Seinni partinn í gær heimsótti ég fyrrum samstarfskonu og staldraði við hjá henni til klukkan að verða níu eða hátt í fimm tíma. Við höfðum um margt að spjalla og tíminn flaug hratt. Ég hafði einhvern veginn búist við þessu því ég var með prjónana mína meðferðist og tók þá fram amk tvisvar sinnum. Lítill kjölturakki á heimilinu krafðist reyndar að fá athygli, klór og kjass. Varð auðvitað við þessum kröfum og fyrir vikið öll í hundahárum sem auðvelt var að rúlla af.
Á leiðinni heim hringdi ég í systur mína og spurði hvernig það legist í hana að fá næturgest í nokkra daga. Ég er að sjálfsögðu velkomin og mun fá afnot af herbergi yngri systurdóttur minnar. Ég hafði ætlað mér að skreppa í sund í morgun og var vöknuð um hálfsjö. Ákvað svo fljótlega að ég gæti alveg farið í sund einhvers staðar á leiðinni eða þá á Akureyri í fyrramálið. Hlustaði á morgunútvarp Rás2 milli sjö og átta.
Nú er ég nýbúin að borða staðgóðan hafragraut og drekka fyrsta kaffibolla dagsins. Stefni að því að leggja í hann einhvern tímann milli tíu og tólf. Báðir strákarnir eru heima, sofandi. Annar þeirra í vaktafríi (sá sem ég bjargaði í gær) en hinn á ekki vakt fyrr en milli fjögur og átta. Mun vekja þá til að kveðja svo þeir viti að ég sé á leiðinni út úr bænum í nokkra daga.
Eins og ég gat um í færslu gærdagsins mun bloggið líklega liggja niðri á meðan ég er á ferðinni. Kannski póstast eitthvað á Facebook í staðinn.