Fyrr á árinu var stofnaður lokaður hópur á Facebook utan um okkur tuttugu sem vorum saman í bekk í grunnskólanum á Hellu. Fimm úr hópnum voru í grunnskóla Þykkvabæjar til 12 ára en komu í unglingadeildina á Hellu í 7. 8. og 9. bekk (sem nú eru 8. 9. og 10. bekkur). Einn úr hópnum er reyndar ekki á neinum samfélagsmiðlum en hann var látinn vita um hópinn og að til stæði að hittast eina helgina seinni partinn í september á þessu ári þegar liðin eru 35 ár síðan við útskrifuðumst úr grunnskóla. Fimmtán af okkur hittumst í gær. Um þrjú skráðu 6 of okkur sig inn á Hótel Stracta við Hellu, sá sjöundi sem líka ætlaði að gista nóttina sameinaðist hópnum um hálfátta í gærkvöldi er hann kom nánast beint úr flugi utan úr heimi. Þrettán af okkur vorum mætt við grunnskólann um fjögur í gær og fengum leiðsögn um hann hjá nýjum skólastjóra, Kristínu Sigfúsdóttur, sem var ráðin í starfið eftir að skólastjóri síðustu 35 ára sagði starfi sínu lausu í vor. Yfirferðin tók um klukkustund og höfðum við gaman að þessu. Frá skólanum lá leiðin upp að Ægisíðu þar sem dóttir eins úr hópnum leiðsagði og sýndi okkur nokkra af hellunum. Sest var að snæðingi í Hótelinu um átta og þá voru allir sem boðuðu ekki afföll mættir. Við skemmtum okkur svo fram á rauða nótt og voru margar skemmtilegar sögur rifjaðar upp. Fimm af okkur sjö sem gistum á hótelinu vorum mætt í morgunmatinn upp úr klukkan níu.
Núna er ég stödd hjá pabba og ætla að vera framyfir kvöldmat. Í gærmorgun náði ég góðri sundferð í Laugardalslaugina þar sem ég fór m.a. fjórar ferðir í þann kalda. Lagði af stað úr bænum rétt upp úr hádegi og kom við í Fossheiðinni. Hugurinn var reyndar á Valsvellinum bróður partinn úr deginum en ég sá hluta af leik Vals og Keflavíkur í lokaumferð Pepsídeildar kvenna í lobbýinu á hótelinu.
Á föstudagskvöldið sótti Brynja vinkona mig um hálfátta og við fórum saman á kvöldvöku með Jóni Gnarr í Borgarleikhúsinu. Sú kvöldvaka stóð til klukkan að ganga tólf og skemmtum við okkur alveg ágætlega.