Ég kveikti á tölvunni í kvöld til þess að senda Veitum álestrartölur af rafmagns- og hitamælum íbúðarinnar. Báðir þessir mælar eru niðri í kjallara, annar í þvottahúsinu en hinn á ganginum fyrir framan.
Eftir vinnu í gær tók ég strætó á Hlemm og nr 14 þaðan í Laugardalinn. Kaldi potturinn var lokaður og tómur en ég synti í tæpan hálftíma, flatmagaði um stund í sjópottinum og endaði að gufu áður en ég fór upp úr. Var komin heim upp úr klukkan sex og byrjaði á því að hringja í pabba.
Hluta af vinnutímanum í dag notaði ég í að hreinsa til á heimasíðu óháða safnaðarins. Fór yfir allar tilkynningasíðurnar, afritaði textana yfir í word-skjal og ef í ljós komu leiðinda linkir eftir innbrot þá eyddi ég þeim textum einfaldlega út. Ég á aðeins eftir að athuga hvort svona linkir leynist í textunum sem eru bundnir við hnappana í svörtu stikunni.
Fór beint í sund eftir vinnu. Nú var kaldi potturinn opinn svo ég fór beint ofan í hann þegar ég kom út. Þar fyrir var maður sem ég veit að mælir hitastig pottsins reglulega svo ég spurði hvort hann hefði mælt í dag og hvað hitastigið væri. Jú, hann hafði mælt pottinn innan marka, 7,8°C. Við fórum aðeins að ræða um kalda potta og sjóböð og ég gleymdi tímanum, sat í pottinum í rúmar sjö mínútur. Synti svo í hálftíma og fór aðeins í sjópottinn áður en ég fór uppúr. Var komin heim á svipuðum tíma og í gær.