1.2.21

Nýr mánuður

Það er mánudagur, en eiginlega ekki hjá mér þannig séð því ég er ekki að vinna í dag. Næstu sex virku daga, frá og með morgundeginum, má ég mæta á vinnustað.

Í gærmorgun var klukkan langt gengin í níu áður en ég fór á fætur. Um hálftíu fór ég út með sunddótið mitt og þurfti að byrja á því að skafa af bílnum sem enn var fyrir aftan heilsugæsluna síðan við Oddur komum heim á föstudagskvöldið. Var komin fyrstu ferðina ofan í kalda pottinn í Laugardalnum um tíu. Ætlaði að vera 2-3 mínútur en þegar þau tímamörk voru að nálgast kom náungi ofan í pottinn sem fór að spjalla sem varð til þess að ég kældi mig í rúmlega sex mínútur áður en ég fór að synda. Eftir tuttugu mínútur og 500m fór ég aftur í kalda pottinn. Þremur mínútum seinna fór ég í heitasta pottinn og stuttu síðar hitti ég konu sem stjórnaði barnakór Hallgrímskirkju þegar strákarnir mínir voru báðir í kór. Við spjölluðum í dágóða stund og urðum svo samferða í gufuna þar sem við héldum áfram að spjalla.

Kom heim aftur um hálftólf. Lagði bílnum í Blönduhlíð. Borðaði afganginn af hafragrautnum frá í fyrradag kaldan og bjó mér til tvo bolla af kaffi. Mikið af deginum fór svo í lestur, prjónaskap, íþróttaáhorf sem og þáttagláp. Lánaði strákunum bílinn um miðjan dag og fram á kvöld til að skreppa í heimsókn til pabba síns og fjölskyldu hans.

Pabbi lánaði mér bækurnar; Hella þorp í þjóðbraut eftir Ingibjörgu Ólafsdóttur. Þær komu út í fyrra og er almenn ánægja með þær. Pabbi er búinn að lesa þær tvisvar. Ég er að fara að byrja að lesa þær núna á eftir en er líka með bókasafns og jólabækur á kantinum. Alltaf hægt að finna sér eitthvað til að lesa og gera.

31.1.21

Síðasti janúardagur nýja ársins

Ég var komin á fætur um átt í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðinu fékk ég mér matskeið af þorskalýsi og vatnsglas. Lét það nægja fyrst um sinn og settist inn í stofu og tók fartölvuna í fangið. Var búin að slökkva aftur á tölvunni áður en klukkan varð tíu. Þá bjó ég mér til hafragraut. Korter fyrir ellefu sótti sjósundsvinkona mín mig en þrátt fyrir að vera mætta í Nauthólsvík á slaginu ellefu þurftum við að bíða í smástund áður en okkur var hleypt inn í klefa. Ástæðan er sú að þannig er auðveldara fyrir starfsfólkið að passa upp á að ekki fleiri en 30 séu í heita pottinum í einu. Eftir ca sjö mínútna bið var þremur hleypt inn svo við komumst inn í því holli verandi númer eitt og tvö í röðinni. Sjórinn var -1,7°C og mér skilst á vinkonunni að við hefðum verið þrjár mínútur út í áður en við röltum yfir í víkina. Þar vorum við örugglega hátt í tíu mínútur áður en við fórum í heita pottinn.

Var komin heim rétt fyrir hálfeitt og fór ekkert út aftur. Kláraði bókina um Betu Reynis, kveikti aftur á tölvunni og var alltaf á leiðinni að grípa í prjónana. Ekkert varð úr prjónaskap en ég las meira, kveikti á sjónvarpinu, horfði á part úr leik í enska boltanum og eitt og annað. 

30.1.21

Skrepp á Hellu í gær

Ég rumskaði upp úr klukkan sex í gærmorgun, slökkti á vekjaraklukkunni sem ég hafði stillt á að vekja mig 6:25 og kúrði áfram til klukkan sjö. Var komin í Laugardalinn rétt rúmlega hálfátta. Byrjaði á einni ferð í kalda pottinum áður en ég synti 400 metra. Fór tvær aðrar ferðir í kalda pottinn, eina í 42°, eina í 44° og eina í "sjópottinn". Endaði á smá gufubaði og útibekkjarsetu áður en ég fór upp úr og heim. Í þessari sundferð hitti ég nokkra af morgunfólkinu mínu. Ein að þeim sem ég hitti talaði samt um að það vantaði marga. Ég veit til þess að einhverjir hafa ekki mætt í sund síðan rétt fyrir fyrir fyrstu lokun þegar staðreynd var að veiran væri búin að banka upp á. Það er mjög skiljanlegt að fólk vilji passa sig og svo eiga sumir örugglega erfitt með að byrja rútínuna á ný, kannski komnir í allt aðra rútínu.

Þegar heim kom settist ég smá stund inn í stofu, fyrst að lesa og svo að vafra aðeins um á netinu áður en ég setti inn smá færslu á þessum vettvangi. Að skrifum loknum slökkti ég á tölvunni, hellti mér upp á kaffi og fékk mér eitthvað í svanginn. Stuttu seinna kom N1 sonurinn fram. Hann átti að vera á frívakt en það var hringt í hann og hann spurður hvort hann gæti hlaupið í skarðið hjá N1 í Mosfellsbæ. Hann samþykkti það, skellti sér í sturtu og var svo rokinn.

Oddur Smári kom fram um hálfeitt. Klukkutíma síðar lögðum við mæðgin af stað og ókum sem leið lá austur yfir fjall og alla leið á Hellu til að gera óvænt innlit. Pabbi átti alls ekki von á okkur en tók okkur opnum örmum. Settumst fyrst inn í stofu fyrsta klukkutímann. Svo hafði hann til handa okkur kaffi og bauð okkur upp á vöfflur með. Hann er farinn að skella í vöfflur og pönnsur annan hvern mánudag þegar rúmensku hjónin sem þrífa hjá honum koma. Eftir kaffi spurði pabbi hvort við ætluðum að vera í kvöldmat, sagðist eiga stórt flak af laxi í frysti. Við vorum ekkert að flýta okkur svo ég tók laxinn út. Matreiddi úr honum á sjöunda tímanum og við pabbi fengum okkur hvítvínsglas með matnum þar sem ég var með einkabílstjóra með í för. Horfðum á kvöldfréttir eftir matinn og var klukkan að byrja að ganga níu þegar við kvöddum, þökkuðum fyrir okkur og héldum heim á leið. Urðum að leggja bílnum fyrir aftan heilsugæsluna. Davíð Steinn var komin heim af aukavaktinni en ég hitti ekkert á hann þrátt fyrir að fara ekki í háttinn fyrr en upp úr ellefu því hann var á kafi í tölvuleik.

29.1.21

Morgunsund

Það tók mig ákveðinn tíma að koma mér í gang í gær. Var þó komin á fætur um átta og morguninn fór að mestu í lestur og netvafr. Um hálftvö dreif ég mig loks af stað, fyrst með bílinn í gegnum þvottastöð og svo að versla. Kom heim með vörurnar  um þrjú. Oddur Smári tók að sér að ganga frá en ég fór beint út aftur og nú í sund. Var búin að synda 500 metra og var á minni þriðju ferð í kalda pottinum þegar kalda potts vinkona mín mætti. Fór fjórar ferðir með henni í kalda en endaði svo á góðu gufubaði. Kom heim um sex. Las í smá stund áður en ég hafði mig í að útbúa plokkfisk úr fiskafgangi síðan fyrr í vikunni. 

28.1.21

Fullt tungl

Eftir að hafa setið við tölvuna í hátt í tvo tíma í gærmorgun slökkti ég aftur á henni og bjó til hafragraut og kaffi. Ljóst var að engin úr sjósundshópnum mínum kæmist í sjóinn en ég var ákveðin í að drífa mig um hádegið. Byrjaði þó á því að fara með lóðaleigusamninginn í þinglýsingu til sýslumanns. Það gekk ágætlega. Greiddi 2500kr. fyrir og fékk að vita að ég gæti sótt skjalið eftir hálfan mánuð gegn greiðslukvittuninni sem ég fékk í hendurnar. Man að ég skrifaði undir þrjú plögg á sínum tíma en Reykjavíkurborg hélt einu eftir hjá sér en ég fór með frumrit og afrit í þinglýsingu og annað þeirra skjala verða eftir hjá sýslumanni en hitt má ég semsagt sækja eftir tvær vikur og geyma.

Var komin í Nauthólsvík rétt rúmlega tólf. Það var háfjara, einhver ferð á logninu, lofthiti 0 en hiti sjávar var mældur -1,6°C. Fannst sem fyrr á fjörutímum ég þurfa að vaða hálfa leið til Kópavogs áður en ég gat dýft mér smástund í sjóinn. Var ekki með tímavörð með mér en held að ég hafi náð að vera í kringum mínútu. Sjórinn beit í læri og upphandleggi en ekkert svo að mér liði illa eða væri kalt. Rölti næst yfir í lónið sem var nokkrum gráðum hlýrra enda svamlaði ég þar um í nokkrar mínútur. Var svo uþb korter í heita pottinum.

Eftir sjósundsferðin skrapp ég á bókasafnið í Kringlunni og skilaði bókunum fjórum. Fann sex aðrar í staðinn en varð að byrja á því að endurnýja safnskírteinið áður en ég gat fengið þær að láni. Árgjaldið, kr. 2500 greiddi ég með glöðu geði. Síðan fór ég beint heim, ákvað að geyma frekari útréttingar í bili. Las einn kafla í þroskasögu Betu Reynis en svo fór mikill hluti af afganginum af deginum í að ljúka við að hámhorfa á söguna um Mörtu krónprinsessu. Það var ekki fyrr en ég fór í háttinn um hálfellefu að ég tók bókasafnsbækurnar upp úr pokanum. Ein af bókunum var þunn ljóðabók: Óstöðvandi skilaboð eftir Ásdísi Óladóttur. Las hana upp til agna og á örugglega eftir að lesa sumt aftur og aftur á meðan hún verður á náttborðinu næsta mánuðinn. Byrjaði einnig á bók eftir Lizu Marklund frá því 2007, ARFUR NÓBELS

27.1.21

Er að "teikna" upp daginn

Sjötta virka daginn í röð labbaði ég í vinnuna í gærmorgun, vel klædd og með höfuðljósið. Ég var í bókhaldi og hin tvö sáu um framleiðsluna. Framleiðslu lauk um hádegisbil því við vorum búin með öll aukaverkefni í bili. Aukamaðurinn yfirgaf því svæðið og eftirlét okkur hinum tveimur af fimm fastráðnum starfsmönnum frágangsmál. Tókum okkur langan hádegistíma. Samstarfskona mín skrapp út að borða með manninum sínum. Ég var svo heppin að aðeins þrír voru mættir í mat af fjórum svo ég fékk að borða fjórða skammtinn sem sendur var frá eldhúsi seðlabankans.

Klukkan að verða hálfþrjú ákváðum við að segja vinnudegi lokið og ég fékk far heim. Klukkutíma síðar var ég mætt í Laugardalinn og var búin að synda og fara eina ferð í kalda pottinn þegar kalda potts vinkona mín mætti á svæðið. Ég fór fimm aðrar ferðir í þann kalda en endaði svo á góðu gufubaði áður en ég fór upp úr og heim.

Er búin að lesa allar bækurnar af safninu. Þarf ekki að skila þeim fyrr en í febrúarbyrjun en mér þykir líklegt að ég geri mér ferð á safnið mjög fljótlega. Er annars hálfnuð með bókina um Betu Reynis, Svo týnist hjartaslóð, sem Valgeir Skagfjörð skrifar. Svo á ég eftir að lesa tvær jólabækur enn, en það er alltaf pláss fyrir bók/bækur í kringum mig.

26.1.21

Seinni vinnudagurinn

Í gærmorgun var ég vöknuð hálftíma áður en vekjarinn átti að hringja. Slökkti á klukkunni ca tuttugu mínútum áður en hún átti að hringja. Rétt fyrir sjö labbaði ég af stað í vinnuna í nýju úlpunni, gönguskóm og með höfuðljósið. Ég var mætt til vinnu rétt rúmlega hálfátta smástund á undan hinum tveimur. Samtarfskona mín sá um bókhald í gær, aukamaðurinn var númer 1 á framleiðsluvélinni og ég númer 2 að taka á móti og skoða. Kláruðum allt daglegt fyrir tólf og þrjár endurnýjanir frá hádegi til þrjú. Tvær af þessum endurnýjunum voru langt komnar. Fékk far heim úr vinnunni. Sjósundshópurinn minn komst ekki í sjóinn í gær en ég lét það ekki stöðva mig. Byrjaði reyndar á því að skreppa í Fiskbúð Fúsa upp úr hálffimm að kaupa roðlausa og beinlausa ýsu, óbarinn harðfisk (líka ýsu) og 1 kg af rauðum kartöflum. Úr fiskbúðinni fór ég beint í Nauthólsvík. Geymdi vörurnar í skottinu á meðan ég skrapp í -0,7°C kaldan sjóinn ca tvær mínútur. Það var flóð en samt var hitastigið á lóninu örugglega nokkrum gráðum yfir núllinu. Eftir 5 mínútna svaml í lóninu slakaði ég á í heita pottinum í uþb 15 mínútur. Var komin heim áður en klukkan varð sex. 

25.1.21

Stutt vinnuvika framundan

Ég var komin á fætur um átta í gærmorgun. N1-sonurinn fór í sturtu klukkutíma síðar og upp úr klukkan hálftíu var planið að skutla honum í vinnuna og fara svo beint í sund. Þegar við komum út í bíl gat ég ómögulega fengið öryggisbeltið til að festast í slíðrinu. Við nánari skoðun hafði farið bútur af eldhúsrúllupappír vel ofan í raufina. Við vorum ekki með neitt handbært til að reyna að ná snifsinu svo ég stalst til að keyra með soninn í vinnuna upp á Gagnveg. Bað hann um að halda við beltið þannig að það liti út fyrir að ég væri spennt. Hann fann svo verkfæri í vinnunni sem komst ofan í raufina og náði pappírnum upp úr.

Var mætt í Laugardalslaugina rúmlega tíu. Synti í tuttugu mínútur. Kaldi potturinn var lokaður svo ég fór á milli sumra hinna heitari potta og kældi mig inn á milli með því að setjast á bekk í nokkrar mínútur. Þvoði á mér hárið þegar ég fór upp úr og var komin heim um tólf leytið. 

24.1.21

Á leiðinni í sund eftir N1-vinnuskutl

Dreif mig á fætur á níunda tímanum í gærmorgun. N1-sonurinn var nýlega farinn í vinnuna. Eftir morgunverkin á baðinu fékk ég mér matskeið af þorskalýsi en settist svo inn í stofu og kveikti á fartölvunni. Sjósundsvinkonan var búin að hafa samband og það var fastákveðið að hún myndi taka mig með. Nafna hennar staðfesti mætingu líka. Um tíu leytið slökkti ég á tölvunni. Fékk mér hafragraut. Var svo akkúrat tilbúin þegar ég var sótt. Vorum mættar í Nauthólsvík fyrir klukkan ellefu og það var komin smá röð fyrir framan. Einhverjir voru búnir að skella sér í sjóinn, höfðu bara verið í sundfatnaði innan klæða. Við þrjár sem mættum úr okkar hóp komust inn í fyrsta hollinu. Það er ennþá 10 manna hámark í skiptiklefunum. Sjórinn var sagður -0,5°C en það var ekki svona ískrap í honum eins og um daginn. Það var fjara en byrjað að flæða aðeins að aftur. Vorum uþb 6 mínútur í sjónum og það var ekkert mál. Fórum svo aðeins í lónið og það var nokkrum gráðum hlýrra því fjaran var enn það mikil að lónið var stúkað af frá sjónum.

Kom heim upp úr klukkan tólf og byrjaði á því að hella upp á könnuna. Hinn sonurinn var kominn á fætur og byrjaði fljótlega að undirbúa heimilisverk. Hann sá um að rykskuga svo ég tók að mér að skúra.

Fór ekkert út aftur en fjórum sinnum niður í þvottahús. Hellti mér aftur upp á kaffi um hálffjögur. Hringdi í systur mína, fann fyrir því að hún hafði verið að hugsa til mín. Ég hafði reyndar líka verið að hugsa til hennar. Það á að setja Vallartúnið á sölu fljótlega en þau þurfa ekki að afhenda það fyrr en 1. júní. En þau eru að undirbúa sölusýningu og myndatöku. Þetta þýðir líklega að þau verði flutt í póstnúmer 641 einhvern tímann í maí. Á sínum tíma þegar þau mágur minn keyptu sínar fyrstu fasteignir með nokkura ára millibili var systir mín oft að reyna að fá mig til að flytja í hverfið nær þeim, 101 Reykjavík. Hlíðarnar og Norðurmýrin, 105 Reykjavík, eru nú alls ekki svo langt frá 101. Ég er enn í 105 á meðan systir mín og fjölskylda eru búin að prófa 112 og 600. Reyndar bjó ég í 112 1991-95.


23.1.21

Á leiðinni í sjóinn

Fjórða daginn í röð labbaði ég í vinnuna með höfuðljósið. Annan daginn í vinnuvikunni sinnti ég bókhaldinu. Fannst í smá stund sem það væri ekki kominn föstudagur enda var ég ekki í vinnunni á mánudaginn. Vinnudagurinn gekk vel og við stöllur ákváðum að þar sem það væri búið að ganga fremur vel í vikunni að við ættum skilið að hætta í fyrra fallinu. Það var framleitt til klukkan tvö en svo gengið frá og sameiginlegir snertifletir sótthreinsaðir. Ég fékk far heim úr vinnunni og var komin heim fyrir þrjú. Var ekki nógu ákveðin að drífa mig í sund, fór ekkert aftur út og greip ekki heldur neitt í prjónana mína. Reyndar var ég með tuskuprjón með mér í vinnunni og prjónaði aðeins í morgunkaffinu. 

22.1.21

Bóndadagur

Notaði ekki mannbroddana á göngunni í vinnuna í gærmorgun. Þeir voru þó með í för en leiðin sem ég labba er að mestu laus við hálku. Sjósundsvinkona mín gaf mér höfuðljós í jólagjöf sem þolir að fara á eitthvað dýpi. Hef notað það tvisvar sinnum í Nauthólsvík en fann svo enn frekari not fyrir ljósið á göngunni í vinnuna upp úr sjö á morgnana. Datt þetta í hug á göngunni í vinnuna seinni vinnudaginn í síðustu viku. Mundi svo eftir þessari hugdettu áður en ég labbaði af stað á þriðjudagsmorguninn var og hef notað það á göngunni í vinnuna alla fjóra vinnudagana.

Vinnudagur gærdagsins leið mjög hratt. Þar sem við tókum ekki kaffipásu eftir hádegi og erum mættar í hús korter fyrir átta hættum við fyrir klukkan hálffjögur. Ég fékk far heim með samstarfskonunni sem mætti til vinnu í gær (og var áður í vinnuhóp með mér). Settist aðeins niður í stofunni, kveikti á fartölvu og vafraði um í netheimum. Um fjögur hringdi ég í pabba. Hann hafði komið í bæjarferð í gærmorgun, var í rannsókn á spítalanum. Hann á að mæta aftur í byrjun febrúar og hitta þá á lækninn en það lítur út fyrir að ekki verði hægt að laga það sem hrjáir hann en það er alltaf smá von á að þetta lagist eitthvað með lyfjainntöku.

Mætti í Laugardalslaugina rétt upp úr hálffimm og fór beint í kalda pottinn. Þar hafði ég setið í rúmar þrjár mínútur þegar kalda potts vinkona mín kom úr heitasta pottinum í sína þriðju kalda potts ferð. Ég sat með henni í þrjár mínútur. Við fórum fjórar aðrar ferðir í þann kalda og alltaf þann heitasta á milli en eftir síðustu ferðina fór ég í gufubað í uþb 10 mínútur. Kokkaði einslags útgáfu af kjöt í karrý þegar ég kom heim.

21.1.21

Líður á mánuðinn

Setti mannbroddana aftur undir gönguskóna áður en ég labbaði af stað í vinnuna í gærmorgun. Gönguferðin gekk mjög vel en Samsung-health forritið í símanum var greinilega í verkfalli því þegar ég ætlaði að athuga hversu lengi ég var að labba, en forritið á að gera það sjálfkrafa, þá var ekki einu seinni búið að skrá á mig eitt einasta skref. Veit þó að skrefin í vinnuna, þá leiðina sem ég geng vanalega, eru rúmlega þrjú þúsund.

Í gær var ég á vélinni að hlaða inn verkefnum og senda þau af stað. Aukamaðurinn var í móttökunni og Silla í bókhaldi. Þurftum að senda aftur aðra endurnýjunina og hlaða inn en sem betur fer vorum við ekkert byrjuð á þeirri endurnýjun. Hefðum klárað þá endurnýjun sem við vorum að vinna í frá því á þriðjudag í gær en það stóðu aðeins um 67 kort útaf sem við gátum ekki framleitt.

Fékk aftur far heim úr vinnunni og svo var ég sótt rétt fyrir fimm til að skreppa í sjóinn. Mættum fjórar og fórum nokkrar mínútur í 0,2°C sjóinn. Davíð Steinn var að byrja að sinna kvöldmatargerð þegar ég kom heim aftur, mjög kryddaðan hakkrétt (hann missti sig aðeins í chillíinu).

20.1.21

Mannbroddar

Setti "naglana" undir gönguskóna áður en ég labbaði í vinnuna í gærmorgun. Var mætt fyrst en hin tvö sem hafa verið í hinum hópnum komu fljótlega. Ég fékk að vinna í bókhaldinu í fyrsta skipti á nýju árin en þetta var nú líka bara þriðji vinnudagurinn minn á árinu. Tvær endurnýjanir voru komnar og þeim hlaðið inn á vél. Þau sem voru á vélarvaktinni voru mjög iðin. Ég kom inn rétt fyrir þrjú og spurði hvort þetta væri ekki komið gott í dag, við þyrftum líka smá tíma til að ganga frá og svo er nægur tími. Þau samþykktu þessa tillögu mína. Samstarfskona mín var að fá gefins stóran bolta sem hægt er að nota til að gera æfingar á eða jafnvel sem stól. Ég bauðst til að halda á boltanum yfir í bílastæðahús Hörpu ef ég fengi far heim. Það var samþykkt. Við vorum alveg að vera komnar að tröppunum að kjallaranum þegar mér fannst húfan vera að fjúka af mér við það missti ég takið á boltanum og hann fauk af stað, þurftum að elta hann smá spöl en sem betur fer fór hann ekki út á götu en hann var vel blautur þegar ég náði honum aftur.

Var komin heim rétt upp úr hálffjögur. Hringdi í pabba, skrapp svo aðeins í netheima en var mætt í Laugardalslaugina rétt fyrir fimm. Eftir sundið kom ég við í Krónunni við Nóatún, eitt og annað sem vantaði sem passaði í tvo margnota poka. Oddur Smári gekk frá vörunum þegar ég kom heim aftur.

19.1.21

Þriðji vinnudagurinn á árinu í dag

Við Lilja kvöddum gestgjafa okkar rétt rúmlega eitt í gær eftir að hafa þegið smá hádegishressingu áður. Þurfti að skafa af bílnum áður en við lögðum í hann. Heimferðin gekk alveg ágætlega fyrir utan að stuttu áður en við komum að Hvalfjarðargöngunum var tekið fram úr okkur. Hefði verið allt í lagi nema bílstjórinn var ekkert að keyra mikið hraðar heldur en við, mjög ójafn hraði og þar að auki stundum að keyra á miðjum veginum. Óþægilegt að hafa svona bílstjóra fyrir framan sig og fúlt að geta ekki notað krús-kontrólinn. Aðstæður voru þannig að ekki var hægt að taka framúr aftur enda leyfði aksturslag bílstjórans það ekki, hann hægði á þegar umferð var á móti en gaf annars í og fór þá upp í næstum því 90.

Skilaði Lilju heim til sín stuttu fyrir klukkan þrjú og fór beint heim. Fékk stæði fyrir framan svo ég þurfti ekki að bera farangurinn langa leið. N1 sonurinn var í vinnu en hinn var heima en hann hélt sig í herberginu sínu að mestu. Ég byrjaði á því að kveikja á tölvunni þegar ég var búin að ganga frá ferðadótinu og sat við hana í rúmlega klukkustund. Rétt fyrir fimm skrapp ég í sjóinn í Nauthólsvík. Var komin heim aftur um sex. Oddur Smári var búinn að fá sér núðlur þannig að ég harðsauð egg og fékk mér eitthvað snarl. Horfði í landsleikinn og var, líkt og landsliðsþjálfarinn, ánægð með að strákarnir okkur slösuðust ekki og létu fantana í hinu liðinu ekki slá sig út af laginu. Góður sigur, meira svona!

18.1.21

Komin heim eftir frábæra daga í góðum félagsskap

Rétt upp úr eitt á föstudaginn var ég búin að pakka niður og komin af stað til að sækja Lilju vinkonu. Saman brunuðum við út úr bænum, undir Hvalfjörðinn, framhjá Borgarnesi og vorum í áttina að Stykkishólmi. Þegar við komum að hliðinu við Selborgir í Borgarfirði hringdum við í Sonju sem opnaði fyrir okkur. Þá áttum við eftir að keyra smá spöl, og við vorum ekkert að keyra of hratt því það voru margir pollar á vegslóðanum. Það var samt ekki rigning þegar við fluttum dótið okkar úr bílnum í bústaðinn til Sonju rétt fyrir hálffjögur. Sonja var að vinna en hún stimplaði sig út og bauð okkur kaffi. Það fór að rigna fljótlega og það hellirigndi langt fram á nótt. Við settumst í sófann með handavinnuna okkar eftir kaffið og tíminn fram að kvöldmatartíma leið ógnarhratt. Sonja sá um að hafa til kvöldmatinn og það var ekki fyrr en eftir mat sem hún þáði aðstoð og þá aðeins við uppvaskið. Við sátum svo frameftir kvöldi að spjalla og sýsla við handavinnuna okkar.

Þegar ég kom fram klukkan hálfátta morguninn eftir var Lilja vöknuð og komin fram fyrir löngu. Skellt var í morgunverðarhlaðborð þegar Sonja kom fram. Um hádegi skruppum við út í göngutúr og gengum flestar götur í kring nema ekki þá götu sem við komum akandi daginn áður. Eftir rigninguna daginn áður var betra að halda sig á veginum og helst í hjólförunum því undirlagið var mýkra í miðjunni. Þetta voru langt innan við 4000 skref. Þetta var sannkölluð saumaklúbbs ferð því við vorum oftast vinna við hannyrðirnar inni við þegar ekki voru matar, kaffi og svefntímar.

Lilja var aftur fyrst á fætur í gærmorgun. Ég kom fram á svipuðum tíma og morguninn áður og hafði með mér bók. Lilju fannst það góð hugmynd og sótti lestölvuna sína. Lásum til klukkan átta en þá höfðum við til kaffið og það var akkúrat tilbúið þegar Sonja kom fram. Eftir kaffið var gripið í handavinnuna en um hádegisbilið fórum við út í heldur svalara veður en daginn áður og löbbuðum þá leið sem við Lilja höfðum ekið á föstudaginn, næstum alla leið upp á veg og svo til baka. Það vantaði tæp þúsund skref upp á 6000. Þessi dagur leið jafn hratt og hinir og við stöllur fengum iðulega hlátursköst, vorum komnar með harðsperrur í magann en sammála um að þetta væri bara af hinu góða. Sonja bauð okkur að vera til mánudags og við Lilja þáðum það með þökkum.

Í morgun brá svo við að ég var fyrst á fætur. Vaknaði á svipuðum tíma og dagana á undan. Ég var búin að prjóna smávegis og lesa einn stuttan kafla þegar Lilja kom fram korter fyrir átta. Um átta leytið hjálpuðumst við að við að útbúa morgunverðarhlaðborð og það stóð heima, Sonja kom fram akkúrat þegar allt var klárt. Eftir kaffið stimplaði hún sig inn í vinnuna. Við Lilja sinntum handavinnunni okkar en skruppum svo út á pall þegar fór að birta til að fanga augnablikin og fegurðina.

15.1.21

Föstudagur, laugardagur eða sunnudagur

Ég heyrði þegar pabbi fór í sund rétt fyrir hálfsjö í gærmorgun. Ég var ekki með sunddótið með mér og ætlaði mér að kúra aðeins lengur. Það gekk samt ekki upp því ég var glaðvöknuð. Gafst upp á að reyna að sofna aftur rétt fyrir sjö og fór á fætur. Kveikti á einni tölvunni hans pabba og vafraði um á netinu í ca. klukkustund. En þegar pabbi kom heim úr upp úr hálfníu var ég búin að færa mig inn í eldhús og að leggja kapla. Fljótlega settist ég inn í stofu með bók. Er búin með bókina sem Davíð Steinn gaf mér í jólagjöf og næst síðustu bókina sem ég er með af safninu: Grafin undir gistihúsi, sláandi sönn saga af svikráðum, misnotkun og morðum eftir Ryan Green þýdd af Gísla Rúnari Jónssyni. Í gær byrjaði ég á annarri bókinni sem Oddur Smári gaf mér og er líka að lesa síðustu bókina sem ég er með af bókasafninu: Leyndarmál systranna eftir Diane Chamberlain.

Pabbi bauð mér með sér á Kanslarann í hádeginu þar sem við fengum aspassúpu og dýrindis kjúklingarétt. Ég tók aðeins til við prjónana eftir að við komum til baka aftur en ég var líka að leggja kapla, lesa og vafra á netinu fram að kaffi. Um fjögur, strax eftir kaffi, kvaddi ég pabba tók mig saman og lagði af stað í bæinn. Tók með barnastígvél sem Magga hans Sævars hafði komið með kvöldið áður. Hitti á Kristínu dóttir hennar við Rauðavatn og afhenti henni þessi stígvél.

Upp úr hádegi í dag er ég aftur á leið út úr bænum í tvær til þrjár nætur. Verð ekki með tölvuna meðferðis svo skrifin liggja niðri á meðan. Er nýlega komin heim úr sundi og á enn eftir að hella mér upp á kaffi. Best að fara að vinna í því.

14.1.21

Morgunstund

Þrátt fyrir að ekki væri vinnudagur í gær hafði ég stillt vekjaraklukkuna á mig. Stillti hana á 7:40 en á vinnudögum er ég mætt í vinnu á þeim tíma. Vaknaði amk klukkutíma áður en vekjaraklukkan átti að vekja mig og var búin að slökkva á henni og  koma mér fram úr fletinu áður en klukkan varð hálfátta. Skipti um á rúminu en beið til klukkan átta með að fara með rúmfötin niður í þvottahús í þvottvélina. Klukkan var langt gengin í níu þegar ég mætti í laugardagslaugina, á sundleikfimitíma sem fer fram á þeim brautum sem ég nota oftast til að synda. Byrjaði á því að fara tvær ferðir í kalda og þann heitasta á milli og eftir. Eftir seinni heita potts ferðina fór ég í pottinn sem alltaf er kallaður sjópotturinn. Það hefur reyndar ekki verið sjór í honum í marga mánuði og stundum er hann lokaður. Í gær var að minnka í honum og einn sem alltaf er í sundi á þessum tíma á morgnana og var komin ofan í pottinn sagði að það væri fjara. Kannast við þennan mann og alltaf hefur konan hans mætt með honum og ég hef stundum spjallað við hana. Hún var þó ekki með í gær og óvíst hvort hún komi aftur því hún er komin með alzeimer á það stig að hún þekkir oft ekki manninn sinn og rekur hann út. Hann sagði mér að hún væri komin með pláss á Eir og komin í aðlögun þar. Synti 100 metra á braut eitt en þá var leikfimin einmitt að klárast svo ég fór þriðju ferðina í kalda pottinn áður en ég synti 400 metra á braut 6 sem er alveg við hliðina á brautunum sem ég syndi oftast á.

Kom heim um hálfellefu, hengdi upp úr þvottavélinni og hellti mér svo upp á smá kaffi. Hringdi í Lilju vinkonu áður en ég tók mig saman og lagði af stað austur upp úr klukkan tólf. Kom við í Fossheiðinni hjá tvíburahálfforeldrum mínum. Kom svo pabba á óvart með því að hringja á dyrabjöllunni hjá honum um hálfþrjú. Útidyrnar voru læsta og ég nennti ekki að grafa eftir húslyklunum verandi með farangur með mér. Við pabbi fórum strax í smá kaplakeppni. Eftir kaffi settist ég með prjónana mína inn í stofu. Fann meira af samskonar garni þannig að ég ætti að ná í eins og eitt ungbarnateppi. Í kvöldmatinn fékk ég mér kalt hangiket með rófustöppu. Þar sem pabbi borðar heitan mat í hádeginu á Kanslaranum virka daga fær hann sér aðeins snarl á kvöldin. Hann bauð mér svo að fá mér hvítvínsglas eða tvö sem ég þáði og við fórum aftur í smá kaplakeppni.

13.1.21

Heimsókn á Hellu

Var búin að slökkva á vekjaraklukkunni og komin á fætur áður en hún hringdi í gærmorgun. Labbaði af stað í vinnuna nánast á sömu mínútunni og á mánudagsmorguninn. Engin auka framleiðsla var í gær en daglegu skammtarnir ívíð stærri. Engu að síður var allri framleiðslu lokið fyrir klukkan tólf. Tókum okkur góðan tíma í hádegismat en vorum eiginlega búin með öll verkefni fljótlega eftir að klukkan varð eitt. Ég stillti póstinn minn á sjálfvirkt svar um að ég væri ekki á vinnusvæðinu næstu fjóra virka daga. Svo var ég einnig búin að útbúa póst til að senda á fyrirtækið sem tekur á móti símtölum en ég gleymdi að senda hann. Fékk far heim úr vinnunni og var komin heim áður en klukkan varð þrjú.

Um hálffimm leytið fór ég í sund. Fór þrisvar í kalda, synti 500 og endaði í gufunni í amk tíu mínútur áður en ég fór upp úr og heim aftur. Bjó til grjónagraut í kvöldmatinn. Var búin að slökkva á sjónvarpinu áður en klukkan varð hálftíu og komin upp í rúm að lesa fljótlega eftir það. Sofnaði líklega áður en klukkan varð hálfellefu.

12.1.21

Seinni vinnudagurinn í þessari viku

Ég var vöknuð nokkru áður en vekjaraklukkan átti að hringja í gærmorgun. Var komin á fætur og búin að búa um á þeim tíma sem ég ráðgerði að vakna. Eftir morgunverkin á baðinu fékk ég mér matskeið af lýsi, harðsoðið egg og tvö glös af vatni. Labbaði af stað í vinnu rétt áður en klukkan varð sjö. Hafði með mér m.a. vöfflusoppuna frá í fyrradag og þeyttan rjóma. Allri framleiðslu var lokið rétt fyrir tólf.  Tókum okkur rúman matartíma en vorum þó komnar inn á deild aftur fyrir eitt. Ég stoppaði þar aðeins í um tíu mínútur áður en ég fór fram aftur og hellti mér út í vöfflugerð. Vöfflujárnið í vinnunni er tvöfalt og ég gerði 10 og það var samt afgangur í fötunni sem ég tók með mér heim aftur. Rjóminn kláraðist. Við vorum fimm sem gæddum okkur á þessum veitingum. Upp úr klukkan tvö vorum við búnar að ganga frá öllu og þar sem ekkert lá fyrir ákváðum við að segja þetta gott og fara heim. Önnur af samstarfskonum mínum bauð okkur hinum tveimur far heim sem við þáðum.

Stoppaði heima í rúma tvo tíma áður en ég fór í Nauthólsvík og -0,3°C sjóinn. Það var háflóð og ískrapi þeim megin sem ég er vön að fara út í. Ég lét ekki krapið stoppa mig en fór samt varlega. Var ekki með tímavörð með mér en er nokkuð viss um að hafa verið útí þarna megin í uþb eina og hálfa mínútu. Þar sem það var flóð þurfti ég ekki að fara mjög langt en engu að síður varð ég einnig að passa mig þessa stuttu leið til baka. Fór svo aðeins í lónið áður en ég kom mér fyrir í heita pottinum um stund. Var komin heim aftur um sex. Þá setti ég upp kartöflur og steikti eitt flak af þorskhnökkum í fjórum bitum.

11.1.21

Vöfflukaffi í vinnunni

Í gærmorgun skutlaði ég N1 syninum á vakt rétt fyrir tíu og fór svo beint í sund. Fór fjórar ferðir í kalda pottinn, synti 500 metra þar af 150 á bakinu og sápuþvoði á mér hárið áður en ég fór heim. Oddur Smári kom fram um eitt leytið og ég spurði hvot það væri ekki upplagt að búa til nokkrar vöfflur. Hann tók vel í þá hugmynd og ákvað að hjálpa mér. Ég hrærði í heila uppskrift og hann bjó til 5 vöfflur á meðan ég  þeytti rjóma og hellti á könnuna. Setti afganginn, sem var efni í amk 8-10 vöfflur í viðbót í litla fötu undan súrmat. Oddi fannst það frekar spes.

Leist ekki meir en svo á landsleikinn í handbolta að ég hætti að horfa þegar strákarnir okkar voru komnir fimm mörkum undir. Var svo gapandi hissa þegar ég ákvað að horfa á síðasta korterið af leiknum og sá að það hafði orðið alger viðsnúningur og leikurinn vannst með níu marka mun.

Hafði ofnbökuð kjúklingalæri með blómkáli, rauðkáli og sveppum í matinn og bauð ég einnig upp á soðin bygggrjón. Mjög gott að sjálfsögðu. 

10.1.21

Tuttuguogeinsárs starfsafmæli

Með þessari færslu jafna ég bloggskrif í janúar í fyrra, þe þetta er tíunda færsla ársins. En það eru ennþá 21 dagur eftir af þessum mánuði svo þótt það sé ekki öruggt að ég muni setja inn færslu daglega þá er næsta víst að þetta er ekki síðasta færslan í þessum mánuði. Staðan á sund- og sjóferðum á þessu nýja ári er líka jöfn, 5:5.

Í gærmorgun drattaðist ég á fætur rétt áður en klukkan varð níu. Um klukkustund síðar bjó ég mér til hafragraut og rétt fyrir ellefu var ég sótt af sjósundsvinkonu minni. Hittum hinar þrjár af kjarnanum í hópnum í Nauthólsvík. Sjórinn var sagður 0,5°C og lofthiti -3. Vorum út í sjó í uþb fimm mínútur og svo rúmar tíu mínútur í heita pottinum á eftir.

Var komin heim aftur áður en klukkan varð tólf. Hellti mér upp á tvo bolla af kaffi. Og dagurinn leið við alls konar dundur. Upp úr klukkan hálfsjö fór ég á bílnum niður í bæ og lagði honum á stæði á Skúlagötu rétt við Ingólfsstræti og Kalkofnsveg. Móðursystir mín og guðmóðir á afmæli í dag og hún bauð mér, dóttur sinni, kærasta hennar og tvíburabróðursyni sýnum út að borða á Grillmarkaðnum. Ég átti að mæta klukkan sjö og taldi mig hafa nægan tíma en það fór nú svo að ég mætti síðust korter yfir sjö. Mig misminnti nafnið og staðsetning á staðnum og fór langt yfir skammt og fór fyrst í Matarkjallarann. Mér voru fyrirgefin þessi mistök. Borðhaldið tók þrjá tíma enda var ætlunin að njóta matarins og félagsskaparins. 

9.1.21

Komin á fætur en ekki í gírinn

Í gærmorgun dreif ég mig á fætur rétt upp úr sjö. Fékk mér lýsi, harðsoðið egg og vatnsglas áður en ég fór í sund. Byrjaði á ferð í kalda pottinn áður en ég synti 500 metra fór svo beint í kalda aftur. Fór eina ferð í heitasta pottinn og svo aftur í þann kalda áður en ég fór í gufu. Endaði svo á kaldri sturtu áður en ég fór upp úr og heim.

Heima setti ég handklæði og brækur í þvottavélina og bjó ég mér til hafragraut og kaffi. Fór ekkert út úr húsi aftur en sinnti bæði áhugamálum og nokkrum skylduverkum. Oddur Smári tók hluta af skyldunum að sér.

Uppgötvaði að ég hef ekki alveg farið rétt eftir teppaprjónamynstrinu en þar sem ég er handviss um að ef þetta verður í þeirri lengd sem mælt er með þá dugar garnið ekki. Hef því ákveðið að rekja ekki upp heldur breyta eftir eigin höfði. Get alltaf útvegað það garn sem bent er á í uppskriftabókinni og prjónað eftir uppskriftinni aftur og þá fylgt henni betur.

8.1.21

Jafnoft í sjóinn og sund

Kom mér á fætur rétt áður en klukkan varð níu í gærmorgun. Sá morgun var að mörgu leyti keimlíkur morgninum á undan en ekki alveg að öllu leyti. Ég hafði með mér nokkrar bækur fram í stofu og byrjaði aðeins á einni af jólabókunum, Dauði skógar eftir Jónas Reyni Gunnarsson. Sú bók er góð. Kaflarnir stuttir en ég ætla samt ekki að hámlesa hana, þ.e. ég ætla að gefa mér nokkra daga, lesa aðeins örfáa kafla í einu. Í staðinn er ég með fleiri bækur á kantinum. Hef lokið lestrinum á þeirri bók sem varð eftir heima af safninu, Gilead og ég mæli mjög með henni. Þá bók er heldur ekki hægt að hraðlesa yfir nema þá að maður ætli að lesa hana aftur.

Hélt áfram að prjóna teppið og það gengur mjög vel, eiginlega of vel þannig séð, er búin að klára tvær dokkur, byrjuð á þeirri þriðju og er stödd í mundsturkafla 2 af fimm. Nýjasti yfirmaður minn hafði samband í gær til að láta mig vita að það væri verið að breyta vinnuvaktaplaninu frá og með næstu viku og amk út mánuðinn með fyrirvara um hvaða reglugerðabreytingar taka í gildi eftir 12. janúar. Tvær af okkur fimm eiga eftir að taka megnið af sumarfríinu sínu síðan í fyrra og þær ætla að taka eitthvað af því í þessum mánuði. Verktakinn verður í vinnu fram að mánaðamótum og við eigum aðeins að mæta 3 til vinnu hverju sinni. Samkvæmt plani á ég að mæta í vinnu tvo fyrstu dagana í næstu viku og svo ekki fyrr en 19. og þá vinn ég 6 virka daga í röð. Ef þetta gengur eftir þá er ég að vinna átta daga í þessum mánuði og næ að vinna eitthvað með öllum nema fyrirliðanum, sem er önnur þeirra sem er að fara í orlof.

Mætti í Laugardalslaugina um hálffjögur í gær og byrjaði á því að synda 500 metra. Hitti svo kalda potts vinkonu mína í hennar fyrstu ferð í kalda pottinn. Fór með henni fimm sinnum í viðbót og oftast þann heitasta á milli. Eftir sjöttu ferðina skildu leiðir og ég fór í gufu.

Áður en ég fór að sofa í gærkvöldi byrjaði ég að lesa; Kópavogskrónika: til dóttur minnar með ást og steiktum eftir Kamillu Einarsdóttur. Bókin lætur ekki mikið yfir sér, er þunn og stuttir kaflar en lesturinn vekur upp ýmsar hugsanir um lífið og tilveruna, uppvöxt og mannlega hegðun, hugsanir, gerðir og líkt og ólíkt fólk.

7.1.21

Dagurinn lengist smátt og smátt

Í gær fór ég í fjórða skiptið í sjóinn á árinu og hef því farið oftar þangað heldur en í sund. Fór í Laugardalslaugina um miðjan dag í fyrradag. Hitti ekki á kaldapotts vinkonu mína en ég fór fjórar ferðir í kalda pottinn og í synti einnig 400 metra.

Klukkan var annars um níu í gærmorgun þegar ég reif mig loksins á fætur. Eftir morgunverkin á baðinu settist ég beint inn í stofu og kveikti á fartölvunni. Ætli ég hafi ekki setið við hana í hátt í tvo tíma eða svo að leika mér, vafra og endaði á því að blogga. Um ellefu hringdi ég í föðursystur mína til að óska henni til hamingju með daginn. Talaði stutt því dóttur-dóttir hennar og dóttur-dóttur-sonur voru í heimsókn. Hún sagði mér að hún hefði svarað langömmubarni sínu því að hún væri þriggja ára þegar hann spurði. Þannig að hún klippti fremri töluna alveg af.

Þegar ég var að koma að austan síðast tók ég með mér 6 hnotur af rauðu Artic hreinu ullargarni sem er hluti af því garni úr fórum mömmu heitinnar sem eftir á að koma út eða gera eitthvað við. Þetta er öðruvísi garn heldur en mælt er með í barnateppauppskriftarprjónabókinni en ég ákvað samt að prófa að nota þetta. Hugsanlega dugar þetta garn ekki í uppskriftina en ég fitjaði upp á hringprjón í gær, er langt komin með fyrstu hnotuna og rétt að byrja á neðsta munsturkaflanum af þremur. Þetta verður eitthvað.

Um tvö leytið í gær skutluðum við Oddur Davíð Steini á aukavakt á N1 í Borgartúni. Oddur fór í Sorpu á meðan ég verslaði í Krónunni við Granda. Ég fór líka í Elko að kaupa hleðslubatterí í heimasímann og í Byko að kaupa stíflueyði.

Klukkan fimm sóttu nöfnurnar mig í sjósundsferð. Við hittum systurnar á bílaplaninu við Nauthólsvík. Vorum uþb fimm mínútur í 1,3°C sjónum og svo tuttugu mínútur í heita pottinum áður en við fórum upp úr og vorum í samfloti heim til annarrar systurinnar. Þar var okkur boðið upp á heimabakaðar kanelbollur og ýmislegt fleira. Það var mikið spjallað og tíminn leið alltof hratt. Sjósundsvinkona mín skutlaði mér og nöfnu sinni aftur heim um níu. 

6.1.21

Þrettándinn

Föðursystir mín, Árný Oddbjörg Oddsdóttir er 93 ára í dag. Hún býr í eigin húsnæði og sér um sig og heimili sitt sjálf. Fyrir nokkrum misserum fékk hún sér neyðarhnapp til að bera til öryggis en ég veit ekki til þess að hún hafi þurft að nota hann. Fólkið hennar er duglegt að líta til með henni og bjóða aðstoð, t.d. við búðarferðir. Einn sonur hennar og tengdadóttir búa í hinum enda hússins. Samt held ég að hún líti alveg jafn til með þeim og þau henni. Mér þykir afskaplega vænt um þetta frændfólk mitt allt, bæði föðusystur mína og alla hennar afleggjara og fylgifiska.

En aðeins að gærdeginum. Ég komst á fætur um hálfníu en maður minn hvað mér fannst mikið dimmt úti og langt fram á morguninn. Klukkan var ellefu þegar ég hafði mig loksins af stað að reka nokkur nauðsynleg erindi. Byrjaði á því að fara í bókasafnið og skila öllum bókum nema einni, þá bók framlengdi ég skilafrestinn á um einn mánuð. Þrátt fyrir að eiga jólabækurnar enn ólesnar, aðeins búin að glukka í teppaprjónabókina, þá tók ég þrjár bækur af safninu.

Frá bókasafninu lá leiðin að N1 við Fellsmúla. Skynjarinn fyrir þrýstinginn á dekkjunum hefur ekki verið í lagi síðan ég lét setja naglana undir. Bíllinn komst strax að og við nánari skoðun þurfti að skipta um einn skynjara. Fékk að gefa upp kennitölu N1-sonarins og borgaði innan við fimmþúsund fyrir skynjarann.

Næst lagði ég bílnum við Krónuna við Nóatún, aftarlega á planinu. Þaðan labbaði ég niður í Borgartún 12-14 þar sem Reykjavíkurborg er með margvíslega starfsemi. Í þjónustuverinu fékk ég að skrifa á þrjú plögg undir nýjan lóðaleigusamning við borgina. Fleiri íbúðareigendur við Drápuhlíð 21 eiga eftir að skrifa undir áður en hægt verður að þinglýsa þessum nýja samning.

Fór ekkert í Krónuna en kom við í Fiskbúð Fúsa áður en ég fór heim.

5.1.21

Frænkuheimsókn

Stuttu fyrir hádegi í gær hafði nafna mín og frænka samband við mig til að athuga hvenær hún gæti nálgast húslyklana sína. Við sammæltumst um að hún kæmi um eitt. Korter fyrir eitt hringdi hún aftur og sagðist sennilega verða eitthvað seinni þar sem mamma hennar er á landinu og þurfti að nota bílinn. Hálftíma síðar voru mæðgurnar mættar. Sú eldri er móðursystir mín og guðmóðir. Hún er með lögheimili í Noregi en á íbúð hér í Reykjavík (og reyndar eina í Kaupmannahöfn og aðra í Berlín) og er búin að vera hér síðan rétt fyrir áramót í jólafríi. Þær mæðgur gerðu gott stopp áður en þær fóru í frekari snúninga. Nafna mín færði mér jólakort og böggul frá þeim Mikael og kisu, mjög flotta vínrauða húfu og keramikkrús sem ég hallast að því að sé hugsað sem drykkjarílát frekar en ílát undir sprittkerti því það eru för í krúsinni sem passa við fjögurra fingra grip, þumal og þrjá fingur.

Rétt fyrir fimm, rúmri klukkustund eftir að frænkur mínar kvöddu, sóttu nöfnurnar mig í sjósundsferð. Hittum systurnar á planinu við Nauthólsvík og ellefu mínútum yfir fimm vorum við að vaða í átt til Kópavogs í 1,3°C heitan sjóinn. Vorum þrjár mínútur í sjónum en meira en hálftíma í heita pottinum á eftir. Þannig að ég er búin að fara oftar í sjóinn á þessu ári heldur en í sund. 

4.1.21

Er að leita að "gerugírnum"

 Í gærmorgun fór ég á fætur  um níu, var vöknuð nokkuð fyrr. Fljótlega sendi ég kalda potts vinkonu minni fyrirspurn um hvort og þá hvenær hún ætlaði í sund. Fyrsta svar var á þá leið að hún væri ekki viss, var eitthvað þreytt. En ekkert löngu síðar sagðist hún geta verið mætt um hálftíu. Þessi skilaboð hjálpuðu mér að koma mér af stað í sund. Klukkan var akkúrat hálftíu þegar ég mætti í laugardalinn og þá þegar var vinkona mín búin að fara eina ferð í kalda pottinn. Ég náði fimm ferðum með henni. Synti ekkert en endaði í smá gufubaði áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið áður en ég fór beint heim aftur.

3.1.21

Kaldapottspottormur

Ég var sótt aftur rétt fyrir ellefu í gærmorgun til að fara í sjóinn. Það var meiri dumbungur í veðrinu en það voru fleiri að mæta í Nauthólsvíkina heldur en á nýjársdag. Mættum fimm úr hópnum. Þurftum að bíða í uþb 5 mínútur áður en við komumst að í búningsklefanum. Ég tók sjósundsskó og hanska með mér framfyrir klefann. Sjórinn var 0,3°C heitari heldur en í fyrradag eða ein gráða. Svömluðum um í þrjár mínútur og skruppum svo aðeins í lónið áður en við fórum í pottinn. Vorum ca 15 mínútur í pottinum en höfðum ekki samvisku í að vera lengur til að hleypa fleirum að. Engin biðröð var í klefann þegar við fórum uppúr.

Eftir að ég kom heim aftur þvoði ég eina þvottavél af handklæðum, kláraði loksins tuskuna sem ég fitjaði upp á rétt fyrir jól en svo fór stór partur af deginum í að klára að horfa á DNA, danska seríu sem finna má á RÚV í spilaranum. Eitthvað fleira gerði ég mér til dundurs og dagurinn leið mjög hratt. Var komin upp í rúm með bók um hálfellefu og sofnuð löngu áður en klukkan varð tólf.

2.1.21

Aftur í sjóinn

Rétt fyrir tíu í gærmorgun, uþb hálfri klukkustund eftir að ég kom mér á fætur, bjó ég mér til hafragraut. Sjósunds vinkona mín setti fyrirspurn á hópinn nokkru síðar en ég var sú eins sem var tilbúin að drífa mig með henni. Hef aldrei áður farið í sjóinn á nýjársdag og það var líka komin meira en vika síðan ég var síðast að busla í sjónum. Veðrið var mjög bjart og fallegt. Helga Rún kippti mér með rétt fyrir ellefu. Einhverjir voru þegar mættir en samt bara hæfilega margir. Nóg pláss var í klefanum, hitastig sjávar 0,7°C og í tilefni dagsins var íslenska fánanum flaggað. Við vorum eitthvað um þrjár mínútur í sjónum en skruppum svo í lónið strax á eftir. Þar var hitastigið aðeins hærra amk í kringum uppsprettuna. Svo vorum við næstum hálftíma í heita pottinum. Ég var komin heim um hálfeitt og fór ekkert út aftur.

Síðasta bókin af safninu; Gilead eftir Marilynne Robinson er um gamlan prest í samnefndum bæ í Iowa og skrif hans til ungs sonar af reynslu sinni sem og sögu bæjarins og fjölskyldunnar. Skáldsaga sem ég er rétt byrjuð á en finnst lofa mjög góðu. 

1.1.21

Glænýtt ár!

Um miðjan dag í gær setti ég loksins upp grautinn sem breyttist í hátíðargraut nokkru eftir kvöldmat eftir að hafa verið kældur. Blandaði þeyttum rjóma saman við. Dagana milli jóla og nýjárs var ég mikið að velta fyrir mér hvað skyldi hafa í matinn á gamlársdag. Þegar ég kom við í Krónunni við Nóatún eftir sund þann 30. fann ég akkúrat eitthvað sem ég hef mjög sjaldan á boðstólum en tekur ekki langan tíma að matreiða, nauta-piparsteik, 4 sneiðar. Létt steikti sneiðarnar upp úr smjöri en það var það allra síðasta sem ég gerði áður en sest var að borðum. Með þessu bauð ég upp á kartöflur, kúlukál (lesist rósakál), grænar baunir, waldorfssallat og rauðvínssósu. Nammi gott en við mæðgin vorum svo södd eftir borðhaldið að við geymdum okkur eftirréttinn aðeins fram á kvöld. Skaupið þótti mér alveg ágætt og varð strax hugsað til systur minnar og mágs þegar atriðið með "Sindra" í heimsókn hjá parinu sem flutti í sveitina til að prófa nýjan lífsstíl. Úthaldið var ekkert  en þó aðeins fram yfir miðnætti. Það gæti alveg verið vegna þess að ég svaf ekkert sérstaklega vel nóttina á undan einhverra hluta vegna. En framundan er glænýtt ár og þessi dagur byrjaði alveg einstaklega vel. Kannski meira um hann á morgun. 

31.12.20

Síðasti dagur þessa árs

Þrátt fyrir að það sé hlaupár og því einn aukadagur í þessu ári sem er að klárast er tilfinningin sú að það geti varla verið að árið sé búið. Vissulega hafa verið alls konar áskoranir á þessu ári og maður hefur þurft að aðlaga sig að aðstæðum hverju sinni, bæði í vinnu og samfélaginu. En kannski af því að meiri hluta ársins mátti ég ekki mæta til vinnu nema aðra hverja viku og af því að ekki er hægt að vinna framleiðsluna heiman að frá sér (nema þá eigin framleiðslu) þá held ég að ég hafi setti hluta af þessum "heima-vikum" á einhvers konar pásu eða bið. Það er ekki útlit fyrir að þessi vinnutilhögun breytist neitt fyrr en búið verður að bólusetja alla svo það er viðbúið að nýja árið byrji eins og það endaði. Að vísu endaði ég þetta ár á því að mega mæta til vinnu svo nýja árið byrjar á því að ég verð að halda mér fjarri vinnu. Janúar verður næstum því hálfnaður þegar ég mæti næst til vinnu.

Þriðjudag og miðvikudag fór ég gangandi í vinnuna og fékk svo far heim um hálffjögur. Og báða þessa daga mætti ég í sund um fimm. Í morgun fór ég á bílnum í vinnuna og hafði sunddótið með mér. "Vinnuskylda" var 3 tímar og við náðum að klára framleiðslu, talningar, skýrslugerð, frágang, þrif og sótthreinsun og smá kaffitíma á þessum þremur tímum. Ég fór svo beint úr vinnunni í sund og hitti kalda potts vinkonu mína í sinni annarri ferð í kalda pottinum. Fór með henni í fimm ferðir og endaði svo í gufu áður en ég fór heim.

N1 sonurinn er að vinna en Oddur Smári kláraði sína síðustu vakt hjá Kvikk í Öskjuhlíð í gærkvöldi. Hann er heima og hjálpaði mömmu sinni við smá tiltekt og þrif.

29.12.20

Á leið í sund eftir smá stund

Þar sem ég var enn á kisuvaktinni í gær fór ég á bílnum í vinnuna. Ég var í bókhaldinu en samstarfskonur mínar á framleiðsluvaktinni. Daglegu skrárnar voru mjög litlar en um hádegið var send til okkar endurnýjun og það tók rúma tvo tíma að klára þá framleiðslu. Þar að auki hafði komið nokkuð stór hráefnissending rétt fyrir jól með gulum miðum sem þarf að fjarlæga áður en hægt er að telja svo ég gat dundað mér við það þegar öllum daglegum bókhaldsverkefnum var lokið. Hættum vinnu rétt upp úr þrjú og þá fór ég beint til kisu. Hún var ekki undir sófa og kom ekki strax þaðan sem hún hélt sig. Ég skolaði upp vatnsskálina og fyllti á hana og matardallinn. Tók svo fram kisudót og labbaði aðeins um íbúðina. Og viti menn, allt í einu var kisa komin, en ég veit ekki enn hvar hún var. Hún vildi alveg leika við mig í smá stund. Svo settist ég upp í sófa og það endaði með því að kisa ákvað að koma til mín og leggja sig við hliðina á mér. Hún vildi alveg leyfa mér að klappa mér en mér leist ekkert á blikuna því að neistaði svo mikið á milli okkar. Samt ekki svo að við hrukkum við. Stoppaði í hátt í tvo klukkutíma áður en ég kvaddi. Kisa var ekkert að hafa fyrir því að fylgja mér til dyra eins og hún gerði daginn áður heldur kúrði sig áfram í sófanum. 

28.12.20

Á kisuvaktinni

Synir mínir gáfu mér báðir bækur í jólagjöf. Davíð Steinn gaf mér Dauði skógar og Oddur Smári gaf mér tvær bækur; Martröð í Mykinesi og Svo týnist hjartaslóð. Ég fékk líka bók frá tvíburahálfforeldrum mínum,barna-teppaprjónabók svo nú verður tusku- og sjalaprjónið lagt til hliðar fljótlega og farið að prófa að prjóna teppi. Pabbi gaf mér pening sem ég notaði til að fjárfesta í sjósundsskóm og hönskum. Frá vinnunni fékk ég hvíta húfu frá 66°Norður og 35.000 gjafakort í sömu verslun. Sjósundsvinkona mín gaf mér höfuðljós sem má fara ofan í vatn. Ætlað fyrir sjósundið þegar við erum á ferðinni seinni partinn.

Allir voru komnir á fætur fyrir klukkan tólf á jóladag. Pabbi fór á smá tölvu-skanna námskeið hjá Davíð Steini en fljótlega eftir hádegi setti hann upp sýningatjald og varpaði innskönnuðum myndum úr tölvunni á það. Þetta var hið besta skemmtun. Vorum með kaffihlaðborð um miðjan dag en á sjötta tímanum setti ég upp kartöflur og bakaði upp hvítan jafning og hangikjötsbitinn af "feita sauðnum" var nóg í matinn handa okkur öllum. Kvöddum pabba um átta. Oddur Smári keyrði í bæinn.

Á annan í jólum vorum við mæðgin öll komin á fætur á svipuðum tíma. Oddur Smári var fyrstur út úr húsi, rétt fyrir hálftíu en ég skutlaði Davíð Steini upp á Gagnveg þannig að hann var mættur um tíu. Svo var ég svo bjartsýn að ég fór beinustu leið í Laugardalinn. Þar var enn lokað, opnaði ekki fyrr en ellefu, svo ég fór aðeins heim og las smá í einni bók af safninu; Merkt eftir Emelie Schepp. Klukkan var að nálgast tólf þegar ég fór út aftur. Kom við hjá móðurbróður mínum að sækja lykla af íbúð nöfnu minnar áður en ég fór í sund. Laugin var hálfköld en ég synti engu að síður 400 metra. Hitti óvænt sjósundsvinkonu mín í potti tvö og hún kom svo eina ferð með mér í þann kalda áður en hún fór upp úr. Eftir sundið fór ég beinustu leið að heimsækja kisu. Skolaði upp vatnsskálina og fyllti hana svo af vatni, fyllti á matarskálina, hreinsaði upp úr kattasandkassanum og bætti sandi út í. Stoppaði í um klukkustund áður en ég fór heim.

Oddur Smári fór út klukkan hálfátta í gærmorgun. Ég skutlaði Davíð Steini í sína vinnu á sama tíma og á laugardaginn og nú komst ég beint í sund eftir skutlið því það opnaði klukkan átta í gærmorgun. Kom beint heim eftir sundið og hellti mér á könnuna. Fór ekki til kisu fyrr en um miðjan dag en ég stoppaði hjá henni í svipaðan tíma og daginn áður og lék mér aðeins við hana.

27.12.20

Sunnudagsmorgun

Á aðfangadagsmorgun var ég komin á fætur upp úr klukkan sjö. Pabbi var þá þegar á fótum og var að skrá niður sínar daglegu mælingatölur. Við fórum í kaplakeppni þar til klukkan var að nálgast átta. Þá var kominn tími til að hafa sig af stað í sund. Kannski ekki venjulegasti tími pabba, en þennan dag opnaði ekki fyrr og það er eiginlega langbest að taka jólabaðið í sundinu. Við feðginin höfðum laugina alveg útaf fyrir okkur. Ég byrjaði að synda aðeins á undan pabba því ég varð á undan út og í þann kalda. Svo synti ég og synti þar til ég sá pabba fara aftur í þann kalda eftir sína 300 metra uþb 25 mínútum síðar. Skiptumst á að fara í kalda pottinn, notuðum sitt hvorn heita pottinn og enduðum á smá stund í gufunni. Pabbi var á undan að klæða sig eftir sundið þrátt fyrir að ég væri ekki að þvo á mér hárið. Hann var að drekka kaffi og spjalla við Þórhall þegar ég kom fram.

Um hádegisbilið var dyrabjöllunni hringt og spurt eftir pabba. Þar var á ferðinni maður sem hafði lengi vel verið í sömu sundmætingarútínu og pabbi en hefur ekki komið sér aftur í þann gír eftir fyrstu lokun. Hann var að færa pabba "væna flís af feitum sauð" og kasta á hann hátíðarkveðju en stoppaði ekkert við.

Rétt um hálfþrjú leytið kom lögreglan, systursonur pabba, í smá innlit. Hann var á frívakt, byrjaði á því að spyrja hversu stór jólakúlan okkar væri, og sagðist svo hafa orðið að kíkja aðeins við og heilsa upp á frænda sinn. Hann þáði einn kaffibolla og smakk af sólberjapæinu sem Inger sendi mig með til pabba.

Lambahryggurinn fór inn í 120°C gráður heitan ofninn pakkaður smurður olíu og kryddi í álpappír í stóran ofnpott um miðjan dag. Þegar synir mínir komu austur rétt upp úr klukkan sjö vorum við pabbi búin að leggja á borðstofuborðið, blanda jólaöl, sjóða kúlukál og kartöflur, útbúa sósu og setja fram meira meðlæti. Maturinn þótti mjög góður. Höfðum ekki strax pláss fyrir ísinn sem var í eftir rétt, heldur gengum frá, settum uppþvottavélina af stað og fórum að huga að pökkum.

24.12.20

Morgunsund á Hellu í morgun

Heyrði pabba fara af stað í sund um hálfsjö í gærmorgun. Ég var vöknuð en að reyna að kúra áfram. Gafst upp á að reyna að sofna aftur og var komin á stjá um hálfátta. Pabbi kom heim úr sundi klukkutíma síðar. Það var mjög rólegt hjá okkur feðginum.Pabbi spurði hvort við ættum nokkuð að vera að setja upp jólatré og ég benti á að það væri alveg nóg að setja upp tvö keramikjólatré sem mamma heitin gerði, annað hvítt og hitt grænt. Ég var annars ýmist að prjóna, leggja kapal eða vafra á netinu

Um hálftólf bauð pabbi mér á Kanslarann í hádegismat. Þar fengum við aspassúpu og steiktan fisk í matinn. Vegna fjöldatakmarka hafði eigandinn ákveðið að sleppa því að vera með skötu þetta árið.

Komum við í búðinni á leiðinni heim. Vorum með smá lista af vörum sem vantaði upp á jólastússið. Þetta var ekki meira en svo að það komst fyrir í einum poka.

Dagurinn  leið frekar hratt. Aldrei þessu vant var sjónvarpið opið frá klukkan að verða hálfsjö til klukkan að ganga ellefu. Upptakan frá jólatónleikum Friðriks Ómars í Hofi 2019 hélt okkur límdum fyrir framan skjáinn.

23.12.20

Þorláksmessa

Í gærmorgun var ég komin á fætur upp úr klukkan sjö og búin að stinga handklæðum í þvottavél áður en klukkan varð hálfátta. Setti hreint á rúmið en það óhreina verður ekki þvegið fyrr en á milli jóla og nýjárs. Einkabílstrjórinn kom fram á ellefta tímanum. Þá var ég búin að hengja upp þvottinn og langt komin að með að pakka mér niður.

Fermdum bílinn um ellefu leytið og byrjuðum á því að fara með jólakort og pakka til norsku esperantóvinkonu minnar. Hún afhenti mér jólkort í staðinn og tvö sólberjapæ, annað til pabba og hitt til okkar mæðgina. Það pæ fékk samt að fara í ferðalag austur fyrir fjall. Komum við í Fossheiðinni með jólakort og pakka. Stoppaði ekkert en tók á móti korti og pökkum.

Oddur Smári stoppaði í tæpan klukkutíma hjá afa sínum. Hjálpaði honum með eitt forrit í tölvunni og þáði smá kaffihressingu áður en hann sneri heim á leið. Þurfti að koma við heima til að ná í vinnupeysuna sína og líklega hefur hann lagt bílnum þar í leiðinni.

Ég fitjaði upp á nýrri tusku, lagði kapla og spjallaði við pabba. Við fengum okkur síðdegishressinu um hálffjögur og snarl eftir kvöldfréttirnar í sjónvarpinu. Dagurinn leið frekar hratt þrátt fyrir rólegheit.

22.12.20

Að pakka niður fyrir þrjár nætur

Gærdagurinn leið frekar hratt. Var lengi að koma mér af stað í smá leiðangur. Fór ekki fyrr en um tvö og fyrir vikið tók leiðangurinn heldur lengri tíma vegna umferðar. Kom fyrst við á pósthúsinu. Það tók ekki langan tíÉma og frekar rólegt þar þótt umferðin væri nokkuð mikil þar í kring sem annars staðar. Næst lá leiðin í Hagkaup í Skeifunni. Þar var klikkað að gera en ég var samt ekkert svo lengi að sinna mínum erindagjörðum. Að lokum lá leiðin í Aquasport við Bæjarlind 1-3 í Kópavogi. Þar keypti ég mér jólagjöfina mína frá pabba, sjósundsskó og hanska. Hitti afgreiðslustúlkuna í Nauthólsvík fyrir nokkru síðan þar sem hún var að prófa sjósundfatnað. Hún sagðist nefnilega helst vilja vita hvað hún væri að selja og hvort hún mælti með því. Þetta var að ég held hennar fyrsta sjósundsferð en ekki sú síðasta. Fékk 15% afslátt af verðinu á því sem ég keypti bara af því ég mundi eftir henni frá því í Nauthólsvík einn laugardaginn um daginn.

Var komin heim um hálffjögur. Þegar Oddur Smári var farin í vinnuna nokkru síðar pakkaði ég inn síðustu jólagjöfunum og skrifaði á allra síðasta jólakortið. Rétt fyrir fimm var ég tilbúin og komin út þegar nöfnurnar sóttu mig í sjósundsferð. Hittum systurnar úr okkar hóp í klefanum. Að sjálfsögðu prófaði ég nýju skóna og hanskana. Það hafðist að renna upp lásnum á hægri skónum þrátt fyrir að fóturinn væri aðeins bólginn. Og auðvitað virkaði þetta eins og það átti að virka. Það var að fjara út og sjórinn var 2,2°C. Svömluðum um í uþb 5 mínútur og vorum svo amk 15 í pottinum.

Ég er með handklæði í þvottavélinni sem ég get hengt upp um tíu leytið. Er aðeins búin að fá mér lýsi en er á leiðinni að hella upp á könnuna og klára svo að pakka niður. Oddur Smári ætlar að skutla mér austur um hádegisbilið.

21.12.20

Hægagangur

Í gærmorgun var ég komin á fætur fyrir klukkan átta. Klukkutíma síðar hafði kalda potts vinkona mín samband og við sammæltumst um að hittast í Laugardalslauginni um tíu. Mættum nánast á sama tíma og við byrjuðum á að fara í pott númer tvö og svo sex ferðir sinnum þrjár mínútur í þann kalda og pott númer fjögur, þann heitasta á milli. Eftir síðustu ferðina í kalda pottinn skildu leiðir og ég endaði í gufunni. Synti semsagt ekki neitt. Þvoði á mér hárið og fór svo beint heim.

Er búin að skrifa á 27 jólakort af 28 sem ég bjó til. Listinn er tæmdur en hugsanlega skrifa ég á síðasta kortið til pabba. Á aðeins eftir að pakka inn gjöfinni til hans. Hef tíma til þess í dag. En um hádegið á morgun mun einkabílstjórinn skutla mér austur en þeir bræður koma saman á aðfangadagskvöld og verða yfir eina nótt.

20.12.20

Ýmislegt brallað

Ég var komin á fætur um átta í gærmorgun. Var löngu vöknuð, heyrði í Oddi þegar hann fór af stað í vinnu fyrir hálf. Um hálftíu útjó ég mér hafragraut. Og ég var tilbúin í sjósundsferð þegar sjósundsvinkona mín sótti mig rétt fyrir ellefu. Miklu fleiri voru mættir í Nauthólsvík heldur en fyrir viku. Þar sem ég var í sundbolnum innanundir og búin að klæða mig í sjósundssokka og strandskó var ég ekki lengi að taka af mér í klefanum og setja upp sundhettu. Sjórinn var 2,1° og við vorum fjórar úr sama hóp í uþb fjórar mínútur á svamli. Heiti potturinn var eiginlega of troðinn. Systurnar fóru beint inn í sturtu en við hinar rétt settumst niður í eitt hornið, kannski í hálfa mínútu til eina á meðan við vorum að klæða okkur úr sokkum, vettlingum og skóm.

Var komin heim rétt fyrir tólf. Ryksugaði sameignina frammi áður en ég hellti mér upp á kaffi og hlustaði á hádegisfréttir. Áður en fréttrinar voru búnar skipti ég yfir á Cristal Palace - Liverpool og reyndist sá leikur hin besta skemmtun fyrir Liverpool aðdáanda til margra ára 0:7. Fljótlega eftir að leikurinn var búinn skrapp ég í þriggja kortera gönguferð. Fór upp hjá Perlunni og kom niður hjá HR.

Rétt fyrir sjö klæddi ég mig upp í smá spari, kvaddi strákana og fór í jólakózýboð til Önnu frænku. Hún og kærastinn hennar buðu líka móðurbróður okkar og fjölskyldu (hann og mamma Önnu eru tvíburar) svo við vorum 6 manns saman og einn köttur. Þetta var mjög skemmtileg og notaleg kvöldstund með frændfólki. Mikið talað á ensku því kærasti frænku minnar er breskur og þótt hann hafi búið hér á landi í meira en áratug hefur hann ekki náð að tjá sig á íslensku að ráði. En ég er nokkuð viss um að hann skilur tungumálið, sérstaklega ef maður gerir sér far um að tala hægar. 

19.12.20

Laugardagur

Ég fékk far heim úr vinnunni í gær. Gönguloturnar í vinnuvikunni urðu því alls sjö. Í venjulegu árferði væri ég búin að fjárfesta í strætókorti en á meðan ég má aðeins mæta í vinnu aðra hverja viku sleppi ég því að nota strætó. Tíðin síðustu daga hefur verið óvanalega góð hér í höfuðborginni og ef ekki væri fyrir takmarkaða tíma dagsbirtunnar þá hefði maður helst haldið að það væri haust. En mikið finn ég til með Austfirðingum og hamfarirnar á Seyðisfirði eru skelfilegar. Elstu menn muna ekki annað eins. Las eða heyrði viðtal við e-n í fyrradag þar sem kom fram að til væru sagnir að svona gæti gerst á uþb 100 ára fresti. Þetta er þá svipað og með Suðurlandsskjálftana nema að því leiti að það var vitað um þá og fólk var undirbúið þótt það vissi ekki hvenær nákvæmlega þeir myndu ríða yfir. Hringdi í vinkonu mína á Egilstöðum seinni partinn í gær og þau hjónin urðu svo sannarlega vör við að eitthvað mikið væri í gangi, heyrðist í sírenum og mikið af þeim. Þau voru að sjálfsögðu með hugann hjá Seyðfirðingum, þekkja marga þar.

Annars gerði ég mest lítið eftir að ég kom heim úr vinnu í gær. Tók þó aðeins í prjónana mína og það er stutt í að enn ein tuskan "detti" af prjónunum. Horfði líka á stóran part af handboltaleiknum milli Danmerkur og Noregs, svakalega var hann spennandi.

18.12.20

Helgi og jólafrí framundan

Hef labbað alla daga til vinnu í vikunni. Í gær náðum við yfir 100.000 framleidd kort á nýju kortavélina sem tekin var í notkun seinni partinn í ágúst og tók alfarið við af gömlu vélinni í október. Höfðum alveg nóg að gera og stóðum í framleiðslu alveg til klukkan var byrjuð að ganga þrjú. Þá gengum við frá og ég "hljóp" heim til að ná í sunddótið mitt. Fyrsta ferðin í kalda pottinn í laugardalnum var klukkan korter yfir fjögur og var kalda potts vinkona mín akkúrat að byrja sína fyrstu ferð. Við fórum alls sex ferðir í kalda pottinn og ýmist í pott tvö, 42°C eða þann heitasta sem á að vera 44°C á milli. Kaldi potturinn var óvenjulega vinsæll og það kom fyrir að það myndaðist smá biðröð því ekki mega vera fleiri en sex í pottinum í einu. Ég ákvað annars að sleppa því alveg að synda. Var komin heim um sex og þar hélt ég áfram að slaka á þar til ég fór að sofa á ellefta tímanum. 

17.12.20

Labbað í og úr vinnu

Það er ótrúlegt en einnig mjög gott að geta gengið til og frá vinnu á strigaskóm þessa dagana. Legg yfirleitt af stað um eða rétt fyrir sjö á morgnana og það tekur mig rúmlega hálftíma að labba í vinnuna. Í gær var ég í bókhaldinu. Fengum tvö auka verkefni í gær, ekkert svo stór en annað þeirra entist alla vega til klukkan að verða hálftvö. Eftir það þá átti eftir að telja alla framleiðslu því ég lenti í vandræðum með eitt verkfærið og náði ekki út sumum talningablöðunum fyrr en ég var búin að fá aðstoð í gegnum TEAMS. Allt hafðist þetta þó og svo hjálpuðumst við vinnuhópurinn minn að við að telja, ein á talningavélunum og við vorum tvær í að staðfesta. Labbaði heim beint yfir Skólavörðuholtið.

Stoppaði ekki lengi heima og var mætt í sund rétt fyrir fjögur. Náði að synda 300metra áður ég fór að pottormast með kalda potts vinkonu minni. Fórum sex ferðir í pottinn og yfirleitt þann heitasta á milli en eftir síðustu ferðina endaði ég á því að fara í gufu.

Eftir að ég kom heim aftur skrifaði ég á fimm jólakort og horfði á seinni hálfleik milli Liverpool og Tottenham. Klukkan var rétt orðin tíu er ég fór upp í en ég las í amk hálftíma. Er að lesa hina bókina eftir Rögnu Sigurðardóttur, smásögusafn en bókin kom út í fyrra og ber titilinn Vetrargulrætur. Sögurnar eiga að gerast á misjöfnum tíma en það er visst sameiginlegt þema í þeim öllum. 

16.12.20

Saumaklúbbur

Fór af stað, gangandi til vinnu, um sjö í gærmorgun. Var mætt um hálfátta. Daglegu verkunum var lokið um klukkan eitt. Gerðum viðeigandi ráðstafanir um hvernig væri hægt að ná sambandi við okkur amk til hálffjögur en fórum að því búnu heim. Rétt fyrir fjögur var ég komin í sund. Synti 200metra en þá var kalda potts vinkona mín mætt og við fórum saman sex ferðir í kalda pottinn og þann heitasta á milli. Eftir síðustu ferðina í þann kalda skyldu leiðir og ég sat í gufunni í uþb tíu mínútur. Áður en ég fór heim eftir sundið gerði ég mér ferð í Hagkaup í Skeifunni.

Það var 100% mæting til mín í saumaklúbb um kvöldið. Önnur kom gangandi neðan úr bæ og var mætt hálfátta. Hin sendi skilaboð að hún yrði aðeins sein fyrir en hún var mætt um hálfníu. Tíminn leið extra hratt, nóg spjallað, mikið hlegið en við slóum samt ekki slöku við í föndrinu. Áður en við vissum af var klukkan langt gengin í ellefu. Sú sem mætti síðar á svæðið skutlaði þeirri sem kom gangandi þannig að þær kvöddu mig báðar í einu. 

15.12.20

Sundkortið virkar líka í Nauthólsvík

Ég var vöknuð tuttugu mínútum áður en vekjaraklukkan átti að hringja í gærmorgun. Dreif mig fljótlega á fætur og tók mig til fyrir daginn. Labbaði af stað í vinnu um sjö og þar sem heilsuforritið á símanum virtist ekki vera byrjað að telja skrefin mín prófaði ég að stilla forritið á göngutúr rétt áður en ég lagði af stað. Forritið lét mig vita  þegar ég var búin að ganga kílómeter og aftur þegar komnir voru tveir. Og skrefateljarinn var svo sannarlega að virka og hélt því áfram eftir að ég "sagðist" vera komin í mark og slökkti á gönguferðarforritinu. Vinnudagurinn var léttur, eingöngu dagleg verkefni fyrir utan smá gjafakortaframleiðslu í hádeginu. Hefðum verið búnar um hálftvö ef ekki hefði verið fyrir stíflu á einum stað og verkefni sem yfirleitt er lokið fyrir ellefu kom ekki til framleiðslu fyrr en langt á þriðja tímanum. En þetta var í góðu lagi því ég fann mér smá verkefni á meðan ég var að bíða. Fékk far heim úr vinnu með Garðabæjarsamstarfskonu minni og var komin heim upp úr klukkan þrjú. Tæpum tveimur tímum seinna var ég tilbúin þegar sjósundsvinkona mín og nafna hennar sóttu mig. Fékk grænt ljós þegar ég veifaði sundkortinu mínu á búnað sem nýlega er búið að festa á einn vegginn rétt hjá þar sem afgreiðslan er. Við mættum fimm úr hópnum, nóg pláss í kvennaaðstöðunni, fullt að plássi í 2,1°C sjónum þar sem við svömluðum um í uþb fimm mínútur og það var líka gott pláss í heita pottinum. Var komin heim aftur rétt upp úr sex. Gærkvöldið notaði ég svo meðal annars til að skrifa á 6 jólakort.

14.12.20

Sundferð og göngutúr í gær

Var eitthvað seinni á fætur heldur en ég ætlaði mér í gærmorgun og varð því frekar lítið úr verki fyrsta klukkutímann. Um hálftíu var N1 sonurinn ekki kominn fram og þar sem ég heyrði engin hljóð frá herberginu hans um að hann væri að vakna hringdi ég í hann. Hann hafði víst snúsað vekjaraklukkuna og svo slökkt á henni óvart og steinsofnað aftur. Hann var samt mættur á vakt fimm mínútum fyrir tíu. Áður en ég fór heim aftur dreif ég mig í sund. Byrjaði á einni ferð í kalda pottinn og synti 500 metra. Hitti yngstu mágkonu mömmu heitinnar en við syntum af stað á sama tíma.

Kom heim um tólf. Tæpum þremur tímum seinna fór ég aftur út í  4 km göngutúr á þremur korterum. Mætti einni frænku minni á hlaupum, hún er dóttir þeirrar sem ég hitti í sundinu. Annars var dagurinn nokkuð rólegur. Skrifaði á fjögur jólakort og er þá búin að skrifa á tæplega helminginn. 

13.12.20

Í sjóinn í gærmorgun

Þar sem ég var  komin á fætur á undan N1-syninum í gærmorgun bauðst ég til að skutla honum. Hann átti að mæta klukkan átta upp á Gagnveg og var komin tvær mínútur fyrir. Ég fór beint heim aftur og fékk sama stæði fyrir framan. Settist beint inn í stofu og kveikti á fartölvunni. Um hálftíu leytið bjó ég mér til hafragraut. Klukkutíma síðar fór ég að undirbúa mig undir sjósundsferð, fór í sundbolinn innan undir fötin og klæddi mig einnig í sjósundssokka og strandskó. Á meðan ég beið eftir sjósundsvinkonu minni fram í gangi kom fráfarandi nágranni í risinu fram og spjallaði við mig í nokkrar mínútur.

Við voru fjórar mættar í röðina í Nauthólsvík korter fyrir opnun. Á meðan það var lokað var sett upp nýtt kerfi. Nú er hægt að nota árskortið í sund sem aðgangskort inn í búningsaðstöðuna líka. Ég var bara með litla plastkortið sem ég fékk afhent þegar ég skilaði inn armbandinu frá í vor um miðjan ágúst. En það var nóg því á því voru upplýsingar til að setja inn í tölvukerfið og næst þegar ég fer í sjóinn á árskortið að virka. Vorum tæpar fimm mínútur í rúmlega tveggja gráðu heitum sjónum og svo var svo ljúft að geta flatmagað um stund í heita pottinum.

Þegar ég kom heim aftur byrjaði ég á því að hita mér kaffi. Um hálftvö hrærði ég í vöffludeig og klukkutíma síðar gafst ég upp á að bíða eftir að hinn sonurinn kæmi sér á fætur og bankaði á herbergisdyrnar hjá honum. Hellti mér aftur upp á kaffi til að drekka með vöfflunum.  Klukkan langt gengin í fjögur dreif ég mig loksins í hálftíma gönguferð um hverfið.

Annars náði ég að klára bréfið til frænku minnar á Fjóni. Skrifaði á tvö jólakort í viðbót og er þá búin að skrifa á alls sjö jólakort. Sennilega Uþb 20 óskrifuð enn, en ég er ekkert stressuð yfir því. Eina sem stressar mig er að ég veit ekkert hvað ég á að gefa strákunum mínum í jólagjöf. 

12.12.20

Fjögurhundruð metrar

Hefði haldið að ég ætti að sofa eins og engill í fyrrinótt eftir fyrstu sundferð í tvo mánuði. Ég synti reyndar ekki nema 200 metra en sennilega var ég spennt yfir að  komast í sund strax daginn eftir. Við kalda potts vinkona mín höfðum mælt okkur mót um tíu í gærmorgun. Við vorum báðar komnar uþb korteri fyrr og hittumst á leiðinni í sturtu. Fyrsta sem við gerðum er út var komið var að fara í pott númer tvö sem er 42°C. Rétt seinna kom í pottinn maður sem heilsaði og kynnti mig fyrir sér sem mann sjósundsvinkonu minnar. Þar með er ég búin að hitta alla hennar nær fjölskyldu. Við Hrafnhildur fórum sex ferðir í þann kalda og yfirleitt þann heitasta á milli. Eftir sjöttu og síðustu ferðina fór ég þó beint út í laug og synti helmingi meira en í fyrradag eða 400 metra á tæpu korteri.

Eftir sundferðina skrapp ég aðeins í Kringluna á tvo staði en reyndar í sömu búðina. Kom heim um það leyti sem hádegisfréttir voru að byrja og ég hlustaði á þær áður en ég fékk mér hádegishressingu og hellti mér upp á fyrsta kaffibolla dagsins, vel sterkan.

Byrjaði á jólabréfinu til frænku minnar á Fjóni en þrátt fyrir að það væri á móðurmálinu náði ég ekki að ljúka við það. Var ekki í nógu góðu skrifstuði í gær.

 um helgina er ég að fá nýjan nágranna í risið. Sú sem hefur verið þar undanfarin nokkur ár er búin að selja og kaupa sér nýja eign í vestur hluta Kópavogs. Hún er að flytja í dag og lét mig vita í gær. Hún upplýsti mig einnig um hver væri að kaupa af henni svo ég, sem gjaldkeri húsfélagsins, gæti gert viðeigandi ráðstafanir og breytingar. Ég sendi upplýsingarnar á þjónustufulltrúa minn í bankanum um hálftvöleitið í gær og innan við hálftíma síðar var þetta komið í gegn. Þjónustufulltrúinn bað mig í staðinn að fara inn í fyrirtækjabankann og svara áreiðanleikakönnun sem ég gerði strax.

Lauk loksins við að lesa fyrstu bókina af fimm af safninu í gærkvöldi. Er ekki byrjuð á annarri bók og heldur ekki búin að fitja upp á nýrri tusku en þetta stendur allt til bóta. 

11.12.20

Tvöhundruð metrar

 Hafði mig nokkuð hæga framan af degi í gær. Davíð Steinn kom fram um hálftíu. Þá var ég búin að ákveða að búa til hafragraut. Hann þáði boðið um á fá af grautnum. Lauk við danska jólabréfið og skrifaði á eitt jólakort að auki. Bræðurnir fóru í Sorpuferð um tvö leytið og ráku nokkur önnur einkaerindi í leiðinni. Ég skrapp í stutta gönguferð, uþb 2km, á meðan ég beið eftir að þeir kæmu með bílinn til baka. Rétt fyrir fjögur var ég svo mætt í Laugardalslaugina eftir tveggja mánaða hlé. Kalda potts vinkona mín hafði samband við mig um leið og fréttist af að ætti að opna aftur í gær og spurði hvort við ættum að hittast á þessum tíma í gær. Ég var semsagt alls ekki ein af þeim sem hékk á hurðarhúninum í gærmorgun þótt ég hefði getað. Það var engin biðröð í að komast inn, allir með grímur í anddyrinu og svo sá maður breiðu brosin á samferðafólkinu þegar út var komið. Við fórum alls sex ferðir í þann kalda sem er amk 6 gráðum hlýrri en sjórinn. Eftir pottaferðirnar synti ég 200m áður en ég fór upp úr. Á heimleiðinni kom ég örstutt við á tveimur stöðum, fyrir utan pósthúsið í Síðumúla til að setja tvö kort í póstkassann og til norsku vinkonu minnar að skila af mér tómu jólakökuboxi og fá annað fullt í staðinn. Hún hefur gefið mér sykurlausar smákökur nokkur undanfarin jól og hafði samband um daginn til að láta mig vita að það væri engin breyting á því þetta árið ef ég myndi bara skjótast og ná í þetta. Davíð Steinn sá um að elda kvöldmatinn á meðan gat ég horft á fréttirnar og fellt af enn einni afgangatuskunni. Hversu heppin manneskja er ég með samferðafólkið í kringum mig? Ég er endalaust þakklát.

10.12.20

Smá tilslakanir

Það gekk brösuglega að komast jólabréfaskrifstuð á dönsku í gær. Tók mig nánast allan daginn og fann mér ýmislegt annað til dundurs á meðan, ekkert endilega hjálplegt dundur. Skrifaði utaná umslagið og inn í jólakortið en það var ekki fyrr en um hálfellefu í gærkvöldi sem ég byrjaði almennilega á bréfinu. Þremur korterum seinna lagði ég frá mér pennann, aðeins hálfnuð með bréfið, ákveðin í að vera í meira skrifstuði í dag. Þrátt fyrir að klukkan væri farin að ganga tólf ákvað ég að lesa í smá stund þegar ég var komin upp í. Auðvitað gleymdi ég alveg að fylgjast með tímanum og las fram yfir miðnætti. Ákvað að prófa að stilla á mig vekjaraklukkuna á 7:40. Sofnaði fljótt og svaf í einum dúr til klukkan sjö. 

9.12.20

Svefnpurka

Undanfarna daga hef ég stillt vekjaraklukkuna á 7:20 en alltaf verið vöknuð á undan. Í gærkvöldi ákvað ég að sleppa því að stilla á mig klukkuna. Fór upp í um ellefu og las í einni bók af safninu til klukkan hálftólf. Var sofnuð fyrir miðnætti. Vissi næst aðeins af mér um miðja nótt. Þurfti ekki og fór ekki framúr. Var ekki mikið að bylta mér en hugurinn var eitthvað á sveimi í einhvern tíma. Síðasta sem ég man var að ég hugsaði að ég ætlaði ekki á fætur fyrr en klukkan væri orðin amk sjö. Er ekki viss hvenær þessi hugsun flaug í gegn, var ekkert að fylgjast með tímanum en næst vissi ég af mér klukkan níu svo ég hef steinsofnað á endanum.

Í gærmorgun var ég vöknuð fyrir hálfsjö og komin á stjá uþb klukkutíma síðar. Það tók mig smá tíma að komast í skrifgírinn en ég lauk við enska jólabréfið, jólakortið með því og skrifaði á annað jólakort. Hefði getað skroppið með þetta á pósthúsið fyrir hádegi en ég fór ekki fyrr en um þrjú. Biðröð af bílum og fólki var fyrir utan pósthúsið í Síðumúla svo ég lagði fyrir framan Verkfærasöluna og fór í biðröðina fyrir framan pósthúsið. Fjórir voru á undan mér í röðinni og tíu inni. Þetta gekk samt nokkuð hratt fyrir sig. Þegar afgreiðsluröðin kom að mér varð ég mér úti um 2 frímerki til evrópu og 20 innanlands til að taka með mér. Áður en ég fór heim aftur kom ég við í Krónunni við Nóatún.

Ég skrifaði ekki fleiri bréf né jólakort í gær og þar að auki hellti ég mér aðeins einu sinni upp á könnuna, um tíu í gærmorgun svo ég er að uppgötva að það eru meira en 24 tímar síðan ég drakk kaffi síðast. Þessu verð ég að bæta úr sem fyrst. En að lokum ætla ég aðeins að nefna bókina sem ég er að lesa og hef pottþétt fengið að láni og lesið áður; Hið fullkomna landslag eftir Rögnu Sigurðardóttur. Ein af hinum bókunum fjórum er líka eftir Rögnu. Meira um það síðar.

8.12.20

Á bókasafnið

Þegar ég var búin að vafra, blogga og leika mér nóg í gærmorgun opnaði ég á google translate og tók aftur til við að skrifa fyrsta jólabréf þessa árs. Ég var komin með eina handskrifaða blaðsíðu. Ætlunin var að klára bréfið og jólakortið sem fylgja á með og kaupa frímerki á amk 20 jólakort í viðbót þegar ég færi með það í póst. Og það átti helst að gerast í gær. Skrifaði tvær blaðsíður í viðbót og var hvergi nærri búin þegar ég ákvað að fresta þessu verkefni aðeins og skreppa á bókasafnið um stund rétt upp úr hádeginu.

Þar sem ég var með tíu bækur til að skila skipti ég þeim í tvo poka en ég var ekki með hugmyndaflug í að nota tækifærið og gera þetta að göngutúr í leiðinni. Setti á mig aðra af grímunum sem sjósundsvinkona mín gaf mér og brunaði svo á bílnum upp í Kringlu. Einhverjir voru komnir á safnið en þó ekki fleiri en tíu svo það var engin röð fyrir utan. Sprittaði á mér hendurnar og afgreiddi bækurnar inn á safnið. Gaf mér smá stund í að leita uppi nýjar bækur til að lesa og fann fimm sem ég tók með mér. Setti þær í bókasafnspokanum í skottið á bílnum og ákvað að taka einn hring í Kringlunni. Var með tvo staði í huga til að kíkja inn á en það var röð fyrir framan þá báða sem lengdist ef eitthvað var svo ég ákvað að hverfa frá að sinni, fara heim og hella mér upp á seinni tvo kaffibolla dagsins.

Rétt fyrir hálfsex sótti sjósundsvinkona mín mig. Hún var búin að sækja nöfnu sína og við hittum systurnar á stæðinu við Nauthólsvík. Það var fjara og mikið farið að dimma. Systurnar og nafnan ákváðu að klæða sig upp við húsið en við Helga Rún tókum af okkur á steinunum í fjörunni, nær ljósinu og þeim meginn sem við erum ekki vanar að setja frá okkur dótið. Sjórinn var um það bil ein gráða og við svömluðum um í ca 3-4 mínútur. Það var búið að skila mér heim aftur um sex. 

7.12.20

Löngu vöknuð

Í gær var ég komin á fætur um átta. Eftir morgunverkin á baðinu fór ég beint í stofuna og sat þar í sófanum með fartölvuna í fanginu í hátt í tvo tíma. Rétt fyrir tíu hellti ég mér upp á kaffi og fékk mér lýsi og harðsoðið egg. Um klukkustund síðar sótti sjósundsvinkona mín mig. Að þessu sinni lá leiðin á Jómfrúna þar sem við sóttum þrjá fyrirfram pantaða jólaplatta sem við tókum með okkur til nöfnu hennar. Þangað mættu einnig systurnar svo við vorum fimm sem deildum þessu saman. Vorum allar með grímur þar til sest var að borðum. Þessir þrír plattar dugðu fyrir okkur fimm og vel það því við gátum ekki klárað og hvað mig varðar var ég södd alveg fram á kvöld.

Kom heim á þriðja tímanum. Hafði ætlað að skreppa á bókasafnið og skila öllum tíu bókunum. Fékk áminningu rétt fyrir helgi um að skiladagur væri að nálgast. Lokafrestur er í dag svo ég er alveg róleg. Safnið opnar klukkan tólf og er opið til klukkan fimm. Fór ekkert út aftur í gær en náði loksins að byrja á fyrsta jólabréfinu. Er að skrifa til ensku vinkonu minnar og jafnöldru. Náði ekki að ljúka við bréfið en ég er að fara að vinda mér aftur í málin. Ætla bara að hella upp á smá kaffi fyrst.

6.12.20

Sunnudagur

Já, ég var vöknuð fyrir klukkan sex í gærmorgun. Gafst upp á að berja mig niður aftur nokkru áður en klukkan varð sjö og fór á fætur. Hitti aðeins á Odd Smára en hann labbaði af stað í vinnuna nokkrum mínútum áður en klukkan varð hálfátta. Ég var sest í stofusófann með fartölvuna sem Davíð Steinn lánaði mér fyrir nokkru síðan. Um hálftíu leytið bjó ég mér til hafragraut og hellti upp á kaffi. Rúmum klukkutíma seinna var ég búin að græja mig upp í sjósundsferð. Ég var sótt skömmu síðar og við hittumst þrjár úr hópnum á bílastæðinu við Nauthólsvík um ellefu. En það voru mikið fleiri heldur við á svæðinu, sennilega um tuttugu manns. Það var aðeins að byrja að fjara út og nóg í lóninu. Við skildum dótið okkar eftir á bekk við útisturtu svæðið og óðum út í lónið. Erfitt var að mæla hitastigið en þrátt fyrir flóð var lónið örugglega aðeins heitara heldur en sjórinn fyrir utan lón því það kom í ljós að það streymdi heitt vatn í heita pottinn og þar mældist hitastigið 28°C. Fórum ekkert út fyrir lónið, svömluðum þar í rúmar fjórar mínútur og vorum svo nokkrar mínútur í pottinum. Þrátt fyrir hóp af fólki var alveg verið að passa upp á fjarlægð, það gerðist einhvern veginn ósjálfrátt. Var komin heim um hálftólf og fór beint í sturtu og þvoði mér m.a. um hárið. Var búin að hella mér aftur upp á kaffi áður en ég kveikti og hlustaði á hádegisfréttir.

Fór ekkert út úr húsi aftur. Hringdi aftur í pabba að segja honum frá RB-gjöfinni og skilaboðunum. Prjónaði, horfði á brot úr fótboltaleikjum dagsins og seríuþætti úr premium. Fann til skrifblokk og penna en komst ekki í bréfaskrifastuð í gær. Hringdi í tvíburahálfsystur mína í gegnum facebook-spjallið og vorum við með myndavélina í símunum opnar til að sjá hvor aðra. Það var bæði gott að heyra í henni og sjá hana. 

5.12.20

Vaknaði heldur snemma

 Var ekki með broddana undir skónum þegar ég arkaði til vinnu í gærmorgun. Það var líka alveg óþarfi en ég hafði þá meðferðist til öryggis. Við samstarfskonurnar lögðum allt kapp á að ljúka framleiðslu, frágangi á deild þar með talið sótthreinsun á sameiginlegum snertiflötum og punktum fyrir þau sem taka við í næstu viku í fyrra fallinu. (Vá, þetta var frekar löng setning.) Gáfum okkur þó góðan tíma í kaffi og hádegispásum. Sú sem átti afmæli sl. mánudag bauð upp á súkkulaðiköku frá McCain í báðum pásunum. Ég freistaðist ekki til að smakka en féll fyrir after eight súkkulaðinu og fékk mér einn með kaffinu í pásunum. Klukkan var rétt byrjuð að ganga þrjú þegar við urðum allar þrjár samferða út af vinnustaðnum. Fékk far heim. Báðar hefðu þær viljað skutla mér en ég þáði farið með þeirri sem var á undan að spyrja. Hin var búin að kippa mér með hina þrjá dagana. Þessi vinnuvika leið mjög hratt. Fljótlega eftir að ég kom heim kom umslag merkt mér inn um lúguna. Í umslaginu var þriggja laga gríma með RB-logoinu (sem má þvo á 60°C) og hvetjandi skilaboð og þökkum fyrir að hafa staðið mig frábærlega í starfi síðustu mánuði. Já, takk kærlega!

4.12.20

Vinnudegi lokið í fyrra fallinu

Setti mannbroddana undir gönguskóna í gærmorgun og labbaði á þeim alla leið í vinnuna. Eiginlega var engin hálka eftir og þar sem voru smá svell var hægt að sveigja framhjá. Aftur á móti blés Kári sterklega á móti góðan part af leiðinni og var nokkuð sterkur á köflum þegar ég var að labba Skúlagötuna. Nýja úlpan mín er mjög góð í svona kuldabola og hraðferð á logni og ég komst í vinnu heilu og höldnu, 3 km á uþb 34 mínútum. Vinnudagurinn gekk vel fyrir sig og leið jafn hratt og undan farnir dagar og ég fékk enn og aftur far heim úr vinnunni upp úr klukkan fjögur. Heima tók ég því frekar rólega. Hringdi í pabba, vafraði um á netinu og setti inn tvöhundruðustuogfertugustu bloggfærslu ársins. Horfði á fréttir, Kiljuna og fleira í sjónvarpinu. Útbjó eggjaköku með afgöngum af soðnum fiski en það varð afgangur af þessum rétti þar sem hvorugur bræðranna fékk sér af honum. Það verða þá afgangar af afgöngum í matinn í kvöld. 

3.12.20

Líður á vikuna

Ég fann mannbroddana mína fljótlega eftir að ég kom heim úr vinnunni á mánudaginn var. Setti þá samviskusamlega í bakpokann og labbaði í vinnuna án þess að setja þá undir. Það voru mun færri hálkublettir heldur en á mánudaginn en þó einhverjir. Vinnudagurinn leið nokkuð hratt. Nóg af verkefnum en við tókum líka tvær góðar pásur, morgunkaffi um hálftíu og hádegishlé um hálfeitt fyrir utan að við byrjum oft vinnudaginn á því að setjast niður frammi í kaffi stofu rétt fyrir átta og leyfum stóra vísinum að fara aðeins framhjá 12. Sú sem var í bókhaldsvinnunni í gær er sú sem sér um mánaðamótareikningagerðina þegar mánaðamótin lenda á okkar hóp. Fyrir utan daglegur verkin sat hún iðin við að taka saman og finna til tölur og leita uppi svör við skrýtnum færslum. Við hin framleiddum til klukkan hálffjögur en þá tókum við saman og gengum frá. Ég fékk far heim úr vinnunni. Engin var heima því strákarnir voru báðir á vakt. Restin af deginum og kvöldið fór í alls konar, bæði netvafr, prjónaskap og sjónvarpsgláp. 

2.12.20

Á bíl í gær

Fór á bílnum í vinnuna í gærmorgun. Eins og kom fram í pistli gærdagsins var ég í bókhaldinu í gær. Það að vera í bókhaldinu fyrsta virka dag mánaðarins er aðeins meiri vinni heldur en aðra daga. Ég var því aðeins lengur að ljúka við verkefnin. En rétt um tvö var ég búin með mitt hlutverk og þá leysti ég þá samstarfsstúlku mína af sem sér um mánaðamótareikningagerðina ef mánaðamót lenda á okkar hóp. Var á framleiðsluvélinni með hinni samstarfskonunni til klukkan var orðin rúmlega hálffjögur. Framleiddum 900 kort á þessum tíma. Það tekur smá tíma að ganga frá eftir daginn og klukkan var orðin fjögur þegar ég settist aftur upp í bíl.

Heyrði lýsingu á síðustu mínútum landsleiks kvennaliðsins í knattspyrnu sem fór 1:0 fyrir Íslandi og það var svo staðfest eftir aðra leiki að stelpurnar væru komnar beint á EM sem eitt af þremur bestu liðunum sem lentu í öðru sæti. Vel gert.

Fór með bílinn í gegnum bílaþvottastöðina Löður við Granda og fór þaðan alla leið að Atlantsolíustöðinni við Sprengisand og Bústaðaveg til að fylla á tankinn. Var komin heim um fimm og fékk stæði fyrir framan. 

1.12.20

Fullveldisdagurinn

Í gærmorgun labbaði ég af stað í vinnuna um sjö. Var á gönguskónum. Veðrið var mjög gott en færðin sumstaðar varhugaverð á leiðinni. Ég hefði eiginlega átt að setja mannbroddana undir. Ég var ekki búin að finna þá en sem betur fer komst ég alla leið í vinnuna á rúmum hálftíma án þess að detta. Skrikaði aðeins fótur tvisvar sinnum en hélt jafnvægi og passaði mig bara að taka stutt og hæg skref á stöðum þar sem ekki var búið að sanda eða salta og ekki hægt að fara út fyrir. Dágóður partur af leiðinni var auður þar sem hiti er undir svo ég var ekki í hægagangi alla leiðina.

Við í okkar hóp erum löngu komnar í rútínu sem rúllar áfram og við vitum alveg hvernig verkefni dagana skiptast þrátt fyrir viku pásur á milli. Ég endaði í "ljósmóður"-störfum á vélinni síðast þegar við vorum að vinna, í gær var ég á hinum enda framleiðsluvélarinnar að hlaða inn verkefnum og troða í og í dag var ég í bókhaldinu. Vorum að framleiða til klukkan að verða fjögur í gær. Lentum í smá veseni fyrsta klukkutímann, vélin vildi alls ekki framleiða nokkrar ákveðnar tegundir og það var ekkert sem við gátum gert í því nema hringja í "vin". Sá kannaðist við að það hafi verið að breyta e-u sl. föstudag. Hann kom fljótlega og náði að laga málin þannig að hægt var að framleiða allar tegundir. Yfirleitt höfum við tímann til klukkan tíu til að ljúka fyrsta verkefni dagsins og við náðum akkúrat að klára klukkan tíu í gærmorgun. Sá sem sækir viðkomandi tösku hafði hins vegar mætt klukkan hálftíu, kom fýluferð því við vorum nokkuð vissar um að klára innan tímamarka og töldum okkur ekki þurfa að tilkynna um hugsanlega seinkun.

Tókum kaffipásu í seinna lagi eða upp úr klukkan tíu og var veisla borin á borð þar sem önnur samstarfkvenna minna átti afmæli. Það var svo framhaldsveisla í hádeginu, um hálfeitt. Fleiri pásur tókum við ekki en eins og fyrr segir hættum við ekki framleiðslu fyrr en rétt fyrir fjögur. Það er nóg af framleiðsluverkefnum í gangi.

Fékk far heim úr vinnunni og var komin heim um hálffimm. Þá var ég búin að ákveða að sleppa sjósundsferð en þrjár úr hópnum mínum hittust í Nauthólsvík um fimm og var sjórinn innan við gráðu heitur.

30.11.20

Síðasti dagurinn í næstsíðasta mánuði ársins

Ég var komin á fætur á undan N1 syninum í gærmorgun. Bjó til hafragraut fyrir tvo um níu leytið og borðaði annan skammtinn sjálf. Bauð vinnusyninum að borða hinn helminginn en hann gaf sér ekki tíma í það heldur fór í snögga sturtu áður en ég skutlaði honum á vakt upp á Gagnveg fyrir klukkan tíu. Fór beint heim aftur að undirbúa mig undir sjósundsferð. Var sótt rétt fyrir ellefu og vorum við fjórar úr hópnum okkar sem svömluðum saman í uþb sjö mínútur í Nauthólsvík í gærmorgun. Þegar ég kom heim fór ég beint í sturtu og þvoði á mér hárið. Setti svo sjósundsdótið á stutt 30°C prógram. Fór ekkert aftur út í gær og byrjaði heldur ekki að skrifa nein jólabréf. Horfði svolítið á fótbolta og einhverja þætti úr premium. Hafði lasanja í kvöldmatinn og var með forrétt og eftirrétt frá RB/SRB veislunni frá því á föstudaginn. Í forrétt var ofnbakaður gullostur með möndlumauki. Leyfði strákunum að eiga eftirréttinn sem var góður biti af súkkulaðiköku sem var hitaður uþb 10 mínútur í 180°C ofni. Ofan á þetta var sett einhverskonar eplasallatblanda og köld vanillusósa á eftir. 

29.11.20

Sjóbað á sunnudegi

Sjósundsvinkona mín var af fagna 85 ára afmæli föður síns með nánasta fólkinu í gær svo það varð úr að við færðum sjóbuslið til sunnudags. Eftir að hafa skutlað Davíð Steini í vinnuna var ég að velta því fyrir mér að taka fram penna og blað og byrja á fyrsta jólabréfinu af þremur. Það fór nú samt svo að ég hugsaði aðeins um þetta verkefni og notaði tímann í annað. Ég ætlaði líka að skreppa út í smá göngu en það varð ekkert heldur af því. Kláraði eina afgangatusku og byrjaði á annarri, horfði á fótbolta og einnig Castle-þætti. Er á nokkrum vikum búin að horfa á alla þættina sem ég horfði einnig á á sínum tíma. Hafði steikta þorskhnakka í kvöldmatinn með soðnu blómkáli og kúlukáli. Horfði svo, aldrei þessu vant, á allan #heimameðhelga þáttinn, styrkti mæðrastyrk í leiðinni og tístaði um það einu sinni. Tístið birtist á skjánum og var það verulega skondið. Var reyndar næstum því búin að missa af því þar sem ég var eitthvað að vafra um á netinu á símanum.

28.11.20

Laugardagur

Mér fannst fyrst í morgun sem það væri sunnudagur. Var vöknuð alltof snemma og komin á fætur rúmlega sjö. Skutlaði N1 syninum í vinnuna þannig að hann var mættur rétt fyrir átta en ekki tuttugu mínútur yfir eins og hann hefði gert ef hann hefði farið með fyrstu mögulegu strætóferð.

Um tíu leytið, eða korter yfir, í gærmorgun sópaði ég af bílnum og brunaði svo upp á Gagnveg til að sækja N1 soninn og skutla honum í tannlæknatíma. Beið með hann fyrir utan Valhöll þar til hringt var í hann og honum tilkynnt að hann mætti mæta inn. Þá fór ég heim. Davíð Steinn tók strætó aftur í vinnuna þegar hann var búinn með þennan fyrsta tíma hjá tannsa. Hann fékk næsta tíma strax á mánudaginn en þá verður hann í vaktafríi og getur reddað sér sjálfur.

Um eitt vakti ég hinn soninn og bað hann um að gerast einkabílstjórinn minn að sækja matarpakka í K2 vegna jólagleði RB og SRB. Oddur beið úti í bíl á meðan ég skrapp inn. Ég var með grímu og fylgdi leiðbeiningum alveg þar til ég var að fara út aftur með vörurnar. Fólk var nefnilega helst beðið um að fara ekki út á sama stað og það kom inn en ég svindlaði þar en þar sem ég mætti ekki neinum að koma rétt á meðan verða engar afleiðingar af þessu svindli.

Klukkan hálfsjö loggaði ég mig inn á workplace á fartölvunni og smellti á link sem opnaði fyrir opið streymi á viðburð SRB sem tekið var beint upp í Gullhömrum. Dagskráin stóð í einn og hálfan tíma. Hægt var að taka þátt í net-kvizzi en ég sleppti því. Fylgdist bara með fínnri skemmtidagskrá. upp úr klukkan sjö hitaði ég ofninn og þegar hann var orðinn 160°C heitur setti ég kalkúnbita og hnetusteik saman í fati og hafði inni í rúman hálftíma. Þegar ég tók þetta út setti ég inn sætkartöflumeðlætið inn og hellti sósu úr krukku í pott og hitaði. Maturinn var akkúrat tilbúinn þegar Davíð Steinn kom heim úr vinnunni. Ákvað að geyma forrréttinn og eftirréttinn þar til síðar, forréttinn, gullost bakaðan með dölublandi í vel heitum ofni í nokkrar mínútur, handa mér og eftirréttinn, súkkulaðikökubitar, handa bræðrunum.