- Alger dekurdagur -
Ég lét dekra við mig í allan dag. Rétt fyrir tíu trítlaði ég í Kringluna og hitti hármeistarann minn sem þynnti og stytti á mér hárið og var snöggur að því þrátt fyrir að ég væri komin með smá lubba.
Þegar ég kom heim gaf ég mér tíma til að ryksuga yfir gólfin, taka af rúminu og setja í þvottavél (á tíma). Þetta hafðist allt á þremur korterum.
Rétt fyrir tólf skutlaði Davíð mér í Kópavoginn þar sem ég átti tíma í GULLMEÐFERÐ í Mecca Spa (afmælisgjöf frá feðgunum). Mér var afhentur sloppur, handklæði og inniskór og vísað í kvennabúningsaðstöðuna. Valdi skáp númer 17 þar sem ég geymdi föt mín og dót. Fyrst voru fæturnir teknir fyrir. Fékk fótabað, snyrtingu, fótanudd og það voru meira að segja lakkaðar á mér táneglurnar en það hef ég aldrei gert áður. Næst var það andlitssnyrtingin. Hún fór fram í öðru herbergi og þar var ég fyrst beðin um að leggjast á magann á bekk undir lak í engu nema brók. Sú sama og snyrti á mér fæturnar byrjaði á því að nudda mig og ég hélt á tímabili að ég hefði misheyrt það að andlitssnyrtingin væri á undan heilnuddinu. En svo var ekki. Ég hef aldrei áður farið í svona andlitssnyrtingu en mikið rosalega var þetta gott og slakandi, fyrir utan það þegar voru vaxaðar á mér augabrýrnar. Að snyrtingu lokinni fékk ég lánaðann sundbol og fékk að skreppa ofan í heitan bott í nokkrar mínútur eða þar til var kallað á mig í heilnuddið. Ég hef heldur ekki prufað svoleiðis nokkurn tímann áður. Mér var boðið upp á slökunar- eða djúpnudd og valdi það fyrrnefnda. Tókst alveg að gleyma því að það var ungur myndarlegur maður að nudda mig. Slakaði bara vel á og naut nuddsins í botn. Var nudduð í tæpan klukkutíma (held ég) og fékk svo að slaka á, ein inni, í nokkrar mínútur. Davíð sótti mig svo um fimm og hann fékk stórt knús fyrir þessa afmælisgjöf.
En aðeins að öðrum fréttum. Davíð Steinn var spurður hvort hann vildi taka þátt í fyrstu sýningu íslensku óperunnar í haust og ákvað að slá til. Þeir eru þrír, allir úr DKR sem taka þátt og hann fór á fyrstu söngæfingarnar á fimmtudag og föstudag og var svo á leikæfingu undir stjórn Sveins Einarssonar milli 10 og 13 í morgun. Það lítur því út að haustið hefjist með látum og annríki því í mínum kór stendur til að taka upp mörg af lögunum sem við æfðum sl. vetur og gefa út á disk.

Farið vel með ykkur!