- Verkefni drengjakórsins v/Frostrósa lokið -Það voru langir og strangir dagar hjá strákunum í drengjakór Reykjavíkur í gær og fyrradag.
Davíð Steinn fékk frí úr skólanum á hádegi á mánudag. Hann bjargaði sér sjálfur og mætti á réttum tíma á æfingu í
Ýmishúsinu. Eftir æfinguna fór hann beint í afmælisboð til eins bekkjarbróður síns. Ég tók mér frí úr vinnunni á þriðjudaginn og í gær. Um tíuleytið á þriðjudagsmorgun kíktum við í vinnuna hans
afa. Hann hafði sett sig í samband við mig og bauð mér að sækja til sín esperanto-orðabækur sem ég þáði með þökkum. Við fengum leiðsögn um vinnustað afa og höfðum við mjög gaman að.
Takk, enn og aftur afi!Um hálftólf var ég mætt í Laugardalshöllina með drenginn. Staldraði við í næstum hálftíma en skrapp svo frá. Var komin aftur um hálftvö að sækja strákinn en æfingunni seinkaði aðeins og lauk ekki fyrr en rúmlega tvö. Skrapp með strákinn á
Hárhornið í klippingu en svo fórum við heim og höfðum það rólegt. Þegar
Oddur Smári kom úr skólanum sagði ég að frjálsíþróttirnar myndu örugglega falla niður þar sem búið var að stilla upp fyrir tónleikana í salnum þar sem æfingin fer fram.
Oddur fór því yfir til vinar síns. Ég sá til þess að söngfuglinn mætti ekki svangur á alvöruna seinnipartinn. Skilaði honum af mér rúmlega fimm og var hann í höllinni næstu sex tímana. Það var þreyttur drengur sem sofnaði strax og hann lagðist útaf upp úr klukkan hálftólf þetta kvöld.
Í gærmorgun rumskaði
Davíð Steinn um níu, opnaði pakkann við númer 6 á klukkustrengnum, skrapp á salernið og kom svo upp í til mín. Hann steinsofnaði aftur og vaknaði ekki fyrr en tveimur tímum seinna. Að þessu sinni átti hann að mæta um hálfeitt í Hallgrímskirkju. Ég var á svæðinu til að byrja með en skrapp svo í bankann og á bókasafnið (
einni bókanna sem ég náði í síðast átti að skila fyrir 9. des.).
Oddur og Dagur vinur hans komu saman heim úr skólanum um tvöleytið. Ég bauð
Degi að leika sér í tölvunni og bíða eftir okkur og fékk
Odd með mér í
Hárlausnir. Strákurinn komst strax að. Þegar við komum til baka var pabbi kominn. Ég var búin að bjóða honum á sjónvarpstónleikana og biðja hann um að kippa mér með upp í kirkju. Við mættum þangað fyrir fjögur, og hittum eina vinkonu mína sem ég var líka búin að bjóða, en upptökutónleikarnir áttu að hefjast um hálffimm. Klukkan var reyndar farin að ganga sex þegar allt fór í gang. Rétt áður söng karlakórinn eitt lag því þeir voru búnir að bíða uppi á pöllunum í rúmar tuttugu mínútur. Það er ekki oft sem maður fær aukalagið á undan. Næstu tvo tímana fengum við magnaða tónleika. Tvö laganna þurfti að endurtaka aftur vegna mistaka hjá söngfólkinu en
strákarnir klikkuðu aldrei.
Á meðan þessu fór fram tók
Oddur Smári gráðu upp í hálft rautt belti og gerði það með glans. Eftir tónleikana fór ég næstum beint á kóræfingu (kom við heima til að skipta um föt og kippa með mér kórmöppunni (
tók reyndar vitlausan poka með mér en það kom ekki að sök)). Um leið og ég var laus af kóræfingu fór ég upp í kirkju. Strákarnir voru samt ekki búnir fyrr en um hálfellefu. Minn var alveg búinn á því, hafði þurft að berjast við að hósta ekki síðustu mínúturnar og þegar allt var búið barst hann í grát. En strákarnir eiga hrós og rós í hnappagatið skilið fyrir frammistöðu sína undan farna daga.