Mikið varð ég glöð að sjá að búið var að fylla kalda pottinn aftur og opna fyrir "umferð" í gærmorgun. Var svo spennt að ég rétt dýfði mér í laugina, synti aðeins 300m áður en ég stakk mér í kalda pottinn í rúmar tvær. En það var eina ferðin í þann kalda. Fór úr honum í sjópottinn og endaði smá stund í gufunni. Ekkert "sólbað" í gær en ég fór mér extra hægt þennan spöl sem er á milli gufuklefans og inn að búningsklefa.
Þegar heim kom hitaði ég mér hafragraut og bjó til kaffi. Kveikti á tölvunni og fór að undirbúa tilkynningar/fréttir um næstu messu í moggann, á vegginn og heimahöfnina. Við þá vinnu sá ég að ég á enn eftir að laga smávegis til eftir innrásina á heimasíðuna. Hvað þetta er lúmst og liggur víða. :-(
Hringdi aðeins í dönsku vinkonu mína sem "kenndi" mér á kalda pottinn til að leita frétta. Af henni var allt gott að frétta en hún er ekkert á leiðinni í sund og potta alveg á næstunni. Svo náði ég sambandi við aðra vinkonu á Facebook spjallinu. Hún hringdi í mig til baka og þegar hún vissi að ég væri ekki að fara að vinna fyrr en klukkan eitt bað hún mig um að hitta sig aðeins áður. Ég var meira en til í að stökkva af stað. Þurfti reyndar að hengja upp úr þvottavélinni fyrst sem varð til þess að ég rétt missti af 13 sem er á hálftíma fresti á þessum tíma. Skundaði því að strætóskýlinu rétt við gönguljósin yfir Miklubraut og náði þar strax í ásinn. Hitti einn vinnufélaga í þeim vagni. Við vinkonan hittumst á Lækjartorgi og ákváðum að setjast inn á Kryddlegin hjörtu og fá okkur súpu og sallat. Þar skilaði ég inn útstimpluðu korti, fékk fría máltíð og nýtt stimpilkort.
Var mætt í vinnuna korter fyrir eitt og gaf mér tíma til að byrja á því að fylla á vatnsbrúsann og fá mér kaffisopa. Betur gekk í vinnunni í gær heldur en daginn áður þótt það væri smá vesen í gangi til að byrja með og svo aftur síðasta hálftímann, milli hálfsjö og sjö. Mótvaktin mín bauð mér far heim sem ég þáði og var þá komin á góðum tíma fyrir landsleikinn.