Í gærmorgun fór ég, aldrei þessu vant, á bíl í vinnuna. Vann til hádegis. Hafði fengið leyfi til að hætta vinnu upp úr tólf til að fylgja bekkjarsystur minni úr KHÍ en hún varð bráðkvödd þremur vikum eftir að við fórum saman austur í berjamó með pabba. Valbjörg Jónsdóttir var kölluð mamman í bekknum okkar en hún var fædd seint í október 1942 á Suðureyri við Súgandafjörð. Ég er ekki alveg að ná utan um það að hún sé farin en það fylgdu henni fjöldi manns, ættingjar, vinir og annað samferðafólk. Ég hitti fimm aðra úr bekknum okkar í kirkjunni og erfidrykkjunni. Valla var einstök persóna, þótti góður kennari og var afar dugleg að rækta frænd- og vinagarðinn. Eftir að hún komst á eftirlaunaaldur sinnti hún ýmis konar sjálfboðavinnu. Þessi kona var alltaf brosandi og afar viðræðugóð. Ég er þakklát fyrir að við drifum okkur í berjaleiðangurinn seinni partinn í ágúst sl.
Skilaði bílnum heim um þrjú en stuttu síðar labbaði ég í RB í K2. Þar var haldið kveðjupartý fyrir eina samstarfskonu mína sl. tæpu tuttugu árin en hún ákvað að fara að sinna eigin fyrirtæki ásamt eiginmanni sínum eftir rúmlega 23 ár hjá reiknistofu bankanna. Kveðjuhófið var auglýst frá 16-19 en ég bað Odd um að sækja mig um hálfátta.
Nennti ekki alveg strax á fætur í morgun klukkan átta. Var mætt til esperanto-vinkonu minnar um hálfellefu og tveimur tímum síðar skutlaði ég henni áleiðis í vinnu og dreif mig svo loksins í sund. Rétt gaf mér tíma til að hengja upp sunddótið þegar ég kom heim og var svo farin strax út aftur til að fylgjast með Valsstrákunum á heimavelli gegn HK í lokaumferð Pepsídeildar karla 2019. Átta mínútur voru liðnar af leiknum er ég mætti á svæðið en ég missti ekki af þeim tveimur mörkum sem mínir menn skoruðu. Leikurinn fór 2:0 fyrir Val en það var Hannesi að þakka að HK-ingar skoruðu ekki. Einu sinni fór þó boltinn í netið en það mark var ekki dæmt vegna rangstöðu.
Oddur átti frí í dag en Davíð Steinn var að vinna hjá N1 í Mosó. Ég ákvað að við skildum fara bæði að sækja hann og bauð strákunum á KFC á heimleiðinni en það gerist ekki oft.