Í gær notaði ég lánsbílinn til að komast í vinnuna. Var mætt nokkrum mínútum fyrir sjö, örlítið á undan hinni sjö vaktinni. Fyrir utan kaffi og matartíma var ég að allan tímann milli sjö og rúmlega tvö. Mest af því var bókhald, mánaðamótatalningar og undirbúningur undir samantekt vegna febrúarmánaðara.
Eftir vinnu skrapp ég að versla í Krónuna við Fiskislóð/Granda. Aðeins öðruvísi verslunartími heldur en ég er vön en ég hitti samt Bjössa, fyrrum söngfugl úr DKR, aðeins og svo einn bekkjarbróður minn úr Kennó. Þegar ég kom heim með vörurnar fékk ég báða strákana mína til að koma út og taka fyrir mig pokana inn.
Ætlaði mér að vera búin að ljúka aðeins meiri gestamóttöku-undirbúningi áður en systir mín og fjölskylda kæmu en bæði festist ég í að fylgjast með Val og FH keppa í undanúrslitum bikarsins og svo komu þau fyrr en ég reiknaði með. En þetta var allt í góðu lagi og gott og gaman að fá þau í heimsókn. Kvöldið leið alltof hratt. Yngri systurdóttir mín vildi helst sofa á bedda inni hjá pabba sínum og mömmu en þegar ég bauðst til að lesa fyrir hana áður en við færum að sofa samþykkti hún að sofa í stofunni með mér.