Ég fór ekki á fætur fyrr en um hálfníu í gærmorgun. Um níu var ég búin að búa til hafragraut. Ýtti fljótlega við N1 syninum og bauðst til að skutla honum á vinnuvakt fyrir klukkan tíu. Hann þáði boðið og fékk sér smá grautarslettu í morgunmat. Setti hann út við N1 við Stórahjalla rétt fyrir tíu. Við sammæltumst um að ég kæmi við hjá honum í baka leiðinni úr sundi því önnur rúðuþurrkan sem hann setti í fyrir mig um daginn virtist vera eitthvað gölluð. Það var mjög rólegt í sundi. Hafði braut 6 alveg útaf fyrir mig, synti mínar tuttugu mínútur, 500m þar af rúma 150 á bakinu, ca 40m skriðsund og 300m bringusund. Fór nokkrar ferðir í þann kalda og skipti milliferðunum á milli sjópotts, heitasta potts og 42°C potts. Þvoði mér um hárið og var mætt fyrir utan Stórahjalla um hálftólf. Fékk kaffi í boði Davíðs Steins á meðan hann skipti fyrir mig um aðra framrúðuþurrkuna á kostnað fyrirtækisins. Það er svo stutt síðan ég keypti þessar þurrkur að önnur þeirra hlýtur að hafa verið gölluð. Ég kom heim um tólf og fór ekkert meira út.
Stillti ekki á mig neina klukku þegar ég fór að sofa upp úr ellefu í gærkvöldi. Ég á að halda mig fjarri vinnu þessa vikuna og þá skiptir ekki öllu máli hvort maður vaknar klukkan sex, sjö eða átta. Var smá stund að ákveða mig í morgun hvenær dagsins ég ætti að skella mér í sund. Fannst þó best að fara fljótlega eftir að ég kom á fætur. Klukkan níu var ég komin út í þann kalda. Eftir þriggja mínútna stopp þar fór ég á braut 5 og synti í tæpar 25 mínútur, 600 metrar, þar af 150 metrar á bakinu en allt hitt á bringunni. Fór þrjár aðrar ferðir í þann kalda. Mjög fáir voru í sundi og aldrei biðröð í þá potta sem ekki mega fara nema 2 ofan í í einu. Oddur Smári var vaknaður og kominn fram þegar ég kom heim rétt fyrir ellefu. Rúmum klukkutíma seinna vöktum við bróður hans og þeir fóru eina ferð saman í Sorpu. Eftir að hafa skutlað bróður sínum heim aftur fór Oddur í Dressmann XL og fataði sig upp, keypti þrennar buxur og tvær hettupeysur. Hann kom líka við í matvörubúð og keypti brauð og lítinn pela af rjóma en ég var einmitt að taka síðustu vöffluna úr járninu þegar hann kom heim.