Ég var komin á fætur um sex leytið í gærmorgun. Gerði lóðaæfingar með þyngstu lóðunum og synti einnig hefðbundinni morgunrútínu. Var kannski heldur lengi að vafra í netheimum því klukkan var orðin meira en hálfátta þegar ég mætti í Laugardalslaugina. Þar fór ég beint á braut 6 og synti 700m, flestar ferðir á bakinu. Fór fjórar ferðir í þann kalda og þvoði mér um hárið. Klukkan var byrjuð að ganga ellefu þegar ég lagði af stað heim. Upp úr klukkan tólf skrapp ég með einn poka af textíl í fatagáminn í Eskihlíð og kláraði lítinn gönguhring í leiðinni á uþb tuttugu mínútum. Mikið meira er svo sem ekki að frétta af gærdeginum sem leið þó ógnar hratt við alls konar dútl. M.a. kláraði ég að lesa bókina Fuglinn í fjörunni.
27.6.25
26.6.25
Endurnýjað árskort í Nauthólsvík
Í fyrrakvöld var ég sofnuð rétt upp úr klukkan tíu. Rumskaði svo á þriðja tímanum. Skrapp fram á baðherbergi til að tæma blöðruna. Tókst ekki að sofna þegar ég skreið aftur upp í rúm svo ég greip í bókina sem ég er að lesa sem heitir á frummálinu; The Long Call. Þetta er ríflega fjögurhundruð blaðsíðna bók og þegar ég byrjaði á henni fannst mér ég kannast við efnið. Hafði þó ekki lesið hana áður en það er búið að gera þætti um þessa bók sem finna má í sarpinum hjá sjónvarpi símans. Það er samt það langt síðan ég horfði á þá þætti að ég er man ekki hver ódæðismaðurinn er. Ég las líklega í svona hálftíma og sofnaði sem betur fer fljótlega eftir það. Klukkan var að verða hálfátta þegar ég vaknaði í gærmorgun. Á tíunda tímanum bjó ég mér til hafragraut og svo var ég mætt á planið við Nauthólsvík rétt fyrir tíu. Kaldapotts vinkona mín var þegar mætt. Ég byrjaði á því að endurnýja árskortið. Það var fjara, sjórinn 11°C og yfir tuttugu bátar á voginum. Við Hrafnhildur fórum þrisvar sinnum í sjóinn og tvisvar í gufuna. Vorum að njóta alveg til klukkan rúmlega hálftólf. Þegar ég kom í bílinn aftur tók ég mynd af kvittuninni fyrir árskortinu og sendi á RB því á eftir að nýta hluta af íþróttastyrknum og hann má nýta á meðan maður er á starflokum hjá fyrirtækinu. Sá líka að ég hafði fengið skilaboð eða réttara sagt fyrirspurn frá formanni starfsmannafélagsins en hún var að spyrja hvernig ég hefði það. Svaraði þeim skilaboðum. Hringdi svo í eina fyrrum samstarfskonu sem líka er á starfslokasamningi og spjallaði við hana á meðan ég keyrði vestur í bæ til að versla í Krónunni við Fiskislóð. Kom heim um eitt leytið. Eftir það fór dagurinn í alls konar dútl. M.a. hringdi ég í pabba minn. Ekkert varð úr því að ég færi neitt út aftur svo skrefafjöldi gærdagsins náði rétt yfir tvöþúsundþrjúhundruðogþrjátíu en þá eru reyndar ótalin þau skref sem ég tók á meðan ég var að vappa um í Nauthólsvík um morguninn, í og úr sjónum, gufunni og pottinum.
25.6.25
Klukkan alveg að verða átta
Það er rétt rúmur klukkutími síðan ég fór á fætur. Fyrir klukkan sjö og því alls ekki eins snemma og í gærmorgun en þá var klukkan ekki orðin hálfsex þegar ég var klædd, búin að búa um og gera nokkrar lóða æfingar. Ég var komin í Laugardalslaug rétt upp úr klukkan sjö. Hitti konu sem ég var ekki búin að hitta lengi en hitti nokkuð reglulega áður fyrr. Hún var reyndar á leiðinni upp úr en við spjölluðum samt saman í nokkrar mínútur. Þessi kona er föðursystir Hreims í Landi og sonum. Svo fór ég beint á braut 7 og synti í hálftíma, 600m. Fór 3x6mínútur í þann kalda og að sjálfsögðu bæði í sjópott og gufu. Var alveg um tvo tíma í sundi. Kom heim um hálftíu. Um hálftvö lagði ég af stað í göngutúr með hálftóman, gamlan sundpoka á bakinu því markmiðið var að labba m.a. í Fiskbúð Fúsa. Fór ekki alveg stystu leið en var þó aðeins tæpar tuttugu mínútur á leiðinni. Verslaði mér harðfisk, ýsu í soðið, nokkrar fiskibollur, gulrætur, tómata og tvær sítrónum. Labbaði svo aðra leið heim. Stoppaði í smá stund á Klambratúninu þar sem ég hitti unga konu með 4 ára son sinn, Odd. Og það kom í ljós að bróðir konunnar hafði verið í sama árgangi og tvíburarnir mínir í Hlíðaskóla og millinafnið hans er Oddur. Ég kom heim fyrir klukkan þrjú og fór ekki aftur út. Dagurinn leið engu að síður hratt við ýmiskonar dútl.
24.6.25
Nýr mánuður eftir viku...
...og þessi sem var að byrja? Hvernig í ósköpunum getur tíminn spanað svona hratt áfram? Líklega á maður alls ekki að skilja það, heldur bara njóta hvers dags eins og hann mætir manni. Í gærmorgun var ég mætt í sund upp úr klukkan hálfsjö. Fór beint á braut 7 og synti 500m. Eftir fyrri ferðina í þann kalda fór ég beint í sjópottinn. Þar hitti ég fyrir konu sem heitir Sigrún og er hún númer eitt af amk 5 með þessu nafni sem ég hef kynnst í sundi. Við spjölluðum um ýmislegt í ca korter en þá fór ég seinni ferðina í þann kalda og svo smástund í gufu. Var mætt í osteostrong tíma á slaginu klukkan hálfníu. Einn var á undan mér í röðinni en tíminn sem ég þurfti að bíða var ekki mjög langur. Sló met á tveimur tækjum af fjórum, m.a. á það tæki sem ég sló ekki met á í síðustu viku. Var komin heim korter yfir níu. Lánaði Oddi bílinn stuttu fyrir tíu. Hann hafði verið boðaður í atvinnuviðtal vestur í bæ. Þegar hann kom til baka var hann ekki hress með það viðtal, sagðist aðeins hafa verið spurður einnar spurningar og svo sendur í burtu. Án þess að fara út í þá sálma nánar þá fann ég alveg til með honum en benti honum samt á fleiri sjónarhorn heldur en hans. Honum fannst semsagt viðbrögðin við svari sínu á spurningunni út í hött. Fljótlega eftir hádegið fór ég með gler og málm í gáma sem standa við upphafsenda Eskihlíðar og notaði svo tækifærið og fór í smá göngutúr yfir brúna við Landsspítalann, upp á Barónsstíg, niður Eiríksgötu, undir brúna Snorrabrautsmeginn á gatnamótum og inn á Klambratún. Þar settist ég aðeins niður, reif upp símann og söng afmælissönginn fyrir Bríeti frænku þegar hún svaraði símanum. Síminn skráði á mig tvær lotur af göngu, önnur rúmir 2km hin tæpur 1km. Var komin heim aftur á þriðja tímanum. Restin af deginum fór í alls konar dútl. Var komin í háttinn um hálftíu og kláraði enn eina bókina; Flot. Þetta er fyrsta skáldsaga höfundar og hún er mjög áhugaverð.
23.6.25
Í rauða bítið
Já, ég er komin á fætur og meira að segja búin að gera lóðaæfingar og sinna morgunverkunum á baðherberginu. Klukkan rétt nýlega orðin hálfsex. Ég var ekki alveg svona snemma á fótum í gærmorgun en skrapp þó fram að tæma blöðruna um sex. Fór ekki á fætur fyrr en rúmri klukkustund eftir það. Pabbi var búinn að koma fram til að taka niður helstu tölur og fá sér eitthvað. Hann kom svo aftur fram um níu leytið. Þá var ég búin að vera að vafra á netinu. Skömmu síðar lagði ég fyrsta kapal dagsins og hann gekk upp. Kláraði afganginn af fiskréttinum í hádeginu. Seinni partinn, eða á fimmta tímanum afhýdd ég, skar niður sæta kartöflu og sauð á meðan pabbi grillaði. Kvaddi hann svo um sex leytið og brunaði í bæinn. Var komin heim skömmu áður en N1 sonurinn kom af vinnuvakt.
22.6.25
Hjá pabba
Jæja, nú brá svo við að ég svaf þar til klukkan var langt gengin í sjö í gærmorgun. Stytti morgun rútínuna þannig að ég var örugglega mætt í Laugardalslaugina rétt eftir opnun um átta. fór beint á braut 7 og synti í hálftíma áður en ég fór fyrri sex mínútna ferðina í þann kalda. Ætlaði reyndar ekki að vera alveg svo lengi í þeim potti en lenti á spjalli og gleymdi tímanum aðeins. Fór að sjálfsögðu í gufu og sjópott líka. Var mætt til norsku esperanto vinkonu minnar um tíu. Var með íslensku útgáfuna af Kon Tiki með mér. Lásum meira í þeirri bók en þó eina bls. í esperanto útgáfunni. Kvaddi um ellefu leytið og kom við á AO við Öskjuhlíð til að fylla á tankinn sem reyndar var bara hálfur og hefði alveg dugað í það ferðalag sem ég var á leið í austur yfir fjall (og svo til baka í kvöld). Lagði af stað austur upp úr klukkan tólf og kom við í Fossheiðinni. Þar stoppaði ég í um klukkustund áður en ég hélt för áfram. Þegar ég kom á Hellu til pabba var hann að horfa á þátt í sjónvarpinu um Hákon heitinn Aðalsteinsson. Ég horfði með honum en þegar þátturinn var búinn lagði ég nokkra kapla, vafraði aðeins á netinu og greip líka í saumana mína. Um hálfsex eldaði ég handa okkur fiskrétt. Vorum búin að borða og ganga frá eftir okkur um hálfsjö.
21.6.25
Sumarsólstöður
Mér fannst ég vakna heldur snemma í gærmorgun. Klukkan var varla orðin fimm þegar ég rumskaði. Skrapp aðeins á salernið og reyndi svo að kúra mig niður aftur. Varð fljótlega ljóst að ég væri ekkert að fara að sofna aftur svo ég greip í bók og las þar til klukkan var að verða sex. Þá fór ég á fætur og sinnti rútínunni. Föstudagar eru líka orðnir sjósundsdagar svo ég var ekki að fara út úr húsi fyrr en stuttu fyrir tíu en tíminn fram að því leið mjög hratt. Fékk mér gríska jógúrt með chia fræjum, granatepli, bláberjum og kasew-hnetum og eina sneið af kaldri lifrarpylsu um hálftíu. Var komin út í sjó í Nauthólsvík rétt rúmlega tíu og synti að þessu sinni alveg út að kaðli fyrri ferðina sem ég fór í sjóinn. Kom heim aftur upp úr klukkan hálftólf. Það stóð alveg til að skreppa aftur út í smá göngu en einhvern veginn æxlaðist það þannig að ég fór ekkert út aftur. Dagurinn leið samt alveg óhugnanlega hratt við alls konar dútl.
20.6.25
Aftur á safnið
19.6.25
Útitekin
Dagurinn í gær byrjaði stuttu fyrir klukkan sex. Þegar ég var komin á fætur byrjaði ég á því að gera nokkrar æfingar með léttustu lóðunum. Næst lá leiðin inn í eldhús þar sem ég fékk mér sítrónuvatn. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég, að venju, inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Slökkti svo á henni rúmlega sjö og færði mig yfir í sjónvarpsstólinn, greip í saumana mína og fylgdist með Bítinu á Bylgjunni í beinni á rás 8. Oddur kom fram upp úr klukkan hálfátta og klukkutíma síðar fór hann af stað í strætó til að vera kominn á Grensásveg um níu. Á tíunda tímanum útbjó ég mér hafragraut og svo var ég mætt í Nauthólsvík á slaginu tíu. Sjórinn var rétt rúmlega 12°C. Það var flóð og ég fór tvisvar sinnum tíu mínútur út í. Hélt mig nálægt landi og garðinu því það var mikið um bátaferðir á voginum. Eftir sjósundsferðina kom ég við í Fiskbúð Fúsa og keypti harðfisk og ýsu í soðið. Oddur hafði samband skömmu síðar, var búinn á námskeiði dagsins og ég sótti hann. Um leið og við komum heim setti ég upp kartöflur og fiskinn í pott. Bauð Oddi að borða með mér en hann afþakkaði. Um tvö leytið skrapp ég í hálftíma göngutúr, smá hring í hverfinu. Næstsíðasta bókin af safninu, Skuggadrengur, er það spennandi að ég er að nálgast það að verða hálfnuð með hana. Það er frekar erfitt að leggja hana frá mér en ég greip samt oft í saumana mína í gær og dútlaði við ýmislegt annað en lestur.
18.6.25
Sjósundsdagur framundan
Nú brá svo við að ég svaf svolítið frameftir í gærmorgun miðað við flesta daga. Var þó komin á fætur upp úr klukkan átta. N1 sonurinn kom fram um níu og lagði af stað á vinnuvakt rúmum hálftíma síðar. Ég komst að því að ég þekki ekki tærnar mínar í sundur því það var víst miðju-táin sem var með stóra blöðru. ég stakk á blöðruna, þurrkaði upp það sem vætlaði úr henni og setti plástur á tána. Það hafði annars verið í skoðun hjá Viðeyjargenginu að skreppa út í Viðey á þjóðhátíðardaginn. Sú hugmynd var blásin af þegar í ljós kom að veðrið var ekki hagstætt slíku ævintýri. Það fór því þannig í gær að ég hélt mér heima við, fór ekki einu sinni út í göngu. Dagurinn leið engu að síður frekar hratt við allskonar og samt var ég alls ekki að vafra mikið á netinu, hvorki í símanum né tölvunni. Fylgdist með sjónvarps útsendingu frá Austurvelli milli ellefu og tólf, hlustaði á rás 2, horfði á þætti og greip nokkrum sinnum í saumana mína. Greip líka aðeins í bók en þó ekki af neinni alvöru fyrr en ég fór upp í rúm um hálftíu leytið. Á nú aðeins tvær ólesnar bækur eftir af safninu en þær eru samtals eitthvað á áttundahundrað blaðsíður. Báðar spennubækur.
17.6.25
Hæ hó jibbí jey
Var ekki komin í sund í gærmorgun fyrr en um hálfátta og samt var ég vöknuð um sex. Ég hafði samt nægan tíma til að synda 400m, skella mér í þann kalda í 4 mínútur og flatmaga í sjópottinum í 10 mínútur. Tók svo eina stutta dýfu í þann kalda á leiðinni upp úr og var mætt í osteostrong tíma upp úr klukkan hálfníu. Sló met á tveimur tækjum og var við mitt besta á því þriðja af fjórum og leiðbeinandinn hafði á orði að það hefði bara gert mér mjög gott að "hvíla" í eina viku. Ákváðum svo í sameiningu að flytja fasta tímann yfir á morgnana en fasti tíminn hefur verið á mánudögum kl 16:20 þetta uþb ár sem ég hef stundað osteostrong. Var komin heim á tíunda tímanum. N1 sonurinn var á vinnuvakt á Gagnveginum og Oddur var á námskeiði á vegum vinnumálastofnunar. Sá síðarnefndi hringdi í mig um hálftólf. Þá var ég að útbúa innkaupalista og við ákváðum að hittast í Krónunni í Skeifunni. Hann var búinn að versla sínar vörur þegar ég kom og ég afhenti honum bíllykilinn áður en ég fór inn í búð. Oddur fór með pokann sinn í bílinn og kom svo aftur að aðstoða mig. Verslaði svo sem ekki mikið en þó fyrir rúmlega ellefuþúsund kr. Oddur fékk að keyra og ég bað hann um að koma við í Kringlunni. Hann beið út í bíl á meðan ég skrapp í heilsuhúsið. Var aðallega að leita að kókosvatni sem ég hafði ekki fundið í Krónunni. Komum heim um hálfeitt. Klukkutíma síðar lagði ég af stað í göngutúr sem átti að vera rangsælis í kringum Öskjuhlíðina en hringurinn varð svolítið stærri en það því ég fór yfir brúna yfir Kringlumýrarbraut og kom svo upp skammt frá "borgarspítalanum" í Fossvogi. Settist tvisvar niður á þessari leið en í seinna skipti var ég það stutt frá heimahögum að það skráðist ekki á mig ganga síðasta spölinn. En heildar skrefafjöldi dagsins fór yfir 14.320 skref og þá eru ótalin skrefin sem ég tók á meðan síminn var í búningsklefanum á meðan ég var í sundi og bílnum á meðan ég var í osteostrong. Þegar ég háttaði mig um hálftíuleytið um kvöldið fann ég blöðru á mjög skrýtnum stað á næstminnstu tánni á hægri fæti. Blaðran nær aðeins upp á nöglina hægra megin.
16.6.25
Júní hálfnaður og eiginlega rétt rúmlega það
Var vöknuð og komin á fætur fyrir klukkan sex í gærmorgun. Þegar ég mætti svo á planið við Laugardalslaugina rétt um átta voru ekki margir bílar og í smá stund hélt ég að það væri lokað. Svo var þó ekki en það var verulega rólegt fyrri klukkutímann sem ég var í sundi. Fór beint á braut 7 og synti 600m og 3x6 mínútur í þann kalda. Aðeins 10 mínútur í gufu en tuttugu mínútur í sjópottinum og svo gaf ég mér smá tíma í "sólbað" í restina. Var komin heim aftur um hálfellefu. Rétt fyrir tvö fór ég aftur út og að þessu sinni labbaði ég rangsælis í kringum flugvöllinn. Gerði smá hlé á göngunni eftir 4,3km og rúmar 50 mínútur, þá var ég rúmlega hálfnuð. Kom heim aftur um fjögur og ákvað að matreiða bleikjuflak sem ég hafði átt í frysti og tekið út um morguninn. Bauð Oddi að borða með mér, sem hann þáði þrátt fyrir að ég hafi ákveðið að sjóða bleikjuna frekar en steikja. Hringdi í pabba í gær, aðallega til að athuga hvort netmálin hjá honum væru komin í lag. Þau voru það en ekki heimasíminn.
15.6.25
Heildarfærsla no fjögurþúsundþrjúhundruðþrjátíuogfimm
Vaknaði snemma eins og oftast. Fyrsti klukkutími dagsins fór í hefðbundna morgunrútínu og smá netvafr. Svo færði ég mig aðeins yfir í stofustólinn og kveikti á sjónvarpinu til að hlusta aðeins á tónlist í útvarpinu. Var mætt í Laugardalslaugina rétt eftir að opnaði um átta. Byrjaði á að tékka aðeins á kalda pottinum áður en ég fór á braut 2 og synti í hálftíma, 600m. Fór tvær aðrar ferðir í þann kalda, eina í sjópottinn og góða gufuferð. Um tíu var ég svo mætt til norsku esperanto vinkonu minnar. Ekkert varð úr lestri þar sem hún var frekar tímabundin vegna matarboðshalds en við áttum gott spjall. Stoppaði við í rúman hálftíma. Var komin heim um ellefu. Um tvö leytið fór ég út aftur, spjallaði stuttlega við nágranna minn á neðri hæðinni sem var að sýsla úti við en lagði svo af stað í það sem átti að verða göngutúr í kringum Öskjuhlíðin. Fór upp á Bústaðaveg og gekk austur eftir honum en í stað þess að beygja til hægri við Kringlumýrarbraut ákvað ég að halda aðeins áfram. Beygði svo til vinstri við Efstaleiti, gekk um Hvassaleyti og fór yfir göngubrúna yfir Miklubraut við Safamýri. Þarna var ég búin að ákveða að athuga hvort móðurbróðir minn og fjölskylda væru heimavið en þau búa í Álftamýrinni. Hringdi á bjöllunni hjá þeim um þrjú. Frændi minn og konan hans voru heimavið að bíða eftir að heyra frá manneskju sem ætlaði að leigja af þeim pláss í nokkra daga. Ég stoppaði í hátt í tvo tíma. Allan þann tíma heyrðist ekkert frá manneskjunni en yfirleitt er verið að bóka svona skammtímaleigu um þrjú leytið. Göngutúrinn til frændfólksins tók mig um fjörutíu mínútur en frá þeim var ég svo um tuttugu mínútur að labba heim.
14.6.25
Veðrið mjög gott
Var komin á fætur stuttu fyrir klukkan sex. Sinnti hefðbundinni morgunrútínu fyrsta klukkutímann en kveikti svo á sjónvarpinu, stillti á Bítið á Bylgjunni og greip í saumana mína. Upp úr klukkan níu bjó ég mér til hafragraut og svo var ég mætt í Nauthólsvík tíu mínútum fyrir opnun en samt á eftir kalda potts vinkonu minni. Sjórinn var 11°C og við fórum þrisvar sinnum út í, tvisvar í pottinn og einu sinni í gufuna. Var komin heim um hádegisbilið. Um hálftvö leytið setti ég nokkra hluti í léttan bakpoka og labbaði af stað í átt að miðbænum. Þegar ég var komin að Hallgrímskirkju ákvað ég að hringja í eina vinkonu sem ég kynntist í gegnum bréfaskriftir þegar við vorum líklega 11-12 ára. Hún er árinu yngri en ég, hafði fundið nafnið í barnablaðinu á sínum tíma þar sem ég óskaði eftir pennavinum. Sumarið sem við vorum 14 og 15 ára vorum við báðar í Kaupmannahöfn og hittumst amk tvisvar sinnum. Ég og systir mín vorum hjá móðursystur okkar inn í borginni en hún hjá frændfólki í einu af úthverfunum. Þessi vinkona mín er m.a. fasteignasali í dag og ég hringdi í hana til að leita ráða hjá henni. Úr varð næstum því klukkutíma samtal bæði um erindið og annað. Á einum tímapunkti hélt á göngunni áfram og þegar við kvöddumst var ég komin niður á Lækjargötu. Stoppaði við hjá vinkonunni sem er með einn sölubás þar skammt frá. Eftir mjög gott stopp hélt ég göngunni áfram og ákvað að ganga framhjá Hörpu og eitthvað meðfram sjónum að Höfða. Þar beygði ég upp og lokaði hringnum um Katrínatún, Nóatún og Lönguhlíð. Kom heim um hálffimm. Síminn skráði á mig þrjár göngulotur, alls tæpa sex kílómetra.
13.6.25
Föstudagsmorgunn
Þótt ég væri komin á stjá upp úr klukkan sex í gærmorgun var ég ekki mætti í sundið fyrr en stuttu fyrir klukkan átta. Þar byrjaði ég á ferð í kalda pottinn áður en ég fór á braut 7 og synti 700m, flesta á bakinu. Fór tvær aðrar ferðir í þann kalda, var góða stund í gufunni og uþb 10 mínútur í sjópottinum. Settist smá stund á stól áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Kom heim rúmlega tíu. Rétt rúmum klukkutíma síðar skrapp ég út í göngutúr sem ég skipti upp í tvær lotur því ég tók smá pásu þegar ég var uþb hálfnuð. Annars er ósköp fátt að frétta af gærdeginum. Hringdí í pabba. Heimasíminn hans virkar ekki og hefur ekki gert síðan í rafmagnsleysinu sl. þriðjudag. Það er sennilega tæknimál sem einhver í þjónustuveri símans getur lagfært. Pabbi var annars hress og var rétt ófarinn á haugana með garðúrgarginn eftir sláttinn.
12.6.25
Hundraðsextugastiogþriðji dagur ársins
Var komin á fætur upp úr klukkan sex í gærorgun. Fyrsta klukkutímann notaði ég í hefðbundna rútínu. Síðan fylgdist ég aðeins með "Bítinu" á Bylgjunni á rás átta á sjónvarpinu og greip í saumana mína í leiðinni. Um níu leytið bjó ég til hafragraut og um tíu var ég mætt í Nauthólsvík. Afar fáir voru mættir svona rétt eftir opnun en ég var þó ekki ein. Fór tvisvar í rúmlega níu gráðu heitan sjóinn, einu sinni í gufu og einu sinni í pottinn. Var komin heim aftur um hálftólf. Fór ekkert út aftur en lánaði Oddi bílinn um miðjan dag. Dagurinn leið frekar hratt. Hringdi stuttlega í æskuvinkonu mín sem ég heimsótti í sl. mánuði, greip af og til í sauma, horfði á þætti, hlustaði á þætti og gerði smávegis af því sem ekki má skrifa um.
11.6.25
Rafmagnsleysi í rúma þrjá tíma
Rumskaði aðeins um fimm leytið í gærmorgun og aftur um sex. Kúrði aðeins lengur undir sæng en var komin á fætur fyrir klukkan sjö. Þá var pabbi löngu farinn í sitt sund. Hann kom til baka upp úr klukkan átta og setti ryksugu-rúmbuna af stað. Um níu kom stúlkan sem skúrar hjá honum hálfsmánaðarlega. Hress stúlka sem vann vel og var ekki lengi að hlutunum. Pabbi færði til dót og settist svo í ruggustólinn sem hann hafði fært yfir á teppið í stofunni. Ég passaði mig líka að vera ekki fyrir. Þegar stúlkan var að skúra í kringum pabba hafði hún á orði að hann væri bara glaðvakandi. Það var víst oft í vetur sem pabbi sofnaði um leið og hann settist niður. Pabbi svaraði því til að hann væri alveg glaðvakandi og með allra hressasta móti. Stuttu eftir að stúlkan var búin og farin fór rafmagnið. Klukkan var ekki orðin tíu og klukkan var byrjuð að ganga tvö þegar rafmagnið kom loksins á aftur. Þetta var vegna bilunar, slitinnar bugtar, í Hvolsvallarlínu 1. Engin hringtengin var vegna viðhalds og viðgerða í tengivirki við Hellu. Rafmagn fór af á mjög stóru svæði og það var ekki hægt að keyra upp varaafl nema á stöku stað. Pabbi fór því ekkert í Kanslarann í hádeginu í gær. Þegar rafmagnið kom á aftur var þónokkuð vesen að koma nettengingunni á sjónvarpið en það tókst þó á endanum án þess að fá tæknilega aðstoð. Ég pakkaði niður og kvaddi pabba um hálffimm leytið. Ekkert stæði var laust í minni götu svo ég lagði bílnum við Blönduhlíð og fékk Odd til að koma á móti mér og taka stóru töskuna.
10.6.25
Sláttur
Var komin á fætur rétt fyrir klukkan sjö í gærmorgun. Gærdagurinn var rólegheita dagur að mestu. Eftir hádegi fékk ég þó að hjálpa pabba við að slá garðblettinn fyrir aftan hús. Áður en hægt var að byrja, þ.e. halda áfram frá því þar sem pabbi hætti í fyrradag, þurfti að hreinsa vélina og hún var frekar lengi að komast í gang. En þegar búið var að hreinsa, bæta á olíu og skipta um kerti gekk allt vel. Tæma þurfti sláttuvélar-grassöfnunarboxið eftir hvern hring og þegar pabbi var búinn að fara tvo hringi fékk ég að prófa. Prófaði alveg þar til búið var að slá blettinn og svæðið undir snúrunum bak við skúr. Pabbi vildi þó fá að hjálpa til við að tæma boxið og setja vélina aftur í gang inn á milli. Vorum búin um þrjú og settumst þá sunnan undir hús þar til ský dró fyrir sólu. Um fimm leytið setti ég upp saltfisk og sauð kartöflur, rófubita og bita af hálfri sætri kartöflu með í sama pottinum. Annars fór dagurinn í að leggja kapla, vafra á netinu, sauma út og lesa. Helga systir hringdi í pabba. Þar gránaði yfir í fyrrinótt. Þau eru annars búin að fjárfesta í dráttarvél.
9.6.25
Annar í hvítasunnu
Rumskaði stuttlega þegar ég heyrði stofuklukkuna slá fimm högg í gærmorgun. Ekkert svo löngu síðar, að mér fannst, heyrði ég stofuklukkuna slá sjö högg. Eftir það gat ég ekki sofnað aftur og dreif mig því á fætur. Er með 1,5kg lóðin með mér og gerði æfingar með þeim fyrst áður en ég fór fram, kveikti á tölvunni hans pabba. Meðan tölvan var að ræsa sig sinnti ég hefðbundum morgunverkum. Annars var gærdagurinn í heildina með rólegra móti. Skrapp þó í smá göngutúr meðfram ánni og lítinn hring um hálftvö leytið. Seinni partinn tók pabbi fram grillið og ég skrældi, skar niður og sauð hálfa sæta kartöflu. Vorum búin að borða fyrir klukkan sex. Horfðum bæði á annan þáttinn af "Systraslagur" og "Ferðabók Gísla Einarssonar". Fór óvenju seint í háttinn og klukkan var örugglega búin að slá tólf högg áður en ég sofnaði.
8.6.25
Iss
Gærdagurinn hófst um sex í gærmorgun. Steingleymdi að gera lóðaæfingar en önnur morgunrútína var hefðbundin. Var mætt í sund rétt eftir opnun og fór beint á braut 8. Skömmu síðar fylltust þrjá brautir, 5-7, af ungu sundfólki sem var mætt á útiæfingu þar sem eitthvað var um að vera í innilauginni. Einn af þeim sem var fyrir á braut 7 þegar æfingin byrjaði var alls ekki ánægður og það kom til orðaskipta milli hans og eins ungs þjálfara. Ég hélt mínu striki ásamt nokkrum öðrum á braut 8. Synti í hálftíma, 600m, og veit ekki hvort þessi sem þurfti að hrökklast af braut 7 kláraði sitt morgunsund á einnhverri annarri braut. Þjálfarinn hafði sagt að þessar brautir væru fráteknar en þá hafði láðst að stilla upp skiltinu sem yfirleitt er notað ef sundæfingar fara fram á einhverjum brautum í útilauginni. Var mætt til nosrku esperanto vinkonu minnar rétt rúmlega tíu. Stoppaði hjá henni í rúmlega klukkustund og við lásum þrjár bls. í Kon-Tiki. Þegar ég kom heim um hálftólf kláraði ég að pakka niður í stærri töskuna. Kvaddi Odd um tólf leytið, fermdi bílinn og kom við hjá N1 syninum við Gagnveg áður en ég brunaði austur. Notaði tækifærið til að athuga með þrýstinginn á dekkjunum. Var komin til pabba um tvö leytið. Hann var ekki inni en þó ekki langt undan. Hann hafði skroppið í Bauhaus í Reykjavík í vikunni og keypt sér nýtt sláttuorf sem hann var að nota í fyrsta skipti. Tók sér nokkrar pásur við verkið en kláraði þó og reif þá fram sláttuvélina. Sláttuvélin gafst hinsvegar upp áður en pabbi náði að klára að slá blettinn á bak við hús. Var með soðin þorsk og sætar kartöflur í kvöldmatinn.
7.6.25
Nefnilega
Það sem þessi tími þeytist áfram við leiki og störf, aðallega leiki. Næstum því sex vikur síðan mér var sagt upp og mér finnst ég enn vera í fríi og eiga eftir að gera svo margt í því fríi. Flesta daga er ég glaðvöknuð frekar snemma og gærdagurinn var einn af þeim flestu dögum. Morgunrútínan var samt ekki 100% hefðbundin. Sleppti lóðaæfingum viljandi, kallaði það eins konar hvíldardag. Ég fór heldur ekki í sund því við kaldapotts vinkona mín vorum búnar að mæla okkur mót í Nauthólsvík þegar opnaði þar. Á sjósundsdögum þarf ég að passa að vera búin að fá mér að borða áður en ég fer að heiman. Í gær fékk ég mér gríska jógúrt með chia fræum, kasjúhnetum, smá granateplum, bláberjum og fleiru sem mér finnst gott að blanda við og hefur góð áhrif á mallakútinn. Var komin í Nauthólsvík rétt fyrir opnun og þar beið kaldapotts vinkona mín. Það var mun rólegra á svæðinu þótt við værum ekki alveg einar. Sjórinn innan við tíu gráður og við fórum þrisvar sinnum í hann, einu sinni í lónið, tvisvar í gufuna og tvisvar í pottinn. Gáfum okkur extra góðan tíma líkt og á miðvikudaginn í síðustu viku og vorum tæpa tvo tíma. Á heimleiðinni kom ég við á tveimur stöðum. Seinni staðurinn var Fiskbúð Fúsa þar sem ég keypti m.a. harðfisk. Kom heim upp úr klukkan hálfeitt. Fór ekki aftur út fyrr en rétt fyrir fjögur en þá fór ég í göngutúr, stóran hring í kringum Öskjuhlíðina. Þegar ég var rúmlega hálfnuð settist ég smá stund á bekk við HR þannig að símtækið skráði á mig tvo mislanga göngutúra; 3,78km og 1,88km samtals á uþb 5 korterum. Klukkan var næstum því hálfsex þegar ég kom heim aftur. Horfði á vináttulandsleikinn í fótbolta karla við Skota en var líka að lesa. Þegar seinni hálfleikur var nýlega byrjaður hringdi fyrrum samstarfskona og jafnaldra úr kortadeild í mig og við spjölluðum saman í þrjú korter. Það var annars svo merkilegt að mér hafði verið hugsað til hennar tveimur tímum fyrr en endað þá hugsun á að hún myndi örugglega hringja fljótlega í mig.
6.6.25
Nokkrir
Þar sem ég var glaðvöknuð um fimm í gærmorgun en ekki alveg tilbúin að fara á fætur byrjaði ég daginn á því að lesa. Svo sinnti ég hefbundinni morgun rútínu áður en ég fór í sund um hálfátta. Það var búið að setja kaðal á milli brauta 7 og 8 sem er mjög sjaldgæft. Ég synti 300m á braut 8 áður en ég færði mig yfir á braut 7 og synti 400m í viðbót. Fór tvisvar í þann kalda, um 20 mín í gufu og korter í sjópottinn áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Var komin heim á ellefta tímanum. N1 sonurinn var í vaktafríi en þegar hann fór á stjá dreif hann sig með bílinn sinn í skoðun og verslaði svo á heimleiðinni. Ég og bróðir hans skruppum á þvottastöðina Löður við Fiskislóð um miðjan dag og svo í Krónuna.
En nú ætla ég að telja upp þá fimm titla af bókasafnsbókunum sem ég er eða á eftir að lesa; Frosin sönnunargögn eftir Ninu von Staffeldt. Kom út fyrst á dönsku 2016 en á íslensku árið 2021. Skuggadrengur eftir Carl-Johan Vallgren, Fuglinn í fjörunni eftir Ann Cleeves, Miðnæturbókasafnið eftir Matt Haig og Þegar sannleikurinn sefur eftir Nönnu Rögnvaldardóttur. Ég er byrjuð á síðast nefndu bókinni. Búin með tvær smásögur af 7 og alveg með hinar bækurnar af þessum sem ég minntis á í færslu gærdagsins.
5.6.25
Iða ekki í skinninu
Þótt ég hafi lagt mig í klukkutíma um miðjan dag á mánudag og verið sofnuð fyrir klukkan hálfellefu um kvöldið svaf ég alveg til klukkan sjö í gærmorgun. Var frekar hissa þegar ég vaknaði því yfirleitt er ég vöknuð áður en klukkan er orðin sex. Að sjálfsögðu sinnti ég minni hefðbundnu morgunrútínu nema ég fór ekki í sund. Borðaði afgang af hafragraut um hálftíu og var mætt í Nauthólsvík á slaginu tíu. Þar var þá þegar kominn hópur af krökkum á ýmsum aldri og umsjónafólk þeirra. Ég var komin út í sjó tíu mínútum yfir tíu og svamlaði um í rétt rúmlega 9°C sjónum í uþb tíu mínútur. Var hálftíma í gufunni en það var eiginlega eingöngu vegna þess að krakkarnir voru svolítið á rápinu út og inn og ekki alltaf að hugsa um að loka á eftir sér svo það kólnaði í rýminu inn á milli. Fór aftur í sjóinn í 7 mínútur og var svo í tæpan hálftíma í pottinum áður en ég sá að það var lag á að athafna sig í klefanum. Næst lá leiðin á bókasafnið þrátt fyrir að vera ekki búin að lesa síðustu bókina og hafa enn til þess viku. Skilaði 5 bókum af sex og kom með 8 bækur með mér heim. Ein af þeim bókum var reyndar bók með ferskeytlum og örfáum limrum sem ég renndi yfir og kláraði strax í gær. Ég kláraði reyndar líka bókina sem ekki var með skilabókunum. Nú er spennandi að vita hvað ég næ að lesa margar af bókunum á vikunni sem ég hef. Í gærkvöldi byrjaði ég á bók sem heitir; með minnið á heilanum FRÁSAGNIR ÚR FJARLÆGUM BERNSKUHEIMI eftir Þórhildi Ólafsdóttur. Þessi bók er nýkomin út og sú sem hana skrifar og er að skrifa um minningar og minningabrot frá því hún var innan við 10 ára. Áður en ég fór á fætur í morgun byrjaði ég á annarri bók; Herbergi í öðrum heimi eftir Maríu Elísbet Bragadóttur. Þetta er smásögusafn sem kom út 2020. Báðar þessar bækur eru þannig að ég mun líklega ekki vera lengi að gleypa þær í mig. Annars hitti ég einn fyrrum vinnufélaga minn á bókasafninu en hann er búinn að vinna þar í rúm þrjú ár. Var reyndar á bókabíl fyrsta árið. Kom heim um tólf. Fór aftur út um þrjú í klukkustundar göngutúr um Öskjuhlið sem skiptist í tvennt þar sem ég settist aðeins niður við svæðið þar sem flest trén voru felld í vor.
4.6.25
Svefninn er skrýtið fyrirbæri
Þrátt fyrir mjög kaflaskiptan og eiginlega of lítinn svefn í fyrrinótt var ég vöknuð um sex í gærmorgun. Hefðbundin morgunrútína gekk vel fyrir sig en ég var mun lengur að koma mér af stað í sundið en oft áður. Var komin örfáum mínútum á undan kalda potts vinkonu minni og fór því beinustu leið í sjópottinn í staðinn fyrir að byrja á að synda. Það er líka í góðu lagi að snúa rútínu og venjum við. Fyrst í stað var ég samt ekkert viss um að ég myndi endilega synda neitt en hélt þeim möguleika opnum með því að vera með sundgleraugun vafin um vinstri úlnliðinn. Fljótlega eftir að vinkonan mætti fórum við fyrstu ferðina í þann kalda. Náðum alls fjórum ferðum, tveimur í þann heitasta og góðri gufuferð áður en hún þurfti að fara. Þá fyrst tók ég ákvörðun um að skella mér smá stund á brautir 7 og 8. Það var frekar hvasst og nokkur öldugangur í lauginni. Synti 400m. Hafði ekki haft sinnu á því að "festa" sundskóna og þeir gerðu tilraun í millitíðinni til að stinga af. Sundlaugavörður bjargaði þeim í fyrra skipti en annar skórinn fauk aftur og þá út í laug. Handsamaði hann og fann hinn fljótlega eftir að ég var búin að synda. Kom heim um hálftíu. Gærdagurinn leið svo við ýmiskonar dútl. Fann smá villu í útsaumsverkefninu og setti það aðeins til hliðar. Var að spá í að láta það vera í nokkra daga. Um tvö fór ég að finna fyrir því að ég hafði ekki sofið vel um nóttina. Lagði mig aðeins í stofusófann og svaf í uþb klukkustund. Var mun sprækari eftir að ég vaknaði aftur. Hringdí í pabba sem var að vinna að verkefni út í skúr og einnig í konu eins frænda míns sem búsett eru á Selfossi. Eftir það var ég alveg til í að laga villuna í saumaverkefninu. Horfði á landsleikinn í knattspyrnu kvenna, Ísland - Noregur 0:2.
3.6.25
Í löngu eða stuttu máli
Var vöknuð, komin á fætur og búin að gera æfingar með 2kg lóðum um sex. Klukkan var samt farin að nálgast hálfátta þegar ég dreif mig loksins af stað í sund. Synti aðeins 400m, fór tvisvar í þann kalda og 10 mínútur í sjópottinn. Í heildina tók þessi sundferð rétt rúma klukkustund og ég var mætt í osteostrong korter fyrir níu. Áður en æfingarnar þar byrjuðu var ég spurð hvort ég vildi færa tímann í næstu viku því það er annar í hvítasunnu nk mánudag og því lokað. Ég ákvað að vera ekkert að finna annan tíma þá vikuna heldur mæta aftur eftir hálfan mánuð. Kom heim um hálftíu. Hringdi fljótlega í þá þriðju sem var sagt upp í seðlaveri RB fyrir rétt rúmum mánuði. Spjölluðum í tæpan hálftíma. Hún er ekki heldur búin að tala við félagið og hefur svipaða upplifun á tímanum og ég, að hann sé að líða alltof hratt þrátt fyrir að vera ekki að vinna. Á tólfta tímanum bjó ég mér til hafragraut og um hálfeitt var ég komin í Nauthólsvík. Sjórinn rétt rúma tólf gráður og ég fór tvisvar sinnum tíu mínútur í hann, tíu mínútur í gufuna á milli ferða og var svo í næstum hálftíma í pottinum áður en ég fór upp úr og heim. Áður en ég fór úr bílnum og inn gerði ég tilraun til að hringja í tvíburahálfsystur mína. Hún svaraði ekki en ég var rétt komin inn og búin að ganga frá sjósundsdótinu þegar hún hringdi til baka. Við töluðum saman í rúma klukkustund. Einhvern veginn leið svo dagurinn án þess að ég færi út aftur en það hefði auðvitað verið alveg upplagt að skreppa í stuttan göngutúr og safna fleiri skrefum.
2.6.25
Líflegheit
Mér leist ekkert á blikuna þegar ég rumskaði alltof snemma á fimmta tímanum í gærmorgun. Skrapp á salernið og skreið svo aftur upp í rúm. Sem betur fer steinsofnaði ég aftur og vissi næst af mér rétt fyrir klukkan átta. Þá dreif ég mig á fætur. Sá vísbendingar um að pabbi væri búinn að koma fram, fá sér eitthvað og taka niður daglegu tölurnar. Um helgar fer hann svo aftur upp í og það er misjafnt hvenær hann kemur á fætur. Hann er þó oftast ekki steinsofandi heldur er að hlusta á útvarpið, dottar kannski inn á milli. Ég fékk mér sítrónuvatn og kveikti á tölvunni hans pabba. Var svo að vafra um á netinu næsta einn og hálfan tímann. Þá fékk ég mér mandarínu, harðsoðið egg og vatnsglas. Lagði nokkra kapla og fór svo aftur í tölvuna. Pabbi kom fram upp úr klukkan tíu. Eftir það færði ég mig inn í stofu. Gekk frá enda á nýjasta eldhúshandklæðinu og tók svo fram saumana. Við fengum okkur skyr í hádeginu. Um hálftvö skrapp ég út í smá göngutúr, rétt rúmlega 2,5km hring á uþb hálftíma. Ekkert löngu eftir að ég kom til baka kom Bríet frænka í heimsókn en hún og kærastinn hennar eru eiginlega flutt í sveitina hans því þau eru að hjálpa foreldrum hans við búskapinn. Systurdóttir mín var mjög hress og gaf sér góðan tíma í spjall. Lætur hátt rómur og segir svo skemmtilega frá. Hún stoppaði hátt í tvo tíma og tók eitthvað af dóti með sér þegar hún fór. Um fimm leytið setti ég upp kartöflur og steikti keilu sem ég var búin að bita niður upp úr eggi og smá hveiti sem ég var búin að krydda með best á lambið (þótt þetta væri fiskur), svörtum pipar og cayanne. Vorum búin að borða fyrir klukkan sex en ég kvaddi þó ekki fyrr en um hálfátta og var komin heim rétt fyrir níu.
1.6.25
Óskaplega afslöppuð og vel út sofin
Í gærmorgun var ég komin á fætur og búin að gera lóðaæfingar fyrir klukkan sex. Næstu tæpu tveir tímar liðu frekar hratt. Var komin á bílaplanið við Laugardalslaug um leið og klukkan var að slá átta. Fór beint á braut 8 og synti 700m á 35 mínútum. Hitti "hlaupastrákana" mína í fyrstu ferðinni í kalda og var svo búin að vera nokkrar mínútur í sjópottinum þegar kalda potts vinkona mín mætti. Við náðum þremur ferðum í þann kalda og góðri gufuferð áður en ég kvaddi og fór í esperanto hitting. Var komin til Inger um tíu. Hún bauð upp á hafragraut áður en við fórum með tebollana yfir í forstofuherbergið og lásum þrjár blaðsíður í Kon-Tiki. Hittingurinn varði aðeins í rúman klukkutíma en við nýttum þann klukkutíma mjög vel. Kom við á AO við Flugvallarveg/Öskjuhlíð og fyllti á tankinn. Gekk frá sund- og esperantodótinu heim, kláraði að pakka og um tólf kvaddi ég þann soninn sem var kominn á fætur og skilaði kveðju til hins. Keyrði austur um Þrengslin. Kom við í Fossheiðinni og stoppaði þar í um klukkustund. Ég var svo komin til pabba upp úr klukkan hálfþrjú. Dagurinn leið mjög hratt og þar sem veðrið var með ágætasta móti ákvað pabbi að grilla á sjötta tímanum. Ég sá um að setja upp kartöflurnar og leggja á borð. Annars fór tíminn í spjall, kaplakeppni og ég greip í prjónana mína.