Þegar pabbi spurði mig, fyrir uþb 10 dögum síðan, hvort hann mætti bjóða mér á þorrablót á Hellu sagði ég strax; "Já takk!", þrátt fyrir að það væri árshátíð hjá RB sama kvöld. Árshátíðin hjá vinnunni minni hefur oftast verið haldin í mars og einhverra hluta vegna var ég alls ekki stemmd fyrir því að fara núna. Ég hef hins vegar aldrei farið á þorrablót hér fyrir austan öll þessi 20 ár síðan það var haldið fyrst. Þetta var semsagt tuttugu ára afmælisblót, uppselt og húsfyllir eða vel yfir 500 manns. Pabbi hefur heldur ekki farið á blót áður en að þessu sinni ákvað hann að slá til. Það var líka vel tekið á móti honum og honum heilsað hlýlega af mjög mörgum. Hann fékk úthlutað á sæti á besta stað. Dekkuð voru yfir 50 10 manna borð og tveir að hinum borðsgestunum voru pabbi æskuvinkonu minnar og með honum var skólasystir mömmu frá því í húsmæðraskólanum á Blöndósi fyrir uþb 60 árum síðan. Var að hitta þá konu í fyrsta skipti og líkaði vel við. Hún spurði mig hvort ég hefði ekki verið heimagangur hjá Sigrúnu heitinni og Val hér árum áður og kannaðist vel við það og sagði hann ætti alveg stóran part í mér. Blótið var annars verulega vel heppnað, súrmaturinn frá Múlakaffi, heimatilbúin skemmtiatriði, smá harmonikkuball á eftir og svo lék Stuðlabandið fyrir dansi eitthvað fram eftir. Við pabbi vorum mætt á staðinn upp úr klukkan sjö og létum svo gott heita þegar ég hélt að það væri uþb miðnætti en þá var klukkan að byrja að ganga tvö. Pabbi keyrði en við vorum hvorugt í víni og ég fór ekkert á dansgólfið að þessu sinni. Var ekkert í svoleiðis stuði (kannski næst) en hitta marga en þó ekki alla. Í morgun fékk ég mér svo göngutúr upp að Helluvaði og var systir hans pabbi mjög hissa en mikið ánægð með að litli bróðir hennar hafi drifið sig á blót.
17.2.19
13.2.19
Febrúar næstum hálfnaður
Í gærkvöldi bað ég einkabílstjórann um að gera sér ferð í Sorpu í dag. Svo vildi svo vel til að hann var akkúrat á ferðinni um það leyti sem ég mátti fara heim úr vinnu sem var aðeins í fyrra fallinu. Hann sótti mig rétt fyrir þrjú og ég bað hann um að skutlast með mig í fyrirtækið "Eins og fætur toga" til að sækja nýju innleggin mín. Það gekk fljótt og vel fyrir sig því. Ég notaði tækifærið og keypti tvo aukapúða undir vinstri hælinn í skó sem ég set ekki eða kem ekki innleggjunum í. Ég stoppaði ekki lengi heima, bara rétt til að ná í sunddótið mitt. Var komin ofan í kalda pottinn rétt fyrir klukkan fjögur. Fékk gott pláss á brautum 7 og 8 til að synda mína 500 metra. Sundrútínan, pottaferðir og gufan tók mig rétt rúmlega klukkustund.
11.2.19
Auka heimsókn til tannlæknis
Um miðjan nóvember síðast liðinn fór ég í árlegt tanneftirlit um mánuði seinna en mörg undanfarin ár. Ástæða seinkunarinnar var sú að tannlæknirinn minn var kominn í barnsburðarleyfi og þessi tími var næsti lausi tími hjá öðrum tannlækni. Sá sem sinnti eftirlitinu tók tvær myndir og benti mér á að það borgaði sig að bóka tíma fljótlega til þess að huga að skemmd uppi hægra meginn alveg út í enda. Það eru einhver ár síðan var gert við á þessum stað en ég á greinilega mjög erfitt með að bursta þennan stað. Ég ákvað að taka mark á þessari ábendingu og bókaði tíma eftir að ég hafði gert upp heimsóknina þennan dag. Vildi þó ekki fá tíma í desember eða janúar og fyrsti tími eftir hádegi í febrúar hjá þessum tannlækni var kl. 15:45 í dag. Var svo heppin að eiga kost á því að skreppa fyrr heim úr vinnu til þess að sækja bílinn og sunddótið. Var mætt á 4. hæð í Valhöll tæpum tíu mínútum fyrr. Komst að á réttum tíma og þrátt fyrir að það þyrfti að deyfa, bora, pússa, spasla og fleira tók þetta innan við hálftíma. Næst fer ég í árlegt eftirlit í lok október til tannlæknisins míns en hún kemur til vinnu aftur úr fæðingarorlofi núna í vor. Ég var komin í Laugardalinn rétt fyrir hálffimm.
Annars fór ég ekkert austur um helgina. Eftir sund og esperanto á laugardaginn notaði ég restina af deginum í ýmislegt dútl hér heima. Í gær fékk ég Odd til að koma og hjálpa mér við að undirbúa maulið eftir messuna. Davíð Steinn var að vinna 12 tíma vakt (10-22) á N1 í Borgartúni. Hann fór labbandi um morguninn en gleymdi að taka með sér strætókortið. Oddur skutlaði mér í Krónuna við Nóatún og skutlaðist með kortið til bróður síns á meðan ég verslaði aðeins inn fyrir maulið sem og heimilið. Ég var komin út á plan með pokann áður en Oddur kom aftur. Hann sá svo um að undirbúa efri safnaðarsalinn undir móttöku á kirkjugestum í maulið eftir messuna. Hann fór upp með bolla, glös og fleira. Ég hellti upp á kaffi, skar niður gulrótarköku, jólaköku og setti á diska og setti einni tvær smákökusortir í skálar. Undirbúningurinn tók okkur mæðginin um þrjú korter og svo leyfði ég honum að fara en ég var sest inn í kirkju rétt áður en messan hófst. Við vorum amk 34 í kirkjunni. Sat svo róleg í maulinu á eftir og drakk amk 2 kaffibolla og spjallaði við einn kirkjugestinn. Var tæpan klukkutíma að ganga frá á eftir, m.a. vegna þess að það var aukauppvask, tvær fullar grindur af bollum, glösum og diskum voru í þurrskápnum. Sennilega var eitthvað af því hreint en það var búið að setja óhreint leirtau saman við (sem á aldrei og alls ekki að fara þangað óuppvaskað) svo ég ákvað að renna því öllu í gegnum þvottavélina. Sendi einkabílstjóranum og sérlega aðstoðarmanni mínum skilaboð um að hann mætti sækja mig rétt fyrir klukkan hálffimm.
7.2.19
Fyrsti dagur í vinnu eftir stutt frí
Það var vel tekið á móti mér á K1 þegar ég mætti rétt fyrir klukkan átta í morgun. Þar að auki reyndist þessi vinnudagur mjög svo gestkvæmur. Petra sem hætti í kortadeildinni í fyrra eftir rúmlega 12 ára starf kom til okkar um það bil sem við vorum að fara að morgunkaffi. Klukkan eitt var reglubundinn hálfsmánaðarfundur með framkvæmdastjóra og að þessu sinni var nýr forstjóri með í för að kynna sig og kynnast starfseminni hjá okkur. Og um þrjú leytið kom fyrrverandi starfsmannastjóri í heimsókn.
Annars var mjög notalegt að vera í fríi í gær. Var tiltölulega snemma á fótum en notaði morguninn í að hringja í pabba og einnig klára jólabók númer tvö af þremur sem ég byrjaði á að lesa í ferðalaginu. Þorpið eftir Ragnar Jónasson. Virkilega spennandi og góð bók. Klukkan var byrjuð að ganga eitt þegar ég dreif mig loksins í sund. Gaf mér góðan tíma í Laugardalnum. Á heimleiðinni kom ég við í Krónunni í Nóatúni og Fiskbúð Fúsa í Skipholti. Restin af deginum fór í alls konar dúllerí heima, m.a. prjónaskap en ég byrjaði á enn einu sjalinu kvöldið fyrir Kanaríferðina. Er komin á þriðju dokku núna.
6.2.19
Komin heim frá Kanarí
Síðustu vikuna í september síðast liðinn gisti góð vinkona, Lilja, í stofunni hjá mér áður en hún fór út til vetrardvalar á Kanaríeyjum. Þessa viku sem hún var hjá mér spurði hún mig nokkrum sinnum hvort ég myndi ekki koma og heimasækja hana. Seinni parinn í nóvember varð það úr að ég athugaði hvort það væri í lagi að ég kláraði sumarfrídagana mína frá því í fyrra um mánaðamótin jan/feb 2019. Það gekk eftir og ég bókaði viku ferð með WOW út þann 29. janúar með eina litla handfarangurstösku og heim þann 5. febrúar með ferðatösku. Með sköttum og forfallatryggingu kostaði þetta vel innan við 50 þúsund.
Á mánudaginn í síðustu viku fékk ég að hætta í vinnu um hálftvö. Tók strætó heim til að sækja bílinn og byrjaði á því að skreppa í "Eins og fætur toga" til að leggja inn pöntun fyrir nýjum innleggjum og kaupa mér nýja strigaskó. Ætlaði líka að kaupa mér auka 7mm púða undir vinstri hælinn en það gleymdist. Kom reyndar ekki að sök því ég átti til innlegg með upphækkun sem ég gat notað. Áður en þessi dagur var úti var ég líka búin að skreppa í sund og pakka mig saman. Tvíburahálfsystir mín kom við hjá mér upp úr klukkan fimm til að hjálpa mér að setja upp bókunarapp í símann og ég var búin að skrá mig inn í flugið með því appi og pósti frá wow áður en hún fór.
Morguninn eftir keyrði einkabílstjórinn minn á BSÍ rétt upp úr klukkan sex þaðan sem ég tók rútu upp á flugvöll. Vel gekk að koma sér í gegn en þótt ég hefði rúman tíma þá notaði ég hann einungis til að taka út 300 evrur úr hraðabanka en settist svo niður og beið þar til kominn var tími til að ganga um borð. Fékk mér hvorki vott né þurrt þessi tvö harðsoðnu egg og vatnsglas stóðu með mér alveg þar til boðið var upp á að kaupa sér hressingu um borð. Flugið út tók styttri tíma en reiknað var með og vorum við lent amk tuttugu mínútum á undan áætlun, það snemma að Lilja vinkona var ennþá í strætó á leiðinni að sækja mig og þurfti ég að bíða smástund eftir henni. Það urðu fagnaðarfundir þegar hún fann mig. Við byrjuðum á því að skreppa með dótið mitt "heim" til hennar í þorp sem heitir Vecendario sem er ekkert mjög langt frá flugvellinum. Lilja bauð mér upp á súpu og kaffi. Svo skruppum við aðeins út í búð til að kaupa helstu nauðsynjar fyrir næstu daga, m.a. BACH-hvítvínsflösku. Sambýlingur Lilju síðustu mánaða skrapp til Íslands með vélinni sem ég kom með. Hún var búin að vera rúmum mánuði lengur á Kanarí og þurfti að koma heim áður en liðnir væru 6 mánuðir frá því hún fór út til að halda ákveðnum réttindum hér heima. En í stað þeirrar konu var von á annarri með öðru flugfélagi sama kvöld og ég kom. Sú lánaði hinni íbúðina sína í viku og fékk herbergið hennar í staðinn. Við Lilja fórum saman út á flugvöll að sækja viðkomandi. Lögðum tímanlega af stað en nú brá svo við að það var seinkun í gangi og við biðum í hátt í tvo og hálfan tíma á vellinum. Það var svo sem í góðu lagi því það var hægt að setjast niður og fá sér smá hressingu. Það var svo ákveðið að taka leigubíl heim. Fórum ekki að sofa fyrr en fór að halla í miðnætti.
Við vorum vaknaðar og komnar á stjá rétt upp úr klukkan átta á miðvikudagsmorguninn. Gáfum okkur góðan tíma í fá okkur kaffi og staðgóðan morgunverð, gríska jógúrt með múslí og epli. Síðan fórum við allar þrjár út í göngutúr um Vecendario. Fórum m.a. upp á göngugötu sem Lilja sagðist kalla Laugaveginn, tæplega km löng. Við skoðuðum inn í margar búðir og ég keypti mér bakpoka, buxur og stuttbuxur. Við fórum líka á markað þarna í grenndinni sem er alltaf á miðvikudögum og margt að sjá og finna þar. Ég keypti ekkert þar en hinar tvær fjárfestu m.a. í allskonar hollustu nammeríi eins og möndlum, fíkjum, döðlum og fleiru.
Á fimmtudeginum fengum við okkur 45 mínútna göngutúr að öðru þorpi, Paya de Pozo izquario, sem er alveg við sjóinn. Þar stoppuðum við í góða stund og tvær af okkur skelltu sér í smá sjóbað. Héldum göngunni svo áfram, fundum aðra leið heim og vorum þá búnar að ganga í stóran hring. Seinni partinn skruppum við svo í Mollið í Vecendario.
Á föstudaginn tókum við strætó til Faro. Þar keypti ég mér sandala og strandmottu enda eyddum við góðum tíma á ströndinni þar. Lilja var sú eina sem ekki fór í sólbað og sjóinn en hún var með sessu og bók með sér og beið þolinmóð eftir okkur hinum tveimur.
Morguninn eftir vildi hinn gesturinn fara eigin leiðir og skoða aðra strönd í öðru þorpi en við Lilja tókum stærtó upp í fjöllinn og eyddum deginum í einu af efsta fjallaþorpinu sem var endastöð strætó. Það var mjög gaman að ferðast með strætó alla þessa leið og margt að sjá. Á mörgum stöðum þurfti bílstjórinn að flauta fyrir horn. Í þorpinu sjálfu var líka ýmislegt að skoða. Við prófuðum m.a. útiæfingatæki sem ætluð voru öllum eldri en 15 ára. Við vorum þau löngu búnar að skoða það helsta og einnig fá okkur hressingu áður brottfarartími vagnsins til baka (um sex) rann upp. En þatta var mjög skemmtilegur dagur sem endaði með smá Pizza-veislu heima í íbúð.
Á sunnudeginum var ætlunin að fara á markað stutt frá ensku ströndinni. Svæðið sem Lilja fór með okkur á reyndist autt og tómt en áður en við vorum búnar að ákveða framhaldið bar að þýskan mann sem er búsettur í nágrenninu helminginn af árinu. Hann vissi hvert var búið að flytja markaðinn og rölti með okkur þangað spjallandi við Lilju á sínu móðurmáli. Markaðurinn reyndist öðruvísi en við ætluðum, t.d. ekkert grænmeti til sölu bara alls konar varningur í misjöfnu ástandi. Hinn gesturinn fann reyndar afar flotta styttu af konu í flottum bláum kjól og prúttaði niður í 7 evrur. Alveg við markaðinn var kaffihús og þar bauð egypskur maður okkur að setjast hjá sér. Þegar kaffið okkar kom var svarta kaffið kalt og ódrekkandi og Abú skilaði þeim bollum og kom með heitara kaffi í staðinn. Hann krafðist þess líka að fá að borga fyrir kaffið en þegar hann bauð okkur á rúntinn með sér sögðum við hingað en ekki lengra. Þökkuðum pent fyrir og sögðumst vera ákveðnar í að fara fótgangandi á næsta áfangastað sem var Jumbó Center á ensku ströndinni. Þangað var nokkur spölur en mjög skemmtileg ganga þangað, þurftum að svindla okkur yfir götur á tveimur stöðum þar sem við sáum ekki gangbraut nálægt en þurftum yfir. Fengum okkur að borða á stað sem er stutt frá stað sem í mörg ár var kallaður Klörubar. Og þegar við héldum göngunni áfram á þann stað þar sem við tókum strætó til baka til Vecendario sá ég Europalace hótelið tilsýndar, hótelið sem ég og nokkrir af útskriftarfélögum úr FSu dvöldum á í hálfan mánuð fyrir 31 ári síðan.
Á mánudaginn löbbuðum við hinn hina leiðina að ströndinni við Pozo þar sem tvær af okkur fóru í sólbað og sjóinn áður en við löbbuðum aftur til baka. Skiluðum af okkur stranddótinu og fórum svo í stærstu Kína-búðina í Vecendario þar sem ég keypti m.a. stærri tösku sem ég gat bæði sett flugreyjutöskuna mína, mitt dót sem ég var ekki með í bakpokanum og einnig nokkuð af verkfærum sem Lilja keypti sér í London í haust á leiðinni til Kanarí. Kínabúðtaskan er fjólublá og flott og tók leikandi við þessu öllu og fór ekki yfir þyngdarmörkin 23kg vó uþb 21,5kg og ég náði þarna að bjarga Lilju svo hún þarf ekki að borga yfirvigt þegar hún tekur sig upp frá Vecendario.
23.1.19
Miðvikudagskvöld
Kom ekki heim úr vinnu fyrr en rétt upp úr klukkan fimm í dag og ég hef ekki nennt út aftur. Hefði þurft að fara og sinna sund-rútínunni en hugga mig við það að ég fór í sund bæði í gær og í fyrradag. Auðvitað er alveg í lagi að hvíla kropparæktina dag og dag og það er jafnvel æskilegt á stundum.
Er að horfa á Danmörk-Svíþjóð á HM á Rúv2. Þetta er hörku leikur og ég er ekki viss um með hvoru liðinu ég á að halda. Megi betra liðið vinna og leikurinn halda áfram að vera skemmtilegur á meðan hann er í gangi.
Sjalaprjónið gengur alveg ágætlega, á kannski svona tuttugu umferðir eftir áður en ég felli af.
20.1.19
Ekki út úr bænum þessa helgina
Síðast liðin vika var fljót að líða. Fékk að fara heim úr vinnu um hálfþrjú á miðvikudaginn og horfði á megnið af landsleiknum hér heima. Strax eftir leikinn sótti ég jafnöldru, vinkonu og fyrrum vinnufélaga og við byrjuðum á því að skreppa í IKEA til að fá okkur kaffi. Sátum þar og spjölluðum í á aðra klukkustund. Síðan skruppum við á rúntinn um Breiðholt og Árbæ og þegar ég skilaði henni heim skrapp ég með henni inn til að heilsa upp á kisuna hennar og stoppaði í amk klst. Var með sunddótið með mér í bílnum en þegar til kom fór ég beint heim eftir þennan hitting enda klukkan byrjuð að ganga níu.
Á fimmtudaginn var landsleikurinn klukkan fimm og ég horfði á hann heima og fann til og borðaði kvöldmat áður en ég fór í sundið. Þegar ég kom heim úr vinnu á föstudaginn lagði ég áherslu á að koma smá skikk á heimilið. Var eitthvað að spá í að skreppa á fund/fyrirlestur í Lífsspekifélaginu en þegar til kom nennti ég engan veginn að fara út aftur. Slakaði bara á fyrir framan skjáninn með prjónana með mér. Var farin að sofa fyrir miðnætti.
Í gærmorgun var ég mætt í sundið upp úr klukkan hálfníu. Þá var ég eignlega búin að ákveða að fara ekkert út úr bænum þessa helgina. Úr sundinu fór ég beint í espernatohitting og var mætt vestur í bæ áður en klukkan sló hálfellefu. Hringdi í pabba þegar ég kom heim og hann var sammála mér um að vera ekkert að leggja upp í nein ævintýri og nota frekar helgina í hluti sem eru nauðsynlegir en leiðilegt að framkvæma og skrifa um.
Er búin að lesa eina af jólabókunum, Hasím og er sú bók mjög vel skrifuð og vekur mann til umhugsunar. En ég er líka að lesa mega spennandi bók af safninu; Hellisbúinn eftir Jörn Lier Horst. Er rúmlega hálfnuð með þá bók og skil varla hvernig ég gat lagt hana frá mér.
15.1.19
Saumaklúbbur og bókasafnsferð
Þar sem HM handbolta-leikurinn við Barein byrjaði klukkan hálfþrjú horfði ég á hann í vinnunni í gær. Fékk far heim. Hringdi örstutt í pabba en dreif mig svo í sund. Kom reyndar við í Fiskbúð Fúsa á leiðinni í sundið og keypti nætursaltaða ýsu og fiskibollur. Náði að sinna sundrútínunni mjög vel, þ.e. fór nokkrar ferðir í kalda pottinn, synti í tuttugu mínútur og gufaðist smávegis. Við Oddur Smári vorum sammála um að hafa fiskibollurnar í kvöldmatinn og geyma okkur þann nætursaltaða.
Á slaginu klukkan átta var ég mætt til tvíburahálfsystur minnar bæði með saumatöskuna og prjónana. Prjónaði og spjallaði og spjallaði og prjónaði enda er drjúgur tími liðinn síðan haldinn var saumaklúbbur síðast. Klukkan var líka allt í einu orðin ellefu, örstuttu síðar.
Kom heim úr vinnu í dag um hálffjögur. Strákarnir voru báðir heima. Ég stoppaði nú ekki lengi við. Hringdi í pabba og spjallaði stund við hann. Tók svo til sunddótið mitt og bókasafnsbækurnar. Byrjaði á því að skila inn bókunum áður en ég dreif mig í sundið. Á leið heim úr sundinu kom ég við í Krónunni. Var svo með þann nætursaltaða í matinn í kvöld.
Er annars að fylgjast með leiknum Þýskaland - Frakkland. Mikil spenna.
13.1.19
Áfram Ísland
Vó, það er erfið bárátta framundan hjá íslensku handboltastrákunum næsta klukkutímann eða svo. Vonandi ná þeir samt að stríða Spánverjunum.
Skrapp austur eftir sund og esperanto í gær. Var með prjónadótið, bækur og tösku með mér. Í kaffitímanum ákváðum við pabbi að hafa rauðsprettu í kvöldmatinn og að ég myndi sjá um að framreiða hana. Annars fór seinni parturinn og kvöldið í handboltagláp, prjónaskap, lestur og kapallögn. Náði að klára að lesa síðustu bókasafnsbókina svo nú mun ég klárlega loksins byrja á jólabókunum. Er líka búin að klára eina dokku af sjö í sjalinu sem ég byrjaði að prjóna á fimmtudagskvöldið var.
Lét Davíð Stein vita þegar ég lagði af stað heim upp úr klukkan hálfþrjú í dag og renndi við á Bakkanum eftir honum. Hérna heima eru nú mættir tveir auka piltar og eru þá fjórir ungir menn, ef ég tel þetta rétt, að spila í holinu.
10.1.19
19 ár í kortadeild RB í dag
Eftir nokkuð langa prjónapásu og mikla umhugsun er ég að hugsa um að prjóna enn eitt sjalið. Og jafnvel kannski tvö í viðbót. Kom við í Hagkaup í Skefunni eftir sund áðan og keypti mér m.a. nokkrar dokkur og tvo liti af kambgarni. Það gæti alveg farið svo að ég byrji strax í kvöld.
Annars ætlar þessi fyrsta heila vinnuvika á árinu að verða frekar fljót að líða. Sl. þriðjudag hafði ég tök á því að hætta aðeins fyrr í vinnunni. Skrapp heim, hringdi í pabba, náði í sunddótið og dreif mig í sund. Náði að klára rútínuna á ca klst. Úr sundi fór ég beint á fyrsta safnaðarstjórnarfund ársins sem var haldinn heima hjá formanninum sem býr í Grafarvoginum. Ritarinn hafði boðað forföll svo ég var beðin um að hlaupa í ritaraskarðið. Fundurinn stóð yfir í um það bil klukkutíma en strax á eftir var okkur boðið í mat, dýrindis kjötsúpu og kaffi og með því á eftir. Löngu eftir að við vorum búin að gæða okkur á veitingunum héldum við áfram að spjalla um eitt og annað og klukkan var langt gengin í tíu þegar ég kom heim.
Er ekki farin að demba mér í sjóinn á nýja árinu. Ákvað að fara frekar í sund í gær. Áður kom ég við í Fiskbúð Fúsa og keypti "allsbera" ýsu og hrogn sem ég hafði í matinn í gær handa mér einni. Annar sonurinn er farinn í nokkurra daga heimsókn til föðurforeldra sinna og hinn var að vinna til klukkan átta og var búinn að borða þegar hann kom heim. Þannig að ég bjó til einskonar plokkfisk úr afgangnum í kvöld, hafði hluta af hrognunum í þeirri blöndu og fannst þetta frekar gott.
7.1.19
Lagt inn í blóðbankann
Upp úr klukkan ellefu í morgun fékk ég bæði sms og mail frá Blóðbankanum þar sem var spurt hvort ég gæti komið að gefa blóð í dag. Ég var alveg með það á hreinu að ég myndi hlýða kallinu og þótt ég væri þá þegar búin að vera frekar dugleg í vatnsdrykkjunni bætti ég í. Var komin í Blóðbankann fyrir klukkan fjögur. Á meðan ég beið eftir að verða kölluð til fékk ég mér tvö glös af appelsínudjúsi, eitthvað sem ég geri aðeins þegar ég fer og gef blóð, eina kleinu og nokkrar rúsínur. Allar mældar tölur voru góðar og ákveðið var að taka úr vinstri hendinni sem yfirleitt hvefur verið "þægari". Nú brá svo við að æðin hrökk undan nálinni og ekki kom dropi. Ég gaf fúslega leyfi til að prófa hvort gengi betur með hægri hendina. Hjúkrunarfræðingurinn gaf sér góðan tíma og fékk aðra til að aðstoða sig á tímabili en allt gekk glimrandi vel og áður en ég labbaði heim fékk ég mér kaffibolla, rúgbrauð með kæfu og gúrku, eina kleinu til og fleiri rúsínur.
6.1.19
Þrettándinn
Ég er nýkomin heim frá Hellu. Var komin þangað upp úr klukkan hálfþrjú í gær. Oddur Smári sendi mig með nýkeypt belti og bað mig um að fá afa sinn til að bæta við götum á það. Pabbi vatt sér beint í það mál. Við feðginin skiptum svo með okkur verkum í eldhúsinu. Hann sá um kaffitímann og bauð þar m.a. upp á vöfflur og rjóma. Hann tók svo út rauðsprettu til að hafa í kvöldmatinn. Ég sá um að elda rauðsprettuna um kvöldið og hafði með henni kartöflur, lauk og epli. Fékk mér hvítvínsglas með matnum og annað til eftir matinn.
Var ekki með neina handavinnu með mér en nokkrar bækur, samt ekki bækurnar sem ég fékk í jólagjöf. Er að spara mér lesturinn á þeim en hlakka til að lesa þær allar þrjár engu að síður. Allt bækur sem mig langaði í og ég veit ekki hvernig ég fer að því að velja hverja þeirra ég les fyrst. Er að vinna í að lesa bækur sem ég þarf að skila á safnið seinna í mánuðinum. Er langt komin með að lesa bókina Utan þjónustusvæðis krónika, eftir Ásdísi Thoroddsen. Erfiðara gengur að lesa Sögu þernunnar eftir Margret Atwood og ég er búin að framlengja skilafrestinum á þeirri bók og þarf að skila henni í síðasta lagi 15. janúar. Ég er búin að lesa örfáa kafla en aðrar bækur inn á milli sem hafa togað meira í mig að háma í mig.
2.1.19
Um það bil tveggja daga gamalt nýtt ár
Ég var komin heim fyrir klukkan hálfníu í gærkvöldi. Báðir synir mínir voru heima og annar þeirra gaf mér gott knús og sagði um leið: "Mamma, ég er ekki búinn að sjá þig síðan í fyrra!" Hinn sonurinn kom fram til þess að fara niður í þvottahús að hengja upp úr þvottavélinni. Annað skiptið sem hann þvær af sér alveg sjálfur.
Fjórða vinnudaginn í röð fór ég á bílnum í vinnuna í morgun. Strax eftir vinnu fór ég beint í Kringluna á þjónustuborðið á fyrstu hæð og keypti mér þriggja mánaða strætókort sem gildir frá og með morgundeginum. Ég var svo heppin að boðuð hækkun á fargjöldum tekur ekki gildi fyrr en á morgun og fékk því þetta kort á kr. 26.900 í stað kr. 27.950. Næst lagði ég leið mína í Fiskbúð Fúsa í Skipholti þar sem ég náði mér í bleikjuflök til að hafa í kvöldmatinn. Svo skrapp ég í sund áður en ég fór heim.
31.12.18
Gamlársdagur
Enn lifa rúmlega átta og hálfur tími eftir af þessu herrans ári 2018. Undirrituð er komin austur á Hellu þar sem hún ætlar að eyða áramótunum með pabba sínum. Heill mánuður síðan eitthvað var skráð niður á þessum vettvangi og á þessum mánuði hefur ýmislegt verið brallað.
Skrapp nokkrar ferðir hingað en sleppti helginni sem aðventukvöldið var sem og helginni rétt fyrir jól. Hins vegar kíkti ég við í dagsferð þann 15. desember en var komin heim aftur um kvöldið því bæði vildi ég komast í sund á sunnudagsmorgninum og um fimm leytið þann dag sótti Brynja mig og við fengum okkur að borða á Nings áður en við fórum að sjá "Kvenfólk" með Hundi í óskilum í Borgarleikhúsinu. Afar skemmtleg uppsetning og þar að auki hitti ég þó nokkra fyrir og eftir sýningu sem annað hvort voru á sömu sýningu eða á Ellý.
Akkúrat viku eftir leikhúsferðina sótti Brynja mig aftur um klukkan hálfsex á Þorláksmessu og þá lá leiðin á Pottinn og Pönnuna í skötuhlaðborð þriðja árið í röð. Gáfum okkur góða tvo tíma í át og spjall áður en Brynja skilaði mér aftur heim.
Á aðfangadagsmorgun byrjaði ég á því að skreppa í sund rétt upp úr klukkan átta. Synir mínir vöknuðu upp úr tólf og ekkert mjög löngu síðar vorum við búin að ferma bílinn. Einkabílstjórinn sá um aksturinn og við gerðum stutt stopp í Fossheiðinni, fengum kaffi, knús og með því þar.
Jólin héldum við á Hellu með pabba og Helgu systur og hluta af hennar fjölskyldu. Aðeins kærustuparið var ekki, þar sem þau voru hér í fyrra voru þau hjá mömmu hans og fjölskyldu í ár.
Á annan í jólum skruppum við pabbi í messu í Keldnakirkju um tvö. Kvöddum norðanfólkið áður en tvíburarnir biðu eftir okkur á Hellu. Við mæðgin fengum okkur kaffi áður en við kvöddum og héldum heim á leið.
26.11.18
Síðustu dagar næst síðasta mánaðar ársins
Sem fyrr æðir tíminn áfram og ég leyfi dögunum að líða án þess að punkta niður eitthvað um það sem er að gerast. Ef ég segi gróflega aðeins frá því helsta og byrja á því sem er nýlega búið að vera í gangi þá skrapp ég austur rétt upp úr hádegi í gær og stoppaði fram yfir kvöldmat. Hafði reyndar ætlað mér að fara á laugardaginn og gista eina nótt en aðfaranótt laugardagsins fékk ég gubbupest sem varð til þess að ég fór ekkert á laugardeginu. Svaf fram á dag og tók því svo rólega, aðallega með bók í hönd.
Upp úr klukkan fimm á fimmtudaginn var kom N1 strákurinn minn með mér á dekkjaverkstæðið í Fellsmúla. Þar keypti ég ný nagladekk og lét setja undir og notaði um og yfir 20% afslátt sonarins af vörum og vinnu. Hjólbarðarnir sem voru undir bílnum voru settir aftur í aftursætin. Þegar ég kom heim færði ég tvo af þeim í skottið. Pabbi tók svo við þeim um leið og ég kom austur í gær og ég hjálpaði honum að koma þeim fyrir í einu horninu í bílskúrnum hans. Áður en við fórum inn athugaði pabbi fyrir mig hvort rærnar á nagladekkjunum væru ekki örugglega vel fastar.
Ég fór austur og gisti eina nótt helgina á undan nýliðinni helgi. Var ekki með neitt sérstakt verkefni í gangi líkt og helgina þar á undan en þá útbjó ég 16 jólakort í viðbót við þau fimm sem ég hafði verið búin að búa til. Reyndar hafði ég skrifblokk með mér austur ef ég fengi andann yfir mig til að skrifa eitthvað af þeim þremur jólabréfum sem ég sendi með þeim þremur jólakortum sem fara út fyrir landsteinana. Andinn kom ekki yfir mig.
Á miðvikudagskvöldið var skellti ég í aðra uppáhaldssmákökusortina og að þessu sinni byrjaði ég að sortinni sem er uppáhaldið hans Davíð Steins (eggjahvítu-kornflekskökur með suðusúkkulaði og kókosmjöli). Hin uppáhaldssortin verður líklega ekki bökuð fyrr en á miðvikudagskvöldið kemur, lakkrístoppar.
Fyrir klukkutíma fjárfesti ég í jólagjöfinni minni á heimkaup.is, ný þvottavél sem strákarnir ætla að taka þátt í að gefa mér. Ég fæ gripinn eftir klukkan fimm á miðvikudaginn kemur og sú gamla verður fjarlægð í staðinn.
Að lokum aðeins um tvær af þeim fimm bókum sem ég er með af safninu. Þetta eru ævisögur sem eiga það sameiginlegt að vera um transkonur og nöfnum, konur sem fæddust í karllíkama og eru búnar fara í kynleiðréttingu: Hún er pabbi minn skráð af Bryndísi Júlíusdóttur og Anna: eins og ég er skráð af Guðríði Haraldsdóttur. Mjög vel skrifaðar og forvitnilegar, sérstaklega lýsingar á uppvexti Önnu Kristjánsdóttur.
11.11.18
Tíminn er ekkert að láta bíða eftir sér
Hef ekki verið í neinu skrifstuði undanfarið en það hafa runnið upp nokkur augnablik sem ég er næstum því búin að setjast niður við tölvu, skrá mig inn og punkta eitthvað niður. Núna er ég stödd á Hellu hjá pabba. Kom við í Fossheiðinni á leiðinni hingað í gær. Fljótlega eftir að ég kom spurði ég pabba hvort ég ætti að "skella í" pönnsur. Honum leist vel á þá hugmynd en bað mig um að nota tilbúið duft í flösku sem hann hafði keypt um daginn. Hann var búinn að kaupa og prófa vöffluduft sjálfur og líkað vel. Pönnsusteikingin gekk ekki alveg eins vel og þegar ég hræri í frá grunni, en það urðu samt til pönnukökur sem við höfðum með í kaffitímanum.
Eftir vinnu á föstudaginn var fór ég með strætó alla leið upp í Kringlu. Fór fyrst á bókasafnið því skírteinið var útrunnið og ég ætlaði aðeins að endurnýja það því ég er enn með fimm bækur heima. Núna eru þær reyndar sex því ég stóðst ekki mátið og greip með mér eina nýja á 14 daga skilafresti. Þriðja og síðasta bókin í þríleiknum Valdamiklir menn: Þriðja morðið eftir Jón Pálsson. Aðal erindið í Kringluna var þó að fara og kaupa mér nýja sundhettu. Ég fann ekki speedo sundhettu fyrir sítt hár en keypti eina sem er merkt Arena og svo aðra til sem ég er reyndar ekki viss um að sé fyrir sítt hár. Prófaði aðra þeirra í sundi í gærmorgun og hún virkaði. Fannst reyndar eins og hún væri að renna af þegar ég setti hana yfir þurrt hárið en hún hélst á þegar ég setti hana yfir rakt hárið.
Um hálffimm á fimmtudaginn var hitti ég Helgu og Petru á kaffihúsi Jóa Fel í Holtagörðum. Flottur staður. Við þrjár vorum ekki búnar að hittast síðan um miðjan september. Tíminn leið hratt en kaffihúsið lokar klukkan sex. Áður en við kvöddumst ákváðum við að skreppa saman í bíó í næstu viku og sjá myndina um Freddy Mercury.
Lánaði Davíð Steini strætókortið á föstudaginn og sagði að hann mætti hafa það um helgina. Hann fór í afleysingu í N1 í Mosfellsbæk milli klukkan sex og ellefu. Sjálf fékk ég mér göngutúr niður að Ingólfsstræti á Lífspekifélagsfyrirlestur.
28.10.18
Á Hellu yfir nótt
Það er jazzmessa í kirkjunni minni núna á eftir. Ég er hins vegar stödd á Hellu. Ætla ekki að vera fram á kvöld en er þó ekki að flýta mér í bæinn til að ná í messu. Ég var komin hingað austur upp úr klukkan tvö í gær eftir að hafa farið í tveggja tíma sundferð, esperanto hitting og smá Krónuferð í gærmorgun áður en ég kom við aftur heima að ganga frá "morgundótinu" og taka mig til fyrir austurferð. Var svo sniðug að taka með mér hluta af jólakortagerðardótinu mínu og eftir að við pabbi vorum búin að drekka kaffi upp úr klukkan hálffjögur lagði ég undir mig eldhúsborðið í tæpa tvo tíma. Skar niður nokkrar arkir í nokkrum litum þannig að ég var komin með rúmlega þrjátíu stk. grunnkort. Á til helling af niðurklipptum jólamyndum, skapalón, liti og fleira og áður en ég tók saman var ég búin að útbúa 5 jólakort. Á kannski eftir að klippa þau örlítið meira til og einnig setja hvít blöð inn í kortin sem ekki eru hvít fyrir. Ég er mjög ánægð með að vera loksins komin í gang og veit að ég þarf ekki að setjast niður nema 2-3 í viðbót til að klára kortin áður en ég fer í að skrifa þau. Ætti að vera tilbúin til að byrja jólakortaskrif í desemberbyrjun. Sem fyrr mun ég skrifa 3 bréf sem fara með jólakortunum sem ég sendi til Danmerkur (2) og Manchester (1).
Ég er búin að lesa skammtímalánsbækurnar og næstum því tvær bækur til. Sú sem ég er alveg að ljúka við heitir Hin svarta útsending eftir kött grá pje/Atla Sigþórsson. Nokkuð skemmtileg bók, margir misstuttir textar á 100 blaðsíðum. Allir textar heita eitthvað og amk í einu tilvikinu er titill textans lengri en sjálfur textinn.
21.10.18
Næturgisting á Hellu
Ég var komin á Hellu fyrir hálffjögur í gær eftir að hafa gert smá stopp í Fossheiðinni á leiðinni austur. Hafði mætt samviskusamlega í sundið upp úr klukkan átta, synt í hálftíma, farið 3 í kalda pottinn, eina ferð í saltpottinn, eina ferð í gufuna og að lokum gefið mér góðan tíma til að sápuþvo á mér hárið og blása á leiðinni upp úr. Úr sundlauginni lá leiðin beint vestur í bæ í espernato hitting til Inger. Áður en ég kom svo við heima til að ganga frá sunddótinu mínu og sækja það sem ég ætlaði að hafa með mér, fyllti ég bílinn á Atlantsolíustoðinni við Öskjuhlíð.
Pabbi var að búa til vöfflur þegar ég mætti á svæðið í gær. Við ákváðum að hafa bleikju í kvöldmatinn og ég spurði í leiðinni hvort ég mætti ekki gera atlögu að innihaldi hvítvínskassans í aukaísskápnum um kvöldið. Það leyfi var auðfengið og náði ég að hálffylla og drekka þrjú glös af víni áður en það kláraðist. Það var líka alveg nóg. Pabbi fékk sér rautt í glas og við spjölluðum nokkuð langt fram á kvöld.
Annars hef ég lokið við að lesa aðra af skammtímalánsbókunum; Sagnaseiður eftir Sally Magnusson þýdd af Urði Snædal og mæli ég alveg 100% með þeirri bók.
19.10.18
Á leið í hús Lífspekifélagsins í kvöld
Um átta verð ég mætt á fyrsta fund/fyrirlestur í vetur. Sl. föstudag var reyndar kynning og hluti af starfsseminni hófst í síðasta mánuði. Held að þetta sé að byrja með seinna móti en áður en ég er þó ekki viss. Gerðist félagi í fyrra og hef aðeins verið viðloðandi þetta félga síðan í hitti fyrra.
Nú er ég búin að skila formlega af mér gjaldkerastarfi KÓSÍ. Við erum hætt sem kór en höldum hópnum og vinskapnum að sjálfsögðu áfram. Við formaðurinn ákváðum um daginn að afhenda nýlega stofnuðum óháða kórnum kennitöluna og reikninginn með smá upphæð inn á sem gjöf frá KÓSÍ.
Skrapp á bókasafnið fljótlega eftir að ég kom heim úr vinnunni. Skilaði fimm bókum, öllum sem ég var með í láni af safninu. Kom ekki tómhent heim aftur því 9 bækur "hoppuðu" upp í fang mér, þar af tvær sem eru með 14 daga skilafrest. Og ég sem ætlaði að fara huga alvarlega að jólakortagerð og yfirfara eitthvað af dótinu mínu. Hlýt samt að komast yfir þetta allt. Reyndar freistaðist ég til að kaupa kilju um daginn, glæpasögu, eftir höfund sem hefur náð taki á mér, Angela Marsons. Keypti nýjustu, þýddu bókina og stakk henni svo ofan í skúffu í bili. Ég er líka að glugga í bók sem ég keypti í útgáfuteiti í síðasta mánuði og þar að auki lánaði sr. Pétur mér bókina Brautryðjaninn ævisaga Þórhalls Bjarnasonar 1855-1916 sem er skráð af Óskari Guðmundssyni.
15.10.18
Á Hellu í augnablikinu
Það var verið að eitra fyrir silfurskottum í Drápuhlíð 21 milli klukkan eitt og hálfþrjú í dag. Ekki er ráðlagt að vera heima næstu fjóra tíma á eftir. Strákarnir fóru í eina Sorpuferð upp úr klukkan tólf. Ég var komin heim þar sem ég misskildi tímasetninguna. Kannski var það eins gott því íbúarnir á hæðinni fyrir neðan voru ekki heima og allt harðlæst hjá þeim. Þau gátu bjargað því, ein dóttir þeirra kom rétt fyrir klukkan eitt á sama tíma og sá sem tók verkið að sér. Ég labbaði með honum um allt til að byrja með en svo náði hann í grímu, hanska og eitrunardæmið út í bíl og byrjaði í kjallaranum. Strákarnir komu stuttu síðar og einkabílstjórinn fékk þá góðu hugmynd um að nota tækifærið og skreppa í heimsókn á Hellu. Þangað vorum við komin um þrjú og erum þar enn. Verðum líklega ekki komin heim fyrr en um tíu í kvöld.
Mikið er annars búið að ganga á, síðustu viku, eða frá því var ljóst hvenær yrði eitrað. Kosturinn við svona er sá að maður neyðist til að taka aðeins betur til.
Mætti í sund um átta í gærmorgun og kom svo við og fékk mér kaffi hjá Oddi í Öskjuhliðinni um tíu. Um hálftólf var ég komin upp í kirkju. Þangað mættu allir úr stjórninni til að undirbúa heitu réttina á kór-hlaðiborðið eftir messuna og aðstoða kórinn við að undirbúa salina. Klukkan var að verða fimm þegar ég kom heim og þá fór ég með Davíð Steini niður að undirbúa geymsluna fyrir eitrun en Oddur Smári fór í Sorpuferð og fékk þar með að keyra THM88 í fyrsta skipti. Bíllinn er ennþá á nafni pabba en því verður breytt fljótlega og hann færður yfir á mitt nafn.
11.10.18
Nokkrar línur
Föstudagur á morgun og á sunnudaginn verður galdramessa í óháðu kirkjunni. Mánuðurinn kominn í tveggja stafa tölu svo það styttist í annan enda á árinu. Kortadeildin skrapp yfir í Hörpuna, á kaffifund, upp úr tvö. Hélt að ég væri búin að týna rauðu 66° húfunni minni því ég fann hana ekki þegar ég var að klæða mig í regnkápuna. Var mjög hugsi yfir þessu en sem ég beið eftir strætó á torginu þá þreifaði ég einu sinni enn í hettuna á kápunni og viti menn, þar var húfan. Fjúkkett! Ég tók strætó númer sex og var komin heim um hálffjögur.
10.10.18
Aftur í sjóinn
Sjórinn var 0,3° kaldari í dag en á mánudaginn, eða 4,6°C, en veðrið var gott og ég naut þess að svamla um. Var mætt í Nauthólsvík á slaginu fimm og þá þegar var fólk að fara í sjóinn. Að þessu sinni fór ég tvisvar. Fyrst í 15 mínútur og eftir um það bil tíu mínútur í heita lang-pottinum fór ég aftur og þá í víkina. Þar að sjórinn að vera aðeins heitari en þar sem það var flóð í dag var ekki mikill munur.
Annars tók ég á móti korti no. 3.000.000 sem er framleitt á 12 ára gömlu kortavélina. Það var reyndar svolítið skondið að ég fékk heiðurinn af móttökunni því ég var á vélinni milli átta og hálftíu í morgun og þegar farið var í kaffipásu vantaði aðeins rúmlega 250 stk upp á að ná tölunni. Eftir kaffi fóru aðrar tvær á vélina og þær lentu í smá vandræðum og náðu ekki að framleiða þennan kortafjölda á tveimur tímum. Tímamótin urðu ekki fyrr en eftir hádegi þegar ég var komin aftur á vélina og þá á móttökuhlutann.
Skrapp aðeins upp í kirkju í gærkvöldi til að afhenda einum kórmeðlimi úr nýlega stofnuðum Óháða kórnum plagg sem þau eiga að geta nýtt sér til að yfirtaka kennitölu og reikning KÓSÍ sem er ekki starfræktur lengur. Eftir að hafa afhent plaggið, undirritað af mér og fyrrum formanni skrapp ég í heimsókn upp í Katrínarlind í Grafarholtinu. Þangað hef ég ekki komið nokkuð lengi og áður en ég vissi af voru liðnir tveir tímar.
8.10.18
Svamlað í 4,9°C sjónum
Þar sem fyrir lá smá tölvuverkefni í kvöld ákvað ég að hamra inn nokkrar línur. Var mætt í sund milli klukkan átta og hálfníu í gærmorgun. Gaf mér góðan tíma í rútínuna og fór m.a. þrisvar sinnum í þann kalda, synti í tuttugu mínútur og sat heillengi í gufunni áður en ég fór upp úr. kom við í Krónunni við Nóatún á leiðinni heim. Fór ekkert aftur á bílnum en ég samdi við Davíð Stein um að sjá um eldamennskuna um kvöldið og skundaði sjálf í Valsheimilið rétt fyrir sex og horfði á tvo heimaleiki í röð. Stelpurnar tóku á móti Haukum og unnu leikinn 27:20. Klukkan átta hófst leikur strákanna sem tóku á móti ÍR. Staðan þar var jöfn í hálfleik en leikurinn fór 28:22 fyrir Val.
Ég fékk að fara einum og hálfum tíma fyrr úr vinnunni til að sinna bankamálum. Fór fyrst heim með strætó og fór á B-Max í bankann. Þar sinnti ég þremur erindum. Kom heim aftur um fjögur. Hringdi í pabba og spjallaði góða stund við hann. Var svo komin í Nauthólsvíkina um fimm. Svamlaði í sjónum í um 15 mínútur. Var ekkert að fara neitt langt, þurfti þess ekki, það var háflóð og náði sjórinn upp á hálfa brautina og maður hætti að botna mjög fljótlega eftir að komið var út í.
7.10.18
Tveir dagar í röð
Það hefur ekki gerst nokkuð lengi að ég hafi sest niður, skráð mig inn á bloggið og skrifað eitthvað tvo daga í röð. Ég er enn með fartölvuna hans pabba, hann segist ekki nota hana neitt og ég má hafa hana hjá mér eins lengi og ég vil. Þráðlausa músin mín og netkubburinn virka alveg jafn vel á þessa tölvu og þá sem ég er með inni í tölvuskáp.
Á K1 (í vinnunni) var stofnaður leshringur um daginn. Allir 7 sem vinna í kjallaranum á Seðlabankanum voru skráðir meðlimir en við erum fjögur sem erum virk og 1 dró sína aðild til baka, sagðist ekki vilja vera með og skráð í neinn hóp. Fyrsta bókin sem við tókum fyrir var, Fuglarnir eftir Tarje Vesas norskan höfund. Og bókin sem við erum að lesa núna er, Glerkastalinn eftir Jeannette Walls. Ég fékk hana ekki á íslensku á Kringlusafninu en ákvað að prófa að lesa hana á ensku. Það gekk ágætlega en ein úr hópnum bauð mér svo að lána mér sitt eintak á íslensku og fá í staðinn lánað mitt enska eintak. Ég þáði það með þökkum því ég er miklu fljótari að lesa á móðurmálinu. Sennilega væri samt skynsamlegt að lesa eina og eina bók á ensku eða dönsku. Ég hefði bara gott af því. Við tölum um bækurnar í kaffi eða matarhléum. Erum ekki búin að setjast niður öll fjögur með seinni bókina og heldur ekki að velja næstu bók. Það gæti þó orðið Veröld sem var eftir Stefan Zweig því hin þrjú eru að lesa þá bók og ég hef er ekki frá því að ég sé forvitin um hana eftir að hafa fengið að glugga aðeins í hana hjá einu hinna.
6.10.18
Þvílíkt skrið á tímanum
Sex dagar að verða liðnir af tíunda mánuði ársins. Uþb tveir mánuðir síðan mamma dó. Ég er búin að selja bláa bílinn sem ég kallaði lengi vel lánsbílinn enda var ég með afnot af honum í næstum fimm ár áður en ég "keypti" hann af mömmu á kr. 50.000 í fyrrasumar. Um sama leyti festi hún kaup á 3 ára Ford B-Max, sem aðeins var búið að keyra 3000 km. Sá bíll er kominn tímabundið á pabba nafn en má segja að hann sé móðurarfur minn og fer yfir á mitt nafn fljótlega. Pabbi kom með nagladekkinn undir bláa bílinn þann 21. september og ég fór með honum austur. Á sunnudeginum sótti ég eina vinkonu mína í Hvolsvöll. Hún var að setja húsbílinn sinn í geymslu yfir veturinn fyrir utan hjá mömmu hennar. Vinkona mín borðaði með okkur pabba en kom svo með mér í bæinn og gisti hjá mér í viku. Aðfaranótt sl. sunnudags skutlaði ég henni til Keflavíkur. Hún átti flug til London eldsnemma um morguninn og tveim dögum seinna flaug hún þaðan til Kanaríeyja þar sem hún verður fram á vor.
Þann 23. september fór ég gráa B-Max í vinnuna. Eftir vinnu þann dag fjárfesti ég í 3 mánaða strætókorti sem gildir til og með 24. desember. Í september fjárfesti ég einnig í armbandi sem gildir í sjósund í Nauthólsvík fram að áramótum. Það fékk ég endurgreitt frá vinnunni sem íþróttastyrk. Opið er 6 sinnum í viku en ég reyni yfirleitt að fara eftir klukkan fimm á mánudögum og miðvikudögum. Vikan sem ég var alveg bíllaus, datt út, en þá viku labbaði ég við í Sundhöll Reykjavíkur tvisvar sinnum. Þangað var ég ekki búin að koma síðan eitthvað fyrir breytingar.
Annars fór ég í klippingu í hádeginu í dag og þar sem ég er enn að láta klippa mig sítt verður næsti tími ekki fyrr en eftir áramót. Af því tilefni óskaði hárskerinn minn mér Gleðilegar jóla, he, he. En það fékk mig bæði til að skella upp úr og hugsa út í að það er í raun tímabært að fara að huga að jólakortagerð.
18.9.18
Langt um liðið og varla komin í skrifstuð
Dagarnir og vikurnar þjóta áfram en ég hef ekki verið í neinu skrifstuði í margar vikur, er varla í neinu stuði núna. Hef svo sem um nóg að skrifa en er ekki alveg búin að ákveða hvort eða þá hvernig ég kem því frá mér. Nóg í bili í þetta sinn.
12.7.18
Enn einn "sunnudagurinn" ;-)
Ég skilaði öllu sjö bókunum sem ég fékk á Kringlusafninu fyrir hálfum mánuði á safnið aftur í gær. Hafði lesið þær allar. Það endaði svo með því að það komu sjö aðrar bækur með mér heim í staðinn og er ég reyndar búin að klára eina þeirra. Það er svona að vakna snemma. Á meðan ég er í bænum byrja ég á því að mæta í sund og bæði í gær og í morgun var ég mætt rétt eftir opnun, um hálfsjö, og kom ekki heim aftur fyrr en níu. Og nota bene ég fór ekki labbandi á milli. Synti í hálftíma og fór 4x4-5 mínútur í kalda ásamt því að skreppa í saltpottinn og gufuna. Það er ljúft að vera í fríi og ég skammast mín ekkert fyrir að gera næstum því það sem mér sýnist. Það eina sem skyggir á er hversu alvarlega mamma er orðin veik og það er eiginlega helst þess vegna sem ég fer ekki langt, það er alltaf hægt að skreppa eitthvað lengra síðar. Var fyrir austan frá föstudegi til mánudagskvölds um síðustu helgi og er byrjuð að lesa bók eftir Jón Kalman Stefánsson fyrir mömmu. Bók sem hún fékk í jólagjöf sl. jól og var langt komin með að lesa sjálf en varð svo að hætta þar sem bókin er of þung til að halda á fyrir hana. Þetta er mjög vel skrifuð bók byggð á sannri sögu og það eina sem ég veigra mér við að lesa upphátt eru kynlífslýsingarnar. :D
29.6.18
Allt í himna lagi
Einhver sagði einhvern tímann að ..."engar fréttir eru góðar fréttir!" Ég er að verða hálfnuð með fríið mitt og batteríin eru heldur betur að hlaðast þrátt fyrir að ég sé ekki að skipuleggja neitt stórt þannig séð. Leyfi mér að haga seglum alveg eftir vindi en læt samt veðrið alls ekki hafa áhrif á mig. Það kom einn mjög góður sumardagur í kringum 20. júní og þá ákvað ég að fara gangandi í Laugardalinn. Hafði með mér klink fyrir fari með strætó til baka því þótt ég treysti mér alveg til að labba heim aftur þá fannst mér tilhugsunin um göngublautt bak ekki góð. Ég fór líka gangandi á bókasafnið fyrir nokkrum dögum. Skilaði öllum 6 bókunum (lesnum) og það komu sjö með mér heim aftur. Fyrir tæpri klukkustund kom ég gangandi heim úr heimsókn frá fyrrum kórsystur. Labbaði af stað til hennar um tvö og var svona ca tuttugu mínútur á leiðinni. Semsagt það er allt í góðu.
18.6.18
Smá lífsmark
Það er spurning hvort uppfærsla á persónuverndarlögum og því öllu muni fæla mig frá því að vera eitthvað að skrásetja hluta af því sem fer fram í kringum mig og um mig? Svo er þetta með andann og löngunina til að skrifa. Auðvitað er hún oftar til staðar heldur en sést amk ef skrif/blogg-árin eru borin saman. Ég ætla ekkert að velta mér frekar upp úr þessu og heldur ekki hafa þetta lengra í dag. Er að lesa svo spennandi bækur, fylgjast með HM, stunda kalda pottinn og laugarnar og rembast við að halda mér í gönguformi líka. Jú, kannski eitt, sl. föstudag fór Davíð Steinn með mér á N1 í Fellsmúla svo ég gat nýtt mér 22% afláttinn hans þegar ég keypti ný sumardekk undir Fordinn og lét setja undir bílinn.
23.5.18
Stiklað á stóru
Ég er mjög dugleg að láta það vera að kveikja á tölvunni. Hef svo sem, hvort eð er, ekki verið í neinu skrifstuði en það er alltaf eitthvað um að vera í kringum mig og stundum mætti ég alveg vera duglegri að skrifa um sumt af þessu svo það gleymist ekki.
Æskuvinkona mín, Ella, var hjá mér í tvær nætur fyrir rétt rúmri viku. Ég hafði vitað af komu hennar í nokkra daga og undirbjó heimsóknina vel. Bauð henni að sofa í herberginu mínu og bjó um mig á beddanum í stofunni sem tvíburahálfsystir mín var nýbúin að skila en ég lánaði henni hann í heila viku undir sænska eða danska stelpur (veit ekki hvor þeirra notaði hann). Degi eftir að Ella vinkona flaug aftur heim til sín gistu mágur minn og yngri systurdóttir mín. Hún var í stofusófanum í eina nótt en hann á beddanum í 3 nætur. Frænka mín flaug nefnilega með föðursystur sinni til London seinni partinn á fimmtudaginn var. Helga systir kom suður á föstudagskvöldið með kærustuparið og hvolpinn. Hinn hundurinn var skilinn eftir í pössun fyrir norðan. Kærustuparið fór heim til mömmu hans en Helga gisti í sófanum í eina nótt. Ég rétt náði að heilsa upp á hana um hálftólf þegar ég kom heim úr kortadeildargrillpartý. En við systur hittumst svo aftur á Hellu seinni partinn á laugardaginn. Ég gisti í eina nótt en þau í tvær.
Klukkan ellefu á mánudagsmorguninn var ég mætt í Dómkirkjuna til að fylgjast með því þegar verið var að vígja einn frænda minn til prests til að taka við Patreksfjarðarprestakalli. Eftir athöfnina heilsaði ég aðeins upp á frændfólkið mitt sem var þarna en dreif mig svo beint í sund. Bræðurnir voru báðir að vinna, annar til klukkan átta og hinn til klukkan tíu (eh). Ég mætti í mína kirkju upp úr klukkan sjö til að undirbúa maulið eftir messuna. Alls mættu 17 ef allir voru taldir með. Ég gaf mér góðan tíma til að sitja og spjalla á eftir messunni og var til klukkan tíu að ganga frá á eftir.
Ég skilaði annars inn 5 bókum á safnið sl. föstudag, þrjár hafði ég klárað en hinar tvær rétt byrjaði ég á og sá að ég mundi ekki nenna að lesa þær. Hefði getað haft þær í 10 daga lengur en ég ákvað að skipta þeim út. Kom með 5 bækur heim í staðinn og er búin að klára tvær af þeim nú þegar. Önnur þeirra var svaðalega spennandi; Týndu stúlkurnar eftir Angelu Marsons þýdd af Ingunni Snædal. Mér skilst að það sé búið að þýða tvær aðrar eftir þennan höfund og ég á örugglega eftir að "þefa" þær uppi og lesa (skrifar sú sem ekkert lyktarskyn hefur).
Þriggja mánaða strætókortið mitt rann úr gildi eftir 18. maí og þar sem það styttist í sumarfrí hef ég ákveðið að labba sem oftast milli heimilis og vinnu. Það var fínt að labba í gærmorgun en leiðinda rok og rigning á móti mér seinni partinn. Komst þó heim, skipti um föt, hringdi aðeins í pabba en fór svo beinustu leið í sund og kalda pottinn. Labbið í morgun og seinni partinn voru fínustu göngutúrar og eftir að hafa hringt austur setti ég bræðrunum fyrir og skrapp svo smá stund í sjóinn. Þegar ég kom til baka var maturinn tilbúinn. Stoppaði ekkert svo lengi heima því það var heimaleikur hjá Val í Pepsídeild kvenna. 2-0 fyrir VAL á móti HK/Víkingi.
5.5.18
Lítið að gerast í skrifunum
Það er það langt síðan að ég skráði mig inn síðast að google sá ástæðu til að spyrja hvort ég ætti örugglega að vera með aðgang að þessari síðu. Fékk sent númer með sms í farsímann til að staðfesta að ég mætti fara hérna inn og nota þessa síðu eftir mínu höfði. Annars er ég stödd á Hellu þessa stundina og verð eitthvað fram á morgundaginn. Esperanto-hittingingi var frestað til næsta fimmtudags svo ég var löt að drífa mig af stað í sund í morgun. Var þó komin ofan í þann kalda upp úr klukkan hálftíu. Rúmum einum og hálfum tíma síðar var ég komin í Krónuna við Granda og fyrir utan að ég var að gera innkaup fyrir sjálfa mig var ég að leita eftir vöru fyrir pabba og mömmu sem ekki fæst á Hellu í augnablikinu. Fann þetta ekki í Krónunni. Kom við hjá Atlantsolíu við Öskjuhlíð áður en ég fór heim með vörunar, gekk frá þeim og sunddótinu, ýtti aðeins við öðrum stráknum til að láta vita að ég væri að fara austur, tók dót sem ég hafði tekið saman í morgun til að fara með. Fyrsta stopp var í Hagkaup í Skeifunni og eftir smá hringsól og nokkuð mikla leit fann ég nokkrar krukkur af súrsætri sósu frá "Benna frænda". Næsta stopp var í Fossheiðinni og svo var ég komin á áfangastað um hálffjögur.
Fyrsti stjórnarfundur nýkjörinnar safnaðarstjórnar í Óháða söfnuðinum var haldinn í Kirkjubæ milli 17 og 18:30 sl. fimmtudag. Ritari og gjaldkeri höfðu boðað forföll en það var fagnaðarefni að frétta og sjá að það hafði náðst að fullskipa stjórnina, að búið væri að fylla í öll þrjú sætin sem í höfðu setið formaður, varaformaður og einn meðstjórnandi síðustu 2-12 ár. Ég tók að mér að sjá um fundarritun. Náði að hreinskrifa þau skrif í gær og senda á nýkjörinn formann sem fór yfir, bætti við einu atriði og ætlar að senda á alla stjórnina.
Var á leiknum VALUR - Selfoss í Pepsídeild kvenna í gærkvöldi. Svolítið kalt en það voru skoruð átta mörk sem öll voru skoruð í mark gestanna. Valsstelpurnar héldu hreinu. Annars er ég bara góð. :-)
24.4.18
Árskort á Valsvöllinn 2018-19, kort no 68
Já, líkt og í fyrra gildir kortið á alla heimaleiki Vals fram á næsta vor, þ.e. alla deildarleiki. Ég vona bara að ég nýti þetta kort betur næsta vetur heldur en kortið sem var að renna úr gildi. Ég var frekar dugleg að mæta á heimaleikina fyrrasumar, í Pepsídeild bæði karla og kvenna en ég fór aðeins á einn heimaleik í vetur í Olísdeild kvenna. Pepsídeild karla byrjar að rúlla á föstudaginn kemur og það er Valur - KR strax í fyrstu umferð.
Annars var ég að koma heim úr sundi. Var mætt í Laugardalslaugina rétt upp úr klukkan fjögur og fékk gott pláss bæði í pottum og laug. Synti í um 25 mínútur eða 600 metra. Hitti eina nöfnu mína sem var með mér í KÓSÍ kórnum. Við syntum víst eitthvað á svipuðum tíma en ég tók ekki eftir henni fyrr en við vorum báðar farnar að pottormast.
19.4.18
Gleðilegt sumar!
Afar gott að fá svona aukafrídag. Ég leyfði mér samt ekki að sofa út í morgun, en kannski var ég bara útsofin því ég vaknaði löngu áður en vekjarinn átta að hringja eða einhvern tímann milli klukkan hálfsjö og sjö. Var mætt í Laugardalinn um leið og verið var að opna klukkan átta. Byrjaði á því að demba mér í kalda pottinn í fjórar mínútur áður en ég fór í laugina. Reyndar varð lítið úr sundi, þ.e. ég fór aðeins tvær ferðir, 200 metra, því gúmmíið öðru megin á sundgleraugunum datt af þegar ég var að setja þau á mig í upphafi. Þrjóskaðist þessa 200 metra með annað auga lokað. Settist aftur í þann kalda áður en ég fór í heitari potta og hitta hluta af "morgunfólkinu" mínu. Hafi svo engan tíma til að blása á mér hárið því ég var búin að lofast til að skutla N1 syninum í vinnuna og hirða hann upp um hálftíu.
Skrapp í göngu núna seinni partinn, hálfan Öskjuhlíðarhring, og kom við í Valsheimilinu til að athuga með árskortið á völlinn í sumar. Þau koma ekki í sölu fyrr en á morgun. Hefði geta keypt mig inn á leik Vals og ÍBV, ríkjandi bikar og deildameistara en ákvað frekar að ljúka göngunni og fara heim til að þurrka af mér göngufossinn á bakinu.
Er annars nýlega byrjuð á Smásögum eftir Ágúst Borgþór Sverrisson, AFLEIÐINGAR. Bókin inniheldur sjö smásögur. Er aðeins búin með þá fyrstu en ég gat ekki hætt að lesa fyrr en ég var búin með hana. Ég er enn með 3 bækur af safninu eftir að ég skilaði inn nokkrum bókum sl. sunnudag án þess að ná mér í aðrar í staðinn.
17.4.18
Soðið slátur í matinn í kvöld
Í dag er nákvæmlega mánuður síðan ég varð fimmtug, þessi mánuður er rúmlega hálfnaður og það fer alveg að líða að því að ég fari í sumarfrí. Ekki alveg tveir mánuðir þangað til en miðað við hvernig tíminn brunar áfram þá er alls ekki langt þangað til. En á meðan ætla ég að njóta hvers dags og hverrar mínútu eins og kostur er.
Síðan ég setti inn færslu hérna síðast er ég m.a. búin að fara nokkrum sinnum í sund, í tvær fermingaveislur, eitt sextugs afmæli, skila nokkrum bókum á safnið, láta taka nagladekkin undan bílnum og eyða sólarhring með stelpunum í kortadeildinni á Hótel Selfossi.
Fór í blóðbankann strax eftir vinnu í gær, 49. heimsóknina og sleppti því sundferð. Hins vegar dreif ég mig í sund upp úr klukkan fjögur eftir að ég hafði sett upp slátur og beðið Davíð Stein um að fylgjast með suðunni sem og setja upp kartöflur um sex.
Kveikti annars á tölvunni í kvöld til þess að senda og setja inn tilkynningar um næstu messu í moggann og á vegg og heimasíðu safnaðarins.
4.4.18
Fiskbúð og sund eftir vinnu í dag
Ég er rúmlega hálfnuð með eina bókina sem ég kom með heim af safninu í gær. smáglæpir eftir Björn Halldórsson hefur að geyma 7 smásögur sem eru frá 12 bls og upp í 24 að lengd. Á aðeins eftir að lesa 3 smásögur. Ætla ekki að segja neitt um sögurnar sem ég hef þegar lesið nema það að ég mæli alveg með þessari bók.
Þegar ég var búin að heyra aðeins í pabba rétt upp úr klukkan fjögur í dag, tók ég til sunddótið, kvaddi og byrjaði á því að stoppa í fiskbúðinni Hafið við Skipholt. Þar keypti ég ýsu í soðið, lax og 1 kg af rauðum kartöflum. Var komin ofan í kalda pottinn rétt fyrir fimm og byrjuð að synda um fimm mínútum síðar. Synti aðeins í rúmt korter eða 400 metra. Þá fór ég aftur í þann kalda í 3 mínútur áður en ég skrapp í nokkrar mínútur í 38°C pott sem ég fer ekki oft í. Eftir nokkrar mínútur þar fór ég þriðju og síðustu ferðina í þann kalda áður en ég endaði í gufunni. Kom heim um hálfsjöleytið og var maturinn tilbúinn ca hálftíma seinna.
3.4.18
Bókasafn og sund eftir vinnu í dag
Vinnudagurinn var ekki lengi að líða enda nóg af verkefnum. Var komin heim upp úr klukkan fjögur. Tók stöðuna á foreldrum mínum og hringdi einnig í esperanto vinkonu mína sem er á leið út í tveggja vikna frí eftir tvo daga. Við höfðum ætlað að veifast á á Facebook en það lítur út fyrir að það sé búið að loka á mig þar. Veit ekki alveg hvað eða hvernig þetta gerðist en ef mér tekst ekki að endurræsa aðganginn minn innan nokkurra daga þá gæti allt eins farið svo að ég láti þann vettvanginn alveg eiga sig. Hver veit nema það hafi þá líka góð áhrif á skrifin mín á þessum vettvangi.
Áður en klukkan varð fimm var ég búin að taka til sunddótið mitt og fjórar lesnar bækur af fimm af Kringlusafninu og búin að kveðja strákana. Fyrst lá leiðin í efnalaugina Snögg þar sem ég "leysti" út jakkaföt strákanna, þ.e. mínus einn jakki. Setti þetta í skottið og fór næst á safnið. Sex bækur komu með mér út af safninu í staðinn fyrir þessar fjórar sem ég skilaði inn. Ein af þessum sex er með tveggja vikna skilafrest en hún og þrjár aðrar af hinum innihalda smásögur. Segi kannski betur frá þessu seinna. Úr safninu lá leiðin í Laugardalslaugina, tvær ferðir í kalda, 400 m sund og næstum tíu mínútur í gufunni. Kom heim aftur um sjö. Strákarnir farnir í heimsókn til pabba síns og ég slapp við að elda þar sem til eru ýmis konar afgangar.
2.4.18
Úti snjóar
Laugardalslaugin er um það bil að opna. Ég er komin á fætur, búin að fá mér eitthvað og allt tilbúið fyrir sundferð. Ég fór ekki í sund í gær þótt það væri opið milli klukkan 10 og 18. Gærdagurinn hófst snemma. Var komin á ról um hálfsjö og mætt upp í kirkju á slaginu sjö. Við vorum 4 úr stjórninni sem hjálpuðumst að við að leggja á borð í efri safnaðarsalnum, hita brauðbollur, smá kaffi, búa til heitt kakó og þeyta rjóma. Það fór svo að aðeins eitt okkar sá sér fært að mæta í messuna. Ég hálfsé því eftir því að hafa ekki drifið mig í kirkju á föstudagskvöldið því nýji kórinn var að syngja þá sem og í gær. Get huggað mig við það að bæði heyrði ég í kórnum þegar hann var að hita upp og svo mun hann syngja aftur í tilraunamessu fjórða sunnudaginn í þessum mánuði. En það mættu ríflega fimmtíu mann í messu í gærmorgun og er það heldur fleira heldur en undanfarna páska. Klukkan var byrjuð að ganga ellefu þegar öllum frágangi var lokið og þá fór ég beint heim aftur og hélt mig þar. Strákarnir voru báðir heima en þeir komu ekki á fætur fyrr en einhvern tímann eftir hádegi. Í gærkvöldi var ég með steikt hrefnukjöt og bjó til sæta kartöflumús með smá tvisti, hafði hálfa rauðrófu með í litlum bitum út í músinni.
31.3.18
Stutt skrepp út út bænum
Á skírdagsmorgun var ég að sjálfsögðu mætt í Laugardalinn rétt upp úr klukkan átta. Sinnti rútínunni vandlega og fór svo auka ferð í kalda pottinn. Klukkan var byrjuð að ganga ellefu þegar ég var búin að blása á mér hárið. Var með esperanto bakpokann í skottinu en ég kom fyrst við hjá Atlantsolíu í Öskjuhlíðinni.
Við Inger kláruðum fimmta kaflann í Kon-Tiki og þóttumst vera afar duglegar. Við munum hins vegar ekki hvenær við byrjuðum að lesa þessa bók en það er amk ár síðan og við erum rúmlega hálfnaðar. Eftir esperanto-hittinginn fór ég heim til að hengja upp sunddótið, setja ofan í tösku og "vekja" tvíburana til þess að kveðja þá. Á austur leiðinni kom ég við í Fossheiðinni.
Hálftíma eftir að ég var kominn á Hellu komu fjórir gestir í heimsókn, 2 af þremur systkynum og makar þeirra. Litla systir þeirra og hennar maki eru í gólfferð á Spáni þessa dagana. Þessi systikyni og mamma eru systkynabörn. Gestirnir höfðu gert boð á undan sér og bannað pabba að hafa fyrir þeim. Hann átti bara að hella upp á þegar þau kæmu. Mamma hafði samt útbúið rækjusallat. Fjórmenningarnir stoppuðu í rúma tvo tíma.
Um kvöldið opnaði ég hvítvínsflöskuna sem Inger og fjölskylda gáfu mér. Mamma þáði aðeins einn sopa en pabbi, sem yfirleitt fær sér frekar rauðvín eða bjór þegar hann fær sér, þáði í glas og þótti þetta gott. Við feðginin kláruðum samt úr flöskunni svo ég tók afganginn með mér í bæinn aftur í gærkvöldi.
26.3.18
Nokkrir ókostir við að draga verulega úr tölvunotkun
Rúmlega tveir mánuðir liðnir síðan ég setti inn síðustu færslu. Á þeim tíma hefur margt og mikið vatn runnið til sjávar. Hef eingöngu kveikt á tölvunni þegar ég þarf að setja inn messutilkynningar. Stundum hefur hvarflað að mér að gefa mér þá tíma á þessum vettvangi í leiðinni en ég hef ekki endilega verið í skrifstuði. Gallinn við að "detta" svona út er að þá á ég það ekki neins staðar skráð það helsta sem á daga mína drífur. Kannski er það bara ágætt eða hvað. Mér finnst nefnilega svo gott að geta flett upp í sjálfri mér en það er eðlilega ekki hægt ef maður er með einhvers konar ritstíflu eða lyklaborðaleti.
Ég er mjög sátt við að hafa dregið úr tölvunotkuninni samt, það fór heldur mikill tími í þetta apparat. Er frekar dugleg við að stunda sundið, fer helst ekki sjaldnar en fjórum sinnum í viku og næ stöku sinnum að fara sjö daga í röð. Meðaltalið er líklega í kringum 5 sinnum í viku. Ætla annars ekkert að reyna að tæpa á því helsta sl. 8-9 vikur, amk ekki í þetta sinnið.
Ein bókin sem heldur mér hugfanginni um þessar mundir er af safninu er Náðarstund eftir Hannah Kent. Mögnuð bók sem ratað loksins til mín. Ég er líka að lesa úrval úr Ganglera, fyrstu 50 árin. Hún var gefin út af Lífspekifélaginu í fyrra en ég tók hana með af safninu um daginn og er að glugga í hana inn á milli. Reyndar meira en að glugga því ég þarf að gefa mér tíma til að melta vel sumt af því sem í þeirri bók er.
17.1.18
Miðvikudagskvöld, mánuðurinn rúmlega hálfnaður
Þessa vikuna höfum við vinnufélagarnir á minni deild látið nægja að skila af okkur átta tímum, mætum korter fyrir átta og hættum korteri fyrir fjögur. En bæði á mánudaginn og gær voru hendur látnar standa vel fram úr ermum og í morgun fór síðasta auka-SPES frá okkur. En þá liggur fyrir að vinda sér í vörutalningu á varahlutalager. Um tvö í dag fékk ég eina með mér í að byrja. Ég var búin að prenta út skrána sem er upp á 14 blaðsíður. Nú á hins vegar bæði að telja og taka út þá hluti sem eru síðan fyrir 2010 og hafa ekkert hreyfst í mörg ár. Margir af þeim tilheyrðu eldri vélinni sem er ekki til lengur svo þetta er löngu tímabært. Við náðum að sitja við þetta verkefni í tæpa klukkustund og vorum strax komnar með rúmlega botnfylli í kassa af úreltum varahlutum en aðeins búnar að fara yfir brotabrot af öllum heildar lagernum. Ætli við fáum svo ekki sérfræðinga til að fara yfir þessa hluti og gefa grænt ljós á förgun. Ég er ekki slíkur sérfræðingur en það segir sig sjálft að sumir gamlir hlutir hljóta að úreldast.
Eftir að ég kom heim úr vinnu á mánudaginn og var búin að taka stöðuna á foreldrum mínum dreif ég mig í sund og verslaði á leiðinni heim. Við Oddur hjálpuðumst svo að við að útbúa kvöldmatinn og við ákváðum að bíða eftir Davíð Steini sem var á leiðinni heim úr vinnu. Við borðuðum því ekki fyrr en rúmlega hálfníu. Fór ekkert út aftur eftir að ég kom heim úr vinnu í gær þar sem ég ætlaði mér að fylgjast með strákunum okkar á EM. Leiðinlegt að þeir náðu ekki að vinna þennan leik og enn leiðinlegra að Króatar skyldu liggja fyrir Svíum. Gat þó ekki annað en dáðst að sænska liðinu sem tapaði fyrsta leiknum í riðlinum en komast upp úr honum með 4 stig.
Gef mér alltaf einhvern tíma í lestur og er ég að lesa fjórar bækur í einu. En ég er líka komin á skrið í hundalopapeysuprjóni. Hugsanlega næ ég að ljúka því verkefni á næstu tíu dögum en systurdóttir mín á að keppa á skautum hér í bænum síðasta föstudaginn í þessum mánuði og þá koma amk hún og mamma hennar suður og jafnvel pabbi hennar og hárlausi hundurinn. Cara, labradorinn, verður líklega send í pössun.
14.1.18
Vetrarveður
Ég lét undan leti minni og fór ekki í sund í morgun þrátt fyrir að vera í bænum. Var vöknuð um sjö en ég fór ekki á fætur fyrr en klukkan var farin að ganga ellefu. Bíllinn er í stæði aftan við heilsugæsluna síðan um hálftvö í gær og ég verð að færa hann þaðan fyrir klukkan átta í fyrramálið.
Strax eftir vinnu á föstudaginn var tók ég 13 alla leið upp í Kringlu, eingöngu til að fara á bókasafnið. Var með fimm bækur sem voru komnar á allra síðasta skiladag. Vel gekk að skila inn bókunum en ég komst ekki út aftur fyrr en ég var komin með sjö bækur í staðinn þrátt fyrir að vera enn að lesa jólabækurnar. Ein af þessum sjö bókum er nýjasta hjólabókin hans Smára um Rangárvallasýslu. Hefði svo vel getað fengið mér smá göngu og labbað heim en ég ákvað að bíða frekar eftir strætó sem stoppar við Sunnubúðina. Heima hafði ég rúmlega eina og hálfa klukkustund áður ég fór að heiman aftur. Þann tíma notaði ég m.a. til að taka stöðuna á foreldrum mínum og ég náði einnig að horfa á næstum allan fyrsta EM-landsleik strákanna okkar. Slökkti á sjónvarpinu þegar um hálf mínúta var eftir af leiknum og öruggt að við vorum að vinna.
Um tíu mínútum fyrir sjö sótti Brynja vinkona mig. Leið okkar lá í Þjóðleikhúsið að sjá Risaeðlurnar og leiddist okkur alls ekki á þeirri sýningu. Vorum uppi á svölum í 20. röð, smá niðurhræddar en það gleymdist þegar sýningin hófst um hálfátta. Þremur tímum seinna færðum við okkur enn nær miðbænum og enduðum á Kebabhúsinu þar sem við fengum okkur að borða og ég eitt hvítvínsglas með matnum. Klukkan var byrjuð að ganga eitt þegar ég kom heim aftur.
Var mætt í sundið korter yfir átta í gærmorgun, náði heim tímanlega til að skutla N1-ungamanninum á aukavakt en hann átti að vera mættur aðeins fyrir klukkan tíu. Klukkan ellefu var ég komin í fyrsta esperantohitting á nýja árinu og þar sem ég var ekki búin að koma síðan á aðfanga dag stoppaði ég í rúma tvo tíma. Ég var ekki búin að vera heima nema í um þrjú korter þegar ég tók strætó niður í bæ til að skreppa á hugleiðslu og fyrirlestur í Lífsspekifélaginu.
Annars er ég búin að lesa fyrstu bókasafnsbókina, Hótel smásögur eftir Steindór Ívarsson. Mæli með þessari bók en hún gerist í Hótel Fönix og er köflunum skipt upp í herbergisnúmer og tengjast kaflarnir, þ.e. gestunum úr sumum herbergjanna bregður fyrir í hinum köflunum.
Horfði á landsleikinn í Indónesíu í hádeginu og núna eru rúmlega tveir klukkutímar í leik númer 2 hjá EM hópnum í Split. Áfram Ísland!
10.1.18
18 ára starfsafmæli í dag
Ég kom beint heim úr vinnu einhvern tíman á sjötta tímanum í gær. N1 strákurinn var í vaktafríi og hann var búinn að taka niður jólin og fara með í geymsluna. Ég á reyndar eftir að taka jóladúkinn af borðinu í stofunni, þvo hann og ganga frá og einnig að taka niður jólapóstinn.
Átti til bleikju og fór fljótlega að huga að matargerð. Eftir að hafa sett upp kartöflur og skorið niður grænmeti með bleikjunni og sett í 150° heitan ofn hrærði ég í eina eggjalausa brúnköku og skipti deiginu í tvö velsmurð form. Þegar kvöldmaturinn var tilbúinn hækkaði ég ofninn upp í 175° og setti inn annað formið. Eftir 2x25 mínútur slökkti ég á ofninum og þá stóð til að skreppa í sund og koma koma svo við í Hagkaup í Skeifunni á leiðinni heim. Það varð ekkert úr þeim áformum því ég hafði kveikt á tölvunni og ætlaði að vera snögg að setja upp og senda út messutilkynningar. Það tók hins vegar nógu langan tíma til að ég ákvað að sleppa sundinu og fór út í Sunnubúð. Eftir að deigið hafði kælst niður ákvað ég að vera ekkert að setja botnana saman. Setti á tvo diska og bjó til krem úr flórsykri, kakói, smjörlíki og smá slettu af heitu vatni og setti yfir þá. Annan diskinn skildi ég svo eftir heima í morgun en hinn tók ég með mér ásamt ostum og smá fleiru þegar ég fór á bílnum í vinnuna upp úr klukkan hálfsjö í morgun.
8.1.18
Gleðilegt nýtt ár 2018
Það er 8. janúar og klukkan byrjuð að ganga ellefu að kveldi dags. Dagarnir eru þegar farnir að þjóta hratt framhjá og munar líklega frekar mikið um aukið vinnuálag. Það er smá törn í gangi og hún er reyndar búin að vera í gangi í um það bil mánuð. Sé ekki alveg fyrir endan á henni í bili því þegar verkefninu, sem er í vinnslu, verður lokið verður að fara í lagertlaningar. Áramótin í þeim talningum hnikast til um einhverjar vikur því það þarf að nota allan auka tíma í SPES-verkefnið.
Eyddi áramótunum og síðustu helgi með foreldrum mínum og um nýliðna helgi byrjaði ég á að prjóna aðra hundapeysu á litla hárlausa hund systur minnar og mágs. Hann passaði fínt í peysuna sem ég prjónaði í október sl. og vill helst vera í henni en það þurfti að taka endurskinsþráðinn úr henni því hann meiðir í frosti.
Föðursystir mín varð níræð á þrettándanum, á laugardaginn 6. janúar. Ég á enn eftir að heyra í henni en hún var ekki heima á afmælisdaginn sinn. Með þessum tímamótum hefur hún farið framúr eldri systikynum sínum heitnum í aldri en til að fara fram úr föðurömmu minni vantar hana rúmlega sjö og hálft ár enn. Ég yrði ekkert svo hissa þótt hún næði því, því þótt hún segist sjálf finna fyrir aldrinum líklamlega lítur hún alls ekki út fyrir að vera mikið eldri en áttræð og varla það.
Vonandi kemst bráðum regla á færslurnar mínar, það er nú lágmark að láta ekki líða of marga daga á milli en stundum fær maður ekkert ráðið við það því annað hvort er tíminn of knappur eða andinn ekki yfir manni.
26.12.17
Jólaræðan
Jóladagur 25. Desember 2017 í óháða söfnuðinum.
Gleðilega hátíð kæra samferðafólk!
Það er margt búið að ganga á í kollinum á mér frá því Pétur bað mig um að taka þetta verkefni að mér á jóladag fyrir ári. Ég ákvað þó strax að taka þessari áskorun alveg óviss um hvernig ég ætti og ætlaði að tækla þetta verkefni. Ég veit vel að ég get alveg skrifað, hef frá því ég man eftir mér dregist að línustrikuðum blöðum og haldið dagbók með hléum síðan ég var krakki. Frá því 2003 færðust þau skrif yfir í bloggheima og þar á ég enn mína spretti.
Ég er annars ein af þeim sem er alin upp í sveit. Tel mig Rangæing í húð og hár þótt mömmu greinar skiptist í vestur, og norður. Hún fæddist á Akureyri 1944 þegar Lýðveldið Ísland var tæplega mánaða gamalt. Til tólf ára aldurs átti ég lögheimili á Heiði á Rangárvöllum, um 16 km frá Hellu. Föðurafi minn var fæddur þar og pabbi og öll hans 4 systkyni, pabbi yngstur árið 1934.
Ég fæddist í Reykjavík í mars 1968 og var á heimleið í fyrsta skipti í sveitina mína daginn sem breytt var yfir í hægri umferð, þann 26. maí sama ár. Mér er sagt að bíllinn hans pabba hafi sést á myndbroti í fréttum af þessari umferðarbreytingu. Fyrstu fjögur árin mín, eða á meðan, afi lifði, var Heiði þríbýli. Elsti bróðir pabba sá þó um að reka búið, bæði kúa og sauðfjárbú auk nokkurra hesta. Hann hafði byggt sitt eigið hús yfir sig og sína örstutt frá gamla bænum og nefnt Heiðarbrekku. Foreldrar mínir byggðu sitt hús, 1961, við gamla bæinn þannig að það var innangengt á milli. Pabbi var í mörg ár titlaður bóndi í símaskránni en hann var farinn að vinna utan heimilis fyrir mína tíð. Eftir að afi dó fluttist amma mín að Helluvaði til yngstu dóttur sinnar og bjó þar síðustu 15 árin sín.
Ég fæddist í Reykjavík í mars 1968 og var á heimleið í fyrsta skipti í sveitina mína daginn sem breytt var yfir í hægri umferð, þann 26. maí sama ár. Mér er sagt að bíllinn hans pabba hafi sést á myndbroti í fréttum af þessari umferðarbreytingu. Fyrstu fjögur árin mín, eða á meðan, afi lifði, var Heiði þríbýli. Elsti bróðir pabba sá þó um að reka búið, bæði kúa og sauðfjárbú auk nokkurra hesta. Hann hafði byggt sitt eigið hús yfir sig og sína örstutt frá gamla bænum og nefnt Heiðarbrekku. Foreldrar mínir byggðu sitt hús, 1961, við gamla bæinn þannig að það var innangengt á milli. Pabbi var í mörg ár titlaður bóndi í símaskránni en hann var farinn að vinna utan heimilis fyrir mína tíð. Eftir að afi dó fluttist amma mín að Helluvaði til yngstu dóttur sinnar og bjó þar síðustu 15 árin sín.
Ég er ekki fyrsta barn foreldra minna þótt í sé sú eldri af tveimur systrum. Frumburður þeirra, "Litla-Anna", fæddist daginn eftir fimm ára brúðkaupsafmæli þeirra í september 1966 en hún dó eftir stutt veikindi aðeins fimm mánaða gömul. Önnu nafnið mitt er því bæði eftir henni og í höfuðið á móðurömmu minni. Yngri systir mín fæddist rúmum 19 mánuðum á eftir mér. Ég kallaði hana víst Óóið lengi vel er mér sagt en ég man ekkert eftir því. Þegar ég fer að muna eftir mér sváfum við í koju, hún í þeirri efri og ég í þeirri neðri af því að ég átti það til að ganga í svefni. Okkur voru snemma kenndar bænir, vers og heilræðavísur og það var föst venja að fara þær og signa sig fyrir svefninn. Þegar við fengum sér herbergi í kjallaranum varð mamma oftast vör við það þegar ég labbaði af stað því þótt ég væri steinsofnadi þá fór ég í klossana mína. Mamma náði þá oftast að snúa mér við áður en ég var komin alla leið upp og fylgja mér í rúmið aftur. Ég man þó eftir einu skipti þar sem ég vaknaði upp á gólfinu fyrir framan tröppuna inn í hjónaherbergi. Mig hafði verið að dreyma að ég væri á sundæfingu.
Systir mín átti stundum erfitt með að sofna. Ef ég var sofnuð gat hún teygt hendina niður úr efri kojunni og kveikt ljósið hjá mér. Síðan hallaði hún sér yfir rúmbríkina, þannig að ég sá andlitið hennar á hvolfi, og sagði við mig: "Anna Sigga ég get ekki sofnað. Viltu segja mér sögu?" Og sýndi mér jafnvel með höndunum hversu löng sagan átti að vera. Ég átti frekar auðvelt með þetta, varð snemma læs og las mikið m.a. Þjóðsögur Jóns Árnasonar. Ég var dugleg við að búa til alls konar ævintýri. Ég hafði afar gaman af því að spila eða leggja kapla og á tímabili gekk ég með spilastokk í rassvasanum og vísnabókina undir hendinni. Ég fékk líka stundum skrýtnar hugmyndir, t.d. eftir að Gideonfélagið hafði heimsótt bekkinn minn og gefið okkur nýja testamentið. Maðurinn sem afhenti okkur bækurnar sagði að hann myndi koma aftur þegar við yrðum í elsta bekk grunnskólans til að athuga hversu snjáðar bækurnar væru, þ.e. hvort við hefðum verið iðin við að glugga í testamentið. Ég gerði gott betur en það því ég fékk þá flugu í höfuðið að læra ættartölu Jésú Krists utan að og kunni hana lengi vel, alla 36 liðina, alveg frá Abraham að Jésú. Föðurbróðir minn vissi af þessu og átti það til að biðja mig um að þylja ættartöluna upp sérstaklega ef það voru gestir á staðnum.
Systir mín átti stundum erfitt með að sofna. Ef ég var sofnuð gat hún teygt hendina niður úr efri kojunni og kveikt ljósið hjá mér. Síðan hallaði hún sér yfir rúmbríkina, þannig að ég sá andlitið hennar á hvolfi, og sagði við mig: "Anna Sigga ég get ekki sofnað. Viltu segja mér sögu?" Og sýndi mér jafnvel með höndunum hversu löng sagan átti að vera. Ég átti frekar auðvelt með þetta, varð snemma læs og las mikið m.a. Þjóðsögur Jóns Árnasonar. Ég var dugleg við að búa til alls konar ævintýri. Ég hafði afar gaman af því að spila eða leggja kapla og á tímabili gekk ég með spilastokk í rassvasanum og vísnabókina undir hendinni. Ég fékk líka stundum skrýtnar hugmyndir, t.d. eftir að Gideonfélagið hafði heimsótt bekkinn minn og gefið okkur nýja testamentið. Maðurinn sem afhenti okkur bækurnar sagði að hann myndi koma aftur þegar við yrðum í elsta bekk grunnskólans til að athuga hversu snjáðar bækurnar væru, þ.e. hvort við hefðum verið iðin við að glugga í testamentið. Ég gerði gott betur en það því ég fékk þá flugu í höfuðið að læra ættartölu Jésú Krists utan að og kunni hana lengi vel, alla 36 liðina, alveg frá Abraham að Jésú. Föðurbróðir minn vissi af þessu og átti það til að biðja mig um að þylja ættartöluna upp sérstaklega ef það voru gestir á staðnum.
En ég átti víst að segja frá jólaminningum mínum. ...og verð ég þá að viðurkenna og kannast við að undirbúningur undir jólin voru bara vesen í mínum huga, svo langt sem ég man? Mamma var og er mikið jólabarn og hún komst í mikið stuð þegar líða fór að aðventu. Hún saumaði eitt sinn jólaklukkustreng, sem var númeraður frá 1 - 24 og rauður hringur við hvert númer. Áður en 1. desember rann upp var hún búin að pakka alls konar nammi-molum inn í álpappír, binda utan um og festa tvo pakka í hvern hring. Svona töldum við systur niður dagana til jóla. Mamma saumaði líka á okkur jólafötin í mörg ár. Allt var þrifið hátt og lágt og mamma var að langt fram á nótt vikurnar fyrir jól. Pabbi hjálpaði henni eftir að hann kom heim úr vinnu á kvöldin. Settar voru upp jólagardýnur í eldhúsinu og jóladúkar á eldhús- og stofuborð. Mamma bjó til aðventukrans og notaði svo hluta af greninu til að gera smáskreytingar og festa fyrir ofan innrammaðar myndir á veggjum í stofunni og víðar. Ákveðnar jólaskreytingar áttu sína föstu staði. Ég man sérstaklega eftir pínu litlu, skreyttu gervijólatré sem mamma hafði valið sem möndlugjöf sem unglingur og fékk svo sjálf möndluna. Þetta tré var alltaf sett upp á stofuklukkuna.
Bakaðar voru að mér fannst millijón smákökusortir og nokkrar lagtertur, jólakökur, og fleira og fleira og var mamma potturinn og pannan í þessu öllu. Nokkrar smákökusortir kölluðum við lengi vel fjölskyldukökur því þá hjálpuðumst við öll að, þetta voru t.d. loftkökur og vanilluhringir. Þetta fannst mér skemmtilegt. Foreldrar mínir hjálpuðust einnig að við að baka og setja saman piparkökuhús sem var látið standa alveg fram á þrettándann. Þá var það brotið niður og oft voru frændur okkar, bróðursynir pabba boðnir yfir til að hjálpa okkur að brjóta niður húsið og borða. Ef það voru fleiri ungmenni stödd á staðnum þá var þeim boðið líka. Leyfarnar af húsinu entust í einhverja daga.
Bakaðar voru að mér fannst millijón smákökusortir og nokkrar lagtertur, jólakökur, og fleira og fleira og var mamma potturinn og pannan í þessu öllu. Nokkrar smákökusortir kölluðum við lengi vel fjölskyldukökur því þá hjálpuðumst við öll að, þetta voru t.d. loftkökur og vanilluhringir. Þetta fannst mér skemmtilegt. Foreldrar mínir hjálpuðust einnig að við að baka og setja saman piparkökuhús sem var látið standa alveg fram á þrettándann. Þá var það brotið niður og oft voru frændur okkar, bróðursynir pabba boðnir yfir til að hjálpa okkur að brjóta niður húsið og borða. Ef það voru fleiri ungmenni stödd á staðnum þá var þeim boðið líka. Leyfarnar af húsinu entust í einhverja daga.
Það var annars aldrei farið í kirkju á aðfangadag, jóla- eða gamlársdag, hvorki á meðan við bjuggum í sveitinni né eftir að við fluttum alfarið í þorpið 1981. En ég man að við fórum einu sinni á aðventustund, stuttu fyrir jól, í Þykkvabæjarkirkju og þótti mér sú stund afar hátíðleg.
Á Þorláksmessukvöld var gervitréð sett saman og pabbi athugaði hvort seríurnar væru í lagi áður en þær voru settar á og tréð skreytt. Mér fannst mest spennandi að sjá hversu mikið tréð hafði "minnkað" frá því árinu áður. Það var alltaf einhver munur en ég óx frekar hægt, 1-2 cm ár ári og eitt árið, tók systir mín mikinn vaxtakipp lengdist um heila tíu sentimetra og óx mér vel yfir höfuð. Ég, sem hafði alltaf verið aðeins stærri, var alveg nokkur ár að ná henni aftur.
Í hádeginu, á aðfangadag, var mamma með heitan grjónagraut með möndlu í og sá sem fékk möndluna fékk fyrsta pakkann. Klukkan fimm voru pakkarnir settir undir tréð en ljósin voru þó ekki kveikt fyrr en klukkan sex. Þá var líka sest að borðum og borðaður lambahryggur eða læri með öllu tilheyrandi. Ég var ekki mikið fyrir brúnuðu kartöflurnar og jólaölsblandan, hvítöl, malt, kók og appelsín fór alls ekki vel í magann minn. Þegar borðhaldinu lauk fengum við systur að opna fyrstu pakkana, sem voru yfirleitt merktir frá jólasveininum. Lengi vel voru líka geymdir nokkrir pakkar sem sem við systur opnuðum einn á dag alveg fram á gamlársdag. Ég sagði frá því hér að ofan að ég var og er mikill lestrarhestur. Ein bestu jólin voru líklega þegar ég var um ellefu ára. Ég fékk nýja skólatösku, einhverjar flíkur, kerti og spil frá heimilisfólkinu á Kaldbak en það var hefð í mörg ár og svo heilar ellefu bækur. Ég var því miður búin að lesa þær allar áður en nýtt ár rann upp.
Sem krakki var ég frekar alvarleg og tók lífinu kannski helst til of hátíðlega. En svo langt sem ég man átti ég það þó til að bresta í söng alveg að því er virtist af tilefnislausu og var ég ekki endilega að syngja neitt ákveðið þótt ég gerði það líka. Ég get alveg skotið því hér að, að ég er ekki vaxin upp úr þessu. Átta ára var ég send í Tónlistarskóla Rangæinga. Lærði fyrst á blokkflautu og svo orgel og píanó. Það var hefð að halda tvenna jólatónleika í sýslunni og eina í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Ég var valin í hópinn nokkrum sinnum til að koma fram á þessum tónleikum og ég gleymi því aldrei þegar ég spilaði á stóra pípuorgelið í fyrsta skipti. Sem betur fer var alltaf mætt góðum tíma fyrir tónleika svo hægt væri að taka eitt rennsli áður. Þrátt fyrir að ég kviði alltaf að koma fram þá fannst mér líka þetta vera hluti af undirbúningnum fyrir komu jólanna.
Sem krakki var ég frekar alvarleg og tók lífinu kannski helst til of hátíðlega. En svo langt sem ég man átti ég það þó til að bresta í söng alveg að því er virtist af tilefnislausu og var ég ekki endilega að syngja neitt ákveðið þótt ég gerði það líka. Ég get alveg skotið því hér að, að ég er ekki vaxin upp úr þessu. Átta ára var ég send í Tónlistarskóla Rangæinga. Lærði fyrst á blokkflautu og svo orgel og píanó. Það var hefð að halda tvenna jólatónleika í sýslunni og eina í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Ég var valin í hópinn nokkrum sinnum til að koma fram á þessum tónleikum og ég gleymi því aldrei þegar ég spilaði á stóra pípuorgelið í fyrsta skipti. Sem betur fer var alltaf mætt góðum tíma fyrir tónleika svo hægt væri að taka eitt rennsli áður. Þrátt fyrir að ég kviði alltaf að koma fram þá fannst mér líka þetta vera hluti af undirbúningnum fyrir komu jólanna.
Mig langar til að enda þetta á því að fara með smá bæn í ferskeytluformi sem ég samdi í endaðan mars fyrir bráðum þremur árum:
Legg ég saman lófa mína
leitar hugur víða.
Bið Hann heili alla sína
höftin leysi´ og kvíða.
(ASH 28.03.2015)leitar hugur víða.
Bið Hann heili alla sína
höftin leysi´ og kvíða.
Takk fyrir mig!
11.12.17
Morgunstund
Áfram æðir tíminn og lætur alls ekki bíða eftir sér. Það er varla að maður geti hangið í kjölsoginu. Oftast er það nú ekki nauðsynlegt að vera að eltast neitt sérstaklega við tímann. Mér sýnist á öllu að ef ég punkta bara upp það sem verður að klárast fyrir jól og raða svo verkefnunum skynsamlega niður þá á þetta allt að hafast. Ég er amk búin að skrifa jólabréfin og annað þeirra er nú þegar á leiðinni til Englands og hitt leggur af stað til Danmerkur í dag.
Ég skrapp annars austur um helgina, hafði ekki farið tvær helgar í röð og það var alveg kominn tími til að kíkja. Ég fór klifjuð af dóti eins og vanalega en notaði svo ekkert af því þegar til kom. Mestallur tíminn fór í að prjóna með mömmu, þýða eitt jólabréf fyrir pabba og svo skrapp ég aðeins og kíkti á föðursystur mína upp úr hádeginu í gær.
Pabbi var mjög duglegur að setja upp hluta af jólunum. Fékk að hjálpa honum aðeins við að setja upp jólagardýnur á efri gardýnustangirnar í eldhúsinu og leist nú ekkert að blikuna að fylgjast með pabba príla af tröppunni og alla leið upp á innréttinguna. Hann lofaði nú að fara varlega, vildi gera þetta sjálfur og það var ekki að sjá að "prílarinn" væri orðinn 83 ára.
Hafði annars ætlað mér að vinna í jólahugvekjunni. Kollurinn er fullur af orðum og hugmyndum en ég hafði einhvern veginn enga eirð til að setjast niður yfir punktana sem þegar eru komnir í skjalið. Mér finnst samt að það sé ekki langt í að ég detti í skrifstuðið og þá vona ég svo sannarlega að ég sitji fyrir framan tölvuskjá og hafi góðan tíma.
3.12.17
Fyrsti sunnudagur í aðventu
Þetta er önnur helgin í röð sem ég fer ekki út úr bænum og austur. Í gærmorgun var ég mætt í sund rétt upp úr átta. Hafði smá stund aflögu heima eftir sundið áður en ég skrapp í esperanto hitting til norsku vinkonu minnar. Var komin heim aftur upp úr klukkan tólf. Tæpum tveimur tímum seinna skutlaði einkabílstjórinn minn mér út að Eiðistorgi og hann notaði ferðina til að skreppa með plast, pappír og fleira í Sorpu. Á Eiðistorgi var verið að sýna ballett, milli klukkan tvö og þrjú, þó nokkuð margir hópar sem eru í ballettskólanum á Seltjarnarnesi en skólinn er víst til húsa þarna á Eiðistorgi. Tvíburar Brynju vinkonu voru í fyrsta hópnum. Þetta var mjög skemmtileg sýning, atriðin ekki of löng en maður fékk að sjá ýmsa ballettakta, allt frá byrjendum og upp í unglinga.
Rétt upp úr þrjú vorum við vinkonurnar sestar inn í Hannesarholt þar sem við sátum næstu tvo tímana. Áður en hún skilaði mér heim tókum við smá rúnt yfir í annan bæjarhluta.
Ég var komin ofan í kalda pottinn 12 mínútur yfir átta í morgun. Sat þar í rúmar þrjár mínútur en synti svo í næstu tuttugu mínútur áður en ég fór aftur í þann kalda. Eftir þá ferð fór ég í sjópottinn og svo enn og aftur í þann kalda. Endaði svo stutta stund í gufunni áður en ég fór upp úr. Hitti óvænt þá sem ég heimsótti í Skagafirðinum er ég var á leiðinni til Helgu systur í ágúst sl. Eftir tíu mínútna spjall dreif hún og hennar maður sig í sundið en ég kom við í Hagkaup í Skeifunni á leiðinni heim.
Ég er annars nýkomin heim úr árlegu laufabrauðshittingi með frændfólki mínu. Vorum alls sjö og skárum út 80 kökur. Var mætt fyrst rétt fyrir tvö og við vorum búin að skera og steikja tveim tímum seinna. Og næst liggur leiðin í kirkjuna mína en þar er aðventukvöld í kvöld og stjórnin ætlar að hittast á undan til að undirbúa smá góðgæti sem verður á boðstólum eftir dagskrána.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)