2.4.26

Skírdagsmorgun

Já, það fór svo að ég tók ekki fram tölvuna og setti inn færslu eftir að ég kom heim úr vinnu, osteostrong og sjóbusli í gær. Erilsamt var í vinnunni og aðeins einn skoðunarmaður, ungi stöðvarstjórinn. Hann skoðaði yfir 40 bíla í gær. Það voru líka þó nokkrir sem komu eingöngu til að fá skráða kílómetrastöðuna, það var alfarið á minni könnu en ég þurfti þó ekki að fara út og lesa af. Fólk kom með myndir í símanum eða tölur niðurskrifaðar á blað. Eitthvað var um símsvörun, tölvupóst og "tidio-spjallaviðmanneskju". Inn á milli gafst þó tími til að spjalla við suma kúnnana á meðan þeir biðu eftir að bílar þeirra væru skoðaðir. Stimpluðum okkur út, lokuðum og læstum rétt rúmlega hálffimm. Ég fór beint yfir í Hátúnið, hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni. Það kom í ljós að hann hafði gert sér ferð á Selfoss til að fylla á tankinn, versla og svo kom hann við í afgreiðslunni hjá frumherja á Selfossi og fékk skráða km stöðuna án þess að vera rukkaður fyrir þar sem hann nefndi mig á nafn. Ísland.is appið var dottið út hjá honum svo þetta var það besta í stöðunni. Eftir osteostrong tímann fór ég beinustu leið í Nauthólsvík, þar beið kaldapotts vinkona mín eftir mér en hún hafði haft samband fyrr um daginn til að fá það staðfest að ég ætlaði í sjóinn. Við fórum þrisvar sinnum út í 1,4°C sjóinn, þar af tvisvar sinnum í lónið. Það var flóð og stutt út í. Ég var komin heim rétt fyrir sjö. Fékk mér afgang af fiskibollum og sætri kartöflu og plammaði mér svo fyrir framan imbann, var aðallega að horfa á þætti úr sarpi sjónvarps símans. Einhvern tímann upp úr klukkan átta flögraði að mér að taka fram tölvuna og setja inn færslu. Gleymdi mér svo á áhorfinu. Fór í háttinn um tíu. Hálfleysti eina sudoku og las svo smá stund í; Undantekningin eftir Auði Övu Ólafsdóttur.