Síðasti dagur sjötta mánuðar ársins er næstum búinn, 181 dagar að verða liðnir og 184 dagar eftir. Er það ekki magnað? Og árið sem er rétt nýhafið. Ég fékk bréf í vikunni frá ensku pennavinkonu minni og jafnöldru. Hún hafði nokkur orð um margt af því sem ég skrifaði henni í jólabréfinu og með hennar bréfi sendi hún einnig tvær myndir af sér. Á annarri myndinni var hún úti að borða með manninum sínum og á hinni var hún með vinkonu sem var að fara í fallhlífarstökk.
Hitti Brynju vinkonu á miðvikudaginn. Hún sótti mig heim um fimm og við skruppum á Gló í Hæðarsmára þar sem við fengum okkur grænmetislasanja og gleymdum tímanum við spjall næstu rúmlega þrjá tímana.
Síðasta messa fyrir sumarfrí var gúllasmessa sl. sunnudagskvöld kl. sex. Ætlum að prófa að hafa hana aftur á sama tíma að ári og sjá svo til hvort við munum halda okkur við þann tíma en fram að þessu voru þessar gúllasmessur, kl.11:00 fh. fjórða sunnudag í júní mánuði. Nú á heimasíðu og útgáfunefndin eftir að taka saman efni í safnaðarfréttirnar og setja í uppsetningu og prentun þannig að blaðið komi út fyrri partinn í ágúst.
Er annars búin að skreppa austur og vera yfir eina nótt allar helgar eftir hvítasunnuhelgina. Laugardaginn 10. júní fylgdi ég fyrrum nágranna foreldra minna, konu sem varð níræð í mars. Eftirlifandi maki hennar verður 97 ára 12 júlí n.k. Þessa sömu helgi var bongóblíða á Hellu. Ég sat um stund með prjónana mína á pallinum sunnan við hús foreldra minna og allt að því brann á bringunni.
Margt annað hefur drifið á daga mína, t.d. skrapp ég í bókasafnið. Kom líklega með heldur margar bækur með mér til baka þótt þær hafi ekki verið eins margar og ég tók hér áður fyrr. Málið er að nú fer miklu, miklu meiri tími í prjónaskap en lestur. Er einnig búin að fara 4 ferðir í sjóinn en mætti vera duglegri við það. Það fara að nálgast tvær viku síðan ég fór síðast. Mitt mottó er að fara helst þegar er dumbungur, þá er líklegar að mun færri mæti þótt það séu nú alltaf einhverjir að stunda þetta daglega.