tíguleg er frúin.
Með aldri nokkur virðing vex,
vinsæl barnatrúin.
Ég ákvað að deila ferskeytlunni sem ég skeytaði að mágkonu mömmu sl. þriðjudag. :-)
En þvílík rigning seinni partinn í gær. Ég var að sjálfsögðu á hjólinu og hefði annað hvort getað geymt það niðri í bílageymslu þar til í dag eða fengið að taka það með í strætó. En ég gerði hvorugt, var með e-s konar "regnslá" sem ég fékk áður en ég fór í vatnsrennibrautirnar í skemmtigarðinum á Sevilla sl. haust. Sláin er með hettu og það víð að ég gat verið með bakpokann minn undir henni en hún hlífði ekki buxunum eða fremst á úlpuermunum. Var nokkuð fljót á milli vinnu og heimilis en það bætti sífellt í rigninguna svo það var ekki um annað að ræða en skipta um buxur og setja hinar á ofn þegar ég kom heim.
Hafði bleikju með nýjum kartöflum og gulum baunum í bræddu smjöri í matinn í gær. Mmm, þvílíkt lostæti, ætti að hafa svona oftar í matinn og ég var svo heppin að það var smá afgangur sem ég gat tekið með mér í vinnuna fyrir hádegishressinguna í dag.
Auðvitað horfði ég á leikinn sem var sýndur úr riðli c á EM kvenna, Frakkland - England 3:0. Grey ensku stelpurnar komust ekki í nein færi í fyrri hálfleik og voru lélegri á flestum sviðum heldur en andstæðingarnir. Ég er eiginlega fegin því að okkar stelpur eiga að keppa við þær sænsku á sunnudaginn en ekki þær frönsku, en það var ekki ljóst fyrr en á tíunda tímanum í gærkvöldi.
Hafði það sem allra best um helgina, farið vel með ykkur og njótið þess að vera til!