Ég tók ákvörðun í gærkvöldi að stilla vekjaraklukkuna ekki á "mætaísundfyrirvinnu-tíma", heldur klukkutíma seinna. Var meðvituð um það að ég fór alltof seint að sofa. Rumskaði einu að síður lauslega um hálffimm en steinsofnaði strax aftur. Vaknaði svo fimm mínútum áður en klukkan átti að hringja. Mætti í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Ungi stöðvarstjórinn mætti á slaginu átta og afleysinga-skoðunarmaðurinn nokkrum mínútum seinna, á sínum síðasta degi í vinnu hjá frumherja. Það var næstum jafn erilsamt í dag og í gær. Fór beint heim eftir vinnu og gerði mest lítið af mér. Samt er tíminn floginn hjá, alltof hratt.
31.3.26
30.3.26
Erilsamt í vinnunni í dag
Þar ég fer orðið í sund eftir vinnu á mánudögum hafði ég stillt klukkuna á að ýta við mér tuttugu mínútum fyrir sjö. Ég var hins vegar vöknuð um hálfsex. Notaði tímann í smá lestur og þegar ég fór á fætur gerði ég nokkrar æfingar með 2kg lóðum. Fékk mér chiagraut í morgunmat og var mætt í vinnu um hálfátta. Skoðunarmennirnir voru báðir mættir nokkrum mínútum fyrir átta og klukkan var nýorðin átta þegar byrjaði að streyma inn í skoðun. Þeir fengu ekki pásu fyrr en um tíu og sú pása var frekar stutt. Það voru skoðaðir yfir tuttugu bílar fyrir hádegi. Einn af þeim sem kom með bíl kunningja síns í skoðun var "draugur" úr fortíðinni, Guðmundur Skúli Jonhsen og var hann með tvær yngstu dætur sínar með sér. Fyrir utan allar skoðanir, en þær urðu 65 í heildina (og vorum við samt ekki hæst af frumherjastöðvunum), var svolítið að gera í símsvörun, netspjalli, móttöku númera og uppflettingum. Ég stimplaði mig út rétt rúmlega hálffimm, á undan skoðunarmönnunum sem voru að klára að skoða síðasta bílinn áður en þeir myndu ganga frá og loka. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég keyrði yfir í Laugardalslaug. Hann fór í sund í morgun og sagði að það hefðu ekki allir plástrar skolast af sárinu sem var límt saman eftir fallið í síðustu viku. Sundferðin gekk vel og hann var ánægður að vera kominn aftur í venjulega rútínu. Kalda potts vinkona mín sendi mér skilaboð um að líklega yrði hún frekar sein því hún átti von á símtali sem hún varð að bíða eftir. Það fór svo að símtalið kom ekki fyrr en á sjöunda tímanum en þá var ég búin að synda 500m, fara 4 sinnum í þann kalda, 2 sinnum í þann heitasta, sjópottinn og gufuna og kominn upp úr. Kom heim stuttu fyrir sjö og ákvað að setja bílinn í samband. Hann var kominn niður í 38%. Núna tæpum tveimur tímum síðar er hann kominn í 62% og er ég að hugsa um að hafa hann í hleðslu í ca einn og hálfan tíma í viðbót.
29.3.26
3 réttir á lottó-áskriftamiða aðra vikuna í röð
Svaf til klukkan að verða hálfátta í morgun. Um níu var ég búin útbúa hafragraut, tvo skammta. Annan skammtinn setti ég inn í ísskáp. Um tíu var ég mætt á fámennan en góðmennan fræðslufund í Grafarholtinu. Eftir fundinn ákvað ég að skreppa í heimsókn til frændfólks sem býr í Sæviðarsundi. Maðurinn og mamma voru systkynabörn. Konan hans hefur verið að glíma við heilsuleysi sl. mánuði, sennilega einhver vírus sem getur tekið langan tíma að vinna á. Stoppaði hjá þeim í rúma klukkustund. Næst lá leiðin í Kringluna. Lagði í bílakjallaranum skammt frá bókasafninu og þurfti aðeins að bíða í nokkrar mínútur eftir að klukkan yrði og og það opnaði. Skilaði næstum því öllum bókum sem ég var með þótt ég væri ekki búin að lesa þær allar. Náði mér í þrjár mjög ólíkar bækur og eina í viðbót úr skilabókunum. Það kom í ljós að bókasafnsskírteinið var útrunnið en það var einfalt mál að endurnýja það. Ein í afgreiðslunni skannaði skírteinið og rukkaði mig um 3.300kr og svo gat ég afgreitt mig um bækurnar sjálf. Fór með pokann út í bíl áður en ég fór aftur inn í Kringlu. Rölti aðeins um en endaði svo á að nýta aftur gjafakortið sem ég fékk í jólagjöf í vinnunni og verslaði smá í Bónus. Á útleiðinni hitti ég einn fyrr um vinnufélaga hjá RB sem sagði það helst í fréttum að hann væri hættur þar, sestur í þennan "helga stein". Lagði bílnum á efra planið þriðja daginn í röð. Hleðslan stendur í tæp 50% og það ætti að duga til þriðjudags.
28.3.26
Dagurinn leið hratt
Vaknaði upp úr klukkan sex. Fór þó ekki á fætur fyrr en klukkan var að verða hálfátta. Samt var ég mætt í Laugardalslaugina um það leyti sem opnaði. Synti 600m, þar af nokkrar ferðir á bakinu. Eftir þrjár ferðir í kalda pottinn, eina í þann heitasta, dágóða stund í gufu og nokkrar mínútur í sjópottinum fór ég í heita (volga) og kalda sturtu. Skolaði á mér hárið en notaði ekki sápu eða sjampó. Var mætt á Sólvallagötuna um tíu. Stakk bílnum í samband og hafði hann í hleðslu á meðan ég var í espó hittingnum. Ein frænka mín og jafnaldra hafði samband á FB-spjallinu og spurði hvort ég væri heima. Svarið mitt var neitandi en að ég yrði komin heim um hádegisbilið og þá bað hún mig um að hafa samband þegar ég væri komin heim. Móðurafi þessarar frænku minnar var föðurbróðir minn. Ég var komin heim rétt fyrir tólf. Hitti fyrrum vinnufélaga í anddyrinu en hann hafði verið á opnu húsi í íbúð á annarri hæðinni. Innan við klukkutíma eftir að ég lét frænku mína vita að ég væri komin heim var hún mætt. Hafði komin gangandi úr Seljahverfinu. Hún gerði gott stopp, langt síðan við hittumst síðast og höfðum um margt að spjalla. Hún kvaddi upp úr klukkan þrjú og komst örugglega heim áður en veðrið versnaði. Afgangurinn af deginum fór í alls konar mis gáfuleg dæmi. M.a. í að leysa sudoku úr nýjasta sudoku-frístund blaðinu sem ég keypti í Hagkaupsskreppunni eftir vinnu sl. fimmtudag.
27.3.26
Föstudagur
Ég var mætt í sund um hálfsjö í morgun. Rútínan var svipuð nema ég synti hluta af ferðunum á bakinu. Held að ég geti nú alveg gert meira af því, því það skiptir ekki máli lengur hvort ég er að fara þvo mér um hárið eða ekki. Get alveg tekið af mér sundhettuna og leyft vatninu að skella á stuttu hárinu án þess að þurfa endilega að setja sápu í það. Var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta og búin að hella upp á áður en skoðunarmennirnir mættu nokkrum tæpu korteri á eftir mér. Skoðanir dagsins fóru yfir 40, meirihelmingurinn eftir hádegi en þrettán bílar voru skoðaðir fyrir hádegi. Eftir vinnu lá leiðin yfir á Sléttuveg þar sem fyrrum kórfélagi og konan hans buðu félögum úr KÓSÍ heim. Ég var síðust af sex gestum, fjögur komust ekki og þrjú eru fallin frá. Áttum saman notalega stund. Margt var spjallað og rætt og "Sann-"Kristinn, gestgjafinn sagði líka nokkra óborganlega brandara. Rétt eftir að ég var mætt á staðinn hringdi gemsinn, sendi skilaboð til baka. Hringdi svo í viðkomandi og spjallaði við hana á meðan að ég var á leiðinni heim. Þetta var ein af fyrstu sundvinkonunum. Hún er komin yfir áttrætt en það er alltaf gaman að spjalla við hana.
26.3.26
Lokað í sund í morgun
Ég var vöknuð upp úr klukkan fimm í morgun. Veðrð var ekkert spes en alls ekki svo slæmt. Var eitthvað að spá í að skrópa í morgunsundið og hefði betur gert það því vegna veðurviðvörunar og vinsamlegum tilmælum frá lögreglu var er opnað í sund fyrr en eftir hádegið. Ég var samt ekki sú eina sem mætti. Það kom ekki til greina að fara heim aftur og of snemmt var að mæta í vinnuna. Ég brá á það ráð að fara að Olís við Álfheima og tengja bílinn við hraðhleðslustöð í tæpan hálftíma. Fékk mér örstuttan göngutúr á meðan. Var svo mætt í vinnu um hálfátta, búin að hlaða bílinn um 40% í 77%. Mjög rólegt var í skoðunum fram að hádegi, þó komu 4 bílar í skoðun og einn af þeim í bæði aðal- og breytingaskoðun. Notuðum tímann milli ellefu og tólf í að byrja tiltekt í númeraplötugeymslunni. Eftir hádegi voru alls 22 skoðanir þannig að í heildina voru skoðaðir 27 bílar. Einhverjir voru sendir til okkar úr Klettagörðum því skoðunarmennirnir á þeirri stöð voru veðurtepptir. Eftir vinnu kom ég aðeins við í Hagkaup í Skeifunni. Var komin heim upp úr klukkan sex.
25.3.26
Stutt dagsskýrsla
Ég var mætt í vinnu um hálfátta leytið. Alls voru skoðaðir 45 bíla í dag, rúmlega helmingurinn eftir hádegi. Nóg var að gera í Tidio-spjallinu og ég þarf endilega að fara að athuga hvort ég er ennþá ein að grípa "tala við manneskju" boltann. Um ellefu hringdi ég í pabba í heimasímann úr vinnusímanum. Hann svaraði ekki fyrr en ég hringdi úr gemsanum í gemsann hans. Lét vel af sér en er með stærðar glóðarauga. Hann var að fara að huga að því að taka bílinn úr skúrnum og skreppa í mat í Kanslarann. Á leiðinni úr vinnu og yfir í Hátúnið í osteostrong tíma hringdi ég í báða strákana og sagði þeim frá hvað gerðist í gær. Styrktartíminn gekk annars mjög vel, bætti mig á þremur tækjum af fjórum. Og svo fór ég að sjálfsögðu í Nauthólsvíkina. Fjara og sjórinn -0,6°C. Mega hressandi að skella sér tvisvar út í. Kom heim um sjö.
Gleymdi mér aðeins í gærkvöldi
Stuttu eftir að ég rumskaði rétt fyrir klukkan sex í morgun sló það mig aðeins út af laginu að ég hafði ekkert tekið fram fartölvuna eftir að ég kom heim úr vinnu í gær. Sem þýddi að ég hafði ekki skráð niður daginn. Ekkert hættulegt svo sem og ef ég spái aðeins í það þá eru sumir dagar bara rútínudagar og þar af leiðandi bara sífelldar endurtekningar með mismunandi blæbrigðum.
Gærdagurinn hófst klukkan korter í sex þegar vekjarinn ýtti við mér. Var mætt í sund klukkan hálfsjö. Synti 300m, fór þrjár ferðir í kalda, eina í heitasta og eina í sjópottinn. Skolaði stutt hárið úr volgu og köldu vatni og setti á mig höfuð handklæði á meðan ég þurrkaði kroppinn og klæddi mig. Þegar ég mætti í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta var ungi stöðvarstjórinn þegar mættur og var að sinna tiltekt. Hann var þá þegar búinn að skutlast með konuna sína út á flugvöll en hún var að skreppa til Írlands í nokkra daga til að heimsækja ættingja sína. Yfir þrjátíu bílar voru skoðaðir í gær, fleiri bílar skoðaðir milli hálfeitt og hálffimm heldur en milli átta og hálftólf.
Hringdi í pabba þegar ég var á leiðinni heim eftir vinnu og eftir smá spjall sagði hann mér að hann mætti ekki mæta í sund næstu vikuna. Ástæðan var sú að hann datt í skúrnum rétt eftir hádegið, þegar hann ætlaði að fara að moka snjó af stétt og plani, og fékk gat á hausinn. Hann varð að fara á heilsugæslun til að láta líma sig saman og lappa upp á sig. Ég gleymdi að spyrja hann hvort hann væri búinn að láta starfsfólkið í sundlauginni vita. Ef ekki hafa þau væntanlega hringt í hann áðan því mér skilst að það sé hægt að stilla klukkuna eftir honum og ef hann er ekki mættur á sínum tíma og hefur ekki látið vita er hringt, jafnvel mætt til hans. Gott að vita af þeim öryggisventli.
Annars hringdi ég svo tvö símtöl í gærkvöldi. Annað í Helgu systur að láta hana vita um pabba og svo í eina fyrrum samstarfskonu mína úr kortadeildinni. Hún færði mér sorglegar fréttir af kisunni sinni, varð að láta svæfa hana í síðasta mánuði vegna alvarlegrar nýrnabilunar.
En hvort það voru þessi símtöl eða það að fartölvan er geymd inn í skáp, sem urðu til þess að færsla féll niður í gær veit ég ekki. Veit heldur ekki hvort ég sleppi færslu þegar ég kem heim eftir vinnu, osteostrong og sjósund í kvöld. Það verður bara að koma í ljós.
23.3.26
Gular viðvarandi
Var komin á fætur upp úr klukkan hálfsjö. Gerði nokkrar æfingar með 1,5kg lóðunum, las í fræðunum og fékk mér afgang af hafragraut í morgunmat um sjö. Hitaði bílinn á meðan ég tannburstaði mig og var mætt í vinnu um hálfátta. Fyrsti bíll kom í skoðun á slaginu átta rétt eftir að ungi stöðvarstjórinn mætti til vinnu. Afleysingaskoðunarmaðurinn kom fljótlega og voru 14 bílar skoðaðir fram að hádegi en þeir urðu 33 í heildina. Afgreiðslu störfin voru fjölbreytt, leysti úr flestu en fékk aðstoð í þremur mismunandi tilfellum. Við lokuðum á slaginu hálffimm og ég fór beinustu leið í sund. Kaldapotts vinkona mín var búin að senda 100 þegar ég mætti á braut 8. Ég synti 3 ferðir, 300 og svo fórum við alls fjórum sinnum í þann kalda, tvisvar í heitasta pottinn, langa gufuferði og næstum því jafnlanga ferð í sjópottinn. Heim heim stuttu fyrir sjö og bjó mér til plokkfisk úr matnum frá í hádeginu í gær. Á smá afgang eftir af honum sem ég mun líklega klára kaldan annað kvöld.
22.3.26
Áttugastiogfyrsti dagur ársins
Ég vaknaði stuttu fyrir sjö en fór ekki framúr fyrr en klukkan var byrjuð að ganga níu. Oddur Smári var vaknaður en þó ekki kominn á fætur. Fljótlega ákvað ég að útbúa hafragraut og sá grautur stóð með okkur mæðginum til hádegis. Þá bauð ég upp á soðna ýsu, nokkrar soðnar nætursaltaðar gellur og soðnar kartöflur. Annars vorum við Oddur bara slök. Upp úr hádeginu fékk hann það staðfest að Davíð Steinn ætlaði að skutla honum austur seinni partinn. Dagurinn leið ágætlega hratt. Oddur kvaddi rétt fyrir fimm, þá var bróðir hans um það bil að renna að húsinu. Davíð Steinn hringdi í mig rétt eftir að þeir keyrðu burt frá blokkinni til að kasta aðeins á mig kveðju. Sjálf hringdi ég í pabba skömmu síðar til að taka stöðuna á honum. Hann var bara sprækur, lét vel af sér og sagðist vera í miklum krossgátugír.
21.3.26
Laugardagur
Vaknaði um hálfsjö leytið. Var komin í laugardalinn á slaginu átta. Rétt áður hringdi Oddur Smári í mig og var hann m.a. að athuga hvort hann gæti fengið gistingu aftur sem var alveg sjálfsagt mál mín vegna. Synti 500m á braut 7, meiri hlutann á bakinu, fór þrjár ferðir í þann kalda, góða gufuferð og nokkrar mínútur í sjópottinn. Þvoði mér um hárið, í fyrsta skipti síðan ég var klippt. Þrátt fyrir stutt hár notaði ég höfuðhandklæðið. Þegar ég var á leiðinni út í bíl sá ég skilaboð frá esperanto vinkonu minni sem frestaði hittingnum. Ég var því komin heim aftur um tíu leytið. Einhverra hluta vegna fór ég ekkert út aftur en var að sýsla við ýmislegt. Oddur hringdi aftur rétt fyrir sex og spurði hvort ég væri búin að borða. Einhverra hluta vegna var ég ekki búin að elda úr ýsunni sem keypti í fiskbúðinni í gær. Hún er enn í ísskápnum. Bræðurnir komu með mat með sér, höfðu komið við á einum stað í Smáralindinni. Við borðuðum saman og Davíð Steinn stoppaði aðeins lengur á meðan hann hlóð símann sinn á hraðhleðslubanka bróður síns. Klukkan var samt ekki orðin hálfátta þegar hann kvaddi. Það mun svo ráðast á morgun hvort Oddur tekur strætó til baka austur eða hvort bróðir hans skutli honum.
20.3.26
Vinnuvikan liðin
Rumskaði stuttu áður en vekjarinn fór í gang. Dokaði við í stutta stund, snúsaði vekjarann en tveimur mínútum fyrir næsta ræs var ég búin að slökkva og byrjuð að undirbúa mig undir daginn. Forhitaði bílinn fimm mínútum áður en ég fór út og var mætt á planið við Laugardalslaugina í þann mund sem verið var að opna og hleypa inn. Synti 300m á braut 7. Eftir tvær ferðir í þann kalda hitti ég eina vinkonu í sjópottinum. Við fórum upp úr á sama tíma. Um það leyti sem ég var að fara að leggja af stað í vinnuna var óvenju mikið um sírenuvæl. Hugsaði ekki meir út í það fyrr en ég sá á einhverjum fréttamiðlinum hvað hafði gerst, sá það samt ekki fyrr en rúmum klukkutíma síðar. Annars var ívið meira rennerí í skoðun fyrri partinn en líka alveg nóg að gera eftir hádegi. Lokuðum á slaginu fjögur og ég fór beinustu leið í fiskbúð Fúsa áður en ég fór heim. Það var blint á köflum í umferðinni og hún því extra hæg. Allt gekk þó vel fyrir sig. Hringdi og spjallaði við pabba á heimleiðinni. Ákvað svo að stinga bílnum í samband þótt enn væru rétt rúm 40% eftir af hleðslunni. Helga systir hringdi í mig um hálfníu leytið með síðbúnar afmæliskveðjur og fréttir af þeim fyrir norðan. Ingvi mágur er búinn að fá aðra vinnu, byrjar eftir páska. Eftir símtalið við Helgu ákvað ég að hringja í eina fyrrum samstarfskonu og átti gott spjall við hana. Klukkan var að verða tíu þegar ég stoppaði loksins hleðsluna eftir fimm tíma á staurnum, fór út, gekk frá kaplinum og færði bílinn í annað stæði.
19.3.26
Aðalfundur
Þegar vekjarinn fór að hamast korter fyrir sex var ég alls ekki tilbúin að fara á fætur og í sund. Kúrði áfram til klukkan hálfsjö og var mætt í vinnu um hálfátta. Mjög rólegt var fram að hádegi innan við tíu bílar skoðaðir en eins og í gær uðru þeir 30 á endanum. Hringdi og spjallaði við pabba á meðan ég var á leiðinni heim úr vinnu. Lagði á efra planinu og var komin heim stuttu fyrir fimm. Í stað þess að hvíla mig aðeins og eða að setja inn færslu fékk ég mér að borða og horfði á einn nýja þátt í Chicago Med áður en ég fór í fundarfötin og lagði af stað á fund. Var mætt á staðinn fyrir klukkan hálfsjö og komin heim aftur rétt fyrir hálftíu.
18.3.26
Annar í afmæli eða þannig
Var komin á fætur fyrir klukkan hálfsjö, vöknuð mun fyrr þó. Það var ágætis tími til að sinna morgunrútínunni og fleira til. Mætti í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Morguninn var frekar rólegur, innan við tíu bílar skoðaðir þeir urðu þó þrjátíu áður en vinnudegi lauk. Fór beinustu leið í osteostrong eftir vinnu, gerði vel á öllum tækju og slakaði svo vel á á eftir áður en ég fór í Nauthólsvík. Þar var engin ferð á logninu, flóð og sjórinn 1,6°C. Fór tvisvar sinnun út í, gufu á milli ferða og smá stund í pottinn eftir seinni ferðina. Kom heim stuttu fyrir klukkan sjö. Þá var bíllinn kominn niður í 28%. Það var laust á staurnum sv ég bakkað að, stakk í samband og hóf hleðslu. Var nýkomin inn í íbúð þegar ég sá tilkynningu um að hleðsla hefði stöðvast. Varð að fara út aftur og það tók rúmar fimm mínútur að koma hleðslunni af stað aftur. Nú rúmum tveimur og hálfum tíma síðar er bíllinn kominn í 61%. Ætla helst að fara með hann upp í 80% en vil helst ekki fara of seint að sofa og alls ekki hafa bílinn tengdan í alla nótt þótt. Veit að ég á að geta séð til þess að hleðsla stoppi eftir eða á ákveðnum tíma en samt, ég vil ekki hafa hann tengdan við staurinn í marga klukkutíma. Annars er ég búin að fá fullt af afmæliskveðjum í dag.
17.3.26
21.184 dagar síðan ég fæddist
Þrátt fyrir að hafa farið að sofa með seinni skipunum eða einhvern tíman á tólfta tímanum í gær var ég að byrja að losa svefn rétt áður en vekjaraklukkan hringdi korter fyrir sex. Fékk mér helming af afgangi af hafragraut síðan á laugardag og var mætt á braut 8 í Laugardalslaug tuttugu mínútum fyrir sjö. Synti 300m, fór þrisvar í þann kalda, einu sinni í heitasta og tæpt korter í sjópottinn, sleppti gufunni. Stimplaði mig inn í vinnu átján mínútum fyrir átta. Rétt á eftir mér mætti afleysinga skoðunarmaðurinn. Milli klukkan átta og hálfellefu komu aðeins tveir bílar inn til skoðunar. Ég skrapp í brjóstaskimum skömmu síðar og á þessum tæpa klukkutíma sem ég var í burtu (mesti tíminn fór í að finna stæði skammt frá Eiríksgötu 5) voru skoðaðir fjórir bílar þar af voru tveir nýskráðir. Í heildina voru skoðaðir 24 bílar í dag sem er með minnsta móti. Það var samt alveg nóg að sýsla hjá mér og dagurinn leið frekar hratt. Eftir vinnu skrapp ég aðeins í Krónuna í Skeifunni til að athuga hvort þar væri til kókosvatn. Því miður var það ekki. Svo kom ég við á PreppBarnum og tók heim með mér lítið Mexico box á þriðjudags tilboði.
16.3.26
Vaknaði stuttu fyrir klukkan sex, rúmum klukkutíma fyrir þann tíma sem ég hafði planað. Ég hafði því tíma til að lesa og lyfta ásamt morgunverkunum á baðherberginu og fá mér morgunmat. Mætti í vinnu um hálfátta. Hellti upp á, skúraði kaffistofuna og gólfið í klósettrýminu og startaði tölvukerfunum. Ungi stöðvarstjórinn mætti fimm mínútum fyrir átta og áður en klukkan var búinn að slá var einn búinn að skrá sig inn í skoðun, tveir bættust nær strax í röðina og sá fjórði mjög fljótlega. Afleysinga-skoðunarmaðurinn mætti rúmlega átta, hafði lagt af stað úr Hafnarfirðinum um hálfátta. Í heildina voru skoðaðir 46 bílar í dag, Ég stimplaði mig út á slaginu hálffimm og var ekki síðust út. Fór beint í sund. Varð að leggja bílnum lengra frá en safnað þá einhverjum skrefum. Kalda potts vinkona mín var búin að synda 100m þegar ég mætti á braut átta um fimm. Ég synti aðeins 200m áður en við vinkonurnar fórum að pottormast. Eftir sund lagði ég leið mína að Löðri við Vesturlandsveg og renndi bílnum í gegnum mannaða þvottastöðina. Kom svo við í Krónunni í Lindum og verslaði áður en ég fór heim.
15.3.26
Inni dagur í dag
Vaknaði rétt fyrir klukkan sjö en nennti ekki alveg strax á fætur. Sofnaði samt ekki aftur og veit ekki hvernig ég fór að því að hanga í rúminu alveg til klukkan að verða hálfníu. En ég náði meira að segja að klæða mig og búa um áður en ég fór og sinnti morgunverkunum á baðherberginu. Oddur var vaknaður. Ég bjó til hafragraut handa okkur og við sátum í dágóða stund við eldhúsborðið áður en við gengum frá eftir morgunmatinn og bjuggum um hann. Hann var ekki með neitt sérstakt á prjónunum en átti von á því að Davíð Steinn myndi skutlast með hann austur um fjögur leytið. Úr varð að við héldum spjalli áfram í stofusófanum, horfðum á nokkra þætti og upp úr hádeginu sauð ég nokkrar kartöflur og steikti tvö bleikjuflök. Stuttu fyrir hálffimm hringdi Davíð Steinn í Odd og sá síðarnefndi skilaði kveðju frá bróður sínum og kvaddi. Ég hefði auðvitað getað skroppið aðeins út í smá göngutúr en tíminn fór í allt annað.
14.3.26
Le droit humain
Ég var mikið að spá í að taka mér færslufrí í dag, sérstaklega þar sem dagurinn er að mestu helgaður félagsskap sem ég er nýlega gengin til liðs við. Félagsskap þar sem stunduð er mannrækt og gerir ekki greinarmun á kynjum, litarhætti, trú eða trúleysi, allir eru velkomnir en verða þó að vera tilbúnir í vinnuna. Ég er það nýgenginn í eina stúkuna að ég á margt eftir ólært en veit jafnfram að ég get líka gefið af mér. Milli klukkan ellefu og fjögur í dag var haldið sambandsþing og mættu fulltrúar úr öllum stúkum; frá Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og Reykjavík. Vissulega var dagurinn langur, og hann er ekki búinn enn því það er hátíðarkvöldverður á La Primavera í Hörpu í kvöld, en ég hefði alls ekki viljað missa af þessu. Þrátt fyrir að vera aðeins nýbyrjuð þá mátti ég leggja eitthvað til málanna. Hélt reyndar fyrst að ég hefði ekkert fram að færa en það kom á daginn að ég hafði alla vega eitthvað smá að segja, greip hamarinn tvisvar sinnum í mínum umræðuhóp sem var númer níu af níu hópum. Ég er nýkomin heim. Á von á Oddi sem er að fara í þrítugsafmæli í kvöld og ætlar að fá að gista. Hann verður vonandi kominn áður en ég verð sótt að öðrum kosti er hann upp á bróður sinn kominn með að fá húslykla lánaða. Davíð Steinn er búinn að vera með húslykla og lykil að geymslunni síðan við tæmdum snjallgeymsluna um miðjan janúar sl.
13.3.26
Ekki lengur með sítt hár
Klukkan var rétt orðin fimm þegar ég vaknaði í morgun. Ákvað að drífa mig bara á fætur og nota hluta af aukatímanum til að skipta um á rúminu. Var mætt á braut 7 í Laugardalslaug nítján mínútum fyrir sjö og synti ég 400 metra, flesta á bakinu. Fór tvær ferðir, eina langa og aðra stuttta í þann kalda og sjö mínútur í sjópottinn áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Mætti í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Um níu leytið kom eftirlitsmaður frá samgöngustofu og fylgdist með skoðunarmönnunum skoða fram að hádegi. Þessi eftirlitsmaður kemur einu sinni í mánuði, sjaldan á sama tíma. Rétt fyrir hádegi skrapp annar skoðunarmaðurinn í bakarí á Sogaveginum og keypti fyrir okkur öll þrjú súpu dagsins. Stimplaði mig út úr vinnu á slaginu fjögur og fór í klippingu. Var mætt tuttugu mínútum áður en tíminn var settur en ég fékk mér bara sæti í sófanum og eitt vatnsglas á meðan ég beið. Klipparinn minn spurði mig tvisvar hvort ég væri alveg viss um að ég ætlaði að klippa mig stutt að þessu sinni og eins og það var erfitt að taka þessa ákvörðun þá var ég orðin 100% viss. Svei mér þá ef ég yngdist bara ekki upp um nokkur ár, orðin að stutt- hrokkinhærðri skvísu með meiru. Var svo eitthvað að spá í að fara með bílinn í gegnum þvottastöð, kominn tími á það, en einhvern veginn endaði ég heima. Hafði fiskibollur og kartöflur með smjörklípu í kvöldmatinn.
12.3.26
Líður á vikuna
11.3.26
Osteostrong og sjósund eftir vinnu
Fór að sofa um hálfellefu eftir að hafa stillt klukkuna á korter fyrir sjö. Rumskaði fyrir klukkan fimm og um hálfsex gafst ég upp á að reyna að kúra, kveikti ljós og greip í bók. Var mætt í vinnu um hálfátta. Var búin að hella upp á, gera upp, opna kerfin og taka saman smá rusl fyrir klukkan átta. Ungu skoðunarmennirnir mættu rétt fyrir átta. Það kom einn bíll í skoðun skömmu síðar en næst bíll eftir það var skoðaður á tíunda tímanum. Í heildina voru samt skoðaðir þrjátíu og þrír bílar. Ég var mætt í osteostrong stuttu fyrir klukkan fimm og í Nauthólsvík um hálfsex. Sjórinn 2°C og það var fjara. Einstaklega hressandi að skella sér útí, fyrst í uþb 7 mínútur, korter í gufu, aftur í sjóinn í tvær mínútur og svo rúmar tíu mínútur í pottinum áður en ég fór upp úr og heim.
10.3.26
Allt að fara í eðlilegan farveg
Held að ég hafi verið sofnuð fyrir klukkan hálftíu í gærkvöldi. Rumskaði svo ekkert löngu áður en vekjarinn hringdi. Fékk mér harðsoðið egg, 2 steinlausa döðlur, vítamín og vatnsglas í morgunmat og var mætt í Laugardalslaug í þann mund sem verið var að opna. Synti 400m, fór þrisvar sinnum í þann kalda, sleppti gufunni og náði fyrir vikið sjö mínútum í sjópottinum. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Gerði upp og gerði afgreiðslukerfin klár. Ungi skoðunarmaðurinn mætti nokkrum mínútum fyrir átta. Fyrsti bíll kom inn rétt rúmlega átta en svo var rólegt til klukkan níu. Eftir níu hópaðist fólk með bíla í skoðun. Klukkan um ellefu fengum við auka skoðunarmann til okkar sem var eins gott því það kom mikið að fólki strax eftir hádegislokun og í raun var engin pása fyrr en um þrjú og þá bara örstutt en svo róaðist allt rétt fyrir fjögur. Hátt í 50 bílar skoðaðir í dag. Meira gerðist á vinnudeginum sem ég ætla ekki að fara nánar út í, alls ekki víst að það sé gott að hafa það á opinberu prenti. Hugsanlega er hægt að skrifa um það "undir rós" en ég ætla hins vegar bara að þakka fyrir að búið er að taka á ákveðnum málum og hafa 100% trú á að búið sé að afgreiða og klára málin. Kom aðeins við hjá N1 syninum í Borgartúni áður en ég fór heim.
9.3.26
Ný vinnuvika
Eftir svolítið skrýtna nótt fór ég á fætur korter fyrir sjö. Fékk mér chiagraut í morgunmat og tók svo með mér afgang af grjónagraut í vinnuna. Varð meira en lítið hissa á að kerfið var ekki á í vinnunni. Báðar hurðarnar voru þó læstar en þegar inn kom voru skýr merki um að einhver hafði verið á staðnum einhvern tímann um helgina. T.d. hafði verið hellt upp á kaffi en brúsinn ekki tæmdur og skolaður eftir. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að stöðin hafði verið lánuð til að taka upp mússík-myndband. Annars vorum við bara tvö í vinnu, ég í afgreiðslunni og einn skoðunarmaður sem skoðaði 37 bíla í dag. Sluppum þó út um hálffimm. Ég fór beint í sund, hitti kaldapotts vinkonu mína í kalda pottinum og átti rúmlega klukkustundar gæðastund með henni. Kom heim upp úr klukkan hálfsjö og er að græja mér plokkfisk í kvöldmatinn.
8.3.26
Hvíldardagur með smá útúrdúr
Rumskaði um fimm leytið, alltof snemma, en sofnaði fljótlega aftur og svaf þá til klukkan að verða hálfníu. Greip í bók í stað þess að fara á fætur; Steinninn eftir Ragnheiði Gestsdóttur. Byrjaði á henni í gær. Las í rúma klukkustund áður en ég fór loksins á fætur og tók svo þá ákvörðun að ekkert yrði úr sundi í dag. Kláraði að lesa bókina á tólfta tímanum og átti þá bara eina bók ólesna af safninu, fyrir utan Kon-Tiki. Esperanto vinkona mín var í sambandi í gærkvöldi og við ákváðum að hittast hjá henni um hádegisbilið í dag. Ætlaði varla að nenna af stað því það var dimmt yfir og snjókoma. Hitaði bílinn og þurfti rétt aðeins að sópa af honum. Var komin vestur í bæ um tólf og stoppaði í um einn og hálfan tíma. Á þeim tíma lásum við m.a. 5 bls. í Kon-Tiki. Svo kom ég við í Kringlusafninu á leiðinni heim. Skilaði fjórum bókum af fimm, m.a. títtnefndri Kon-Tiki. Tók hana að láni strax aftur sem og sjö aðrar. Þrjár af þeim bókum eru reyndar ekki skáldsögur. Sjáum til hvort ég skrifa eitthvað um þær og hinar bækurnar síðar.
7.3.26
Hárþvottadagur
Það hvarflaði örstutt að mér að skrópa í sundið í morgun og sofa aðeins lengur. En ég dreif mig á fætur um sjö leytið og var komin í Laugardalslaugina rétt eftir að opnaði um átta. Fór á braut 8 og þegar ég kom til baka eftir fyrstu 100m tók annar skórinn á móti mér. Hinn var ennþá upp á bakkanum. Tók þá báða og kom þeim fyrir í rennunni. Þegar ég var langt komin með níundu ferðina (450m) sá ég mikinn glampa og skömmu síðar heyrðis svaka þruma. Ég synti þó yfir aftur en ákvað að drífa mig sem fyrst í kalda pottinn ef það kæmu fleiri eldingar og þrumur og þyrfti að rýma staðinn. Til þess kom þó ekki. Komst fjórar ferðir í þann kalda, fór í gufu í um korter og tíu mínútur í sjópottinn áður en ég fór inn og þvoði mér um hárið. Var komin alla leið vestur í bæ þegar ég sá skilaboð frá esperanto vinkonunni um að hún yrði að fresta espó-hittingnum. Ég var því komin heim um hálfellefu. Laust var á staurnum, bíllinn í 32% og ég setti hann í hleðslu alveg til klukkan að verða fjögur í dag. Annars er ég búin að klára að lesa skammtímalánsbókina en skilafresturinn á henni og tveimur öðrum bókum er fljótlega eftir helgina.
6.3.26
Komin helgi
Mætti í sundið um hálfsjö í morgun. Synti aðeins 200m en fór tvær ferðir og dýfu í þann kalda og var 7 mínútur í gufunni og aðrar 7 í sjópottinum. Var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta í morgun. Var nýbúin að hella upp á þegar stöðvarstjórinn mætti. Hann sagðist reyndar ætla að stoppa stutt. Var í tæpa tvo tíma á staðnum og þegar hann fór var hann ekki viss um hvort hann kæmi aftur. Ungi skoðunarmaðurinn var því einn að skoða milli tíu og fjögur, með hálftíma pásu í hádeginu. Reyndar kom svo pása um þrjú leytið. Eftir vinnu kom ég við í Fiskbúð Fúsa og leit svo inn til fyrrum nágranna áður en ég fór heim.
5.3.26
Líf í tuskunum
Svefninn var eitthvað órólegur sl. nótt og þegar vekjarinn hringdi korter fyrir sex ákvað ég að endurstilla hann á korter fyrir sjö. Sofnaði greinilega strax aftur því mér fannst engin stund hafa liðið þegar verkjarinn fór aftur af stað. Ég sleppti semsagt sundinu í morgun og mætti beint í vinnu rúmlega hálfátta. Hafði fyrst þurft að sópa af bílnum sem tók þó ekki langa stund þrátt fyrir að mér tókst ekki að ræsa hitakerfið fimm mínútum áður en ég fór út. Annars vorum við tvö í vinnu milli klukkan átta og tíu en þá kom sami afleysingamaðurinn og í gær. Í heildina voru skoðaðir 44 bílar. Ég var síðust út úr vinnu rúmlega hálffimm og komin heim áður en klukkan varð fimm. Ákvað að byrja á því að horfa á síðasta þáttinn í fyrstu seríunni um rannsóknarlögreglukonuna Hildi. Bíð spennt eftir framhaldinu.
4.3.26
Tíminn heldur áfram á hraðferðinni
Ég vaknaði löngu áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Ákvað að grípa í bók og náði að klára Kalmann og fjallið sem svaf korteri fyrir hringingu. Slökkti á vekjaranum og tók svo smá lóða-æfingar þegar ég var komin á fætur. Fékk mér chiagraut í morgunmat og tók svo til sjósundsdótið og smá maul. Hitaði bílinn í fimm mínútur áður en ég fór út, rétt þurfti að sópa af honum. Var mætt í vinnu um hálf, fyrst af öllum og var búin að búa til kaffi og gera upp úr báðum kerfunum áður en ungi maðurinn mætti. Samt var ég í smá myrkraverki því það kviknaði ekki ljósið í afgreiðslunni. Það hafði víst slegið út en ég var ekkert að spá í því. Beggi sá um það fljótlega eftir að hann mætti. Við fengum engar fréttir af stöðvarstjóranum fyrr en ég hringdi í hann rétt rúmlega átta. Hann sagðist ekki vera að koma í vinnu en kom þó aðeins stuttlega við upp úr klukkan tíu. Þá vorum við búin að fá liðsauka en önnur brautin var biluð þannig að skoðunarmennirnir hjálpuðust að á brautinni sem var í lagi og skiptust á að "dæma" bílana. 45 bílar voru skoðaðir í dag. Ungi maðurinn skrapp frá í hádeginu, bæði í smá útréttingar og líka heim til sín í mat því það er víst ekkert langt þangað. Við hin læstum að okkur í hálftíma. Ég var svo annars síðust út en engu að síður mætt í osteostrong tíma tíu mínútum fyrir fimm og í Nauthólsvík um hálfsex leytið. Kom heim rúmum klukkutíma eftir það og setti bílinn í hleðslu þótt enn væru rétt rúm 40% eftir. Ætla bara að hlaða hann upp í rétt rúm 80% að þessu sinni.
3.3.26
Erill á köflum
Vekjarinn vakti mig korter fyrir sex í morgun. Borðaði afganginn af hafragrautnum í morgunmat. Mætti í Laugardalslaug rétt eftir opnun. Fór beint á braut 8 og synti 300m. Þegar ég var á leið í þann kalda sá ég tilsýndar að sjópotturinn var lokaður. Eftir 4 mínútur í kalda fór ég því í gufu í 10 mínútur, kalda sturtu á eftir, smá stund í heitasta pottinn og svo hálfa mínútu/dýfu í þann kalda. Mætti fyrst í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Tók úr lás, slökkti á kerfinu, kveikti ljós, stimplaði mig inn og setti upp kaffið. Ungi maðurinn mætti tíu mínútum á eftir mér. Það var mátulega búið að kveikja á öllu þegar fyrsti kúnninn kom á slaginu 8. Síðan var næstum klukkutíma pása í skoðununum en eitthvað um önnur afgreiðslumál, ss eins og símsvörum, netspjall og fleira. Skoðunarmaðurinn skrapp heim í hádeginu, ég ætlaði að læsa um tólf en tafðist um tíu mínútur vegna annarra afgreiðslumála. Ég var nú samt búin að fá mér borða og tilbúin í afgreiðslustörfin um hálfeitt og það var mikill erill til klukkan að verða þrjú. Róaðist aðeins eftir það en aldrei þannig að það væri alveg stopp. í Heildina voru skoðaðir um 25 bílar, hef ekki tölustakstík yfir hinar afgreiðslurnar. Siggi framkvæmdastjóri kom stuttu fyrir hálffimm til að taka stöðuna. Klukkan var því orðin svolítið meira en hálffimm þegar ég stimplaði mig út. Þar sem skoðunarmaðurinn er ekki kominn með lykla af stöðinni sá ég um að setja kerfið á og læsa á eftir okkur. Kom við í Krónunni í Lindum á heimleiðinni og þótt ég væri ekki með marga eða þunga poka lagði ég bílnum á efra planið og tók þar að auki lyftuna upp á fjórðu hæð.
2.3.26
Glæný vinnuvika
1.3.26
Sofið út
28.2.26
Síðasti febrúardagurinn í ár
Rumskaði frekar snemma en sofnaði sem betur fer fljótlega aftur. Var komin á fætur upp úr klukka sjö og á braut 8 í Laugardalslaug korter yfir átta. Sinnti hárþvottsrútínunni, þ.e. synti flestar ferðir á bakinu en brá þó fyrir mig bringu- og skriðsundi inn á milli. Sat fimm mínútur í kalda pottinum áður en ég fór í gufuna og svo nokkrar mínútur í sjópottinum áður en ég tók smá dýfu í kalda og fór upp úr. Var mætt vestur í bæ um tíu. Ætlaði að hafa bílinn í hleðslu á meðan ég væri í esperanto-hittingnum. Staurarnir voru báðir lausir en það kom upp einhver villa svo ég hætti við og lagði bílnum í annað stæði. Við Inger lásum fimm bls. í Kon-Tiki. Þegar ég fór frá henni fór ég með bílinn í gegnum þvottastöðina Löður við Fiskislóð og svo beint heim eftir það. Laust var í hleðslu á planinu og það gekk fínt og koma öllu í gang. Hann var kominn niður í 30% og núna kominn í 93%. Ætla að taka hann úr sambandi og færa bílinn í annað stæði um leið og ég hef lokið við þessa færslu. Skammtímaláns bókin af safninu er; Englatréð eftir Lucindu Riley og er ég búin að lesa 120 bls af uþb 600. Ég er líka að lesa Kallmann og fjallið sem svaf eftir Joachim B. Schmidt. Það er bók sem er með skilafrest til 9. mars n.k. en hægt er að framlengja um 20 daga. Kláraði annars og sendi inn skattskýrsluna rafrænt í gær, fékk smá aðstoð í gegnum síma hjá tvíburahálfsystur minni og dóttur hennar.
27.2.26
Fössari
Þegar vekjarinn hringdi klukkan korter fyrir sex ákvað ég að slökka á honum og stilla klukkuna á rúmlega hálfsjö. Ákvað þar með að vera ekkert að fara í morgunsund. Var eitthvað að velta því fyrir mér að taka sjósundsdótið með mér en hvarf frá þeirri hugsun. Hitaði upp bílinn í fimm mínútur áður en ég fór út að sópa smá snjó af honum korter yfir sjö og var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Fékk strax þær fréttir að við yrðum bara tvö, þriðja daginn í röð, ég og skoðunarmaðurinn sem er að hætta. Á tímabili var svolítið mikið að gera á mörgum vígstöðum, bæði hjá mér og skoðunarmanninum en það róaðist eftir klukkan tvö. Alls voru skoðaði yfir 30 bílar þriðja daginn í röð, einhver sagði um daginn að það væri fínt dagsverk fyrir einn mann að skoða uþb 25 bíla. Ég var seinust út, slökkti, setti kerfið á og læsti á eftir mér. Kom við í Fiskbúð Fúsa á heimleiðinni og keypti mér harðfisk, bleikju og ýsu. Í póstkassanum beið mín innheimtubréf vegna vangoldinna fasteignagjalda á kennitölu dánarbúsins. Eitthvað hlýtur það að hafa fallið milli skips og bryggju við uppgjörið í október. Fasteignaskuldin með vöxtum og innheimtu er rúmlega þrettán þúsund. Og svo er komið að árlegum skattskilum, þarf að klára og senda skýrsluna inn í síðasta lagi 13. mars n.k. Það er alltaf eitthvað. Ég fékk líka þær fréttir í gær að Sigga, lambið/gemsinn sem ég bjargaði í fyrra er með tveimur lömbum. Og Hulda frænka og Óli eru búin að trúlofa sig.
26.2.26
Febrúar klárast um helgina
Það er bara einn virkur dagur af þessum mánuði og einn helgidagur. Næsti mánuður hefst á sunnudaginn. Hví hleypur tíminn svona hratt áfram? Ég var komin á fætur rúmlega hálfsex og mætt í Laugardalslaug rétt eftir að opnaði. Synti 100m á braut 8 og 200 á braut sjö. Sleppti gufunni en fór þrjár ferðir í þann kalda, eina í þann heitasta og smástund í sjópottinn. Stimplaði mig inn í vinnu korter fyrir átta. Vorum aðeins tvö á stöðinni í dag, líkt og í gær. Það voru ekki margar rólegu stundirnar, amk ekki hjá skoðunarmanninum en hann fór í mat í fyrra fallinnu og hægði á eftir hádegi. Á morgun er síðasti vinnudagurinn hans en hann reiknar þó með því að koma fljótlega til að leysa af dag og dag, en þó ekki strax í næstu viku. Ég var síðust út úr húsi rétt rúmlega hálffimm. Bókasafnspokinn með fjórum lesnum bókum af sex var meðferðis og ég skrapp í Kringlusafnið og skilaði þeim. Ætlaði mér aðeins að taka eina bók en þær urðu þrjár og þar af ein skammtímalánsbók. Meira um þær bækur síðar. Fór með pokann út í bíl en notaði svo helming af kringlugjafakorti til að versla smávegis í Bónus áður en ég fór heim. Núna er ég að skrá niður það helsta um daginn og búa mér til grjónagraut.
25.2.26
Sjórinn alltaf jafn hressandi
Vaknaði korteri áður en vekjarinn átti að fara af stað, eða klukkan hálfsjö. Um klukkutíma síðar var ég mætt í vinnuna. Aðeins einn skoðunarmaður mætti í dag en hann var búinn að afgreiða yfir 30 bíla áður en hann þurfti að fara til læknis um þrjú leytið. Sem betur fer var nokkuð rólegt milli þrjú og hálffimm en þó komu fjórir sem ætluðu að koma í skoðun, þar á meðal einn sem kom rétt áður en ég lokaði. Sá hefði mjög líklega ekki sloppið inn. Forstjóri frumherja kom annars í heimsókn í morgun og staldraði við í amk hálftíma. Áður en ég fór í osteostrong tíma eftir vinnu þurfti ég aðeins að sópa af bílnum en ég var svo mætt í Hátúnið tíu mínútum fyrir fimm og komst beint að. Tæpum hálftíma síðar var ég lögð af stað í Nauthólsvík. Hringdi í Helgu systur og spjallaði við hana hluta af leiðinni. Var með sömu sjórútínu og undan farnar vikur, tvær ferðir í sjóinn, góð gufuferð milli ferða og svo nokkrar mínútur í pottinum áður en ég fór upp úr og heim.
24.2.26
Erilsamur dagur í vinnunni
Var komin á fætur upp úr klukkan hálfsex. Greip þó hvorki í bók né handlóð. Fékk mér chiagraut og var mætt í Laugardalslaug um leið og opnaði um hálfsjö. Synti 300m á braut átta, þar af 100m skriðsund. Sat um fjórar mínútur í kalda pottinum, tíu mínútur í gufu, sjö mínútur í sjópottinum og tók svo eina dýfu í kalda áður en ég fór upp úr og í vinnuna. Stimplaði mig inn korter fyrir átta. Þó það væri erilsamt á köflum í vinnunni komu alveg tímar inn á milli þar sem var rólegt. Skoðaðir voru yfir fimmtíu bílar, síminn var með rólegra móti en ég svaraði þó nokkrum símtölum og gat greitt úr flestum erindum. Ég var síðust út, slökkti og setti kerfið á rétt rúmlega hálffimm og var komin heim áður en klukkan varð fimm. Laust var á hleðslustaurnum og er bíllinn búinn að vera í hleðslu í tæpa þrjá tíma og er kominn upp í 84% en hann var ekki kominn niður fyrir 40% þar sem ég hlóð hann upp í 53% á hraðhleðslustöð við KFC í Lindum áður en ég kom heim í gærkvöldi.
23.2.26
Síðasta vinnuvikan í febrúar hafin
Vaknaði einhvern tímann á sjötta tímanum alltof snemma þar sem ég var ekki á leið út úr húsi fyrr en stuttu fyrir klukkan hálfátta. Ég notaði tímann ágætlega í lestur, lóðaæfingar og fleira. Verkefnin í vinnunni voru af ýmum toga. Inn á milli komu rólegar stundir en svo var líka stundum eins og allar afgreiðslur (sími, póstur, netspjall, innskráning í skoðanir og fleira) þyrftu athygli í einu. Innskráning í skoðanir gengur fyrir og það þarf líka að svara netspjallinu hratt og vel. Lenti ekki í neinu veseni en þó stendur eitt mál útaf sem leysist örugglega á morgun. Var komin á braut 7 í Laugardalslaug tíu mínútum fyrir fimm. Synti 400m, helminginn á braut 7 og hinn helminginn á braut 8. Kalda potts vinkona mín kom beint úr Laugum og við hittumst í kalda pottinum. Eftir nokkrar kalda- og heitapotts ferðir fórum við í gufu, svo í sjópottinn og svo tók ég loka ferðina í þann kalda áður en ég fór upp úr aðeins á undan vinkonunni. Ég var komin heim upp úr klukkan hálfsjö. Hleðslan á bílnum var komin niður í 32% en það var fullt á staurnum svo ég ákvað að fara á KFC og stinga í smástund í hraðhleðsluna. Notaði mínúturnar tólf sem tóka að hlaða upp í rúm 53% til að panta mér kjúklingasallat til að taka með heim. Þessi hleðsla gæti dugað mér í amk tvo daga en ég er með það á bak við eyrað að stinga í samband út á plani eftir vinnu á morgun, þ.e. ef staurinn verður laus.
22.2.26
Hulda 26 ára í dag
Vaknaði upp úr klukkan sjö og var komin á fætur um átta. Áður en ég sinnti morgunverkunum á baðherberginu kveikti ég á tölvunni. Fékk mér mandarínu og egg og vafraði svo um á netinu í um klukkustund. Þegar pabbi kom fram fór ég inn í eldhús aftur, útbjó mér te og settist svo við eldhúsborðið og fór í kaplakeppni við pabba. Kaplarnir gengu betur hjá honum heldur en mér. Um hálfellefu settist ég inn í stofu með tvær bækur. Um tólf fékk ég mér skyr og brauð og hélt svo lestri áfram þar til að var búin með aðra bókina og komin vel inn í hina; Mamma og ég eftir Kolbein Þorsteinsson. Fékk þá bók lánaða í Fossheiðinni í gær. Kvaddi pabba stuttu fyrir klukkan þrjú. Var komin í bæinn um hálffimm leytið. Mikill sinueldur logaði við Elliðavatn og skammt frá Guðmundarlundi. Einhver hefur ekki verið að fara varlega með eld og allt sem er svo skraufþurrt þessa dagana. Um sexleytið útbjó ég mér kvöldmat sem samanstóð af fiskibollum og glurót og sætri kartöflu. Framundan er síðasta vika þessa mánaðar. Eftir viku verður kominn 1. mars.
21.2.26
Hjá pabba
Fór að sofa í seinna fallinu í gærkvöldi og svaf alveg til klukkan að verða hálfátta. Var mætt í sund rétt rúmlega átta. Byrjaði á þvi að synda 500m, flesta á bakinu. Svo var það sá kaldi, gufan og sjópotturinn áður en ég fór upp úr, þvoði mér um hárið og fór til norsku esperanto vinkonu minnar. Lásum 4 bls. í Kon-Tiki. Kom heim rétt fyrir tólf. Lauk við að setja niður í tösku og um hálfeitt lagði ég af stað austur. Fór yfir Hellisheiðina og gerði gott stopp í Fossheiðinni. Þar var ég leyst út með aukagjöf, jólapúðaver með Önnu nafninu mínu á. Synir mínir voru komnir til afa síns þegar ég kom á Hellu. Annar þeirra ætlar að taka að sér að elda. Um hálffjögur skrapp ég í búðina og setti bílinn í hraðhleðslu í leiðinni. Hlóð hann upp í 85% en hann var kominn niður í 32%. Aldrei þessu vant kíkti ég í ríkið og keypti mér eina litla hvítvínsflösku, sem ég hef ekki gert síðan ég var í jólakortaföndrinu.
20.2.26
Rúmlega níuhundruð km
Ákvað það áður en ég færi að sofa að ég ætlaði að sleppa morgunsundinu og sofa til klukkan hálfsjö. Sleppti sundinu en var vöknuð um sex leytið. Gerði æfingar með 2kg lóðunum, kláraði afganginn af hafragrautnum sem ég bjó til á miðvikudagsmorguninn og var svo mætt í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. Það var frekar rólegt framan af. Um hálfellefu heimsótti okkur stöðvarstjórinn úr Hádegismóum en hann er að jafna sig eftir aðgerð á fæti. Sagðist líklega ekki geta skoðað næstu mánuði, jafnvel ár en á einhverjum tímapunkti gæri hann amk mætt komið í vinnu og sinnt afgreiðslustarfinu. Eldri stöðvarstjórinn, sem er að hætta um næstu mánaðamót, kvaddi okkur í fyrra fallinu. Fær oftast að hætta snemma á föstudögum. Hann kom þó fljótlega aftur þar sem yfirmaður okkar á BSK sviðinu (Siggi frændi) bað hann um að mæta aftur þar sem hann þyrfti að hitta aðeins á hann. Tilefnið var að færa viðkomandi kveðjugjöf frá fyrirtækinu þar sem Siggi verður í fríi um mánaðamótin. Sá sem fékk síðustu skoðun dagsins var frændi minn, næstelsti sonur Birnu bróðurdóttur pabba. Hann var með einn bróðurson sinn með. Sá er sex ára og var að eignast lítinn bróður fyrir fimm dögum og á líka þriggja ára systur. Eins og í gær hleypti stöðvarstjórinn mér aðeins fyrr heim án þess að ég væri að biðja um það. Fyrir vikið var ég aðeins á undan síðdegistraffíkinni. Þrátt fyrir að bíllinn væri ekki kominn niður fyrir 50% ákvað ég að setja hann í hleðslu. Laust var á staurnum og fínt að gera bílinn klárann í ferð út úr bænum um helgina.
19.2.26
Fimmtudagur
Vaknaði fyrir allar aldir og byrjaði daginn á því að grípa í bók og lesa í tæpan hálftíma. Fór á fætur um hálfsex og greip smá stund í 2kg lóðin. Fékk mér gríska jógúrt í morgunmat og bætti chiafræum og bláberjum út í hana. Var mætt á braut 8 nítján mínútum fyrir sjö. Synti aðeins 200m en hafði þar af leiðandi ágætis tíma í þann kalda, gufuna og sjópottinn. Var mætt í vinnu ca korter í átta. Það var rólegt fyrst í stað en svo komu ýmis verkefni inn á milli í afgreiðslunni s.s. eins og símsvörun, svara eða senda tölvupósta, svara í tidio spjallkerfinu þegar beðið var um að spjalla við manneskju en ekki spjallmennið og eitt og annað fleira. Stöðvastjórinn hleypti mér aðeins fyrr heim án þess að ég væri að biðja um það. Þáði með þökkum því þá vissi ég að ég næði að slaka aðeins á. Annars ætlaði ég líka að segja titlana á tveimur bókum af safninu sem bíða eftir athygli minni; Kúnstpása eftir Sæunni Gísladóttur og Kalmann og fjallið sem svaf eftir Joachim B. Schmidt.
18.2.26
Sjósund
Í morgun ætlaði ég að vakna í kringum korter fyrir sjö. Ég var hins vegar vöknuð löngu fyrir það. Gat eitthvað kúrt mig niður en rétt fyrir sex kveikti ég ljós og greip aðeins í bók. Fór á fætur um hálfsjö. Gerði æfingar með 2kg lóðum og bjó mér svo til hafragraut. Var mætt í vinnu um hálfátta og var með sjósundsdótið í skottinu. Vinnudagurinn var frekar rólegur inn á milli en verkefnin af ýmsum toga að venju. Um hálffjögur leytið ákvað stöðvarstjórinn að leyfa mér að fara fyrr úr vinnu, sennilega vegna þess að undanfarið hef ég oft verið ein eftir síðasta hálftímann og þá séð um að sinna annarri afgreiðslu en skoðunum og svo lokað og gengið frá. Ég fór beint yfir í Hátún tólf og þótt ég væri rúmum klukkutíma á undan fasta tímanum þurfti ég ekki að bíða. Ég var því komin í Nauthólsvík fyrir klukkan hálffimm og heim stuttu fyrir klukkan sex.
17.2.26
Mánuður í afmælið mitt
Vekjarinn var stilltur á korter fyrir sex en ég var vöknuð aðeins fyrir hálfsex. Hafði því ágætis tíma til að gera nokkrar æfingar með 2kg lóðum. Var mætt á braut 8 19 mínútum fyrir sjö og synti 300m á tæpum fjórtán mínútum. Þar sem hringpottur 4, sem var heitasti potturinn, er bilaður er búið að hækka hitann á hringpotti tvö, næsta pott við þann kalda. Fór því þrjár ferðir í þann kalda, eina í pott 2, nokkrar mínútur í gufu og sjópott og hafði líka tíma til að hanga aðeins í rimlunum. Stimplaði mig inn í vinnu rúmum tuttugu mínútum fyrir átta. Báðir skoðunar-mennirnir voru mættir. Skoðaðir voru yfir fjörutíu bílar í dag, m.a. einn lögreglubíll sem er kominn á mynjasafn lögreglunnar. Sírennurnar og ljósin virkuðu mjög vel. Seinni partiinn komu smiðir og settu upp hillur. Ég var síðust út um hálffimm og kom aðeins við í N1 í Borgartúni. N1 sonurinn er búinn að raka af sér skeggið. Kom heim fyrir klukkan hálfsex og þar sem laust var á hleðslustaurnum á planinu ákvað ég að hlaða bílinn þótt hann væri rétt kominn niður fyrir 50%. Þegar ég kom inn varð ég vör við að on-appið hafði ekki náð/eða misst sambandi. Ég fór því aftur út, klædd lopapeysu undir úlpunni, kom hleðslunni af stað aftur og notaði svo tækifærið og skrapp í tæplega hálftíma göngutúr. Þegar ég kom inn aftur dreif ég mig loksins í að taka niður seríuna af svölunum.
16.2.26
Mánudagskvöld
Breytti aðeins til í morgun. Var búin að ákveða það áður en ég fór að sofa í gærkvöldi að sleppa morgunsundinu. Það kom til að því að ég fór ekki í sund í gær og hitti þar af leiðandi ekki kalda potts vinkonu mína. Ég sendi henni fyrirspurn seinni partinn í gær hvort hún yrði í sundi um fimm leytið ef ég myndi drífa mig í sund eftir vinnu. Svarið var jákvætt svo ég tók sunddótið með í morgun en geymdi það út í bíl á meðan ég var að vinna. Vinnudagurinn var nokkuð erilssamur, 40 bílar skoðaðir og ýmis mál afgreidd í gegnum síma. Ég var síðust út um hálffimm, slökkti, setti kerfið á og læsti á eftir mér. Var komin á braut 8 um fimm mínútum fyrir fimm. Synti aðeins 200m en sundgleraugun voru eitthvað að stríða mér og svo var vinkonan mætt. Fórum alls fjórum sinnum í þann kalda en síðasta ferðin mín var aðeins tæp mínúta á meðan hinar voru amk 3mín hver. Kom heim upp úr klukkan hálfsjö.
15.2.26
Helgin brátt liðin
Rumskaði fyrst um fimm leytið, alltof snemma. Kúrði mig niður aftur en sofnaði ekki aftur. Hélt mig samt undir sæng alveg þar til klukkan var að verða átta. Var bæði að lesa og að skrolla í símanum. Einnig borgaði ég af láninu. Fasta greiðslan er komin niður í 61 þús. Um klukkustund eftir að ég borgaði af því kom upp fyrsti greiðsluhlutinn af þremur sem ég stofnaði sjálf samning um að greiða inn á lánið, 75 þúsund. Annars sleppti ég sundinu í dag, var boðuð á fræðslufund um tíu í morgun og þegar ég kom heim aftur um hádegisbilið stakk ég bílnum í samband. Var með bílinn í hleðslu í þrjá tíma. Þegar ég tók bílinn úr hleðslu hringdi ég í tvíburahálfsystur mína. Hún var heima svo ég skrapp yfir til hennar. Þáði hjá henni te og spjall og bauð henni svo út á rúntinn. Klukkan var langt gengin í sex þegar ég kom heim aftur.
14.2.26
Febrúar uþb hálfnaður
Rumskaði alltof snemma en náði sem betur fer að kúra mig aðeins niður aftur. Var komin á fætur um sjö og í sund um leið og opnaði klukkan átta. Synti 600m, og fór þrjár ferðir í þann kalda. Þvoði mér um hárið og var svo komin til esperanto vinkonu minnar um tíu. Var með bílinn í hleðslu á meðan á hittingnum stóð. Eftir hittinginn lét ég þvo bílinn að utan með því að renna honum í gegnum þvottastöðina Löður við Fiskislóð. Var komin heim fyrir klukkan hálfeitt. Kláraði að lesa eina af bókasafnsbókunum; Munnbiti sögur og ljóð eftir 33 höfunda. Ég er líka að lesa skáldsöguna Slétt og bruðið eftir Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur. Og þá er ég með eina bók í láni frá esperanto vinkonu minni; Þjáningin er fæðingarhríð skilningsins eftir (og um vegferð) Mörtu Eiríksdóttur. Rúmlega hálffjögur skrapp ég í tæplega hálftíma, 2km göngu. Það var mjög hressandi.
13.2.26
Mínus þrettán í morgun
Hafði ákveðið að sleppa sundferð í morgun. Rumskaði samt korter fyrir sex og hefði alveg getað rifið mig á fætur. Hins vegar var ég ekki alveg útsofin, var að dreyma eitthvað sem ég man ekki lengur hvað var og steinsofnaði aftur. Var þó vöknuð áður en vekjarinn hringdi um klukkustund síðar. Hitaði bílinn aftur áður en ég lagði af stað í vinnuna. Var aftur fyrst á vinnustaðinn en þó bara um fimm mínútum á undan stöðvarstjóranum. Hann vann fram að hádegi. Fyrstu kúnnar, með einn bíl, voru sjósundsvinkona mín og maðurinn hennar. Siggi kom rétt rúmlega átta og hann var enn að þegar ég kvaddi rétt upp úr klukkan fjögur, ekki að skoða bíla þó þá heldur að þrífa í kringum gryfjurnar. Ég kom við í Fiskbúð Fúsa og keypti mér harðfisk og ýsu í soðið. Hringdi í Ellu og spjallaði við hana á meðan ég var á leiðinni heim. Kom heim rétt fyrir fimm. Restin af deginum leið jafn hratt og fyrri hlutinn og satt að segja var ég næstum búin að gleyma að ég átti eftir að skrá hann niður.
12.2.26
Kuldakast
Ég prófaði að hita upp bílinn áður en ég fór út úr húsi tíu mínútur yfir sex í morgun. Það virkaði vel í gegnum appið í símanum. Í sundi var ég að vinna með töluna 3. Synti 300m og fór þrisvar sinnum í þann kalda þar af tvær ferðir í rúmar þrjár mínútur. Ég var mætt fyrst í vinnu, tuttugu mínútum fyrir átta. Vissi af því, því stöðvarstjórinn hafði samband við mig í gærkvöldi. Ég opnaði, tók kerfið af, kveikti ljós, setti upp kaffi og undirbjó mig eftir bestu getu. Kveikti þó ekki á skoðunarkerfunum frammi. Fyrsti kúnninn kom rétt rúmlega átta ca fimm mínútum á undan framkvæmdastjóra yfir BSK-sviðinu sem leysti af skoðunarmennina í dag. Stöðvarstjórinn kíkti við stuttu fyrir hádegi og kom m.a. með klink í sjóðinn minn. Hann skoðaði 2-3 bíla en stoppaði ekki lengi við. Í heildina voru skoðaðir 31 bíll í dag. Ég var komin heim um fimm. Hringdi í pabba og Huldu á meðan ég var á leiðinni heim. Frænka mín og kærasti hennar kíktu í heimsókn fljótlega eftir að ég kom heim. Þau tóku hjá mér fótaskemilinn sem ég sótti fyrir systir mína um daginn því þau eru á leiðinni norður á morgun. Þau fengu að sjálfsögðu rúnt um íbúðina og óumbeðinn hringdi Óli í pabba sinn, sem er smiður, og spurði hvað það myndi kosta að "flippa" hurðinni inn í þvottaherbergi þannig að hún opnist út. Það er ekkert svo dýrt svo það gæti meira en velverið að ég fari að láta gera eitthvað í þeim málum fljótlega.
11.2.26
Sjórinn alltaf góður
Um sex í gær mætti fyrsti svanur af þremur til mín. Tvær úr hópnum forfölluðust en við ákváðum að hittast engu að síður enda tæpt ár síðan við komum saman síðast. Ætlum í staðinn að reyna að boða annan hitting innan fárra mánaða og vonum að þá verði engin forföll. Við fjórar sem hittumst hjá mér í gærkvöld höfðum um margt að spjalla og tíminn flaug frá okkur.
Í morgun vaknaði ég við vekjaraklukkuna uþb korter fyrir sjö og var mætt í vinnu tæpum klukkutíma síðar. Sem fyrr voru ýmis verkefni en það var alveg rólegt á milli. Tuttugu mínútum fyrir fimm var ég komin í Hátún 12, í osteostrong. Þurfti að bíða um stund eftir að komast að en ég var örugglega byrjuð í æfingunum áður en klukkan varð fimm og ég var komin á planið við Nauthólsvík um hálfsex eftir að hafa hringt í og spjallað við Odd á leiðinni yfir. Það var bæði hressandi og dásamlegt að skella sér smástund í 0,1°C sjóinn. Líkt og sl. skipti fór ég tvisvar út í, hanskalaus í seinna skiptið eftir uþb tíu mínútur í gufunni. Kom heim áður en klukkan varð sjö og setti bílinn í samband við staurinn á planinu. Hann var kominn niður í 43% en á einum og hálfum tíma er hann kominn upp í 66%. Ætla að hafa bílinn í hleðslu til klukkan hálftíu eða tíu.
10.2.26
Sex svanir mínus tveir
Morguninn var svipaður og í gær nema ég synti 300 en ekki 200m í sundinu. Báðir skoðunarmennirnir voru mætti þegar ég mætti í vinnu korter fyrir átta. Þegar þetta er skráð er klukkutími eftir af vinnudeginum en aðeins einn skoðunarmaður eftir. Það er samt búið að skoða yfir fjörutíu bíla í dag en ég er líka búin að þurfa að vísa fólki frá. Annars hafa verkefnin verið af ýmsum toga líkt og aðra daga. Það er enginn dagur eins og yfirleitt er ég að læra eitthvað nýtt á hverjum degi. Farin að vera miklu öryggari í flestri afgreiðslu en gott að vita að það er hægt að leita til annarra reynslubolta ef ég er ekki viss. Titill færslunnar vísar í hitting sem verður heima hjá mér í kvöld. Segi betur frá því í næstu færslu.
9.2.26
Náði í skottmottu eftir vinnu í dag
Rumskaði tæpum þremur korterum áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Um hálfsex, korter fyrir hnippið, slökkti ég á vekjaranum og fór á fætur. Fékk mér morgunmat, gerði æfingar með 2kg lóðunum og greip í bók, ekki endilega í þessari röð. Var mætt í sundið rétt eftir að opnaði og stimplaði mig svo inn í vinnu korter fyrir átta. Afgreiðslan í dag gekk alveg ágætlega, hvort sem um var að ræða skoðani, móttöku eða afhendingu númeraplatna, símsvörun eða svörum á rafrænum skilaboðum í gegnum TEAM eða outlock. Ég var síðust út, slökkti ljósin, setti kerfið á og læsti á eftir mér rétt rúmlega hálffimm. Var komin upp í Brimborg uþb tuttugu mínútum síðar.
8.2.26
Fór í messu í dag
Rumskaði um svipað leyti í morgun og í gærmorgun. Það var ekki séns að ég færi að rífa mig strax upp og mér tókst að kúra mig niður þar til klukkan var byrjuð að ganga átta. Var búin að mæla mér mót við kalda potts vinkonu mína í Laugardalslauginni um klukkan tíu. Þannig að þegar ég var komin á fætur rúmum tveimur tímum fyrr greip ég í skammtímalánsbókina sem ég náði í á safnið og byrjaði að lesa í gær. Um níu leytið bjó ég mér til hafragraut og svo var ég mætt í Laugardalinn rétt fyrir tíu. Við stöllur byrjuðum á að synda áður en við fórum í pottana og gufuna. Var komin heim aftur um tólf. Hélt þá lestri áfram um stund en um hálftvö leytið dreif ég mig aftur út og lá leiðin í kirkju óháða safnaðarins við Háteigsveg 56. Þar var messa klukkan tvö og var sr. Pétur að leysa prestinn af. Nýjasti organistinn er organisti sem hefur verið áður og svo hitti ég tvennt úr stjórninni sem er búið að vera í stjórn síðan ég var í stjórn, annað þeirra reyndar síðan fyrir 2000 en hitt byrjaði sama ár og ég, 2015. Ég var bara tvö tímabil, hætti vorið 2019 en er reyndar enn í einni nefnd. Átti notalega stund og gott spjall. Var svo komin heim aftur um hálffjögur leytið og greip enn og aftur í bókina og kláraði hana um hálffimm leytið. Reiknaði það út í gær að ég þyrfti að lesa um 18bls á dag til að klára hana á hálfum mánuði en þessi bók hélt mér við efnið, var það spennandi að ég gat ekki beðið eftir að vita hvernig þetta endaði. Kannski svolítið hrottaleg á köflum en rannsóknamaðurinn Hörður stendur alltaf fyrir sínu. Hann reyndar komst ekki heim til sín þessa daga sem hann var að leysa málið, hluta til vegna þess að hann datt "óvart" í það.
7.2.26
Morgunhani
Rumskaði upp úr klukkan fimm en tókst að kúra mig niður aftur í rúma klukkustund. Var komin á fætur fyrir klukkan sjö og notaði m.a. tækifærið til að grípa í bæði 2kg lóðin og gera smá æfingar. Var komin í Laugardalslaugin og á braut 8 korter/tuttugu mínútur yfir átta. Færði mig yfir á braut 7 eftir 300m og kláraði 200m í viðbót. Hitti sjósundsvinkonu mína í kalda pottinum. Hún var að klára en við fengum þó nokkrar spjallmínútur saman. Um tíu var ég mætt fyrir utan hjá esperanto vinkonu minni. Byrjaði á því að stinga bílnum í samband við annan rafmagnsstaurinn og á þeim eina og hálfa tíma sem ég var hjá vinkonu minni hlóð hann sig úr rúmlega 50% í 74%. Svo lá leiðin í Krónuna við Fiskislóð. Fékk nýtt INDÓ kort í póstkassann í gær og ákvað að virkja það með því að versla inn. Fyrir utan búðina hitti ég Hákon einn af sumarkrökkunum í Seðlaverinu í hittifyrra. Og í búðinni hitti ég einn af nýju vinnufélögunum, einn sem er í fjármáladeildinni. Úr búðinni lá leiðin í bókasafnið í Kringlunni. Skilaði 5 bókum af sex, ætla að framlengja íslensku útgáfunni af Kon Tiki um mánuð. Ætlaði aðeins að taka eina til tvær bækur en þær urðu fimm og ein af þeim er skammtímalánsbók. Það er nýjasta bókin hans Stefáns Mána og er ég þegar búin að lesa 60 blaðsíður af henni. Lagði á efra planinu þegar ég kom heim og fór inn með vörurnar og dótið og gekk frá. Ákvað svo að að fara með uppsafnaðan pappa í pappagám í sorpgeymslunni og athuga hvort staurinn væri laus. Og af því að staurinn var laus fór ég með bílinn að honum og stakk í samband. Er nú búin að fylla hann upp í 100% og hann segist geta farið rúmlega 300km á þeirri hleðslu.
6.2.26
Vinnuvikan liðin
Vaknaði við vekjarann korter fyrir sex. Snúsaði einu sinni en hafði samt tíma til að sinna helstu morgunverkunum og vera mætt í sundið klukkan hálfsjö. Synti 200m en gaf mér þeim mun meiri tíma í aðra rútínu, sérstaklega saltpottinn. Var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Verkefni dagsins voru af ýmsum toga en mér tókst að leysa þau flest. Ég gat þó ekki boðið upp á skoðun síðasta klukkutímann í vinnunni því það var enginn skoðunarmaður á stöðinni eftir klukkan þrjú. Heyrði í báðum strákunum mínum eftir vinnu. Þá var ég í og með á leiðinni heim en tók skyndiákvörðun um að gera "húsvitjun" til frændfólks í Sundahverfinu í Reykjavík og stoppið hjá þeim varði í um tvo tíma. Frændi minn kvaddi þó aðeins fyrr því hann var á leiðinni í smá þorrablótsfagnað.
5.2.26
Líður á vikuna
Ég var með bílinn í hleðslu til klukkan hálftólf í gærkvöldi og komst upp í 98%. Ég þurfti að sjálsögðu að grípa aðeins í bók áður en ég fór að sofa svo ég ákvað að ég myndi sleppa morgunsundinu og ekki vakna fyrr en um hálfsjö. Það gekk eftir. Gerði æfingar með lóðum, fékk mér chia-graut og tannburstaði mig. Mætti í vinnu um hálfátta. Nú er orðið rólegt í augnablikinu svo ég ákvað að nota tækifærið og setja inn færslu. Svo sem lítið að frétta. Enginn dagur eins, verkefnin eru mismunandi og stundum þarf ég að hafa samband við samstarfsfólk mitt á öðrum stöðum og fá smá leiðbeiningar. Er alltaf að læra eitthvað nýtt, m.a. það hvað það getur verið skemmtilegt að spjalla við kúnnana á meðan þeir bíða. Það er reyndar takmarkað hvað ég get spjallað við þá sem tala enga ensku eða íslensku. Nokkrum sinnum hef ég lent í því að samskiptin fara fram í gegnum síma, google tranlate eða einhver enskumælandi eða sem talar hrafl í íslensku er á línunni.
4.2.26
Miðvikudagskvöld
Við systur vorum komnar á fætur um hálfsex. Höfðum ágætis tíma til að búa um, fá okkur morgunmat og tannbursta okkur áður en kominn var tími til að skutla Helgu í morgunflugið til Akureyrar. Vorum komnar á Reykjavíkurflugvöll um hálfsjö. Ég beið með henni þar til kallað var út í vél. Dólaði mér svo af stað í vinnuna. Stimplaði mig inn rétt fyrir klukkan hálfátta. Ég byrjaði á því að gera upp. Hélt svo áfram að fara yfir janúarlista númeraplötugeymslunnar og taka til. Ég var síðust út úr húsi, stimplaði mig út rétt rúmlega hálffimm, slökkti, setti kerfið á og læsti á eftir mér. Var mætt í Osteostrong korter fyrir fimm. Eftir tímann fór ég beinustu leið í Nauthólsvík. Sjórinn 1,3°C, það var að flæða að og ég fylgdi sömu rútínu og síðustu 3-4 skiptin. Var komin heim um hálfsjö leytið og var svo heppin að það var pláss á hleðslustaurnum á planinu við blokkina. Bíllinn var kominn niður í 30% og farinn að sýna rautt. Innan við 40km eftir. Nú er hann búinn að vera einn og hálftan tíma í hleðslu og kominn upp í 56% og 112 km drægni. Annars var ég að horfa á Kveik þáttinn sem var sýndur á RÚV í gærkvöldi. Ég beygði af nokkrum sinnum af, hræðilegt að heyra þessar sögur sem eru líklega bara brotabrot því það eru klárlega fleiri strákar sem brotið var á. Það er gott að þetta er komið fram, þótt það hefði mátt gerast miklu fyrr. Það er til skammar að ekki skuli hafa verið stigið inn í aðstæðurnar og stöðvað miklu fyrr þegar upp komu atvik sem klárlega sýndu að það var eitthvað mikið að og aðstæður slæmar. Og það þarf að vera miklu betra eftirlit með öllu svona. Það þarf að hlusta á alla aðila. Og það á að trúa þeim sem verða fyrir ofbeldinu.
3.2.26
Þriðji dagur febrúarmánaðar að kveldi kominn
Ég rumskaði um fimm leytið en þótt ég næði ekki að sofna aftur gat ég aðeins kúrt mig niður. Fór ekki á fætur fyrr en klukkan korter fyrir sex. Gaf mér aðeins tíma fyrir smá rútínu, þ.e. fá mér morgunverð og sinna morgunverkunum á baðherberginu. Var mætt í Laugardalinn um það leyti sem opnaði um hálfsjö. Fór beint á braut 7 og synti 300m á rétt tæpu korteri. Svo var það kaldi, gufa, sjópottur og stutt dýfa í þann kalda aftur í restina. Stimplaði mig inn í vinnu korter fyrir átta. Byrjaði vinnudaginn á því að gera upp. Fyrir utan afgreiðslu og símsvörun var ég að fara yfir plötulistann. Þ.e. skoða skráðar númerplötur í geymslu í janúar. Sumar plötur voru greinilega ekki lengur í geymslu en gleymst að skrá þær út þegar þær voru sóttar. Einhverja bíla er alveg búið að afskrá og þá er hægt að skrá þær plötur fargað, hvort sem þær voru í geymslu eða ekki. Þær plötur sem voru í geymslu tók ég úr hillu og setti í ruslakassann fyrir fargaðar númeraplötur. Ég var orðin ein eftir í vinnu rétt rúmlega vinnu en það kom ungur maður á svipuðum tíma að sækja númer. Var líklega að skoða á röngum stað í plötugeymslu-uppflettinu því fyrst í stað fann ég ekki plöturnar en ég fann þær fyrir rest, í röngum mánuði og náði að klára þessa afgreiðslu áður en klukkan varð mikið meira en hálffimm. Helga systir hringdi um það leyti sem ég var að fara að stimpla mig út, slökkva, setja kerfið á og læsa á eftir mér. Hitti svo mæðgurnar Helgu og Bríeti í Saffran. Þær voru í erfiðu prófi í dag. Eftir að hafa fengið okkur að borða kvaddi Bríet en við systur fórum í Smáralindina þar sem hún fékk sér eitt glas af bjór og ég plómusafa. Eftir gott spjall komum við aðeins við í Krónunni í Lindum áður en við komum hingað heim. Erum alveg nýkomnar.
2.2.26
Nýr mánuður og ný vinnuvika
Það var vekjarinn sem ýtti við mér korter fyrir sex í morgun. Þremur korterum síðar var ég mætt á planið við Laugardalslaug. Sundferðin tók rétt rúmlega klukkustund með öllu, frá því áður en ég fór inn í klefa og þar til ég kom út úr honum aftur. Stimplaði mig inn í vinnu ca tuttugu mínútum fyrir átta. Vinnudagurinn byrjaði rólega en það komu skorpur og þá ekki bara skoðunarskorpur heldur fleiri verkefni eins og símsvörun, póstur og fleira. Upp úr klukkan fjögur fór allt að róast. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og var komin heim um fimm. Þá var ennþá bjart og það flögraði að mér að það væri nú skynsamlegt að skreppa í smá göngu. Ekkert varð þó úr því í þetta sinn.
1.2.26
Færsla no 4567
Rumskaði um sex leytið og fannst það heldur snemmt. Fann þó fljótlega að ég þyrfti að skreppa á pisseríið ef ég ætti að eiga von um að sofna aftur. Tókst þó ekki að kúra mig aftur niður og um hálfsjö kveikti ég ljós og greip í bók. Fór á fætur á níunda tímanum. Rétt fyrir tíu var ég svo mætt á planið við Laugardalslaug, rétt á undan kalda potts vinkonu minni sem lagði við hliðina á mér og fékk að skoða nýja bílinn minn að innan og utan. Tíu mínútum yfir tíu var ég komin á braut 7 og synti 300m. Heitasti potturinn var lokaður við stöllurnar fórum þrjár ferðir á milli kalda og næstheitasta áður en við fórum í gufuna. Úr gufunni lá leiðin í sjópottinn. Fórum fjórðu ferðina í þann kalda tuttugu mínútum fyrir tólf. Þá fór ég upp úr og heim. Fékk mér afgang af soðinni ýsu síðan fyrr í vikunni. Auðvitað beið ég spennt eftir bronsleiknum en eins og hann byrjaði ágætlega þá lentum við fljótlega undir og vorum að elta allan leikinn. Þremur mörkum munaði í hálfleik og líkt og leikurinn milli þessara liða í riðlakeppninni þá unnu Króatar með eins marks mun. En strákarnir okkar eiga alveg fullt inni og ég held að það séu góðir tímar framundan hjá þeim. Nú er bara að vona að Alfreð og Þjóðverjar nái að stríða, helst að vinna Danina í leiknum um gullið á eftir.
31.1.26
Laugardagur
30.1.26
Janúar á loka metrunum
Líkt og í gærmorgun var ég vöknuð og komin á fætur um hálfsex. Gerði æfingar með 1,5kg lóðunum, fékk mér gríska jógúrt í morgunmat og burstaði tennurnar áður en ég fór í sund. Synti 300m en að þessu sinni synti ég flestar ferðirnar á bringusundi. Hef verið að synda aðra hverja ferð 50m á skrið sundi en ég synti aðeins eina svoleiðis ferð og svo síðustu 15metrana af loka ferðinni. Fór beint í þann kalda, eftir "sundsprettinn" og sat í pottinum í á fjórðu mínútur. Þá lá leiðin í rimlana í stutta stund áður en ég fór í gufu. Eftir 7 mínútur í gufu fór ég í kalda sturtu og var svo tæpar 10 mínútur í sjópottinum áður en ég dýfði mér örsnöggt í þann kalda of fór upp úr. Stimplaði mig inn í vinnu nákvæmlega 18 mínútur í átta. Það er annars óhætt að segja það að það er enginn vinnudagur alveg nákvæmlega eins og eins að þótt ég smám saman að verða öruggari í flestum aðgerðum þá læri ég eitthvað nýtt á hverjum degi. Stimplaði mig út á slaginu fjögur, fór beint heim og þar sem það var laust pláss á hleðslustaurnum stakk ég bílnum í samband. Núna tveimur tímum síðar er hann kominn í 74%, segist verða búinn að hlaða í 100% eftir rúm fimm korter. Annars er rétt að geta þess að það er sögulegur dagur á em karla í handbolta. Íslenski dómarar dæmdu leikinn um fimmta sætið þar sem Portúgalir höfðu betur gegn Svíum. Fyrri undan úrslita leiknum í nýlega lokið þar sem lærisveinar Alfreðs Gíslasonar höfðu betur gegn Króötum sem Dagur Sigurðsson þjálfar og eftir um 50 mínútur byrjar hinn undanúrslita leikurinn þar sem íslensku strákarnir undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar (og Arnórs Atlasonar) etja kappi við Dani. Þetta verður spennandi. ÁFRAM ÍSLAND!!!
29.1.26
Lítið eftir af vikunni og mánuðinum
Vaknaði á sama tíma og í gærmorgun, heilu korteri á undan vekjaranum. Var ekkert að drolla og notaði hluta af tímanum í að gera æfingar með 1,5kg. lóðunum. Fékk mér gríska jógúrt í morgunmat. Var mætt á braut 7 í Laugardalslauginni tíu mínútum eftir að opnaði. Synti síðustu 50m af 300 á braut 8. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Það er enginn vinnudagur alveg eins og í dag kom upp smá verkefni sem ég varð að fá aðstoð við frá þeirri sem er í afgreiðslunni í Frumherja á Selfossi. Ég deildi skjánum í gegnum TEAMS með henni og var þar að auki með hana í símanum. Fyrir utan að ég byrjaði á því að slá bílnúmerið rangt inn þá gekk aðgerðin eins og í sögu. Stöðvarstjórinn skrapp á KFC rétt fyrir hádegi og bauð okkur upp á kjúklingaleggi og franskar ásamt heitri sósu og sallati. Það er orðið mjög langt síðan ég borðaði svoleiðis en ég þáði boðið. Eftir vinnu fór ég í N1 í Borgartúni og hitti á N1 soninn. Hann lánaði mér N1 kortið sitt á meðan hann var að ganga frá en ég verslaði mér nýjar rúðusköfu, aðra með sengingu og sóp, hin í einhvers konar lúffu. Skutlaði svo syninum heim þegar vinnudegi hans var lokið og er tiltölulega nýlega komin heim. Er að hita mér kjötsúpu. Átti súpuna og grænmetið til í lítersfötu undan grískri jógúrt í forsti. Tók það út í fyrradag og í gær sauð ég tvo kjötbita sem ég skar niður í súpuna áðan.
28.1.26
Strákarnir okkar á EM í handbolta komnir í undanúrslit
Miðvikudagar eru osteostrong og sjósundsdagar eftir vinnu. Samt var ég vöknuð um hálfsex í morgun. Fór þó ekki á fætur fyrr en um hálfsjö. Gerði æfingar með 1,5kg lóðunum og fékk mér svo chia-graut í morgunmat. Var mætt í vinnu um hálfátta. Það var rólegt fyrsta klukkutímann en þá gafst mér líka góður tími til að gera upp. Um tíu leytið þurfti annar skoðunarmaðurinn að skreppa frá. Hinn skoðunarmaðurinn fékk handboltaleyfi um eitt leytið. Ég sagði við hann að hann þyrfti þá að sjá til þess að leikurinn myndi vinnast. Ég var komin í osteostrong korter fyrir fimm og í Nauthólsvík um hálfsex leytið. Það var að fjara út, sjórinn hátt í tvær gráður og ég fór tvisvar sinnum út í með góðu stoppi í gufunni milli ferða og stuttu stoppi á heita pottinum á eftir.
27.1.26
Jafntefli við Sviss, sem var neðst í milliriðlinum
Ég var komin á fætur rétt fyrir hálfsex og byrjaði á því að gefa mér tíma fyrir nokkrar æfingar með tvö 1,5kg lóð. Var komin á braut 8 í Laugardalslauginni rétt rúmum klukkutíma síðar. Stimplaði mig inn í vinnu rétt að verða korter í átta. Var síðust á svæðið. Í gær afhenti stöðvarstjórinn mér lykla af stöðinni og erum við þá öll þrjú með lykla. Það var rólegt fyrstu þrjú korterin og gafst mér ágætist tími til að gera upp í nýja kerfinu. Verkefnin komu svo í skorpum yfir daginn. Yfir fjörutíu bílar voru skoðaðir og ég tók á móti nokkrum bílnúmerum af bílum sem á að taka úr umferð tímabundið. Vinnudagurinn leið alla vega ágætlega hratt en ég var orðin ein eftir tuttugu mínútum fyrir lokun. Eftir vinnu skrapp ég í Fiskbúð Fúsa eftir harðfiski og ýsu í soðið. Kom einnig við í Krónunni í Lindum. Kom heim upp úr klukkan hálfsex.
26.1.26
Framlenging á skilafresti
Vaknaði um hálfsex. Mætti í sund um það leyti sem var opnað. Synti 300m á braut 7. Fór beint úr kalda pottinum í sjópottinn, smá stund í 42°C pottinn og eina dýfu í kalda áður en ég fór í vinnuna. Stimplaði mig inn korter í átta. Vorum bara tvö fyrsta klukkutímann. Ég gerði upp úr báðum kerfum og fékk sem betur fer ágætis næði til þess. Vinnudagurinn leið hratt enda var í nógu að snúast. Yfir þrjátíu bílar komu í skoðun og einnig var eitthvað um önnur verkefni svo sem eins og að svara í símann, taka á móti númeraplötum og fleira. Var komin heim rétt fyrir fimm. Heyrði í fyrrum samstarfskonu og öðrum syninum. Átti von á að það kæmi einhver frá capacent til að ná gögnum úr mælinu en enginn hefur komið enn. En þrátt fyrir að vera búin að lesa bækur sem átti að fara að skila eftir morgundaginn ákvað ég að framlengja frestinum á þeim. Á aðeins eina bók ólesna af safninu. Skilafresturinn er til 9. febrúar n.k. og ég ætla að klára þá bók áður en ég fer og skila öllum fimm bókunum sem ég er með af safninu.
25.1.26
Átta marka sigur á Svíum
Mikið sem ég svaf vel í nótt. Var komin upp í rúm rétt fyrir tíu og aldrei þessu vant fór ég beint að sofa. Rumskaði eitthvað stuttlega eldsnemma í morgun en sofnaði strax aftur. Vaknaði á níunda tímanum alveg útsofin og eldhress. Eftir morgunverkin á baðherberginu fékk ég mér harðsoðið egg og gleypti svo vítamínin öll í einu og drakk eitt glas af vatni með. Pabbi kom klæddur fram rétt á eftir mér. Hann fór mun seinna að sofa og ég er nokkuð viss um að hann var búinn að koma fram eldsnemma, taka niður tölur og fá sér mandarínu og egg. Hann bauð upp á hægsoðið folaldakjöt og sæta kartöflu í hádeginu. Um tvö leytið kvaddi ég pabba. Bíllinn var í 84% hleðslu. Kom við í Fossheiðinni en var komin í bæinn upp úr klukkan hálffimm. Keypti mér þvott á bílinn áður en ég fór heim. Þá var hleðslan komin í 39%, alveg í lagi þannig séð en ég sá mér samt leik á borði þar sem var laust á staurnum á planinu sem tilheyrir blokkinni. Að þessu sinni hlóð ég í gegnum ON. Fyllti hann upp í 99% á tæpum þremur tímum. Horfði á landsleikinn og "framlenginguna" en fór svo beint út, aftengdi bílinn og færði hann í annað stæði.
24.1.26
Hleðsluævintýri og ferðalag
Þegar ég kom heim í gær sá ég að aldrei þessu vant var allt upptekið á hleðslustaurnum. Í morgun var ég búin að ákveða að leggja snemma af stað í sund, finna hleðslustaur frá Ísorku við Kleppsveg, stinga í samband og labba þaðan í Laugardalslaug. Ekki virkaði að koma hleðslunni af stað svo ég hætti við og fór á bílnum alla leið á planið við laugina. Eftir sundferðina fór ég vestur í bæ og ætlaði að nota hraðhreðslustöð við Ánanaust. Það var heldur ekki að virka en ég veit núna í því tilfelli hvað ég var að gera vitlaust. Svo vildi svo vel til að hleðslustöðvarnar fyrir utan heima hjá norsku esperanto vinkonu minni eru bæði fyrir íbúa og gesti. Þar gat ég stungið í samband og komið á hleðslu með því að leggja kreditkortið við staurinn þannig að hleðsla hófst. Var með hann í hleðslu þennan rétt rúma klukkutíma sem ég var hjá vinkonu minni. Batteríið var komið upp í 68% úr 35% á þessum klukkutíma. Ég fór heim og gekk frá sund- og esperantodótinu og kláraði að pakka niður. Líklega hefði ég komist alla leið á Hellu en ég ákvað að stinga í samband í hraðhleðslustöð ísorku við Olís utan við á. Hélt að hleðsla væri komin af stað en um tíu mínútum seinna var ekkert að gerast. Þá var kominn annar aðili sem var búinn að stinga sínum bíl í samband og gat aðstoðað mig við að koma hleðslunni af stað. Hlóð bara í tæpar tíu mínútur og komst upp í 54%. Í millitíðinni hafði ég hringt í frændfólkið mitt í Norðurmýrinni til að athuga hvort þau væru með tengil, sem var ekki, svo ég stoppaði aðeins hjá þeim. Þau fengu að skoða bílinn og setjast aðeins inn í hann. Stoppaði hjá þeim í uþb klukkustund. Hringdi í pabba þegar ég var að leggja af stað frá þeim og var komin til hans um þrjú leytið. Hann var að horfa á þátt um Siglufjörð en að þeim þætti loknum skoðaði hann bílinn. Við athuguðum líka hvort tengið sem hann setti upp fyrir Ford tvin bílinn sem hann átti fyrir nokkrum árum. Svo var ekki. Pabbi fékk að keyra bílinn að hraðhleðslustöð Ísorku við Olís. Þar setti ég bílinn í hleðslu og svo röltum við pabbi í bakaríð, eða hann ætlaði að bjóða mér í "kaffi". Þá var reyndar klukkan orðin fjögur og búið að loka. Við settumst þá niður við borð í rýminu framan við búðina, vínbúðina og bakaríið. Á tuttugu mínútum fór batteríið upp 85% og það á að vera hægt að keyra rúmlega 200km á þeirri hleðslu. Við komum til baka í Hólavanginn um hálffimm og ætlum að hafa siginn fisk í kvöldmatinn.
23.1.26
Fastráðning
Var alls ekki tilbúin að fara á fætur þegar vekjaraklukkan hringdi rétt fyrir klukkan sex í morgun. Fór því ekki í sund en var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir klukkan átta. Rúmum klukkutíma síðar skildi ég skoðnunarmennina eftir á meðan ég skrapp í Mjóddina til að tala við Forstjóra Frumherja. Það var mannauðsstjórinn sem hafði samband við mig í gær og bað mig að koma en tilefnið var að skrifa undir fastráðningasamning. Einn af kúnnum dagsins hafði verið að vinna með fyrrum nágranna mínum og fljótlega eftir vinnu ákvað ég að skella mér í heimsókn í Drápuhlíðina. Það var vel tekið á móti mér. Ég stoppaði í rúman hálftíma og þegar ég var að kveðja hittist svo vel á að fjölskyldan á efri hæðinni var að koma heim. Ég fékk leyfi til að kíkja inn hjá þeim og VÁ hvað allt var orðið breytt og svo yndislega öðruvísi. Þau ætla að hóa í mig þegar þau verða búin að ljúka við flestar breytingarnar og koma sér enn betur fyrir. Þá fæ ég líka örugglega að taka myndir. Annars var ég komin heim stuttu fyrir klukkan sex.
22.1.26
Langur dagur - nýkomin heim
Ég var vöknuð alltof snemma í morgun, hafði nægan tíma í morgunverkin og undirbúning undir daginn og var samt mætt á braut átta tuttugu mínútum fyrir sjö. Færði mig yfir á braut 7 eftir fyrstu 100 metrana og synti 200m í viðbót. Stimplaði mig inn í vinnu korter fyrir átta. Fékk þær fréttir að brotist hefði verið inn í stöðina um nóttina. Sem betur fer eru seðlarnir alltaf læstir inni í öryggisskáp en allir 50 og 100 kallarnir í skúffunni voru teknir. Það var til einn staukur, 2000 kr, af 50 kr inn í öryggisskáp. Að öðru leyti gekk dagurinn ágætlega fyrir sig. Skoðaðir voru hátt í 50 bílar. Stöðvarstjórinn fór um þrjú leytið og hinn skoðunarmaðurinn upp úr klukkan fjögur. Það var alveg í lagi mín vegna þar til ég mundi eftir að ég væri ekki með neina lykla og það þarf að læsa innri hurðinni með lykli utan frá. Náði ekki í stöðvarstjórann en sendi honum skilaboð um að ég setti kerfið á og skellti ytri hurðinni í lás. Var komin heim rétt fyrir fimm og farin út aftur um sex. Sú útivist stóð yfir í rúmlega fjóra og hálfan tíma.
21.1.26
Eitt og annað nýtt að frétta
Ég tók með mér sjósunds dótið þegar ég lagði af stað í vinnu í morgun. Var kannski ívið of snemma á ferðinni, stimplaði mig inn um hálfátta. Hafði nægan tíma til að gera upp. Stöðvarstjórinn mætti um átta svo ég afhenti honum lyklana af stöðinni og sagði honum í leiðinni að annað hvort þyrfti ég að skreppa frá í kringum hádegið eða hætta vinnu í fyrra fallinu. Vissi ekki sjálf fyrr en um tvö leytið að það seinna yrði ofan á. En í kringum hádegið var ég að undirrita pappíra rafrænt og um tvö millifærði ég nokkuð stóra summu fyrir kaup á nýjum rafbíl. Millifærði 100 þúsund of mikið því ég fór eftir feitletruðu upphæðinni en ég fékk 100þúsundin fljótlega vegna uppítöku eldri bílsins. Skilaboðin voru svo þau að ég mætti vera mætt um hálffjögur upp í Brimborg. Ég var að sjálfsögðu mætt á slaginu, stimplaði mig út úr vinnu tólf mínútum yfir þrjú og skildi "strákana" eftir eina síðasta rúma klukkutímann. Korter fyrir fimm keyrði ég í burtu á glænýjum Ford Puma eftir fræðslu og fleira. Kom fyrst við á dekkjaverkstæði N1 við Bíldshöfða og setti sumardekkin á hótel hjá þeim. Var mætt í Hátún 12 í osteostron rúmlega fimm í síðasta tímann af árskortinu og notaði tækifærið og greiddi fyrir heilt ár í viðbót áður en ég fór í æfingarnar og slökunina. Klukkan var að byrja að ganga sjö þegar ég var komin í Nauthólsvík. Einhver bilun var á kortakerfinu en mér og fleirum var hleypt inn. Ég fór tvisvar í rúmlega gráðu heitan sjóinn, smá stund í gufu á milli þeirra ferða og svo örstutt í pottinn í lokin. Kortakerfið virkaði fínt þegar ég var búin að klæða mig aftur og á leiðinni út. Hringdi í pabba, aðallega til að segja honum að ég væri komin á nýjan bíl. Talaði við hann þar til klukkan var alveg að verða kvöldfréttir á RÚV. Þá var ég að keyra upp hjá Hamraborginni. Lenti í smá vandræðum að slökkva á símanum og það endaði með því að áður en ég keyrði inn á fyrsta hringtorgið reif ég upp símann og lagði á þannig. Nú er kannski ráð að fara og fylgjast með leik Svía og Króata á EM karla í handbolta. Leikurinn við Ungverja í gær var eiginlega alltof spennandi og frekar langur en það sem ég er montin af strákunum að halda haus út leikinn og ná að vinna að þessu sinni. Viktor Gísli átti mjög stóran þátt í þessum sigri með magnaðri frammistöðu í markinu.
20.1.26
Afsals-uppgjör vegna sölunnar á Drápuhlíð gert í dag
Það var einhver spenningur í mér, var sofnuð um tíu leytið en hrökk upp einhvern tímann fljótlega eftir miðnætti. Fór fram á pisseríið. Sofnaði sem betur fer fljótlega aftur en hrökk svo upp um þrjú leytið. Þurfti aftur á pisseríið og að þessu sinni gekk mér verr að sofna. Ákvað að kveikja ljós og grípa aðeins í bók; Systraklukkurnar eftir Lars Mytting. Þegar ég lagði frá mér bókina ákvað ég að endurstilla vekjarann og sleppa því að fara í morgunsund. Vaknaði um hálfsjö leytið. Borðaði afganginn af hafragrautnum frá því á sunnudaginn og var mætt í vinnu rétt upp úr klukkan hálfátta. Það var mjög hált en ég lenti ekki í neinum vandræðum. Framkvæmdastjórinn yfir BSK kom og leysti af á annarri skoðunarbrautinni fram yfir hádegi. Eftir hádegi kom svo skoðunarmaðurinn sem var að leysa af fyrstu heilu viku ársins. Í gærkvöldi sendi ég annars fyrirspurn í rafrænum pósti til þeirrar sem var með afsalsmálin vegna Drápuhlíðarinnar í sínum höndum. Vildi tékka á hvað færi að frétta. Svar kom um hádegisbilið og þá voru kaupendurnir nýlega búin að ganga frá afsali vegna sölu á íbúðinni í Stigahlíð. Um hálfþrjú leytið voru allir búnir að samþykkja og skrifa rafrænt undir og ég búin að fá loka greiðsluna inn á INDÓ reikninginn minn. En ég var líka að bíða eftir fréttum úr öðru máli, átti hálft í hvoru von á því að vera látin vita um hádegisbilið að ég mætti koma á THM88 upp í Brimborg og kaupa og fá afhentan RYJ17, rauðan Ford Puma 100% rafbíl. Sölumaðurinn hringdi í mig rétt fyrir þrjú og sagði að þessi gjörningur myndi frestast til morguns, bara spurning um hvort það verði um eða upp úr hádeginu eða síðar. Eftir vinnu hringdi ég í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni að N1 í Borgartúni. Bauð Davíð Steini far heim þegar vinnutíminn hans var búinn um fimm. Var svo komin heim til mín um hálfsex leytið.
19.1.26
Annríki í vinnunni
Ég var örugglega sofnuð um tíu í gærkvöldi. Var mjög líklega að dreyma eitthvað skemmtilegt þegar vekjarinn fór í gang tíu mínútum fyrir klukkan sex í morgun. Ég fór strax á fætur og sinnti megninu af morgunverkunum áður en ég dreif mig í sundið. Var komin á braut 8 korter fyrir sjö, tafðist aðeins því ég hitti einn fyrrum vinnufélaga sem vann einu sinni hjá RB. Synti 200m, fór tvisvar í þann kalda og hitti svo eina sundvinkonu í sjópottinum. Stimplaði mig inn í vinnu ca korter í átta. Aðeins annar skoðunarmaðurinn var mættur. Þegar til kom vorum við bara tvö í dag. Þar að auki þurfti skoðunarmaðurinn að skreppa aðeins frá um ellefu leytið. En hann var kominn aftur milli hálftólf og tólf. Ég hafði í nógu að snúast í öðru á meðan. Vinnudagurinn leið mjög hratt og það eru færri mál útistandandi heldur en voru þegar ég fór heim á föstudaginn, amk eru sum komin í ákveðið ferli. Ég var síðust úr vinnu, setti kerfið á og læsti á eftir mér rétt rúmlega hálffimm. Ákvað að gera húsvitjun til móðurbróður míns og konu hans sem búa í Álftamýrinni. Stoppaði hjá þeim í tæpan klukkutíma áður en ég kvaddi og fór beinustu leið heim.
18.1.26
Hitatölur, bleyta og hraðferð á logninu
Ég vaknaði alltof snemma í morgun. Um fimm gafst ég upp á að reyna sofna aftur og kláraði að lesa bókina um Kalmann. Fór á fætur um sjö. Settist fljótlega í stofustólinn og kláraði bókina um fólkið í vitanum. Um níu bjó ég til hafragraut. Borðaði helminginn af honum, hinn helmingurinn fór í skál inn í ísskáp. Var mætt í Laugardalinn um 10, á sama tíma og kaldapotts vinkona mín. Við byrjuðum á því að synda í korter til tuttugu mínútur áður en við fórum í potta- og gufurútínuna okkar. Ég kvaddi um hálftólf og fór beint heim aftur. Annars lítið að frétta.
17.1.26
Búið að tæma leigu-geymslurými
Vaknaði um sex. Fór þó ekki á fætur fyrr en um sjö. Var mætt á braut 8 í Laugardalslauginni um hálfníu og svo til esperantovinkonu minnar um tíu. Við lásum 4 bls. í Kon-Tiki. Ákvað að renna bílnum í gegnum Löður við Fiskislóð eftir esperanto-hittinginn. Í sjálfu sér var það kannski galið því ég vissi að bíllinn yrði fljótlega næstum því jafn skítugur aftur. Sótti Davíð Stein og við komum við heima þar sem ég gekk frá sund- og esperantodótinu. Fórum að því búnu niður í geymslu þar sem ég endurraðaði smá af dótinu. Svo lá leiðin í Hafnarfjörð, nánar tiltekið að Einhellu 4 þar sem við tæmdum úr geymslu númer 82. Allt dót frá Davíð Steini. Það komst allt í bílinn. Fórum með megnið af því í geymsluna mína. Sonurinn sá um að raða dótinu sínu og gerði það þannig að það er enn gott pláss og aðgengi að megninu til, fer eftir því í hvaða kassa þú þarft að komast. Svo fórum við með restina yfir í geymsluna sem tilheyrir íbúðinni sem hann er meðleigjandi í. Komumst með allt í einni ferð úr bílnum en vorum líka með báðar hendur fullar. Ég fékk svo aðeins að kíkja upp í íbúð og heilsa upp á aðra vinkonuna. Ég var komin heim aftur um þrjú leytið.
16.1.26
Sigur í fyrsta leik á EM karla í handbolta
Var í hlandspreng þegar ég rumskaði eftir um þriggja tíma svefn. Þegar ég var búin að tæma blöðruna, þvo mér og koma mér upp í rúm aftur klóraði ég mér aðeins í nebbanum með því að bora smá upp í aðra nösina. Þá gerðist það sem ekki hefur gerst í mörg ár ég fékk blóðnasir. Glaðvaknaði við þetta. Það tók ekki langan tíma að stoppa rennslið en ég ákvað að kveikja á lampanum og lesa í smá stund. Þegar ég lagði frá mér bókina hálftíma síðar ákvað ég að endurstilla vekjarann og sleppa sundferð. Sofnaði fljótlega aftur og vaknaði um hálfsjö. Gerði æfingar með 1,5kg lóðunum, fékk mér morgunmat, tannburstaði mig og var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir klukkan átta. Einn skoðunarmaður sem hefur verið í frumherja í Klettagörðum var mættur ásamt skoðunarmanninum sem er búinn að vinna í Skeifunni sl 14 ár. Sá fór svo heim um hádegið þannig að við vorum bara tvö frá ca hálfeitt og til klukkan fjögur. Það gekk ágætlega upp en það komu samt upp mál í afgreiðslunni sem ég náði ekki að leysa og bíða því nánari skoðunnar eftir helgi. Við lokuðum rétt rúmlega fjögur. Ég gerði mér ferð í Fiskbúð Fúsa og kom svo aðeins við í N1 í Borgartúni til að hitta aðeins á N1 soninn og staðfesta geymslutæmingu um helgina. Hringdi í Odd og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni heim. Kom heim í þann mund sem fyrsti leikur Íslands á EM hófst, unnum Ítali með 13 marka mun.
Samfelldur átta tíma svefn
Var að losa svefninn rétt um það bil sem vekjarinn fór í gang. Ég hefði svo sem alveg verið til í að snúa mér á hina hliðina en var ákveðnari í að byrja daginn á sundferð. Sundferðin tók rétt rúman klukkutíma og ég var mætt í vinnu tæpu korteri fyrir klukkan átta. Ég heyrði á tali skoðunarmannana, á níunda tímanum, að stöðvarstjórinn þyrfti að hætta á hádegi. Um tíu leytið talaði ég við hann um hvort ég mætti fara aðeins fyrir hálf. Hann gaf samþykkið og sá gamli var upplýstur. Stöðvarstjórinn lét mig hafa lyklana af stöðinni þar sem hann mætir ekki aftur fyrr en eftir helgi. Allt gekk þokkalega, það var mismikið að gera í afgreiðslunni og það komu upp ýmis mál sem ég þurfti að fá aðstoð við að leysa. Lærði semsagt sitthvað nýtt í dag. Á fjórða tímanum var smá dauð stund og sá gamli ákvað að við skyldum bara loka stöðinni klukkan fjögur. Mér leið ekki alltof vel með þá ákvörðun hans og setti mig í samband við þá sem græjar skipulagið vikulega og spurði hvort þetta væri í lagi. Svarið var að það væri ekki vel séð svona dags daglega að hætta fyrir ákveðinn lokunartíma en að það myndi vera í lagi í þetta sinn ef við settum miða á hurðina. Sá gamli var svo farinn á slaginu fjögur en ég stimplaði mig út tíu mínútum seinna, slökkti, setti kerfið á og læsti báðum dyrum. Ástæðuna fyrir því að ég þurfti að hætta fyrr skrifa ég um seinna en ég þurfti að vera komin á ákveðinn stað klukkan hálffimm. Venjulega er maður ekki lengur en um tíu mínútur að komast þangað en það er heldur lengri tími í síðdegisumferðinni. Ég var komin heim rétt fyrir klukkan sex.
14.1.26
Osteostrong og sjósund eftir vinnu
Ég vaknaði helst til of snemma miðað við að ég ætlaði ekki í sund fyrir vinnu. Greip í bók um fimm í morgun en fór svo á fætur um hálfsex leytið. Gerði æfingar með 1,5kg lóðunum. Mætti í vinnuna rúmlega hálfátta. Dagurinn var mis annasamur og verkefnin voru frekar fjölbeytt. Alveg farin á kunna ýmislegt en þarf samt aðstoð inn á milli, sem er bara eðlilegt. Stimplaði mig út rétt áður en klukkan sló hálffimm. Áður en ég lagði af stað yfir í Hátúnið hringdi ég í mann frænku minnar. Hann hefur unnið hjá Brimborg til margra ára og ég var að spyrja hann um stöðu á afgreiðslu sem ég sendi beiðni um á mánudaginn var. Rétt eftir spjallið við hann hringdi vinnufélagi hans í mig til að upplýsa mig um stöðuna á þessari afgreiðslu. Meira um þessi mál fljótlega. Vel gekk í osteostrongtímanum. Þetta var næst síðasti tíminn af árskortinu þannig að ég þarf að endurnýja kortið næst eða í síðasta lagi eftir hálfan mánuð. Næst lá leiðin í Nauthólsvík og spjallaði ég við pabba í gegnum wifi-ið í bílnum á meðan ég keyrði þangað. Sjórinn var annars afar hressandi, -1,1°C, spegilsléttur og ekki svo langt út í. Kældi mig tvisvar, fór í gufu milli sjóferða og endaði smástund í heita pottinum. Kom heim upp úr klukkan hálfsjö.
13.1.26
Gott að byrja daginn á sundspretti
Ég rumskaði upp úr klukkan fimm og þurfti auðvitað að skreppa á pisseríið. Þar sem ég var glaðvöknuð eftir það skrepp kveikti ég ljós og greip í bækur. Ljóðabækurnar sem ég er að lesa eru; Nokkur orð um notagildi lífsins og áður óþekkt ljóð eftir Sigmund Erni Rúnarsson (af safninu, kláraði hana í morgun) og Þyngsta frumefnið eftir Jón Kalman Stefánsson sem ég er með í láni frá esperanto vinkonu minni. Mæli alveg með þessum bókum. Fór á fætur korter fyrir sex og eftir að hafa klætt mig og búið um greip ég smástund í eins kílóa lóðin mín. Var komin á braut 8 í Laugardalslaug tuttugu mínútum fyrir sjö og stimplaði mig inn í vinnu rétt rúmum klukkutíma síðar. Lærði ýmislegt í dag og komst einnig að því að ég er alveg hætt að vera feimin við að svara símanum. Það komu út tölur um símsvörun í símaveri í viku tvö og ég var með 69 fleiri svöruð símtöl heldur en í viku eitt, fór úr þremur í sjötíuogtvö. Stimplaði mig út rétt áður en klukkan varð hálffimm og fór beint heim. Var tuttugu mínútur á leiðinni og eftir að hafa gengið frá sunddótinu og kveikt á sprittkerti í saltkertastjakanum settist ég í stofustólinn og lét fara vel um mig í dágóða stund, kannski alltof lengi. Mætti alveg fara að vinna í að fara í stutta göngutúra eftir vinnu en það getur verið strembið að drífa sig út þegar maður er kominn inn í hlýjuna og sestur niður.