Gleymdi alveg að minnast á hitting okkar tvíburahálfsystur minnar sl. mánudagskvöld í gær og bæti úr því hér með. Lilja vinkona hafði ætlað að vera með en hún fór út úr bænum á sunnudagskvöldið þannig að það er lengra þangað til verður 100% saumaklúbbshittingur. Annars vorum við Sonja báðar að munda prjónana, hún að prjóna tusku og ég að vinna í enn einu sjalinu. Tveir og hálfur tími liðu sem um mesta lagi tíu mínútur væru að líða, svo fljótt hljóp frá okkur tíminn.
Þrátt fyrir að sumarfríið væri byrjað fór ég í rúmið upp úr klukkan tíu í gærkvöldi. Las að vísu til klukkan að verða ellefu og sofnaði svo fljótlega eftir það. Hins vegar rumskaði ég aftur um fjögur leytið og 4:34 gafst ég upp á að reyna að sofna aftur, kveikti á náttborðslampanum og tók fram lesgleraugun og bókina eftir Hallgrím Helgason. Það voru innan við 90 blaðsíður eftir og ég lagði ekki frá mér bókina fyrr en hún var búin. Þá var klukkan að verða sex. Í stað þess að fara að huga að því að fara á fætur og mæta í sund um það leyti sem myndi opna um hálfsjö, slökkti ég ljósið lagði frá mér bók og gleraugu og reyndi að sofna. Vissi næst af mér klukkan að ganga tíu, takk fyrir túkall, og það endaði með því að ég fór ekki á fætur fyrr en klukkan var að verða ellefu.
Fékk mér hressingu, hellti fljótlega upp á kaffi og settist svo með skammtímalánsbókina (sem ég byrjaði að lesa í gærdag) inn í stofu. Um hálftvö hringdi ég í frænda minn á Patró til að kanna hvenær hann vildi og þau gætu tekið á móti mér í heimsókn. Það gæti farið svo að ég leggi af stað í þann leiðangur um miðja næstu viku. Stuttu seinna hringdi ég í æskuvinkonu mína sem hefur verið búsett á Egilsstöðum síðasta einn og hálfa tuginn eða svo. Það gæti farið svo að þau hjónin verði búin að minnka við sig fyrir haustið.
Eftir gott spjall við Ellu dreif ég mig í Vesturbæinn til norsku esperantó vinkonu minnar. Hún átti von á mér upp úr tvö og við byrjuðum á því að labba að heitu vaðlauginni nálægt Gróttu og til baka, alls um 6,4km. Á bakaleiðinni mættum við manni hennar og frænda hans. Þeir fóru aðeins lengra en við og þegar þeir komu til baka var ég í sólbaði á svölunum og Inger að undirbúa kaffitímann. Eftir kaffið fóru þeir frændur á Miklatún í smá Folf en við vinkonurnar aftur út á svalir að spjalla og baka okkur í sólinni.