9.7.07
6.7.07
2.7.07
30.6.07
Helga, Ingvi og stelpurnar komu austur í gærkvöld. Hulda verður eftir hjá afa sínum og ömmu og verður þar næstu tvær vikurnar ásamt jafnöldru sinni sem ég passaði á morgnana (ásamt Huldu) veturinn 2001-2002.
Þegar við mæðgin komum í bæinn um hálftólf komum við við á skrifstofu Davíðs svo þeir feðgar gætu hist aðeins. Maðurinn minn skilaði sér svo heim einhvern tímann í nótt en hann var ekki kominn þegar ég fór að sofa um hálftvö.
29.6.07
28.6.07
23.6.07
21.6.07
18.6.07
Skruppum aðeins í bæinn í gær áður en við renndum austur með strákana en tvíburarnir verða á Hellu næstu tvær vikurnar. Þeir koma reyndar aðeins í bæinn um næstu helgi því Bríet er að verða þriggja ára á laugardaginn. Veðrið lék við landann í gær. Samt fannst mér ekki vera mjög margt um manninn í miðbænum. Það voru samt svona mannhrúgur hér og þar. Þegar við keyrðum austur mættum við alveg helling af bílum. Rétt austan við Selfoss var lögreglan að fylgjast með umferðinni, því miður fyrir Davíð því hann ók heldur greitt og á nú von á allt að 30 þúsund kr. sekt fljótlega. Pabbi sá svo um að ég þyrfti að keyra til baka því hann bað manninn minn um að grilla og bauð honum upp á bjór í leiðinni.
En svei mér þá ef ég er ekki strax farin að telja dagana niður í aðalfríið mitt þótt ég hafi komið vel endurnærð eftir sl. viku. Fimm vikur ( 24 virkir dagar)...
16.6.07
Mánudagurinn var heitasti dagurinn og fór hitinn yfir 25 gráður þegar mest var, mig minnir að mælirinn hafi meira að segja sýn rúmlega 27. Það var of heitt að dvelja of mikið í pottinum og í raun var eiginlega ekki hægt að vera of lengi úti. Ég náði nú samt að brenna.
Annars fór vikan í lestur, útsaum, krossgátuþrautir, spil, sjónvarpsgláp og svefn. Við grilluðum upp á hvern einasta dag og stundum tvisvar. Við vorum alveg tilbúin að taka á móti gestum og vorum með utan á sængur fyrir sex auka. En það komu engir gestir fyrr en seinni partinn á fimmtudag að pabbi og mamma kíktu inn og grilluðu með okkur. Þau fóru svo aftur um kvöldið þegar amman var búin að spila alveg helling við dóttursynina. Fyrr um daginn fór rafmagnið af bústaðnum í nokkurn tíma. Við vissum ekki að því fyrr en bræðurnir ætluðu að rista sér brauð og ekkert gerðist, ekki heldur eftir að brauðristinni hafði verið stungið í samband. Við þetta rafmagnsleysi tæmdist heiti potturinn.
Í gærmorgun var ræs um og upp úr níu. Allir hjálpuðust að við að taka saman, og ganga frá bústaðnum eins og við vildum koma að honum. Við höfðum tekið við bústaðnum alveg þokkalegum, lítið hægt að kvarta, nema helst að heiti potturinn hafði ekki verið þrifinn. Amk ekki nógu vel. Lokuðum á eftir okkur á slaginu tólf. Fengum okkur að borða á grillstaðnum á Laugarvatni. Svo kíktum við í heimsókn til mömmu tvíburahálfsystur minnar.
Um fimm í gær fórum við svo með strákana á Köngurlóarmanninn 3 og skemmtum okkur öll jafn vel.
8.6.07
Bekkurinn hans Davíðs Steins og foreldrar hittust á Miklatúni seinni partinn í gær og grilluðu saman. Oddur Smári fékk að vera með og fóru bræðurnir á hjólum og hittu pabba sinn á svæðinu. Ég var að sinna heimaverkefnum og undirbúningi. Það voru kjöraðstæður og veðrið lék við hópinn.
Fyrr um daginn fóru bræðurnir og létu klippa sig. Ég hafði skilið eftir 1900 kr. handa hvorum. Oddur Smári fékk sér sumarklippingu, brodda og skildi bara skottið eftir. Fyrir það borgaði hann 1250 kr. Davíð Steinn fékk sér bara venjulega klippingu og það var aðeins dýrara eða 1600 kr. Það er nú annars meiri munurinn að geta bara látið þá fá pening fyrir klippingu og sent þá eina.
Davíð kom og sótti mig um hálfátta. Við komum við í Hlíðablóm sem er nýflutt í Skipholt 70 og sóttum tvær gjafir úr skreytingu. Gjafirnar voru handa tveimur kórfélögum, annar varð sextugur í febrúar og hinn verður sjötugur eftir 16 daga. Inn í kortin þeirra setti ég ferskeytlur sem mér tókst að smíða en þær má líka sjá á ljóðavefnum mínum. Leiðin lá svo í heimahús við Háaleitisbraut þar sem haldið var kór-grillpartý með mökum. Kristinn las upp pistilinn að venju, húsráðandi var líka með pistil, strákarnir voru með frábær söng-skemmtiatriði og svo afhentum við formaður og gjaldkeri kórsins gjafirnar og mæltumst til þess að kortin yrðu opnuð og lesin. Á eftir var fjöldasöngur. Eitthvað átti að reyna að hafa "ædol-keppni" en hún var amk ekki byrjuð þegar við Davíð kvöddum um ellefu. Hann skutlaði mér heim en fór svo á skrifstofuna og vann til fjögur. Ég átti eiginlega að drífa mig í bælið því ég var á sexvaktinni í morgun. Klukkan var samt næstum miðnætti þegar ég fór loksins inn í rúm og þá las ég amk í hálftíma. Mér tókst nú samt að vakna þokkalega hress korter yfir fimm í morgun. Þá er bara spurningin hvernig maður verður þegar fer að líða á daginn.
7.6.07
6.6.07
Vinur tvíburanna "þríburinn" Dagur fékk að gista hjá þeim í nótt. Strákarnir sofnuðu frekar seint en þeir sváfu líka út í morgun og þegar ég hringdi og tékkaði á þeim um hálftólf voru þeir að fara að fá sér morgunmat. Þeir eru annars ekki heima í augnablikinu. Ég er að fara á stjórnarfund um fimm, síðasti fundur vorsins, uppgjör og aðeins horft framávið með kórstjóra.
5.6.07
Í gærkvöldi skrapp ég til tvíburahálfsystur minnar. Til stóð að fara í smá göngutúr áður en við tækjum upp handavinnuna. Endirinn varð sá að við fórum beint að sauma. Látum bleytuna vera en rokið var ekkert upplífgandi. Ég gat því saumað alveg helling í gærkvöldið yfir kaffi og notalegu spjalli.
Það voru skólaslit í Hlíðaskóla í dag og ég fékk að skreppa og vera viðstödd þegar 5. og 6. bekkir voru inni á sal að taka á móti vitnisburði sínum. Bræðurnir fengu virkilega flottar einkunnir og góðan vitnisburð. Báðir höfðu þeir bætt sig síðan í janúar. Davíð Steinn er með meðaleinkunnina 8,83 þrátt fyrir að vera með eina einkunn upp á 6,5 og Oddur Smári er með meðaleinkunnina 8,735 (8,74) þrátt fyrir 10 í bæði málfræði og ensku. Svo eru þeir báðir með slatta af níum og 9,5. Ég er semsagt að springa úr stolti núna. Þeir bræður eru nú komnir í sumarfrí og höfðu það notalegt heima í dag. Að vísu var "tölvulaus" dagur í dag en þeir fengu að horfa á dvd-myndir. Svo er spurning hvernig maður umbunar piltunum fyrir góða ástundun og frábærar einkunnir?
4.6.07
Klukkan tíu á laugardagsmorguninn skutlaði Davíð nafna sínum upp að Hallgrímskirkju þaðan sem drengjakórinn lagði upp í ferð á Snæfellsnes. Strákarnir og fylgifiskar fóru í Stykkishólm og fengu aðgang og aðstöðu við grunnskólann. Klukkan fjögur voru þeir svo með sameiginlega tónleika með tónlistaskólanum þarna. Davíð Steinn hitti fyrrum bekkjarfélaga sinn úr Ísaksskóla á tónleikunum. Um kvöldið borðaði hópurinn í Narfeyrarstofu. Morguninn eftir fóru þeir í tveggja tíma siglingu um Breiðafjörð, sáu margt og mikið og höfðu virkilega gaman af. Eftir siglinguna kvöddu þeir Hólminn og fóru til Ólafsvíkur þar sem þeir sungu fyrir eldri borgara á elliheimilinu. Davíð sótti strákinn um sjö í gærkvöld á sama stað og hann fór með hann morguninn áður.
Bekkurinn hans Odds Smára og foreldrar höfðu mælt sér mót við Hlíðaskóla um ellefu og ætluðu að hjóla upp í Árbær og fara í sund þar. Oddur hjólaði af stað og var með í uþb klukkutíma en þá gafst minn upp og hringdi í pabba sinn. Tel strákinn reyndar góðan að hafa þó farið af stað en hann hefur ekki hjólað mjög mikið í vor og er því ekki í neinu sérstöku formi. Davíð sótti strákinn, stakk hjólinu í skottið og svo héldu þeir feðgar förinni áfram upp í Árbæ.
1.6.07
Í gær var aukaæfing hjá drengjakórnum og til stóð að taka upp þrjú síðustu lögin sem fara á diskinn. Tæpum tíu mínútum eftir að ég skutlaði Davíð Steini sendi hann mér sms; Komdu að sækja mig get ekki verið með:-(:-(. Strákurinn var með þrálátan hósta sem hann réði ekkert við svo því fór sem fór.
Ég mældi drenginn í morgun og var hann með örfáar kommur. Vondandi verður hann ekki veikur því drengjakórinn er að fara í ferðalag um helgina. Hann fór amk í skólann í morgunn en skólinn er bara til hádegis þessa dagana. Ég hringdi svo í kappann um hádegisbil og hvatti hann til að leggja sig. Eftir vinnu í dag fór ég fyrst að láta snoða mig og þegar ég kom heim tók ég eftir því að söngfuglinn minn var í náttfötunum. Hann sagði að sér þætti betra að sofa í náttfötunum og svo hefur hann líklega ekki nennt að klæða sig aftur.
Framundan er enn ein helgin en það er svo stutt síðan síðasta helgi var og hét. Farið vel með ykkur og njótið lífsins.
31.5.07
30.5.07
29.5.07
Ég lét verða af því í gær að afrita öll ljóð og vísur sem ég hef birt á þessu bloggi mínu og setja saman í sér safn. Athugið að ég afritaði þau yfir en uppsetningin hélst samt ekki eins. Njótið vel þið sem viljið. Ég veit ekki alveg hvort ég mun setja ný ljóð beint á ljóðavefinn. Það verður samt að teljast mjög líklegt. Um að gera að nota "rétta" umhverfið.
28.5.07
Seinni partinn á laugardaginn skrapp ég í Krónuna að versla. Þar rakst ég bókstaflega á eina frænku mína og við þekktum hvor aðra á sama sekúndubrotinu. Þetta var skemmtilegur árekstur. Á leiðinni úr versluninni hitti ég svo einn frænda minn.
Í gærmorgun var ég mætt upp í kirkju um tíu. Það vantaði fimm í kórinn (1 alt, 1, tenór, 1 bassa og 2 í sópran) en við vorum 12 sem sungum messuna klukkan ellefu. Það gekk allt ljómandi vel fyrir sig. Nú eru bara tvær kóræfingar og tvær messur eftir fram að kórsumarfríi. Ég mun reyndar ekki mæta í göngumessuna sem verður 9. júní n.k. en æfingunum og gúllasmessunni sleppi ég ekki.
Um tvö í gær lögðum við fjölskyldan af stað í bíltúr upp í Borgarfjörð. Keyrðum Hvalfjörðinn og komum við í bensínsjoppu í Borgarnesi til að fylla á bílinn og kaupa eitthvað til að setja á grill um kvöldið. Svo héldum við ferðinni áfram en ca 10 kílómetrum frá Borgarnesi eiga tvíburahálfsystir mín og hennar maður mjög svo kósí sumarbústað. Foreldrar hennar voru í heimsókn. Strákarnir fóru fljótlega að leika við tveggja og hálfsárs dóttur tvíburahálfsystur minnar og löbbuðum með henni um nágrenni bústaðarins. Dagurinn leið hratt. Hitinn var nægur á tímabili til að setjast út á pall. Um kvöldið var grillað og borðað saman. Frábær dagur, afslappandi og mjög skemmtilegur. Okkur var ítrekað boðið að gista en við töldum okkur ekki hafa tíma í það þar sem Davíð ætlaði að vinna í dag og svo er söngfuglinn að fara að syngja með DKR og KR (drengja- og karlakór Reykjavíkur) í Hallgrímskirkju núna klukkan fimm seinni partinn.
26.5.07
Oddur Smári hringdi í mig í gemsann um tvö í gær. Það var tilviljun að ég heyrði í símanum því ég hafði gleymt að taka hann upp úr töskunni. En á svipuðum tíma og strákurinn hringdi þurfti ég að ná í svolítið í töskuna. Stráksi byrjaði á því að spyrja hversvegna ég hefði verið svona lengi að svara. En svo spurði hann hvort hann mætti gista heima hjá vini um nóttina. Ég sagði að það væri í lagi ef mamma hans segði já. "-Hennar!" sagði þá Oddur Smári, "-Ég kem heim um sjö í síðustu máltíðina og sæki tannburstann minn ef ég má gista..." Þessi tvö og reyndar þrjú önnur (Davíð Steinn er þar á meðal annað hvort sem söngvari eða bakrödd) eru að hugsa um að stofna hljómsveit saman. Þau vinirnir komu bæði fyrir sex og fékk hún að borða hjá okkur. Ég var með bygggrjón og ommilettu (eggjaköku) með grænmeti og afgang af soðinni ýsu. Bekkjarsystir og vinkona Odds byrjaði á að tilkynna að hún borðaði yfirleitt ekki mikið á kvöldið. Sennilega vildi hún hafa vaðið fyrir neðan sig ef henni fyndist maturinn ekki góður. Hún borðaði mest af því sem henni var skammtað á diskinn af ommilettunni en svo var hún svo hrifin af bygggrjónunum (sem hún kallaði reyndar baunir) að hún fékk sér aftur og aftur á diskinn uns ekkert var eftir í skálinni. Strax eftir matinn kvöddu vinirnir og fóru heim til hennar með einn tannbursta með í för.
25.5.07
Í fyrradag skilaði ég af mér þremur bókum. Safnið í Grófinni var lokað vegna breytinga en það var móttökuhilla í anddyrinu sem á stóð: Ykkur er velkomið að skila hér. Ég nýtti mér það því ævisaga Kristjáns Eldjárns heitins var á síðasta auka-skila-degi. Mér leist ekkert á blikuna þegar ég skráði mig inn í Gegni í gærmorgun og sá að það var óbreytt staðan á útlánunum (20 í láni en átti að vera 17). Ég tók ekki sjensinn á því að þetta mundi ekki breytast í einhverja daga og að þá fengi ég sekt vegna ævisögunnar svo ég sendi fyrirspurn á safnið. Fyrirspurninni var ekki svarað en seinni partinn var búið að laga útlánsstöðuna mína. Hluti af þessum 17 bókum eru bækur sem ég tók fyrir strákana, 5 stykki. Annars er ég að spá í að bjóða þeim upp á að eignast sitt eigið bókasafnsskírteini. Þeir gætu farið í Kringlusafnið því þeir eru hvort sem er að skreppa í Kringluna öðru hvoru.
Ég er langt komin með tvær ólíkar en spennandi bækur. Fylgsnið eftir Dean R. Koontz og Ellefu mínútur eftir Paulo Coelho. Ætla ekkert að skrifa nánar um þær en mæli eindregið með þeim.
Hafið það gott nú um komandi hvítasunnuhelgi.
24.5.07
Glaðlega geislarnir dönsuðu saman
gullinbrúnir og heitir.
Að horfa á var virkilega gaman
vorið yl í kroppinn veitir.
Nú birtir meira dag frá degi
dimman er varla til.
Takið eftir því sem ég segi
svo allt fari eins og ég vil.
Alltaf er gott að meta lífið
og brosa oft og mikið.
Munnvikin allir upp hífið
ekki frá neinu vikið.
Verum jákvæð verum kát
verum mikið saman.
Setjum lífið í mót og mát
meira þó að framan.
Þetta er orðið hið mesta bull
og best er því að hætta núna.
Ekki er ég neitt að ráði full
ætla að leika fullkomnu frúna.
23.5.07
22.5.07
Á föstudaginn bað ég Davíð um að vinna nú ekki alla helgina. Hann fór um ellefu á laugadaginn og vann til sjö. Það kvöld talaði hann um að efna loforð sem við nafna sinn á sunnudeginum. Öll sváfum við til klukkan hálftíu á sunnudagsmorguninn. Ég bjó svo til kaffi sem við hjónin smökkuðum til áður en ég fyllti á sérstaka ferða-hita-kaffibolla sem við tókum með okkur. Klukkan var komin fram yfir hádegi þegar við lögðum í hann. Við vorum ekki fyrr komin út í bíl en hringt var í Davíð vegna vinnunnar. Hann lofaði að kíkja á smá mál seinna um daginn (og við sem ætluðum á leik...). Eftir að hafa tekið bensín lá leiðin út úr bænum. Beyðum af leið við Bláfjallaafleggjara og svo inn á leiðina inn að Kleifarvatni. Þar stoppuðum við góða stund. Fórum reyndar lítið sem ekkert út úr bílnum (nema strákarnir því þeir fóru amk þrjár ferðir út og suður...) því það hellirigndi. Næsta stopp var við Fúlapoll en Davíð hafði einmitt lofað nafna sínum að fara þangað einhvern tímann aftur er við stoppuðum við þann poll í ágúst sl. Svo var ekið áfram áleiðis til Grindavíkur og þar í gegn og ekki stoppað aftur fyrr en hér fyrir utan heima. Þá var klukkan þrjú. Davíð sagðist myndu koma aftur upp úr hálffjögur og fara með mér á leikinn í Árbænum (Fylkir - Valur 1:2). Það teygðist nú eitthvað á þessum smáfundi og endirinn varð sá að við fórum ekkert á leikinn. Davíð fór svo aftur í vinnuna upp úr tíu um kvöldið og kom ekki heim fyrr en um sjö í gærmorgun.
Mætti á stjórnarfund um leið og ég skutlaði söngfuglinum mínum á kóræfingu í gær. Nú er lokatörnin hjá drengjunum, æfing á morgun aftur og aukaæfing á fimmtudag með Karlakór Reykjavíkur. Kórarnir syngja svo saman um fimm á annan í hvítasunnu en klukkan átta miðvikudagskvöldið 30. maí verða drengirnir með vortónleikana. Báðir þessir atburðir verða í Hallgrímskirkju og það kostar 1.000 kr. inn á vortónleikana. Helgina eftir hvítasunnu verða þeir svo eina nótt í Stykkishólmi og eftir það er loksins komið sumarfrí hjá drengjunum. Við í stjórninni fundum svo í vikunni eftir vorferðina til að undirbúa næsta vetur.
Rétt fyrir hálffimm í dag sktulaði ég þríburunum á næstsíðustu vetrar-frjálsíþróttaæfinguna. Fylgdist með Davíð Steini koma út á peysunni (semsagt ekki í yfirhöfn) en hafði ekki rænu á að senda strákinn inn eftir flíspeysu. Auðvitað var svo útiæfing. Hann var bara svo ljónheppinn (enda í ljóninu) að fá lánaða slíka peysu á æfingunni. Ég skrapp í fiskbúð áður en ég fór til norsku esperanto vinkonum minnar. Nú fer að styttast í esperanto kaffihúsaferðina okkar.
Á morgun mun ég skreppa á safnið og skila af mér amk þremur bókum. Skilafresturinn á ævisögu Kristjáns heitins Eldjárns rennur einmitt út á morgun.
19.5.07
18.5.07
Annars var ég að koma heim af safninu. Varð að framlengja örfáum bókum, þar á meðal einni sem ég er búin að framlengja áður. Fékk fimm daga framlenginu á Ævisögu Kristáns Eldjárns sem Gylfi Gröndal skrifaði. Ég ætti alveg að hafa það. Auðvitað nældi ég mér í fleiri bækur og segi ég kannski frá þeim á þessum vettvangi síðar.
Góða helgi!
17.5.07
Annars eru strákarnir ekki heima þessa stundina og ég er ekki búin að sjá þá síðan rúmlega sjö í gærkvöldi. Eftir kóræfingu sá ég að Oddur Smári hafði reynt að ná í mig. Hann náði í pabba sinn. Til stóð að gista hjá Degi vini þeirra og hafði verið ákveðið að gista n.k. föstudag. Eitthvað annað kom upp á og þeim var boðið að gista í nótt í staðinn. Þeir komu ekki einu sinni heim að sækja tannburstana sína. Oddur Smári hringdi í mig um hádegið og spurði hvenær þeir ættu að koma heim. Ég var hjá norsku esperanto vinkonu minni og sagði að þeir yrðu að koma heim í síðasta lagi um tvö. Davíð Steinn á eftir að læra og hann þarf að fara í sturtu og vera mættur upp í kirkjukjallara um hálffimm.
Ég er ein heima sem stendur en ég á von að tvíburunum fljótlega, amk í kringum tvöleytið. Hmm, hvernig væri að grípa aðeins í saumana....??? Það er góð hugmynd.
Verð samt fyrst að segja aðeins frá tveimur bókum sem ég hef nýlokið við að lesa. Útisetan eftir Guðrúnu Bergmann. Dulræn, seiðandi og mjög grípandi. Fjallar um stúlku sem er dóttur-dóttir seiðkarls. Hann fær boð um að hún eigi að þjálfast sem eftirmaður hans. Ég varð algerlega heilluð af þessari skáldsögu. Hin bókin er Felustaðurinn eftir Terezza Azzopardi. Yngsta systirin af sex segir söguna. Pabbinn er forfallinn spilafíkill og veðjar um allt milli himins og jarðar. Þegar von er á þeirri yngstu heldur hann að honum sé að fæðast sonur og er svo glaður að hann tapar aleigunni. Þegar Dolores er örfárra vikna er hún skilin ein eftir í eldhúsinu í augnablik. Það kviknar í, henni er bjargað en vinstri höndin er ónýt eftir og einnig brenndist stór hluti af höfðinu svo það vex ekki hár á hana. Þetta var svolítið sorgleg skáldsaga en það var eitthvað við hana sem hélt mér við efnið.
16.5.07
Var komin heim upp úr tvö í gær. Ég átti hálft í hvoru von á einni frænku minni í heimsókn svo ég náði ekki að sofna neitt þótt ég fleygði mér um stund. Upp úr fjögur var kominn tími til að skutla strákunum í frjálsar. Dagur var ekki kominn tuttugu mínútur yfir svo við renndum við heima hjá honum. Þar var enginn heima. Ég ákvað að byrja á því að skutla tvíburunum. Fékk gemsanúmer mömmu Dags hjá Davíð en hún svaraði ekki heldur. En Dagur svaraði á endanum og ég skutlaðist eftir honum, hann var bara um tuttugu mínútum of seinn á æfingu.
Þegar ég hafði komið strákunum af mér rak ég eitt erindi fyrir foreldrafélag drengjakórsins. Síðan lá leið mín í fiskbúð. Ég var eiginlega ákveðin í að kaupa saltfisk en það breyttist í ýsulasanja. Úr fiskbúðinni fór ég í tvö bakarí (það var ekki til heilt heilhveitibrauð í því sem ég fór fyrst í) og endaði í Sunnubúðinni áður en ég kom heim. Þá var klukkan langt gengin í sex.
Ég hefði þurft að harðsjóða eins og átta stykki egg til að skipta niður í tvær brauðtertur en einhvernveginn hafði ég mig ekki í það. Strákarnir komu heim í mat upp úr sjö og voru svo úti til hálftíu. Davíð skrapp heim á milli átta og níu en fór svo aftur í vinnuna og var að vinna langt fram á nóttina, það er að verða mjög gömul saga. Sat með saumana mína fyrir framan skjáinn langt fram á kvöld.
Eftir kóræfingu í kvöld verð ég að útbúa þessar brauðtertur því drengjakórinn er að syngja nokkurlög með drengjakór Þrándheims á smá tónleikum um fimm á morgun og eftir sönginn verður boðið upp á ýmislegt góðgæti. Mín mun bretta upp ermarnar í kvöld.
15.5.07
14.5.07
10.5.07
9.5.07
8.5.07
Ég slakaði á í svona hálftíma eftir að ég kom heim í gær. Svo sá ég til þess að Davíð Steinn klæddist kórbúningnum sínum og skutlaðist með hann á Grand Hótel. Þar var verið að halda upp á dag hjúkrunar og hafði verið óskað eftir að drengjakórinn mætti á svæðið og syngi 2-3 lög. Þrjátíu drengir mættu. Friðrik hitaði þá upp en svo þurftu þeir að bíða smávegis eftir að komast að. Þeir sungu þrjú lög og fengu mjög góðar móttökur. Eftir sönginn máttu þeir svo fara heim.
Davíð fór í vinnu seinni partinn á sunnudaginn og hann var enn að um sex í gær. Hann var ekki laus fyrr en um sjö leytið. Eftir Heros-þáttinn slökkti ég á sjónvarpinu og sagði Davíð að nú væri mál að fara að sofa. Ég þurfti að fara á fætur upp úr fimm í morgun þannig að þetta (klukkan tíu í gærkvöld) var mjög góður tími til að fara í háttinn. Ég vaknaði, útsofin, á undan klukkunni um fimm í morgun og er enn sprellhress.
6.5.07
Þurfti að ræsa Davíð Stein um níu í morgun því hann var enn steinsofandi og átti að vera mættur í upphitun fyrir messu klukkutíma síðar. Það tókst alveg. Við hjónin og Oddur Smári mættum svo í kirkju rétt fyrir ellefu. Drengjakórinn, unglingakórinn og barnakór Austurbæjarskóla og Hallgrímskirkju sáu um messusönginn og tókst krökkunum virkilega vel upp. Á eftir fengu þau pizzu, gos, ís og helíum fylltar blöðrur. Nokkrir strákar náðu að gera gat á blöðrurnar án þess að sprengja þær, gleyptu loftið í sig og töluðu svo nokkur orð með furðulegri rödd, mjög fyndið. Þetta var annars síðasta messa drengjakórsins í vetur en það er nóg af verkefnum framundan hjá þeim áður en þeir fara sjálfir í sumarfrí. Meira um það smátt og smátt seinna.
4.5.07
3.5.07
Annars ætlaði ég að segja frá svolitlu krúttlegu sem Davíð Steinn spurði mig um daginn. Ég var að minnast á eitthvað fólk sem minnti hann á tvíburavinina sem þeir eignuðust um tveggja ára aldurinn. Hann hafði orð á því að það væri orðið mjög langt síðan hann hafði hitt þau og spurði hvort ég og mamma þeirra værum ekki vinkonur ennþá? Þetta fékk mig til að slá á þráðinn. Náði sambandi í þriðju tilraun. Hin tvíburamamman var glöð að heyra í mér. Hún var reyndar svolítið upptekin en tók niður númerið mitt og ætlar að vera í sambandi mjög fljótlega. Við náðum ekkert að spjalla að ráði en það var samt eins og við hefðum verið að tala saman síðast í gær.
2.5.07
30.4.07
Davíð vann meira og minna alla helgina en fór þó ekki í vinnu fyrr en um fimm leytið í gær, eftir leikinn Arsenal - Fulham. En í staðinn var hann að vinna langt fram á nóttina.
Ég er byrjuð að sauma engilinn. Það var erfitt að byrja en þegar ég var komin af stað var þetta bara gaman. Líklega þyrfti ég að nota fingurbjörg því ég er orðin sár á góm hægri löngutangar, nálin gefur engin grið þótt ég sé bara að ýta á eftir henni. Las Valkyrjur eftir Þráinn Bertelsson um helgina. Bókin er spennandi og meinfyndin á köflum, enda var ég alls ekki lengi að lesa hana.
26.4.07
24.4.07
Davíð Steinn hjólaði sjálfur á kóræfingu upp úr hálffimm í gær. Ég skutlaði Oddi Smára á karateæfingu, þá síðustu fyrir gráðunina, rétt fyrir sex. Sagði honum að líklega yrði hann að ganga heim því ég ætlaði að vera tilbúin með matinn þegar allir skiluðu sér heim. Strákurinn var svo heppinn að pabbi hans gat komið við og sótt hann er hann var að koma úr vinnu. Davíð var semsagt að vinna til klukkan sjö í gærkvöld. Eftir matinn hellti ég upp á smá kaffi fyrir manninn en stakk svo af. Var komin í Hafnarfjörðinn rétt fyrir hálfníu og við tvíburahálfsysturnar byrjuðum kvöldið á klukkutíma göngutúr og á eftir var saumað til klukkan hálftólf. Ég var með allt ósaumað efni með mér, bæði myndir, jólakort og jólalöber og þóttist ætla að dvelja á meðan ég lyki öllum þessum verkefnum. Það hefði nú þýtt það að ég hefði sest upp hjá vinkonu minni í nokkra mánuði. Ég náði að klára jólakortið með jólasveininum sem situr við opinn eld og þegar ég verð búin með bjöllurnar (byrjaði ekki á þeim í gærkvöldi) mun ég taka mynd af kortunum og setja á bloggið. Maðurinn minn var vakandi og að horfa á sjónvarpið þegar ég kom heim um miðnætti. Þá var hann ekki búinn að sofa síðan aðfaranótt sunnudags...
23.4.07
20.4.07
Ég er alveg á því að mér finnist ekki vera föstudagur fyrr en einhvern tímann eftir hádegi í dag. Það er svo sem allt í lagi, amk á meðan ég mæti ekki óvart til vinnu á morgun haldandi það að það sé þriðjudagur.
Gærdagurinn var bara rólegur hjá mér. Hellti upp á könnuna um níu og klukkutíma síðar fór Davíð í vinnuna og ég sá hann ekki aftur fyrr en um hálfníu um kvöldið. Ég skrapp til norsku vinkonu minnar og lásum við saman esperanto í einn og hálfan tíma. Þegar ég kom heim var Dagur, vinur strákanna kominn en Oddur Smári var farinn til einnar bekkjarsystur sinnar. Hann fór svo með henni í Fjölskyldu og húsdýragarðinn og var þar fram eftir degi. Ég spurði Davíð Stein hvort þeir félagarnir vildu ekki kíkja líka og þegar Dagur hafði fengið leyfi skutlaði ég þeim. Okkur kom saman um að ég myndi sækja þá um þrjú nema þeir myndu hringja áður. Það var einmitt það sem gerðist, Davíð Steinn hringdi um hálfþrjú og bað um að þeir yrðu sóttir. Tveim tímum seinna skutlaði ég þeim á frjálsíþróttaæfingu. Oddur Smári hafði ákveðið að sleppa æfingunni. Hann hitti frændur sína í húsdýragarðinum og slóst í för með þeim.
Ég var heima að mestu og saumaði næstum út í eitt enda er ég næstum búin með Kossinn. Ég á bara eftir að sauma það hvíta í hvora höku og svo merkja mér myndina. Hvort er það þá Blái Engillinn eða þessi næst og svo á ég fullt af ósaumuðum jólakortum líka og þar eru flest munstrin það flott að ég mun sauma þau aftur og aftur og aftur...
18.4.07
17.4.07
16.4.07
Þegar ég kom heim úr jógatíma á laugardagsmorguninn var Bríet frænka komin. Hún kom hlaupandi til mín og fagnaði mér vel. Helga og Ingvi voru í smáferð með vinnufélögum hans og þeirra mökum. Hulda hafði gist hjá vinkonu og var hjá henni. Bríet var voða hress og skemmtileg. Um eittleytið hafði Davíð orð á því að hann þyrfti að drífa sig í vinnuna. Þá tók sú stutta utan um annan handlegginn á honum og sagði: -"Nei, ekki þú fara að vinna. Bara mamma". Hann fór því ekki fyrr en hún hafði verið sótt. Ég hafði orð á því hvort við ættum að spá í að fá okkur sjálf svona vinnustoppara. Davíð Steinn smellti fingrum og spurði hvort Bríet gæti gert svona. Hún reyndi eitthvað smá en sagði svo: -"Nei, ég er bara þriggja ára". (Hún verður 3 í júní)
Í gær skruppum við mæðgin til einnar vinkonu minnar sem stytti fyrir mig þrennar buxur á þá, tvennar fyrir Davíð Stein og einar fyrir Odd. Eftir heimsóknina skutlaði ég bræðrunum aftur heim en skrapp sjálf að versla. Davíð gekk frá vörunum er ég kom með þær en ég kvaddi hann fljótlega aftur og fór vestur á Nes á leikinn Valur - ÍR 35:24. Nú er bara ein umferð eftir af handboltanum. Valur og HK eru með jafnmörg stig en Valsmenn sigruðu HK menn í tveimur leikjum af þremur og vinna á því, þ.e. ef bæði lið enda með jafnmörg stig eftir lokaumferðina.
13.4.07
Þó að rigni stríðum straumi
stingur birtan sér í gegn.
Þetta er eins og í dúndur draumi
dæmalaust góð fregn.
Dagur lengist meir og meir
mikið er það flott.
Bleytan breytir mold í leir
bráðum verður gott.
Sumarið er handan við hornið
hækkar sólin daglega.
Ekki svo slæmt fyrir íslenska kornið
sem ég nota "glaðlega".
12.4.07
Það var engin kóræfing í gærkvöldi þar sem við erum búin að vera í miklum kórönnum undanfarið og það er heldur engin messa næsta sunnudag. Við tvíburahálfsysturnar ákváðum samt að nota kvöldið til að hittast og taka nokkur saumspor. Um hálfátta fékk ég SMS. Hmm, hugsaði ég með mér, það var bæði verið að draga í SIBS og HHÍ". Skilaboðin voru reyndar frá tvíburahálfsystur minni sem stakk upp á því að byrja á því að fara í smá göngutúr. Ég tók vel í það, var mætt til hennar um hálfníu og við tókum uþb 45 mín göngu. Á eftir fengum við okkur kaffi, rúsínur (óhúðaðar), hnetur og döðlur. Svo var saumað, þ.e. ég saumaði en hún var í einhverju basli með saumaverkefnið og þurfti að rekja upp til að laga. Kvöldið leið fljótt eins og alltaf þegar við hittumst. Ég passaði mig á að stoppa ekki of lengi þar sem það var jógatími í morgun. Var komin heim um ellefu.
Davíð ákvað að fara að sofa um leið og ég en það gerist ekki oft þessa dagana og mér skilst á honum að það verði eitthvað lítið um svefn næstu vikuna þar sem hann (og fleiri) eru að setja upp nýtt kerfi fyrir einn kúnnan, kerfi sem á að fara í notkun um miðja næstu viku.
10.4.07
Mætti eldhress í jóga í morgun, ein af fimm. Nú er að hefjast sjöunda vikan af átta og aðeins fjórir tímar eftir þar sem það er rauður dagur í almanakinu þann 19. n.k.
Tvíburarnir björguðu sér einir heima frá klukkan ellefu í morgun. Davíð var að vinna, hér heima, til klukkan að verða fimm í morgun og svaf til tíu. Það ætlar bara ekki að linna þessari törn. Hann hefði getað verið að vinna alla páskana og gerði það næstum því. Hann vann ekkert á laugardaginn var og bara til hádegis á páskadag. Hvar endar þetta eiginlega? Það fer að verða kominn tími á sumarbústaðaferð til að "vinda" ofan af sumum.
9.4.07
Þegar ég kom heim voru tvíburarnir búnir að finna eggin sín. Davíð var að vinna og ég ákvað að leggja mig um stund. Um hádegisbil dró ég manninn frá tölvunni og við brunuðum öll austur. Hittum Helgu, Ingva og stelpurnar rétt í svip áður en þau fóru í heimsókn til frændfólks. Þau komu við í bakaleiðinni og fékk Hulda að verða eftir til að geta leikið sér við frændur sína. Hún kom svo með okkur þegar við fórum aftur í bæinn um kvöldið.
7.4.07
Gærdagurinn gekk annars bara mjög vel fyrir sig. Stór hluti af honum fór fram í tveimur kirkjum, í Kópavogskirkju milli hálftíu og rúmlega tólf og í Kirkju Óháða safnaðarins frá hálfsjö til rúmlega hálftíu. Fyrri flutningurinn tókst alveg með ágætum. Kórstjórarnir sögðu eftir á að það hefðu verið ein tvö eða þrjú slys hjá okkur en enginn af kirkjugestum hafði tekið eftir þeim og var samt einhver þar á meðal sem er tónlistamenntaður. Okkar kór mætti á undan um kvöldið og æfði aðeins fyrir páskamessuna. Kópavogskórinn kom klukkutíma seinna og við renndum saman yfir kvöldið. Þau ákváðu að syngja með okkur sálmana á milli píslasögukaflanna. Við sungum m.a. "Ég kveiki´ á kertum mínum" í röddum og það þótti svo flott að það hríslaðist léttur hrollur um amk suma kirkjugesti. Eftir lesturinn var altarisganga og svo hreinsuðum við allt af altarinu. Flest ljós voru slökkt og Pétur, kórstjórinn sem er að hætta og Ragnar, einn af meðhjálpurunum komu inn með logandi á sjö kertum og var slökkt á einu í senn eftir hverja setningu sem Jesús sagði á krossinum. Svo var stillt upp fyrir "Litlu orgelmessuna" og "Ave verum corpus". Ljós var kveikt við orgelið og einnig þannig að við kórarnir gætum séð á nótur en það gleymdist að sjá til þess að stjórnendur hefðu ljós svo þær urðu að stjórna okkur í blindni. En það tókst samt furðanlega og mér skilst á þeim sem höfðu líka mætt í Kópavogskirkjuna að flutningurinn hefði síst verið verri. Eftir þennan seinni flutning og margra vikna æfingar komst ég að því að ég kann þetta orðið utan að að mestu, amk tvo af köflunum og mest allt úr hinum tveimur.
6.4.07
5.4.07
Fór á aukaæfingu í Kópavogskirkju í gærkvöldi. Kvöldinu áður hafði verið ákveðið að æfa í Óháðu kirkjunni en kirkjukór Kópavogs ætlaði að æfa páskamessuna eftir þessa æfingu og þar sem það gekk svona brösuglega sl. þriðjudagskvöld vildi organistinn þeirra vera aftur þar. Það var í góðu lagi. Það átti greinilega ekki að fara framhjá mér að æfingin ætti að vera í Kópavogi því seinni partinn í gær var ég búin að fá þrjá tölvupósta (tvöfalt hjá einum) og þrjú símtöl. Eftir upphitun sagði Adda svolítið við okkur sem Kristni þótti ástæða til að punkta hjá sér. Hann mun líklega segja frá í næsta annál hvernig við lærðum að hugsa tónana út um eyrun.
Ef ykkur vantar eitthvað að gera á morgun þá flytja kórarnir litlu orgelmessu Haydens að hluta (4 kafla af sex) eftir messu í Kópavogskirkju í fyrramálið og aftur í Óháðu um kvöldið. Morgunmessan byrjar klukkan ellefu svo ég geri ráð fyrir að verkið verði flutt um tólf. Kvöldmessan hefst hálfníu og verður verkið flutt í athöfninni.
4.4.07
2.4.07
Mætti í rópið á laugardagsmorguninn. Eftir tímann og sturtu heima skrapp ég til norsku esperanto-vinkonu minnar og lásum við saman hálfa kínverska sögu á esperanto. Náði að sjá síðustu mínúturnar í leik Liverpool og Arsenal og svo allan seinni hálfleikinn. "Mínir menn" voru langtum betri og unnu 4-1. Munaði þar mest um Crouch sem skoraði þrennu, hvert markið öðru fallegra. Um kvöldið fórum við hjónin í fertugsafmæli og vorum þar í svo góðu yfirlæti fram eftir kvöldi og fram á nótt að við vorum síðustu gestirnir til að fara.
Í gær var ég mætt í á kóræfingu klukkan tólf og um tvo var fermingamessa þar sem fermd voru 9 börn. Allt gekk vel fyrir sig. Fljótlega eftir að ég skilaði mér heim fórum við hjónin í heimsókn til einnar vinkonu minnar. Davíð var búinn að samþykkja að hreinsa eina lapptölvu og uppfæra vírusvörnina á henni. Hann hófst handa um fimmleytið og ég varð að draga hann í burtu upp úr tíu en hann náði ekki að klára alveg og hefði líklega helst viljað vera þangað til hann var búinn.