Rumskaði um sex leytið og fannst það heldur snemmt. Fann þó fljótlega að ég þyrfti að skreppa á pisseríið ef ég ætti að eiga von um að sofna aftur. Tókst þó ekki að kúra mig aftur niður og um hálfsjö kveikti ég ljós og greip í bók. Fór á fætur á níunda tímanum. Rétt fyrir tíu var ég svo mætt á planið við Laugardalslaug, rétt á undan kalda potts vinkonu minni sem lagði við hliðina á mér og fékk að skoða nýja bílinn minn að innan og utan. Tíu mínútum yfir tíu var ég komin á braut 7 og synti 300m. Heitasti potturinn var lokaður við stöllurnar fórum þrjár ferðir á milli kalda og næstheitasta áður en við fórum í gufuna. Úr gufunni lá leiðin í sjópottinn. Fórum fjórðu ferðina í þann kalda tuttugu mínútum fyrir tólf. Þá fór ég upp úr og heim. Fékk mér afgang af soðinni ýsu síðan fyrr í vikunni. Auðvitað beið ég spennt eftir bronsleiknum en eins og hann byrjaði ágætlega þá lentum við fljótlega undir og vorum að elta allan leikinn. Þremur mörkum munaði í hálfleik og líkt og leikurinn milli þessara liða í riðlakeppninni þá unnu Króatar með eins marks mun. En strákarnir okkar eiga alveg fullt inni og ég held að það séu góðir tímar framundan hjá þeim. Nú er bara að vona að Alfreð og Þjóðverjar nái að stríða, helst að vinna Danina í leiknum um gullið á eftir.