Einhver sagði einhvern tímann að ..."engar fréttir eru góðar fréttir!" Ég er að verða hálfnuð með fríið mitt og batteríin eru heldur betur að hlaðast þrátt fyrir að ég sé ekki að skipuleggja neitt stórt þannig séð. Leyfi mér að haga seglum alveg eftir vindi en læt samt veðrið alls ekki hafa áhrif á mig. Það kom einn mjög góður sumardagur í kringum 20. júní og þá ákvað ég að fara gangandi í Laugardalinn. Hafði með mér klink fyrir fari með strætó til baka því þótt ég treysti mér alveg til að labba heim aftur þá fannst mér tilhugsunin um göngublautt bak ekki góð. Ég fór líka gangandi á bókasafnið fyrir nokkrum dögum. Skilaði öllum 6 bókunum (lesnum) og það komu sjö með mér heim aftur. Fyrir tæpri klukkustund kom ég gangandi heim úr heimsókn frá fyrrum kórsystur. Labbaði af stað til hennar um tvö og var svona ca tuttugu mínútur á leiðinni. Semsagt það er allt í góðu.
29.6.18
18.6.18
Smá lífsmark
Það er spurning hvort uppfærsla á persónuverndarlögum og því öllu muni fæla mig frá því að vera eitthvað að skrásetja hluta af því sem fer fram í kringum mig og um mig? Svo er þetta með andann og löngunina til að skrifa. Auðvitað er hún oftar til staðar heldur en sést amk ef skrif/blogg-árin eru borin saman. Ég ætla ekkert að velta mér frekar upp úr þessu og heldur ekki hafa þetta lengra í dag. Er að lesa svo spennandi bækur, fylgjast með HM, stunda kalda pottinn og laugarnar og rembast við að halda mér í gönguformi líka. Jú, kannski eitt, sl. föstudag fór Davíð Steinn með mér á N1 í Fellsmúla svo ég gat nýtt mér 22% afláttinn hans þegar ég keypti ný sumardekk undir Fordinn og lét setja undir bílinn.
23.5.18
Stiklað á stóru
Ég er mjög dugleg að láta það vera að kveikja á tölvunni. Hef svo sem, hvort eð er, ekki verið í neinu skrifstuði en það er alltaf eitthvað um að vera í kringum mig og stundum mætti ég alveg vera duglegri að skrifa um sumt af þessu svo það gleymist ekki.
Æskuvinkona mín, Ella, var hjá mér í tvær nætur fyrir rétt rúmri viku. Ég hafði vitað af komu hennar í nokkra daga og undirbjó heimsóknina vel. Bauð henni að sofa í herberginu mínu og bjó um mig á beddanum í stofunni sem tvíburahálfsystir mín var nýbúin að skila en ég lánaði henni hann í heila viku undir sænska eða danska stelpur (veit ekki hvor þeirra notaði hann). Degi eftir að Ella vinkona flaug aftur heim til sín gistu mágur minn og yngri systurdóttir mín. Hún var í stofusófanum í eina nótt en hann á beddanum í 3 nætur. Frænka mín flaug nefnilega með föðursystur sinni til London seinni partinn á fimmtudaginn var. Helga systir kom suður á föstudagskvöldið með kærustuparið og hvolpinn. Hinn hundurinn var skilinn eftir í pössun fyrir norðan. Kærustuparið fór heim til mömmu hans en Helga gisti í sófanum í eina nótt. Ég rétt náði að heilsa upp á hana um hálftólf þegar ég kom heim úr kortadeildargrillpartý. En við systur hittumst svo aftur á Hellu seinni partinn á laugardaginn. Ég gisti í eina nótt en þau í tvær.
Klukkan ellefu á mánudagsmorguninn var ég mætt í Dómkirkjuna til að fylgjast með því þegar verið var að vígja einn frænda minn til prests til að taka við Patreksfjarðarprestakalli. Eftir athöfnina heilsaði ég aðeins upp á frændfólkið mitt sem var þarna en dreif mig svo beint í sund. Bræðurnir voru báðir að vinna, annar til klukkan átta og hinn til klukkan tíu (eh). Ég mætti í mína kirkju upp úr klukkan sjö til að undirbúa maulið eftir messuna. Alls mættu 17 ef allir voru taldir með. Ég gaf mér góðan tíma til að sitja og spjalla á eftir messunni og var til klukkan tíu að ganga frá á eftir.
Ég skilaði annars inn 5 bókum á safnið sl. föstudag, þrjár hafði ég klárað en hinar tvær rétt byrjaði ég á og sá að ég mundi ekki nenna að lesa þær. Hefði getað haft þær í 10 daga lengur en ég ákvað að skipta þeim út. Kom með 5 bækur heim í staðinn og er búin að klára tvær af þeim nú þegar. Önnur þeirra var svaðalega spennandi; Týndu stúlkurnar eftir Angelu Marsons þýdd af Ingunni Snædal. Mér skilst að það sé búið að þýða tvær aðrar eftir þennan höfund og ég á örugglega eftir að "þefa" þær uppi og lesa (skrifar sú sem ekkert lyktarskyn hefur).
Þriggja mánaða strætókortið mitt rann úr gildi eftir 18. maí og þar sem það styttist í sumarfrí hef ég ákveðið að labba sem oftast milli heimilis og vinnu. Það var fínt að labba í gærmorgun en leiðinda rok og rigning á móti mér seinni partinn. Komst þó heim, skipti um föt, hringdi aðeins í pabba en fór svo beinustu leið í sund og kalda pottinn. Labbið í morgun og seinni partinn voru fínustu göngutúrar og eftir að hafa hringt austur setti ég bræðrunum fyrir og skrapp svo smá stund í sjóinn. Þegar ég kom til baka var maturinn tilbúinn. Stoppaði ekkert svo lengi heima því það var heimaleikur hjá Val í Pepsídeild kvenna. 2-0 fyrir VAL á móti HK/Víkingi.
5.5.18
Lítið að gerast í skrifunum
Það er það langt síðan að ég skráði mig inn síðast að google sá ástæðu til að spyrja hvort ég ætti örugglega að vera með aðgang að þessari síðu. Fékk sent númer með sms í farsímann til að staðfesta að ég mætti fara hérna inn og nota þessa síðu eftir mínu höfði. Annars er ég stödd á Hellu þessa stundina og verð eitthvað fram á morgundaginn. Esperanto-hittingingi var frestað til næsta fimmtudags svo ég var löt að drífa mig af stað í sund í morgun. Var þó komin ofan í þann kalda upp úr klukkan hálftíu. Rúmum einum og hálfum tíma síðar var ég komin í Krónuna við Granda og fyrir utan að ég var að gera innkaup fyrir sjálfa mig var ég að leita eftir vöru fyrir pabba og mömmu sem ekki fæst á Hellu í augnablikinu. Fann þetta ekki í Krónunni. Kom við hjá Atlantsolíu við Öskjuhlíð áður en ég fór heim með vörunar, gekk frá þeim og sunddótinu, ýtti aðeins við öðrum stráknum til að láta vita að ég væri að fara austur, tók dót sem ég hafði tekið saman í morgun til að fara með. Fyrsta stopp var í Hagkaup í Skeifunni og eftir smá hringsól og nokkuð mikla leit fann ég nokkrar krukkur af súrsætri sósu frá "Benna frænda". Næsta stopp var í Fossheiðinni og svo var ég komin á áfangastað um hálffjögur.
Fyrsti stjórnarfundur nýkjörinnar safnaðarstjórnar í Óháða söfnuðinum var haldinn í Kirkjubæ milli 17 og 18:30 sl. fimmtudag. Ritari og gjaldkeri höfðu boðað forföll en það var fagnaðarefni að frétta og sjá að það hafði náðst að fullskipa stjórnina, að búið væri að fylla í öll þrjú sætin sem í höfðu setið formaður, varaformaður og einn meðstjórnandi síðustu 2-12 ár. Ég tók að mér að sjá um fundarritun. Náði að hreinskrifa þau skrif í gær og senda á nýkjörinn formann sem fór yfir, bætti við einu atriði og ætlar að senda á alla stjórnina.
Var á leiknum VALUR - Selfoss í Pepsídeild kvenna í gærkvöldi. Svolítið kalt en það voru skoruð átta mörk sem öll voru skoruð í mark gestanna. Valsstelpurnar héldu hreinu. Annars er ég bara góð. :-)
24.4.18
Árskort á Valsvöllinn 2018-19, kort no 68
Já, líkt og í fyrra gildir kortið á alla heimaleiki Vals fram á næsta vor, þ.e. alla deildarleiki. Ég vona bara að ég nýti þetta kort betur næsta vetur heldur en kortið sem var að renna úr gildi. Ég var frekar dugleg að mæta á heimaleikina fyrrasumar, í Pepsídeild bæði karla og kvenna en ég fór aðeins á einn heimaleik í vetur í Olísdeild kvenna. Pepsídeild karla byrjar að rúlla á föstudaginn kemur og það er Valur - KR strax í fyrstu umferð.
Annars var ég að koma heim úr sundi. Var mætt í Laugardalslaugina rétt upp úr klukkan fjögur og fékk gott pláss bæði í pottum og laug. Synti í um 25 mínútur eða 600 metra. Hitti eina nöfnu mína sem var með mér í KÓSÍ kórnum. Við syntum víst eitthvað á svipuðum tíma en ég tók ekki eftir henni fyrr en við vorum báðar farnar að pottormast.
19.4.18
Gleðilegt sumar!
Afar gott að fá svona aukafrídag. Ég leyfði mér samt ekki að sofa út í morgun, en kannski var ég bara útsofin því ég vaknaði löngu áður en vekjarinn átta að hringja eða einhvern tímann milli klukkan hálfsjö og sjö. Var mætt í Laugardalinn um leið og verið var að opna klukkan átta. Byrjaði á því að demba mér í kalda pottinn í fjórar mínútur áður en ég fór í laugina. Reyndar varð lítið úr sundi, þ.e. ég fór aðeins tvær ferðir, 200 metra, því gúmmíið öðru megin á sundgleraugunum datt af þegar ég var að setja þau á mig í upphafi. Þrjóskaðist þessa 200 metra með annað auga lokað. Settist aftur í þann kalda áður en ég fór í heitari potta og hitta hluta af "morgunfólkinu" mínu. Hafi svo engan tíma til að blása á mér hárið því ég var búin að lofast til að skutla N1 syninum í vinnuna og hirða hann upp um hálftíu.
Skrapp í göngu núna seinni partinn, hálfan Öskjuhlíðarhring, og kom við í Valsheimilinu til að athuga með árskortið á völlinn í sumar. Þau koma ekki í sölu fyrr en á morgun. Hefði geta keypt mig inn á leik Vals og ÍBV, ríkjandi bikar og deildameistara en ákvað frekar að ljúka göngunni og fara heim til að þurrka af mér göngufossinn á bakinu.
Er annars nýlega byrjuð á Smásögum eftir Ágúst Borgþór Sverrisson, AFLEIÐINGAR. Bókin inniheldur sjö smásögur. Er aðeins búin með þá fyrstu en ég gat ekki hætt að lesa fyrr en ég var búin með hana. Ég er enn með 3 bækur af safninu eftir að ég skilaði inn nokkrum bókum sl. sunnudag án þess að ná mér í aðrar í staðinn.
17.4.18
Soðið slátur í matinn í kvöld
Í dag er nákvæmlega mánuður síðan ég varð fimmtug, þessi mánuður er rúmlega hálfnaður og það fer alveg að líða að því að ég fari í sumarfrí. Ekki alveg tveir mánuðir þangað til en miðað við hvernig tíminn brunar áfram þá er alls ekki langt þangað til. En á meðan ætla ég að njóta hvers dags og hverrar mínútu eins og kostur er.
Síðan ég setti inn færslu hérna síðast er ég m.a. búin að fara nokkrum sinnum í sund, í tvær fermingaveislur, eitt sextugs afmæli, skila nokkrum bókum á safnið, láta taka nagladekkin undan bílnum og eyða sólarhring með stelpunum í kortadeildinni á Hótel Selfossi.
Fór í blóðbankann strax eftir vinnu í gær, 49. heimsóknina og sleppti því sundferð. Hins vegar dreif ég mig í sund upp úr klukkan fjögur eftir að ég hafði sett upp slátur og beðið Davíð Stein um að fylgjast með suðunni sem og setja upp kartöflur um sex.
Kveikti annars á tölvunni í kvöld til þess að senda og setja inn tilkynningar um næstu messu í moggann og á vegg og heimasíðu safnaðarins.
4.4.18
Fiskbúð og sund eftir vinnu í dag
Ég er rúmlega hálfnuð með eina bókina sem ég kom með heim af safninu í gær. smáglæpir eftir Björn Halldórsson hefur að geyma 7 smásögur sem eru frá 12 bls og upp í 24 að lengd. Á aðeins eftir að lesa 3 smásögur. Ætla ekki að segja neitt um sögurnar sem ég hef þegar lesið nema það að ég mæli alveg með þessari bók.
Þegar ég var búin að heyra aðeins í pabba rétt upp úr klukkan fjögur í dag, tók ég til sunddótið, kvaddi og byrjaði á því að stoppa í fiskbúðinni Hafið við Skipholt. Þar keypti ég ýsu í soðið, lax og 1 kg af rauðum kartöflum. Var komin ofan í kalda pottinn rétt fyrir fimm og byrjuð að synda um fimm mínútum síðar. Synti aðeins í rúmt korter eða 400 metra. Þá fór ég aftur í þann kalda í 3 mínútur áður en ég skrapp í nokkrar mínútur í 38°C pott sem ég fer ekki oft í. Eftir nokkrar mínútur þar fór ég þriðju og síðustu ferðina í þann kalda áður en ég endaði í gufunni. Kom heim um hálfsjöleytið og var maturinn tilbúinn ca hálftíma seinna.
3.4.18
Bókasafn og sund eftir vinnu í dag
Vinnudagurinn var ekki lengi að líða enda nóg af verkefnum. Var komin heim upp úr klukkan fjögur. Tók stöðuna á foreldrum mínum og hringdi einnig í esperanto vinkonu mína sem er á leið út í tveggja vikna frí eftir tvo daga. Við höfðum ætlað að veifast á á Facebook en það lítur út fyrir að það sé búið að loka á mig þar. Veit ekki alveg hvað eða hvernig þetta gerðist en ef mér tekst ekki að endurræsa aðganginn minn innan nokkurra daga þá gæti allt eins farið svo að ég láti þann vettvanginn alveg eiga sig. Hver veit nema það hafi þá líka góð áhrif á skrifin mín á þessum vettvangi.
Áður en klukkan varð fimm var ég búin að taka til sunddótið mitt og fjórar lesnar bækur af fimm af Kringlusafninu og búin að kveðja strákana. Fyrst lá leiðin í efnalaugina Snögg þar sem ég "leysti" út jakkaföt strákanna, þ.e. mínus einn jakki. Setti þetta í skottið og fór næst á safnið. Sex bækur komu með mér út af safninu í staðinn fyrir þessar fjórar sem ég skilaði inn. Ein af þessum sex er með tveggja vikna skilafrest en hún og þrjár aðrar af hinum innihalda smásögur. Segi kannski betur frá þessu seinna. Úr safninu lá leiðin í Laugardalslaugina, tvær ferðir í kalda, 400 m sund og næstum tíu mínútur í gufunni. Kom heim aftur um sjö. Strákarnir farnir í heimsókn til pabba síns og ég slapp við að elda þar sem til eru ýmis konar afgangar.
2.4.18
Úti snjóar
Laugardalslaugin er um það bil að opna. Ég er komin á fætur, búin að fá mér eitthvað og allt tilbúið fyrir sundferð. Ég fór ekki í sund í gær þótt það væri opið milli klukkan 10 og 18. Gærdagurinn hófst snemma. Var komin á ról um hálfsjö og mætt upp í kirkju á slaginu sjö. Við vorum 4 úr stjórninni sem hjálpuðumst að við að leggja á borð í efri safnaðarsalnum, hita brauðbollur, smá kaffi, búa til heitt kakó og þeyta rjóma. Það fór svo að aðeins eitt okkar sá sér fært að mæta í messuna. Ég hálfsé því eftir því að hafa ekki drifið mig í kirkju á föstudagskvöldið því nýji kórinn var að syngja þá sem og í gær. Get huggað mig við það að bæði heyrði ég í kórnum þegar hann var að hita upp og svo mun hann syngja aftur í tilraunamessu fjórða sunnudaginn í þessum mánuði. En það mættu ríflega fimmtíu mann í messu í gærmorgun og er það heldur fleira heldur en undanfarna páska. Klukkan var byrjuð að ganga ellefu þegar öllum frágangi var lokið og þá fór ég beint heim aftur og hélt mig þar. Strákarnir voru báðir heima en þeir komu ekki á fætur fyrr en einhvern tímann eftir hádegi. Í gærkvöldi var ég með steikt hrefnukjöt og bjó til sæta kartöflumús með smá tvisti, hafði hálfa rauðrófu með í litlum bitum út í músinni.
31.3.18
Stutt skrepp út út bænum
Á skírdagsmorgun var ég að sjálfsögðu mætt í Laugardalinn rétt upp úr klukkan átta. Sinnti rútínunni vandlega og fór svo auka ferð í kalda pottinn. Klukkan var byrjuð að ganga ellefu þegar ég var búin að blása á mér hárið. Var með esperanto bakpokann í skottinu en ég kom fyrst við hjá Atlantsolíu í Öskjuhlíðinni.
Við Inger kláruðum fimmta kaflann í Kon-Tiki og þóttumst vera afar duglegar. Við munum hins vegar ekki hvenær við byrjuðum að lesa þessa bók en það er amk ár síðan og við erum rúmlega hálfnaðar. Eftir esperanto-hittinginn fór ég heim til að hengja upp sunddótið, setja ofan í tösku og "vekja" tvíburana til þess að kveðja þá. Á austur leiðinni kom ég við í Fossheiðinni.
Hálftíma eftir að ég var kominn á Hellu komu fjórir gestir í heimsókn, 2 af þremur systkynum og makar þeirra. Litla systir þeirra og hennar maki eru í gólfferð á Spáni þessa dagana. Þessi systikyni og mamma eru systkynabörn. Gestirnir höfðu gert boð á undan sér og bannað pabba að hafa fyrir þeim. Hann átti bara að hella upp á þegar þau kæmu. Mamma hafði samt útbúið rækjusallat. Fjórmenningarnir stoppuðu í rúma tvo tíma.
Um kvöldið opnaði ég hvítvínsflöskuna sem Inger og fjölskylda gáfu mér. Mamma þáði aðeins einn sopa en pabbi, sem yfirleitt fær sér frekar rauðvín eða bjór þegar hann fær sér, þáði í glas og þótti þetta gott. Við feðginin kláruðum samt úr flöskunni svo ég tók afganginn með mér í bæinn aftur í gærkvöldi.
26.3.18
Nokkrir ókostir við að draga verulega úr tölvunotkun
Rúmlega tveir mánuðir liðnir síðan ég setti inn síðustu færslu. Á þeim tíma hefur margt og mikið vatn runnið til sjávar. Hef eingöngu kveikt á tölvunni þegar ég þarf að setja inn messutilkynningar. Stundum hefur hvarflað að mér að gefa mér þá tíma á þessum vettvangi í leiðinni en ég hef ekki endilega verið í skrifstuði. Gallinn við að "detta" svona út er að þá á ég það ekki neins staðar skráð það helsta sem á daga mína drífur. Kannski er það bara ágætt eða hvað. Mér finnst nefnilega svo gott að geta flett upp í sjálfri mér en það er eðlilega ekki hægt ef maður er með einhvers konar ritstíflu eða lyklaborðaleti.
Ég er mjög sátt við að hafa dregið úr tölvunotkuninni samt, það fór heldur mikill tími í þetta apparat. Er frekar dugleg við að stunda sundið, fer helst ekki sjaldnar en fjórum sinnum í viku og næ stöku sinnum að fara sjö daga í röð. Meðaltalið er líklega í kringum 5 sinnum í viku. Ætla annars ekkert að reyna að tæpa á því helsta sl. 8-9 vikur, amk ekki í þetta sinnið.
Ein bókin sem heldur mér hugfanginni um þessar mundir er af safninu er Náðarstund eftir Hannah Kent. Mögnuð bók sem ratað loksins til mín. Ég er líka að lesa úrval úr Ganglera, fyrstu 50 árin. Hún var gefin út af Lífspekifélaginu í fyrra en ég tók hana með af safninu um daginn og er að glugga í hana inn á milli. Reyndar meira en að glugga því ég þarf að gefa mér tíma til að melta vel sumt af því sem í þeirri bók er.
17.1.18
Miðvikudagskvöld, mánuðurinn rúmlega hálfnaður
Þessa vikuna höfum við vinnufélagarnir á minni deild látið nægja að skila af okkur átta tímum, mætum korter fyrir átta og hættum korteri fyrir fjögur. En bæði á mánudaginn og gær voru hendur látnar standa vel fram úr ermum og í morgun fór síðasta auka-SPES frá okkur. En þá liggur fyrir að vinda sér í vörutalningu á varahlutalager. Um tvö í dag fékk ég eina með mér í að byrja. Ég var búin að prenta út skrána sem er upp á 14 blaðsíður. Nú á hins vegar bæði að telja og taka út þá hluti sem eru síðan fyrir 2010 og hafa ekkert hreyfst í mörg ár. Margir af þeim tilheyrðu eldri vélinni sem er ekki til lengur svo þetta er löngu tímabært. Við náðum að sitja við þetta verkefni í tæpa klukkustund og vorum strax komnar með rúmlega botnfylli í kassa af úreltum varahlutum en aðeins búnar að fara yfir brotabrot af öllum heildar lagernum. Ætli við fáum svo ekki sérfræðinga til að fara yfir þessa hluti og gefa grænt ljós á förgun. Ég er ekki slíkur sérfræðingur en það segir sig sjálft að sumir gamlir hlutir hljóta að úreldast.
Eftir að ég kom heim úr vinnu á mánudaginn og var búin að taka stöðuna á foreldrum mínum dreif ég mig í sund og verslaði á leiðinni heim. Við Oddur hjálpuðumst svo að við að útbúa kvöldmatinn og við ákváðum að bíða eftir Davíð Steini sem var á leiðinni heim úr vinnu. Við borðuðum því ekki fyrr en rúmlega hálfníu. Fór ekkert út aftur eftir að ég kom heim úr vinnu í gær þar sem ég ætlaði mér að fylgjast með strákunum okkar á EM. Leiðinlegt að þeir náðu ekki að vinna þennan leik og enn leiðinlegra að Króatar skyldu liggja fyrir Svíum. Gat þó ekki annað en dáðst að sænska liðinu sem tapaði fyrsta leiknum í riðlinum en komast upp úr honum með 4 stig.
Gef mér alltaf einhvern tíma í lestur og er ég að lesa fjórar bækur í einu. En ég er líka komin á skrið í hundalopapeysuprjóni. Hugsanlega næ ég að ljúka því verkefni á næstu tíu dögum en systurdóttir mín á að keppa á skautum hér í bænum síðasta föstudaginn í þessum mánuði og þá koma amk hún og mamma hennar suður og jafnvel pabbi hennar og hárlausi hundurinn. Cara, labradorinn, verður líklega send í pössun.
14.1.18
Vetrarveður
Ég lét undan leti minni og fór ekki í sund í morgun þrátt fyrir að vera í bænum. Var vöknuð um sjö en ég fór ekki á fætur fyrr en klukkan var farin að ganga ellefu. Bíllinn er í stæði aftan við heilsugæsluna síðan um hálftvö í gær og ég verð að færa hann þaðan fyrir klukkan átta í fyrramálið.
Strax eftir vinnu á föstudaginn var tók ég 13 alla leið upp í Kringlu, eingöngu til að fara á bókasafnið. Var með fimm bækur sem voru komnar á allra síðasta skiladag. Vel gekk að skila inn bókunum en ég komst ekki út aftur fyrr en ég var komin með sjö bækur í staðinn þrátt fyrir að vera enn að lesa jólabækurnar. Ein af þessum sjö bókum er nýjasta hjólabókin hans Smára um Rangárvallasýslu. Hefði svo vel getað fengið mér smá göngu og labbað heim en ég ákvað að bíða frekar eftir strætó sem stoppar við Sunnubúðina. Heima hafði ég rúmlega eina og hálfa klukkustund áður ég fór að heiman aftur. Þann tíma notaði ég m.a. til að taka stöðuna á foreldrum mínum og ég náði einnig að horfa á næstum allan fyrsta EM-landsleik strákanna okkar. Slökkti á sjónvarpinu þegar um hálf mínúta var eftir af leiknum og öruggt að við vorum að vinna.
Um tíu mínútum fyrir sjö sótti Brynja vinkona mig. Leið okkar lá í Þjóðleikhúsið að sjá Risaeðlurnar og leiddist okkur alls ekki á þeirri sýningu. Vorum uppi á svölum í 20. röð, smá niðurhræddar en það gleymdist þegar sýningin hófst um hálfátta. Þremur tímum seinna færðum við okkur enn nær miðbænum og enduðum á Kebabhúsinu þar sem við fengum okkur að borða og ég eitt hvítvínsglas með matnum. Klukkan var byrjuð að ganga eitt þegar ég kom heim aftur.
Var mætt í sundið korter yfir átta í gærmorgun, náði heim tímanlega til að skutla N1-ungamanninum á aukavakt en hann átti að vera mættur aðeins fyrir klukkan tíu. Klukkan ellefu var ég komin í fyrsta esperantohitting á nýja árinu og þar sem ég var ekki búin að koma síðan á aðfanga dag stoppaði ég í rúma tvo tíma. Ég var ekki búin að vera heima nema í um þrjú korter þegar ég tók strætó niður í bæ til að skreppa á hugleiðslu og fyrirlestur í Lífsspekifélaginu.
Annars er ég búin að lesa fyrstu bókasafnsbókina, Hótel smásögur eftir Steindór Ívarsson. Mæli með þessari bók en hún gerist í Hótel Fönix og er köflunum skipt upp í herbergisnúmer og tengjast kaflarnir, þ.e. gestunum úr sumum herbergjanna bregður fyrir í hinum köflunum.
Horfði á landsleikinn í Indónesíu í hádeginu og núna eru rúmlega tveir klukkutímar í leik númer 2 hjá EM hópnum í Split. Áfram Ísland!
10.1.18
18 ára starfsafmæli í dag
Ég kom beint heim úr vinnu einhvern tíman á sjötta tímanum í gær. N1 strákurinn var í vaktafríi og hann var búinn að taka niður jólin og fara með í geymsluna. Ég á reyndar eftir að taka jóladúkinn af borðinu í stofunni, þvo hann og ganga frá og einnig að taka niður jólapóstinn.
Átti til bleikju og fór fljótlega að huga að matargerð. Eftir að hafa sett upp kartöflur og skorið niður grænmeti með bleikjunni og sett í 150° heitan ofn hrærði ég í eina eggjalausa brúnköku og skipti deiginu í tvö velsmurð form. Þegar kvöldmaturinn var tilbúinn hækkaði ég ofninn upp í 175° og setti inn annað formið. Eftir 2x25 mínútur slökkti ég á ofninum og þá stóð til að skreppa í sund og koma koma svo við í Hagkaup í Skeifunni á leiðinni heim. Það varð ekkert úr þeim áformum því ég hafði kveikt á tölvunni og ætlaði að vera snögg að setja upp og senda út messutilkynningar. Það tók hins vegar nógu langan tíma til að ég ákvað að sleppa sundinu og fór út í Sunnubúð. Eftir að deigið hafði kælst niður ákvað ég að vera ekkert að setja botnana saman. Setti á tvo diska og bjó til krem úr flórsykri, kakói, smjörlíki og smá slettu af heitu vatni og setti yfir þá. Annan diskinn skildi ég svo eftir heima í morgun en hinn tók ég með mér ásamt ostum og smá fleiru þegar ég fór á bílnum í vinnuna upp úr klukkan hálfsjö í morgun.
8.1.18
Gleðilegt nýtt ár 2018
Það er 8. janúar og klukkan byrjuð að ganga ellefu að kveldi dags. Dagarnir eru þegar farnir að þjóta hratt framhjá og munar líklega frekar mikið um aukið vinnuálag. Það er smá törn í gangi og hún er reyndar búin að vera í gangi í um það bil mánuð. Sé ekki alveg fyrir endan á henni í bili því þegar verkefninu, sem er í vinnslu, verður lokið verður að fara í lagertlaningar. Áramótin í þeim talningum hnikast til um einhverjar vikur því það þarf að nota allan auka tíma í SPES-verkefnið.
Eyddi áramótunum og síðustu helgi með foreldrum mínum og um nýliðna helgi byrjaði ég á að prjóna aðra hundapeysu á litla hárlausa hund systur minnar og mágs. Hann passaði fínt í peysuna sem ég prjónaði í október sl. og vill helst vera í henni en það þurfti að taka endurskinsþráðinn úr henni því hann meiðir í frosti.
Föðursystir mín varð níræð á þrettándanum, á laugardaginn 6. janúar. Ég á enn eftir að heyra í henni en hún var ekki heima á afmælisdaginn sinn. Með þessum tímamótum hefur hún farið framúr eldri systikynum sínum heitnum í aldri en til að fara fram úr föðurömmu minni vantar hana rúmlega sjö og hálft ár enn. Ég yrði ekkert svo hissa þótt hún næði því, því þótt hún segist sjálf finna fyrir aldrinum líklamlega lítur hún alls ekki út fyrir að vera mikið eldri en áttræð og varla það.
Vonandi kemst bráðum regla á færslurnar mínar, það er nú lágmark að láta ekki líða of marga daga á milli en stundum fær maður ekkert ráðið við það því annað hvort er tíminn of knappur eða andinn ekki yfir manni.
26.12.17
Jólaræðan
Jóladagur 25. Desember 2017 í óháða söfnuðinum.
Gleðilega hátíð kæra samferðafólk!
Það er margt búið að ganga á í kollinum á mér frá því Pétur bað mig um að taka þetta verkefni að mér á jóladag fyrir ári. Ég ákvað þó strax að taka þessari áskorun alveg óviss um hvernig ég ætti og ætlaði að tækla þetta verkefni. Ég veit vel að ég get alveg skrifað, hef frá því ég man eftir mér dregist að línustrikuðum blöðum og haldið dagbók með hléum síðan ég var krakki. Frá því 2003 færðust þau skrif yfir í bloggheima og þar á ég enn mína spretti.
Ég er annars ein af þeim sem er alin upp í sveit. Tel mig Rangæing í húð og hár þótt mömmu greinar skiptist í vestur, og norður. Hún fæddist á Akureyri 1944 þegar Lýðveldið Ísland var tæplega mánaða gamalt. Til tólf ára aldurs átti ég lögheimili á Heiði á Rangárvöllum, um 16 km frá Hellu. Föðurafi minn var fæddur þar og pabbi og öll hans 4 systkyni, pabbi yngstur árið 1934.
Ég fæddist í Reykjavík í mars 1968 og var á heimleið í fyrsta skipti í sveitina mína daginn sem breytt var yfir í hægri umferð, þann 26. maí sama ár. Mér er sagt að bíllinn hans pabba hafi sést á myndbroti í fréttum af þessari umferðarbreytingu. Fyrstu fjögur árin mín, eða á meðan, afi lifði, var Heiði þríbýli. Elsti bróðir pabba sá þó um að reka búið, bæði kúa og sauðfjárbú auk nokkurra hesta. Hann hafði byggt sitt eigið hús yfir sig og sína örstutt frá gamla bænum og nefnt Heiðarbrekku. Foreldrar mínir byggðu sitt hús, 1961, við gamla bæinn þannig að það var innangengt á milli. Pabbi var í mörg ár titlaður bóndi í símaskránni en hann var farinn að vinna utan heimilis fyrir mína tíð. Eftir að afi dó fluttist amma mín að Helluvaði til yngstu dóttur sinnar og bjó þar síðustu 15 árin sín.
Ég fæddist í Reykjavík í mars 1968 og var á heimleið í fyrsta skipti í sveitina mína daginn sem breytt var yfir í hægri umferð, þann 26. maí sama ár. Mér er sagt að bíllinn hans pabba hafi sést á myndbroti í fréttum af þessari umferðarbreytingu. Fyrstu fjögur árin mín, eða á meðan, afi lifði, var Heiði þríbýli. Elsti bróðir pabba sá þó um að reka búið, bæði kúa og sauðfjárbú auk nokkurra hesta. Hann hafði byggt sitt eigið hús yfir sig og sína örstutt frá gamla bænum og nefnt Heiðarbrekku. Foreldrar mínir byggðu sitt hús, 1961, við gamla bæinn þannig að það var innangengt á milli. Pabbi var í mörg ár titlaður bóndi í símaskránni en hann var farinn að vinna utan heimilis fyrir mína tíð. Eftir að afi dó fluttist amma mín að Helluvaði til yngstu dóttur sinnar og bjó þar síðustu 15 árin sín.
Ég er ekki fyrsta barn foreldra minna þótt í sé sú eldri af tveimur systrum. Frumburður þeirra, "Litla-Anna", fæddist daginn eftir fimm ára brúðkaupsafmæli þeirra í september 1966 en hún dó eftir stutt veikindi aðeins fimm mánaða gömul. Önnu nafnið mitt er því bæði eftir henni og í höfuðið á móðurömmu minni. Yngri systir mín fæddist rúmum 19 mánuðum á eftir mér. Ég kallaði hana víst Óóið lengi vel er mér sagt en ég man ekkert eftir því. Þegar ég fer að muna eftir mér sváfum við í koju, hún í þeirri efri og ég í þeirri neðri af því að ég átti það til að ganga í svefni. Okkur voru snemma kenndar bænir, vers og heilræðavísur og það var föst venja að fara þær og signa sig fyrir svefninn. Þegar við fengum sér herbergi í kjallaranum varð mamma oftast vör við það þegar ég labbaði af stað því þótt ég væri steinsofnadi þá fór ég í klossana mína. Mamma náði þá oftast að snúa mér við áður en ég var komin alla leið upp og fylgja mér í rúmið aftur. Ég man þó eftir einu skipti þar sem ég vaknaði upp á gólfinu fyrir framan tröppuna inn í hjónaherbergi. Mig hafði verið að dreyma að ég væri á sundæfingu.
Systir mín átti stundum erfitt með að sofna. Ef ég var sofnuð gat hún teygt hendina niður úr efri kojunni og kveikt ljósið hjá mér. Síðan hallaði hún sér yfir rúmbríkina, þannig að ég sá andlitið hennar á hvolfi, og sagði við mig: "Anna Sigga ég get ekki sofnað. Viltu segja mér sögu?" Og sýndi mér jafnvel með höndunum hversu löng sagan átti að vera. Ég átti frekar auðvelt með þetta, varð snemma læs og las mikið m.a. Þjóðsögur Jóns Árnasonar. Ég var dugleg við að búa til alls konar ævintýri. Ég hafði afar gaman af því að spila eða leggja kapla og á tímabili gekk ég með spilastokk í rassvasanum og vísnabókina undir hendinni. Ég fékk líka stundum skrýtnar hugmyndir, t.d. eftir að Gideonfélagið hafði heimsótt bekkinn minn og gefið okkur nýja testamentið. Maðurinn sem afhenti okkur bækurnar sagði að hann myndi koma aftur þegar við yrðum í elsta bekk grunnskólans til að athuga hversu snjáðar bækurnar væru, þ.e. hvort við hefðum verið iðin við að glugga í testamentið. Ég gerði gott betur en það því ég fékk þá flugu í höfuðið að læra ættartölu Jésú Krists utan að og kunni hana lengi vel, alla 36 liðina, alveg frá Abraham að Jésú. Föðurbróðir minn vissi af þessu og átti það til að biðja mig um að þylja ættartöluna upp sérstaklega ef það voru gestir á staðnum.
Systir mín átti stundum erfitt með að sofna. Ef ég var sofnuð gat hún teygt hendina niður úr efri kojunni og kveikt ljósið hjá mér. Síðan hallaði hún sér yfir rúmbríkina, þannig að ég sá andlitið hennar á hvolfi, og sagði við mig: "Anna Sigga ég get ekki sofnað. Viltu segja mér sögu?" Og sýndi mér jafnvel með höndunum hversu löng sagan átti að vera. Ég átti frekar auðvelt með þetta, varð snemma læs og las mikið m.a. Þjóðsögur Jóns Árnasonar. Ég var dugleg við að búa til alls konar ævintýri. Ég hafði afar gaman af því að spila eða leggja kapla og á tímabili gekk ég með spilastokk í rassvasanum og vísnabókina undir hendinni. Ég fékk líka stundum skrýtnar hugmyndir, t.d. eftir að Gideonfélagið hafði heimsótt bekkinn minn og gefið okkur nýja testamentið. Maðurinn sem afhenti okkur bækurnar sagði að hann myndi koma aftur þegar við yrðum í elsta bekk grunnskólans til að athuga hversu snjáðar bækurnar væru, þ.e. hvort við hefðum verið iðin við að glugga í testamentið. Ég gerði gott betur en það því ég fékk þá flugu í höfuðið að læra ættartölu Jésú Krists utan að og kunni hana lengi vel, alla 36 liðina, alveg frá Abraham að Jésú. Föðurbróðir minn vissi af þessu og átti það til að biðja mig um að þylja ættartöluna upp sérstaklega ef það voru gestir á staðnum.
En ég átti víst að segja frá jólaminningum mínum. ...og verð ég þá að viðurkenna og kannast við að undirbúningur undir jólin voru bara vesen í mínum huga, svo langt sem ég man? Mamma var og er mikið jólabarn og hún komst í mikið stuð þegar líða fór að aðventu. Hún saumaði eitt sinn jólaklukkustreng, sem var númeraður frá 1 - 24 og rauður hringur við hvert númer. Áður en 1. desember rann upp var hún búin að pakka alls konar nammi-molum inn í álpappír, binda utan um og festa tvo pakka í hvern hring. Svona töldum við systur niður dagana til jóla. Mamma saumaði líka á okkur jólafötin í mörg ár. Allt var þrifið hátt og lágt og mamma var að langt fram á nótt vikurnar fyrir jól. Pabbi hjálpaði henni eftir að hann kom heim úr vinnu á kvöldin. Settar voru upp jólagardýnur í eldhúsinu og jóladúkar á eldhús- og stofuborð. Mamma bjó til aðventukrans og notaði svo hluta af greninu til að gera smáskreytingar og festa fyrir ofan innrammaðar myndir á veggjum í stofunni og víðar. Ákveðnar jólaskreytingar áttu sína föstu staði. Ég man sérstaklega eftir pínu litlu, skreyttu gervijólatré sem mamma hafði valið sem möndlugjöf sem unglingur og fékk svo sjálf möndluna. Þetta tré var alltaf sett upp á stofuklukkuna.
Bakaðar voru að mér fannst millijón smákökusortir og nokkrar lagtertur, jólakökur, og fleira og fleira og var mamma potturinn og pannan í þessu öllu. Nokkrar smákökusortir kölluðum við lengi vel fjölskyldukökur því þá hjálpuðumst við öll að, þetta voru t.d. loftkökur og vanilluhringir. Þetta fannst mér skemmtilegt. Foreldrar mínir hjálpuðust einnig að við að baka og setja saman piparkökuhús sem var látið standa alveg fram á þrettándann. Þá var það brotið niður og oft voru frændur okkar, bróðursynir pabba boðnir yfir til að hjálpa okkur að brjóta niður húsið og borða. Ef það voru fleiri ungmenni stödd á staðnum þá var þeim boðið líka. Leyfarnar af húsinu entust í einhverja daga.
Bakaðar voru að mér fannst millijón smákökusortir og nokkrar lagtertur, jólakökur, og fleira og fleira og var mamma potturinn og pannan í þessu öllu. Nokkrar smákökusortir kölluðum við lengi vel fjölskyldukökur því þá hjálpuðumst við öll að, þetta voru t.d. loftkökur og vanilluhringir. Þetta fannst mér skemmtilegt. Foreldrar mínir hjálpuðust einnig að við að baka og setja saman piparkökuhús sem var látið standa alveg fram á þrettándann. Þá var það brotið niður og oft voru frændur okkar, bróðursynir pabba boðnir yfir til að hjálpa okkur að brjóta niður húsið og borða. Ef það voru fleiri ungmenni stödd á staðnum þá var þeim boðið líka. Leyfarnar af húsinu entust í einhverja daga.
Það var annars aldrei farið í kirkju á aðfangadag, jóla- eða gamlársdag, hvorki á meðan við bjuggum í sveitinni né eftir að við fluttum alfarið í þorpið 1981. En ég man að við fórum einu sinni á aðventustund, stuttu fyrir jól, í Þykkvabæjarkirkju og þótti mér sú stund afar hátíðleg.
Á Þorláksmessukvöld var gervitréð sett saman og pabbi athugaði hvort seríurnar væru í lagi áður en þær voru settar á og tréð skreytt. Mér fannst mest spennandi að sjá hversu mikið tréð hafði "minnkað" frá því árinu áður. Það var alltaf einhver munur en ég óx frekar hægt, 1-2 cm ár ári og eitt árið, tók systir mín mikinn vaxtakipp lengdist um heila tíu sentimetra og óx mér vel yfir höfuð. Ég, sem hafði alltaf verið aðeins stærri, var alveg nokkur ár að ná henni aftur.
Í hádeginu, á aðfangadag, var mamma með heitan grjónagraut með möndlu í og sá sem fékk möndluna fékk fyrsta pakkann. Klukkan fimm voru pakkarnir settir undir tréð en ljósin voru þó ekki kveikt fyrr en klukkan sex. Þá var líka sest að borðum og borðaður lambahryggur eða læri með öllu tilheyrandi. Ég var ekki mikið fyrir brúnuðu kartöflurnar og jólaölsblandan, hvítöl, malt, kók og appelsín fór alls ekki vel í magann minn. Þegar borðhaldinu lauk fengum við systur að opna fyrstu pakkana, sem voru yfirleitt merktir frá jólasveininum. Lengi vel voru líka geymdir nokkrir pakkar sem sem við systur opnuðum einn á dag alveg fram á gamlársdag. Ég sagði frá því hér að ofan að ég var og er mikill lestrarhestur. Ein bestu jólin voru líklega þegar ég var um ellefu ára. Ég fékk nýja skólatösku, einhverjar flíkur, kerti og spil frá heimilisfólkinu á Kaldbak en það var hefð í mörg ár og svo heilar ellefu bækur. Ég var því miður búin að lesa þær allar áður en nýtt ár rann upp.
Sem krakki var ég frekar alvarleg og tók lífinu kannski helst til of hátíðlega. En svo langt sem ég man átti ég það þó til að bresta í söng alveg að því er virtist af tilefnislausu og var ég ekki endilega að syngja neitt ákveðið þótt ég gerði það líka. Ég get alveg skotið því hér að, að ég er ekki vaxin upp úr þessu. Átta ára var ég send í Tónlistarskóla Rangæinga. Lærði fyrst á blokkflautu og svo orgel og píanó. Það var hefð að halda tvenna jólatónleika í sýslunni og eina í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Ég var valin í hópinn nokkrum sinnum til að koma fram á þessum tónleikum og ég gleymi því aldrei þegar ég spilaði á stóra pípuorgelið í fyrsta skipti. Sem betur fer var alltaf mætt góðum tíma fyrir tónleika svo hægt væri að taka eitt rennsli áður. Þrátt fyrir að ég kviði alltaf að koma fram þá fannst mér líka þetta vera hluti af undirbúningnum fyrir komu jólanna.
Sem krakki var ég frekar alvarleg og tók lífinu kannski helst til of hátíðlega. En svo langt sem ég man átti ég það þó til að bresta í söng alveg að því er virtist af tilefnislausu og var ég ekki endilega að syngja neitt ákveðið þótt ég gerði það líka. Ég get alveg skotið því hér að, að ég er ekki vaxin upp úr þessu. Átta ára var ég send í Tónlistarskóla Rangæinga. Lærði fyrst á blokkflautu og svo orgel og píanó. Það var hefð að halda tvenna jólatónleika í sýslunni og eina í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Ég var valin í hópinn nokkrum sinnum til að koma fram á þessum tónleikum og ég gleymi því aldrei þegar ég spilaði á stóra pípuorgelið í fyrsta skipti. Sem betur fer var alltaf mætt góðum tíma fyrir tónleika svo hægt væri að taka eitt rennsli áður. Þrátt fyrir að ég kviði alltaf að koma fram þá fannst mér líka þetta vera hluti af undirbúningnum fyrir komu jólanna.
Mig langar til að enda þetta á því að fara með smá bæn í ferskeytluformi sem ég samdi í endaðan mars fyrir bráðum þremur árum:
Legg ég saman lófa mína
leitar hugur víða.
Bið Hann heili alla sína
höftin leysi´ og kvíða.
(ASH 28.03.2015)leitar hugur víða.
Bið Hann heili alla sína
höftin leysi´ og kvíða.
Takk fyrir mig!
11.12.17
Morgunstund
Áfram æðir tíminn og lætur alls ekki bíða eftir sér. Það er varla að maður geti hangið í kjölsoginu. Oftast er það nú ekki nauðsynlegt að vera að eltast neitt sérstaklega við tímann. Mér sýnist á öllu að ef ég punkta bara upp það sem verður að klárast fyrir jól og raða svo verkefnunum skynsamlega niður þá á þetta allt að hafast. Ég er amk búin að skrifa jólabréfin og annað þeirra er nú þegar á leiðinni til Englands og hitt leggur af stað til Danmerkur í dag.
Ég skrapp annars austur um helgina, hafði ekki farið tvær helgar í röð og það var alveg kominn tími til að kíkja. Ég fór klifjuð af dóti eins og vanalega en notaði svo ekkert af því þegar til kom. Mestallur tíminn fór í að prjóna með mömmu, þýða eitt jólabréf fyrir pabba og svo skrapp ég aðeins og kíkti á föðursystur mína upp úr hádeginu í gær.
Pabbi var mjög duglegur að setja upp hluta af jólunum. Fékk að hjálpa honum aðeins við að setja upp jólagardýnur á efri gardýnustangirnar í eldhúsinu og leist nú ekkert að blikuna að fylgjast með pabba príla af tröppunni og alla leið upp á innréttinguna. Hann lofaði nú að fara varlega, vildi gera þetta sjálfur og það var ekki að sjá að "prílarinn" væri orðinn 83 ára.
Hafði annars ætlað mér að vinna í jólahugvekjunni. Kollurinn er fullur af orðum og hugmyndum en ég hafði einhvern veginn enga eirð til að setjast niður yfir punktana sem þegar eru komnir í skjalið. Mér finnst samt að það sé ekki langt í að ég detti í skrifstuðið og þá vona ég svo sannarlega að ég sitji fyrir framan tölvuskjá og hafi góðan tíma.
3.12.17
Fyrsti sunnudagur í aðventu
Þetta er önnur helgin í röð sem ég fer ekki út úr bænum og austur. Í gærmorgun var ég mætt í sund rétt upp úr átta. Hafði smá stund aflögu heima eftir sundið áður en ég skrapp í esperanto hitting til norsku vinkonu minnar. Var komin heim aftur upp úr klukkan tólf. Tæpum tveimur tímum seinna skutlaði einkabílstjórinn minn mér út að Eiðistorgi og hann notaði ferðina til að skreppa með plast, pappír og fleira í Sorpu. Á Eiðistorgi var verið að sýna ballett, milli klukkan tvö og þrjú, þó nokkuð margir hópar sem eru í ballettskólanum á Seltjarnarnesi en skólinn er víst til húsa þarna á Eiðistorgi. Tvíburar Brynju vinkonu voru í fyrsta hópnum. Þetta var mjög skemmtileg sýning, atriðin ekki of löng en maður fékk að sjá ýmsa ballettakta, allt frá byrjendum og upp í unglinga.
Rétt upp úr þrjú vorum við vinkonurnar sestar inn í Hannesarholt þar sem við sátum næstu tvo tímana. Áður en hún skilaði mér heim tókum við smá rúnt yfir í annan bæjarhluta.
Ég var komin ofan í kalda pottinn 12 mínútur yfir átta í morgun. Sat þar í rúmar þrjár mínútur en synti svo í næstu tuttugu mínútur áður en ég fór aftur í þann kalda. Eftir þá ferð fór ég í sjópottinn og svo enn og aftur í þann kalda. Endaði svo stutta stund í gufunni áður en ég fór upp úr. Hitti óvænt þá sem ég heimsótti í Skagafirðinum er ég var á leiðinni til Helgu systur í ágúst sl. Eftir tíu mínútna spjall dreif hún og hennar maður sig í sundið en ég kom við í Hagkaup í Skeifunni á leiðinni heim.
Ég er annars nýkomin heim úr árlegu laufabrauðshittingi með frændfólki mínu. Vorum alls sjö og skárum út 80 kökur. Var mætt fyrst rétt fyrir tvö og við vorum búin að skera og steikja tveim tímum seinna. Og næst liggur leiðin í kirkjuna mína en þar er aðventukvöld í kvöld og stjórnin ætlar að hittast á undan til að undirbúa smá góðgæti sem verður á boðstólum eftir dagskrána.
29.11.17
Nokkrar línur fyrir svefninn
Ég kveikti á tölvunni í kvöld til þess að senda Veitum álestrartölur af rafmagns- og hitamælum íbúðarinnar. Báðir þessir mælar eru niðri í kjallara, annar í þvottahúsinu en hinn á ganginum fyrir framan.
Eftir vinnu í gær tók ég strætó á Hlemm og nr 14 þaðan í Laugardalinn. Kaldi potturinn var lokaður og tómur en ég synti í tæpan hálftíma, flatmagaði um stund í sjópottinum og endaði að gufu áður en ég fór upp úr. Var komin heim upp úr klukkan sex og byrjaði á því að hringja í pabba.
Hluta af vinnutímanum í dag notaði ég í að hreinsa til á heimasíðu óháða safnaðarins. Fór yfir allar tilkynningasíðurnar, afritaði textana yfir í word-skjal og ef í ljós komu leiðinda linkir eftir innbrot þá eyddi ég þeim textum einfaldlega út. Ég á aðeins eftir að athuga hvort svona linkir leynist í textunum sem eru bundnir við hnappana í svörtu stikunni.
Fór beint í sund eftir vinnu. Nú var kaldi potturinn opinn svo ég fór beint ofan í hann þegar ég kom út. Þar fyrir var maður sem ég veit að mælir hitastig pottsins reglulega svo ég spurði hvort hann hefði mælt í dag og hvað hitastigið væri. Jú, hann hafði mælt pottinn innan marka, 7,8°C. Við fórum aðeins að ræða um kalda potta og sjóböð og ég gleymdi tímanum, sat í pottinum í rúmar sjö mínútur. Synti svo í hálftíma og fór aðeins í sjópottinn áður en ég fór uppúr. Var komin heim á svipuðum tíma og í gær.
28.11.17
Lítið eftir af nóvember
Þar sem ég fór ekki austur um síðustu helgi var ég mætt í Laugardalslaugina rétt eftir opnun, um átta á sunnudagsmorguninn. Var komin nógu snemma heim aftur til að skutla N1-unga manninum á vakt og hleypti ég honum út við stöðina við Stórahjalla átta mínútum fyrir tíu.
Hinn ungi maðurinn fór á fætur upp úr tólf til að koma með mér og undirbúa maulið eftir messuna í óháðu kirkjunni um eitt. Allt var nokkurn veginn klárt rétt fyrir tvö og þá gaf ég honum leyfi til að skreppa frá. Sjálf settist ég inn í kirkju og naut messunnar. Jazztríó sá um tónlistina og spilaði jólalög í jazzútsetningum á milli ritningalestra og predikunnar. Seinni messuna í mánuðinum er alltaf altarisganga og eftir að ég hafði þegið brauðið og og blóðið laumaði ég mér niður í eldhús til að sækja vatn úr ísskápnum og leggja lokahönd á maulið. Korteri eftir að messu lauk kom Oddur Smári aftur. Við tókum því þó rólega þar til flestir voru farnir en þá tók það okkur klukkutíma að ganga frá og vaska upp. Ungi maðurinn sá um að koma öllu niður í eldhús og laga og þurrka af borðunum á meðan ég sá um uppvaskið og fráganginn í eldhúsinu.
Þegar ég kom heim úr vinnu í gær var ég eitthvað að spá í að drífa mig annað hvort á Valsvöllinn eða í Lífsspekifélagið um kvöldið. Hafði aðeins tekið þá ákvörðun á sleppa sjósundinu þar sem ekki var mælt með því vegna mengunnar. Reyndin var svo sú að ég var heima, horfði á megnið af körfuboltalandsleiknum og bjó til ein tíu jólakort, þau fyrstu og kannski síðustu kortin á þessu ári. Allir á jólakortalistanum fá þó jólakveðju því ég á til "hinsegin" jólakort.
26.11.17
Skautað yfir nýliðna viku
Fór í sjósund, eigilega sjóbusl, í ca. 3 mínútur í 1,6°C sjónum rétt upp úr fimm á mánudaginn var. Hafði til kvöldmat, horfði á fréttir og bakaði svo uppáhalds smákökusortina hans Odds Smára.
Eftir vinnu á þriðjudaginn, tók ég stætó upp á Hlemm og annan þaðan sem stoppaði rétt við Laugardalslaugina. Um kvöldið bakaði ég uppáhlalds smákökusortina hans Davíðs Steins.
Rétt fyrir átta á miðvikudagskvöldið sótti ein nafna mín og frænka mín mig. Við vorum boðnar í heimsókn til einnar sameiginlegrar vinkonu. Þar var vel tekið á móti okkur og flaug tíminn svo hratt að áður en við vissum af var klukkan að nálgast ellefu.
Fór í sund, með strætó, beint eftir vinnu á fimmtudagskvöldið. Kom heim fyrir sex og var farin aftur með strætó niður í bæ rétt fyrir klukkan átta. Hitti vinnufélagana á K1 í Matarkjallaranum. Það kvöld leið jafn hratt og kvöldið áður. Fékk far með einni heim.
Á föstudagskvöldið var ég mætt í Lífspekifélagið stuttu fyrir klukkan átta til að hlusta á skemmtilega kynningu/fyrirlestur um Joga Nídra. Engin af mínum vinkonum sem eru í félaginu komust en það var allt í lagi. Þar sem mér finnst svo gaman að trítla upp stigann, fór ég upp eftir fyrirlesturinn og fékk mér smá kaffi. Labbaði svo hálfa leiðina heim á eftir, eða upp á Hlemm og tók strætó þaðan. Var komin heim um tíu.
Í gærmorgun byrjaði ég á því að fara í sund stuttu eftir opnun. Komst heim að ganga frá sunddótinu áður en ég dreif mig yfir til esperanto vinkonu minnar. Frá henni lá svo leiðin í Krónuna við Granda. Það togaðist á í mér að halda mig bara heima við restina af deginum eða skreppa í Lífsspekifélagið. Það fyrrnefnda varð ofaná þótt ég hafi reyndar ekki nýtt daginn alveg jafn vel og ég hafði hugsað mér. Datt m.a. í að horfa á eina jólamynd á DR1.
14.11.17
Árskortið í sund endurnýjað
Fór á bílnum í vinnuna í morgun. Strax eftir vinnu, um fjögur, lá leiðin í Kringluna. Þar fór ég fyrst á bókasafnið og skilaði öllum sjö bókunum sem voru í mínum fórum og tók aðrar fimm í staðinn. Næst trítlaði ég alveg yfir í hinn endann, þar sem þjónustuborðið er fyrir framan Hagkaup á fyrstu hæðinni, og keypti mér þriggja mánaða kort í strætó sem gildir frá og með morgundeginum. N1 strákurinn minn getur þá nýtt hitt kortið síðasta mánuðinn en það rennur úr gildi 14. desember n.k. Eftir að það kort er runnið út ákveðum við hvort hann kaupi sér sjálfur þriggja mánaða kort eða hvort við nýtum mitt kort saman eins og við erum búin að vera að gera undan farið ár.
Eftir Kringluferðina lá leiðin í Laugardalinn þar sem ég byrjaði á því að endurnýja sundkortið mitt, sem rann út þann 12. nóvember sl. Nýja kortið gildir til 14. nóvember 2018. Það fæ ég endurgreitt sem íþróttastyrk. Að sjálfsögðu skellti ég mér í sund, 2x3 mínútur í kaldan pott, 500 metra bringusund og smástund í sjópottinum áður en ég fór upp úr og heim.
13.11.17
Sjórinn 3 komma 8 gráður um fimm í dag
Ég skrapp austur um helgina. Fór þó í sund og esperanto á laugardagsmorguninn. Kom aðeins við í Löngumýrinni en var komin á Hellu einhvern tímann á fjórða tímanum. Stoppaði til klukkan að verða tvö í gær. N1 strákurinn var að vinna um helgina, báða dagana frá 10-22. Hitti stuttlega á hinn unga manninn er ég kom heim í gær en hann var á leiðinni út úr húsi og kom ekki aftur fyrr en um níu leytið.
Fékk að hafa strætókortið í dag. Var mætt í vinnu um hálfátta og fór þaðan aftur klukkan hálffjögur. Stoppaði aðeins í um klukkustund heima áður en ég tók mig til fyrir ferð í sjóinn og dreif mig í Nauthólsvíkina um fimm. Fór tvisvar sinnum í sjóinn, heita langpottinn á milli og var komin heim aftur á slaginu sex.
Ein af bókunum sem komu með mér heim af safninu síðast er Uppskriftabók skáldverk eftir 10 höfunda sem eiga mismikið og ólík efni í bókinni. Hafði virkilega gaman að lestri þessarar bókar. Núna er ég að lesa Vegur vindsins eftir Ásu Marín og sú saga rígheldur og kallar fram margar tilfinningar á köflum. Hef bæði hlegið og tárast yfir lestrinum. Á eftir um 50 blaðsíður og ef ég þekki mig rétt þá fer ég ekki að sofa fyrr en ég hef lokið við bókina.
10.11.17
Smá föstudags
Ég ákvað að nota strætó í morgun þótt ég væri ekki með kortið. Átti nóg klink fyrir eitt fargjald, 450 kr. og var mætt í vinnu korter fyrir átta. Labbaði svo heim úr vinnunni seinni partinn, fínasta hreyfing það. N1 ungi maðurinn tekur tvær auka vaktir í næstu viku og verður með kortið fjóra af fimm virku dögunum. Ég fæ líklega aðeins að hafa kortið á mánudaginn. Kannski að það sé best að fjárfesta í nýju þriggja mánaða korti eftir vinnu á mánudaginn og leyfa piltinum að nýta hitt kortið á meðan það gildir. Örugglega skynsamlegt af mér að nota strætó í og úr vinnu flesta eða jafnvel alla daga vinnuvikunnar næstu þrjá mánuðina eða svo.
Í gærkvöldi var KÓSÍ-hittingur hjá einni úr hópnum. Ágætis mæting var þótt ekki kæmust allir. Skemmtilegt kvöld enda er sérstaklega góður andi yfir þessum fyrrum kirkjukórshóp.
Enn er ég ekkert farin að huga að jólakortagerð en það eru 44 dagar til jóla svo ég þarf að fara að huga alvarlega að þessu. Það gæti endað með því að einungis fáir útvaldir úr ekkert svo löngum lista fái heimasmíðað kort. En hver veit kannski kemur andinn og löngunin yfir mig fljótlega og þá svo sterk að ég föndra 25 kort á 2-3 kvöldstundum?
7.11.17
Engar holur
Fór í árlegt tanneftirlit um þrjú í dag. Það voru teknar tvær myndir og tannsteinn hreinsaður. Var í hæsta lagi í tuttugu mínútur í stólnum og bókaði sama tíma að ári um leið og ég gerði upp. Ég er svo sannarlega heppin með tennur og tannheilbrigði og ég er ekki frá því að engin gosneysla, nema sódavatn stöku sinnum, tengist þessu eitthvað.
Hef nýlokið við að lesa vísindaskáldsöguna Kórey eftir Ólaf Halldórsson. Sagan spannar tímabilið frá 2016-3095 er er mjög spennandi á löngum köflum. Það komu fyrir kaflar sem ég botnaði lítið sem ekkert í en ég skautaði í gegnum þá líkt og maður skautar stundum hratt yfir ættarupptalningarhlutana í Íslendingasögunum. :-)
Keypti mér sjósundssokka áður en ég skrapp í sjóinn í Nauthólsvíkinni upp úr klukkan fimm í gær. Sjórinn var sagður 4,7°, kaldari en kaldi potturinn en mér var hlýtt á tánum og fann ekki fyrir kulda. Buslaði líklega þó ekki nema um 3-4 mínútur í sjónum. Eftir að ég var búin að vera rúmar fimm mínútur í heita pottinum og farin að huga að því að fara aftur heim, kom ein bekkjarsystir mín úr grunnskóla og ég skellti mér í 3 mínútur í víkina með henni. Þar sem það var flóð var svipa hitastig á sjónum í víkinni. Ég kom heim hress og endurnærð á sjöunda tímanum.
5.11.17
Helginni eytt í bænum
Á föstudaginn vantaði mig aðeins rétt rúmlega 1000 skref til að jafna skrefametið skv. S-Healt í símanum. Metið er yfir 18000 skref. Ég labbaði báðar leiðir milli heimilis og vinnu og um kvöldið dobblaði ein vinkona mín mig með sér í Öskjuhlíðina í tvo tíma, vorum ekki að labba mjög mikið, bara til og frá staðnum þar sem hittist hópur af fólki í eldathöfn.
Í gærmorgun var ekkert sem togaði mig strax á fætur þannig að ég var ekki komin í sundið fyrr en um hálfellefu. Kom heim aftur upp úr tólf og bjó mér til hafragraut. Um tvö heyrði ég í strákunum mínum en þeir voru ekkert að koma fram úr herbergjunum sínum. Ég var mætt í Lífspekifélagið rétt fyrir þrjú þar sem okkur var sagt frá og sýndar myndir úr japönsku Zen-búdda klaustri. Mjög flottar myndir og áhugaverð frásögn. Klukkan var nýorðin fimm þegar þetta var búið og þá lá leið mín í Smáralindina í búðina "Skórnir þínir" þar sem ég verslaði mér góða vetrar-gönguskó sem eru vatnsheldir, með góða, grófa sóla og eiga að endast mér næstu árin.
Í morgun var ég komin í Laugardalinn upp úr klukkan átta, ekkert löngu eftir opnun. Fór fyrst í kalda pottinn og svo í 42° heita pottinn að spjalla við eina pottormsvinkonu mína áður en ég fór aftur í þann kalda og synti svo í hálftíma. Endaði svo í gufunni áður en ég fór upp úr og heim.
1.11.17
Labbað milli heimilis og vinnu
Skref dagsins eru komin yfir 13000 samkvæmt talningu S-health í símanum mínum. En ég ætlaði svo sem ekkert að vera að monta mig of mikið af þessu. Það er kominn 1. nóvember og ég er ekki enn farin að huga að jólakortagerð. Ég er reyndar búin að vera að hugsa um að byrja í rúman mánuð en það er ekki nóg. Ég þykist nefnilega nokkuð viss um að þótt fyrstu tíu mánuðir ársins hafi liðið nokkuð hratt þá munu næstu átta vikur þjóta áfram á ljóshraða, eða eitthvað nálægt því.
Fyrir um hálfum mánuði síðan endurnýjaði ég bókasafnsskírteinið mitt um leið og ég skilaði sjö bókum af átta, framlengdi einni og nældi mér í 6 í viðbót til að taka með mér heim. Er ekki nógu dugleg að lesa þessa sem ég þarf að skila eftir rúmar tvær vikur. Búin að lesa tvær af hinum og er önnur þeirra alveg dásamleg; Britt-Marie var hér eftir Fredrik Olson, sama höfund og Maður sem heitir Ove og Amma biður að heilsa. Á eftir að lesa þá síðast nefndu en hingað til hefur hún ekki ratað í bókasafnspokann til mín.
31.10.17
Síminn gleymdist heima í dag
Ég uppgötvaði það er ég var komin í Laugardalinn um hálfsjö í morgun að ég hafði gleymt að hengja á mig símann. Ákvað því að vera símalaus í vinnunni í dag. Dreif mig í sundið og kalda pottinn og var mætt í vinnuna rétt rúmlega klukkutíma síðar. Vinnudegi lauk aðeins í fyrra fallinu og þar sem ég var á bílnum ákvað ég að koma við í Krónunni við Granda og versla inn. Kom heim um fjögur. Oddur Smári hjálpaði mér að ganga frá vörunum en ég notaði fyrst tækifærið og hreinsaði út alla ísingu í frystihólfinu. Það lítur annars út fyrir að ég fái ekkert að nýta strætókortið í þessari viku. N1 strákurinn var settur á smá námskeið í gær og í dag, á vaktir á morgun og hinn og er búinn að lofa að taka að sér aukavakt á föstudaginn.
30.10.17
Rétt rúmir tveir mánuðir eftir af árinu
Ég er að vinna í að koma mér aftur af stað á þessum vettvangi. Margt er búið að gerast í þessari skrifpásu. Nokkur sjöl hafa verið prjónuð, langt og gott sumarfrí tekið og ma ferðast innan lands, byrjuð að stunda sjóinn nokkuð reglulega, lesið og gert fullt af fleiri hlutum.
Ég skrapp til augnlæknis um daginn og hafði þá ekki látið mæla sjónina í rúm þrjú ár. Var síðast mæld með -2 á báðum og hafði verið með þá sjón nokkuð lengi. Nú brá svo við að nærsýnin hefur minnkað talsvert, vel innan við -1. Smá sjónskekkja á öðru auganu en augnlæknirinn sagði að ég þyrfti ekki að leysa út þannig gleraugu. Ég keypti mér tvenn gleraugu í Tiger í haust, -1, sem ég nota aðeins akstur og stundum til að horfa á sjónvarpið. Aðeins er byrjað að votta fyrir fjarsýni en svo lítið að ég þarf ekki að spá í það ennþá. Heppin hún ég. Lofa annars engu um hversu reglulega ég hamra inn einhvern pistil/texta en vonandi kemst einhver regla á þessi skrif.
9.7.17
Tölvubindindið heima gengur glimrandi vel
Það gengur svo vel í tölvubindindinu hérna heima að það bitnar klárlega á bloggarskrifum mínum. En stundum er líka ágætt að hvíla fingurnar, hugann og sleppa því að segja frá öllu. Á móti kemur þá getur alveg verið að hluti af því sem er að gerast gleymist. Hvort er það gott eða slæmt? Held að það fari eftir ýmsu.
Annars var ég að koma heim af Valsvellinum þar sem mínir menn urðu að sætta sig við 1 stig, jafntefli á móti Stjörnunni. Eftir að hafa farið austur nokkrar helgar í röð hélt ég mig í bænum þessa helgina. Það kom nú ekki til af því að það væri heimaleikur í deildinni því ég ætlaði mér austur. Þegar ég kom heim úr vinnu seinni partinn á föstudaginn hringdi ég í heimasímann hjá foreldrum mínum. Það svaraði mér enginn svo ég hringdi í gemsann hans pabba. Þá var hann staddur á bráðamóttökunni í Fossvogi að bíða með mömmu en hún hafði verið kölluð inn eftir að hafa farið sneiðmyndatöku vegna magaverkjanna sem hún hefur glímt við sl. mánuði. Það var beðið og beðið eftir einhverjum sem myndi úrskurða hvað ætti að gera. Um eitt leytið um nóttina kom pabbi og fékk hjá mér húslykla en hann svaf svo í lazy-boy stól á bráðamóttökunni. Einhvern tímann mjög seint hafði verið ákveðið að mál mömmu yrði að bíða yfir helgina en það tók líka tíma að ákveða hvort ætti að senda hana austur aftur eða innrita hana. Ákveðið var að innrita hana á kvennadeildinni við Hringbraut en þar var allt fullt svo hún varð að bíða "á rúmstæði" í bráðamóttökunni í Fossvogi. Eftir að hafa skroppið í sund í gærmorgun, og fengið mér eitthvað að borða fór ég í heimsókn. Þegar mamma fékk að borða fékk ég pabba til að koma heim með mér. Eftir að hafa fengið okkur að borða og slakað á um stund hringdi mamma og sagði að það væri komið pláss á G12. Pabbi fór um leið, "millifærði" hana á milli sjúkrahúsa og sat um stund hjá henni áður en hann fór austur.
Annars tók N1 strákurinn sér nokkra daga frí og fór með vinum sínum á Eistnaflug austur á Neskaupstað. Keyrðu norðurleiðina austur en eru á suðurleiðinni núna á heimleiðinni nýlega farnir í gegnum Hvolsvöll. Strákurinn minn á vaktafrí næstu tvo daga en Skeljungsstrákurinn var að skipta um vakt og leysa hinn bensín manninn af svo synir mínir verða ekki að vinna eða á frívöktum á sama tíma næstu fimm sex vikurnar.
Á aðeins eftir að fella af, ganga frá endum og skola og teygja úr sjöunda sjalinu. Er búin að kaupa dokkur í annað föl/húðbleikt sjal en ég veit ekki hvenær ég fitja upp á því. Það á að vera jólagjöf handa yngri systurdóttur minni. Ég skrapp á bókasafnið í kringum 21. júní sl. og er með nokkrar spennandi bækur, hef samt ekki alveg gefið mér góðan tíma til að lesa mikið.
En hér ætla ég að setja punktinn í þetta sinn.
30.6.17
Með sjöunda sjalið á prjónunum
Síðasti dagur sjötta mánuðar ársins er næstum búinn, 181 dagar að verða liðnir og 184 dagar eftir. Er það ekki magnað? Og árið sem er rétt nýhafið. Ég fékk bréf í vikunni frá ensku pennavinkonu minni og jafnöldru. Hún hafði nokkur orð um margt af því sem ég skrifaði henni í jólabréfinu og með hennar bréfi sendi hún einnig tvær myndir af sér. Á annarri myndinni var hún úti að borða með manninum sínum og á hinni var hún með vinkonu sem var að fara í fallhlífarstökk.
Hitti Brynju vinkonu á miðvikudaginn. Hún sótti mig heim um fimm og við skruppum á Gló í Hæðarsmára þar sem við fengum okkur grænmetislasanja og gleymdum tímanum við spjall næstu rúmlega þrjá tímana.
Síðasta messa fyrir sumarfrí var gúllasmessa sl. sunnudagskvöld kl. sex. Ætlum að prófa að hafa hana aftur á sama tíma að ári og sjá svo til hvort við munum halda okkur við þann tíma en fram að þessu voru þessar gúllasmessur, kl.11:00 fh. fjórða sunnudag í júní mánuði. Nú á heimasíðu og útgáfunefndin eftir að taka saman efni í safnaðarfréttirnar og setja í uppsetningu og prentun þannig að blaðið komi út fyrri partinn í ágúst.
Er annars búin að skreppa austur og vera yfir eina nótt allar helgar eftir hvítasunnuhelgina. Laugardaginn 10. júní fylgdi ég fyrrum nágranna foreldra minna, konu sem varð níræð í mars. Eftirlifandi maki hennar verður 97 ára 12 júlí n.k. Þessa sömu helgi var bongóblíða á Hellu. Ég sat um stund með prjónana mína á pallinum sunnan við hús foreldra minna og allt að því brann á bringunni.
Margt annað hefur drifið á daga mína, t.d. skrapp ég í bókasafnið. Kom líklega með heldur margar bækur með mér til baka þótt þær hafi ekki verið eins margar og ég tók hér áður fyrr. Málið er að nú fer miklu, miklu meiri tími í prjónaskap en lestur. Er einnig búin að fara 4 ferðir í sjóinn en mætti vera duglegri við það. Það fara að nálgast tvær viku síðan ég fór síðast. Mitt mottó er að fara helst þegar er dumbungur, þá er líklegar að mun færri mæti þótt það séu nú alltaf einhverjir að stunda þetta daglega.
28.6.17
Í sjálfskipuðu tölvubindindi sem kemur niður á bloggskrifum í staðinn
Nú er árið rétt að verða hálfnað, þessi mánuður klárast eftir föstudaginn og þetta er aðeins önnur færslan mín í júní. Samt hefur alveg verið nóg að gerast í kringum mig. Ég tók það upp hjá mér að vera ekki að kveikja á tölvunni dags daglega og þá fáu daga sem ég þurfti að kveikja, t.d. til að senda inn tilkynningar um messur þá notaði ég ekki tækifærið og skráði inn eitthvað af atburðum liðinna stunda. En þetta sést þegar bloggsíðan er opnuð, engar hreyfingar frá því um hvítasunnuna.
Er ekki alveg í stuði til að taka saman það helsta akkúrat í dag en sjáum til hvort á geti mannað mig upp í smá samantekt á morgun eða föstudaginn kemur.
4.6.17
Hvítasunnuhelgi
Tvisvar í síðustu viku kom upp bilun í deildinni minni sem setti strik í reikninginn varðandi vinnslu á daglegum verkefnum. Í fyrra tilfellinu náðum við að klára um níu um kvöldið en í seinna tilfellinu fékk ég að skreppa í sund og koma svo aftur tilbúin í að vinna eins lengi og þörf krefði þegar allt komst í gang aftur. Það kvöldið kom ég heim rétt um miðnættið og mætti því ekki í vinnu aftur fyrr en um hádegið daginn eftir.
Á föstudaginn lánaði ég bræðrunum bílinn til að fara saman í heimsókn til pabba síns og fjölskyldu. Strákarnir voru nýfarnir þegar ég kom heim úr vinnu. Systir mín og fjölskylda (mínus Cara, annar hundurinn sem var sett í pössun fyrir norðan) voru á leiðinni suður. Þau komu um átta en fóru strax aftur í smá útréttingar. Bríet varð eftir hjá mér og við frænkur áttum góða stund saman. Hulda gisti hjá kærastanum en systir mín, mágur og minni hundurinn komu aftur um ellefu leytið og bjuggu um sig í stofunni.
Í gærmorgun dreif ég mig á fætur um átta, hellti upp á kaffi, harðsauð egg og útbjó hafragraut. Tímdi ekki að drífa mig í sundið fyrr en gestirnir drifu sig með allt sitt dót til að sækja eldri dótturina og kærastann og líta við í Costco áður en þau drifu sig austur. Ég kom heim úr sundi um ellefu og þá voru báðir synirnir vaknaðir og annar á leiðinni í sturtu. Við komumst af stað austur tæpum klukkutíma síðar. Hinir fjölskyldan var komin á Hellu á undan okkur. Um kaffileytið bættust þrír í hópinn og nokkru síðar aðrir tveir. Áttum afar skemmtilega stund saman fram eftir kvöldi. Við mæðgin komum í bæinn aftur rétt fyrir miðnætti og þá var búið að teppaleggja sameignina en gamla teppið var rifið af fyrr í vikunni. Það kom málari og lauk við að mála sameignina á tveimur dögum svo nú er sameign risíbúðar og efri hæðar orðin fín.
31.5.17
Buslað í sjónum í smá stund eftir vinnu
Gærdagurinn var ansi langur í annan endann. N1 ungi maðurinn var á aukavakt milli hálfátta og tvö í sinni vinnu svo ég eftirlét honum strætókortið. Ákvað að fara á bílnum beint í vinnuna, þ.e. ég sleppti morgunsundferð. Áður en ég fór tók ég alla skó af ganginum og inn í hol. Var tilbúin til að fara á síðastu jóga-nítre slökunarstundina í Fella og Hólakirkju seinna um daginn en um miðjan dag var ljóst að það myndi ekki ganga upp og lét ég Inger vita í tíma. Ég kom heim úr vinnu rétt upp úr klukkan hálftíu í gærkvöldi. Teppalagningarmaðurinn sem við nágranni minn í risinu réðum til að rífa af teppið og leggja nýtt í sameignina hafði komið og rifið upp og fjarlægt gamla teppið. Ég skrapp upp til nágrannans til að skoða teppaprufur. Við vorum ekki lengi að velja og vorum báðar sammála. Áður en ég komst í háttinn sendi ég messu tilkynningu í moggann og setti svipaðar fréttir á facebook vegg og heimasíðu safnaðarins. Tók á mig náðir þegar klukkan var byrjuð að ganga tólf.
30.5.17
35 ára fermingarafmæli í dag
Þann 30. maí 1982, sem var hvítasunnudagur, fermdist ég í Keldnakirkju. Síðan eru liðin 35 ár. :-)
Ég var annars með strætókortið í gær en flaskaði á því að það er komin sumartímatafla og þá gengur 13 aðeins tvisvar á klukkustund, 14 og 44 yfir heila tímann. Ég sem var að nota hálfátta vagninn þegar ég var að nota strætó í vetur. Vissi ekki af þessum breytingum í gær og fór því of fljótt út. Þegar ég áttaði mig á því að vagninn væri ekki að koma alveg strax labbaði ég upp að skýlinu sem er merkt Flókagötu þótt það standi nú reyndar við Lönguhlíð.
Um fjögur fékk ég far heim úr vinnunni og ákvað svo fljótlega að drífa mig í sund. Hringdi samt í pabba áður. Kom heim einhvern tímann á áttunda tímanum. Þá var Davíð Steinn búinn að steikja hakk sem þeir bræður notuðu svo á vefjur ásamt grænmeti. Ég ákvað að borða frekar afganga.
29.5.17
Aðeins um gærdaginn. Jazzmessa og fleira.
Ég skutlaði N1 unga manninum í vinnuna sína upp úr klukkan hálfníu og fór svo beint í sund. Kom heim um ellefu, gekk frá sunddótinu, fékk mér eitthvað að borða og prjónaði smá. Kvöldið áður hafði verið hringt í mig og ég spurð hvort ég gæti tekið að mér að sjá um maulið eftir messuna. Ég var örlítið efins í fyrstu en ég ætlaði hvort sem er að mæta í kirkjuna svo ég ákvað að vera jákvæð gangvart þessu verkefni. Um tólf leytið í gær skrapp ég því í Bónus í Kringlunni án þess að hafa hugmynd um það fyrirfram hvað ég myndi grípa með mér til að hafa með kaffinu.
Úr Bónus lá leiðin beint upp í kirkju og var ég svo heppin að sr. Pétur var að koma þar að um sama leyti, 12:40, svo ég komst strax inn. Er nefnilega ekki með lykla. Maulið er borið fram í efri safnaðarsal kirkjunna sem er mjög gott fyrir þá sem eiga í erfiðleikum með stiga. Í neðri salnum hefði þurft að raða upp öllum borðum þar sem þau eru flest sett saman í eitt langborð. Svona vilja þeir sem eru með fundi í þessum sal, tveir hópar einu sinni í viku (annar hópurinn á mánudögum og hinn á fimmtudögum) hafa það. Uppi tók ég stóla frá tveimur borðum og ýtti borðunum þversum alveg upp að vegg. Á þessi borð setti ég maulið, glös, vatns- og djúskönnur, diska, servíettur, skál með ýmsum tegundum af tei og brúsa með heitu vatni. Á hin borðin setti ég nokkra bolla, eina mjólkurkönnu og einn kaffibrúsa. Hafði enga hugmynd um hversu margir yrðu í messunni. Þar sem organistinn og kórinn hans voru í fríi hafði hann beðið Ágústu Evu að syngja við messuna. Hún forfallaðist á síðustu stundu, en sr. Pétur fékk þrjá unga stráka sem eftir messuna kölluðu sig "Háóða jazztríóið" og jazz-söngkonuna Ingibjörgu Hlíðar. Hún var mjög tímabundin og þurfti að vera mætt annars staðar um þrjú. Engu að síður náði hún að syngja fyrir okkur fjögur lög áður en hún fór. Fjórða lagið söng hún eftir þá stystu predikun sem ég man eftir að hafa verið, og hafa þær yfirleitt aldrei verið lengri en tíu til fimmtán mínútur. Predikunin tók að þessu sinni rétt um þrjár mínútur en presturinn hafði spurt söfnuðinn hvort það væri ekki í lagi að hafa þetta það stutt til að fá fjórða lagið með söngkonunni. Nokkuð margt var í kirkjunni, alls 48 manns og um leið og ég var búin að fara í altarisgönguna dreif ég mig í að gera allt klárt fyrir maulið eftir athöfnina. Þrjú af fyrrum KÓSÍ meðlimum mættu og ég gaf mér smá tíma til að setjast niður með þeim. Ekkert stress var á fólki en ég var búin að ganga frá eftir maulið áður en klukkan varð hálffimm og varð samferða prestinum út.
Heima stoppaði ég svo aðeins í tæpa tvo tíma. Hringdi í pabba, prjónaði og las smá en á sjöunda tímanum lagði ég í hann til Grindavíkur á leik heimamanna og "minna" manna sem fór ekki alveg nógu vel fyrir Valsstrákunum, 1. tapið hjá þeim staðreynd en eru samt í 2. sæti með sama stigafjölda og lið Grindavíkur en betra markahlutfall. Eftir leikinn heimsótti ég vinafólk mitt en ég athugaði það á laugardaginn hvort þau yrðu heima og hvort ég gæti sótt þau heim þótt klukkan væri byrjuð að ganga tíu. Kom svo heim upp úr hálftólf. Ævintýralega skemmtilegur dagur.
28.5.17
Alls 48 í jazzmessu í dag
Í gærmorgun var ég fyrst út úr húsi rétt upp úr klukkan átta. Var byrjuð að synda ca tuttugu mínútum yfir átta og synti í tuttugu mínútur. Fór tvisvar í kalda pottinn og endaði í sjópottinum þar sem ég dagaði næstum því uppi því það heilsaði mér kona með þeim orðum að hún kannaðist svo við mig og við fórum að spjalla saman í kjölfarið. Eftir sundið skrapp ég heim til að ganga frá sunddótinu. Stoppaði ekkert, var með esperanto-bakpokann tilbúinn í skottinu og var komin vestur í bæ rétt upp úr hálfellefu. Rúmum tveimur tímum seinna kvaddi ég og þá lá beinast við að koma við í Krónunni við Granda áður en ég færi heim. Var svo alveg róleg heima restina af deginu. Prjónaði alveg helling og er byrjuð á þriðju dokku af fimm á sjalinu sem ég byrjaði á um síðustu helgi. Eftir að Oddur Smári kom heim úr sinni vinnu fór ég fljótlega að finna til matinn, steikti lambagúllas og skar niður ýmis konar grænmeti. Það var til salsasósa og sýrður rjómi í ísskápnum og þegar Davíð Steinn kom heim úr sinni vinnu var allt tilbúið til að útbúa sér vefjur. Sátum öll saman að snæðingi og bræðurnir skiptust á vinnusögum. Davíð Steinn bauð upp á gulrótarkökusneið í eftir rétt og svo hjálpuðust þeir að við að ganga frá eftir matinn.
27.5.17
279 lykkjur á hringprjónunum
Í gær fórum við öll mæðginin í vinnu. Davíð Steinn fór fyrstur sjö mínútur fyrir sjö til að ná í strætó og vera kominn í Stórahjallann fyrir hálfátta. Ég labbaði út tíu mínútum yfir sjö til að vera mætt í mína vinnu korter fyrir átta og Oddur Smári var síðastur út úr húsi en hann er aðeins nokkrar mínútur og tölta upp í Öskjuhlíð en hann átti að vera mættur um hálfátta. Helmingurinn af kortadeildinni var í orlofi í gær svo við vorum þrjú sem létum hendur standa fram úr ermum til að vinna á öllum daglegum verkum og þrátt fyrir að taka matar og kaffipásur náðum við ca. fimm korterum af deginum í endurnýjun. Hættum vinnu korter fyrir fjögur. Mér bauðst far heim sem ég þáði. Var samt ekki lengi heima. Hringdi í pabba en tók svo til bókasafnsbækur og sundútbúnað. Byrjaði á því að skila nokkrum bókum á Kringlusafnið og tók auðvitað nokkrar í staðinn. Var búin að framlengja skilafrestinum á þremur bókum. Næst lá leiðin í Nauthólsvíkina þar sem ég stakk mér í sjóinn í nokkrar mínútur. Var komin heim aftur fyrir klukkan hálfsjö. Kvöldmaturinn var akkúrat tilbúinn um það leyti sem Oddur kom heim úr vinnu. Sat svo með prjónana í stofunni og fylgdist aðeins með Voice. Slökkti á sjónvarpinu um tíu en klukkan var samt farin að ganga tólf áður en ég gekk til náða.
26.5.17
Á bókasafnið og í sjóinn eftir vinnu í dag
Oddur Smári var mættur einum og hálfum tíma snemma í vinnuna sína í gærmorgun. Það var rauður dagur og því átti hann ekki að mæta fyrr en klukkan níu. Sem betur fer er vinnan frekar stutt frá en hann verður í afleysingum, "starfsmaður á plani", á Skeljungsstöðinni í Öskjuhlíð. Ég hafði ekki stillt á mig neina klukku en fór á fætur einhvern tímann á níunda tímanum þannig að ég gat óskað syninum góðrar vaktar þegar hann fór aftur í vinnuna. Á meðan ég beið eftir því að N1 sonurinn vaknaði, en hann var í vaktafríi í gær, dundaði ég við ýmislegt hér heimavið, bæði húsverk, prjóna og fleira. Það fór nú svo að ég varð að vekja Davíð Stein um hálftvö. Bað hann um að ryksuga gólfið við útidyrnar og búa til vöfflur úr uppskrift sem ég var búin að hræra í á meðan ég væri í sundi. Þar með var ég farin í Laugardalinn. Kom heim aftur tæpum tveimur tímum seinna og skrapp þá eftir rjóma í Sunnubúðina. Hafði kvöldmatinn til um hálfsjö og var svo farin á Valsvöllinn (VALUR-Grindavík stelpurnar 5-1) áður en Skeljuns-ungi maðurinn kom heim úr vinnunni.
25.5.17
Nýstúdentinn strax byrjaður í sumarvinnunni
Í gær varð Oddur Smári stúdent af tölvubraut úr Tækniskólanum. Útskriftarathöfnin fór fram í Eldborg í Hörpu enda margir að útskrifast af mörgum brautum og skólum sem eru undir "hatti/þaki" Tækniskólans. Þar sem N1 ungi maðurinn var á frívakt notaði ég strætókortið til að komast í vinnunna og þannig gat Oddur komið á bílnum um tvöleytið. Hann var svo heppinn að fá stæði á neðra plani Seðlabankans. Ég var í vinnunni milli korter í átta og korter yfir tvö. Hafði mætt með sparilegt dress með mér í vinnuna og skipti um föt og málaði varirnar áður en ég fór yfir í Hörpuna. Athöfnin byrjaði um þrjú en ég var komin í sæti upp úr hálfþrjú og hafði verið svo séð að taka með mér prjónana svo ég gat dundað mér við að prjóna alveg þar til allt var sett í gang. Athöfnin tók rúmlega tvo og hálfan tíma og var bein útsending af Facebook-vegg skólans og var þetta í fyrsta skipti sem það er gert. Sendi pabba linkinn á athöfnina en reyndar gat hann ekki opnað einhverra hluta vegna. Ég prófaði ekki að opna sjálf þar sem ég var á staðnum. Hinn tvíburinn hafði ekki haft áhuga á því að mæta og fylgjast með bróður sínum taka á móti útskriftarplagginu en við sóttum hann seinna og buðum honum út að borða með okkur. Við Oddur skiptum samt fyrst um föt.
22.5.17
Smá lottovinningur á áskriftarmiða
Dagarnir þjóta hjá og tíminn lætur ekkert bíða eftir sér frekar en venjulega. Á föstudaginn fór ég úr vinnunni um hálfþrjú og fór beint í Kópavogskirkju til að fylgja einni náfrænku minni. Hafði ætlað mér að mæta aftur í vinnuna um fjögur og sitja yfir mönnunum sem koma og yfirfara framleiðsluvélina mánaðarlega. Hringdi í þá sem var á vaktinni og hún sagðist geta verið til klukkan sex svo ég hafði samband við norsku esperanto vinkonu mína í staðinn. Stoppaði hjá Inger í um klukkustund áður en ég fór í Krónuna við Granda til að versla inn.
Á Laugardagsmorguninn mætti ég í sund upp úr klukkan níu. Eftir sundið kom ég aðeins við í Hagkaup í Skeifunni til að athuga hvort það væru til fleiri dokkur með sama númeri í þessum fjórum litum sem ég keypti inn um daginn. Það var til og þar að auki keypti ég fimm dokkur í enn einum litnum. Þegar ég kom heim lauk ég við að taka mig til fyrir austurferð, vakti annan soninn bara til að kveðja hann. Við mamma höfðum mælt okkur mót við Selfosskirkju fyrir klukkan hálftvö til að fara saman á Queen-messu með kirkjukór Keflavíkurkirkju og Jónsa. Það var frábær klukkustund. Jóna og Reynir voru ekki heimavið og mamma fann ekki útiarinn í Húsasmiðjunni en okkur var tekið opnum örmum í Fossheiðinni. Lauk við að prjóna bleika sjalið um kvöldið, gekk frá endunum og byrjaði strax á næsta lit.
Svaf til klukkan að ganga tíu í gærmorgun þrátt fyrir að hafa farið að sofa fyrir miðnætti. Það var ekki alveg jafn mikil bongóblíða og á laugardeginum en þó var hægt að sitja úti á palli með prjónana það lengi að ég náði að roðna aðeins. Kom heim rétt upp úr klukkan tíu í gærkvöldi og fór næstum því beint í háttinn.
18.5.17
Torfi Geirmundsson kvaddur
Í gær labbaði ég báðar leiðir milli heimilis og vinnu. Fékk Odd í lið með mér við ákveðin verk hér heima og sendi hann einnig eina ferð í Sorpu. Eftir kvöldmat fór ég loksins í sund og gaf mér góðan tíma í alla rútínu. Á tólfta tímanum komu systir mín og eldri dóttir hennar til mín. Hinn helmingurinn af fjölskyldunni og minni hundurinn gistu annars staðar í bænum og stærri hundurinn var í pössun fyrir norðan. Við systur þurftum að spjalla smá áður en við tókum á okkur náðir einhvern tímann eftir miðnætti.
Ég fór á bílnum í vinnuna í morgun og vann milli hálfátta og hálftólf. Þá fór ég heim, fékk mér smá hressingu og skipti um föt. Oddur klæddi sig líka upp og fékk að keyra okkur upp að Árbæjarkirkju. Þar var saman komið fjölmenni til að fylgja tengdapabba systur minnar. Enginn prestur var í athöfninni heldur voru uppáhalds lögin hans spiluð og minningarorð voru í höndum Rúnars bróður hans sem og Mikaels og Lilju, tveimur af fimm börnum Torfa heitins. Allt í hans anda. Blessuð sé minning um litríkan og góðan mann.
16.5.17
Jafntefli
Helgin leið afar hratt. Á föstudagskvöldið fór ég út að borða með 9 vinnufélögum úr K1 á Matstofu Garðabæjar. Það var mjög góð kvöldstund, gott að borða, góð þjónusta og skemmtilegur félagsskapur. Var mætt í sund rétt upp úr átta á laugardagsmorguninn og í klippingu klukkan tíu. Fór síðan heim, gekk frá sunddótinu og tók esperantodótið með mér til Inger. Þar stoppaði ég í einn og hálfan tíma. Fór beint heim aftur og lauk við að pakka niður fyrir austurferð. Kom við í Fossheiðinni á leiðinni austur. Þegar ég kom svo til foreldra minna frétti ég að Torfi Geirmundsson, tengdapabbi systur minnar, væri fallin frá. Blessuð sé minning hans.
Mamma bað mig um að skreppa í búðina eftir rófu og smá söngvakeppnis snakki. Sauð rófuna og útbjó rófustöppu sem var höfð með sviðum í kvöldmatinn. Báðir foreldrar mínir entust fyrir framan skjáinn yfir söngvakeppninni. Ég var með prjónana og prjónaði helling. Við mamma sátum áfram eftir að keppninni lauk og horfðum á bíómyndina sem kom á eftir alveg þar til slökknaði á sjónvarpinu um miðnætti. Þá var amk hálftími eftir af myndinni en þar sem ekki var hægt að ná sambandi aftur við skjáinn fórum við að sofa.
Á sunnudeginum mundi ég eftir því að pabba og mömmu hafði verið boðið í fermingarveislu. Hjálpaði mömmu að þvo sér um hárið. Þau kvöddu um þrjú en þá var ég komin á fullt að ryksuga bílinn og strjúka allt ryk af innan úr honum. Svo skrapp ég gangandi til föðursystur minnar upp að Helluvaði.
Bjó til kjötbollur í kvöldmatinn en ég var skilaði mér heim í bæinn um tíu.
12.5.17
Á leiðinni út að borða með nokkrum vinnufélögum
Það var loksins haldinn saumaklúbbur í fiskamerkisfélaginu "þrír þorskar..." hér hjá mér á miðvikudagskvöldið. Það var 100% mæting, fyrri gesturinn mætti rétt fyrir átta og hinn ca hálftíma síðar. Og svo var klukkan allt í einu að verða ellefu. Mikið sem tíminn leið hratt, enda orðið það langur tími frá síðasta hittingi að það þurfti margt að spjalla. Nálar og prjónar fengu samt að vera með í klúbbnum.
Í gær var eini dagurinn í vikunni sem ég hafði aðgang að strætókortinu. Var mætt í vinnuna korter fyrir átta og var komin heim aftur um þrjú. Hafði kvöldmatinn frekar snemma og skrapp svo í sund milli klukkan hálfsjö og hálftíu, þ.e. ég fór að heiman um hálfsjö og var komin aftur heim um hálftíu. Fór í sarpinn og horfði með öðru auganu á Cikaco fire með öðru auganu en prjónaði með hinu.
10.5.17
Saumaklúbbur nýafstaðinn hjá mér í kvöld
Á mánudaginn labbaði ég báðar leiðir milli heimilis og vinnu. Kom heim upp úr klukkan fjögur. Var eiginlega búin að taka ákvörðun um að láta loksins verða af því að prófa að skreppa í sjóinn. Vissi að það opnaði í afgreiðslunni á Ylströndinni við Nauthólsvík um fimm og yrði opið til klukkan átta. Klukkan var orðin hálfsex þegar ég fór með handklæði, sundbol, strandskó og 600 kr. út í bíl. Þegar ég hafði lagt bílnum sá ég tvær konur sem ég reiknaði út að væru vanar og á leið í sjósund. Þær voru aðeins á undan mér. Í afgreiðslunni skrifaði ég mig í gestabók, borgaði gjaldið og fékk ágætis leiðbeiningar hjá þeirri sem afgreiddi mig. Í skiptiklefanum ákvað ég að bera mig upp við konurnar tvær og önnur þeirra var meira en til í að leyfa mér að hengja mig á sig. Hún lánaði mér meira að segja sundvettling á aðra höndina og sá til þess að ég fengi lánaðan vettling á hina höndina í afgreiðslunni. Dýfingin í sjóinn gekk annars glimrandi vel. Var alls ekki lengi útí, synti ekkert og ekki með höfuðið á kaf, en þó alla leið upp að hálsi. Vá, hvað þetta var annars gott og hressandi. Það mætti segja mér að ég verði farin að stunda þetta sport á fullu á næstu misserum.
Í gærmorgun skrapp ég í sund áður en ég fór í vinnuna. Vinnudagurinn var nokkuð skrautlegur en við náðum að klára allt nokkru áður en átta tímarnir voru liðnir. Annars er ég iðin við prjónana og gef mér einnig tíma til að lesa á hverjum degi.
8.5.17
Fór fyrsta íslenska sjóbaðið í dag
Var komin á fætur um átta í gærmorgun, hrærði í vöfflur, hellti upp á kaffi, harðsauð egg og bjó til myndarlegan vöfflustafla. Næturgestirnir vöknuðu einn af öðrum. Helga skrapp út í smá göngu með minni hundinn áður en við, hún, mágur minn, yngri systurdóttir og ég settumst niður við morgunverðarborðið í holinu. Systurdóttir mín fór aftur inn í stofu eftir að hafa dásamað það að fá vöfflur í morgunmat. Synir mínir fengu að sofa út en annar þeirra náði að koma fram áður en gestirnir tóku sig saman og kvöddu einhvern tímann á tólfta tímanum. Fram að því áttum við Helga og Ingvi gott spjall yfir nokkrum kaffibollum.
Um eitt leytið dreif ég mig í sund og kom svo við í garndeildinni í Hagkaup í Skeifunni og keypti mér 4x4 (4 litir) dokkur af kambgarni, nýjasta sudokublaðið og fjölnota Hagkaupspoka utan um allt saman. Fljótlega eftir að ég kom heim lánaði ég bræðrunum bílinn. Ég hringdi í pabba og ákvað svo að byrja á því að ryksuga yfir gólfin þar sem hundarnir höfðu fengið að fara um því þar lágu ófá hárin af henni Cöru, á eldhúsgólfinu, í holinu, á baðherbergisgólfinu og á stofugólfinu. Að þessu loknu fitjaði ég upp á nýju sjali og þegar hætti að prjóna í gærkvöldi hafði ég prjónað 48 umferðir. Að vísu aðeins sjö lykkjur til að byrja með en þeim fjölgaði í annarri hverri umferð.
7.5.17
Þriðja sjalið komið á prjónana
Á föstudagskvöldið hafði systir mín samband við mig til að segja mér að þær mæðgur og báðir ferfætlingarnir myndu taka laugardaginn snemma og renna suður. Spurði hvort þau fjölskyldan fengju gistingu eina nótt. Að sjálfsögðu var svar mitt mjög jákvætt. Ég var mætt í Laugardalslaugina rétt fyrir hálfníu í gærmorgun og gaf mér góðan tíma í alla rútínu. Dagaði reyndar næstum uppi í salt/sjópottinum á spjalli við eina pottormsvinkonu mína. Fljótlega eftir að ég kom heim fór ég að undirbúa mig undir gestkomuna. Þegar einkabílstjórinn kom fram upp úr tvö var ég m.a. búin að hræra í vöffludeig. Fékk hann til að skreppa fyrir mig í búðina. Áður en hann kom heim aftur lagði N1 strákurinn af stað á aukavakt á N1-stöðina við Lækjargötu í Hafnarfirði. Hann átti að vinna milli fjögur og átta og notaði strætókortið til að koma sér á staðinn en ég lofaðist til að sjá til þess að hann yrði sóttur.
Þegar vöfflufjallið var um það bil að verða tilbúið og Oddur var að koma til baka úr búðinni komu mæðgurnar og hundarnir. Hulda kom rétt inn til að fá að nota salernið og ég fékk knús í leiðinni. Systir mín bað Bríet og Odd að fara í smá gönguferð með ferfætlingana en svo skutlaði hún eldri dóttur sinni til kærastans með viðkomu í einni búð. Þegar búið var að viðra hundana og fá sér vöfflur spiluðum við Bríet Ólsen ólsen upp og niður og svo kenndi hún mér annað spil sem ég hef aldrei spilað áður og heitir einn, tveir, þrír, fjórir, fimm, sex, sjö, átta, níu, tíu - sprite/spræt! Minni hundurinn varð ekki rólegur fyrr en systir mín kom aftur og settist inn í stofusófa.
Upp úr hálfsjö komu nokkrir strákar til Odds því þeir höfðu fengið leyfi til að halda spilakvöld hér ef þeir yrðu ekki lengur en til ellefu. Ég fór því og sótti N1 strákinn eftir að hafa undirbúið lasanja í kvöldmatinn og fengið Helgu til að setja hvítlauksbrauð (eitthvað sem ég hef afarsjaldan með) inn í ofninn síðustu tíu mínúturnar áður en rétturinn yrði tilbúinn. Þurfti aðeins að bíða eftir vinnandi syninum en við vorum komin heim rétt fyrir hálfníu. Spilastrákarnir stóðu við samninginn, ég fór eina gönguferð með minni hundinn, mágur minn bættist í gestahópinn á tólfta tímanum eftir langt og erfitt sjúkraflug sem fylgdaraðili aðstandenda.
5.5.17
Aftur komin helgi
Orlofisdagarnir liðu alltof hratt en þar sem ég var undirbúin undir það þá ákvað ég að reyna að halda mig sem mest í núinu og þakka fyrir hverja mínútu. Vel gengur að lesa bækurnar sem ég tók af safninu um daginn, búin með þrjár af sjö og er að lesa hinar fjórar og tvær að auki. Netið eftir Lilju Sigurðardóttur (sjálfstætt framhald af: Gildran eftir sama höfund) er mjög spennandi. Kaflarnir eru þar að auki það stuttir að maður álpast stundum til að lesa aðeins einn enn, alltof mörgum sinnum. Er hálfnuð með þessa bók.
Er annars búinn að fara á tvo heimaleiki í Pepsídeildinni, Valur - Víkingur Ólafsvík 2:0 á sunnudagskvöldið var hjá strákunum og Valur - ÍBV 4:0 á miðvikudagskvöldið hjá stelpunum. Næstu heimaleikri eru eftir tíu daga 15. og 16. þ.m. Það verður komið að þeim tímapunkti áður en ég veit af.
Í gær var fyrsti vinnudagur eftir orlofið. Ég labbaði í vinnuna og aftur heim, þá með úlpuna undir hendinni. Kom við á Lækjartorginu og gaf mér góðan tíma til að spjalla við eina vinkonu sem var þar með sölubás. Veðrið var sérdeilis gott sem hefur varla farið framhjá neinum enda kom fram í fréttunum að hitinn hafi næstum náð jafn hátt og hann náði í fyrrasumar. Það er allt að gerast og sólin heldur áfram að hækka á lofti.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)