjónunum og til þess að laga þessa villu þurfti ég að prjóna tvær umferðir til baka. Ég var líka svo heppin að Davíð Steinn tók óumbeðið að sér að elda kvöldmatinn. Hann bauðst til þess þegar hann sá hvað ég hafði tekið út úr frysti, kjúklingalæri. Maturinn var mjög góður hjá honum. En þar sem þetta var "heima í leti dagur" er lítið annað að frétta. Get þó sagt frá því að æskuvinkona mín hringdi í mig í fyrrakvöld og spjallaði í dágóða stund.
17.6.21
Hæ, hó, jibbí jey
Í gærmorgun fór ég á bílnum í vinnuna í fyrsta skiptið í þessum mánuði og í fimmta skiptið á árinu. Ég var í bókhaldinu og var því frammi í skrifstofurýminu nema þegar við vorum að telja. Eftir smá kaffipásu skildi ég stelpurnar eftir tvær og þær biðu með framleiðsluna á meðan og fóru frekar í að flokka kennispjöld. Ég keyrði að Laugardalshöll, eða aðeins lengra, lagði bílnum á stæði við Skautafélag Reykjavíkur. Margt var um manninn við höllina og kom röðin úr tveimur áttum og þegar nær dró innganginum skiptist hún í tvær og tvær. Þetta tók drjúga stund en mér fannst ég svo sem ekki þurfa að bíða lengi hreyfingalaus. Klukkan var orðin hálfellefu þegar ég settist í næst öftustu röðina og þá var verið að sprauta fólkið átta röðum fyrir framan. Ég fékk mína seinni stungu korter fyrir ellefu og plástur að auki en sú sem stakk mig var samt ekki viss um nákvæmlega hvar hún átti að setja plásturinn, það sáust engin ummerki. Það sveið ekki undan sprautunni eins og þeirri fyrri en ég var örugglega stungin og sprautuð því þegar fór að líða á daginn fann ég fyrir eymslum á stungustað og það var ekki þægilegt að leggjast á vinstri hliðina. Það liðu örugglega færri en 12 mínútur áður en minni röð var hleypt út eftir stungurnar. Ég var tilbúin og búin að senda skilaboð til samstarfskvenna minna. Var mætt í vinnuna aftur korter yfir ellefu og þá voru þær að byrja að framleiða aftur. Þær kláruðu hádegis og debetframleiðsluna um hálfeitt. Þá fórum við á hádegismat. Það sem var framleitt milli hálftólf og hálfeitt var talið eftir hádegi. Gengið var frá deildinni og svo fór ég smá stund í að flokka kennispjöld á meðan hinar tvær fóru fram að þeyta rjóma og búa til vöfflur.
Fór úr vinnu um þrjú. Byrjaði á því að bruna í handavinnubúðina í Hafnarfirði til að kaupa mér tvær auka dokkur í teppið sem ég er að prjóna og nokkrar aðrar líka. Svo fór ég heim og tók því rólega. Vafraði um á netinu, prjónaði, las og horfði aðeins á imbann.
16.6.21
Seinni Moderna í morgun
Labbaði sömu leið í vinnuna í gærmorgun og á mánudagsmorguninn. Ég var á ítroðsluendanum á framleiðsluvélinni og hlóð inn verkefnum sem lágu fyrir og þeim sem skiluðu sér til okkar upp úr ellefu. Framleiðslu var lokið fyrir hádegi. Eftir hádegi sorteruðum við kennispjöld til klukkan hálfþrjú. Fórum tvær með 13 kassa með sorteruðum kennispjöldum inn í kennispjaldageymslu og komum með 15 óflokkaða í staðinn. Erum komin með 1997 inn á deild en það eru nokkrir kassar síðan ágúst-des 1996 eftir óflokkaðir og eru í vinnslu. Labbaði sömu leið heim úr vinnunni. Fór í sund um fimm en synti reyndar ekki neitt og fór aðeins 2x5 mínútur í kalda pottinn. Kom heim um hálfsjö og eldaði kvöldmatinn. Strákarnir voru ekki komnir fram að borða þegar ég fór úr húsi stuttu fyrir átta með handavinnuna mína meðferðis. Saumaklúbbsmeðlimurinn sem situr lon og don í sölubás í Austurstræti frá því í byrjun maí og langt fram á haust hafði ætlað að þyggja far með mér. Hún lét mig hins vegar vita upp úr klukkan sex, þegar ég var á leiðinni heim úr sundi, að hún væri enn niðri á torgi og væri frekar lúin eftir daginn. Þannig að við vorum aðeins tvær í klúbbnum sem haldin var á nýja heimili tvíburahálfsystur minnar. Var komin til hennar um átta og eins og venjulega var klukkan orðin tíu eftir aðeins tíu mínútur (ég get svo svarið það). Fékk að skoða næstum alla króka og kima fasteignarinnar, allt nema herbergi dóttlunnar sem var með vinkonur í heimsókn. Fæ bara að skoða það herbergi seinna. Klukkan var að verða ellefu þegar ég kvaddi og fór heim. Var svo ljónheppin að fá stæði fyrir utan heima hjá mér.
Bækurnar þrjár sem skila á rétt fyrir næstu mánaðamót, ef ég framlengi ekki skilafresti eru; Sögur frá Þýskalandi eftir ýmsa höfunda, Brúin yfir Tangagötuna eftir Eirík Örn Norðdahl og Biðlund eftir Noru Roberts. Þar að auki er ég með eina kilju sem ég keypti mér sjálf um daginn nýjasta þýdda bókin eftir Angelu Marsons sem heitir Fyrsta málið. Er byrjuð á þeirri bók og gengur mjög vel með hana enda nokkuð spennandi.
15.6.21
Mánuðurin uþb hálfnaður
Það var vekjaraklukkan sem vakti mig rétt fyrir hálfsjö í gærmorgun og það þrátt fyrir að ég rumskaði stuttu fyrir sex. Ég sofnaði greinilega það fast aftur að ég var smá stund að átta mig á hvað væri að gerast þegar vekjraklukkan fór í gang. Labbaði í vinnuna upp Eiríksgötu og niður Skólavörðustíg og Ingólfsstræti. Var á móttökuendanum á vélinni fram að hádegi en þá var allri framleiðslu lokið. Flokkaði kennispjöld eftir hádegi til klukkan hálfþrjú. Labbaði lengri leiðina heim. Stoppaði heima í rúman hálftíma áður en ég tók saman sjósundsdótið og og fjórar bækur til að skila á safnið í leiðinni. Var komin út í sjó rétt rúmlega fimm. Ekkert bólaði á sjósundsvinkonu minni sem þó ætlaði að mæta um sama leyti. Svamlaði um í 9°C sjónum í um tuttugu mínútur. Þegar ég fór í heita potti sá ég vinkonu mína, númer eitt í röðinni. Beið eftir henni og fór aftur í sjóinn þegar hún var tilbúin. Við vorum aðeins níu mínútur í það skiptið en í góða stund í pottinum á eftir. Þegar ég kom heim var Davíð Steinn um það bil að fara í bíó. Ég ákvað því að sleppa eldamennsku og fékk Odd fyrir mig til að skreppa í Krambúðina og kaupa m.a. 1944 handa sér.
Bækurnar fjórar sem ég skilaði á safnið í gær voru: Hvunndagsmorð eftir Oddbjörgu Ragnarsdóttur, Ógnarhiti eftir Jane Harper, Þrír tímar eftur Anders Roslund og Mannavillt eftir Önnu Ólafsdóttur Björnsson. Tók þrjár bækur með mér heim; Lasarus eftir Lars Kepler, Flekklaus eftir Sólveigu Pálsdóttur og Morðin í Háskólabíó eftir Stellu Blómkvist. Heima voru svo amk þrjár í viðbót af safninu sem ég á eftir að lesa. Hef amk hálfan mánuð til að lesa þær og möguleika á að framlengja skilafresti þá um 30 daga.
Samsung health forritið taldi rúmlega 12000 skref hjá mér í gær.
14.6.21
Ný vinnuvika
Svaf til klukkan að verða hálfníu í gærmorgun. Fljótlega eftir að ég kom á fætur hellti ég upp á könnuna. Mágur minn var búinn að gefa hundunum að borða og hleypa þeim aðeins út að pissa en hann skreið svo aftur upp í og kom ekki fram fyrr en rúmlega níu. Hann var ánægðari með mágkonu sína að hafa séð til þess að hann gæti fengið sér kaffi þegar hann kæmi fram. Sjálf var ég búin að drekka einn bolla. Systir mín og mágur kvöddu svo einhvern tímann á ellefta tímanum. Ætluðu að erindast aðeins í bænum og sækja yngri dóttur sína áður en þau færu heim. Nú eru þau líklega hálftíma lengur að keyra heim tíl sín eftir að þau eru flutt í sveitina. Systir mín sagðist amk þurfa að fara af stað í síðasta lagi korter yfir sex til að vera mætt í vinnu korter fyrir sjö á morgnana.
Við pabbi höfðum saltfisk í hádeginu. Annars fór dagurinn í lestur, prjón, netvafr og kapallagnir. Ég kvaddi pabba fljótlega eftir kaffi og var komin heim til mín rétt fyrir klukkan sex.
13.6.21
Sunnudagur
Ég fór á fætur rétt fyrir klukkan sjö í gærmorgun. Fór fljótlega að vafra um á netinu í fartölvunni. Rúmlega hálfátta bauð ég N1 syninum far í vinnuna, sem hann þáði. Hann var mættur rétt fyrir klukkan átta og ég fór beinustu leið í sund. Fyrst í kalda pottinn í fjórar mínútur þá í heitasta pottinn í um fimm mínutur. Aftur í þann kalda í um fimm mínútur. Svo synti ég 400 metra, þar af 150 á bakinu. Fór svo beinustu leið í kalda pottinn og sat þar í um sjö mínútur áður en ég fór í gufu. Eftir gufubaðið fór ég upp úr og þvoði mér um hárið. Þegar heim kom hellti ég mér upp á smá kaffi og fékk mér hressingu. Um hálftólf var ég búin að pakka niður fyrir helgina. Vakti Odd Smára til að kveðja hann og sagði honum að hann mætti setja handklæði í þvottavél ef hann vantaði eitthvað að gera.
Var að nálgast Selfoss þegar systir mín hringdi úr bænum og spurði hvenær ég yrði komin austur á Hellu og hvort ég væri fáanleg til að skrifa inn í kort fyrir þau hjónin. Ég var semsagt komin tæpum klukkutíma á undan þeim Ingva austur. Þegar þau komu "skammaði" mágur minn mig fyrir að vera ekki búin að hella upp á. Ég bætti úr því á meðan hann fór að hreyfa hundana aðeins. Upp úr klukkan þrjú keyrði ég systir mín og mág í brúðkaupsveislu að Ármóti í Landeyjum. Fór miklu lengri leið heldur en ég þurfti, þ.e. í gegnum Hvolsvöll. Það er komin brú yfir Rangá milli Odda og Ármóta og sú leið er helmingi styttri. Að vísu er nýji vegurinn alfarið eins og versta þvottabretti en þetta er ekki langur spotti. Ég prófaði þessa leið á ellefta tímanum um kvöldið þegar ég sótti þau aftur úr veislunni. Veislan var svo sem ekki búin en þau voru búin að vera á fótum síðan um fimm, keyra alla leið úr sveitinni í Kinnunum og þar að auki búin að vera snemma á fótum alla vikuna þannig að þau voru eiginlega búin á því. Þess má geta í leiðinni að það varð til limra þegar ég skrifaði inn í kortið fyrir þau fyrr um daginn. Er búin að bæta þeirri í safnið á onnuvisur.blogspot.com
12.6.21
Morgunstund
Labbaði sennilega stystu leiðina í vinnuna í gær. Fór yfir á gönguljósunum við Miklubraut, undir brúna við Snorrabraut og Bústaðaveg, Eiríksgötu, Skólavörðustíg og Ingólfsstræti. Ég var á móttökuendanum á vélinni. Allri framleiðslu var lokið rétt upp úr klukkan hálftólf en það var nóg af verkefnum til klukkan þrjú. Ég komst meira að segja ekki nema fáein augnablik í kennispjaldaflokkunina. Fékk far heim úr vinnunni. Sú er nú að fara í sumarfrí og í næstu viku verður sennilega meira um það að ég labbi báðar leiðir. Nema á miðvikudaginn, þá fer ég örugglega á bíl í vinnuna til að geta skroppið í seinni sprautuna rétt fyrir ellefu. Tvíburarnir eru búnir að fá boð í fyrri Pfizer sprautuna eftir hádegi á þriðjudaginn kemur.
Hitti þrjár úr sjósundshópnum í Nauthólsvík um hálffimm í gær. Vorum að svamla í sjónum í uþb tíu mínútur en vorum svo örugglega um hálftíma í heita pottinum að gantast og spjalla.
11.6.21
Vinnuvikulok
Þriðja skiptið í vikunni labbaði ég lengri leiðina í vinnuna í gærmorgun. Var mætt fyrst tuttuguogfimm mínútum fyrir átta svo ég prentaði út framleiðslublöðin, kveikti á vélinni, opnaði stóru hurðina inn á lager og náði í bankatöskurnar í gegnum rimlana til að hægt væri að afhenda fyrstu tösku dagsins. Eftir smá kaffipásu á kaffistofunni og þegar við vorum allar mættar fór ég á "ítroðsluendann" á framleiðsluvélinni og hlóð inn fyrstu verkefnum dagsins á meðan önnur taldi í og tíndi til tegundirnar. Um leið og við vorum búnar að framleiða kreditkortinn settum við síðastu endurnýjunarskrána úr debetinu af stað. Það og talninging kláraðist fyrir kaffi. Eftir kaffi og til rúmlega ellefu framleiddum við dagleg debetkort. Hádegisframleiðslan kláraðist svo fyrir klukkan tólf. Ýmislegt var að sýsla og vorum við í vinnu til rúmlega þrjú. Fékk far heim úr vinnunni og stoppaði heima til klukkan rúmlega hálffimm. Þá dreif ég mig loksins í sund. Fór þrjár ferðir í kalda pottinn í fimm mínútur í senn og synti 200 metra áður en ég fór upp úr og heim aftur.
10.6.21
Einn þriðji
Í gærmorgun labbaði ég Klambratúnið, Flókagötu, Gunnarsbraut, Snorrabraut og Skúlagötu í vinnuna. Ég var á móttökuendanum á vélinni og taldi og tók til í tegundirnar sem voru í framleiðslu. Upp úr hádegi fékkst leyfi til að ljúka endurnýjun á tveimur síðustu dk-tegundunum. Vorum til þrjú að klára aðra upp á 1080 stk. Ég elti þá sem ég far með þessa dagana alla leið heim til hennar og sat og prjónaði þá stund á meðan við vorum þar. Hún lagði sig en ég veit ekki hvort hún gat nokkuð sofnað því það verið að háþrýsti þvo fyrir utan og þegar þeir sem voru að því urðu varir við að einhver var kominn heim báðu þeir um að þvotturinn væri tekinn inn og hliðið opnað út í garð.
Um hálffimm fórum við upp í Mosó að sækja fyrirliðann og við vorum komnar í skemmtigarðinn í Gufunesi í Grafarvogi um fimm. Þar hittum við marga af vinnufélögum okkar og fórum í axarkast og fótboltagólf. Það var líka hægt að fara í mínígólf en okkur vannst ekki tími til þess. Fengum hamborgara og franskar og gos, bjór eða vín með því ef við vildum. Forstjórinn settist hjá okkur og hafði m.a. á orði að hún þyrfti að fara að koma í heimsókn og skoða nýju vélina sem nota bene er búin að framleiða rúmlega tvöhundruðþúsund kort síðan byrjað var að nota hana í ágúst sl. Rúmlega átta ákváðum við að tími væri kominn að fara heim þótt atburðurinn væri sagður til níu. Ég hringdi í Odd, einkabílstjórann, sem svaraði ekki. Davíð Steinn svaraði hins vegar símanum og ég bað hann um að biðja bróður sinn að hringja í mig. Þegar Oddur hringdi bað ég hann um að sækja mig upp í Árbæ eftir hálftíma. Hann var búinn að bíða þar í fjórar mínútur þegar við komum frá því að skutla þeirri sem býr í Mosfellsbænum heim.
9.6.21
Mið vika
Annan daginn í röð labbaði ég lengri leiðina í vinnuna. Brá þó aðeins út af vananum og labbaði Sóleyjargötuna í stað þess að fara í gegnum Hljómskálagarðinn. Það hvorki lengdi né stytti leiðina amk ekki samkvæmt göngu forritnu sem skráir allar göngur hvort sem ég stilli á göngu eða ekki. Ég var í bókhaldinu í gær en byrjaði þó á að taka til framleiðslutegundir og taka á móti fyrstu kortunum því sú sem átti að vera á þeim enda byrjaði morguninn á því að mæta í blóðprufu. Þegar nær dró hádegi fór vélin að vera með smá vesen svo geyma þurfti hluta af debet framleiðslunni þar til eftir hádegi. Framleiðslu dagsins var því ekki lokið fyrr en upp úr klukkan tvö. Hætti vinnu rétt fyrir hálffjögur. Fékk far heim úr vinnunni. Fór í fiskbúð Fúsa eftir smá stopp heima og var komin í sund um fimm og var heppin að vera ekki seinna á ferðinni því ég náði aðeins tveimur ferðum í kalda pottinn með kalda potts vinkonu minni. Hún var að fara í bíó um sex og ég hitti hana í hennar fimmtu ferð. Eftir sundið fór ég alla leið í Krónuna út á Granda þótt ekki væri um neina stórverslunarferð að ræða.
8.6.21
Lengri leiðin í vinnuna
Var vöknuð, búin að slökkva á vekjaranum og komin á fætur upp úr klukkan sex í gærmorgun. Vafraði um á netinu þar til klukkan var uþb korter í sjö. Þá labbaði ég af stað í vinnuna, lengri leiðina meðfram flugvellinum, gegnum Hljómskálagarðinn, Fríkirkjuveg og Lækjargötu. Við þrjár sem stóðum vinnuvaktina breyttum aðeins verkaskiptingunni, þ.e. fórum ekki eftir planinu. Áttum að vera fjórar en sú fjórða hafði ákveðið að taka sér frí þessa viku. Ég fór á ítroðsluendann á vélinni. Allri framleiðslu lauk fyrir klukkan hálftólf. Þá skrapp sú sem hafði verið á móttökuendanum frá. Hin skrapp frá rúmlega eitt og ég var um tíma ein að flokka kennispjöld eftir hádegi. En þær skiluðu sér báðar aftur. Fékk far heim úr vinnunni. Stoppaði heima í um klukkustund áður en ég tók til sjósundsdótið og skrapp í Nauthólsvík. Hitti þrjár úr kjarnajósundshópnum mínum, sú fimmta var að vinna. Ég prófaði að fara út í 9°C heitan sjóinn í strandskónum sem ég keypti á Spáni 2016. Fannst það fyrst pínu kalt, en það vandist og ég var örugglega að svamla um í tuttugu mínútur því ég var langfyrst út í sjó og fór svo ekki upp úr fyrr en hinar fóru upp úr eftir tíu mínútna úthald. N1 sonurinn var búinn að skila sér heim úr Akureyrarferðinni þegar ég kom heim úr sjónum um sex.
7.6.21
Ný vinnuvika
Ég var vöknuð upp úr klukkan sjö í gærmorgun og komin á fætur fyrir átta. Eyddi einhverri stund í af vafra um á netinu í einni af tölvunum hans pabba. Ég var að hella mér upp á fyrstu kaffibolla dagsins um hálftíu þegar pabbi kom fram. Hann grillaði svo handa okkur lambaðsneiðar í hádeginu og bauð upp á kalda rófustöppu með. Það smakkaðist mjög vel saman. En við urðum frekar södd af þessu svo kaffitíminn var ekki fyrr en klukkan rúmlega fjögur. Ég kvaddi pabba um fimm og brunaði í bæinn. Kom við á Atlantsolíustöðinni við Sprengisand og fyllti á tankinn. Átt samt alveg að geta keyrt uþb 200 km í viðbót áður en tankurinn yrði tómur. Fékk stæði beint fyrir framan hús. Kvöldið fór í sjánvarpsgláp en ég var komin upp í rúm fyrir tíu og las í þrjú korter í; Þrír tímar eftir Anders Roslund.
6.6.21
Fyrsti sunnudagur mánaðarins
Ég var komin á fætur fyrir klukkan átta í gærmorgun. Fyrsti klukkutíminn fór í netvafr, tölvuleiki og blogg. Um níu bjó ég mér til hafragraut og rétt fyrir tíu var ég mætt í röðina í Nauthólsvík. Það var ekki margt um manninn í röðinni, frekar rólegt. Sá samt tvennt sem var þegar komið út í sjó. Pottþétt komið í sundfötum innan undir og tekið af sér í fjörunni. Hvort þau notuðu svo sturtuaðstöðuna og heita pottinn eftir að opnaði tók ég ekki eftir. Sjórinn var 9°C og, fjara og ég synti út að kaðli. Hefði getað vaðið alla leið en ég svamlaði þessa leið á bakinu, bringunni og tók einnig nokkur skriðsundstök. Kom við í lóninu á leiðinni í heita pottinn. Var komin heim aftur um ellefu. Gekk frá sjósundsdótinu inn á baðherbergi, náði í þvott af snúrunni og hellti mér svo upp á kaffi. Það voru örugglega tveir til þrír bollar í brúsanum en ég drakk aðeins einn. Upp úr klukkan tólf lauk ég við að pakka niður, vakti Odd til þess að kveðja og brunaði svo af stað austur á bóginn. Kom við í Fossheiðinni og stoppaði þar í uþb klukkustund. Var komin á Hellu upp úr klukkan hálfþrjú. Pabbi var með kaffi um hálffjögur og ég tók út tvö bleikjuflök um fjögur leytið. Kvöldmatur var beint á eftir kvöldfréttum Bylgjunnar og hafði ég hrísgrjón og lauk með bleikjunni. Fékk mér að sjálfsögðu hvít með matnum og annað glas á eftir.
5.6.21
Tvöþúsundníuhundruðogfyrsta færslan
Ég var komin á fætur rétt upp úr klukkan sex í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðherberginu og smá netvafr í fartölvunni ákvað ég að labba lengri leiðina í vinnuna og lagði því að stað tíu mínútum fyrir sjö. Ég var samt mætt fyrst á vinnustaðinn eftir 40 mínútna göngu en rétt seinna kom svo í ljós að við vorum bara tvær af fimm því sú sem var í seinni módernasprautunni á miðvikudaginn var ennþá sárlasin og með mikil og ljót útbrot á hálsi og niður á maga. Vinnureglur kveða á um að aldrei séu færri en þrír á deildinni en það kemur fyrir, örsjaldan þó, að það er ekkert hægt að gera í því. Einn af strákunum frammi hefur stundum stokkið inn og bjargað málunum. Hann var reyndar mættur í gær en var bara einn, annar veikur og sá þriðji var ekki mættur og þurfti svo að skreppa á Korpu. Framleiðsla dagsins var ekki stór og við tvær báðum þann sem var frammi að fylgjast extra vel með okkur. Hin átti að vera í bókhaldi svo hún var á móttökuendanum á vélinni. Lukum við að framleiða fyrsta skammt um níu. Þá fór hin að vinna í bókhaldinu en ég að undirbúa pökkun debetkorta. Svo töldum við allar tegundir úr báðum skápunum sem var búið að framleiða úr, líka þær tegundir sem ekki voru í framleiðslu, því það er alltaf gert á föstudögum. Eftir morgunkaffi fórum við í debetframleiðslu dagsins. Rétt innan við þrjúhundruð kort og við kláruðum það á ca 40 mínútum. Þá fór hin í bókhaldið og ég að pakka. Töldum allar tegundir á vagni og vorum að klára þetta þegar hádegisframleiðslan var komin til okkar. Það eina sem eftir var að gera eftir hádegið af daglegum störfum var að telja allana síðasta vagninn. Flokkaði kennispjöld til klukkan hálfþrjú og fékk svo far heim úr vinnunni. Var nokkra stund að ákveða mig hvort ég ætti að fara í sund eða sjóinn. Sundið varð ofan á og ég notaði tækifærið og þvoði mér um hárið á leiðinni upp úr eftir fjórar langar (4-6 mínútur) kalda potts ferðir, 300 metra sund og rúmar tíu mínútur í gufubaði.
4.6.21
Inn í helgina
Vaknaði á undan klukkunni, slökkti strax á henni og fór á fætur. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég smá stund með fartölvuna í stofunni og vafraði um á netinu þar til kominn var tími til að labba af stað í vinnuna. Mættum þrjár til vinnu, sú fjórða var slöpp eftir seinni sprautuna af Moderna daginn áður og sú fimmta er í sumarfríi langt fram í júní. Sú sem var í bókhaldinu vann til hádegis. Ég var á ítroðsluendananum á vélinni alveg þar til framleiðslu var lokið um hálftólf. Sú sem var að taka á móti fékk þá að skreppa í klippingu. Eftir matinn fór ég ein inn á deild að flokka kennispjöld um hálfeitt. Sú sem fór í klippinguna kom ekki fyrr en um hálftvö eða uþb tveimur tímum frá því hún fór. Þessi seinkun kom reyndar ekki til af góðu. Klippingin gekk hratt og vel en svo hringdi elsti sonur hennar í hana og lét vit að mamma hennar, sem hefur verið í heimsókn hjá henni síðustu daga, hafði dottið á baðherberginu. Hún gat ekki staðið upp en sem betur fer var hún með gemsann sinn á sér. Dóttirin fór strax heim en hún gat ekki hjálpað mömmu sinni að standa upp en annar tengdasonur hennar kom og bjargaði málunum. Mamman var ómeidd en smá skekin og eftir sig. Hættum vinnu um hálfþrjú og ég fékk far heim. Var komin í sund rétt fyrir fimm og þá var kalda potts vinkonan þegar búin að fara þrjár ferðir í þann kalda. Hún fór eina auka ferð með mér, alls sjö ferðir, en eftir þá ferð synti ég 300 metra áður en ég fór upp úr og heim.
3.6.21
Styttist í helgarfrí
Vaknaði á undan vekjaraklukkunni í gærmorgun, uþb tíu mínútum áður en hún átti að hringja. Slökkti á henni og dreif mig á fætur. Heyrði í rigningu útivið en þegar ég sat í stofusófanum sá ég ekki neitt, það var blakalogn úti. Labbaði í vinnuna og varð svolítið rök eftir þá göngu, samt var ekki hellirigning. Ég var í bókhaldinu í gær og kom því ekkert nálægt framleiðslunni. Þegar daglegum störfum var lokið flokkaði ég kennispjöld. Tvær af hinum þremur voru að vinna í reikningagerð eftir framleiðslu, pökkun og talningar. Það má segja að sú þriðja hafi verið að gera það líka því hún var að byrja á að vinna í öllum tenginum fyrir þennan nýbyrjaða mánuð í skjölum sem tengjast samantektartölum um mánaðamót. Fékk far heim úr vinnunni og við fórum aðra leið en venjulega, beygðum til hægri frá Hörpunni og fórum Lækjargötu og alla leið að Miklubraut og þaðan í Lönguhlíð. Var komin í sund upp úr klukkan hálffimm. Byrjaði á því að fara í fimm mínútur í kalda pottinn. Fór svo á braut 1 og synti 300 metra áður en ég fór aftur í kalda. Ég var á þriðju kaldapotts ferðinni þegar vinkona mín mætti loksins. Saman náðum við fjórum ferðum áður en ég endaði í gufunni.
Kom við í Krónunni við Nóatun. Þar hitti ég tvennt sem hafði verið í sjópottinum og er oft í sundi á svipuðum tíma. Þekki konuna frá því synir okkar voru í DKR. Hún var gapandi hissa á að sjá hversu sítt hár ég var komin með, sér það aldrei í sundinu því ég er alltaf með sundhettu. Oddur Smári tók á móti vörunum og gekk frá þegar ég kom heim. Ég sagði að hann mætti velja um að borða afgang af fiskibollum frá því kvöldið áður eða setja upp kartöflur og hita bjúgu. Hann valdi þriðju leiðina, skrapp út í Krambúð og keypti sér 1944. Þegar N1 sonurinn kom heim úr vinnu settist hann niður í sófann í stofunni og spjallaði við mig í hálftíma. Hann er í fríi í dag og á mánudaginn (er á frívakt föstudag til sunnudags) og er farinn til Akureyrar ásamt sjö vinum/kunningjum. Kemur líklega ekki heim fyrr en á mánudaginn.
2.6.21
Vikan hálfnuð
Labbaði af stað í vinnuna í fyrra fallinu í gærmorgun því ég ákvað að fara lengri leiðina, framhjá flugvellinum og í gegnum Hljómskálagarðinn. Ég var að vinna á móttökuendanum á vélinni bæði fyrir og eftir morgunkaffi. Sú sem átti að vera á þeim enda eftir kaffi bað mig um að leysa sig af í smá stund og svo bað ég um að fá að vera áfram. Það kom sér ágætlega fyrir þá sem var í bókhaldinu og er að læra á mánaðamótauppgjör og reikningagerð. Eftir hádegi sorteraði ég kennispjöld til klukkan að verða þrjú. Fékk far heim úr vinnunni. Stoppaði heima til rúmlega hálffimm og var óvenju lengi á milli heimilis og sundsstaðar. Fyrsta ferðin í þann kalda, um leið og ég kom út úr klefa, var korter yfir fimm. Þar fyrir var náungi sem kannast við mig og kalda potts vinkonu mína og hann sagði mér að það væri verið að bíða eftir mér. Ég ákvað því að sitja í kalda pottinum þar til vinkonan kæmi úr heita pottinum og sitja með henni. Það urðu átta mínútur í átta gráðu köldum pottinum. Vinkonan var að fara sína fjórðu ferð í pottinn en hún tók eina auka og svo fór ég sjálf eina ferð í viðbót áður en ég fór í gufu.
1.6.21
Glænýr mánuður
Það var vekjaraklukkan sem "ýtti" við mér stuttu fyrir klukkan hálfsjö í gærmorgun. Man að ég rumskaði á stjötta tímanum en ég steinsofnaði greinilega aftur. Eftir morgunverkin á baðinu gaf ég mér tíma til að vafra aðeins um á netinu áður en ég labbaði í vinnuna. Fram að morgunkaffi var í pökkunarundirbúningi, flokkun kennispjalda og talningu. Eftir kaffi fór ég á vélina að "troða í" og sú sem hafði verið á þeim enda fram að kaffi færði sig á hinn endann og tók á móti. Eftir hádegi fór ég móttökuendann á vélinni og tók á móti rúmlega fimmtánhundruð kortum sem voru að endurnýjast. Klukkan var akkúrat þrjú þegar endurnýjunin kláraðist. Þá var aðeins eftir að ganga frá og tæta niður prentborða úr módúlum 6 og 7 á vélinni.
Fékk far heim úr vinnunni og stoppaði heima í tæpa klukkustund áður en ég tók með með sjósundsdótið og dreif mig í sjóinn við Nauthólsvík. Synti út að kaðli. Hefði reyndar getað vaðið alla leið en það er ekki hálft eins gaman þótt það sé fyndið að það sé hægt á fjöru. Kom heim rétt upp úr sex og eldaði pottrétt úr hakki. Eftir kvöldfréttir horfði ég á leik í átta liða útsláttarkeppni á EM U21 í knattspyrnu karla. Leikurinn var á Rúv2 og var milli Þýskalands og Danmerkur. 1:1 var eftir venjulegan leiktíma og hvort liðið skoraði eitt mark í framlengingunni svo það þurfti vítaspyrnukeppni til að ná fram úrslitinum. Það var í bráðabana, sjöttu spyrnu sem þýski markvörðurinn varði sína aðra vítaspyrnu en þjóðverjar skoruðu úr sinni spyrnu svo það fór 5:4 í vítum eða 7:6 í heildina. Mér skilst að það hafi líka verið spenna í hinum leiknum sem var spilaður á sama tíma. Sá leikur var milli Ítalíu og Portúgals. Ítalía lenti 3:1 undir en manni færri jöfnuðu þeir og það var framlengt. Veit svo reyndar ekki hvernig leikar enduðu. Fyrr um daginn voru hinir leikirnir í átta liða úrslitum spilaði, minnir mig milli fimm og sjö og amk annar þeirra fór í framlengingu.
31.5.21
Síðasti dagurinn í maí
Var komin á fætur um klukkan átta í gærmorgun. Notaði tímann til klukkan hálftíu að vafra aðeins um á netinu og leika mér í fartölvunni. Skutlaði N1 syninum í vinnuna og var mætt í Laugardalinn rúmlega tíu. Kalda potts vinkona mín var búin með tvær ferðir í þann kalda en ég náði einni ferð áður en við fórum saman í næstu kalda potts ferð. Þegar hún var búin með sex ferðir og ég fimm synti ég 500 metra áður en ég fór í sjöttu og síðustu ferðina í kalda pottinn. Þar sat ég í fimm og hálfa mínútu áður en ég fór í gufu. Þvoði á mér hárið og fór svo beint heim. Hlustaði fyrst á hádegisfréttir en hellti mér svo upp á kaffi strax á eftir. Um hálftvö skrapp í bókasafnið í Kringlunni. Skilaði fimm bókum af átta og kom með fjórar með mér heim.
Eitt stykki eldhúshandklæði eða borðtuska í stærri kantinum "datt" af prjónunum í gærkvöldi og er ég búin að ganga frá öllum endum. Það var í raun aðeins einn endi til að ganga frá, sá síðasti, hina prjónaði ég inn í stykkið og klippti svo spottana eftir að ég var búin að fella af.
30.5.21
Rólegheit
Fór á fætur um klukkan sjö í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég inn í stofu með fartölvuna og sat með hana næsta hálftímann. N1 sonurinn kom á fætur rétt fyrir hálfátta og tíu mínútutum seinna skutlaði ég honum á vinnuvakt upp á N1 stöðina við Gagnveg í Grafarvogi. Ég fór beint heim aftur og greip í bók; Járnblóð eftir Lizu Marklund síðasta sagan um blaðakonuna Anniku Bengtzon. Um níu leytið bjó ég mér til hafragraut og rétt fyrir tíu var ég mætt í Nauthólsvík. Það er búið að fjarlægja allar keilur og ekki er lengur talið inn. Við vorum reyndar ekki mörg mætt og þann klukkutíma sem ég var á staðnum var heildarfjöldinn innan við takmörkunarviðmiðið. Sjórinn var 9,2°C og það var nýbúið að vera háflóð svo það var stutt út í. Ég svamlaði aðeins um og synti svo í rólegheitum út að kaðli. Kom svo aðeins við í lóninu áður en ég fór í pottinn. Var í sjónum í tæpan hálftíma og svo korter í heita pottinum. Þegar ég kom heim aftur hellti ég mér upp á kaffi. Restin af deginum fór m.a. í lestur, prjónaskap og svo horfði ég líka á nokkra þætti í nýjustu seríunni af Glæpahneigð.
29.5.21
Laugardagur
Ég fór á bílnum í vinnuna í gærmorgun og hafði sunddótið meðferðist í skottinu. Þetta var fjórða skiptið á árinu sem ég nota einkabílinn til að fara milli heimilis og vinnu. Ég var í bókhaldsvinnu í gær og hinar tvær sáu um alla framleiðslu. Þar sem það var föstudagur voru allar tegundir á vögnum taldar eftir eftir framleiðslu, ekki bara þær sem voru í framleiðslu í gær. Þegar daglegum verkum lauk snéri ég mér að flokkun kennispjalda en hinar tvær að endurnýjun. Það var ekki mikið sem hægt var að gera í endurnýjun og þær voru innan við klukkutíma eftir hádegi að klára það sem hægt var. Þar sem það var föstudagur ákváðum við að hætta fyrr og klukkan var ekki orðin hálfþrjú þegar við yfirgáfum vinnustaðinn. Ég fór beinustu leið í Laugardalinn. Kom heim um fjögur og byrjaði á því að setja upp slátur, einn kepp af hvorri tegund beint úr frysti.
28.5.21
Soðið slátur
Var komin á fætur upp úr klukkan sex í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég inn í stofu með fartölvuna og vafraði um á netinu í uþb hálftíma. Lagði labbandi af stað í vinnuna tíu mínútum fyrir sjö og ákvað að fara lengri leiðina, meðfram flugvellinu og yfir Hljómskálagarðinn. Vorum fjórar í vinnunni til hádegis en þá fór ein í sitt helgarfrí því hún er í 70% stöðu og vinnur aðeins til hádegis á fimmudögum. Tvær af okkur hinum lukum við endurnýjun kreditkorta eftir hádegi. Sú sem var í bókhaldinu í gær var að flokka kennispjöld eftir að daglegum bókhaldsverkefnum var lokið. Hættum vinnu klukkan að verða hálffjögur. Ég fékk far heim og stoppaði þar í rúman hálftíma áður en ég dreif mig í sund. Kom við í Fiskbúð Fúsa á leiðinni í sundið. Hitti kalda potts vinkonu mína í sinni þriðju ferð í kalda pottinn. Hún fór auka ferð með mér svo ég fór allt í allt fimm ferðir. Í gærkvöldi lauk ég við að lesa bókina Dimmuborgir eftir Óttar Norðfjörð.
27.5.21
Lítið eftir af maímánuði
Var búin að slökka á vekjaranum og komin á fætur amk tíu mínútum áður en hann átti að hringja í gærmorgun. Fór labbandi í vinnuna um sjö eins og oftast áður. Ég var í pökkunarundirbúningi, talningum og flokkun kennispjalda fram að kaffi en fór svo inn á vél eftir kaffi á ítroðsluendann. Eftir hádegi fór ég á hinn endann á vélinni. Vorum að vinna í kreditendurnýjun til klukkan þrjú. Fékk far heim úr vinnunni. Stoppaði heima í hátt í klukkustund áður en ég dreif mig í sund. Ætlaði að synda smá en þegar ég kom á staðinn varð ekkert úr sundinu en ég fór í sex ferðir í kalda pottinn og fyrstu þrjár ferðirnar var ég 4-5 mínútur. Þá var kalda potts vinkona mín mætt á staðinn og passaði upp á tímann og við vorum 3 mínútur í kalda pottinum. Kom við í Krónunni við Nóatún á leiðinni heim. Davíð Steinn var búinn að elda um það leyti sem ég skilaði mér heim. Horfði m.a. á fréttir og stjörnuhreysti. Skrapp aðeins aftur í tölvuna þannig að klukkan var orðin hálfellefu þegar ég fór í háttinn. Las í rúman hálftíma eða til klukkan að ganga tólf.
26.5.21
Vikan hálfnuð
Rumskaði um miðja nótt aðfaranótt gærdagsins. Skrapp á salernið og sofnaði svo fljótlega aftur og svaf þar til vekjaraklukkan á símanum fór að hamast. Dreif mig á fætur um leið og ég áttaði mig á að það væri kominn fótaferðatími fyrir vinnandi fólk. Labbaði af stað í vinnu um sjö og var fyrst á svæðið þar sem fyriliði hópsins er í sumarfríi þessa vikuna. Það leið samt ekkert langur tími þar til sú næsta mætti á svæðið sem var eins gott því fyrsti sendill dagsins mætti klukkan 7:37 að sækja fyrstu bankatöskuna af þremur og við þurfum að vera tvær til að opna inn á lager þar sem töskurnar eru geymdar yfir nóttina. Vorum annars bara þrjár í vinnu í gær, hinar tvær voru í fríi. Ég var í bókhaldinu og flokkaði svo kennispjöld í gríð og erg þegar daglegum verkefnum var lokið. Hættum vinnu rétt upp úr þrjú og ég fékk far heim. Stoppaði heima í uþb klukkustund áður en ég fór í sund. Var í minni fyrstu ferð í kalda pottinn þegar vinkona mín mætti í sína þriðju ferð. Eftir hennar sjöttu ferð í þann kalda fórum við í sjópottinn. Ég nennti ekki að synda og var komin heim aftur um sex.
25.5.21
Ný vinnuvika
Ég fór á fætur klukkan rétt rúmlega átta í gærmorgun. Tveimur tímum síðar var ég búin að skutla N1 syninum á vakt upp í Grafarvog og komin í Laugardalinn. Fór fyrst í kalda pottinn í fimm mínútur. Synti svo 400 metra áður en ég fór aftur í þann kalda í fjórar mínútur. Sat á bekk í nokkra stund áður en ég fór í næsta pott, 42°C en sá heitasti var lokaður. Eftir þriðju ferðina í kalda pottinn fór ég í gufubað. Kom heim um hálftólf og byrjaði á því að hella mér upp á smá kaffi. Rúmlega klukkustund síðar klæddi ég mig upp í kjól af mömmu sem hún var í í fermingaveislu Bríetar vorið 2018. Rétt fyrir klukkan eitt var ég mætt í Síðumúla í fermingaveilsu frænda míns. Upphaflega átti hann að fermast í apríl í fyrra en fermingin var í september og það var búið að fresta veislunni fjórum eða fimm sinnum. Föðurafi fermingabarnsins var næstelsti bróðir hennar mömmu. Pabbinn kennir sig reyndar við uppeldisföður sinn en hann er í góðu sambandi við stóran part föðurfjölskuldu sinnar. Stoppaði í veislunni í um tvo tíma og tók örstuttan bíltúr í Nauthólsvík á leiðinni heim. Restin af deginum fór í netvafr, leiki, lestur og sjónvarpsgláp. Ekkert var prjónað eða saumað.
24.5.21
Annar í Hvítasunnu
Ég var fyrst á fætur rúmlega átta í gærmorgun. En systir mín, mágur og hundarnir komu mjög fljótlega fram. Ég bjó til sterkt kaffi og systir mín hrærði í ketókaffi mínus olía og bauð mér með þeim. Annars gerði ég mest lítið nema lesa, prjóna, spjalla og vafra aðeins um á netinu. Þau hjónin skruppu aðeins yfir í Hvolsvöll upp úr hádegi og um miðjan dag skrapp unga parið í gönguferð um plássið. Um kaffi leytið voru Helga og Ingvi komin aftur og sögðust hafa boðið fólki í kaffi. Pabbi fór í pönnsugerð og Helga gerði ketóvöfflur. Kaffitíminn var búinn um fimm og allir vel saddir þannig að kvöldmaturinn var hafðu eftir kvöldfréttir. Helga systir sá um hann nema ég setti af stað blómkál og lauk í gufusuðupottinn. Eftir kvöldmat horfðum við á Landann en svo tók ég mig saman, kvaddi og brunaði í bæinn.
23.5.21
Ja ja ding dong
Klukkan var byrjuð að ganga níu þegar ég fór á fætur í gærmorgun. Fljótlega ákvað ég að stefna að sjóferð því mér sýndist sem allur kjarninn úr hópnum mínum ætlaði að mæta. Við hittumst í röðinni stuttu fyrir tíu. Nú er komin sumaropnun, opið alla daga milli tíu og nítján og ókeypis inn. Allir í röðinni komust inn þegar opnað var og nokkrir til sem komu rétt upp úr tíu en um hálfellefu var komin biðröð og engin í þeirri biðröð komst inn fyrr en einhver kom út fullklæddur. Sjórinn var næstum níu gráður og það er alveg spurning hvort ég geti ekki farið að leggja sjósundsskónum og notað/klárað strandskóna sem ég keypti á Spáni 2016. Ásamt okkur fimm, kjarnanum mættu fjórar stúlkur úr 10. bekk Réttarholtsskóla með kennaranum sínum. Þær ætla að gera lokaritgerð um sjósund og ákváðu að skella sér í sjóinn með okkur. Kennarinn er vinkona sjósundsvinkonu minnar. Hún fór ekki út í en var að taka upp. Ein af stúlkunum fjórum var svo með myndavél í vatnsheldum umbúðum í teygju um höfuðið á sér. Eftir ferð í sjóinn, lónið og heita pottinn varð sjósundsvinkona mín samferða þeim upp úr því þær ætluðu að spyrja hana um kosti þess að stunda sjósund.
Eftir ferðina í Nauthólsvík skrapp ég vestur á Granda og keypti ferð fyrir bílinn í gegnum þvottastöð. Þegar ég kom heim gekk ég frá sjósundsdótinu og pakkaði niður, kvaddi synina og lagði af stað austur. Kom við í Fossheiðinni og þáði kaffi, spjall og meðlæti. Kom á Hellu um hálfþrjú og frétti þá að von væri á Helgu systur. Þau komu sex, tveir ferfætlingar, maðurinn hennar, yngri dóttir og kærastinn hennar. Kaffið var drukkið rétt fyrir fjögur og ákveðið að hafa steinbít í matinn um kvöldið. Tók út þrjú væn flök úr kistunni eftir að búið var að ganga frá eftir kaffið.
Upp úr klukkan sex setti ég upp blómkál og lauk í pott og gufusauð. Hrærði saman tveimur eggjum krydduðum með best á allt og bætti við 3 matskeiðum af möndlumjöli. Varð að búa til aðra svona blöndu til að velta fiskbitunum upp úr áður en ég setti á pönnuna. Eftir að allur fiskur var kominn á pönnuna bætti ég smá rjómaslettu út í. Þetta þótti mjög gott. Bríet sá um uppvaskið á eftir og svo horfðu allir saman á söngvakeppnina.
22.5.21
Sjóbað bráðum
Það hvarflaði að mér að labba sömu leið í vinnuna í gærmorgun og á fimmtudagsmorguninn. Ákvað svo að labba þá leið aftur í næstu viku einu sinni til tvisvar. Í staðinn fór ég yfir gönguljósin á Miklubraut við Klambratún, undir brúna við Snorrabraut, Eiríksgötu og Skólavörðustíg, Klapparstíg, Hverfisgötu og Ingólfsstræti. Semsagt smá krókur því það er hægt að fara næstum beint af Skólavörðustíg yfir á Ingólfsstræti. Ég var á framleiðsluvélinni bæði fyrir og eftir morgunkaffi. Fyrst að hlaða inn verkefnum og senda skrárnar/kortin af stað og svo að taka á móti og skoða. Eftir hádegi taldi ég hádegisframleiðslu dagsins sem og debetskápinn með þeirri sem var í bókhaldinu og var svo að flokka kennispjöld. Fór með 15 flokkaða kassa inn í kennispjaldageymslu og kom með 15 óflokkaða kassa með mér til baka. Það er búið að flokka eitthvað yfir 100 kassa en við erum enn með árið 1995. Reyndar var hluti af þeim kössum sem ég sótti í gær síðan 1996.
Fékk far heim úr vinnunni, sendi kalda potts vinkonu minni skilaboð um hvenær ég ætlaði í sund og hitti hana þar um hálffimm þegar ég var búin í minni fyrstu ferð í kalda pottinn. Fór svo sex ferðir með henni. Synti 200 áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Síðan sótti ég syni mína og bauð þeim út að borða á Pítuna.
21.5.21
Löng helgi
Í gærmorgun labbaði ég af stað í vinnuna þegar klukkuna vantaði aðeins tíu mínútur í sjö. Ákvað því að labba út Eskihlíðina, undir brýrnar við Miklubraut og Bústaðaveg, meðfram flugvellinum, yfir brúna rétt hjá Háskóla Íslands, þvert yfir Hljómskálagarðinn og Lækjargötu að Kalkofnsvegi. Þetta var hálfum kílómetri lengri leið heldur en leiðin sem ég labba venjulega og var ég tíu mínútum lengur að labba þetta. Ég var í bókhaldinu í gær og kom ekkert nálægt framleiðslu. Þegar bókhaldsverkefnum var lokið flokkaði ég kennispjöld. Fékk far heim úr vinnunni með fyrirliðanum sem var líka að skutla annarri heim.
Var mætt í sund um hálffimm. Synti reyndar ekkert en fór 6 ferðir í kalda pottinn með vinkonu minni sem fór einni ferð oftar í hann því hún var mætt og byrjuð á undan mér. Endaði á góðu gufubaði áður en ég fór upp út og heim. Var með pastarétt í kvöldmat handa okkur Oddi. Hann gekk frá og vaskaði upp eftir matinn. Hafði kveikt á RÚV þegar söngvakeppnin var en var líka að vafra á netinu, lesa og prjóna. Reyndar skipti ég yfir á DR1 þegar komu auglýsingar á RÚV og sá þá skemmtiatriði í beinni.
20.5.21
Styttist í langa helgi
Ég var mætt fyrst í vinnuna í gærmorgun. Það kom líklega aðallega til af því að fyrirliðinn, sem býr í Mosfellsbæ, pikkaði upp samstarfskonu okkar sem býr í Árbænum. Það er lokað í Hörpu og það er ekki vel séð að þeir fáu RB-ingar sem hafa starfsstöð í Seðlabankanum séu að dekka öll stæðin á neðra planinu. Annars var vinnudagurinn styttri í annan endann því það átti að slökkva á loftræstikerfinu og lagfæra það eitthvað eftir klukkan tvö. Ég var fyrst út af vinnustað um tvö en snarstoppaði rétt fyrir utan dyrnar því það hellirigndi, beint niður og ég sá fyrir mér að ég þyrfti að "synda" heima. Fimm mínútum síðar stóð ég enn á sama stað þegar ein af hinum þremur kom út. Hún býr í Garðabæ en var á leiðinni vestur á Granda. Engu að síður sá hún aumur á mér og bauðst til að skutla mér heim. Ég var fljót að þyggja það boð. Fór hvorki í sund né sjóinn í gær, var bara heima að prjóna, lesa, horfa á boltann og dútlast eitthvað.
19.5.21
Vikan hálfnuð
Labbaði af stað í vinnuna rétt fyrir sjö í gærmorgun og var mætt þangað rúmlega hálftíma síðar. Ég var í móttökunni á vélinni og tók þar af leiðandi til framleiðslu dagsins í tveimur fyrstu verkefnunum. Eftir morgunkaffi var ég frammi í pökkun og fór í talningu með þeirri sem var í bókhaldinu. Einnig vannst tími til að sortera nokkur kennispjöld. Fékk far heim úr vinnunni og var svo mætt í Laugardalslaugina um hálffimm þar sem ég hitti kalda potts vinkonu mína. Við fórum 7 ferðir í kalda pottinn, oftast í þann heitasta inn á milli en fórum líka eina langa ferð í sjópottinn. Davíð Steinn var búinn að elda þegar ég kom heim um hálfsjö. Af bólusetningastungunni er það að frétta að ég finn fyrir svæðinu ef ég kem við það og ég rumskaði stundum í nótt ef ég var að leggjast á vinstri hliðina. Annars er ég bara góð, eiginlega langbest!
18.5.21
Eymsli á stungustað
Hrökk upp við vekjaraklukkuna klukkan 6:25 í gærmorgun. Um leið og ég áttaði mig á hvað var í gangi slökkti ég á vekjaranum og dreif mig á fætur. Gaf mér tíma til að vafra aðeins um á netinu áður en ég labbaði af stað í vinnuna stuttu fyrir sjö. Tvær samstarfskonur mínar voru í fríi svo við vorum bara þrjár sem þýddi að við tvær sem tókum að okkur framleiðsluna vorum að sama vélarendanum þar til framleiðslu var lokið. Ég var að hlaða inn og setja kortaskrárnar af stað. Reyndar var vélarskömmin frekar ósamvinnuþýð og það var ekki fyrr en ég var búin að endurræsa hana þrisvar sinnum sem hún kom alveg upp og fékkst til að gera eitthvað.
Um tólf, þegar ég var í hádegispásu, fékk ég sms frá heilsuveru um að það væru til aukaskammtar af moderna-bóluefninu og ég væri velkomin í Laugardalshöll rétt fyrir tvö. Það stóð líka að ekki væri tryggt að allir sem svöruðu kallinu fengju bólusetningu og betra væri að vera mættur fyrir hálfþrjú. Af þessu tilefni ákvað fyrirliðinn, önnur hinna, að við skyldum allar hætta snemma og önnur þeirra myndi skutla mér á svæðið. Við hættum semsagt vinnu og fórum áður en klukkan varð hálftvö. Það var mikil umferð en sú sem skutlaði mér hleypti mér út við höllina ca tuttugu mínútum fyrir tvö. Það var smá röð fyrir utan en fljótlega komst hreyfing á hana, qr-kóðinn var skannaður og straumurinn lá upp á næstu hæð þar sem við fengum sæti. Það voru tuttugu sæti í hverri röð en ég veit ekki hversu margar raðirnar voru. Var stungin á slaginu 13:50 og það sveið undan stungunni. 12 mínútum síðar mátti ég fara. Labbaði heim og komst að því að vegalengdin var svipuð og sú sem ég labbaði í vinnuna um morguninn.
Vafraði aðeins um á netinu áður en ég ákvað að skreppa á bókasafnið og í fiskbúðina. Skilaði fimm bókum af sex, þar af einni sem ég var ekki að tengja við og ákvað að sleppa að lesa. Kom með sjö bækur til baka og ein af þeim er með 14 daga skilafresti. Í fiskbúðinni keypti ég ýsu í soðið og harðfisk. Ákvað að sleppa sjó- og sundferðum.
Fann aðeins fyrir öxlinni í nótt og gat ekki legið lengi á henni í einu. Nú er eins og ég hafi rekið öxlina í eða með harðsperrur í henni. Að öðru leyti er ég bara hress. Seinni sprautuna mun ég svo fá eftir 28-35 daga eða í kringum 17. júní.
17.5.21
Ellefuþúsund skref
Skutlaði N1-syninum á vinnuvakt upp í Grafarvog rétt fyrir klukkan tíu í gærmorgun og þaðan fór ég beint í sund. Hitti á kalda potts vinkonu mína og systur hennar. Systirin hitti okkur í flestum öðrum pottum öðrum en kalda pottinum. Endaði á að synda 400 metra og sleppti gufuferð. Skrapp í Krónuna við Granda áður en ég fór heim aftur. Fékk stæði fyrir utan rétt upp úr klukkan eitt en þar sem ég var með tvo poka, sundpoka og handtösku reyndi ég að hringja í Odd til að fá hann til að koma á móti mér. Hann vaknaði ekki við símann en hringdi til baka nokkru eftir að ég var komin inn og búin að ganga frá vörunum.
16.5.21
Sunnudagsmorgun í borginni
Eins og kom fram í titli færslu gærdagsins var ég óviss um hvað ég ætti að gera við daginn fyrst eftir að ég fór á fætur. Vafraði aðeins um á netinu, setti inn bloggfærslu og þá var klukkan byrjuð að ganga tíu. Það varð úr að ég tók saman sunddótið mitt og dreif mig í Laugardalinn. Þar var ég milli klukkan tíu og tólf að pottormast, synda og slaka á. Aldrei þessu vant fór ég ekki í gufu áður en ég fór upp úr. Þvoði á mér hárið og fór svo beint heim að henda handklæðum í þvottavél og hella mér upp á kaffi.
Fór ekkert meira út í gær, var bara að dunda mér við alls konar hérna heima við. Þegar Oddur Smári kom á fætur fékk ég hann í lið með mér að drífa heimilisþrifin af. Annars var ég að lesa, prjóna eða horfa á eitthvað í imbanum.
Gerði tilraun til að ná símasambandi við norsku esperanto vinkonu mína um miðjan dag. Hún hringdi til baka um sex, þá nýkomin frá á Þingvöllum. Við spjölluðum saman í hátt í klukkutíma.
15.5.21
Óráðin
Í þriðja skiptið á árinu fór ég á bílnum í vinnuna í gærmorgun. Hafði með mér sunddótið og geymdi í skottinu. Við vorum þrjár í vinnu, hinar tvær í fríi. Ég vann á móttökuendandum á vélinni og taldi og tók til kortategundirnar sem voru í daglegri framleiðslu. Framleiðslu var lokið fyrir klukkan tólf. Önnur hinna tók þá út styttingu vinnuvikunnar, kvaddi og fór. Við tvær sem eftir vorum fórum í góða matarpásu. Eftir hádegið lukum við talningu og frágangi og sorteruðum svo kennispjöld. Vinnusíminn hringdi um hálftvö. Það var einn vinnufélagi að láta vita að búið væri að stofna nýjan hraðbankalykil og það þyrfti að útbúa A-lykil með hraði. Ég tékkaði í kerfunum og prentaði út vinnuskjal sem hin sá svo um að vinna eftir, þ.e. útbúa lykilinn.
Hættum vinnu um þrjú og fór ég beinustu leið í Laugardalinn. Gaf mér góðan tíma í sundi. Fór að sjálfsögðu nokkrar ferðir í kalda pottinn, synti 400 metra, lá nokkra stund í sjópottinum og endaði á góðri gufu. Klukkan var um sex þegar ég fór upp úr og dreif mig heim.
14.5.21
Föstudagur
Klukkan var næstum orðin níu þegar ég vaknaði í gærmorgun. Dreif mig á fætur all óráðin að hverju ég ætti að stefna. Eftir morgunverkin á baðinu settist ég inn í stofu með fartölvuna og fór að leika mér og vafra um á netinu. Fljótlega hafði sjósundsvinkonan samband. Það varð úr að við hittumst þrjár úr kjarnahópnum í röðinni við aðstöðuna í Nauthólsvík stuttu fyrir ellefu. Sjórinn var 8,2°C og við vorum út í í um það bil tuttugu mínútur og hefðum vel getað verið lengur. Vorum svo annað eins eða lengur í heita pottinum áður en við fórum upp úr. Það var frekar fámennt svo það myndaðist ekki röð, komust allir að, amk á meðan við vorum þarna.
Heima hellti ég mér upp á kaffi og hélt svo áfram að prjóna eldhúshandklæðið. Byrjaði einnig á bók af safninu; Eplamaðurinn eftir Anne Mette Hancock. Horfði á Man Utd - Liverpool og fylgdist með gangi mála í Pepsídeild karla á mbl.is Valsmenn voru að spila á útivelli. Er alveg harðákveðin í að fjárfesta ekki í fótbolta/eða árskorti á völlinn þetta árið og heldur ekki kaupa mig inn á stöku heimaleiki. Hluti af þeirri ákvörðun er byggð á því að mér líkaði ekki að Valsaranir brytu sóttvarnarreglur til að halda upp á Íslandsmeistaratitilinni í fyrrahaust. En ég mun eflaust fylgjast með gangi mála í leikjum sumarsins á netmiðlum.
13.5.21
Rauður dagur
Þegar ég var alveg að koma að vinnunni minni um hálfátta í gærmorgun hjólaði ein samstarfskona mín og maður hennar framhjá veifandi. Hann semsagt "skutlaði" konunni í vinnuna eða þannig. Ákvað alla vega að fá sér hjólatúr og fylgja henni í vinnuna. Hann staldraði aðeins við á horninu við neðra planið og spjallaði áður en við samstarfkonurnar urðum samferða inn í vinnu. Ég var í bókhaldi í gær. Það er ekki komin endurnýjun enn svo við vorum allar fimm að flokka kennispjöld eftir að daglegri framleiðslu og talningu lauk. Það fór líka svo að það var flokkað úr næstum öllum 15 kössunum sem sóttir voru í fyrradag. Við fórum tvær inn í geymslu með 13 kassa og sóttum 15 í viðbót um tvö en svo var ákveðið að hætta fyrr, hafa hálfgildings föstudag.
Fékk far heim úr vinnunni og var komin heim fyrir þrjú. Var komin í sund um hálffimm og var búin að synda 400 metra og í minni þriðju ferð í kalda pottinum þegar kaldapottsvinkonan mætti á svæðið fór fjórar ferðir í þann kalda með henni og endaði svo í góðu gufubaði áður en ég fór aftur heim.
Hjartaungbarnateppið "datt" af prjónunum í gærkvöldi. Gekk frá endum og lagaði teppið á einum stað. Fitjaði svo upp á eldhúshandklæðastykki en mun líklega fitja fljótlega upp á öðru ungbarnateppi. Á nóg af garni í bæði verkefnin, í þónokkrar smátuskur/handklæði og líklega tvö ungbarnateppi.
12.5.21
Frídagur framundan
Ég var komin á fætur á svipuðum tíma í gærmorgun og á mánudagsmorguninn. Labbaði af stað í vinnuna um sjö eftir að hafa vafrað um á netinu í næstum hálftíma. Fram að kaffi var ég á framleiðsluvélinni að hlaða inn skrám og setja kortin af stað. Eftir kaffi flokkaði ég kennispjöld og einnig eftir hádegi. Við fórum tvær með 16 flokkaða kassa inn í geymslu og komum með 15 óflokkaða til baka. Áður en við hættum vinnu vorum við búnar að flokka úr næstum sjö af þessum fimmtán kössum. Fékk far heim úr vinnunni og var komin heim rétt upp úr þrjú. Oddur Smári var á leiðinni út í Sorpuferð. Rétt síðar hringdi vinkona mín sem er með sölubás á Lækjargötu og spurði hvort ég væri í vinnunni. Ég sagðist vera nýkomin heim og Oddur á bílnum. Hjólinu hennar var stolið, klippt á lásinn eiginlega fyrir framan nefið á henni og farangurinn var of mikill fyrir eina manneskju að bera heim þótt í sjálfu sér sé ekki svo langt þangað sem hún býr en það er allt upp í móti. Ég sagðist geta komið um fjögur og skutlaði henni heim með dótið. Það stóðst og var ég svo heppin að hún var búin að ganga frá dótinum og stóð rétt við rútustæði við Lækjargötu. Ég lagði í stæðið rétt á meðan hún var að setja vörurnar í skottið og koma sér inn í bílinn.
Eftir þennan björgunarleiðangur kom ég við í fiskbúð Fúsa og keypti ýsu, lax og harðfisk. Síðan dreif ég mig í sund. Sleppti því reyndar að synda en fór nokkrar ferðir í þann kalda og yfirleitt 4 mínútur í hvert sinn. Klukkan var byrjuð að ganga sjö þegar ég var að fara heim. Skrapp aðeins í Krambúðina eftir að ég var búin að leggja í stæði fyrir framan hér heima. Var með ýsu í soðið með kartöflum og hrasallati og fékk ég mér smá smjör út á réttinn.
Horfði á seinni riðil Skólahreysti dagsins og sá íslandsmet sett í hreystigreip, og það ekkert smá met. Búið að standa í 12 mínútur og 40 sekúndur í fimm ár og það var bætt um rúmar tvær mínútur.
11.5.21
Sólskin og þurrkur
Var komin á fætur upp úr klukkan sex í gærmorgun. Notaði tímann áður en ég þurfti að labba af stað í vinnuna til að vafra um á netinu og setja inn færslu í bloggheima. Var komin í vinnuna um hálfátta, mætti númer tvö af okkur öllum fimm. Fyrirliðinn var mætt á undan og við náðum í bankatösku og tókum þrjá framleiðsluvagna af fjórum út úr lagergeymslunni í leiðinni. Fórum svo fram, fylltum á vatnsflöskurnar, fengum okkur morgunmat og kaffi og sátum á kaffistofunni með samstarfsfélögunum til klukkan að byrja að ganga níu. Ég var í móttökunni á framleiðsluvélinni fram að kaffipásu. Eftir kaffi sorteraði ég kennispjöld úr tveimur kössum til hádegis og svo annað eins eftir hádegi. Fékk far heim úr vinnunni.
Rétt um fimm var ég komin í Nauthólsvík. Þurfti að bíða í röðinni eftir að komast inn í búningsaðstöðuna. Var númer fjögur í röðinni og svo var alltaf að bætast við í röðina fyrir aftan mig. Þurfta að bíða í um tuttugu mínútur. Synti svo út að kaðli þegar ég komst loksins í sjóinn. Svamlaði einnig smá stund í lóninu áður en ég fór í pottinn. Það var enn röð þegar ég fór upp úr rúmlega sex. Aðstaðan er opin til klukkan sjö.
10.5.21
Morgunstund
Var komin á fætur um átta í gærmorgun. Fór ekki í sund fyrr en klukkan var langt gengin í tíu því þá var meiri möguleiki á að hitta á kalda potts vinkonuna. Hitti samt ekki á hana þessa eina og hálfa klukkustund sem ég var að pottormast og synda smá. Hins vegar hitti ég aðeins á sjósundsvinkonu mína rétt áður en ég fór upp úr.
Skrapp vestur á Granda eftir sundið og keypti þvott fyrir bílinn. Allur fuglaskítur náðist af. Kom heim rétt fyrir tólf og byrjaði á því að hella upp á könnuna. Synir mínir komu fram úr sínum herbergjum um eitt. Veiðisonurinn var ekki viss hvort hann væri að skreppa í annan veiðitúr, hafði komið seint heim kvöldinu áður. Einkabílstjórinn kom hins vegar með mér austur á Hellu og fékk að keyra.
Vorum komin til pabba um hálfþrjú. Ég var með prjónana með. Pabbi bauð upp á vöfflur með kaffinu og sagði svo að það væri til bleikja ef við vildum vera líka í kvöldmat. Ég tók út þrjú flök sem ég matreiddi svo upp úr klukkan sex. Með þessu var boðið upp á hrásallat og kalda rófustöppu og þar sem ég var með einkabílstjóra fékk ég mér hvítvínsglas með matnum. Horfði á fréttir og Landann áður en haldið var aftur heim á leið.
9.5.21
Sunnudagsmorgunn
Kom mér á fætur áður en klukkan varð átta í gærmorgun. Fyrsta klukkkutímann var ég að vafra um á netinu. Svo hellti ég mér upp á kaffi og borðaði afgang af hafragraut, kaldan. Las þar til klukkan var að verða hálfellefu. Þá tók ég sjósundsdótið til og dreif mig af stað í röðina í Nauthólsvík. Hitti hinar fimm úr kjarnanum úr sjósundshópnum mínum og komumst við allar inn í fyrsta hollinu. Syntum út að kaðli og komum aðeins við í lóninu á leiðinni í pottinn. Flatmöguðum í pottinum á næstum hálftíma. Svo lá leiðin heim til sjósundsvinkonu minnar sem bauð okkur öllum í hádegissnarl. Þar vorum við í góðu yfirlæti í rétt rúma tvo tíma.
Ætlaði að skreppa með bílinn á þvottastöðina við Granda en þá var búið að loka þar vegna viðhalds. Fór í Krónuna í staðinn. Reyndar var alltaf ætlunin að skreppa að versla. Þegar heim kom varð ég að leggja í Blönduhlíð þar sem það voru smá framkvæmdir hjá Veitum fyrir utan hjá mér og ekki hægt að leggja. Hringdi í Odd og hann kom og sótti vörurnar og gekk frá þeim er við komum inn.
Lauk við að lesa skammtímalánsbókina. Las líka alla ljóðabókina Spegilsjónir eftir Guðrúnu Hannesdóttur. Byrjaði á skáldsögunni Hilduleikur eftir Hlín Agnarsdóttur. Þá bók fann ég í almennri hillu en það var líka eintak af henni í skammtímalánshillunni.
8.5.21
Sjósundsdagur
Vaknaði á undan vekjaranum í gærmorgun. Hafði því fleiri mínútur til að vafra aðeins um á netinu áður en ég labbaði af stað í vinnuna um sjö. Ég var á framleiðsluvélinni, móttökuendanum og einnig að telja og taka til þær tegundir sem voru í framleiðslu. Daglegri framleiðslu lauk rétt upp úr klukkan hálftólf og þar sem ekki er alveg komið að endurnýjun ennþá var ég að flokka kennispjöld eftir hádegi alveg til klukkan þrjú. Gaman líka að segja frá því að það er loksins verið að rífa niður gömlu framleiðsluvélina sem var hætt að framleiða á nokkrum vikum fyrir síðustu áramót.
Davíð Steinn er á leið í veiðiferð með félaga sínum. Þeir ætluðu að leggja af stað seinni partinn í gær en frestuðu för þar til í dag. Ætla að vera eina nótt í burtu.
Fékk far heim úr vinnunni og fór ekkert aftur út. Ein af bókunum úr síðust safnferð er með 14 daga skilafresti og ég er byrjuð að lesa hana; Snerting eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Bjó til eggjaköku úr fiskafgangi í kvöldmatinn og notaði sex egg, rjómaslettu og rifinn ost í blöndua.
7.5.21
Föstudagur
Vekjaraklukkan ýtti við mér rétt fyrir klukkan hálfsjö í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðinu og eina matskeið af lýsi kveikti ég á fartölvunni og vafraði um á netinu í um það bil tuttugu mínútur. Þá var akkúrat passlegt að ganga af stað í vinnuna. Ég var á framleiðsluvélinni, endanum þar sem maður hleður inn verkefnum dagsins og setur kortin af stað. Frá hálftvö til rúmlega þrjú var ég að sortera kennispjöld. Við fórum tvær með nokkra sorteraða kassa merkta bönkum aftur inn í kennispjaldageymslu og sóttum 15 kassa í staðinn.
Fékk far heim úr vinnunni. Sá þá að ég hafði fengið fyrirspurn frá kaldapotts vinkonu minni um hvort ég kæmi í sund. Þegar ég mætti í kalda pottinn upp úr hálffimm kom hún skömmu síðar í sína þriðju ferð. Hún fór fimm ferðir í kalda pottinn með mér. Hittum einnig á systur hennar í heitasta og 42°C pottinum en hún fer aldrei í kalda pottinn. Nennti ekki að synda en sat góða stund í gufunni eftir síðustu kalda potts ferðina.
6.5.21
Þriðji vinnudagurinn í vikunni af fjórum
Rumskaði fyrir sjö en tókst að sofna aftur og svaf þá til hálfníu. Um tíu bjó ég mér til hafragraut og svo var ég mætt með sjósundsdótið í Nauthólsvík um það leyti sem aðstaðan opnaði um ellefu. Hitti sjósundsvinkonu mína og aðra systurina úr kjarnahópnum. Fljótlega eftir að við vorum komnar út í sjó var aðstaðan orðin full í bili og forsetinn þurfti frá að hverfa þegar hann mætti á svæðið um hálftólf.
Eftir sjósundið skrapp ég á Atlantsolíustöðina við Sprengisand og fyllti á tankinn og áður en ég fór heim kom ég við á Borgarbókasafninu í Kringlunni, skilaði inn fjórum bókum og tók sjö bækur í staðinn. Tvær af þeim eru ljóðabækur og kláraði ég aðra þeirra í gær; Ljóð muna rödd eftir Sigurð Pálsson.
5.5.21
Á leið í sjóinn
Í gær sinnti ég bókhaldinu í vinnunni. Þess á milli og alveg til þrjú flokkaði ég líklega á fjórða þúsund kennispjöld frá því um mitt ár 1994. Hinar tvær sinntu framleiðslu og töldu með mér en þegar daglegum verkum var lokið fóru þær í reikningagerðina, önnur til að læra og hina að leiðbeina. Önnur af þeim þurfti reyndar að skreppa frá á ellefta tímanum í gær til að fá sína seinni sprautu. Það tók aðeins lengri tíma en áætlað var því röðin var löng. Fyrirliðinn okkar þurfti því að fá lánaðan einn af "strákunum" frammi, sem reyndar hefur hoppað inn áður, til að aðstoða við hádegisframleiðsluna. Allt gekk það vel fyrir sig.
Fékk far heim úr vinnunni og stoppaði heima við í hátt í klukkustund áður en ég dreif mig í sund. Nennti ekki að synda þegar til kom, alltof mikil umferð á brautunum. En ég kældi mig vel og hitaði inn á milli og endaði í góðu gufubaði. Skrapp aðeins í Krambúðina eftir að ég var búin að leggja í hornstæðið fyrir utan heima. Áttum til afganga svo ég þurfti ekki að hugsa um að matbúa eitthvað. Annar sonurinn fór reyndar að hitta vin til að borða með honum og skipuleggja veiðiferðir sumarsins.
4.5.21
Gott gönguveður
Vaknaði á undan vekjaraklukkunni í gærmorgun, slökkti á henni og dreif mig á fætur. Hafði tíma til að vafra aðeins um á netinu á fartölvunni. Labbaði af stað í vinnu um sjö. Gátum ekki byrjað að framleiða strax því skrárnar höfðu ekki skilað sér yfir og við þurftum að fá aðstoð við að koma þeim yfir. Klukkan var byrjuð að ganga tíu þegar framleiðslan komst af stað. Ég var í móttökunni. Skammturinn sem á að vera tilbúinn klukkan tíu var tilbúinn á slaginu þá. Hins vegar var securitas maðurinn búin að koma við hálftíma fyrr til að athuga með töskuna. Oftast gengur það upp en hann veit þó að við höfum tímann til klukkan tíu til að skila af okkur. Urðum að geyma hluta af debet framleiðslunni þar til eftir hádegi en daglegri framleiðslu og frágangi var lokið um hálftvö. Þá fóru hinar tvær í mánaðamóta-reikningagerða-vinnu, önnur til að læra af hinni. Ég flokkaði kennispjöld.
Fékk far heim úr vinnunni upp úr hálffjögur. Rúmum klukkutíma seinna tók ég sjósundsdótið til. Kom við í fiskbúð Fúsa og fór beint þaðan í Nauthólsvík. Ég var komin ofan í sjóinn um fimm. Sjósundshópurinn minn kom, næstum allur, rúmlega tíu mínútum síðar. Ég var enn að busla þá en fór þó í pottinn aðeins á undan þeim.
Var búin að hátta mig upp í rúm rétt fyrir hálftíu í gærkvöldi. Braut heilann yfir sudoku í korter og las svo í hálftíma áður en ég fór að sofa.
3.5.21
Ný vinnuvika
Ég var komin á fætur fyrir klukkan átta í gærmorgun. Rétt upp úr hálftíu bankaði ég á herbergisdyrnar hjá N1 syninum og spurði hvort hann ætti ekki að mæta í vinnu fljótlega. Hann hafði þá víst slökkt á vekjaranum án þess að fatta það svo það var eins gott að ég ýtti við honum. Skutlaði honum á vinnustaðinn og var hann mættur fimm mínútum fyrir tíu. Fór beint í sund eftir skutlið. Nokkrar ferðir í kalda pottinn, synti 300 metra, endaði á góðri gufuferð og þvoði á mér hárið áður en ég fór heim aftur. Restin af deginum fór alls konar dútl.
2.5.21
Sunnudagur
Fór á fætur um sjö í gærmorgun. Var komin fram á undan N1 syninum. Bauðst til að skutla honum í vinnuna en hann var með far svo ég gat sest niður með prjónana mína þar sem ég var búin að slökkva á fartölvunni. Rétt upp úr hálfellefu var ég komin í röðina við aðstöðuna í Nauthólsvík. Ég var númer tíu í röðinni og því örugg inn. Þrjár úr sjósundskjarnavinahópnum mínum komu í röðina tíu mínútum á eftir mér og þá var röðin orðin miklu lengri. Þær sluppu nú samt inn með fyrsta hollinu. Það var háflóð, sjórinn 6,3°C og dásamlegt að svamla um í korter. Vorum reyndar ekki allar jafn lengi en hittumst svo aftur í heita pottinum. Þær sem voru á undan upp úr sjónum fóru fyrr upp úr, höfðu ekki geð í sér að vera of lengi því það var fólk að bíða í röð eftir að komast að. Ég kom heim um tólf. Setti handklæði í þvottavél og settist svo niður með prjónana mína á meðan ég hlustaði á hádegisfréttirnar. Klukkan var byrjuð að ganga tvö áður en ég hellti mér upp á fyrsta kaffibolla dagsins.
1.5.21
Fyrsti maí
Eins og oftast áður var ég vöknuð, búin að slökkva á vekjaraklukkunni og komin á fætur áður en innstilltur tími var runninn upp. Hafði tíma til að vafra aðeins um á netinu. Hitti aðeins á N1 soninn en hann fór út ca korteri á undan mér. Labbaði af stað í vinnuna um sjö. Hlutverk mitt á vinnustað var að sinna bókhaldinu og þar sem það var föstudagur og þar að auki mánaðamót voru ýtarlegri talningar. Undirbjó lagertölur og eftir daglega framleiðslu voru allar kortategundir á vögnum taldar hvort sem þær voru í framleiðslu eða ekki. Hættum vinnu í fyrra fallinu en þá átti aðeins eftir að telja rekstrarvörur, form og umslög á lager. Það mun gefast tími til þess eftir helgi.
Fékk far heim úr vinnunni og var komin um þrjú. Hélt mig heima við þar sem eftir lifði dags og kvölds. Er búin að lesa þriðju skammtímaláns bókina af safninu Illverk eftir Ingibjörgu Katrínu Kristjánsdóttur. Hennar fyrsta skáldsaga. Þá er aðeins eftir ein ólesin bók af safninu Hótel Aníta Ekberg eftir Helgu Sv. Helgadóttur. Líklega verð ég búin að lesa hana löngu áður en skilafresturinn á skammtímaláns bókunum rennur út 10. maí.