Gærmorguninn fór að mestu í rólegheit og tölvuleiki. Upp úr hádeginu ýtti ég við einkabílstjóranum. Hann tók saman það sem átti að fara í sorpu á meðan ég gerði innkaupalista. Hann setti mig út við Krónuna við Granda um tvö. Þegar ég kom út með vörurnar var hann búinn að fara með ruslið. Komum við á tveimur öðrum stöðum áður en við fórum aftur heim. Fengum stæði fyrir framan. Oddur gekk frá vörunum. Davíð Steinn var búinn að ryksuga fram á palli, eldhús- og baðherbergisgólf. Oddur sá um að ryksuga holið og stofuna. Ég settist með prjónana mína fyrir framan skjáinn og horfði á körfuboltalandsleikinn, amk að hluta. Um hálffimm var ég búin að hella upp á fullan brúsa af kaffi og stuttu síðar kom nafna mín og systurdóttir mömmu í heimsókn beint úr vinnunni. Hún vinnur sem leikskólakennari í leikskóla í Mosfellsbæ. Tíminn flaug. Nafna mín kvaddi á áttunda tímanum eftir mjög gott spjall og staðfestingu á að næsti hittingur yrði hjá henni eftir rúmar tvær vikur.
27.11.20
26.11.20
Komin heim
Vaknaði í gærmorgun þegar klukkan var að nálgast níu. Það var ennþá mjög dimmt úti en ég heyrði að pabbi var kominn á stjá og dreif mig á fætur eftir mjög góðan nætursvefn. Fékk mér eina mandarínu, lagði nokkra kapla og sat svo góða stund með prjónana mína inni í stofu. Pabbi bauð mér með sér á Kanslarann í hádeginu og við vorum mætt þar um það leyti sem er opnað um hálftólf. Fengum sveppasúpu, steiktan fisk með gufusoðnu grænmeti, kartöflum sallati og lauksmjöri og svo kaffi á eftir. Herramannsatur, alger veisla. Það komu tveir viðskiptavinir inn rétt eftir að við pabbi vorum byrjuð að borða. Mér fannst ég kannast við annan þeirra en var ekki viss þar sem það er grímuskylda þar til maður sest niður við borðin. Örstuttu síðar er kastað á mig kveðju og það reyndist vera þessi sem ég kannaðist við, bekkjarbróðir úr grunnskóla sem var sveitastrákur hjá föðurbróður mínum í nokkru ár frá því við vorum 10 ára.
Við pabbi vorum komin aftur í Hólavanginn rétt fyrir tólf. Tíminn flaug þrátt fyrir að ég væri ekki að gera neitt sérstakt. Jú, ég prjónaði meira, fór í kaplakeppni við pabba og var líka góða stund í einni tölvunni hans, bæði að leika mér og blogga. Strax eftir kaffitímann tók ég mig saman. Tók með mér fjögur þorskhnakkaflök og frosin krækiber. Var komin heim fyrir klukkan sex og fékk stæði fyrir framan.
Ég er mikið fegin að vera búin að búa til jólakortin þetta árið og veit að það væri skynsamlegast að fara að vinna í að skrifa á þau og einnig árlegu jólabréfin þrjú sem eru á íslensku, dönsku og ensku. Það er frívakt hjá báðum sonunum. Það þarf að fara í Sorpu- og verslunarferð í dag og seinni partinn á ég von á nöfnu minni í heimsókn.
25.11.20
Á Hellu
Það eru næstum því tveir mánuðir síðan ég skrapp í heimsókn til pabba síðast. Hef verið að fylgja fyrirmælum og einnig bíða eftir því að smitum fækki og að helst sem fæstir greindir utan sóttkví. Líklega hefði ég mátt bíða miklu lengur eftir "réttu" tölunum. Ég þurfti að koma hundabúri í geymlsu og var einnig viss um að jólakortaframleiðsluandinn kæmi betur yfir mig á Hellu svo ég notaði það sem kærkomna afsökun fyrir því að skreppa og vera yfir nótt. Vakti Odd Smára um hálftólf til þess að kveðja hann og lagði svo fljótlega í hann. Þá var orðið enn lengra síðan ég stoppaði síðast við í Fossheiðinni og ég ákvað að koma við þar og stoppa í ca einn kaffibolla eða tvo.
Var komin á Hellu upp úr klukkan tvö. Fram að kaffi vorum við pabbi í kaplakeppni en strax eftir kaffi tók ég fram jólakortaföndrið. Var búin að skera niður slatta af örkum í nokkrum litum en átti eftir að brjóta niðurskorninginn í kortastærð. Ég átt til nothæft lím frá í fyrra og hvítan pappír til að líma inn í lituðu arkirnar. Eitthvað átti ég líka af niðurklipptum myndum, gömlum jólakortum og helling af alls konar límmiðum. Það er skemmst frá því að segja að andinn kom svo sannarlega yfir mig. Pabbi ætlaði bara að fá sér snarl í kvöldmatinn og sagði að ég yrði að elda eitthvað handa mér. Ég gaf mér ekki tíma til að elda heldur fékk mér eitt harðsoðið egg og sneið af kaldri lifrarpylsu um hálfátta. Klukkan var að verða níu þegar ég tók föndrið saman og var ég þá komin með 28 kort sem er aðeins ríflega heldur en listinn segir til um.
Fitjaði upp á afgangatusku en fór svo aftur í smá kaplakeppni við pabba er þar til hann bauð góða nótt um tíu. Þá settist ég við tölvuna í einn og hálfan tíma áður en ég fór að sofa.
24.11.20
Ennþá dimmt úti
Klukkan er rétt orðin níu. Rúmir tveir tímar síðan ég vaknaði. Fór þó ekki á fætur fyrr en upp úr klukkan hálfátta. N1 sonurinn var farinn fyrir sjö líkt og í gærmorgun. Hinn sonurinn á ekki vakt fyrr en klukkan fjögur síðdegis svo það eru margir klukkutímar þar til hann rís úr rekkju. Hann hefur tekið þá ákvörðun að vinna allan uppsagnarfrestinn en það er rúmur mánuður eftir.
Gærdagurinn leið jafn hratt og allir aðrir. Það er búið að setja upp ljósaseríu á eitt tréð í garðinum eins og undanfarin ár. Yfirleitt hefur verið stungið í samband í kjallaraíbúðinni en nýjir eigendur eru á fullu að standsetja íbúðina svo ég gaf nágrannanum á hæðinni fyrir neðan að þræða snúruna inn um gluggann á hornberginu (Davíðs Steins herbergi) og stinga í samband í fjöltengi.
Rétt fyrir fimm var ég sótt af nöfnunum. Ég var tilbúin og við hittum systurnar á planinu við Nauthólsvík. Engin ferð var á logninu en sjórinn mældist innan við 2 gráður. Það var meiriháttar að svamla aðeins um í svölum sjónum og þessar mínútur sem við gáfum okkur voru alltof fljótar að líða. Ég var komin heim aftur rétt upp úr hálfsex og fór beint í sturtu.
Steikti afganginn af slátrinu, bland af báðu, og sauð kartöflur. Strákarnir fengu sér báðir að borða þegar þeir komu heim úr sínum vinnum á níunda tímanum. Einn frændi minn kom með vörur sem ég var að kaupa af honum til styrktar útskriftarsjóðs úr menntaskóla. Ég hafði pantað wc-rúllur, útikerti og fjölnota bökunarpappír.
23.11.20
Mánudagsmorgun
Það er svo sem ósköp lítið að frétta. Í gær var mikill rólegaheitadagur, þ.e. ég var mjög löt til allra verka. Fór rétt svo aðeins út til þess að færa bílinn úr stæði fyrir aftan heilsugæslustöðina og í stæði fyrir framan 19-21. Keyrði næstum heilan hring því það er einstefna í götunni. N1 sonurinn skrapp í heimsókn til félaga sem býr í Keflavík og tók hann strætó þangað. Veit ekki hvort hann fékk far heim eða tók strætó til baka því ég var komin upp í þegar hann kom heim um ellefu leytið. Heyrði í honum rétt fyrir sjö í morgun þegar hann lagði af stað til að ná í strætó upp í Grafarvog. Hann er semsagt á vinnuvakt í dag og á morgun milli 7:30-19:30. Oddur Smári var að vinna milli hálfátta og hálfþrjú í gær. Átti að vera búinn um tvö en sá sem átti að taka við af honum hafði misst af strætó og var seinn fyrir. Það datt annars ein tuska af prjónunum í gær, gekk frá endum. En líklega fór dagurinn að mestu leyti í fótboltagláp. Horfði reyndar bara á brot af sumum leikjunum en að sjálfsögðu horfði ég á allan Liverpool-leikinn.
22.11.20
Sunnudagur
Gærdagurinn var nokkuð rólegur. Fór ekkert aftur út eftir að ég kom heim úr sjónum. Oddur Smári fékk bílinn lánaðan seinni partinn í gær til að sækja nýtt hundabúr í Hafnarfjörð handa Vargi fyrir Ingva og Helgu. Hann varð að setja aftursætin niður og svo verður búrið bara að fá að vera í bílnum í einhvern tíma og aðeins pláss fyrir einn farþega á meðan. Fljótlega eftir að Oddur kom heim úr þessari ferð fóru þeir bræður saman á bílnum, aðallega til að sjá til þess að setja nýjar rúðuþurrkur. Þeir voru ekkert lengi í þessu skreppi en þegar þeir komu til baka varð Oddur að leggja bílnum fyrir aftan heilsugæsluna. Hann fann ekkert stæði í næstu götum.
Ég var með soðið slátur í kvöldmatinn og það sló alveg í gegn. Nú á ég eftir einn ósoðinn kepp af hvoru tagi í frystihólfinu. Þetta er herramanns matur og ætti að vera á boðstólum einu sinni til tvisvar í mánuði, amk yfir vetrartímann. Vonandi munum við stöllur í saumaklúbbnum taka höndum saman næsta haust og taka smá slátur líkt og við gerðum fyrir alltof mörgum árum síðan. Við tvíburahálfsystir mín tókum slátur saman í nokkur ár í röð og Lilja var með okkur amk í eitt skiptið.
21.11.20
Sjórinn 2,7°C klukkan tíu í morgun
Fór í háttinn um ellefu leytið í gærkvöldi. Var nokkuð fljót að sofna og vissi næst af mér um sjö leytið í morgun er ég varð vör við að Kvikk sonurinn var að gera sig kláran í að mæta á vakt. Ég sofnaði strax aftur og var klukkan langt gengin í níu þegar ég fór framúr. Eftir morgunverkin á baðherberginu bjó ég til tvöfaldan skammt af hafragraut. Fljótlega eftir að ég var búin að borða annan skammtinn græjaði ég mig upp í sjósundsferð. Var sótt stuttu fyrir klukkan tíu. Vorum sjö sem hittumst í Nauthólsvík. Það var flóð en veður svo stillt að við athöfnuðum okkur á grjótgarðinum rétt við "landganginn" niður í sjó og fórum beint út í þar. Sjórinn náði alveg að grjótgarðinum. Vorum næstum því sjö mínútur útí, gleymdum okkur aðeins, en ég fann ekki fyrir kuldanum og varð ekkert loppin á fingrunum eins og stundum þegar ég er að klæða mig úr sjósundssokkum, þurrka mér og fara í sokka og skó. Fór beint í sturtu eftir að mér var skilað heim og notaði tækifærið og þvoði á mér hárið í leiðinni. Setti nokkur handklæði í þvottavélina og skolaði úr sjósunds-sokkum, strandskóm og vettlingum í leiðinni og hengdi á heita rörið mitt í þvottahúsinu. Þá var loksins kominn tími til að hella upp á fyrsta kaffiskammt dagsins.
20.11.20
Dularfulla gleraugnahvarfið
Nætursvefninn síðast liðna nótt var skringilega slitróttur. Það hvarflaði að mér að það að drekka einn strekan kaffibolla upp úr klukkan hálffjögur hafi sett strik í reikninginn en mér finnst það samt ótrúlegt. Vaknaði hálftíma áður en vekjaraklukkan átti að hringja og ég ákvað fljótlega að drífa mig á fætur, var annars smeik um að ég myndi sofna aftur og gleyma mér. Hafði nógan tíma í morgunrútínuna því ég var búin að gefa mér leyfi til að fara á bílnum í vinnuna svona einu sinni þessa vinnuviku.
Þegar framleiðsla átti að hefjast kom í ljós að vélin var eitthvað vanstillt. Við gátum ekki byrjað fyrr en tveir sem komu úr tæknideildinni komu og fundu út úr þessu. Fyrsti daglegi skammturinn var tilbúinn rétt upp úr tíu. Þá fórum við í kaffi.Tækninmennirnir tóku yfir vélina á meðan og gott betur en það. Í kaffitímanum varð ég vör við að ég var ekki lengur með gleraugun hangandi á mér og ég fann þau hvergi þrátt fyrir að hafa farið aftur á bak á þá staði innan húss sem ég var búin að fara á eftir að ég lagði af stað í kaffi eftir fyrstu framleiðslu dagsins. Ég velti því alvarlega fyrir mér hvort ég hefði óvart stungið gleraugunum í töskuna með kortunum sem fóru frá okkur á ellefta tímanum en það er mjög langsótt. En gleraugun eru týnd og ég veit ekkert hvort ég finn þau aftur eða kemst að því hvað varð um þau.
Ég var í vinnunni til klukkan að byrja að ganga sex því við ákváðum að klára ákveðið verkefni sem kom til okkar með hádegisskammtinum. Kom heim um hálfsex og vatt mér beint í að útbúa grjónagraut í kvöldmatinn.
19.11.20
Frost
Nýja úlpan varð fyrir valinu þegar ég var að undirbúa mig undir að labba til vinnu fjórða daginn í röö. Ákvað hins vegar að sleppa gönguskónum og fara í strigaskónum. Það var allt í lagi. Fann ekki fyrir kuldanum. Hef labbað sömu leið alla fjóra morgnana og mælist á bilinu 2,9-3km á sífellt styttri tíma. Var uþb 38 mínútur á mánudaginn en ekki nema um hálftíma í morgun. Ég var í bókhaldsvinnu í dag og kom hvergi nálægt framleiðslunni. Samstarfskonur mínar sáu um alla daglega framleiðslu, önnur að troða í og hin að taka á móti og að þeim verkefnum loknum var nóg af endurnýjun svo hægt var að láta vélina ganga alveg til klukkan þrjú. Tókum pásu í morgunkaffinu og í hádeginu.
Fjórða daginn í röð fékk ég far heim úr vinnu. Var komin heim um hálffjögur og ákvað að hella mér upp á sterkan kaffibolla. Var alveg búin að fá mér tvisvar sinnum góða blöndu af espresso úr kaffivélinni í vinnunni en mig langaði í kaffi þegar ég kom heim og lét það eftir mér. Hringdi og spjallaði við eina sem vann með mér bæði sumarið sem ég var hjá eurocard og einnig í kortadeildinni frá 2007-2016 eða þar um bil.
Það eru aðeins tveir vinnudagar eftir af þessum mánuði, morgundagurinn og mánudagurinn 30. Fyrirkomulagið verður óbreytt amk fram að mánaðamótum eða næstu afléttingu. Það er nú alveg að verða spurning hvort maður hinn helminginn af vinnugenginu nokkuð á þessu ári.
18.11.20
Mið vika
Ég kveikti smá stund á sjónvarpinu í gærkvöldi eða rétt rúma klukkustund. Fór upp í rúm um hálfellefu med tvö sudoku blöð. Var farin að sofa áður en klukkan var byrjuð að ganga tólf. Vaknaði tæpum hálftíma áður en klukkan átti að hringja. Nennti samt ekki að búa mér til hafragraut í morgun. Hitti aðeins á N1 soninn en hann fór á undan mér líkt og í gær. Labbaði í vinnuna þriðja morguninn í röð. Svolítið svalt en mjög gott gönguveður. Vélin var mun þægari en í gær en hún var samt með pínu vesen í hátt í hálftíma eftir að sneplalímrúllan kláraðist og skipta þurfti um í miðri framleiðslu. Það tókst þó á endanum að koma vélinni af stað aftur og engin kort eyðilögust. Þurfti að fá þá sem var í bókhaldinu í dag að leysa mig af í korter um hálftvö leytið og klukkutíma seinna var hálftíma fundum með nýjum yfirmanni. Fundi lauk rúmlega þrjú og þá héldum við áfram framleiðslu til að klára ákveðið verkefni. Klukkan var því aðeins farin að ganga fimm þegar ég fékk far heim þriðja daginn í röð. Stoppaði stutt við heima en hringdi samt fyrst og spjallaði aðeins við pabba áður en ég skrapp í smá leiðangur í Fiskbúð Fúsa.
17.11.20
Öðruvísi dagur
Ég var sótt 12 mínútum fyrir fimm í gær af sjósundsvinkonu minni. Tvær aðrar bættust í hópinn við Nauthólsvík. Það var að nálgast háflóð og við ákváðum að skilja dótið eftir við húsvegginn og fara í lónið. Sjórinn mældist 3,7°C og við vorum tæpar sex mínútur út í. Þrátt fyrir að N1 sonurinn hafi sett í þvottavél og hengt upp var alveg pláss fyrir að þvo sjósundsdótið og hengja upp. Útbjó hakkkássu í kvöldmatinn og sat fyrir framan imbann til klukkan langt gengin í tíu.
Vaknaði ekki alveg eins snemma og í gærmorgun en á undan vekjaraklukkunni þó. Fékk mér hinn helminginn af hafragrautnum frá í gær og borðaði hann kaldan. Labbaði af stað í vinnuna um sjö og var mætt rétt upp úr hálfátta. Framan af var vinnudagurinn nokkuð eðlilegur. Ég þurfti að fá bókhaldsmanneskjuna til að leysa mig af á móttökuendanum á vélinni í um klukkustund vegna annars verkefnis. Vélin var aðeins búin að vera með vesen en þegar ég tók við mínu hlutverki aftur var hún alveg stopp og vildi bara alls ekki hlýða. Það tók smá tíma að finna út úr þessu vandamáli en það tókst að laga það á endanum og ljúka framleiðslunni. Ég fékk far heim úr vinnunni um hálfátta og kom ég mátulega heim í kvöldmat sem N1 sonurinn var búinn að elda.
16.11.20
Vinnuvika
Ég var vöknuð alltof snemma í morgun, eða um klukkan hálfsex. Sennilega hef ég verið eitthvað vinnuspennt. Dreif mig á fætur fljótlega og útbjó mér til hafragraut og tók mig til fyrir labbið í vinnuna. Fór í fyrsta skipti í gönguskóna og líklega hefði ég átt að vera enn skynsamari og setja á mig mannbroddana. Datt þó ekkert á leiðinni en það voru kafla þar sem ég þurfti að fara varlega. Var mætt í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Bókhaldið átti að vera í minni umsjá í dag en það byrjaði ekki mjög vel. Þurfti að setja inn nýtt aðgangsorð í vinnutölvuna og klúðraði því þannig að ég varð að fá aðra af samstarfskonum mínum til að prenta út fyrstu framleiðslutölur. Hafði samband við manneskju sem m.a. getur séð um aðgangsmál. Sá nú ekki að hún svaraði mér en hún hlýtur að hafa fengið skilaboðin og gert eitthvað því ég fékk annað tækifæri til að setja inn nýtt aðgangsorð og var komin inn í vinnutölvuna um hálfníu. Ekkert annað af verkefnum mínum frestaðist. Um þrjú fékk ég far heim úr vinnunni og eftir tæpan hálftíma verð ég sótt af sjósundsvinkonu minni. Já, og svo fitjaði ég upp á nýrri tusku í gærkvöldi. Stóðst ekki mátið því það er voðalega gott að hafa eitthvað á milli handanna part af kaffi og matmálstímum í vinnunni, að ég tali nú ekki um fyrir framan sjónvarpsfréttirnar.
15.11.20
Bakstur
Rétt fyrir tíu í gærmorgun sótti sjósundsvinkona mín mig. Um það leyti sem við vorum að leggja í stæði við Nauthólsvík kom ein önnur úr hópnum. Ekki mættu fleiri en við þrjár. Sjórinn var kominn niður fyrir 4°C en það var alveg logn, fjara og himneskt að svamla um í uþb 6 mínútur. Kom heim aftur um hálfellefu. Fór beint í sturtu og þvoði á mér hárið. Eftir að hafa gengið frá sjósundsdótinu hellti ég mér upp á tvo bolla af kaffi. Útbjó deig í kókoskúlur, kúlaði upp og setti inn í frysti. Fljótlega upp úr hádeginu hrærði ég í uppáhaldssort Odds Smára, lakkrístoppa. Baksturinn stóð yfir til klukkan að ganga sex. Það eina sem ekki gekk upp var að smákökurnar urðu ekki að toppum heldur flöttust út. Mér skilst á sysninum að kökurnar séu alveg jafn góðar og venjulega og ljósi punkturinn í þessu er líka að kökurnar rúmast betur fyrir í dósunum.
N1 sonurinn er rétt ókominn á fætur. Ég var búin að lofa honum því að skutla honum á vakt þannig að hann verði mættur á réttum tíma klukkan tíu. Hugsanlega herði ég mig svo upp í að baka uppáhaldssortina hans. Framundan er heil vinnuvika og bý ég mig undir annríki hvað það varðar, bland af daglegum verkefnum, endurnýjun og aukaframleiðslu. Vonandi kemst ég samt í sjóinn með hópnum mínum seinni partinn á morgun og á miðvikudaginn.
Er búin að lesa allar bókasafnsbækurnar en það eru þó ólesnar bækur á náttborðinu mínu. Fór seint í háttinn í gær en þó fyrir miðnætti og braut heilan um stund yfir sudokuþraut. Ég gekk líka frá endanum á tuskunni sem datt af prjónunum í fyrradag. Það munaði sáralitlu að ég fitjaði upp á nýrri tusku en þar sem ég gat ekki ákveðið mig hvaða mynstur ég ætlaði að prjóna næst varð ekkert af því. Eins og ég hef fært í skrif nýlega þá þarf ég að fara að snúa mér að jólakortagerð ársins fyrir alvöru.
14.11.20
Verslunarferð
N1 sonurinn er á vakt þessa helgina, var farinn út fyrir klukkan sjö í gær og svo hefur hann líklega samið um að fá að mæta í seinna lagi í dag því strætó byrjar að ganga seinna um helgar. Laugardagsvaktin er frá klukkan átta til hálfátta. Það gæti líka verið að hann hafi fengið leyfi til að taka leigubíl á kostnað vinnuveitanda. Hann á að eiga rétt á því þá daga sem almenningssamgöngur eru þannig að þótt þú takir fyrstu strætóferðina ertu mættur of seint í vinnuna.
Við Oddur Smári skruppum í Sorpu, Elkó, Krónuna og Fiskbúð Fúsa í gær. Hann á fyrstu tvo staðina, ég á hina tvo en við fórum saman og hann var einkabílstjórinn minn. Keypti m.a. vörur í uppáhaldssortir bræðranna og í fiskbúðinni keypti ég nætursaltaða ýsu í soðið.
Það datt tuska af prjónunum í gær. Á aðeins eftir að ganga frá einum enda, upphafsendann prjónaði ég saman við í fyrstu umferðinni. Er ekki búin að fitja upp á nýrri tusku og ég veit ekki nema ég láti það aðeins bíða svo ég fari frekar að snúa mér betur að jólakortagerðinni.
13.11.20
Píparamál
Einn daginn um daginn uppgötvaði ég það að allir ofnar í íbúðinni voru orðnir kaldir. Davíð Steinn var reyndar búinn að segja mér stuttu áður að ofninn inni í herbergi hjá honum væri búinn að vera kaldur lengi. Hann tók sig til um daginn og liðkaði til pinnanna á flestum ofnum. Rennslið við inntakið í þvottahúsinu sýndi að það var að koma inn heitt vatn þangað. Reyndar var þrýstilokinn eitthvað laskaður en nágranninn niðri sagði að það ætti ekki að skipta svo miklu máli. Það kom reyndar velgja á ofninn í mínu herbergi, sem er tveimur hæðum fyrir ofan þvottahúsið en mér fannst það mjög grunsamlegt að handklæðaofninn á baðinu, sem settur var upp fyrir sex árum var líka kaldur. Í fyrradag gúglaði ég því pípara og komst á síðu þar sem ég gat fyllt út form. Þetta voru nokkrar spurningar til að greina vandamálið og fleira svo hægt væri að mæla með fagmanni eða senda mér tilboð. Reyndar virkaði ekki lokahnappurinn að því leyti að ég átti að fá fjögurra stafa pin-númer í gemsann til að fylla inn í síðasta reitinn. Reyndir tvisvar sinnum en það virkaði ekki. Engu að síður fékk ég rafrænan póst skömmu síðar. Umsóknin hafði gengið í gegn og ég fékk þrjá valmöguleika til að smella á til að komast í samband. Ég smellti á rafrænt handaband og það leið ekki á löngu áður en var hringt og viðkomandi sagðist geta komið daginn eftir (í gær) eða á föstudagsmorguninn. Um hálftíu í gærmorgun hringdi maðurinn aftur og sagðist vera á leiðinni. Hann var kominn rétt fyrir tíu. Ég sýndi honum fyrst niður í þvottahús og hann sá það strax að það þyrfti að skipta um þennan þrýstiloka, hann væri líklega orðinn yfir 30 ára. Hann leit á tvo ofna í íbúðinni áður en hann skrapp frá til að útvega það sem til þurfti. Þegar hann kom aftur fékk hann leyfi til að leggja í innkeyrslunni og hann kom inn um kjallaradyrnar með allar græjur. Ekki tók langa stund að skipta um þennan loka, held að það hafi tekið lengri tíma fyrir kerfið að dreifa heitu vatni á allt ofnakerfið hjá mér en um tólfleytið sagðist píparinn vera viss um að allt væri að komast í lag. Ofninn í mínu herbergi var orðinn funheitur, enda var skrúfað upp í botn á öllum ofnum. Ég mátti skrúfa niður í mínum ofni en ofnarnir þeim megin í íbúðinni sem snýr út að götu voru hafðir á fullu amk hálftíma lengur áður en þeir voru svo settir á milli 2-3. Ég þurfti svo aðeins að senda g-mailið mitt og kennitölu í sms-i í gemsa píparans og nú bíð ég bara eftir reikningi til að gera upp við hann.
12.11.20
Fimmtudagur
11.11.20
Næturbrölt
Það vantaði aðeins 200 metra upp á að göngutúr gærdagsins næði 5 kílómetrum. Klukkan var að verða hálftólf þegar ég dreif mig af stað. Fór hálfan hring, rangsælis, um Öskjuhlíð og þegar ég kom niður að hringtorginu þar sem m.a. Eskihlíðin og Langahlíðin enda beygði ég inn Eskihlíðina. Það var reyndar alveg óvart. Yfirleytt labba ég Lönguhlíðina að Drápuhlíð en þetta lengdi gönguferðina amk um fimm mínútur og 3-400 metra. Kom heim um það leyti sem hádegisfréttir í útvarpinu voru að byrja.
Fór ekki aftur út í gær, og aðeins eina ferð niður í þvottahús að sækja það sem ég hengdi upp í fyrrakvöld. Tuska datt af prjónunum og ég fitjaði upp á enn einni. Fyrir utan dokkuna sem ég er að prjóna úr á ég þrjár aðrar heilar eftir og svo afganga í líklega 3-4 tuskur.
N1 sonurinn fór í sína vinnu snemma í gærmorgun. Hans vaktir eru frá 7:30-19:30 á virkum dögum og hann þarf að ná strætó fyrir klukkan sjö. Hinn sonurinn kom fram milli eitt og tvö í gær og sat með mér inni í stofu þar til hann labbaði á sína vakt rétt fyrir fjögur. Þeir bræður komu svo heim á svipuðum tíma stuttu fyrir klukkan hálfníu í gærkvöldi.
Ég fór upp í rúm á ellefta tímanum og las til klukkan að verða ellefu. Sofnaði fljótlega eftir að ég lagði frá mér bókina og slökkti á lampanum. Rumskaði um eitt leytið og hugurinn var ekkert á þeim buxunum að fara í nein rólegheit strax aftur. Hvað það var sem var að velkjast um í kollinum á mér virtist samt ekki vera neitt merkilegt en að tók mig amk þrjár klukkustundir að gleyma mér alveg aftur. Þegar ég rumskaði aftur á áttunda tímanum í morgun átti ég í engum vandræðum með að snúa mér á hina hliðina og sofna. Klukkan var því að verða níu þegar ég dreif mig loksins á fætur.
10.11.20
Rólegheit
Labbitúr gærdagsins var 4,1 km á rétt rúmlega þremur korterum á þriðja tímanum í gær. Tveimur tímum eftir að ég var komun úr göngunni var ég búin að græja mig fyrir sjósund og mætt á eigin bíl í Nauthólsvík. Sú sem lánaði mér yfirtökuflíkina og hefur kippt mér með hingað til var með allt aðra farþega að þessu sinni. Ein vinkona hennar er gift Íra. Hann er vanur að fara í sjóinn á sínum heimaslóðum og saknaði þess að komast ekki í sund. Hann langaði að prófa að koma með okkur. Konan hans var einnig með í för en bara sem andlegur stuðningur, hún kom ekki út í sjóinn. Svo voru þrjár aðrar úr hópnum mættar líka. Sjórinn mældist yfir 5°C. Ég var með þeim fyrstu útí og svamlaði um í næstum átta mínútur. Dýrðlegt. Var svo örugglega hátt í tíu mínútur að þurrka mér og klæða mig úr sjósundssokkum og strandskóm og í sokka, skó og yfirtökuflík. Vafði handklæðinu utan um mig miðja, yfir sundbolinn og undir flíkinni. Síðan fór ég beint heim í sturtu.
Á aðeins eftir að fella tuskuna, sem ég byrjaði á í fyrradag, af prjónunum og ganga frá endum. Það gerist líklega bara rétt á eftir. Hitti aðeins á nágranna minn í risinu í gær. Hún er reyndar að ganga frá sölu á risíbúðinni sinni og pakka niður og þar sem hún er nýkomin frá Porúgal er hún í sóttkví fram á fimmtudag og fær að vera í risinu á meðan. Hún hafði aðeins skroppið út í smá gönguferð þegar ég hitti á hana.
9.11.20
Grábleikur himinn
Það er að birta smátt og smátt en þessa dagana styttist dagurinn um sex mínútur á dag eða þar um bil. Ég er búin að vera á fótum í tvo klukkutíma en lítið gert af mér annað en að vafra aðeins um á netinu, svara og taka saman upplýsingar fyrir gjaldkera sameiginlegs húsfélags og leika mér í leik sem ég held að hverfi um áramótin amk í núverandi útliti. Er löngu búin að klæða mig og tanna en á eftir að fá mér lýsi, morgunmat og kaffi. Spurning hvort það verði ekki bara einhvers konar bröns í hádeginu.
Ég hafði mig af stað í labbitúr upp úr hádegi í gær og labbaði 3,5 km á tæpum fjörutíu mínútum. Labbaði rangsælis um hálfa Öskjuhlíð að HR en þar fór ég upp að Perlu og kom niður hjá ljósunum við Bústaðaveg þar sem hægt er að beygja niður í þær hlíðar, svæðið sem ég bý á.
Fitjaði upp á nýrri tusku í gær og prjónaði uþb einn þriðja af henni. Horfði einnig brot af leikjum gærdagsins í enska, allan Liverpool leikinn þó. Hafði soðið slátur í kvöldmatinn og það þótti herramanns matur. Oddur Smári var búinn að biðja mig um þetta og þegar ég sagði Davíð Steini frá því í síðustu viku að þetta stæði til bað hann mig um að hafa þetta á sunnudegi svo hann yrði örugglega heima. Hann var á frívakt frá því á sl. þrjá daga en búinn að ráðstafa sér fyrri tvo dagana og vissi ekki hvort hann myndi vera heima á matmálstíma þá.
Held að það sé að styttast í að reikningur á sameiginlega kennitölu 19-21 verði stofnaður og þá ættu mál í kringum húsið og tilvonandi framkvæmdir að fara að verða ljósari. Kannski erum við því miður að verða of sein í lagfæringar fyrir veturinn en aðal framkvæmdir ættu að komast í gang þegar veður leyfir með vorinu. Það er nú ekkert hlaupið að því að stofna svona reikning í þessu veiruástandi og flestar af þessum töfum eiga sér eðlilegar skýringar.
8.11.20
Tíminn staldrar stutt við
Gærdagurinn var ósköp rólegur en kláraðist samt furðu fljótt. Fór ekkert út aftur eftir sjóferðina, aðeins tvær ferðir í þvottahúsið til að þvo og hengja upp sjósundsdótir. Tuskan sem ég byrjaði á í fyrrakvöld mun líklega detta af prjónunum í dag. Ég var með síðustu bókina af safninu nálægt mér en ég las ekki í henni fyrr en ég fór með hana með mér upp í rúm á ellefta tímanum í gærkvöldi. Oddur Smári er á helgarvakt á Kvikk í Öskjuhlíðinni. Hann ætlar sér að vinna uppsagnarfrestinn sem rennur út um áramótin. Davíð Steinn skrapp út að hitta vini um hádegisbilið í gær og fram eftir degi. Það voru strákarnir sem hann fór með í veiðiferðirnar í sumar. Hann var löngu kominn heim þegar ég græjaði bleikju í kvöldmatinn upp úr klukkan sex. Eins og mér finnst bleikja góð þá er ekki sama hægt að segja um annan soninn en hann var samt svo elskulegur að ganga frá eftir matinn.
7.11.20
Sjórinn 4°C kl. 9:30
Rumskaði upp úr sex en tókst að kúra mig niður aftur og gleyma mér aðeins. Var glaðvöknuð áður en klukkan varð hálfátta en ég var ekkert að drífa mig framúr fyrr en eftir að hafa hlustað á morgunfréttir klukkan átta og vafrað aðeins um á netmiðlum í símanum. Um hálfníu setti ég upp hafragraut. Gerði helmingnum góð skil en gekk frá hinum helmingnum í dall og inn í ísskáp. Tíu mínútum yfir níu var ég klár í sjósundsferð og var ég sótt uþb tíu mínútum síðar. Hittum tvær aðrar á bílastæðinu, aðra sem er búin að koma nokkrum sinnum með og nýkomin inn í hópinn og hún var með frænku sína með. Ef frænkan kemur inn í hópinn verða þrjár af níu sem heita Helga. Það var að flæða að og um það bil klukkutími í háflóð svo við tókum af okkur fyrir ofan brautina sem liggur niður í fjöru. Á háflóði þegar er stórstreymt nær sjórinn vel upp á miðja braut. Þarna var sjórinn aðeins byrjaður að "narta" í neðsta hluta brautarinnar. Svömluðum um í tæpar átta mínútur og ætluðum varla að tíma að fara upp úr. Var komin heim aftur rétt fyrir tíu. Fór beint í sturtu og líkt og síðustu tvo laugardagsmorgna þvoði ég mér um hárið og setti svo sjósundsdótið í þvottavélina þegar ég var búin að klæða mig. Hellti mér svo upp á tvo bolla af sterku kaffi.
6.11.20
Gæti verið sami titill og í gær
Ég var að horfa á Kveikþáttinn og að prjóna í gær þegar sjónvarpið fraus. Mér fannst of snemmt að draga mig í hlé og fannst þessi þáttur áhugaverður svo ég slökkti á öllu sem hægt var að slökkva á og tók allt úr sambandi í smá stund. Það leit samt út fyrir að þessi aðgerð myndi ekki virka því það tók hátt í fimm mínútur að ná inn sendingunni þegar ég var búin að setja allt í samband og kveikja á öllu. En það virkaði að lokum og fraus ekkert eftir það. Eftir kveikþáttinn horfði ég á þátt um bakgrunn Ágústu Evu og að lokum einn gamlan Castle þátt. Ný tuska datt svo af prjónunum og ég fitjaði upp á enn einni og prjónaði nokkrar umferðir.
Fór í háttinn um hálfellefu og byrjaði aðeins á síðustu ólesnu bókasafnsbókinni: Helköld sól eftir Lilju Sigurðardóttur. Svaf svo alveg þar til vekjarinn byrjaði að hamast rétt fyrir hálfsjö. Fékk að vísu smá martröð sem man bara slitrur úr en er svolítið fyndin. Svoleiðis er að ég á enn eina litla hvítvínsflösku af fjórum sem ég keypti í sumar rétt áður en ég fór í dagsferð í Viðey. Var eitthvað að minnast á þessa flösku við vinnufélaga í gær og svo dreymdi mig að ég fékk heimsókn. Man ekki hvort ég þekkti þann sem kom né af hvoru kyninu viðkomandi var. Það eina sem situr eftir var að viðkomandi fann flöskuna og kláraði en ég hugsað eða sagði við sjálfa mig: "Þér var nær að geyma hana svona lengi!" Frekar fyndin martröð.
Klæddi mig í flíspeysu innanundir regnkápuna og fór í venjulega götuskó (en ekki strigaskóna úr Eins og fætur toga) áður en ég labbaði í vinnuna í morgun. Það var komin mánaðarleg dk-endurnýjun sem ég hlóð inn á framleiðsluvélina. Hins vegar ákváðum við að framleiða aðeins daglega skammtinn og gefa okkur góðan tíma í að þrífa, sótthreinsa og setja saman smá skýrslu fyrir hópinn sem tekur við í næstu viku. Við ákváðum líka að vegna þess að það væri föstudagur væri kjörið að vera búinn snemma og hættum klukkan tvö. Ég fékk aftur far heim.
Synir mínir höfðu skroppið saman gangandi upp í Kringlu. N1 sonurinn var ekki búinn að fá nýtt símkort og fór að athuga málið. Ég fann hins vegar póst á hann frá NOVA með nýju símkorti í í póstkassanum innan á útidyrahurðinni. Pósturinn hefur líklega komið eftir að þeir bræður fóru að heiman. Nýji ráterinn er líka kominn og búið að tengja hann og virkar hann svona glimrandi vel.
5.11.20
Labbað í vinnu, þáði svo far heim
Það kom upp netvandamál í sambandi við sjónvarpið um níu í gærkvöldi. Prófaði að endurræsa sem og að taka allt úr sambandi í smá stund en þetta lagaðist ekkert. Það var engin truflun á netsambandi strákanna í tölvunum þeirra. Ég gafst upp á að reyna að kveikja á útsendingu sjónvarpsins aftur, á nú Kilju-þáttinn til góða. Fór fljótlega upp í rúm og kláraði næstsíðustu ólesnu bókasafnsbókina á rúmlega klukkustund.
Ég var í móttökustörfum í framleiðslunni í dag. Framleidd voru hátt í nítjánhundruð kort og lauk framleiðslu stuttu fyrir eitt í dag. Tókum smá talningapásu um níu og svo góða kaffipásu en fórum ekki í mat fyrr en klukkan eitt. Öllum verkefnum var lokið rétt upp úr tvö en við vorum aðeins lengur því það kom upp netvandamál vegna eins verkfæris á tölvunum okkar. Það var þó ekki búið að laga það heldur var það í skoðun og við ákváðum að fara heim um hálfþrjú. Önnur samstarfskona mín sagði að ég yrði að fá far hjá henni því það væri nokkur hraðferð á logninu, bálhvasst og missterkir vindstrengir. Ég þáði farið með þökkum.
4.11.20
Fór á bílnum í morgun
Það var ekki byrjað að rigna neitt að ráði þegar ég vaknaði rétt upp úr klukkan sex í morgun og í smá stund gældi ég við það að fara labbandi í vinnuna. Dreif mig á fætur og setti upp hafragraut og þáði N1 sonurinn annan skammtinn áður en hann rauk út til að ná í strætó nokkru fyrir eitt en hann þurfti að vera mættur upp á Gagnveg klukkan 7:30. Um það leyti sem ég hefði átt að labba af stað í vinnuna kom hellidemba og ég ákvað að fresta för um hálftíma og fara þá á bílnum.
Ég var í bókhaldinu í dag. Það var eingöngu dagleg framleiðsla og tölur heldur lægri en í gær en ívið hærri en í fyrradag. Þegar vinnufélagar mínir voru búnir með fyrsta skammtinn og ég að setja inn tölur og prenta út bað ég þær um að telja á meðan ég sinnti tilfallandi verkefni sem getur komið hvenær sem er. Við gáfum okkur svo góðan tíma í kaffipásunni og ég bauð upp á tvenns konar osta, stollenbita og sultu. Það var til tekex fyrir þá sem vildu nota með ostinum. Framleiðslu lauk rétt upp úr hálftólf. Við fórum fljótlega í mat og sátum frammi í uþb klukkustund. Ein af okkur skrapp reyndar aðeins út og tók veðrið. Hún var samt ekki að reykja, reykir hvorki né drekkur, heldur skrapp hún í stuttan göngutúr. Eftir hádegishléið fór þessi síðast nefnda að leggja lokahönd á mánaðamótauppgjörið á meðan við hinar tvær töldum og stemmdum af síðustu framleiðslutölur dagsins. Ég fékk svo að fara yfir rg-ið áður en tölunum var skilað inn.
Öllum verkefnum var lokið um tvö. Ég var í einhverju brasi með að komast aftur inn í spjallforritið Teams en læt það bíða til morguns að láta fagmanneskju skoða það mál, þ.e. ef vandamálið verður enn til staðar. Fór beint heim eftir vinnu. Skrapp yfir í 19, heilsaði upp á 11 vikna hvolp, sem tók jafn vel á móti mér og hann gerði í gær, eftir að hafa skilað af mér ljósritum af göngun sem skila þarf inn til að stofna bankareikning á sameiginlegu kennitöluna.
Eftir klukkutíma verð ég sótt til að skreppa í smástund í sjóinn í Nauthólsvík.
3.11.20
Þrefalt meiri framleiðsla í dag heldur en í gær
Ég var sótt rétt fyrir klukkan fimm í gær og var sjósundsvinkona mín búin að ná í nöfnu sína líka. Vorum aðeins þrjár úr hópnum. Það var að flæða að og smá ferð á logninu svo við ákváðum að geyma dótið okkar við húsvegginn á byggingunni þar sem klefaaðstaðan er þegar er hægt að hafa opið. Skelltum okkur svo í sex mínútur í 4,8°C lónið. Ég var komin heim aftur um hálfsex. Fór í sturtu og á eftir fór ég með óhrein handklæði og sjósundsdótið niður í þvottahús. N1-sonurinn var með þvott í vélinni svo ég setti óhreina þvottinn inn í skáp við þvottavélina, hengdi yfirtökuflíkina á herðatré á eina snúruna og skolaði úr sjósundsdótinu og setti sokka skó og hanska á heitt rör en sundbolinn á herðatréð hjá yfirtökuflíkinni.
Í morgun var ég vöknuð nokkru áður en vekjaraklukkan átti að fara í gang. Kveikti á lampanum á náttborðinu, slökkti á vekjaranum og vafraði smá stund um á netinu áður en ég dreif mig á fætur um hálfsjö. Labbaði af stað í vinnuna um sjö. Ég sá um að hlaða inn á vélina og mata hana á hráefninu. Tókum framleiðslupásu á meðan var verið að gera upp fyrsta framleiðsluskammt dagsins og í kjölfarið skruppum við í kaffipásu. Daglegri framleiðslu, sem og framleiðslu smá aukaskammta, lauk rétt rúmlega tólf. Þá tókum við matarhlé. Öllum verkefnum var lokið rétt rúmlega tvö og þá ákváðum við að segja þetta gott í dag. Ég kom við hjá Lilju á heimleiðinni og þáði hjá henni einn og hálfan kaffibolla áður en ég hélt áfram för heim á leið. Heim var ég komin um hálffjögur. Setti í þvottavél og tók upp þvott N1-sonarins ásamt sjósunddótinu mínu.
Um klukkan fjögur setti ég upp grímu og skrapp í Fiskbúð Fúsa og keypti ýsu, 2 bleikjuflök og harðfisk. Síðan fór ég beinustu leið í Hagkaup í Skeifunni þar sem ég fann loksins ósoðið slátur af báðum tegundum, lifrarpylsu og blóðmör, þrír keppir í hvorum umbúðum. Þegar heim var komið setti ég slátrið og bleikjuna í frysti. Ætla að hafa ýsu í matinn í kvöld. Svo skrapp ég yfir á no 19 að ná í gögn sem þarf að ljósrita v/stofnunnar á sameiginlegum reikning fyrir sameiginlegu kennitölu 19-21.
2.11.20
Afmælisdagur systur minnar
Sat fyrir framan imbann alveg til klukkan að verða hálftíu í gærkvöldi. Hefði kannski setið lengur ef annar sonurinn hefði ekki þurft að endurræsa ráterinn. Það var alveg í fínu lagi mín vegna en fyrir vikið fór ég heldur snemma að sofa. Náði að lesa til klukkan tíu en fljótlega eftir það var ég búin að slökkva á lampanum og stilla á mig vekjaraklukkuna til öryggis. Sofnaði fljótlega en einhverra hluta vegna rumskaði ég á öðrum tímanum í nótt og mér fannst sem ég væri heillengi að sofna aftur. Vaknaði svo tíu mínútum áður en klukkan átti að hringja, alls ekki útsofin en ákvað að drífa mig á fætur og undirbúa mig undir vinnudag.
Labbaði af stað rétt fyrir sjö og var hálftíma að labba leið sem smasungforritið í símanum sagði að hafi verið 2,7km. Vinnudagurinn gekk vel. Allri daglegri framleiðslu lauk um tólf og var engin aukaframleiðsla. Kannski eins gott því sú sem var í bókhaldinu þurfti líka að sinna mánaðamótauppgjöri og það er hellings vinna sem þar liggur sérstaklega fyrir þá sem eru ekki að sinna þessu nema endrum og sinnum. Ekki er svo sem hægt að klára þetta á einum degi því síðustu tölur sem þurfa að fara inn í dæmið skila sér ekki fyrr en á þriðja eða fjórða virka degi nýs mánaðar.
Ég þurfti að sinna aukaverkefni á "gamalt" verkfæri upp úr hádeginu en var búin upp úr klukkan tvö. Var búin að öllu sem ég gat gert um hálfþrjú og skráði mig þá út úr kerfum og labbaði heim. Hringdi í pabbi og eftir smá spjall við hann hellti ég upp á tvo bolla af sterku kaffi og fékk mér síðdegishressingu. Eftir ca hálftíma verð ég sótt svo ég þarf að fara að huga að því að gera mig tilbúna í sjósundsferð.
1.11.20
Nóvembermánuður hafinn
Þátturinn sem ég var að horfa á í spilaranum fraus rétt fyrir hálftíu í gærkvöldi. Líklega er um að kenna lélegur ráter. Ég ákvað að slökkva á sjónvarpinu og færa mig inn í rúm og lesa Sólkross eftir Óttar M. Norðfjörð. Er að verða hálfnuð með þá bók. Ég var farin að sofa rétt upp úr klukkan tíu. Rumskaði fyrst rétt fyrir sjö en fór ekki á fætur fyrr en amk klukkutíma síðar. Var fyrst á fætur, búin að lofa N1 syninum að skutla honum á vakt fyrir klukkan tíu. Bjó til hafragraut og var búin að borða minn skammt og prjóna þrjár umferðir í nýjustu tuskunni áður en Davíð Steinn kom fram og fór í sturtu. Hann rétt svo hafði tíma til að gleypa í sig sinn grautarskammt áður en við lögðum af stað. Að vísu var hann mættur upp á Gagnveg ca. sjö mínútum áður en vaktin hans átti að byrja. Á leiðinni þangað sagðist hann vera búinn að fjárfesta í nýjum ráter sem hann sækir á morgun eða hinn. Sá gripur er dýrari heldur en það sem hann borgar heim á mánuði svo vonandi hættir þetta netvandamál. Í bakaleiðinni ákvað ég að koma við hjá Atlantsolíustöðinni við Sprengisand og fylla á tankinn sem var þó hálfur fyrir enda er bíllinn hreyfður mikið sjaldnar þessa dagana. Hellti mér svo upp á fyrstu kaffibolla dagsins þegar ég kom heim aftur.
Var búin að hengja upp úr tveimur þvottavélum og undirbúa gólfin í eldhúsi, stofu, holi og baðherbergi undir skúrun þegar Oddur Smári kom á fætur upp úr klukkan eitt í gær. Hann tók að sér að skúra en ég fór í klukkustundar göngu um Öskjuhlíð og nágrenni, labbaði m.a. framhjá Nauthólsvík.
31.10.20
Bloggað alla daga þennan mánuðinn
Það var eitthvað vesen á netinu í gærkvöldi þannig að þegar sjónvarpið fraus í annað skipti um hálftíu ákvað ég að slökkva og hátta mig upp í rúm með bók. Las í einhverja stund en ég leit ekki á klukkuna þegar ég lagði frá mér bókina og slökkti á lampanum. Held samt að klukkan hafi alls ekki verið orðin ellefu enda var ég vöknuð rétt fyrir klukkan sjö í morgun. Fór fram á sloppnum um hálfátta og var á undan N1 syninum á baðherbergið en hann kom fram rétt á eftir mér og var farinn af stað í sína vinnu fljótlega. Ég bjó mér til hafragraut og borðaði í rólegheitunum. Um hálfníu fór ég að huga að því að undirbúa mig undir sjóferð. Var sótt uþb tuttugu mínútum síðar. Tvær aðrar voru mættar og biðu í bílunum sínum þar til sú síðasta sem hafði boðað komu sína mætti skömmu síðar. Sjórinn mældist 4,8°C og það var afar hressandi að taka nokkur sundtök bæði á bringu og baki. Vorum uþb sjö mínútur útí. Svo var mér skilað heim að innkeyrslu. Ég fór beint í sturtu og þvoði mér um hárið. Fór svo niður í þvottahús og setti sjósundsdótið 30° stutt prógramm í þvottavélinni. Á nú bara eftir að fara niður aftur til að hengja dótið upp.
Heyrði aðeins í Helgu systur í gærkvöldi. Hún hringdi til baka þar sem hún gat ekki svarað þegar ég hringdi um miðjan dag. Tilboðinu þeirra í jörðina var tekið en það veltur samt á því hvort seljendur fái greiðslumat hvort þetta verði að veruleika. Tilfinning mín er samt sú að norðanfólkið mitt sé að fara að flytja í sveitina á næstu misserum.
Síðasti dagurinn í þessum mánuði runninn upp og framundan er vinnuvika eftir helgi. Vegna hertra reglna til að freista þess að ná böndum um veiruna er útlit fyrir að vinnufyrirkomulag haldi áfram með sama hætti næstu vikurnar. Í næsta vinnustoppi ætla ég að huga að jólakortagerðinni í ár.
30.10.20
Lítil ferð á logninu
Næstsíðasti dagur októbermánaðar er hafinn. Ég kom mér á fætur áður en klukkan varð átta en er lítið búin að gera síðan eftir morgunverkin á baðherberginu. N1 sonurinn lagði af stað í sína vinnu stuttu fyrir sjö. Hinn sonurinn fer líklega ekki á fætur fyrr en upp úr hádeginu. Rólegheit hjá mér, nenni varla að spá í hvað ég ætla mér að aðhafast. Fór ekki í neinn göngutúr í gær en ég er búin að fara oftar út að ganga í þessari fríviku heldur en þegar var frívika síðast. Við Oddur urðum samferða út á Granda fljótlega eftir hádegið í gær. Hann hleypti mér út við Krónuna og skrapp í Sorpuferð á meðan ég verslaði. Innkaupalistinn var nokkuð langur enda hálfur mánuður síðan ég fór síðast í búð.
Heyrði í pabba mínum í gær. Hann er laus við þvaglegginn en honum var kennt hvernig hann á að losa um sjálfur og þarf að fara reglulega á salernið, ekki sjaldnar en á fjögurra tíma fresti. En í staðinn kemst hann líka í sund á meðan það er hægt og er hann nú, með deginum í dag, búinn að fara þrjá daga í röð. Hann sagðist vera sprækari, syndir aðeins hraðar, heldur en nokkru áður en hann fékk þvaglegginn og með minni verki í mjöðmunum. Ég fékk svo fréttir af systir minni og mági í gegnum hann. Tilboðinu í jörðina var tekið með fyrirvara um greiðslumat svo það stefnir allt í að þau séu að flytja enn norðar, í sveitina milli Akureyrar og Húsavíkur.
Hringdi líka í Ellu vinkonu. Það er búið að skilgreina hennar afbrigði af MS í miklum áhættuflokki. Hún lét skólastjóra grunnskólans á Egilstöðum vita sem spurði hana hvað hún vildi gera. Á meðan engin smit greinast fyrir austan vill Ella stunda sína kennslu með hefðbundum hætti, þ.e. mæta í skólann. En ef þessi staða breytist er skólastjórinn tilbúinn að setja hana í verkefni sem hægt er að vinna að heiman.
29.10.20
Stutt í næsta mánuð
Þrátt fyrir að hafa bæði farið í fimmtíu mínútna göngu í gær morgun og svo tæpar sex mínútur í lónið í Nauthólsvík seinni partinn gekk svolítið illa að sofna í gærkvöldi. Ég skreið upp í rúmlega tíu en kláraði "Eddumál" á tæpum þremur korterum. Var búin að slökkva á lampanum fyrir klukkan ellefu. Held ég hafi gleymt mér í smá stund en ég hrökk upp fyrir miðnætti. Veit ekki nákvæmlega hversu lengi ég var að sofna en ég fór amk aldrei framúr og kveikti heldur ekki nein ljós eða fór að vafra um í netheimum á símanum. Einhvern tímann sofnaði ég og kannski var ekki svo langt liðið á nóttina. Svo svaf ég á mínu græna alveg til klukkan að byrja að ganga níu í morgun. Ég á eftir að fara út í göngutúr en kannski fer ég ekki fyrr en seinni partinn í dag. Einkabílstjórinn ætlar í sorpuferð og ég ætla nota ferðina og skreppa í búðina. Hálfur mánuður síðan ég verslaði síðast ef frá er talin ein ferð í Fiskbúð Fúsa í síðustu viku.
Það "datt" ein afgangatuska af prjónunum í gær. Á sennilega afganga í eina til en ég ákvað að nota eina af fjórum dokkum sem ég á eftir af þeim tíu sem ég keypti í Söstrene Grene um daginn. Seinni dokkan af þeim sem ég keypti í Hagkaup er hluti af afgöngum núna.
Ég á eftir að heyra í bæði pabba og systur minni og/eða mági í dag. Engar fréttir eru góðar fréttir en ég þarf samt að fá það staðfest. Og svo er spurning hvort tilboðinu í jörðina var tekið.
Sennilega verða sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu ekki opnaðara neitt alveg á næstunni en vonandi næst að ná böndum um veirufaraldurinn sem allra allra fyrst.
28.10.20
Mið vika
Það er eins gott að fylgjast aðeins með dagatalinu á þessum skrýtnum tímum þar sem önnur hver vika er full af laugardögum og eða sunnudögum þar sem ég má ekki mæta á vinnustaðinn. Leiðist svo sem alls ekki þessi tími en líklega mætti ég alveg vera duglegri við að nýta hann aðeins skynsamlegra. Held samt að ég sé alveg að gera mitt besta í því sem ég tek mér fyrir hendur og það sem verður útundan er hvort sem er annað hvort eitthvað sem er ekki á mínu færi eða þá ástand sem ég tek sjaldan eftir.
Ég er langt komin með bókina hennar Jónínu Leósdóttur, sú bók er spennandi og fyndin en stundum pirrandi á köflum. Aðal söguhetja er helst til forvitin um annarra hagi og gengur stundum fram af mér við að afla sér upplýsinga en oftast kemur það þó sér vel fyrir þá sem hún er að forvitnast um.
Pabbi á tíma hjá þvagfærasérfræðingi hér í bænum um tvö í dag. Hann má ekki mæta með neinn með sér og ekki koma inn fyrr en fimm mínútum fyrir settan tíma. Hann á að losa sig sjálfur við legginn, sagt að gera það um tíu en ég held að pabbi hafi þráð að komast í sund á "sínum tíma" um hálfsjö í morgun svo hann hefur líklega fjarægt legginn fjórum tímum fyrr en ráðlagt var. Hann sagði við mig í símtali gærdagsins að hann ætlaði bara að drekka aðeins minna fram að læknistímanum. Honum finnst líklegt að hann verði þræddur aftur, batinn er hægur en þó í áttina finnst honum.
Systir mín og mágur gerðu tilboð í jörð milli Akureyrar og Húsavíkur sl. föstudag. Buðu sína fasteign upp í á sléttu og átti tilboðið að gilda til klukkan fimm síðdegis á mánudaginn var. Þegar ég hringdi í mág minn stuttu fyrir hádegi í gær spurði ég hann meðal annars um hvort tilboðinu hefði verið tekið og svarið var að þau voru beðin um að framlengja frestinn um tvo sólarhringa. Þannig að það kemur í ljós fyrir klukkan fimm í dag hvort þau eru að flytja frá Akureyri á næstunni og í sveitina.
27.10.20
Fartölvan netsambandslaus fram á kvöld
Vegna netvandræða var ég búin að slökkva á sjónvarpinu fyrir klukkan hálftíu í gærkvöldi og komin upp í rúm með bók. Var búin með Krossfiskar og byrjaði á Barnið sem hrópaði í hljóði. Klukkan var ekki mikið meira en tíu þegar ég lagði frá mér bókina, slökkti á lampanum, bað bænirnar og fór að sofa. Var ekki mikið að rumska í nótt og ég satt best að segja svaf örugglega meira en átta tíma. Var að rumska rétt fyrir sjö þegar N1 sonurinn lagði af stað í vinnuna. Ég hlustaði á fréttir klukkan sjö og aðeins á morgunútvarp rásar tvö en var komin á fætur nokkru áður en klukkan varð átta.
Ætlaði að byrja á því að nota fartölvuna eftir morgunverkin á baðherberginu en ég náði engu netsambandi og vildi ekki vera fikta of mikið. Laumaði mér í staðinn í tölvu Davíðs Steins í ca. klukkutíma. En þar logga ég hann bara út af facebook en ekki gmail svo ég blogga aldrei í hans tölvu. Þegar Oddur Smári kom fram um eitt leytið sat ég inni í stofu að lesa og var þá búin að prjóna smá líka og snuddast aðeins í eldhúsinu. Bað soninn um að athuga hvort hann gæti nettengt fartölvuna en þær tilraunir sem hann gerði virkuðu ekki.
Ég skrapp í 4,4 km. labbitúr um nágrennið og stóran part af Öskjuhlíðinni upp úr klukkan þrjú og Oddur Smári var farinn á vakt þegar ég kom heim aftur um fjögur. Rétt eftir að ég kom heim hringdi hinn sonurinn í mig og spurði hvort ég gæti sótt sig eftir vaktina og komið við í Lyfju í heimleiðinni, hann vantaði að útvega sér brjótsviðatöflur. Ég samþykkti þetta. Var mætt á Gagnveg tæpum tíu mínútum áður en vaktin hans var búinn og notaði tækifærið og kannaði þrýstinginn í hljólbörðunum því mælaborðið var með skilaboð um að ekki næðist samband við skynjarann. Þrýstingurinn var í fínu lagi, þurfti aðeins að bæta um 1" í annað afturdekkið. Skilaboðin hurfu úr mælaborðinu þegar ég var búin að endurstilla í gegnum Menu.
Davíð Steinn opnaði svo nettenginguna fyrir mig áðan svo ég næ að blogga tuttugastaogsjöunda daginn í röð í þessum mánuði, af 27 dögum sem eru að verða liðnir af október.
26.10.20
Mánudagsmorgun
Þrátt fyrir að ekki sé venjulegur virkur vinnudagur hjá mér þá stillti ég vekjaraklukkuna á hálfátta í morgun og var sofnuð fyrir klukkan ellefu. Rumskaði einhvern tímann á fimmta tímanum og náði ekki að festa svefn aftur. Um hálfsex slökkti ég á vekjaraklukkunni, freistaðist aðeins til að logga mig á netið og skrolla niður moggavefinn og facebook vefinn. Slökkti eftir fimmtán mínútna vafr og gerði heiðarlega tilraun til að sofna aftur um stund. Ekkert varð af því. Heyrði N1 soninn læðast um upp úr hálfsjö og skella á eftir sér korter fyrir sjö. Tuttugu mínútum síðar læddist Kvikk sonurinn á fætur og hann var farinn í sína vinnu fyrir klukkan hálfátta. Hálftíma eftir það reif ég mig á fætur.
Í gær skrapp ég í göngutúr hálfan hring í Öskjuhlíðinni. Á þremur korterum, milli eitt og tvö, labbaði ég að og eftir Flugvallarvegi og svo stíginn meðfram hlíðinni að HR. Þar labbaði ég upp og framhjá Perlunni og kom niður við ljósin á Bústaðaveg ofan við Kvikk/OB stöðina. Þetta mældust 3,7km að heiman og aftur heim.
Lánaði bræðrunum bílinn rétt fyrir kvöldmat í gær og sleppti því að elda þrátt fyrir að hafa tekið út kjúklingalæri í gærmorgun. Strákarnir voru að fara hitta pabba sinn og bjóða honum út að borða.
Ég er langt komin með enn eina tuskuna og kláraði að lesa bókina sem ég hef nefnt hér áður. Ég get svo svarið það að ég var örugglega sjö daga að lesa hana, eða amk hátt í það.
25.10.20
Síðasti sunnudagur októbermánaðar
Eftir slétta viku, þ.e. næst komandi sunnudag, byrjar nóvember. Þrátt fyrir allt hefur þetta ár liðið þokkalega hratt og ég er viss um að síðustu tveir mánuðirnir verða ekki lengi að líða. Einhvern veginn hef ég náð að taka bara fyrir einn dag í einu, sokkið mér niður í lestur eða prjón og er svo þar að auki svo heppin að eiga góðar vinkonur og einnig hafa kynnst nokkrum hressum konum sem skella sér í sjóinn 2-3 í viku, jafnvel þótt aðstaðan í Nauthólsvík sé lokuð.
Ég stóð við skrif gærdagsins og um það leyti sem Kvikk-sonurinn kom heim af vakt var vöfflustaflinn nánast tilbúinn. Kaffitíminn var tekinn í fyrra fallinu, um hálfþrjú. Áður en ég fór í þetta verkefni ryksugaði ég sameignina frá þvottahúsi og upp á pallinn fyrir framan hjá mér. Davíð Steinn sá svo um að skúra þá hluta sem ekki eru teppalagðir og kvitta fyrir okkar mánuð. Náðum semsagt að skila af okkur sameignarþrifum áður en mánuðurinn okkar er liðinn.
Er enn að lesa bókina Sjö dagar. Þær fjórar bækur sem bíða enn ólesnar í röðinni af safninu eru: Krossfiskar eftir Jónas Reynir Gunnarsson, Sólkross eftir Óttar M. Norðfjörð, Helköld sól eftir Lilju Sigurðardóttur og Barnið sem hrópaði í hljóði eftir Jónínu Leósdóttur. Skiladagurinn á öllum bókunum 10, lesnum sem ólesnum, er til 20. nóvember svo ég hef nægan tíma.
24.10.20
Æi, sjötíuogsex er heldur mikið
Ég fór frekar snemma í háttinn í gærkvöldi, miðað við að það var föstudagskvöld og margir laugardagar og sunnudagar framundan. Klukkan var nú samt orðin tíu og svo las ég í smá stund. Rumskaði um sjö í morgun og varð vör við að Oddur Smári var að undirbúa sig undir að mæta og opna á Kvikk. Hann var farinn fyrir hálfátta en ég fór ekki framúr fyrr en amk tuttugu mínútum eftir það. Klæddi mig aðeins í slopp og eftir morgunverkin á baðherberginu setti ég upp hafragraut. Um hálfníu undirbjó ég mig undir sjósundsferð og var alveg klár í þá ferð þegar ég var sótt rétt fyrir níu. Hittumst sex saman við Nauthólsvík. Ég var fyrst út í en við vorum alls ekki lengur en tíu mínútur á svamli ásamt hinum öndunum og máfunum. Fór beint í sturtu þegar ég kom heim og ákvað að þvo á mér hárið í leiðinni. Svo stakk ég sjósundsdótinu mínu í þvottavélina, stillti á 30°C og 1,35 klst. þannig að það styttist í að ég geti farið niður og hengt upp. Hellti mér upp á tvo bolla af kaffi en er aðeins búin að drekka einn. Hinn skammturinn er örugglega orðinn kaldur í lélegum brúsanum. Það gerir nú minnst til. Nota sennilega þann leka til að búa að hræra saman við vöfflusoppu og hellti svo upp á nýtt kaffi.
23.10.20
Síðasti vinnudagurinn í þessum mánuði
Tvíburahálfsystir mín sótti mig um átta í gærkvöldi en við vorum boðaðar og búnar að samþykkja að mæta í saumaklúbb til þeirrar þriðju í klúbbnum. Á leiðinni milli Hlíða og Grettisgötu hringdi gemsinn minn og á hinum endanum var ein pottavinkona mín úr morgunhópnum í Laugardalslauginni. Laugin er búin að vera lokuð í þrjár vikur bráðum en hún hefur ekki mætt mikið á þessu ári, er ekki örugg þegar Covid-19 er að sveimi í samfélaginu. Hún hafði hins vegar fengið kveðju frá mér í gegnum aðra sem við þekkjum báðar og ákvað því að hringja. Við töluðum stutt en ég lofaði að setja mig í samband við hana í næstu viku.
Vel var tekið á móti okkur á Grettisgötunni og tveir tímar liðu mjög hratt. Föndruðum, spjölluðum, hlógum og hlustuðum á mússík undir m.a. á Kim Larsen heitinn. Ég var komin heim áður en klukkan varð ellefu. Fór beint í rúmið en las í smá stund.
Vaknaði á undan klukkunni en varð að bíða eftir að komast að á salerninu því Oddur Smári hafði tekið að sér aukavakt milli hálfátta og þrjú og var í sturtu þegar ég kom fram. Ég fór aftur á bílnum í vinnuna og þema dagsins var bleikt. Allri framleiðslu var lokið um hádegið og eftir hádegi var lokið við að telja, ryksuga vélina, þrífa og sótthreinsa helstu sameiginlegu snertifleti og sett saman skýrsla um vikuna fyrir hópinn sem tekur við í næstu viku.
Fór beint heim eftir vinnu og byrjaði á því að hringja í pabba minn. Í dag, 23. október, eru liðin 100 ár frá fæðingu föðurbróður míns, Þorsteins Oddssonar. Daginn sem hann fæddist var fyrsti vetrardagur og hann sagðist alltaf eiga afmæli þann dag hvort sem hann hitti á 23. eða ekki. Blessuð sé minning hans.
22.10.20
Notaði bílinn milli heimilis og vinnu í dag
Var komin upp í rúm um hálftíu í gærkvöldi. Las í rúman hálftíma. Var fljót að sofna, rumskaði örstutt öðru hvor meginn við miðnættið og svo svaf ég alveg til klukkan korter yfir sex. Vaknaði semsagt tíu mínútum áður en vekjaraklukkan átti að fara í gang.
Mætti á vinnustaðinn um hálfátta. Allri framleiðslu og frágangi var lokið um hálfþrjú. Daglegu skrárnar náðu ekki 300 kortum í heildina. Fengum fleiri form vegna sérverkefnis sem við byrjuðum á í gær. Framleiddum rúmlega 200 kort þar til að ljúka við ca 400stk pöntun. Fengum eina endurnýjun og framleiddum fimm skrár af sex, hefðum klárað ef við hefðum haft nægt hráefni.
Kom við í fiskbúð Fúsa á heimleiðinni og keypti ýsu, 1 lauk og poka að óbarinni ýsu.
21.10.20
Labbað báðar leiðir, 2x3,5 km milli heimilis og vinnu
Sennilega hef ég farið aðeins of snemma að sofa í gær, um hálfellefu, því í rumskaði upp úr klukkan fimm og sofnaði ekki aftur eftir það. Fór á fætur um sex og bjó til hafragraut, nóg handa tveimur og þáði N1 sonurinn annan skammtinn áður en hann fór af stað í vinnuna. Ég labbaði af stað í vinnuna áður en klukkan varð sjö og ákvað að fara þá leið sem liggur m.a. meðfram flugvellinum, gegnum Hljómskálagarðinn, meðfram tjörninni og Lækjargötuna að Kalkofnsvegi. Vinnudagurinn leið nokkuð hratt. Öll dagleg framleiðsla var búin rétt fyrir hádegið og svo kláruðum við að framleiða mánaðarlega kreditendurnýjun og byrjuðum á sér yfirfærsluverkefni. Hefðum klárað það verefni líka ef við hefðum verið með nóg af formum. Labbaði af stað heim um hálfþrjú og fór næstum sömu leið til baka og ég fór í morgun nema ég labbaði meðfram Valsvellinum og göngustíg milli Skógarhlíðar og Eskihlíðar. Hellti mér upp á tvo bolla af kaffi og fékk mér hressingu því það er betra að vera búin að fá sér eitthvað skömu áður en maður skreppur í sjóinn en ég verð sótt eftir ca. hálftíma.
20.10.20
Fimm komma sex, heilmikið högg og langur skjálfti upp úr hálftvö í dag
Var komin í bólið um hálfellefu í gærkvöldi. Las um stund en var búin að leggja frá mér bókina, slökkva á lampanum og biðja bænirnar mínar áður en klukkan varð ellefu. Einhverra hluta vegna rumskaði ég um tvö leytið. Náði ekki að sofna strax aftur svo ég ákvað að prófa að skreppa á salernið. Fannst sem mér væri ekki svo mikið mál en bunan var meiri heldur en tilfinningin. Náði að festa svefn fljótlega en rumskaði aftur um hálffjögur. Hvað var í gangi veit ég ekki en ég sofnaði alla vega aftur og svaf þar til vekjaraklukkan fór í gang um hálfsjö.
Labbaði 3km í vinnuna í morgun og var mætt upp úr hálfátta. Ég sá um bókhaldið og frágang frammi í dag. Hinar tvær framleiddu daglegu kortin og héldu svo áfram með endurnýjunina eftir hádegi. Um hálftvö leytið var ég búin að því sem lá fyrir og fór þá að vinna í að gera uppkast að skýrslu, punkta niður það helsta sem var í gangi í gær og í dag. Allt í einu heyrðust drunur og það kom einhver hreyfing og svo heilmikið högg og enn meiri hreyfing. Ég stóð upp strax eftir skjálftann og fór að athuga með samstarfskonur mínar. Þær voru á leiðinni fram þegar ég opnaði dyrnar inn til þeirra. Framleiðsluvélin stoppaði í hamaganginum og þær voru nokkuð skeknar. Róaði þær niður og mig í leiðinni. Þær héldu framleiðslu áfram en hættu tæpum klukkutíma síðar. Það sem stendur eftir af endurnýjuninni klárast á morgun eða hinn og okkur sýndist í góðu lagi að fara heim í fyrra fallinu. Ég fékk far heim og var komin þangað um þrjú. Byrjaði á því að hella mér upp á tvo bolla af kaffi og hringdi svo fljótlega í pabba. Hann fann alveg fyrir skjálftanum.
19.10.20
Sjósund seinni partinn
Var vöknuð upp úr klukkan sex í morgun og komin á fætur um hálfsjö. Labbaði af stað í vinnuna rétt fyrir klukkan sjö og var mætt þangað um hálfátta. Skrefamælirinn í símanum var samt ekkert að hafa fyrir því að telja skrefin eða skrá niður göngutúrinn, allar tölur á núll þar og það virkaði ekki að "pota" eitthvað í forritið. Vinnudagurinn leið nokkuð hratt, nóg að gera en við hættum vinnu um þrjú. Fékk far heim úr vinnunni. Endurræsti símann eftir að ég kom heim og þá fór heilsuforritið Samsun Health loksins að virka. Hellti upp á einn bolla af kaffi og fékk mér hressingu. Las um stund í; Sjö dagar eftir Freancesku Hornak, bók sem ég byrjaði á í gær. Korter fyrir fimm var ég tilbúin í sjósundsferð og beið frammi á gangi eftir farinu en Helga Rún varð samt að hringja í mig þegar hún var komin fyrir utan því ég sá hana ekki beygja inn í götuna hvernig svo sem ég fór að því að missa af því. Helga Björk var í aftursætinu en systurnar og eina til hittum við í Nauthólsvík ásamt slatta af fleira fólki sem fékk alveg sömu hugmynd. Stilla og fallegt veður og við vorum rétt rúmar tíu mínútur út í sjónum sem við giskum á að hafi verið öðru hvoru meginn við 5°C.
18.10.20
Pabbi áttatíuogsex ára í dag
17.10.20
Leikur milli Liverpool-liða í enska
Enn ein tuskan "datt" af prjónunum í gærkvöldi. Tuska númer tvö úr afgöngum en þær eru að nálgast 20 stk. sem ég hef prjónað á þessu ári. Er ekki búin að fitja upp á nýrri en ég á enn sjö heilar dokkur sem eru ætlaðar í tuskuprjón og það er líklegt að ég byrji á næstu tusku strax í dag.
Lauk við að lesa bókina Sterkasta kona í heimi í gærkvöldi. Er langt komin með Arsenik turninn, las amk 100 bls í þeirri bók í gær. Ef ég skrái mig inn á leitir.is og vel útlánshnappinn kemur í ljós að allar bækurnar 10 sem ég er með af safninu erum með skilafrest til 9. nóvember n.k. Á fimm af þessum tíu alveg ólesnar, búin að klára 4 og eins og ég skrifaði áðan langt komin með Arsenik turninn fimmtu bókina af tíu.
Vaknaði upp úr klukkan sjö í morgun. Var ekkert að rjúka strax framúr heldur kúrði um stund. Fór fram á sloppnum rétt fyrir átta og setti upp hafragraut eftir að hafa sinnt morgunverkunum á baðherberginu. N1 sonurinn kom fram stuttu seinna, orðinn alltof seinn í vinnuna en í þetta sinn var ekkert sem ég gat gert við því. Tímaáætlun strætó er svo þannig um helgar að hann er hvort sem er alltof seinn hvort sem hann á að mæta klukkan átta á laugardagsmorgni eða klukkan tíu á sunnudagsmorgni. Ég get hjálpað til með mætinguna í fyrramálið ef hann vill en hann á líka rétt á því að fá leyfi til að taka leigubíl á kostnað vinnuveitanda.
Tíu mínútum fyrir níu var ég tilbúin í sundbol innan undir yfirtökuflíkinni með hárið í hnúð undir sundhettu og í sjósundssokkum og strandskóm á fótunum. Í stórum bláum IKEA poka var ég með handklæði, skó og sjósundsvettlinga. Húslyklar, sokkar og vettlingar voru í vösum yfirtökuflíkurinnar. Helga Rún sótti mig og systurnar hittu okkur í Nauthólsvík. Vorum tíu mínútur á svamli í dásamlegri morgunkyrrð og nokkrar endur voru á svamli skammt frá. Það var háflóð um hálfsjö í morgun og því aðeins byrjað að fjara út aftur þannig að við gátum notað "staðina okkar" til að geyma handklæði skó og yfirhafnir. Þegar ég kom heim aftur fór ég beint í sturtu og þvoði á mér hárið í leiðinni. Á eftir skolaði ég úr sjósundsdótinu mínu í þvottahúsinu og skildi eftir sokka og strandskó á heitu röri en hengdi sundbol og hanska upp í baðherberginu. Síðan hellti ég mér upp á fyrstu kaffibolla dagsins og er búin að drekka þrjá bolla nú þegar.
16.10.20
Föstudagur
Klukkan er að verða hálftíu og smám saman að birta af degi. Ég sit í stofusófanum með fartölvu Davíðs Steins á hnjánum. Búin að sitja hér í rúman klukkutíma. Þegar ég lít út og horfi út um stofugluggann sé ég tré með mikið af gulum laufum. Aðeins örlar í grænt en guli liturinn er meira áberandi. Veturinn er að nálgast, rétt rúm vika í vetradaginn fyrsta skv. almanakinu.
Við Oddur Smári skruppum í leiðangur í gær. Hann keyrði og hleypti mér út við Krónuna við Granda. Ég setti á mig grímu áður en ég fór inn í búðina og það er í fyrsta skipti sem ég geri það. Og þetta var annar dagurinn í röð sem ég set svona upp því eins og ég skrifaði um í gær þurfti ég að setja upp grímu í blóðbankanum. Á meðan ég var að versla fór Oddur í Sorpu með, blöð, plast og fleira drasl. Hann var búinn að þessu á undan mér og beið þolinmóður út í bíl, eitthvað að leika sér með símann sinn. Einkabílstjórinn hélt svo á vörunum, tveimur pokum inn og gekk frá þeim. Davíð Steinn var að ganga frá úr uppþvottavélinni. Þeir voru semsagt báðir á frívakt í gær.
15.10.20
Engar holur
14.10.20
Á leið í blóðbankann
Ég fékk sms og e-mail frá blóðabankanum í gær um hvort ég gæti komið með framlag í dag 14. Var beðin um að panta tíma ef svo væri. Fyrst var ég að spá í að panta tíma á morgun fimmtudag en svo var ég ekki viss um að ég mætti fara þá ef ég væri að fara til tannlæknis í dag þótt um árlegt eftirlit væri að ræða. Ég ákvað því að panta tíma klukkan hálfellefu og fékk skilaboð í morgun um á sá tími væri fullbókaður svo hann var færður til 10:40. Þetta þýðir líklega það að ég verð að segja pass á sjóferð seinni partinn en stundum þarf bara að forgangsraða.
Í gærmorgun var ég með hugann hjá Lilju vinkonu, alveg ákveðin í að hafa samband við hana um hádegið. Um hálfellefu sendi hún mér fyrirspurn á facebook-tsjattinu um hvort ég væri að vinna. Ég svaraði strax að ég mætti ekki mæta á vinnustaðinn þessa vikuna og í framhaldi ákváðum við að ég myndi fá mér göngutúr til hennar fljótlega. Var mætt til hennar á tólfta tímanum með prjónana með mér. Hún bauð upp á kaffi og ég fitjaði upp á nýrri tusku. Eftir spjall, kaffidrykkju og prjónaskap ákváðum við að skreppa í smá göngutúr meðfram Sæbrautinni og í framhaldinu færi hvor heim til sín. Ég var komin heim um þrjú og skv. skrefaforritinu í símanum búin að labba yfir 7000 skref. Fór ekkert aftur út og bíllinn er búinn að vera óhreyfður í nokkra daga í stæði í næstu götu.
13.10.20
Fallegt veður
Það fór svo að ég fór ekki út úr húsi í gær fyrr en Helgurnar kipptu mér með í sjósundsferð um hálffimm. Fram að því var ég búin að lesa, prjóna, vafra á netinu og ýmislegt fleira. Dagurinn leið amk frekar hratt. Mættum aðeins fjórar úr hópnum í Nauthólsvík og sú fjórða kom ekki fyrr en ca fimm mínútum eftir að við hinar vorum komnar út í. Hún ætlaði sér hvort sem er ekki að vera lengur út í en fimm mínútur. Ég hoppaði fyrst út í og var sennilega uþb 15 á svamli. Tók aðeins örfá sundtök en lét mig fljóta á bakinu eða var bara að busla. Það var fljóð, aðeins byrjað að fjara út aftur, sjórinn sennilega um 6°C og lítil ferð á logninu. Mér var svo skutlað beint heim aftur þar sem ég fór í sturtu og klæddi mig áður en ég fór niður í þvottahús að skola úr sjósundsdótinu og setja nokkur handklæði í þvott.
12.10.20
Að trekkja sig í gang
Einu skiptin sem ég fór út úr íbúðinni í gær var þegar ég trítlaði niður í þvottahús. Fór reyndar eina aukaferð niður því ég misreiknaði tímann og þegar ég fór niður til að hengja upp úr vélinni átti hún eftir rúmlega tuttugu mínútur af prógramminu. Var alveg með það á bak við eyrað í allan gær dag að skreppa út í smá göngu en dagurinn leið án þess að af því yrði.
Lauk við lestur bókarinnar Heift í gærkvöldi en ég hef líka verið að lesa bók sem er ekki af safninu; Allt í himnalagi hjá Eleanor Oliphant eftir Gail Honeyman. Hef verið með þessa bók á náttborðinu í einhverja mánuði og stundum líða dagar og vikur á milli þess sem ég gríp í hana. Þetta er samt mjög áhugaverð bók og skemmtilegt hvernig hún er sett upp. Maður kemst smám saman að meiru um sögupersónuna en þrátt fyrir að vera rúmlega hálfnuð með bókina er samt ekki enn búið að ljóstra upp um öll áföllin sem persónan gekk í gegnum á mótunarárum sínum. Hvers vegna er hún t.d. með ljót brunaör í andliti? Kemst einhvern tímann að því. Ég á enn eftir að byrja á síðustu bókinni af þremur af þeim bókum sem ég á að skila af mér næst; Arsenik turninn eftir Anne B. Ragde. En ég er byrjuð að glukka í ljóðabók sem kom með mér heim eftir síðustu heimsókn á safnið. Gott og illt eftir Þór Stefánsson.
Hvernig svo sem þessi dagur þróast eða skiptist niður þá er m.a. á dagskránni að hitta sjósundshópinn í Nauthólsvíkinni seinni partinn í dag.
11.10.20
Fuglasöngur
Þegar ég var búin að fara í sturtu og skola úr sjósundsdótinu mínu uppgötvaði ég það að önnur saumaklúbbsvinkona mín hafði sent mér fyrirspurn á facebook-spjallinu um hvort ég væri upptekin. Ég skrifaði til baka um að ég væri nýkomin úr sjónum og að hita mér kaffi en annars væri ég ekki upptekin fyrr en eftir klukkan fimm. Við sammæltumst um að hún sækti mig um eitt. Hún var komin aðeins fyrr, kom inn og stoppaði í smá stund. Svo fórum við saman að sækja dót úr gömlu íbúðinni. Fyrrum meðleigjandi var búin að fara með flest dótið niður í anddyri. Hann kom út að sækja úr bílnum eitthvað sem hann taldi sig eiga, m.a. sleðana/skíðin, sem notuð er ef farangur er svo mikill að hann kemst ekki fyrir inni í bílnum, á bílþakinu. Það smotterí sem varð eftir í íbúðinni og einn kassi í geymslunni ætlaði hann svo að taka saman seinna. Eftir þetta ævintýri fórum við aftur heim til mín og ég hellti upp á kaffi handa okkur.
Ég fór ekki út aftur fyrr en rétt fyrir sex. Ég var boðin í mat og heimsókn til nöfnu minnar og frænku, kærasta hennar og kisunnar sem ég passaði í nokkra daga í byrjun ágúst. Kisan þetta mig aftur og vildi alveg tala við mig. Húsráðendur töluðum meira að segja um að þau hefðu aldrei séð köttinn "spjalla" svona við aðra manneskju heldur en þau. Mér finnst þetta vera góð meðmæli með mér.
Kom heim aftur rúmlega níu og þá var að byrja mynd á RÚV um Coco fyrir Channel árin. Ég festist yfir myndinni þangað til hún var búin.
10.10.20
Í sjóinn með fimm úr sjósundshópnum mínum
9.10.20
Lengri gönguleið í vinnuna í morgun
Labbaði 3,5km á rétt tæpum 40 mínútum í vinnuna í morgun og var samt mætt fyrst. Náðum að ljúka allri fyrirliggjandi framleiðslu, sótthreinsa sameiginlega fleti og skrifa skýrslu til þeirra sem standa framleiðsluvaktina í næstu viku. Teljum okkur skila af okkur góðu "búi" og hreinum borðum. Urðum allar samferða út af vinnustaðnum rétt rúmlega hálffjögur og önnur hinna bauð mér far heim svo við urðum áfram samferða út í Hörpu þar sem þær leggja bílunum sínum á meðan þær eru í vinnunni. Tíu dagar þar til við megum mæta næst í vinnu.
Hringdi í pabba fljótlega eftir að ég kom heim og sagðist ætla að fara að fyrirmælum og vera ekkert á ferðinni að óþörfu. Hann var sammála mér með þá ákvörðun. Meðan ég var að tala við hann mundi ég eftir einu atriði sem ég hafði ætlað að láta fylgja skýrslunni. Það varð til þess að eftir samtalið við pabba hringdi ég í fyriliða kortadeildarinnar en hún er í hinum hópnum. Eftir gott spjall vorum við sammála um að ég hafi líklega átt að hringja í hana, henni fannst amk gott að heyra í mér.
Ég er búin að byrja þrisvar á sömu tuskunni úr uppskriftabókinni og taldi mig vera búin að finna rétta taktinn og ná að lesa rétt úr uppskriftinni. Uppskriftin heitir "blíðar bárur" eða eitthvað svoleiðis og ég er rúmlega hálfnuð með þriðju báruna og það er allt í einu komin ein aukalykkja á prjóninn. Enda örugglega með að taka mér smá skáldaleyfi. Í fyrstu tilraun var ég með alltof fáar lykkjur eftir að hafa prjónað fyrstu sex umferðirnar og í annarri tilraun var ég komin með alltof margar lykkjur eftir jafnmargar umferðir. Skrýtið, en ég ætla ekki að gefast upp og ætla mér að nota alla afganga í þessa tusku.
8.10.20
Á bílnum í vinnuna
Ákvað að vera ekkert að galla mig upp í rigningargöngu og fór á bílnum í vinnuna í morgun. Eftir á að hyggja var ég frekar ánægð með það því klukkan var nefnilega langt gengin í fimm þegar ég gat farið heim. Veðrið núna seinni partinn var samt kjörið til að vera úti í en ég ákvað að fara beint heim og inn og undirbúa mig undir leikinn í kvöld.
Sjósundsvinkona mín, sú sem lánaði mér yfirtökuflíkina í vor hringdi í mig rétt fyrir fimm í gær og spurði hvort hún ætti að taka mig með í Nauthólsvík og lána mér flíkina aftur. Það var nefnilega ákveðið að loka aðstöðunni alveg. Ég þáði farið og flíkina með þökkum og var búin að klæða mig í sundbolinn innan undir buxur og peysu, fara í sjósundssokkana og strandskóna utanyfir og taka til sokka handklæði og skó þegar hún kom. Hittum þrjár úr hópnum og svo var fullt af fólki í sjónum sem hafði fengið sömu hugmynd. Við svömluðum um í 12 mínútur og ákváðum að endurtaka þennan leik annað hvort seinnipartinn á morgun eða á laugardagsmorguninn, jafnvel báða þessa daga.
7.10.20
Endurnýjun
Var mætt til vinnu rétt upp úr hálfátta. Labbaði þriðja morguninn í röð. Daglegur framleiðsluskammtarnir voru frekar litlir sem var kannski ágætt því þá tekur kannski færri daga að framleiða þessi tæpu fjögurþúsund í fyrstu endurnýjun mánaðarins. Við náðum amk að framleiða í kringum ellefuhundruð af þeim eða tæplega einn þriðja.
Labbaði heim eftir vinnu, fyrsta gangan heim í þessari viku fékk far heim bæði í gær og fyrradag. Báðir synirnir eru að vinna og ég ætla að skreppa í Nauthólsvík eftir tæpan hálftíma og hitta hluta af sjósundshópnum mínum þar. Líklega er talið inn í klefa en heiti potturinn er lokaður. Nóg pláss í sjónum og kannski kemst maður í smá gufubað á eftir, fer alveg eftir hversu margir eru á svæðinu.
6.10.20
Ja hérna
Já, nú er maður eiginlega orðlaus. Þetta hættir ekkert að vera skrýtið. Maður veltir því fyrir sér hvort málin eru komin úr böndunum og hvort nokkrar aðgerðir, hversu harðar sem þær eru, muni virka yfirleitt. Eins gott að ég fór á bókasafnið um helgina. nú verður bara lesið og prjónað á milli þess sem ég má mæta í vinnu. Og kannski getur maður skroppið í sjóinn. Þeir sem sjá um aðstöðuna í Nauthólsvík auglýstu að klefar og gufa yrðu opin hjá þeim en heiti potturinn lokaður en hvort þeir ákveði svo að að skella alveg í lás eins og sundlaugar höfðuborgarsvæðisins veit ég ekki enn en yrði ekkert hissa.
5.10.20
Vinnuvika hafin
Eitthvað hlýt ég að hafa verið spennt vegna vinnuvikunnar framundan því ég rumskaði milli tvö og þrjú í nótt eftir rúmlega þriggja tíma svefn og mér fannst ég vita af mér alltaf eftir það fram á morgun þrátt fyrir að hafa lítið gert annað en legið og snúið mér stöku sinnum. Fór á fætur um sex og bjó mér til hafragraut í morgunmat. Rétt fyrir sjö lagði ég gangandi af stað til vinnu og var akkúrat 30 mínútur að labba 3 km. Ég var í bókhaldinu svo ég kom ekki nálægt neinni framleiðslu. Hinar tvær kláruðu alla daglega framleiðslu um hálfeitt. Eftir hádegi fór önnur þeirra að klára mánaðarlegu reikningagerðina á meðan við hin töldum alla framleiðslu og það sem stóð útaf mánaðarlegri talningu skv. skýrslu frá hinu genginu, rekstrarvörur í framleiðsluvélar, umslög og form og fleira. Tókum okkur ekki kaffipásu seinni partinn og vorum búnar að ljúka öllum verkefnum dagsins um þrjú og fórum heim þá. Ég fékk far heim með annarri hinna en hún hætti á samgöngusamning sl. mánaðamót.
Heima hellti ég upp á kaffi og fékk mér hressingu með því. Las í bókinni sem ég skrifaði um í gær og prjónaði nokkrar umferðir í nýjustu tuskunni áður en ég tók til sjósundsdótið og var komin í Nauthólsvík rétt fyrir fimm. Tvær úr genginu voru að koma upp úr, nokkrar höfðu sagt pass eða voru ekki í bænum en við vorum tvær á sama tíma. Gleymdum alveg að taka tímann á því hvað við vorum lengi að svamla um í 6,8°C sjónum en skutum á að það hafi verið tæpar tuttugu mínútur og svo vorum við annað eins í heita pottinum á eftir.
4.10.20
Engin skrifpása
Hafði hugsað mér að sleppa því að blogga í dag en það var eitthvað sem togaði mig að tölvunni og sleit mig frá spennusögunni sem ég er að lesa. Er reyndar að lesa tvær af þeim þremur bókum sem ég átti eftir að lesa, bækur sem ég nái í á safnið föstudaginn fyrir rúmri viku. Er búin að minnast á Heift en ég byrjaði á Fyrir fallið eftir Noah Hawley í fyrrakvöld, spennu saga upp á rúmlega fjögurhundruðogsextíu blaðsíður sem rígheldur. Er næstum því hálfnuð með bókina.
Ég var komin austur á Hellu fyrir klukkan tvö í gær. Stuttu eftir að ég var komin út úr bænum komu skilaboð um að skynjarinn vegna þrýstings í dekkjum væri ekki að svara. Ákvað að kanna þrýstinginn þegar ég var komin á Selfoss. Skilaboðin frá hjólbarðaverkstæðinu voru að öll dekk ættu að vera 32" en ég gat ekki lesið betur á miðanum. Hins vegar var eins og þrýstingurinn væri á bilinu 34-36. Ég ákvað að setja öll dekk á 32 og reyna að virkja það þannig. Skilaboðin komu aftur eftir rúmlega 10 km keyrslu. Leiddi þau hjá mér í bili. Pabbi er búin að kaupa bækurnar um Hellu og var á kafi að lesa í fyrra bindinu. Ég var með prjónana mína og bókina sem heldur mér við efnið þessa stundina.
Eftir kaffi tók ég út bleikjuflak úr frysti. Hafði kvöldmatinn tilbúinn milli frétta tíma. Horfði á fréttir á RÚV eftir matinn, náði mér í tvö flök af þorskhnökkum úr öskju sem ég geymi í frystikistunni hjá pabba og kvaddi hann rétt fyrir átta. Kom aftur við á Selfossi að kanna þrýstinginn. Hann var næstum því eins og ég hafði stillt hann fyrr um daginn svo ég reyndi að festa tölurnar inni. Hugsanlega er skynjarinn að bila því merkið/skilaboðin birtust aftur í mælaborðinu og á útvarpsskjánum áður en ég var komin framhjá Hveragerði.
Var vöknuð um sjö, greip í bókina (Fallið) hálftíma síðar. Heyrði í N1 syninum um níu og dreif mig þá loksins á fætur. Hann var reyndar búinn að redda sér fari svo ég gat haldið áfram að lesa. Um tíu sendi ég fyrirspurn á kaldapotts vinkonum mína um hvort og þá hvenær hún ætlaði í sund í dag. Svarið kom fljótlega og var klukkan 12. Ég sagðist myndu hitta hana í Laugardalnum, ætlaði að mæta örlítið fyrr til að vera búin að synda. Þegar ég var að læsa skápnum utan um fötin upp úr klukkan hálftólf var vinkona mín að mæta. Hún sagðist skyldu bíða eftir mér í steinapottinum á meðan ég væri að synda. Fyrsta ferðin af sex í þann kalda var á slaginu tólf og eftir þá síðustu sat ég uþb tíu mínútur í gufunni.
Áður en ég fór heim aftur eftir sundið fór ég á þrjá staði í Kringlunni. Skilaði fjórum bókum á safnið og var komin með átta í hendurnar áður en ég fór að annarri sjálfsafgreiðslutölvunni. Eina af þessum átta bókum var ekki hægt að fá leigt því það var búið að panta hana. Hinar sjö bækurnar eru allar með skiladaginn 3. nóvember sem svo er hægt að framlengja um 30 daga í viðbót. Þær þrjár sem voru hér heima eftir síðustu bókasafnsferð eru með skiladaginn 25. október sem einnig er hægt að framlengja. Fór með bókapokann út í bíl áður en ég fór á hina tvo staðina, Lin design þar sem ég keypti 5 stk af höfuðhandklæðum sem flest eru hugsuð sem jólagjafir og Söstrene Grene þar sem ég keypti 10 dokkur af bómullargarni sem má fara á 60°C í þvotta vél og einn poka af himalayjasalti.
3.10.20
Er veiran að taka völdin?
Miðað við nýjustu veirgreiningafréttir þá er ég afar smeik um að sóttvarnarlæknir skili inn minnisblaði sínu og að takmarkanir fari aftur niður í 20. Ég er nokkuð viss um að langflestir hafi verið að passa sig en bæði þegar einhverjir telji að tilmæli eigi ekki við sig og virði ekki sóttkví sem og að fólk getur fengið veiruna án þess að vita af því eða veikjast en verið smitberar þá er illt í efni. Kannski er hluti af þessu náttúran sjálf að segja hingað og ekki lengra, það þarf að taka "mig" alvarlega. Það er amk nokkuð ljóst að það er engan veginn hægt að sjá fyrir hversu lengi þetta ástand muni vara. Ég þori varla að hugsa um hvernig það væri ef ekki hefðu verið þessar landamæratakmarkanir. Hef óljósan grun um að margir þættir spili inn í en er fúl út í þá sem hafa svindlað/ekki virt reglur/tilmæli vísvitandi sjálfsagt hugsandi "Það kemur ekkert fyrir mig!" Hugsa að þessir aðilar séu ófærir um að hugsa neitt lengra og geri sér ekki grein fyrir því að svona hugsunarháttur kemur niður á þeim sem minnst mega sín, viðkvæmu hópunum.
Annars var ég að koma úr sundi. Fór á fætur um hálfátta og hélt að N1 sonurinn væri að sofa yfir sig eina ferðina enn. Hann er þá í fríi í dag. Klukkan var orðin hálfníu áður en ég lagði af stað í Laugardalinn og ég þurfti að skafa. Synti 500m og fór fjórar ferðir í þann kalda, heitan pott á milli og endaði á að sitja í gufunni í uþb 10 mínútur áður en ég fór upp úr. Kom við á Sprengisandi og fyllti bílinn. Ég er að hugsa um að skreppa aðeins og heimsækja hann pabba minn. Hugsanlega best að það sé svona skreppitúr í þetta sinn. Koma aftur í bæinn í kvöld og skreppa í sund aftur í fyrramálið, ef ekki verður búið að skella í lás, og undirbúa mig undir vinnuviku.
2.10.20
Naglarnir komnir undir
Mér fannst ekki skemmtilegt að mælaborðið í bílnum fór að væla þegar ég settist upp í hann stuttu fyrir klukkan fimm í gær. Þá hafði ég ekki notað bílinn frá því ég kom heim úr fiskbúðinni í kringum hádegið daginn áður. Fór beint upp í Öskjuhlíð og þegar ég byrjaði að pumpa dekkið var það komið niður í 17. Fór í sund og hélt ég hefði misst af kalda potts vinkonu minni. Hún var þá sein fyrir, hafði sleppt leikfimitíma og kom rétt upp úr hálfsex. Þá var ég búin að fara þrjár ferðir í þann kalda. Fór aðrar þrjár með henni og synti svo 200 metra áður en ég fór upp úr og heim.
Davíð Steinn sá um kvöldmatinn í gær. Hann hafði skroppið gangandi upp í Kringlu fyrr um daginn bæði til að ná í eitthvað í pósthólf og einnig skreppa í Bónus og huga að nestismálum fyrir vinnuvaktadagana framundan. Hann keypti eitt og annað, m.a. botna í pizzur og hann útbjó eina pizzu í gærkvöldi með hakki, túnfisk, gulum baunum og mikið af osti.
Heyrði N1 soninn fara af stað í vinnu fyrir klukkan sjö í morgun. Klukkutíma síðar dreif ég mig á fætur, burstaði tennur, fékk mér lýsi vítamín, vatnsglas og harðsoðið egg og tók sunddótið og prjónana með mér út í bíl. Var mætt á dekkjaverkstæðið í Fellsmúla rétt rúmlega átta. Var ekki búin að panta tíma en ég þurfti samt ekki að bíða lengi eftir að komast að, kannski ca 7 mínútur. Keyrði bílinn inn um hurð númer 3, skildi bíllykilinn eftir í og áréttaði sömu beiðni og í afgreiðslunni um að ventillinn farþegameginn að framan yrði athugaður. Fékk mér kaffisopa en tók aldrei upp prjónana þótt það hefði alveg verið nægur tími til að prjóna nokkrar umferðir. Það var settur nýr ventill og sumardekkinn tekin inn á hótelið og með N1 afslætti Davíðs Steins (þurfti bara að gefa upp kennitöluna hans) kostaði þetta rúmlega þrettán þúsund. Ég hef aldrei látið setja nagladekkin svona snemma undir en ég held að ég hafi alveg verið að gera rétt.
Af Kvikk syninum er það að frétta að hann fékk uppsagnarbréf á miðvikudaginn var og mátti ráða því hvort hann myndi vinna uppsagnarfrestinn sem rennur út um áramótin. Kannski var þetta það sem hann þurfti til að fara að ákveða næstu skref í lífinu, hver veit. Hann var smá stund að melta þetta en sagði svo að sér væri alveg sama. Það var á honum að heyra að hann ætlaði að mæta á sínar föstu vaktir þangað til búið væri að leysa vaktamálin.
1.10.20
Október byrjaður
Ég vaknaði rétt fyrir klukkan sjö í morgun. Kveikti á útvarpinu og lét hugann aðeins reika um. Náði að rífa mig á fætur og búa um rúmið áður en klukkan varð átta. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég beint inn í stofu og las um stund í; Ýmislegt um risafurur og tímann eftir Jón Kalmann Stefánsson. Er langt komin með þá bók, á aðeins 60 blaðsíður eftir sem ég væri líklega búin með ef ég hefði ekki ákveðið að skipta um stað í stofunni og kveikja á tölvunni. Er semsagt búin að vafra smá og leika mér síðan rétt fyrir klukkan níu.
Hitti þrjár úr sjósundshópnum í Nauthólsvík um ellefu í gærmorgun. Sjórinn 6,7°C og mikil fjara. Óðum nokkuð langt út, hafði á tilfinningunni að við værum hálfnaðar til Kópavogs. Svömluðum um á svæðinu og tvær af okkur sáu krossfisk. Ég er ekki enn búin að fjárfesta í nýjum sundgleraugum svo ég var ekkert að reyna að koma auga á krossfiskinn. Synti smávegis bæði á bringu og baki en við fórum ekki út að kaðli. Vorum á svamli í tæpt korter og svo líklega um hálftíma á spjalli í heita pottinum á eftir.
Kom við hjá loftdæminu hjá Kvikk. Mælaborðið var ekki byrjað að kvarta en dekkið var komið niður í 27 svo ég pumpaði það upp í 33. Skrapp í Krónuna við Nóatún og kom einnig við í Fiskbúð Fúsa áður en ég fór heim. Enn ein tuskan datt af prjónunum í gærkvöldi. Á eftir að ganga frá einum enda, prjónaði upphafsendann saman við hluta af fyrstu umferðinni. Svo er bara að fitja upp á nýrri tusku. Á dokkur í fjórar aðrar og geri svo örugglega tusku úr afgöngunum.