Rétt fyrir klukkan hálfátta í kvöld fékk ég sms frá HHÍ, í annað skiptið á árinu. Fyrir tveimur mánuðum fékk ég skilaboð um 12000kr vinning og í kvöld vann ég 20.000kr. Miðinn kostar 1600kr. á mánuði svo ég er að græða 12.800kr. þetta árið. Ekki slæmt og verður þetta lagt beint inn á viðhalds- og sparireikninginn minn upp úr miðjum mánuðinum.
Þar sem veðurspá gærdagsins var óvenju slæm en ekki alveg vitað hversu mikið yrði úr veðrinu hér á Reykjavíkursvæðinu fengum við þau skilaboð frá framlkvæmdastjóra um að fara heim strax eftir daglega framleiðslu. Ég var komin heim um hálfeitt í gær en stoppaði ekki lengi. Fékk mér að borða og hlustaði á afganginn af hádegisfréttunum áður en ég dreif mig út með sundtöskuna mína. Kom við á tveimur stöðum á leiðinni í Laugardalinn. Fór með buxur af Oddi í viðgerð í Saumsprettuna við Síðumúla og póstlagði eitt bréf og keypti 11 frímerki, 10 innanlands og eitt til evrópu, í leiðinni. Var komin á planið við Laugardalslaug og ákvað að heyra aðeins í pabba áður en ég drifi mig í sundið. Við pabbi spjölluðum í tæpar tíu mínútur. Þegar ég hins vegar kom að inngangi laugarinnar var miði sem á stóð að það yrði lokað klukkan 14 vegna veðurs. Það gaf auga leið að 20 mínútur eru ekki langur tími svo ég frestaði sundför og fór beinustu leið heim.
Heima byrjaði ég á því að hella mér upp á kaffi. Oddur Smári fór í vinnu rétt fyrir þrjú og kom heim aftur rétt fyrir klukkan níu. Davíð Steinn átti að vinna á N1 við gangveg frá 10-22 en það var ákveðið að loka stöðinni um klukkan sjö og fékk hann far heim.
Þegar ég fór á safnið fyrir tæpum hálfum mánuði fór það alveg framhjá mér að ein bókin var á skammtímaláni. Ég fékk skilaboð frá safninu að skiladagur á; Mínus átján gráður eftir Stefan Ahnhem, uþb 500bls. bók sem ég er ekki byrjuð á. Ákvað að athuga hvort ég gæti framlengt skilafrestinum og það gekk eftir. Þarf ekki að skila bókinni fyrr en 27. desember n.k.
Fór í sund á fimmta tímanum í dag. Kaldi potturinn var lokaður og það er búið að hreinsa allan dúk í kringum laugina og standa yfir heilmiklar framkvæmdir. Ég ákvað að nota strandskóna sem ég keypti á Kanarí í janúar til að labba á milli laugar og potta. Synti 500m og skrapp smá stund í tvo heita potta. Var komin heim aftur um sex.
Er búin að skrifa nokkur jólakort í kvöld. Eitt af þeim kortum fær far út á land með vinnufélaga sem ég er búin að þekkja síðan hann var bumbubúi sumarið 1982. Núna held ég að sé best að koma sér í háttinn og byrja á bókinni sem ég gat um áðan. Lofa þó að klára hana ekki í kvöld/nótt. ;-)