- Afmæli og vetrarfrí -
Helga systir er árinu eldri í dag. Litla systir mín sem eitt árið á unglingsárunum óx mér yfir höfuð en ég náði að jafna það með tíð og tíma með því að vaxa 1-2 cm á ári alveg fram að tvítugu.
Annars er vetrarfrí í mörgum skólum þessa dagana. Í gær voru tvíburarnir beðnir um að fara og láta klippa sig, fengu 1500 kr. hvort (voru búnir að fá annað eins rétt fyrir síðustu helgi). Hárflikk er hérna næst okkur en þar kostar 2400 kr. á haus. Oddur Smári var að spá í að fara heim og ná í meiri pening úr sínu veski en hætti við það. Davíð Steinn fór á Hárhornið til tengdapabba systur minnar, komst strax að og fékk mun ódýrari klippingu. Sá óklippti var með alls konar fyrirslátt því hann einfaldlega nennti ekki að labba þessa leið. Hann á samt einn möguleika eftir, þ.e. pabbi hans á líka eftir að láta snyrta á sér hárið...

Góða helgi og farið vel með ykkur!