17.1.26

Búið að tæma leigu-geymslurými

Vaknaði um sex. Fór þó ekki á fætur fyrr en um sjö. Var mætt á braut 8 í Laugardalslauginni um hálfníu og svo til esperantovinkonu minnar um tíu. Við lásum 4 bls. í Kon-Tiki. Ákvað að renna bílnum í gegnum Löður við Fiskislóð eftir esperanto-hittinginn. Í sjálfu sér var það kannski galið því ég vissi að bíllinn yrði fljótlega næstum því jafn skítugur aftur. Sótti Davíð Stein og við komum við heima þar sem ég gekk frá sund- og esperantodótinu. Fórum að því búnu niður í geymslu þar sem ég endurraðaði smá af dótinu. Svo lá leiðin í Hafnarfjörð, nánar tiltekið að Einhellu 4 þar sem við tæmdum úr geymslu númer 82. Allt dót frá Davíð Steini. Það komst allt í bílinn. Fórum með megnið af því í geymsluna mína. Sonurinn sá um að raða dótinu sínu og gerði það þannig að það er enn gott pláss og aðgengi að megninu til, fer eftir því í hvaða kassa þú þarft að komast. Svo fórum við með restina yfir í geymsluna sem tilheyrir íbúðinni sem hann er  meðleigjandi í. Komumst með allt í einni ferð úr bílnum en vorum líka með báðar hendur fullar. Ég fékk svo aðeins að kíkja upp í íbúð og heilsa upp á aðra vinkonuna. Ég var komin heim aftur um þrjú leytið.

16.1.26

Sigur í fyrsta leik á EM karla í handbolta

Var í hlandspreng þegar ég rumskaði eftir um þriggja tíma svefn. Þegar ég var búin að tæma blöðruna, þvo mér og koma mér upp í rúm aftur klóraði ég mér aðeins í nebbanum með því að bora smá upp í aðra nösina. Þá gerðist það sem ekki hefur gerst í mörg ár ég fékk blóðnasir. Glaðvaknaði við þetta. Það tók ekki langan tíma að stoppa rennslið en ég ákvað að kveikja á lampanum og lesa í smá stund. Þegar ég lagði frá mér bókina hálftíma síðar ákvað ég að endurstilla vekjarann og  sleppa sundferð. Sofnaði fljótlega aftur og vaknaði um hálfsjö. Gerði æfingar með 1,5kg lóðunum, fékk mér morgunmat, tannburstaði mig og var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir klukkan átta. Einn skoðunarmaður sem hefur verið í frumherja í Klettagörðum var mættur ásamt skoðunarmanninum sem er búinn að vinna í Skeifunni sl 14 ár. Sá fór svo heim um hádegið þannig að við vorum bara tvö frá ca hálfeitt og til klukkan fjögur. Það gekk ágætlega upp en það komu samt upp mál í afgreiðslunni sem ég náði ekki að leysa og bíða því nánari skoðunnar  eftir helgi. Við lokuðum rétt rúmlega fjögur. Ég gerði mér ferð í Fiskbúð Fúsa og kom svo aðeins við í N1 í Borgartúni til að hitta aðeins á N1 soninn og staðfesta geymslutæmingu um helgina. Hringdi í Odd og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni heim. Kom heim í þann mund sem fyrsti leikur Íslands á EM hófst, unnum Ítali með 13 marka mun.

Samfelldur átta tíma svefn

Var að losa svefninn rétt um það bil sem vekjarinn fór í gang. Ég hefði svo sem alveg verið til í að snúa mér á hina hliðina en var ákveðnari í að byrja daginn á sundferð. Sundferðin tók rétt rúman klukkutíma og ég var mætt í vinnu tæpu korteri fyrir klukkan átta. Ég heyrði á tali skoðunarmannana, á níunda tímanum, að stöðvarstjórinn þyrfti að hætta á hádegi. Um tíu leytið talaði ég við hann um hvort ég mætti fara aðeins fyrir hálf. Hann gaf samþykkið og sá gamli var upplýstur. Stöðvarstjórinn lét mig hafa lyklana af stöðinni þar sem hann mætir ekki aftur fyrr en eftir helgi. Allt gekk þokkalega, það var mismikið að gera í afgreiðslunni og það komu upp ýmis mál sem ég þurfti að fá aðstoð við að leysa. Lærði semsagt sitthvað nýtt í dag. Á fjórða tímanum var smá dauð stund og sá gamli ákvað að við skyldum bara loka stöðinni klukkan fjögur. Mér leið ekki alltof vel með þá ákvörðun hans og setti mig í samband við þá sem græjar skipulagið vikulega og spurði hvort þetta væri í lagi. Svarið var að það væri ekki vel séð svona dags daglega að hætta fyrir ákveðinn lokunartíma en að það myndi vera í lagi í þetta sinn ef við settum miða á hurðina. Sá gamli var svo farinn á slaginu fjögur en ég stimplaði mig út tíu mínútum seinna, slökkti, setti kerfið á og læsti báðum dyrum. Ástæðuna fyrir því að ég þurfti að hætta fyrr skrifa ég um seinna en ég þurfti að vera komin á ákveðinn stað klukkan hálffimm. Venjulega er maður ekki lengur en um tíu mínútur að komast þangað en það er heldur lengri tími í síðdegisumferðinni. Ég var komin heim rétt fyrir klukkan sex.

14.1.26

Osteostrong og sjósund eftir vinnu

Ég vaknaði helst til of snemma miðað við að ég ætlaði ekki í sund fyrir vinnu. Greip í bók um fimm í morgun en fór svo á fætur um hálfsex leytið. Gerði æfingar með 1,5kg lóðunum. Mætti í vinnuna rúmlega hálfátta. Dagurinn var mis annasamur og verkefnin voru frekar fjölbeytt. Alveg farin á kunna ýmislegt en þarf samt aðstoð inn á milli, sem er bara eðlilegt. Stimplaði mig út rétt áður en klukkan sló hálffimm. Áður en ég lagði af stað yfir í Hátúnið hringdi ég í mann frænku minnar. Hann hefur unnið hjá Brimborg til margra ára og ég var að spyrja hann um stöðu á afgreiðslu sem ég sendi beiðni um á mánudaginn var. Rétt eftir spjallið við hann hringdi vinnufélagi hans í mig til að upplýsa mig um stöðuna á þessari afgreiðslu. Meira um þessi mál fljótlega. Vel gekk í osteostrongtímanum. Þetta var næst síðasti tíminn af árskortinu þannig að ég þarf að endurnýja kortið næst eða í síðasta lagi eftir hálfan mánuð. Næst lá leiðin í Nauthólsvík og spjallaði ég við pabba í gegnum wifi-ið í bílnum á meðan ég keyrði þangað. Sjórinn var annars afar hressandi, -1,1°C, spegilsléttur og ekki svo langt út í. Kældi mig tvisvar, fór í gufu milli sjóferða og endaði smástund í heita pottinum. Kom heim upp úr klukkan hálfsjö. 

13.1.26

Gott að byrja daginn á sundspretti

Ég rumskaði upp úr klukkan fimm og þurfti auðvitað að skreppa á pisseríið. Þar sem ég var glaðvöknuð eftir það skrepp kveikti ég ljós og greip í bækur. Ljóðabækurnar sem ég er að lesa eru; Nokkur orð um notagildi lífsins og áður óþekkt ljóð eftir Sigmund Erni Rúnarsson (af safninu, kláraði hana í morgun) og Þyngsta frumefnið eftir Jón Kalman Stefánsson sem ég er með í láni frá esperanto vinkonu minni. Mæli alveg með þessum bókum. Fór á fætur korter fyrir sex og eftir að hafa klætt mig og búið um greip ég smástund í eins kílóa lóðin mín. Var komin á braut 8 í Laugardalslaug tuttugu mínútum fyrir sjö og stimplaði mig inn í vinnu rétt rúmum klukkutíma síðar. Lærði ýmislegt í dag og komst einnig að því að ég er alveg hætt að vera feimin við að svara símanum. Það komu út tölur um símsvörun í símaveri í viku tvö og ég var með 69 fleiri svöruð símtöl heldur en í viku eitt, fór úr þremur í sjötíuogtvö. Stimplaði mig út rétt áður en klukkan varð hálffimm og fór beint heim. Var tuttugu mínútur á leiðinni og eftir að hafa gengið frá sunddótinu og kveikt á sprittkerti í saltkertastjakanum settist ég í stofustólinn og lét fara vel um mig í dágóða stund, kannski alltof lengi. Mætti alveg fara að vinna í að fara í stutta göngutúra eftir vinnu en það getur verið strembið að drífa sig út þegar maður er kominn inn í hlýjuna og sestur niður.

12.1.26

Aftur kominn mánudagur

Vaknaði fyrir klukkan hálfsex, líklega alveg hálftíma áður en vekjarinn átti að hnippa í mig. Sofnaði ekki aftur svo ég slökkti á vekjaranum og dreif mig á fætur. Hafði þannig ágætis tíma til að hafa mig til, fá mér morgunmat og gera nokkrar æfingar með tveimur 1kg lóðum. Var mætt á braut 8 í Laugardalslauginn tuttugu mínútum fyrir sjö. Synti 300m og hafði samt tíma til að fara í þann kalda, smá stund í gufuna og nokkrar mínútur í sjópottinn. Stimplaði mig inn áður en klukkan varð korter í. Báðir skoðunarmennirnir voru mættir og afhenti ég þeim sem var að koma úr fríi lyklana af skoðnunarstöðinni. Hann var mjög feginn, mundi ekki eftir því að hafa látið nöfnu mína hafa þá og hélt að þeir væru glataðir. Vinnudagurinn leið þokkalega hratt. Verkefnin komu í skorpum og voru af ýmsum toga. Hætti á slaginu hálffimm og fór beinustu leið heim. Talaði við pabba á meðan ég var á ferðinni. Hann var að vinna í tuskuþvotti. 

11.1.26

Sunnudagur

Dagurinn hófst alltof snemma með ferð á pisseríið einhvern tímann á fimmta tímanum. Kúrði mig niður aftur og gleymdi mér í smá stund en þurfti svo að fara aftur á salernið um hálfsex. Fór aftur upp í rúm en að þessu sinni kveikti ég á náttborðslampanum, greip í bók og setti á mig lesgleraugun. Ein af bókunum sem ég kom með heim að safninu í gær er; Sólrún eftir Sigurlín Bjarney Gísladóttur, saga um ferðalag. Kaflarnir eru stuttir og sagan spennandi. Bókin er ekki löng en ég á eftir að lesa um 100 af 146. Þegar ég hætti að lesa stillti ég vekjarann á rúmlega níu og náði að sofna aftur. Var mætt á braut 8 í Laugardalslaug á slaginu 10, á sama tíma og kalda potts vinkona mín. Hún synti 300m og beið svo eftir mér í einum heita pottinum á meðan ég kláraði 500m. Fórum svo alls fjórar ferðir í þann kalda. Ég var komin heim aftur upp úr klukkan tólf. Um fjögur leytið skrapp ég út í stuttan göngutúr. 

10.1.26

Dagurinn flaug hjá

Rumskaði um hálffjögur og varð að skreppa á pisseríið. Gat ekki sofnað strax aftur svo ég kveikti ljós og tók fram bók, eina af jólabókunum um; Fólkið í vitanum. Er búin að lesa um þrjá af 12 vitavörðum og komast að því að börn vitavarðarins Valdimars Stefánssonar sem var númer tvö í röðinni af tólf voru skyld mér. Þekkti tvö af þeim, Hörð og Erlu og er Erla enn á lífi komin á nítugasta og áttunda árið. Hún og pabbi eru þremenningar.  Ég  er líka að lesa: Kalmann eftir Jozchim B. Schimdt þýdd af Bjarna Jónssyni. Búin með fyrstu 50 bls. af 290. Um hálffimm stillti ég vekjarann á 7:20 og slökkti ljósið aftur. Sofnaði fljótlega og svaf alveg þar til vekjarinn ýtti við mér. Var mætt í sund rétt fyrir hálfníu. Synti 600 m á brautum 7 og 8, meirihlutann á bakinu. Þvoði mér um hárið og var komin yfir til norsku esperanto vinkonu minnar á ellefta tímanum. Stoppaði í rúman klukkutíma og notuðum við þann tíma í spjall. Skrapp í Krónuna út á Granda og þar sem ég hafði fengið skila-áminningu um morguninn lá leiðin svo á Kringlusafnið í Kringlunni. Var mætt þangað hálftíma fyrir opnun og rölti ég því yfir í Heilsuhúsið. Var mætt aftur stuttu áður en safnið opnaði. Skilaði þremur bókum af fimm og tól fjórar í staðinn, eina ljóðabók, Kon-Tiki og tvær skáldsögur. Var komin heim aftur fyrir klukkan tvö og svo leið dagurinn mjög hratt við alls konar dundur hér heima við.

9.1.26

Önnur helgi nýs árs framundan

Það var vekjarinn sem ýtti við mér fímm mínútum fyrir klukkan sex í morgun. Dreif mig á fætur, fékk mér morgunmat, tannburstaði mig, fyllti á vatnsflöskuna, tók saman sunddótið og var mætt í Laugardalinn um hálfsjö. Synti 300m áður en ég fór fyrstu ferðina af þremur í 5,5°C kalda pottinn. Sleppti alveg gufunni en náði uþb tíu mínútna slökun í sjópottinum áður en ég fór síðustu ferðina í þann kalda og svo upp úr. Stimplaði mig inn korter fyrir átta. Vinnudagurinn var mis annasamur en hann leið hratt og örugglega. Hringdi í pabba upp úr klukkan fjögur og spjallaði við hann á meðan ég keyrði yfir í Fiskbúð Fúsa. Pabbi var að vinna í því að taka niður jólin og lét bara vel af sér. Hjá Fúsa keypti ég harðfisk, ýsu og nokkrar fiskibollur. Næst lagði ég leið mína í N1 við Borgartún og var mætt þangað korteri áður en vinnutíma N1 sonarins lauk. Á leiðinni þangað spjallaði ég við æskuvinkonuna. Skutlaði honum heim og við notuðum tækifærið og spjölluðum um næstu skref varðandi tæmingu á snjallgeymslunni sem ég er búin að vera með á leigu í tæpt hálft ár. Ég er búin að segja upp leigunni og við þurfum að vera búin að tæma fyrir 31. janúar. Ákváðum að fara í málin eftir viku, þriðju helgina í mánuðinum. Kom heim stuttu fyrir klukkan sex. Klukkutíma setti ég upp egg, rósakál og ýsuna í soðið, þrír pottar. Fiskibollurnar fóru í frysti.

8.1.26

Lítið eftir af vinnuvikunni

Gemsinn minn hringdi um átta í gærkvöldi og ég vissi hver var að hringja áður en ég tók upp símann og svaraði. Fyrrum samstarfskona mín og jafnaldra var á línunni og við spjölluðum saman í rúman hálftíma. Í morgun var ég vöknuð á undan vekjaranum og á planið við Laugardalslaug um það leyti sem var opnað. Stimplaði mig inn í vinnu ca korteri fyrir átta. Bókaði í nýja kerfinu og gerði upp með athugasemd. Fljótlega eftir að afleysinga-skoðunarmaðurinn mætti spurði hann mig hvort ég hefði verið í sundi og þegar ég játaði því sagðist hann hafa séð mig í sjópottinum en var ekki viss. Það voru ekki margir í pottinum í morgun en ég var ekkert að spá í hvort ég þekkti einhvern eða ekki. Afsakaði mig samt á þann veg að ég þekkti hann ekki í sundskýlu. Það er nú samt oftast á hinn veginn að sundfélagar þekki stundum ekki samferðafólkið í fötum. En vinnudagurinn gekk annars þokkalega vel. Framkvæmdastjórinn kom um hádegisbilið til að leiðabeina mér á Noona kerfið varðandi bókanir á ökutæki í skoðun. Stimplaði mig út rétt áður en klukkan varð hálffimm og fór beinustu leið í Borgartúnið til að hitta N1 soninn og bjóða honum far heim sem hann þáði með þökkum. Hann var búinn klukkan fimm og bað mig um að skutla sér fyrst í Krónuna sem er þarna rétt hjá vinnustaðnum hans.

7.1.26

Osteostrong og sjósund eftir vinnu í dag

Hafði stillt vekjarann á 6:20 en vaknaði klukkan 5:45. Hafði því góðan tíma í alls konar morgunverk og rútínu, m.a. lestur og æfingar með lóðum. Var mætt í vinnu rétt upp úr klukkan átta. Það var aðeins rólegra í vinnunni í dag heldur en fyrstu tvo daga vikunnar en þó komu tarnir inn á milli. Stimplaði mig út um hálffimm og var komin í Hátúnið korteri seinna og í Nauthólsvík áður en klukkan varð hálfsex. Sjórinn -0,1°C, smá ferð á logninu, öldugangur og fjara. Fór tvisvar sinnum út í, gaf mér góðan tíma í gufunni milli ferða og var svo smá stund í pottinum áður en ég fór upp úr og heim. Klukkan var orðin hálfsjö þegar þangað kom. 

6.1.26

Þrettándinn

Vaknaði korteri fyrir sex eða fimm mínútum áður en vekjarinn átti að hnippa í mig. Var komin á braut 8 tuttugu mínútum fyrir sjö og synti 300m, beint í kalda pottinn á eftir og sat svo í gufunni í tæpar tíu mínútur áður en ég fór í kalda sturtu og smástund í sjópottinn. Tók svo stutta dýfu í þann kalda áður en ég fór upp úr og í vinnuna. Mætti korter fyrir átta og eftir að hafa stimplað mig inn og opnað helstu forrit gerði ég upp í gamla kerfinu. Dagurinn var frekar annasamur en það komu stuttar pásur inn á milli. Kerfin eru enn að stríða mér en ég er líka stundum næstum búin að gera gloríur. Það kemur sér vel að afleysinga-skoðunarmaðurinn kann ýmislegt og vill líka frekar að ég spyrji of oft frekar en að gera eitthvað sem ég er ekki viss um. Það er ágætis regla. Stimplaði mig út um hálffimm. Var eitthvað að spá í að kíkja við í Brimborg en þegar ég var að koma afleggjaranum í Breiðholtið sá ég að ég myndi alls ekki hafa nægan tíma þótt ég myndi vera komin á staðinn áður en klukkan yrði fimm. Í staðinn fór heim og byrjaði á því að fara með jóladótið niður í geymslu. Tók lyftuna niður. Varð svolítið hissa þegar ég varð vör við að geymslan var opin, hafði ekki athugað að hurðin hafði ekki lokast alveg þegar ég snéri lyklinum rétt fyrir jól. Allt var samt á sínum stað. Passaði að læsa vel á eftir mér og labbaði stigaganginn upp á fjórðu. Hringdi í pabba og spjallaði við hann í nokkra stund eftir að ég kom aftur inn í íbúð.

5.1.26

Ný, heil vinnuvika hafin

Þar sem ég var sofnuð upp úr klukkan tíu í gærkvöldi var ég auðvitað vöknuð fyrir klukkan hálfsex. Þar með ákvað ég að byrja daginn á því að fara í sund eftir að hafa fengið mér morgunmat og vítamín. Var mætt á braut 7 stuttu eftir opnun og synti 300m. Fór upp úr tuttugu mínútur yfir sjö og var mætt í vinnu klukkan korter í átta. Nóg var að gera í vinnunni í allan dag og það komu upp nokkur verkefni þar sem ég varð að fá aðstoð, bæði vegna kerfisvillna og svo eitthvað um að ég var ekki viss um hvort ég væri að gera rétt. Flest allt bjargaðist þetta nú en þegar ég hætti vinnu rúmlega hálffimm stóð eitt hálfklárað verkefni sem ég þarf að klára á morgun. Hringdi í N1 soninn sem fer gangandi í vinnuna þessa dagana og ég ákvað að kippa honum upp. Hann þurfti reyndar að koma við í Nexus í Glæsibæ en þar með fengum við mæðgin smá auka tíma saman. Eftir að hafa skutlað syninum heim til sín kom ég við í AO við Sprengisand/Bústaðaveg og fyllti á bílinn. Klukkan var því alveg að verða sex þegar ég kom heim. Var þá búin að vera að heiman í ca ellefuoghálfan tíma. Hafði gleymt að draga frá glugganum í svefnherberginu og það tekur því ekki héðan af. 

4.1.26

Sunnudagskvöld

Ég fór ekki upp í rúm fyrr en klukkan var langt gengin í ellefu í gærkvöld og las þá í uþb hálftíma áður en ég fór að sofa. Samt var ég vöknuð um hálfsex í morgun. Fór fljótlega fram á pisseríið og fékk mér svo sopa af lýsi áður en ég fór aftur upp í rúm. Reyndi að sofna aftur en varð fljótlega ljóst að það myndi ekki ganga upp. Kveikti þá ljósin, hagræddi koddunum, setti lesgleraugun á nefið og greip í bók. Fór á fætur upp úr klukkan átta. Um níu leytið fékk ég mér harðsoðið egg. Var mætt í Laugardalinn stuttu fyrir klukkan tíu, aðeins á undan kalda potts vinkonu minni. Hún var samt á unda út í laug. Ég var komin á braut 7 á slaginu tíu. Setti upp nýju sundgleraugun og synti 500 m á rúmum 22 mínútum, skriðsund aðra hverja ferð. Eftir þrjár ferðir í þann kalda og tvær í þann heitasta fórum við í gufuna og enduðum svo í sjópottinum. Ég kvaddi rétt fyrir hálftólf. Kom við í Krónunni í Lindum, fyrsta verslunarferðin á nýju ári. Lagði bílnum á planinu fyrir framan aðalinnganginn. Ekkert löngu eftir að ég hafði gengið frá vörunum ákvað ég að taka niður jólin, allt nema seríuna á svölunum. Er þó ekki búin að fara með kassann niður í geymslu. Hafði eitthvað verið að spá í að skreppa út í göngu en í staðinn hringdi ég tvö símtöl og var eitthvað að "imbast" fram eftir degi. 

3.1.26

Laugardagur næstum liðinn

Klukkan var rétt að verða níu í gærkvöldi þegar ég gafst upp, slökkti á sjónvarpinu og háttaði upp í rúm. Greip samt í bók og las í stutta stund: Saklaust blóð í snjó: söguleg skáldsaga eftir Ásgeir Þórhallsson. Ég held að ég hafi verið sofnuð rúmlega hálftíu og vissi næst af mér klukkan hálfsex í morgun. Þá skrapp ég aðeins fram á pisseríið og fékk mér svo matskeið af lýsi áður en ég fór upp í aftur, ekki til að sofa heldur að lesa. Var komin á fætur um hálfátta. Fékk mér eitt harðsoðið egg, vítamín og drakk glas af vatni. Var komin í Laugardalslaug á braut 7 korter yfir átta. Synti 800m, 750m á bakinu og síðustu 50m synti ég skriðsund. Gaf mér góðan tíma í alla rútínu og var komin heim um hálfellefu. Kláraði bókina sem ég gat um hér að ofan og byrjaði á einni jólabókinni: Fólkið í vitanum skráð af Reyni Traustasyni. Horfði á einn ZOO-þátt og var að fara að huga að næstu verkefnum rétt fyrir eitt þegar síminn hringdi. Það var fyrrum samstarfskona úr kortadeild RB og Seðlaverinu sem fékk vinnu hjá Rekstrarvörum í haust. Áður en við vissum af vorum við búnar að spjalla í þrjú korter um allt mögulegt. Hringdi í pabba og Odd. Skömmu fyrir þrjú ákvað ég að skreppa í Útilíf í Kringlunni og leysa út gjafakort sem ég fékk í jólagjöf frá RB jólin 2024. Það var auðvitað galið að fara af stað í útsöluösina, en ég fann stæði á góðum stað eftir smá leit. Valdi fjóra hluti; sundgleraugu, skótöflur til að nota í sundi, nýjan sundpoka og þykkar æfinga/kósýbuxur með víðum skálmum, sem alls kostuðu rétt rúm 31 þúsund þannig að tæpar níuþúsund eru eftir af gjafakortinu. Var komin heim aftur um fjögur.

2.1.26

Fyrsti vinnudagur ársins að kveldi kominn

Ég var vöknuð alltof snemma og byrjaði á því að grípa í bók og lesa í tuttugu mínútur áður en ég fór á fætur og fékk mér morgunmat og lýsi. Var mætt á braut 8 í Laugardalslauginni tuttugu mínútum fyrir sjö. Bandið/gúmmíið slitnaði á sundgleraugunum svo ég var að henda þeim og synda án þeirra. Synti 200m, þar af helminginn skriðsund. Gaf mér tíma í tvær kalda potts ferðir, eina í þann heitasta, nokkrar mínútur í gufunni og tíu mínútur í sjópottinum áður en ég fór upp úr og í vinnuna. Stimlpaði mig nokkru fyrir átta. Hafði alveg tíma til að gera upp í nýja kerfinu áður en ég fór að bóka inn bíla. Það ruglaði samt aðeins systeminu hjá fasta skoðunarmanninum því það kom einn inn á slaginu átta sem ég skráði inn, vissi ekki að hann vildi skoða sína bíla no 1 og 2 á nýju ári. Þeir voru því skoðaðir no 2 og 3. Annars var þokkalega mikið að gera og sem betur fer kom auka skoðunarmaður og var með okkur alveg til fjögur. Eftir vinnu skrapp ég aðeins á N1 við Borgartún til að hitta á N1 soninn sem er nýfarinn að vinna þar alla virka daga milli 9 og 5. Ég var komin til hans um hálffimm og þegar ég vissi að hann hefði labbað í vinnuna ákvað ég að bíða þar til vinnutíminn hans var liðinn og skutla honum heim til sín. Ég er því tiltölulega nýkomin heim, eða fyrir tæpum hálftíma síðan. 

1.1.26

Glænýtt ár!

Vaknaði stuttu fyrir klukkan hálfsjö í morgun. Kúrði í smá stund lengur áður en ég fór fram á pisseríið. Fékk mér matskeið af lýsi og skreið svo aftur upp í rúm og kláraði að lesa skammtímaláns bókina. Sú rúmlega fimmhundruðogfjörutía blaðsíðna spennandi bók endaði þannig að það hlýtur að koma framhald fljótlega. Klæddi mig og bjó um tíu og útbjó mér hafragraut. Var komin í Nauthólsvík rétt fyrir ellefu stuttu áður en opnaði. Svamlaði í sjónum í tæpt korter áður en ég fór í gufu. Eftir næstum tuttugu mínútur í gufunni skrapp ég aðeins aftur út í sjó. Var búin að klæða mig úr hönskunum svo ég held ég hafi ekki verið lengur en tvær mínútur út í áður en ég fór í pottinn. Fór upp úr um tólf leytið. Kom við í Drápuhlíðinni að sækja jólapóst sem var merktur mér. Það reyndist jólakveðja frá Gallup með skafmiða sem á leyndist 300kr. vinningur. Var komin heim fyrir klukkan eitt. Hringdi í pabba en er svo búin að vera að glápa á einhverja þætti, alltaf á leiðinni að grípa í bók eða gera eitthvað annað. Það stefnir í algeran letidag hjá mér.